Tígull 36.tbl 04. árg.

Page 1

María Ýr hótelstjóri

Þann 18. ágúst var skrifað undir kaupsamning um Hótel Vestmanna eyjar. Kaupandi hótelsins er M9 ehf., sem er félag í eigu Aðalsteins Jónssonar Þorsteinssonar.

KFS fagnar 25 ára afmæli

Knattspyrnufélagið Framherjar -Smástund eða KFS eins og það er nefnt í daglegu tali, fagnar í ár 25 ára afmæli sínu. Félagið varð til þann 7. september árið 1997

Jón Örvar rekstarstjóri Húsasmiðjunnar

Jón Örvar van der Linden tók við sem rekstarstjóri Húsasmiðjunnar frá og með 1. október síðastliðnum. Tígull tók hann tali.

Á Leturstofunni bjóðum við upp á hönnun og umbrot á alls konar verkum.

Auglýsingar / logo / sálmaskrár umbúðir / fréttabréf nafnspjöld / boðskort bæklinga / límmiða og allt sem þér dettur í hug.

Vertu í sambandi við okkur og við förum yfir þetta í sameiningu.

leturstofan@leturstofan.is /leturstofan /leturstofan 36. tbl. 04. árg. 19. - 25. október 2022

MARÍA ÝR TEKUR VIÐ SEM HÓTELSTJÓRI Á HÓTEL VESTMANNAEYJAR

Þann 18. ágúst var skrifað undir kaupsamning um Hótel Vestmannaeyjar. Kaupandi hótelsins er M9 ehf., sem er félag í eigu Aðalsteins Jónssonar Þorsteins sonar.

Nýr eigandi tók við rekstrinum 15. október sem mun byggja framtíðina á því góða starfi sem Magnús og Adda hafa gert á liðnum árum. Engar sérstakar breytingar eru fyrirhugaðar á starfseminni, heldur áframhaldandi uppbygging hótelsins sem burðarás í ferðaþjónustu Vestmannaeyja.

María Ýr Kristjánsdóttir mun taka við sem hótelstjóri en hún er fædd og uppalin í Eyjum og hefur unnið á Hótel Vestmannaeyjar síðastliðin átta ár. „Það má segja að ég hafi gengið í öll störf hótelsins á þessum árum,“ sagði María Ýr í samtali við Tígul í vikunni. „Þetta er krefjandi og spennandi verkefni sem ég hlakka til að takast á við. Ég mun sakna Öddu og Magga mikið enda erum við búin að eiga náið og yndislegt samstarf.“

Öll störf jafn mikilvæg „Ég lít á þetta sem eitt stórt púsluspil og að mínu mati er öll púslin jafnmikilvæg. Ekkert púsl má vanta

TÍGULL

DREIFING:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

kemur

eða klikka til að heildarmyndin sé rétt. Þetta er fjöl breytt og skemmtileg vinna og hvet ég fólk til að bætast við í teymið okkar næsta sumar.

María er á því að ferðaþjónustan í Eyjum sé alltaf að stækka og tímabilið að lengjast smátt og smátt í báðar áttir. „Ég hef trú á því að það séu ekki mörg ár í það að við verðum með straum ferðamanna hérna í Vestmannaeyjum allt árið um kring, jafnt erlendum sem og íslenskum. Það er öllum í hag að ferðaþjónstan blómstri. Við þurfum að hafa í huga að halda uppi þjónustu og einnig að nota alla þá þjónustu sem að við erum með í boði hjá okkur hérna í Eyjum.“

„María segir að nú taki nýr kafli við á hótelinu með nýjum eigendum sem eru ofsalega jákvæð út í Eyj arnar enda hafa þau verið dugleg að sækja okkur heim. Við megum vera þakklát fyrir að fólki komi annars staðar frá og hjálpi okkur að efla atvinnulífið og sjá tækifærin á eyjunni fögru.

Verið öll hartanlega velkomin á Hótel Vestmannaeyj ar,“ sagði María að lokum.

ÚTGÁFA:

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast

Tígull
út
vikulega
í
Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki.
Ritstjórar & ábyrgðarmenn:
Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
bókið tímalega.
María Ýr, hótelstjóri og Aðalsteinn eigandi hótelsins.

HeimadecorÞú færð allt fyrir hrekkjavökupartýið hjá okkur

www.heimadecor.is heimadecor

LAGA ALFREÐS WASHINGTONS ÞÓRÐARSONAR

Alfreð sýndi ungur góða tónlist arhæfileika. Hann lærði á „orgel harmoníum“ hjá Ragnari Bene diktssyni hér í Eyjum, hjá Páli Ísólfssyni tónskáldi og organista lærði hann á píanó og fór til frekara náms til Kaupmannahafn ar.

Eftir að Alfreð kom aftur heim til Eyja var hann mjög áberandi í skemmtana- og tónlistarlífinu í bænum. Píanóið var hans aðal hljóðfæri en harmoníkuleikur hans heillaði einnig marga. Hér lék hann á kaffihúsum, á skemmt unum og dansleikjum ýmist einn á nikkuna og píanóið eða með öðr um í hinum ýmsu hljómsveitum. Fjölmargir samtímamenn Alfreðs léku með honum í hljómsveitum, ortu ljóð við lögin hans og tengd ust honum á ýmsan annan hátt. Meðal þeirra má nefna Ástgeir Ólafsson (Ása í Bæ), Árna Guð mundsson (Árna úr Eyjum), Loft Guðmundsson, Oddgeir Kristjáns son, Sigurð Guðmundsson (Sigga á Háeyri), Hafstein Stefáns son og Karl Björnsson (Kalla bak ara).

Næstkomandi föstudag, hinn 21. okt. eru liðin 110 ár frá fæðingu Alfreðs.

Af því tilefni efnir Sögusetrið 1627 til samkomu þar sem Alfreðs verð ur minnst kynnt verður útgáfa 14 laga hans, við ljóð ýmissa vina hans og samtímamanna.

Ýmsir listamenn flytja sýnishorn af lögum Alfreðs, fjallað verður um tónskáldið og þá verður boðið upp á léttar veitingar.

Alfreð Washington Þórðarson var einn þeirra manna sem settu hvað sterkastan svip á listalíf Vest mannaeyja á fyrri hluta og fram yfir miðja síðustu öld. Hann var tónlistarmaður í eðli sínu og samdi mörg falleg og grípandi lög.

Mörg þeirra urðu vinsæl en önnur hafa smám saman gleymst, sum án þess að vera skrifuð með nót um og eru því einungis til í minni þeirra sem nú eru komnir vel yfir miðjan aldur.

Samkoman verður í Safnað arheimili Landakirkju kl. 17 og er öllum heimill ókeypis aðgangur. Gaman væri að sjá sem flesta.

Sögusetrið 1627

ÚTGÁFA
Strandvegi 30 S: 481-1475

HVAÐ GERÐIR ÞÚ Í VETRARFRÍINU?

Inga Dan

Ég gerði nú ekkert spennandi þar sem ég var lasin í fríinu. Eða jú, ég vann tvo daga á leikskólanum Sóla og svo varð ég veik.

Aron Stefán

Ég var að vinna og pantaði mér flug til Prag á tón leika með Blink 182. Ég fer í september á næsta ári þannig það er alveg langt í þá. Jón Grétar og Skírnir Freyr koma með mér. Það er nauðsynlegt að fá smá frí frá skólanum en líka gott að vera mættur aftur til að narta í Kára og bullshitta.

Kári Steinn

Ég var uppi á landi í ökuskóla 3 og horfði á Níu Líf. Svo fór ég bara til Vestmannaeyja og var að plana að gera eitthvað business með hljómsveitinni minni Hrossasauðir. Svo var ég að plana að búa til bíómynd og horfa á Dahmer og byrjaði að horfa á Saul – eða Better Call Saul. Það var gott að fá smá frí en mað ur verður leiður á því eftir smá stund. Alltaf gott að koma aftur í skólann til að narta í Aroni og bullshitta.

Hafdís Björk

Ég fór til Reykjavíkur í vetrafríinu í tvítugsafmæli hjá bestu vinkonu minni. Við sungum karaoke með fjölskyldunni hennar og djömmuðum smá. Ég fór líka á stefnumót með kærastanum mínum til að fagna tveimur árum saman. Við fórum á sushi veitingastað og áttum æðislegt kvöld og eyddum síðan restina af kvöldinu með vinum okkar sem eiga heima í bænum.

FRÉTTAHORN FÍV

Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu

GUÐBJARGAR OKTÓVÍU ANDERSEN

sem lést fimmtudaginn 6. október. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hraunbúða fyrir einstaka umönnun og væntumþykju.

Viltu minnast látins ættingja eða vinar?

Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.

Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.

Prentum sálmaskrár

Við tökum að okkur að setja upp og prenta sálmaskrár. Hafðu samband við okkur á netfangið: leturstofan@leturstofan.is eða í síma 481-1161.

KFS FAGNAR 25 ÁRA AFMÆLI SÍNU

Knattspyrnufélagið Framherjar -Smástund eða KFS eins og það er nefnt í daglegu tali, fagnar í ár 25 ára afmæli sínu. Félagið varð til þann 7. september árið 1997 við sameiningu tveggja þriðju deild ar félaga hér í Vestmannaeyjum, Íþróttafélagsins Framherja og Knattspyrnufélagsins Smástundar.

Sögu þessara tveggja félaga má hins vekar rekja allt aftur til ársins 1990. Bæðin liðin voru stofnuð þann veturinn. Framherjar léku reyndar fyrstu tvö árin undir nafn inu Amor. Til þess að fá inngöngu í ÍSÍ varð að hins vegar að skipta um nafn á félaginu, þar sem nafnið Amor fékkst ekki samþykkt, og hlaut þá nafnið Framherjar. Liðin tóku svo þátt í sinni fyrstu keppni 1991 þegar þau tóku þátt í utand eildarkeppninni. Árið 1993 er farið að keppa undir nafni Framherja og nafnið Amor lagt niður. Bæði liðin, Framherjar og Smástund, tóku þátt í utandeildarkeppninni fram til ársins 1994 er þau færðu sig upp í 4. deild Íslandsmótsins.

Árið 1997 var svo öllum deildun um breytt þannig að þær færð ust upp um einn tölustaf. 4. deild varð því að 3. deild sem varð þá neðsta deild og svo koll af kolli. Árið 1997 spiluðu Framherjar og Smástund saman í riðli, en fram að þeim tíma höfðu þau alltaf spilað í sitt hvorum riðlinum í 4. deild. Þetta má segja að hafi spar að hvoru félagi eina ferð uppá land, en ferðakostnaður er stærsti útgjaldaliðurinn hjá félögum í Vestmannaeyjum. Árið 1998 er svo fyrsta árið sem spilað er undir merkjum KFS í 3. Deildinni.

Alla tíð gott samstarf við ÍBV Það má segja að það hafi verið full þörf á að halda úti liði í neðri deildum hér í Vestmannaeyjum. Hér eru margir sem kunna að spila fótbolta en treysta sér ekki að einhverjum sökum ekki til að æfa með meistaraflokki ÍBV. Svo eru dæmi um það að leikmenn hafa byrjað hjá Framherjum eða Smá stund og farið svo og leikið með aðalliði ÍBV. Svo hafa leikmenn

sem hafa hætt hjá ÍBV af einhverj um orsökum, komið yfir og styrkt leikmannahópinn verulega, hafa getað miðlað af reynslu sinni. KFS hefur í gegnum tíðina átt ágætt samstarf við knattspyrnudeild ÍBV, leikmenn ÍBV sem hafa lent í meiðslum hafa fengið að spila til að koma sér í leikform. Einnig hafa ófáir æfingaleikirnir verið spilað ir, bæði við meistaraflokk ÍBV og 2.flokk. Þetta hefur sparað félög um ferðir upp á land til að undir búa sig fyrir Íslandsmót.

Yngsta lið landsins Árið 2001 var svo gengið ennþá lengra í þessu samstarfi þegar samþykktir voru á ársþingi KSÍ svokallaðir venslasamningar. Það gerir félögum í efstu tveimur deildunum kleift að gera vensla samning við félög í neðri deild um og geta þá leikmenn beggja liða gengið á milli allt tímabilið. Auðvitað verður meira um að leik menn liða í efri deildum fari til liða í neðri deildum til að fá spila. ÍBV og KFS gerðu með sér slíkan

samning og eru menn sammála um það að þetta sé báðum liðum til góða. Árið eftir var þessi samn ingur svo felldur úr gildi vegna nýrra reglna frá UEFA um félaga skipti leikmanna. Árið 2002 urðu svo kynslóðaskipti í liðinu. Með alaldurinn var þá um 29 ár en í dag er hann 20 ár og erum félagið yngsta lið landsins.

Árið 2002 var það besta frá upp hafi í sögu KFS og forvera þess. Félagið gerði sér lítið fyrir og sigraði 3. deildina eftir einn mest spennandi úrslitaleik síðari ára gegn Fjölni. Félagið spilaði tvö ár í 2. deild áður en það féll aft ur niður í þá þriðju. Árið 2012 var ákveðið að skipta skyldi 3. deild upp í 3. deild og 4. deild og myndu aðeins tíu efstu liðin það tímabil ið verða áfram í deildinni. Önnur lið myndu fara niður í hina nýju 4. deild. KFS endaði í neðri hlutanum og þurfti því að taka sæti í 4. deild. Sumarið 2014 spiluðu Tryggvi Guðmunds og Sigurvin Ólafsson meðal annara með KFS. Liðið fór taplaust í gegnum riðil sinn í 4. deildinni og komst því í úr slitakeppni um sæti í 3. deild. Þar tapaði liðið gegn Kára frá Akra nesi en fór í leik um 3 sætið gegn Þrótti Vogum og vannst sá leikur 3-1. Í nóvember mánuði tilkynnti 3. deildarliðið Grundafjörður að það hyggðist draga sig úr keppni og var KFS því komið í 3. deildina á ný frá og með tímabilinu 2015. Tveimur árum seinni féll liðið aft ur niður í fjórðu deildina.

Hjalti þjálfari í 25 ár Ekki er hægt að ræða KFS án þess að nefna Hjalta Kristjánsson sem þjálfaði liðið í 25 ár. Fyrst með Framherja árið 1992 og svo KFS í kjölfarið. „Já, Maggi Braga gerði mig að þjálfara á sínum tíma í upphafi. Ég hafði ekki hugmynd um hvað þjálfun snerist um. Ég tók svo öll UEFA stigin. En það var Ómar Smára sem kom mér af stað og spurði hvort ég vildi ekki æfa með þeim í Framherja,“ sagði Hjalti þegar blaðamaður Tíguls leit við hjá honum á dögunum. Inntur eftir ástæðunni fyrir sameiningunni á sínum tíma sagði Hjalti hana hafa verið að frumkvæði Smástundar. „Heimir Hallgríms, Maggi Steindór og Gilli Hjartar sem Smástundar

menn komu til mín og vildu sam einast okkur í Framherjum. Ég varð nú frekar hissa og spurði þá hvað þeir væru að hugsa með því? Þeir nenntu aldrei að æfa en voru með alla góðu leikmennina, við vorum komnir fram úr þeim því við æfðum. Þeir sáu það og þeir sögðu það ástæðuna.” Þeir leyfðu Hjalta að ráða nafninu, sem varð til úr nafni beggja liða. „Ég held þetta hafi verið hárrétt ákvörðun. Þeir byrjuðu að æfa eins og menn og þeir duttu út sem að nenntu ekki að æfa.“

Áhersla á sóknarleik

Hjalti hélt áfram þjálfun liðsins þar til að loknu tímabilinu árið 2017 að Einar Kristinn Kárason tók við. Hjalti hefur þó aldrei sagt skil ið við liðið og er enn í dag innsti koppur í búri þar á bæ. „Mikil bylting varð þegar að Gunn ar Heiðar tók að sér að þjálfa KFS fyrir tímabilið 2020. Hann lagði mikinn metnað í allt sem kom að KFS enda fæddur sigurvegari. Hans markmið var að KFS færi upp um deild sem gekk eftir,” sagði Hjalti. „Gunnar Heiðar hættir svo rétt fyrir mótið í sumar þar sem hann fékk gott tilboð frá Vestra. Sem var töluvert sjokk fyrir okkur því við áttum ekki von á að hann yrði rifinn af okkur rétt fyrir mót.” Hjalti kom þá að tali við Óðinn Svein björnsson og spurði hvort hann hefði áhuga á að þjálfa KFS. Sem hann gerði og kom hann skemmti lega á óvart. Mjög ákveðinn og jákvæður þjálfari. „Ég þekkti hann sem leikmann endar er hann fyrr um KFS leikmaður og hann kallaði nú ekki allt ömmu sína í þá daga. Ég komst líka að því að hann er vel giftur og Hjördís dugleg við að hjálpa til þegar til þurfti. Flestir spáðu okkur falli fyrir mótið í sumar en við komum öllum á óvart og enduðum um miðja deild eða 6. sæti líkt og í fyrra,” sagði Hjalti og kvaðst vera mjög sáttur með bæði Gunnar Heiðar og Óð inn. „Þeir lögðu mikinn metnað í þetta og vinnu og örugglega um fram það sem kaupið bauð upp á. Báðir voru þeir á kafi í sóknar fótbolta sem ég notaði líka sem þjálfari, lagði áherslu á vel upp byggðan sóknarleik,“ sagði Hjalti og bætti að viðræður væru í gangi við Óðinn, um áframhaldandi

þjálfun næsta sumar, sem er að hugsa málið.

Mikill áhugi á liðinu

Hjalti segir samstarf KFS og ÍBV-í þróttafélags hafa gengið vel. „Þeir sjá um að borga þjálfaralaunin sem ég tel mikilvægt í þessu sam starfi. Bæði að þeir getið stjórnað okkur og við þeim svo ekki verði nein spilling eða rugl ef menn fara að ráða of miklu. Ég hef einnig lagt áherslu á að gjaldkerinn verði svo lítið sér á parti hjá okkur, ég kem ekkert nálægt því. Dreifa verkefn unum. Njáll Ragnarsson er gjald keri, Hanni Harði formaður KFS, einnig fengum við Kobba Möller og Guðna Sig til að vera stjórnar menn hjá okkur í sumar.“

Hjalti segir tilganginn með þessu samstarfi, vera að búa til almenni lega leikmenn, heimamenn sem annars fengju bara ekki séns. „Við misstum t.a.m. Arnar Breka til ÍBV en við erum stoltir af hvað hann stóð sig vel í sumar, orðinn fasta maður hjá ÍBV. Það var gaman að fylgjast með því.“

Aðspurður um aðsókn á leiki sagði hann það hafa komið liðinu á óvart hversu mikill áhuginn var á félaginu í sumar. „Sem byrjaði eiginlega í úrslitaleiknum í fjórðu deild þá fengum við handbolta strákana með okkur til að styðja við okkur sem voru svakalega harðir stuðningsmenn og hjálp uðu okkur mikið. Svo fórum við að sjá foreldrana mæta meira og meir í sumar. Aðsóknin jókst mest í fyrra á leikin en hélst mjög mikil áfram í sumar. Þetta var aukabón us sem við áttum ekki vona á. Á tímabili í fyrra vorum við farnir að fá fleiri áhorfendur en ÍBV sem er kannski frekar neyðarlegt en það var svo sem ekki tilgangurinn hjá okkur en sýndi hversu mikill áhugi er á félaginu.“

Sigursælasta lið landsins

„Við sömdum við Magga Steindór um að sjá um búningana okk ar áfram og gerðum það í góðu samráði við ÍBV. Viljum endilega styðja okkar menn, hann er einn af okkur. ÍBV kom með þá tillögu að við myndum spila í hvítum bún ingum næsta sumar og þetta yrði líkara ÍBV búningnum, sem er bara mjög gott mál.“

Hjalti segir fjárhag félagsins fyrst og fremst byggjast á getraunun um. „Við erum fjórða söluhæsta félagið á landinu og ég sé sjálfur um það. Við erum sigursælasta lið landsins í getraununum og eina eina félag landsins, sem hefur fengið stærri vinninga og sölulaun samtals fyrir eitt ár en sem nem ur heildarkostnaði getraunaseðla, sem félagið hefur keypt sama ár. Getraunir eru áfram helsta tekju lind KFS, þótt styrkir hafi vaxið hratt undnafrain ár. Fyrir þau sem hafa áhuga þá er getraunanúmer ið okkar 904.

Þá skiptir máli hvar á landinu liðin eru sem við erum að spila við upp á fjárhaginn hjá okkur. T. d í fyrra þurfum við að fara tveimur stöð um meira út á land miðað við núna. Ferðalögin eru dýr en þjálf arinn er sá eini sem er á launum.“

Fótboltinn bjargaði við sonarmissinn Hvað myndiru segja að standi upp úr síðan 1991?

„„Þetta er kannski ekki svarið sem þú býst við en þetta bjargaði mér þegar ég missti barnið mitt, þessi fótbolti. Og það mér sjálfum á óvart. Hvernig þá spyrðu kannski... Fyrstu mánuðina eftir að hann dó þá var það eina sem ég gat hugsað mér að gera, að fara á fótboltaæfingu og þá kviknaði á perunni hjá mér, að fótbolti væri ekki bara fótbolti. Það er kannski stóra atriðið, það sýndi mér hvað

þetta gefur mér mikið. Fyrst þetta gefur mér svona mikið þá hlýtur þetta að gefa öðrum mikið líka. Svo er ég auðvitað búinn að kynn ast mjög mörgum skemmtilegum leikmönnum, bæði fyrrverandi ÍBV leikmönnum og miklum karakt erum hér innanbæjar. Unnið heil mikið með ÍBV sem hefur verið mjög gaman að mestu leyti. En aðallega er ég stoltur af því að hafa haldið öllum þessum ungu mönnum í fótbolta.

En ef við horfum á árangur fé lagsins þá var þegar að við unn um þessa 3. deild hérna forðum og svo var ofboðslega gaman að komast upp úr fjórðu deildinni í hitt eð fyrra. Einnig þegar að ÍBV bað okkur um að koma í samstarf kringum 2017.“

Hver er besti leikmaður sem hefur spilað með KFS?

„Tvímælalaust Hlynur Stefáns son. Það var æðislega gaman að hafa hann með okkur. Ég hef nú verið mikið í kringum landsliðin og fleira og kynnst alls konar fót boltamönnum en ég hef aldrei séð mann eins og hann. Það sem var sérstakt við hann er að það var eins og boltinn elti hann alltaf, hann vissi alltaf hvert boltinn fór, bara með radar í hausnum. Hann var heldur ekkert að slaka á þó hann væri í fjórðu deild og bara allt gefið í leikina. Held að enginn muni mótmæla því sem hafa verið þarna, að Hlyn

ur Stefánsson sé okkar besti leik maður frá upphafi.“

Sætasti sigurinn?

„Úrslitaleikurinn gegn Fjölni, 2002. Sætasti leikurinn var samt þegar við gerðum jafntefli gegn Fylki, í bikarkeppninni, sem var efst í efstu deild og við í fjórðu deild. Sex mínútur voru eftir og við vorum einum færri, því Jó hann Sveinn kom inn á sem síð asta varamaðurinn en fór meiddur af velli nokkrum mínútum síðar. Fylkir jafnar á þeim tíma. Heim ir Hallgrímsson fékk víti í fram lengingunni og eins og hann sagði sjálfur þá dreif hann varla á mark ið því hann var orðinn svo þreyttur. Allir voru að gefa allt sitt í þetta. Kiddi Gogga átti stórleik þarna. Fylkir slapp með skrekkinn. Ef við hefðum unnið þá hefði þetta lík lega verið merkilegasti bikarsigur í Evrópu. Þetta var 2004.“

Aðspurður um móralinn hjá liðinu sagði Hjalti hann alltaf góðan í dag. „Það voru ca. fyrstu tvö árin þar sem að var svolítill rígur milli fyrrum liða. Fimm ár eftir að við sameinuðumst var rígurinn nán ast hættur á milli framherja og smástundar.“ Í þeim töluðu orðum heyrðust glymja bjöllur Ísbílsins og Hjalti rauk út. Kannski sem bet ur fer því eflaust værum við enn að spjalli þvílík er ástríða hans fyrir KFS.

Sunnudagur kl. 14:00 Sunnudagur kl. 20:00 VSV býður öllum 18 ára og eldri frítt á ball í höllinni 22. október frá kl. 23:30-03:00

ÁVAXTAKÖRFUNNI

Leikfélag Vestmannaeyja stendur í ströngu um þess ar mundir við uppsetningu á upp barnaleikritinu Ávaxtakarfan, eftir Kristlaugu Maríu undir leikstjórn Ólafar Jens Sigurðssonar. Frumsýning verður föstu daginn 28. október.

Ólafur Jens hefur leikstýrt áhugaleikfélögum víða um land jafnframt því að kenna leiklist á öllum skólastig um og halda ýmiskonar leiklistarnámskeið fyrir stóra og litla hópa.

Hann hefur áður leikstýrt hér í Eyjum. Glanna glæp og Línu Langsokk 2018 og 2019. 2020 leikstýrði hann svo Spamalot sem því miður var aldreu frum sýnt vegna Covid-19

Við tókum létt spjall við Óla: Hvað er skemmtilegasta leikrit sem þú hefur leikstýrt frá upphafi?

Þau eru orðin ansi mörg leikritin sem ég hef sett upp. Sem betur fer er það verkefni sem ég er í hverju sinni uppáhalds verkefnið mitt

Hvað koma margir að leikritinu? Það koma rúmlega 20 manns að uppfærslunni og þar af 12 leikarar. Sumir þeirra eru gamalreyndar kanón ur en aðrir eru að stíga sín fyrstu skref á leiksviði með Leikfélagi Vestmannaeyja. En þau eru öll jöfn í þessari stórskemmtilegu uppsetningu á aldursbilinu 13 ára til 33 ára

Hvernig leggst verkefnið í þig? Það er ótrúlega gaman að fá að koma hingað til Eyja og setja upp Ávaxtakörfuna sem hefur lengi verið draumaverkefni hjá leikfélaginu.

Er hljómsveit á sýningunum?

Við notum undirleik af bandi sem við fengum hjá Þor valdi Bjarna höfundi tónlistarinnar.

Hvernig finnst þér aðstaðan hér í Eyjum miðað við önnur áhugaleikhús?

Þetta er í fjórða sinn á fáum árum sem ég vinn með Leikfélagi Vestmannaeyja. Öll aðstaða er frábær og gott að vinna hér.

Opnunartímar:

Mánudagur - lokað

Þriðjudagur - 13.00 til 17.30

Er kominn tími á að skipta um tímareim?

Miðvikudagur - 13.00 til 17.30

Fimmtudagur - 13.00 til 17.30

Föstudagur - 13.00 til 17.30

Laugardagur - 12.00 til 15.00

Sunnudagur - lokað

ÓLAFUR JENS SIGURÐSSON LEIKSTÝRIR
Eða að smyrja bílinn? Bókaðu tíma fyrir bílinn þinn í síma 481 1216 Fundir eru sem hér segir: Sunnudaga kl. 11.00 Mánudaga kl. 20.30 PPG bókarfundur Miðvikudaga kl 20.30 AL-ANON Þriðjudaga kl. 20.30 NÝLIÐAR VELKOMNIR HÁLFTÍMA FYRIR FUNDI HEIMAGATA 24
MUNA AÐ SKRÁ SIG FYRIR 24. OKTÓBER

ÞRAUTIR

RIDDARI RYK HONDA GLITRANDI HJÁLMUR MALBIK MÓTORFÁKUR HJÓL SNÓT KVÖLDSÓLAGLAG

AÐ BREYTA AÐEINS TIL OG TAKAST Á VIÐ NÝJAR ÁSKORANIR

Jón Örvar van der Linden eða Jónsi eins og flest ir þekkja hann hefur verið ráðinn sem rekstarstjóri Húsasmiðjunnar í Vestmannaeyjum. Hann tók við 1. október síðastliðinn af Þórhildi Rögnu Karlsdóttur sem er nú rekstarstjóri timburlager Húsasmiðjunnar í Reykjavík.

Jónsi fæddist í Danmörku en ólst upp á Akureyri. Hann er með mikla reynslu í þjónustu í bygginavöru verslunum en hann hóf störf í byggingavöruverslun inni Skapta á Akureyri aðeins 21 árs. Hann hefur því starfað í geiranum í rúm þrjátíu ár.

Hann flutti til Vestmannaeyja 2012 ásamt eiginkonu sinni og barni. En hann er kvæntur Lind Hrafnsdóttur og eiga þau tvo drengi, þá Rómeó og Hrafn. En fyrir á hann dótturina Herdísi Lind. Húsasmiðjan var þá að setja upp nýja verslun við Græðisbraut og var hann fenginn til að taka þátt í því.

Hvaðan kemur eftirnafnið van der Linden?

Pabbi minn fæddist í Rotterdam, Hollandi og bar þetta eftirnafn. Ég tók þetta nafn upp þegar lögin á Íslandi breyttust og leyfðu þetta. En börnin mín bera einnig þetta eftirnafn.

Hvernig leggst starfið í þig?

Þetta er krefjandi en skemmtilegt starf. Þetta er tölu vert öðruvísi en að vera eingöngu í að þjónusta við skiptavini í versluninni. Það er alltaf gott að breyta aðeins til og takast á við nýjar áskoranir.

Hvernig er vöruúrvalið í samanburði við aðrar Húsasmiðjuverslanir?

Þetta er töluvert minni verslun svo vöruúrvalið tak markast við plássið. Fólk getur pantað vöru hjá okk ur í vefverslun og fengið að sækja til okkar og er þá flutningurinn innifalinn.

Hvað eru margir starfsmenn í Húsasmiðjunni í Eyjum? Það eru sex starfsmenn fastráðnir og svo er ég með 4-5 sem eru helgar- og íhlaupastarfmenn.

Hvenær koma jólin í Húsasmiðjuna í Eyjum?

Jólin eru mætt. Við erum búin að stilla upp öllu sem er komið til okkar en bíðum enn eftir fleiri vörum úr Reykjavík og enn eru vörur á leiðinni að utan.

Má eiga von á einhverjum nýjungum?

Við erum að fá nýjan málningarlitastand þar sem að má finna stærri og fleiri litaprufur. Þá getur fólk tekið með sér stærri prufur af nokkrum litum sem verið er að spá í.

Uppáhalds verkfærið? Plankastrekkjari

Er eitthvað eftirminnilegt sem þú hefur lent í? Það kom kona til í mín í verslun, sem ég var að vinna í, á höfuðborgarsvæðinu og spurði hvort við ættum eitthvað stampt til að setja undir rúmfæturnar því að rúmið væri svo mikið á hreyfingu. Konan varð frekar skömmustuleg þegar hún áttaði sig á því hvað hún væri að biðja um.

GOTT

Tryggjum fleiri gæðastundir

Stofn Á hverju ári fá þúsundir tjónlausra viðskiptavina Sjóvá Stofnendurgreiðslu. Þannig hefur það verið í rúm 25 ár.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Tígull 36.tbl 04. árg. by Leturstofan - Issuu