36. tbl. 05. árg. 8. - 14. nóvember 2023
FRUMSÝNING GOSA UM HELGINA Leikfélag Vestmannaeyja frumsýnir leikritið um hann Gosa næstu helgi. Við fengum þá Albert Snæ Tórshamar og Hrafnkel Darra Steinsson til þess að svara nokkrum spurningum.
Albert Snær Tórshamar
Aldur: 27 fjölskylda: Pabbi minn er Ósvald Tórshamar og mamma Sabba (Ágústa Salbjörg Ágústdóttir) Hvað ertu búin/n að vera lengi í leikfélaginu? Síðan haustið 2016, tæp 7 ár Hvernig líst þér á Ævintýri Gosa? Fantafínt og áhugavert leikrit, akkurat rétt magn af gríni, söng, og alvöru. Það er alltaf gaman að takast á við ný verkefni. Í hvaða hlutverki ertu þar? Ég leik hin eina sanna Tuma engisprettu, samvisku Gosa. Eitthvað eftirminnilegt atvik á æfingum? Ætli það sé ekki þegar við tókum fyrst smink og búninga rennsli, það er alltaf mjög gaman. Hvað er uppáhalds verkið sem þú hefur tekið þátt í? Rocky Horror að sjálfsögðu, sakna þess mikið. Hver er þín helsta fyrirmynd? Balti
Hrafnkell Darri Steinsson
Aldur: 11 ára. Fjölskylda: Mamma mín heitir María Rós, pabbi minn Steinn og systkini mín heita Þórhallur Orri, Hólmfríður Arna og Hrafnhildur Ýr og svo Kristófer sem er kærastinn hennar Hólmfríðar Örnu. Hvað ertu búin/n að vera lengi í leikfélaginu? Ég byrjaði í leikfélaginu í haust. Hvernig líst þér á Ævintýri Gosa? Leikritið um Gosa er algjörlega frábært og eitt það skemmtilegasta sem ég hef tekið þátt í. Í hvaða hlutverki ertu þar? Ég leik brúðuleikara og skólabarn. Eitthvað eftirminnilegt atvik á æfingum? Allt við æfingaferlið hefur verið ein stór skemmtun. Fyrsti dagurinn í búningum og fullu rennsli var ógleymanlegur. Hver er þín helsta fyrirmynd? Mamma er mín helsta fyrirmynd.
TÍGULL
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
Ný kynslóð af GPS krakkaúrum
Verð frá
U J Æ R G
9.990
S TOLVUTEK.I
T S U HA NÝTT! 8. nóvember 2023 • Birt með fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og myndabrengl
119.990 14”
NÝTT!
99.990
Schneider fartölva
Handleikjatölva
NÝTT NÝTT
Verð frá
219.990 MG
G MM1 leikjaturn
29.990
nartól
yr Þráðlaus leikjahe
úr
ka Wonlex GPS krak
79.990
tólar
Glæsilegir leikjas
LISTAVERKIÐ Á VEGG LETURSTOFUNNAR
Það voru átján verkefni sem að fengu styrk í tengslum við Viltu hafa áhrif á þessu ári hjá Vestmannaeyjabæ. Leturstofan sótti um styrk í að fá listamann til að mála listaverk á vegg Leturstofunnar að Vestmannabraut 38. Við höfðum samband við listamanninn Juan til þess að sjá um listaverkið fyrir okkur. Juan er frá Valencia á Spáni og er hann fæddur 1990 og því 33 ára gamall. Hann hefur teiknað frá því hann man eftir sér og sagðist hann eiga enn teikningar og málverk sem hann gerði þegar hann var 5 ára. „Það var ekki fyrr en ég lauk myndlistarnámi sem ég byrjaði að mála veggmyndir og götulistarverkefni gegn greiðslu“, sagði Juan. Hann flutti til Íslands árið 2015 eftir að hafa heimsótt landið og fengið óvænt mörg verkefni upp í hendurnar í Reykjavík. Hans stærsta verk er á Ingólfstorgi í Reykjavík sem hann gerði fyrir City center hótel. Listaverkið sýnir ísbjörn og lunda sem berjast, það kallar á athygli loftslagsbreytinga. Juan á listaverk víða um landið og birtum við hér nokkur verk sem eru eftir hann. Hvað getur þú sagt okkur um listaverkið á Leturstofunni? „Listaverkið á Leturstofunni sýnir konu sem gengur í gegnum hugmyndaríkt og skapandi ferli, lokuð augun á meðan heill alheimur lita umlykur hana. Ég elska hvernig það blandar raunsæi í portrettinu við abstrakt og expressjónisma í bakgrunni. Litapallettan táknar alla þá tóna sem finnast í mismunandi tegundum himins á Íslandi.“
Verk Juans á Ingólfstorgi.
Hvernig líst þér á Vestmannaeyjar? „Mér finnst Vestmannaeyjar falinn gimsteinn! Fallegur pínulítill bær umvafinn glæsilegum fjöllum og myndar náttúrulegan vegg umhverfis bæinn. Það minnti mig á Bilbao í Baskalandi.“ Það sem honum finnst standa upp úr á Íslandi er náttúran, jöklarnir, eldfjöllin, norðurljósin og fossarnir. Hægt er að sjá fleiri verk eftir Juan á instagram: @juanpicturesart Eigendur Leturstofunnar og húseignarinnar eru mjög ánægðir með verk Juans sem hann vann hratt og mjög fagmannlega. Miðað við viðbrögð bæjarbúa þá virðast flestallir vera ánægðir með litríka verkið enda er þetta miðsvæðis og vekur mikla athygli allra sem þar fara um. Við getum svo sannarlega mælt með Juan ef verið er að spá í útilistaverki.
Juan gerir listavek í Comarques Centrals Valencianes.
Listaverk á Sauðárkróki fyrir Artic hótel.
Listaverk á Sauðárkróki fyrir Artic hótel.
Aðalstöðin í Keflavík við Hafnargötu.
LOKAHÓF ÍBV Í KNATTSPYRNU Lokahóf knattspyrnunnar fór fram síðastliðið laugardagskvöld.Kvöldið var einstaklega skemmtilegt, um það bil 80 manns voru mættir í Ásgarð og sá Einsi Kaldi um matinn. Veittar voru viðurkenningar til elstu flokka félagsins.
Meistaraflokkur karla:
ÍBV-ari: Felix Friðriksson Markahæstur: Sverrir Páll Hjaltested Leikmaður ársins: Elvis Bwomono
Meistaraflokkur kvenna:
ÍBV-ari: Júlíana Sveinsdóttir Markahæst: Olga Sevcova Leikmaður ársins: Guðný Geirsdóttir
Felix Örn Friðriksson.
2.flokkur karla:
ÍBV-ari: Dagur Einarsson, Mestar framfarir: Karl Jóhann Örlygsson Leikmaður ársins: Viggó Valgeirsson
2.flokkur kvenna:
ÍBV-ari: Thelma Sól Óðinsdóttir Mestar framfarir: Elísa Hlynsdóttir Leikmaður ársins: Embla Harðardóttir
Fréttabikar: Helena Jónsdóttir og Tómas Bent Magnússon Guðný Geirsdóttir og Júlíana Sveinsdóttir.
Elísa Hlynsdóttir, Thelma Sól Óðinsdóttir og Embla Harðardóttir.
Helena Jónsdóttir og Tómas Bent Magnússon
Ellert Scheving framkvæmdastjóri ÍBV, Viggó Valgeirsson, Karl Jóhann Örlygsson og Dagur Einarsson.
Um áttatíu manns mættu á lokahófið.
bestseller.is
Vönduð föt á frábæru verði fyrir alla fjölskylduna. FRÍ SENDING Á PÖNTUNUM YFIR 10.000 KR.
ÍBÚAKÖNNUN LANDSHLUTANNA – TAKTU ÞÁTT Íbúakönnun landshlutanna er nú farin af stað að nýju. Sem fyrr er tilgangurinn að kanna hug íbúa um ýmsa þætti tengda búsetu þeirra með það markmiði að afla gagna um stöðu byggðanna á landinu öllu í þeirri viðleitni að bæta lífsog búsetuskilyrði á svæðunum. Niðurstöðurnar veita innsýn í stöðu íbúa á landsbyggðinni og geta nýst öllu svæðinu í heild sinni, sveitarfélögunum, fyrirtækjum og fræðimönnum svo eitthvað sé nefnt. Þær eru jafnframt góður grunnur til að nýta til frekar stefnumótunarvinnu til dæmis innan sveitarfélaga, landshlutasamtakanna og Byggðastofnunar. Nú þegar hafa niðurstöðurnar gefið þeim sem vinna að byggðaþróun t.d. á sveitarstjórnarstiginu mikilvægar upplýsingar um raunverulega stöðu í hinum ýmsu byggðum um land allt. Eldri kannanir má nálgast á mælaborði Byggðastofnunar. Íbúakönnun landshlutanna er samstarfsverkefni landshlutasamtaka á landsbyggðinni og Byggðastofnunar og hefur verið framkvæmd á þriggja ára fresti frá árinu 2004. Þátttaka Suðurlands í könnuninni er jafnframt eitt
áhersluverkefni Sóknaráætlunar Suðurlands fyrir árið 2023. Vífill Karlsson, Ph.D. í hagfræði hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi hefur yfirumsjón með skipulagi og framkvæmd könnunarinnar.
Skannaðu inn QR kóðann til að taka þátt í könnuninni:
Könnunin er ætluð öllum íbúum á Íslandi sem náð hafa 18 ára aldri. Við hvetjum alla íbúa til að taka þátt í könnuninni en hana er jafnframt hægt að nálgast á ensku og pólsku.
STARFSFÓLK SAMBÝLISINS GERÐU SÉR GLAÐAN DAG Starfsfólk sambýlisins gerðu sér glaðan dag síðastliðinn föstudag er þeir héldu vinaviku. „Það var farið í allskonar leiki, drykk og spil í kúluhúsinu og við tókum púttkeppni í Kviku. Það var búin að vera vinavika og við enduðum hana á því að borða saman í Kjarnanum, en við pöntuðum platta frá Einsa Kalda. Þar skiptumst við á pökkum í tilefni leynivinavikunnar. Við höfum alltaf verið með leynigest og búningaþema í þessum hitting okkar svo það má segja að það sé orðin hefð. Leynigesturinn tók svo upp gítarinn og spilaði og söng með okkur en það var Sigurgeirsson. Virkilega Hófý, Ingibjörg Ósk, Krissa, Ingunn, Hrefna, Kristín Ósk, Lilja, Erlene, Ágústa, Ingibjörg, Jarl skemmtileg og vel heppnað Halla Björk, Margrét Sara, Telma, Birta og Sigrún. kvöld“, sagði Hrefna Guðjónsdóttir í samtali við Tígul.
Nældu þér í miða fyrir helgina á sýningar þann 11. og 12. nóvember Miðasala opnar miðvikudaginn 8. nóvember, hún er opin virka daga á milli 16:00 - 20:00 og um helgar á milli 11:00 -13:30. Sýningar hefjast laugardag & sunnudag kl. 15:00
NETVERSLANADAGURINN 11. NÓVEMBER Styðjum við verslanir í heimabyggð
20% afsláttur af öllu nema Karl Lagerfeld og Tom Dixon. Gildir einnig í verslun.
Heima decor
20% afsláttur af öllum úrum.
www.heimadecor.is
www.herrahornid.is
Litla Skvísubúðin Litla Skvísubúðin mun bjóða upp á
20% afslátt af flestu, nema á skóm. Einnig verður góð afsláttarslá í búðinni að Bárustíg 6.
Póley verður með 20% afslátt af allri jólavöru, jólaljósum og ilmkertum frá Voluspa.
www.skvisubudin.is
www.poley.is
TOYART Verslunin Salka mun bjóða 20% afslátt af peysum, jökkum og yfirhöfnum í vefverslun. Afslátturinn birtist sjálfkrafa í greiðsluferlinu. Gildir einnig í verslun, en ekki af vörum frá 66N.
Berglind Sigmarsdóttir er eigandi Toyart.is Berglind hélt sýninguna Leikfangalist á goslokunum í sumar en þar gaf hún gömlum leikföngum nýtt líf. Á netverslanadaginn verður 15 - 50% afsláttur af eftirprentun verkanna.
www.salkaverslun.is
www.toyart.is
DÖMUKVÖLD HANDBOLTANS Handknattleiksdeild ÍBV bauð dömum Eyjanna til skemmtilegrar kvöldstundar í Akóges síðastliðið laugardagskvöld. Handboltastelpurnar voru með dansatriði, Hreimur tók nokkur lög, verslunin Flamingo var með tískusýningu. Grétar Eyþórsson sá um æsispennandi pílukeppni. Jónas Logi Ómarsson, Hjálmar Baldursson og Jói Grettir ásamt meistaraflokki karla í handbolta sáu um matseldina. Happadrættið var á sínum stað og voru glæsilegir vinningar í boði.
Umönnunarstarf í Vestmannaeyjum Hjúkrunar- og dvalarheimilið Hraunbúðir í Vestmannaeyjum óskar eftir starfsfólki í skemmtilegt og gefandi starf með yndislegu heimilisfólki Heilbrigðisstofnun Suðurlands veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri. Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.Þjónustu markmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós. Helstu verkefni og ábyrgð
Hæfniskröfur
Á Hraunbúðum eru 30 hjúkrunarrými, 4 dvalarrými og 1 hvíldarrými auk annarrar þjónustu við eldri borgara. Starfshlutfall samkomulagsatriði Umönnun aldraðra Veita hlýju og gleði Létt eldhúsverk
Áhugi á að vinna með öldruðum 18 ára aldurstakmark Jákvætt viðhorf Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið: Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Drífandi, stéttarfélag hafa gert. Starfshlutfall og fyrsti vinnudagur eru samkomulag. Nánari upplýsingar veitir: Una Sigríður Ásmundsdóttir, Deildarstjóri - una.s.asmundsdottir@hsu.is - 4322650
Umsóknarfrestur er til og með 30.11.2023
MIÐ
8
NÓV
MIÐ
8
NÓV
MIÐ
8
NÓV
FIM
9
Kíktu við á frábær tilboð í HeimaRaf. Tilboðin verða í gangi til laugardags
NÓV
FIM
Bókið tíma á facebook.com/thoreyljosmyndari eða á netfangi thoreyhh19@gmail.com Fundir eru sem hér segir:
Sunnudaga kl. 11.00 Mánudaga kl. 20.30 PPG bókarfundur Miðvikudaga kl 20.30
BAÐHERBERGINU? ELDHÚSINU? INNRÉTTINGUM? PARKETLEGGJA?
A lm e n n t v ið h a ld & s m íð i!
AL-ANON
Þriðjudaga kl. 20.30 NÝLIÐAR VELKOMNIR HÁLFTÍMA FYRIR FUNDI
s. 772-1771 / 772-7175 / ggsmidir@gmail.com
Vinaminni/Kviku kl. 16:00 - 17:00
SÖNGHÓPUR LALLA
Kviku kl. 17:00 - 18:00
DRENGJARADDIR LALLA
Vinaminni/Kviku kl. 17:00 - 18:00
FÖS
10
LEIKFIMI MEÐ ERNU JÓHANNESAR
ÞRI
SUNDLEIKFIMI MEÐ HRAFNHILDI HÖNNU
14 NÓV
Passamyndir Fasteignaljósmyndun
SÖNGDÍFUR SIGURRÓSAR
SPILAVIST
NÓV
ERT’AÐ BREYTA?
Kviku kl. 13:00 - 16:00
9
NÓV
HeimaRaf / Hilmisgata 4
HANDVERK & HITTINGUR
KVIKU kl. 19:30
Íþróttahús kl. 10:00 - 11:00
Sundlaug Vestmannaeyja kl. 14:00 - 15:00
Frítt er í sundlaug íþróttamiðstöðvarinnar fyrir heimafólk 67 ára og eldri. Hressingarganga í Herjólfshöllinni alla daga kl. 08:00 - 12:00 Púttsalurinn pútt í kviku alla virka daga frá klukkan 13:00 - 14:00
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samhug og hlýhug við andlát eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa
BJÖRNS INDRIÐASONAR tæknifræðings Sérstakar þakkir til starfsfólks Hraunbúða fyrir hlýja og góða umönnun. Elsa Gunnarsdóttir Elín Sigríður Björnsdóttir Símon Þór Eðvarðsson Elva Dögg Björnsdóttir Sigurður Einar Gíslason og barnabörn
Viltu minnast látins ættingja eða vinar? Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi. Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef. Verð: 12.400 kr.
BLAÐBERASTARF EYJADREIFING leitar að duglegu og ábyrgu fólki til að bera út blöð og annað prentefni í Vestmannaeyjum. Dreifing fer fram alla miðvikudaga. Ef þetta er eitthvað sem gæti átt við þig, sendu okkur línu á eyjadreifing@eyjadreifing.is Hvetjum alla sem uppfylla hæfniskröfur til að sækja um óháð kyni og aldri.