Tígull 36. tbl 06. árg.

Page 1


tbl. 06. árg. 23. - 29. október 2024

NÝFÆDDIR VESTMANNAEYINGAR

DRENGUR SIGURÐSSON

Fæðingardagur: 26. september 2024

Foreldrar: Guðdís Jónatansdóttir og Sigurður Þór Þórðarson.

Þyngd: 4165 gr eða 16 og hálf merkur.

Lengd: 52 cm

VANTAR MYND AF ÞÍNU BARNI?

Sendu okkur endilega mynd og upplýsingar á tigull@tigull.is .

DENGUR WILLIAMSSON

Fæðingardagur: 20. september

Foreldrar: William Thomas Möller og

Jenný Guðnadóttir

Þyngd: 1820 gr

Lengd: 42 cm

Sjáðu alla nýjustu Vestmannaeyingana inni á TIGULL.IS

FORSÍÐUMYNDIN: Forsíðu vikunnar áhöfn Ísleifs VE ásamt mökum á árshátíð VSV sem fram fór síðastliðinn laugardag. Mynd: Addi í London.

TÍGULL

DREIFING:

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

Dreifing fer fram á miðvikudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

FLUTEX PRO 7 er mött veggjamálning með sýnilegum gljáa, hylur frábærlega vel, há gæða vara sem er umhverfisvæn.

Flutex Pro 7 þekur eins og best verður á kosið og býr yfir vinnslueiginleikum sem tryggir góð afköst og áferð.

- gildir á meðan birgðir endast!

AGNES EMMA LEIKSTÝRIR

DÝRUNUM

Í HÁLSASKÓGI

Á föstudaginn kemur frumsýnir Leikfélag Vestmannaeyja leikritið sívinsæla um Dýrin í Hálsaskógi. Þetta er í fjórða skiptið sem LV setur það upp. Stefna félagsins er einmitt að gera það á 10 ára fresti enda boðskapur leikritsins alltaf góður og gildur, „Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir.“ Í þetta skiptið fellur það í hlut Agnesar Emmu Sigurðardóttur að leikstýra. En hún er einmitt ættuð úr Eyjum og t.a.m. systkini sem hér búa. Við sendum á hana nokkrar laufléttar spurningar til að kynnast henni aðeins betur.

Fjölskylda:

Foreldrar mínir eru Margrét Helgadóttir og Sigurður Óli Hauksson, systkini eru Ingi Rafn Eyþórsson, Eyrún Eva Eyþórsdóttir og Amalía Ósk Sigurðardóttir.

Starf / Menntun:

Ég starfa þessa stundina sem leikari í Stundinni Okkar hjá RÚV. Samhliða því stunda ég nám við Háskólann á Bifröst, BA í skapandi greinum, sem og söngnám hjá Söngskóla Sigurðar Demetz.

Nokkur orð um það sem þú hefur verið að bardúsa fram til þessa?

Seinustu ár hef ég verið að bardúsa við allskonar uppsetningar í leikhúsum og í kvikmyndum. Leikið, leikstýrt, dansað, skrifað ofl.

Hefuru leikstýrt mörgum verkum?

Dýrin í Hálsaskógi er annað verkið í leikhúsi sem ég leikstýri. Fyrsta verkið sem ég leikstýrði var verkið 1001 skór sem sett var upp í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ þegar ég var 19 ára gömul. Seinustu ár hefur áherslan verið meiri á að leikstýra og skrifa stuttmyndir.

Uppáhaldsverk sem þú hefur leikið í eða leikstýrt?

Það er hálf ómögulegt að velja einungis eitt en með uppáhalds má nefna söngleikinn Eitthvað rotið sem var seinasta sýning sem sýnd var í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði áður en húsið var rifið. Þar söng ég, dansaði og lék.

Hvernig líst þér á Leikfélag Vestmannaeyja?

Upplifun mín af Leikfélagi Vestmannaeyja hefur einungis verið jákvæð. Hér er vel tekið á móti nýju fólki, fólk er klárt í samvinnu og hefur svo sannarlega farið fram úr væntingum mínum.

Hvernig hafa æfingar gengið?

Allt hefur gengið smurt fyrir sig. Sköpunargleði leikaranna er yndisleg og keyrir þetta verk áfram. Samvinna og traust einkenna ferlið sem er besta umhverfi sköpunnar.

Agnes Emma Sigurðardóttir.

Hvenær eru næstu sýningar?

Frumsýning er 25. október og næstkomandi helgar í framhaldinu verða sýningar.

Hvaða ofurkrafti myndiru vilja búa yfir?

Að geta stoppað tímann.

Hvað færðu þér í morgunmat?

Hleðsla og Corny á ferðinni.

Hvaða fræga einstakling (lífs eða liðinn) í mannkynssögunni myndir þú vilja bjóða í kaffi og afhverju?

Lin-Manuel Miranda. Ég væri bara til í að hlusta á hann tala og reyna að skilja hvernig hann fer að því að semja það sem hann hefur samið til þessa.

Ef þú ættir tímavél, til hvaða tíma myndiru vilja fara og afhverju?

Ég væri til í að ferðast til ársins 431 f.k. og sjá frumsýninguna af gríska harmleiknum Medeu í Aþenu.

Hvaða smáforrit er ómissandi?

Excel

Eitthvað að lokum?

Ég hvet alla til þess að gera sér ferð í leikhúsið að sjá Dýrin í Hálsaskógi með fjölskyldu, vinum eða bara sjálfum sér.

KARLAR Í SKÚRUM OPNAÐ FORMLEGA

Föstdaginn 18. Október var verkefnið Karlar í skúrum formlega opnað að viðstöddum yfir 80 manns, sem er virkilega góð mæting og virkilega vel heppnað hjá Lionsklúbbi Vestmannaeyja sem hefur farið fyrir verkefninu.

Sævar Þórsson formaður Lionsklúbbs Vestmannaeyja stjórnaði athöfninni af myndarskap.

Ingimar H. Georgsson verkefnastjóri klúbbsins ávarpaði gesti og fór yfir ferli verkefnisins í stórum dráttum og þakkaði fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum fyrir fjárframlög, efni, verkfæri og tækjabúnað af ýmsu tagi í þetta stóra verkefni . Vestmanneyjabær útvegaði húsnæðið, sem er staðsett í kjallaranum undir Dvalarheimilinu Hraunbúðum og sáu lionsmenn um að innrétta húsnæðið og fóru yfir 400 vinnustundir í vekefnið. Síðan afhenti Ingimar bæjarstjóranum okkar Írisi Róbertsdóttur formlega aðstöðuna til afnota fyrir karlmenn í Vestmannaeyjum, sem koma til með að reka og stýra verkefninu um komandi framtíð í eigin nafni og óskaði Eyjamönnum til hamingju með daginn.

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri þakkaði lionsmönnum fyrir framtakið og óskaði körlum á öllum aldri til hamingju með aðstöðuna. Gestir frá félagi trérennismiða á Íslandi, Körlum í skúrum frá Hafnarfirði og Mosfellsbæ fluttu kveðjur frá sínum félögum og sögðu frá starfsemi þeirra og þátttöku karla í tómstundum , handverki og hlutverki starfseminnar. Lionsklúbburinn, sem nú fagnar 50 ár starfsafmæli afhenti peningastyrki til þriggja félagasamtaka, sem vinna að málefnum aldraðra í Vestmannaeyjum alls kr. 300 þúsund fyrir hvert félag til eflingar starfsemi þeirra. Þetta voru Hollvinasamtök Hraunbúða, Bjargið dagdvöl á Hraunbúðum og Félag eldri borgara í Vestmanna-eyjum. Fulltrúar félagasamtakana þriggja fóru í pontu og þökkuðu fyrir styrkveitinguna og óskuðu verkefninu farsældar og hvöttu karlmenn til að mæta í skúrinn.

Lionsmennirnir Sigmar Georgsson, Ingimar Georgsson og Ágúst Óskarsson eru stoltir af nýju aðstöðunni. Þeir mega líka vera það, frábært framtak.

Á eftir var boðið upp á veitingar og gestum síðan boðið að skoða aðstöðuna í kjallaranum (skúrnum).

Í kjallaranum höfðu nokkrir trélistamenn í Vestmannaeyjum sett upp sýningu á munum sem þeir hafa unnið í frístundum sínum og eru stórkostleg listaverk. Þetta voru handverkslistamennirnir Sigurður Óskarsson frá Hvassafelli, Kristmann Kristmannsson múrari og Friðgeir Þorgeirsson trésmiður. Í föndurherberginu höfðu gestirnir frá Hafnarfirði sett um muni frá félögum sínum.

Öll aðstaðan í kjallaranum er til fyrirmyndar og mjög vel tækjum og verkfærum búin. Rúmgóð kaffistofa er í húsnæðinu, salerni, föndurherbergi, vélasalur og smíðastofa.

Meðal annars eru fimm rennibekkir, þrír hefilbekkir, þykktarhefill, borðsög, bandsög, sogkerfi, fræsari og ótal handverkfæri . Þannig að allir ættu að geta fengið aðstöðu fyrir sín áhugamál og spjallað saman meðan þeir sinna handverki. Eftir áramót mun Örn Ragnarsson koma aftur til Eyja með tveggja daga námskeið í rennismíði og síðan hefur Bjarni Þór Kristjánsson trélistamaður boðað komu sína eftir áramót með

Kristmann sýndi gestum nokkur listaverka sinna.

námskeið í tálgun og útskurði, ef næg þátttaka verður.

Aðstaðan í kjallara Hraunbúða verður opin alla virka daga frá kl. 09.00 og fram yfir hádegi og fá þeir sem ætla að nota sér aðstöðuna á öðrum tíma lykil að húsnæðinu og geta þá verið eftir hádegi eða bara á hvaða tíma sem þeim hentar. Munu notendur stofna félag fyrir starfsemina og reka í sínu nafni og hafa aðstöðuna svo lengi sem starfsemin vill vera í húsnæðinu.

ALLT UPPÁ TÍU Á ÁRSHÁTÍÐ VSV

Vinnslustöð Vestmannaeyja blés til stórveislu í Höllinni um helgina þegar hún hélt árshátíð fyrir starfsfólk. Þeir sem hana sóttu sögðu hana hafa verið algerlega frábæra með allt upp á tíu.

Okkar maður Addi í London sótti hana að sjálfsögðu og smellti nokkrum myndum af herlegheitunum og birtum við hér nokkrar. Fleiri myndir má svo sjá á Tigull.is þegar líður á vikuna

MARGVERÐLAUNAÐUR GARÐUR

Hinar árlegu umhverfisviðurkenningar Vestmannaeyjabæjar voru afhendar í september. Þar á meðal var hjónunum Kolbrúnu Matthíasdóttur og Herði Pálssyni veitt viðurkenning fyrir fegursta garðinn að Hólagötu.

Það að halda úti fallegum garði er ekkert sem gerist af sjálfum sér heldur krefst mikillar vinnu og skipulagningar. Við heyrðum aðeins í Kolbrúnu um það sem þau hafa gert fyrir garðinn sinn.

„Þegar við keyptum húsið í júní 1992 voru fjórar hansarósir, einn rifsberjarunni, fjölæra blómið næturfjóla og fullt af grasi, enda stór hornlóð. Við byrjuðum strax að setja niður runna í kringum húsið, byrjuðum með tröllavíði til að byggja upp skjól en hann rifum við upp eftir nokkur ár, enda ekki fallegur nema á viðavangi. Við settum einnig brekkuvíði, heggstaðavíði og strandavíði sem hafa dafnað vel. Þegar við rifum upp tröllavíðinn þá settum við gljámispil, sem hefur vaxið vel og veitt okkur ómælda gleði með fallegu haustlitunum sínum,“ sagði Kolbrún. Hún segir gott

Það má með sanni segja að hjónin Hörður Pálsson og Kolbrún Matthíasdóttir hafi græna fingur.

Fegursti garður Vestmannaeyja árið 2024.

skjól skipta sköpum þegar kemur að garðrækt í Eyjum. „Það breyttist mikið í garðinum þegar við settum góða skjólgirðingu fyrir austanáttinni, því hér í Eyjum er ýmislegt hægt að rækta ef gott skjól er fyrir hendi.“

ÞRIÐJU VERÐLAUNIN

En þetta er ekki fyrsta viðurkenningin sem þau fjölskyldan hlýtur fyrir að hafa snyrtilegt í kringum sig. „Við fengum viðurkenningu fyrir fallegasta garðinn 1999 og þá vorum við búin að gróðursetja fullt af trjám og margar tegundir af fjölærum blómum. Okkur langaði að hafa fjölbreyttan gróður, ekki eingöngu tré, heldur einnig fjölær blóm og sumarblóm. Við fengum afleggjara af fjölærum blómum frá góðum vinkonum hér í bæ, Siggu í Skuld, Jónu í Suðurgarði og Dollu á Heiðarvegi 64. Einnig keyptum við töluvert af fjölærum blómum, sum lifðu en önnur ekki og fannst okkur gaman að prófa okkur áfram. Við fengum okkur líka einu sinni stóra blómakörfu með sumarblómum í, hún var búin til á Egilsstöðum úr birkigreinum, flutt til Eyja og var mjög falleg.“ Núna 25 árum seinna hefur garðurinn breyst mikið, tré stækk-

að og fjölær blóm njóta sín en í samblandi við runna, tré og sumarblóm. „Við minnkuðum garðinn að framan og settum bílastæði, tjörn í bakgarðinn, tókum mikið af grasi í burtu og settum möl og annan pall. Uppáhaldstréð okkar, gullregn, sem við vorum með fyrir framan stofugluggann brotnaði í vondu veðri fyrir nokkrum árum síðan og var mikill missir af því. Mörg fjölær blóm eru einnig í uppáhaldi. Jólin 2001 fengum við viðurkenningu fyrir best skreytta húsið og síðustu ár hafa strákarnir okkar séð um að græja útiljósin,“ sagði Kolbrún.

Aðspurð sagði Kolbrún þau ekki vera með neinar matjurtir. „Við erum með þrjá rifsberjarunna sem gefa oft af sér ber á haustin en annars erum við ekki með matjurtir.“

Eins og fyrr sagði krefst töluverðrar vinnu að halda úti fallegum garði, langmest þó á vorin þegar verið er að hreinsa beðin eftir veturinn, klippa trén og grisja fjölæru blómin. „Á sumrin fer góður tími í að halda illgresinu frá beðunum, sérstaklega þegar sumarið er leiðinlegt eins og var í ár. Það er óneitanlega miklu meiri vinna að hafa bæði tré og fjölær blóm saman, heldur en eingöngu tré. Á haustin er gaman að setja niður haustlauka, td. túlípana og njóta þeirra þegar þeir koma upp á vorin.“

Nýsmíði Gólfhitafræsing Gólfhitalögn Kjarnaborun

Pallasmíði Þakvinna Innréttingar Utanhúsklæðningar

NÝR VEITINGASTAÐUR Í EYJUM

POLKA BISTRO

Nýr veitingastaður, Polka Bistro, opnaði þann tíunda október síðastliðinn í Vestmannaeyjum. Polka Bistro er staðsettur í Alþýðuhúsinu á efri hæðinni og gengið er inn um dyr hægra megin við aðalinnganginn upp á aðra hæð. Þegar blaðamaður Tíguls leit við á nýja staðnum tók á móti honum hlýlegt andrúmsloft og rólegheit. Katarzyna Maik, sem á og rekur staðinn, standsetti hann sjálf og býður upp á fjölbreytta pólska rétti á hverjum degi vikunnar sem og dásamlega eftirrétti sem blaðamaður fékk að smakka á, eplaböku og ostaköku. Kasia eins og hún er kölluð, eldar allan mat frá grunni og leggur mikla ástríðu í matargerðina. Enda leggur hún mikið í að hafa þetta eins heimilislegt og hægt er, nánast eins og að koma heim til mömmu í mat. Hún býður upp á ekta pólskan safa, Kompot, gerður úr ferskum ávöxtum og er vel þekktur í Póllandi og mikið drukkinn með mat. Í Kasiu hefur lengi blundað sá draumur að opna veitingastað með rólegu umhverfi og heimilislegu. „Eins og þú sért heima að borða og börnin leika á meðan í

kósý leikhorni.“ sagði Kasia í samtali við blaðamann Tíguls. Kasia hefur alltaf haft mikla ástríðu fyrir góðum mat og matargerð líkt og öll hennar fjölskylda, sem hefur öll mikla ástríðu fyrir að elda góðan mat, langt aftur í ættir.

Polka Bistro býður einnig upp á heimsendan mat sem og veisluþjónustu. „Hægt er að panta fyrir veislur, eins er hægt að panta morgunmat, hádegismat og

kvöldmat og við færum fólki heim að dyrum,“ sagði Kaisa.

Opið er alla daga frá klukkan 11:30 til 14 og 17 til 20. Á sunnudögum er hins vegar opið frá klukkan 15 til 20.

Katarzyna Maik er fædd og uppalin í bænum Nowa Ruda í Póllandi en hefur búið í Vestmannaeyjum síðan 2016.

Hún er trúlofuð Andre sem vinnur í Skipalyftunni og á fjögurra ára og nítján ára syni. Þegar hún kom til Vestmannaeyja vann hún fyrst já Iðunn Seafood og í dag vinnur hún einnig hjá Sólar við þrif á HSU ásamt því að reka Polka Bistro.

Kasia á og rekur Polka Bistro.
Kósýhorn fyrir krakkana.

NÆSTU SÝNINGAR: FRUMSÝNING

25. OKTOBER KL 19.00

2.SÝNING

LAUGARDAG 26.OKT KL 15.00

3.SÝNING

SUNNUDAG 27.OKT KL 15.00 UPPSELT

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.