36. tbl. 03. árg. 10. - 16. nóvember 2021
Við óskum Skipalyftunni til hamingju með 40 ára afmælið!
Stuðningsþjónusta Vestmannaeyjabæjar Óskum eftir að ráða starfsmann í stuðningsþjónustu. Starfið felur í sér aðstoð við einstaklinga inni á heimili þeirra við athafnir daglegs lífs, þrif, matarinnkaup ofl. Um er að ræða 50 % starf í dag, kvöld og helgarvinnu. Starfið krefst sjálfstæðra vinnubragða og góðrar hæfni í mannlegum samskiptum. Um er að ræða starf til frambúðar og er vinnutími breytilegur. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Allar frekari upplýsingar gefur deildarstjóri stuðningsþjónustu Kolbrún Anna Rúnarsdóttir í síma 4882607 eða með tölvupósti: kolla@vestmannaeyjar.is Umsóknir óskast sendar í gegnum mínar síður hjá Vestmannaeyjabæ.
Umsóknarfrestur er til og með 19 nóvember 2021. Launakjör eru skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og Stavey eða Drífanda stéttarfélags. Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 15/2020.
JA, HVUR HEMILLINN! ÓKEYPIS ÁSTANDSSKOÐUN Á BREMSUBÚNAÐI HJÁ NETHAMRI Toyotaeigendur fá ástandsskoðun á bremsubúnaði án endurgjalds til 19. nóvember og afslátt af vinnu, bremsuklossum, bremsuborðum og bremsudiskum til ísetningar á staðnum.
15% afsláttur af bremsuklossum, bremsuborðum og bremsudiskum.
TÍGULL
20% afsláttur af vinnu.
Engin vandamál – bara lausnir
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
TRYGGÐU ÞÉR JEEP Á LÆGRA VERÐI ALVÖRU JEPPI. ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF.
JEEP WRANGLER RUBICON VERÐ FRÁ 9.899.000 KR.* Nú er tilvalið að tryggja sér alvöru jeppa með alvöru fjórhjóladrifi í forsölu. Nokkrir bílar til afhendingar í lok nóvember. NETHAMAR ER ÞJÓNUSTUAÐILI JEEP OG RAM Í VESTMANNAEYJUM. *Bjóðum upp á 35”-40” breytingapakka fyrir Wrangler.
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • JEEP.IS • ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
FRAMUNDAN ER BÓKATÚR TIL NEW YORK Hvað tók það ferli langan tíma? Frá því að við skrifuðum undir samning hefur ferlið tekið í um 3 ár. Ég fékk Bandarískan rithöfund með mér sem eyddi heilu sumri á Slippnum nánast sleitulaust til að ná alveg upp á hár hvaða sögu við erum að reyna að segja og til að hjálpa okkur að setja í orð og setningar okkar hugmyndarfræði. Einnig voru ljósmyndararnir tveir mjög duglegir að koma til eyja. Hvað var það skemmtilegasta við þetta verkefni? Það var það að læra enn meira á okkur sjálf og hvað við stöndum fyrir, bókaskrifin hjálpaði okkur að komast enn betur að því! Það var einnig frábært að vinna með öllu Nóg er um að snúast hjá Gísla Matthíasi Auðunssyni en hann er nýkomin frá London þar sem hann var að kynna nýútkomna bók sína sem hefur í allt tekið um 3 ár frá undirritun samnings. Tígull fékk að heyra nánar um bókina frá Gísla. Hvernig kom það til að fara út í það að gefa út bók? Ferlið byrjaði í raun fyrir um 6 árum þegar ég byrjaði fyrst að tala við þennan bókaútgefanda en það hefur verið draumur alveg frá því að ég opnaði SLIPPINN að gera bók um staðinn og okkar hugmyndafræði sérstaklega hjá þessum útgefanda. En bókin er gefin út í yfir 30 löndum og er ljóst að hún mun verða mikil kynning fyrir bæði Vestmannaeyjar og Ísland. Hvað getur þú sagt okkur um bókina? Í henni er mikill fróðleikur um íslenskt hráefni og útum alla bók má finna margar sögur sem tengjast bæði eyjunum, hráefni á íslandi, réttunum sjálfum og/eða veitingastaðnum sjálfum. Það eru yfir 100 mataruppskriftir og allir okkar kokteilar og drykkjarprógram.
því fagfólki sem kom að bókinni sem margir hverjir hafa verið að gera matreiðslubækur fyrir bestu veitingastaði í heimi. Eru margir að koma að þessu? Já bæði ótal margir frá okkur, staffið sem hefur lagt hönd á plóg en svo vann ég náið með tveimur frábærum ljósmyndurum, Gunnar Freyr Gunnarsson (Icelandic Explorer) og Karl Petersson. En svo er risa teymi frá Phaidon sem hefur unnið að bókinni, hönnuðir og fleira. Við erum
ótrúlega stolt hvernig verkið kom út á endanum. Hvað er framundan hjá þér? Við erum nýkomin frá London þar sem við vorum að kynna bókina og elduðum þar fyrir ótal manns á mismunandi viðburðum. Framundan hjá mér er svo að halda áfram að kynna bókina. Við tekur bókatúr í New York þar sem við munum elda á nokkrum veitingastöðum þar og kynna bókina og þaðan munum við gera stóra kynningu í RVK þar sem við munum
opna Slippinn í Reykjavík í nokkra daga til kynningar á bókinni. Svo er helling að gerast á SLIPPNUM í Desember - Meðal annars jólaveisla sem verður auglýst sem allra fyrst. Hvenær kom bókin út? Hún var bara að koma út rétt í þessu og við ætlum að bjóða öllum þeim sem vilja koma að fagna með okkur smá bókaútgáfuteiti næstkomandi laugardag á milli 14.00-17.00 að fagna með okkur. Hvar er hægt að fá bókina? Við erum sjálf að selja hana - hægt er að kaupa hana í gegnum www. slippurinn.com, fengið hana áritaða ef fólk kýs það. Við skutlum henni heim að dyrum hér í eyjum. En bókin fæst einnig í Pennanum Eymundsson og Costco.
Starfsfólk Skipalyftunnar 2021
SKIPALYFTAN 40 ÁRA Skipalyftan var stofnuð 14. nóvember 1981 af vélsmiðjunum Magna, Völundi og raftækjaverkstæðinu Geisla og hefur frá upphafi verið ein af stoðum í atvinnulífi Vestmannaeyja. Árið 1982 flutti félagið í núverandi húsnæði við hlið skipalyftunnar og var hægt að taka upp flest skip í eyjaflotanum. Var þetta mikið hagræði fyrir útgerðamenn að þurfa ekki að leita annað með breytingar og almennt viðhald. Meðal verkefna voru lengingar á skipum, yfirbyggingar og nýjar skipsbrýr. Fyrirtækið óx og dafnaði vel fyrstu árin og þegar umsvifin voru hvað mest voru starfsmenn liðlega 100. Árið 1998 markaði tímamót þegar Skipalyftan afhenti Vestmannaeyjabæ Lóðsinn sem er eina nýsmíði fyrirtækisins. Hefur Lóðsinn reynst vel og sýnt að um vandað skip er að ræða. Breytingar á flotanum Færri og stærri skip hafa breytt rekstrinum og í dag er Skipalyftan plötusmiðja, véla- og renniverkstæði auk þess að þjónusta flotann. Er með lager og verslun með miklu úrvali af
vörum tengdum málmiðnaði, sjósókn og veiðum. Rekstur Skipalyftunnar er nátengd sjávarútvegi og hafði bann við loðnuveiðum mikil áhrif en nú er horft með bjartsýni til næstu loðnuvertíðar sem lofar góðu. Skiptir það miklu fyrir Vestmannaeyjar sem eru með um þriðjung af aflaheimildum í loðnu. Sama kennitala frá upphafi Rekstur Skipalyftunnar hefur alla tíð verið traustur og hefur frá upphafi verið á sömu kennitölunni. Er í dag í 1400 fm húsnæði og hafa eigendur fulla trú á rekstrinum og hafa fjárfest í tveimur nýjum húsum. Í öðru þeirra er vélaverkstæðið með glæsilegri aðstöðu fyrir starfsmenn. Í dag eru starfsmenn um 45 manns og þar af þrjú sem hafa starfað frá stofnun 1981, þau Anna Sigrid Karlsdóttir fjármálastjóri, Hlynur Richardsson lagerstjóri og Stefán Örn Jónsson framkvæmdastjóri. Í stjórn sitja þeir Þórarinn Sigurðsson, stjórnarformaður, Stefán Örn Jónsson, Ólafur Friðriksson og Jón Viðar Stefánsson. Rekstur Skipalyftunnar hefur gengið
vel og til marks um það hefur fyrirtækið hlotið viðurkenningu Credit Info, sem eitt af fyrirmyndafyrirtækjum Íslands árlega síðan 2014. Það er ekki sjálfgefið enda komast aðeins 2% allra íslenskra fyrirtækja inn á þann lista. Gerðar eru strangar kröfur til að komast í þennan úrvalsflokk íslenskra fyrirtækja. Það sem skilað hefur góðum rekstri Skipalyftunnar er fyrst og síðast frábært starfsfólk sem hefur unnið hjá fyrirtækinu allt frá stofnun. Skipalyftan hefur alið vel upp sína menn Starfsmenn Skipalyftunnar læra mjög fjölbreytt verkefni. Mála skip, glussalagnir, öxuldraga sem dæmi. Þeir geta tekið á samning í vélvirkjun, stálskipasmíði, rennismíði og eru þeir með nokkra hjá sér á samning í dag. Þröstur Jóhannsson, byrjaði ungur hjá Skipalyftunni aðeins 18 ára gamall og er nú yfirverkstjóri í dag Þröstur sótti þó um fyrst þegar hann var 16 ára gamall, en var sagt ef hann kynni ekki að sjóða þá hefðu þeir ekkert við hann að gera. Svo hann skellti sér í grunndeild málmiðnaðar. Svo fór hann aftur að vinna til að safna sér fyrir námi í bílasmíði
Starfsfólk Skipalyftunnar 1986
Leiðin lá svo aftur heim til Eyja Leiðin lá í Skipalyftunna og þar hefur Þresti alltaf liðið eins og að koma heim, enda annað heimili hans í dag. Í dag er Þröstur yfirverkstjóri en hann lauk fjögurra ára meistaranámi í Tækniskólanum. Í dag er hann enn og aftur komin í nám og er í háskólanum í kennaranámi og er að kenna upp í framhaldsskóla með vinnunni. Þröstur Jóhannsson.
sem og hann gerði. Þetta var sumarið 1995 og líkaði honum svo vel í Skipalyftunni að hann ákvað að vera fram að áramótum og fara svo í skóla. Áramótin komu og Þröstur ákvað að vera áfram í Skipalyftunni, en þá sögðu strákarnir, ef þú ætlar að vinna hérna þá verður þú að læra þetta. Það er einmitt verið að safna í stálskipasmíði upp í framhaldsskóla. Okey hugsaði Þröstur og ákvað þá að skella sér í námið einnig í þeim tilgangi að stálskipasmíðin myndi einnig nýtast honum upp í bílasmiðinn. Og tveim árum eftir þetta var Þröstur búin að klára námið nema hann átti eftir smá í verklega tímanum til að taka sveinsprófið. En honum vantaði ár upp á. Leið hans lá þá í borgina að læra bílasmiðinn þar sem hann tók svo sveinsprófið í bílasmíði og stálskipasmíði, var hann þar í fjögur ár.
Það sem einkennir andann í Skipalyftunni að þar eru allir jafnir. Allir fá að koma með sína skoðun og aðferð að vinnunni. Maður er alltaf vel metinn hér og mikils virði. Það er virkilega góð tilfinning að líða vel í vinnunni.
Við spurðum Þröst hvort hann gæti komið með kosti og galla Stebba: Þröstur hugsaði sig um í smástund og svaraði svo þessu: Stebbi er besti vinnuveitandi sem maður getur hugsað sér, sem hefur þessa hlýju föðurímynd sem gott er að leita til. Hann getur verið fljótfær og komið mönnum úr jafnvægi en þegar kostirnir eru taldir þá verða ókostirnir að engu.
Stefán Örn Jónsson, Anna Karlsdóttir og Hlynur Geir Richardsson.
BJARKI HLYNSSON VARÐ Á LAUGARDAGINN ÍSLANDSMEISTARI Í FLOKKI SS Í KVARTMÍLU
Á myndinni eru Davíð Smári Hlynsson, Bjarki Hlynsson og Grétar Már Óskarsson. Bjarki Hlynsson er fæddur 1996 og því 25 ára eyjapeyi í húð og hár, einnig varði stórum hluta í sveitinni. Foreldrar Bjarka eru þau Hlynur Geir Richardsson og Þórunn Jónsdóttir. Bjarki á tvær systur og tvo bræður þau Davíð, Björgvin, Dagný og Auði. Tígull fékk aðeins að forvitnast um Bjarka og spurði hann nokkurra spurninga. Hvar vinnur þú? Ég vinn hjá Skipalyftu Vestmannaeyja og hef verið þar í tæp 5-6 ár. Kláraði grunnskóla og tók tvær annir í framhaldsskóla en ákvað þá að fara að vinna. Hefur þú alltaf verið með bílaáhugann? Bílaáhugi byrjar kannski upp úr 15 ára aldri þar sem ég keyrði gamla Lödu og auto union (Audi) uppí sveit. Að sjálfsögðu bara á túnum þegar það var verið að rúlla, síðan þá hef ég alltaf haft áhuga á flottum og gömlum bílum. Nú er nokkuð erfitt að æfa sig hér í Vestmannaeyjum, hvar fara æfingar fram fyrir kvartmíluna? Eflaust hafa margir heyrt í mér þegar
ég fer framhjá. Djúpar drunur sem heyrast bara þegar maður gefur mikið í, en þegar ég mæti í keppni þá æfi ég mig mest í tímatökum á kvartmílubrautinni. Tek samt tillit til fólks á kvöldin og svona. Ertu búinn að keppa lengi í kvartmílu og kannski í öðrum greinum líka? Ég keppti 2019 líka og tók titilinn þá en fyrir það hafði ég aldrei keppt í bílaíþróttum. Keppti einu sinni eða tvisvar í tölvuleikjum en endaði sæti númer eitthvað mikið þannig það er kannski ekki í frásögur færandi. Um hvað snýst þessi keppni fyrir okkur sem höfum ekkert vit á þessu? Keppnin snýst svo sem um bara að vera fyrstur en innan vissa tímamarka. Eins og í mínum flokki eru mörkin 12.99 sek, ef ég fer undir þann tíma tapa ég ferðinni. Svo koma ljósin inn í myndina, þar getur maður alveg fengið taugaáfall að bíða eftir þeim. Tíminn á ljósum er 0.5 sek, ef þú ferð undir þann tíma þjófstartar þú. Tímarnir sem ég hef náð best var 0.587sek og mörgum sinnum þjófstartað og mörgum sinnum alveg uppí sekúndu en yfirleitt gat ég
bara beðið eftir að hinn fór af stað svo gat ég farið af stað þar sem ég var yfirleitt með kröftugari bíl heldur en allir hinir. Besti tími sem ég hef sett á bílnum mínum (Grand cherokee SRT8) er 12.86sek en setti þann tíma í tímatöku . Bílinn er tæp 2 ton með mig í honum og tæp 500 hestöfl Fyrir þau sem hafa áhuga á því að stunda þessa (íþrótt) grein hvert geta þau leitað? Það er svo sem ekkert mál að taka þátt í þessu, þarft 3 hluti held ég: góðan bíl, viðaukatryggingu og skrá þig í akstursíþróttafélag. Þegar þú ert kominn með það ferðu inn á akis. is og býrð til aðgang og skráir þig í keppni. Svo er megnið af reglum inná kvartmila.is Eitthvað að lokum? Að lokum það hefði verið gaman að sjá fleiri að keppa í kvartmílu. Gæti vel verið að ég verji titillinn à næsta ári og það hefði líka verið gaman að hækka hestaflatöluna, en það gæti orðið soldið dýrt. Svo er líka bara gaman að keyra hratt löglega, engin hætta á sekt. En ég hvet alla sem langa að taka þátt að gera það, svo mikið adrenalín í þessu sporti.
ROYAL CANIN FÆST NÚ HJÁ OKKUR Fyrir hunda, ketti, hvolpa og kettlinga
Jóladagatal Milwaukee 2021 Verð: 9.990 Andvirði: 17.000
488 3550 // skipalyftan.is // Opið alla virka daga 07:30 - 18:00 og laugardaga 10:00 - 12:00
Ástkær systir okkar, mágkona, uppeldismóðir, frænka og amma
ENGILRÁÐ BIRNA ÓLAFSDÓTTIR
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma
Hraunbúðum Vestmannaeyjum
LINDA HANNESDÓTTIR
Lést á Hraunbúðum 3. nóvember. Hún verður jarðsungin frá Landakirkju 11. nóvember kl. 13:00 Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hollvinasamtök Hraunbúða
Lést á sjúkradeild HSU þann 2. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Landakirkju föstudaginn 12. nóvember kl. 13:00.
Sigríður Ólafsdóttir Ásta Ólafsdóttir Sveinn Sigurðsson Eygló Ólafsdóttir Bergmann Júlíusson Anna Ólafsdóttir Guðjón Jónsson Ólafur R Ólafsson Bjarney Emilsdóttir Sigurður Smári Benónýsson Sigríður Lára Andrésdóttir Berglind Jóhannsdóttir Arnór Pétursson Ragnar Þór Jóhannesson Bjartey Kjartansdóttir Valmundur Valmundsson Björg Sigrún Baldvinsdóttir og öll ömmubörnin
Gísli Ingólfsson Gunnar Ingi Gíslason Sigurður Einar Gíslason Linda Kristín Valgerðardóttir
Auður Ásgeirsdóttir Elva Dögg Björnsdóttir Fannar Örn Unnarsson
og ömmubörn
Halldóra Kristín Ágústsdóttir - viðskiptafræðingur og löggiltur fasteigna- og skipasali
www.eyjaeignir.is
Heiðarvegur 9a
Hásteinsvegur 55, efri hæð og ris
TILBOÐ
39.800.000
Góð 4 herbergja íbúð í tvíbýli á besta stað í hjarta bæjarins. Eignin er byggð úr steini árið 1963 og er 160,9 fm2 þar af er bílskúr 24,5 fm2.
Sér íbúð er á efri hæðinni sem hægt er að leigja út. Eignin er byggð úr steini árið 1952 og er 126 fm2 en gólf flötur er þó töluvert meiri þar sem hluti eignarinnar er undir súð. Frábært útsýni.
Vesturvegur 20
Hásteinsvegur 55, neðri hæð
46.900.000
15.900.000
5 herbergja falleg eign á 3 hæðum á besta stað í hjarta bæjarins. Eignin er byggð úr steini árið 1924 og er 169,5 fm2 þar af er bílskúr sem er 31,4 fm2. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð. Frábært útsýni.
2 herbergja íbúð byggð úr steini árið 1952 og er 53,4 fm2. Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð að utan. Frábær staðsetning - miðsvæðis.
Faxastígur 6a
Gjaldskrá: Einkasala 1 % af kaupverði auk vsk. Almenn sala 1,6% af kaupverði auk vsk. Nánari upplýsingar á www.eyjaeignir.is Bókið skoðun í síma 8611105 eða á dora@fasteignasalan.is Ef þú ert í söluhugleiðingum þá endilega vertu í bandi.
18.300.000 3 herbergja íbúð í fjölbýlishúsi með sameiginlegum inngangi. Eignin er byggð úr timbri árið 1924 og er 61,7 fm2 að stærð. Um er að ræða bjarta eign í hjarta bæjarins, frábær sem fyrsta eign eða fyrir þá sem vilja eiga dvalarstað í eyjum.
Fasteignasalan Bær Strandvegi 43a í Vestmannaeyjum. Opnunartími frá 11-16 virka daga en erum við símann frá 9-17.
UPPSKRIFT VIKUNNAR SKÚFFUKAFA Fyrir ofnskúffu þarf eina og hálfa uppskrift: Hráefni: 2 dl sykur 2 dl púðursykur 2 egg 170 gr smjör, brætt 5 dl hveiti 1 tsk. matarsódi 1 tsk. lyftiduft 3 tsk. vanillusykur 1 dl. kakó, sigtað 2 1/2 dl súrmjólk með karamellu 1 dl vatn, sjóðandi heitt Byrjið á því að taka út úr ísskáp smjör í kökukremið svo það verði mjúkt. Hitið ofninn í 200 gráður. Bræðið smjörið og látið það kólna aðeins. Smjöri, púðursykri og sykri hrært mjög vel saman. Þá er eggjum bætt út í, einu og einu. Því næst er þurrefnunum blandað saman í skál annars vegar og súrmjólk og sjóðandi heitu vatni í aðra skál hins vegar. Um það bil helmingur af blöndunum úr hvorri skál fyrir sig er bætt út í deigið og hrært í stutta stund, þá er restinni úr báðum skálunum bætt út í deigið og hrært. Athugið að hræra eins stutt og hægt er, bara þar til hráefnin hafa blandast saman, ekki lengur. Deiginu er hellt í smurt smurt bökunarform eða ofnskúffu (þessi uppskrift passar í bökunarform sem er ca. 25 x 35 cm, fyrir ofnskúffu þarf að gera eina og hálfa uppskrift) og bakið í miðjum ofni í ca 20 mínútur eða þar til kakan hefur losnað frá köntunum og er bökuð í gegn í miðjunni. Kökukrem: 150 gr smjör, mjúkt 200 gr flórsykur 4,5 msk kakó 2 msk síróp Hrærið smjörið þar til það er orðið kremkennt. Sigtið flórsykur og kakó saman og blandið því síðan smátt og smátt við smjörið. Ef kremið er of þykkt er hægt að bæta við örlítilli mjólk. Hrærið að lokum sírópi saman við. Smyrjið kreminu á kalda kökuna.
TASTE SUPER DAIRY
ENGIFER SKOT
SUDOKU
ORÐAÞRAUT
FLÍSAR MARMARI
TEPPI VÍNYLL
DÚKUR LAKK
KORKUR MÁLNING
PARKET MOTTUR
ARI ELDJÁRN Í HÖLLINNI LAUGARDAGINN 13. NÓVEMBER KL. 20:00 Húsið opnar 19:30 Miðaverð er 3.900 kr. Hægt er að kaupa miða aðeins á Tix.is !
ARI ELDJÁRN Aldur og fjölskylda: Ég er fertugur Vesturbæingur og á yndislega fjölskyldu – konu og tvær dætur sem eru 8 og 3 ára. Hvar og hvenær ertu fæddur og uppalinn? Ég er fæddur á Landspítalanum í Reykjavík 5. september 1981 og uppalinn á Ásvallagötunni í 101 Vesturbæ – utan veturinn 1988-1989 þegar við bjuggum í Kantaraborg í Kent í Englandi. Ég bjó svo í áratug í 107 Vesturbænum en bý núna í póstnúmeri 170 í Vestur-Vesturbænum á Seltjarnarnesi. Ekki Nesinu sjálfu heldur landamærasvæðinu. Menntun: Ég er stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 2001 – hvaðan ég útskrifaðist með mikilli sæmd með 3. einkunn. Kláraði svo MA gráðu í kvikmyndahandritsskrifum í London Film School árið 2006. Einnig hafði ég um tíma JAR réttindi sem flugþjónn en þau runnu út árið 2006 og eru að mörgu leyti úreld (það eru ekki lengur VHS tæki í flugvélum Icelandair). Þá hef ég haft B réttindi til að keyra ökutæki frá 5. september 1998 og A réttindi fyrir þungt bifhjól síðan í júní 2018. Þá sat ég einnig þriggja daga námskeið í rafsuðu í Tækniskólanum í Hafnarfirði árið 2018 og bý að þeirri menntun alla ævi!
Var það eitthvað sérstakt sem fékk þig í að fara út í grínið? Hvenær byrjaðir þú í þessu? Ég hafði tekið þátt í að skrifa Áramótaskaupið árið 2006 og hafði alltaf hugsað mér að koma einhvern veginn að sketsagerð og mögulega gerð grínmynda. En þegar mér bauðst til að prófa uppistand nokkuð óvænt með vinum mínum Bergi Ebba og Dóra DNA árið 2009 sló ég til og hef svo aldrei litið til baka. Hvernig sérðu Vestmannaeyinga fyrir þér? Eins og Ísland í hnotskurn: eyjaskeggjar sem hafa mjöööög mikinn áhuga á sjálfum sér! Eiginlega eru Vestmannaeyjar eins og Seltjarnarnes – 4500 manns sem vita allt um alla. Aðalmunurinn er að Nesið er tengt Vesturbænum og fólk þarf ekki að fara í ferju, flugvél eða gúmmíbát til að komast á Landspítalann. En þetta er stórkostlegur staður og fólkið er með mikinn húmor og grínistar á hverju horni. Ég þekkti áður fyrr Vestmannaeyjar eingöngu úr Nýju Lífi og Með allt á hreinu og kom þangað í fyrsta skipti árið 2010. En síðan þá hef ég komið margoft og lít á mig sem mikinn Eyjapeyja. Ég hef meira að segja baðað mig í baðkarinu hans Guðlaugs!
Hvernig ferðu að því að búa til nokkra klukkutíma af gríni, sérðu kannski allt í gríni í kringum þig ? Já og nei. Suma daga nenni ég ekkert að pæla í þessu – og margt af því sem mér finnst fyndið hentar ekkert endilega sem grín á sviði og er of lúðalegt eða sérhæft. En svo koma tímabil þar sem maður er alltaf að hugsa eitthvað og prófa það á fólki sem maður spjallar við. Þetta eru ægilegar skorpur og ég giska á að ég semji megnið af mínu gríni frá september til desember hvers árs og svo er maður meira bara að endurtaka sig og fínpússa restina af árinu. Hefur þú upplifað þjóðhátið? Heldur betur! Skemmti í Brekkunni árið 2011, sá brennuna og datt í partí í hvítu tjöldunum. Fékk líka besta humar sem ég hef smakkað á 900 Grill. Stóðst allar mínar væntingar. Vinnur þú við eitthvað annað enn að skemmta? Ekki seinustu 12 árin nei, en ég vann áður á auglýsingastofunni Jónsson og Le’macks þar sem ég var eiginlega ráðinn sem vinnustaðargrínisti. Hef oft velt fyrir mér hvort ég muni enda á að stofna stéttarfélag fyrir íslenska vinnustaðargrínista!
ÞÚ FÆRÐ VERKFÆRIN HJÁ OKKUR!
Til að gera vinnuna við bygginguna auðveldari er nauðsynlegt að eiga góð verkfæri. Þar komum við sterkir inn með rafmagns- og batterýsverkfæri frá
/midstodin Strandvegur 30 / 481 1475
www.midstodin.is / midstodin@midstodin.is