Skip to main content

Tígull 36. tbl

Page 1

36. tbl. 01. รกrg. 6. - 12. nรณvember 2019 Strandvegur 47 | 481 1161 | tigull@tigull.is | www.tigull.is


Kristófer Tjörvi var valinn í afrekshóp GSÍ Full nafn: Kristófer Tjörvi Einarsson Aldur: 18 ára Áhugamál: Íþróttir Hvar líður þér best? Mér líður mjög vel á golfvellinum og úti í náttúrunni. Hvað óttastu mest? Að gera mistök. Býrðu yfir leyndum hæfileika? Ég er mjög fljótur að læra íþróttir. Instagram eða snapchat? Instagram Hvaða þættir eru í uppáhaldi hjá þér? Friends, Big bang theory og chuck. Uppáhalds golfvöllur? La Galiana á Spáni. Hvaða þýðingu hefur það fyrir þig að vera valinn í afrekshóp GSÍ? Það hefur mikla þýðingu fyrir mig og það sést að miklar æfingar síðustu ára séu að skila sér og þetta gefur manni bara kraft fyrir framtíðina!

TÍGULL

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


Mættu tímanlega Kaffi og vöfflur

á meðan birgðir endast

AFSLÁTTAR-

KVÖLD

Afsláttur gildir ekki af vörum merktum „Lægsta lága verð Húsasmiðjunnar“ eða tilboðsvörum.

Afsláttur gildir eingöngu í verslunum okkar í Vestmannaeyjum á fimmtudag kl. 18-21

i í Vestmannaeyjum al av m ló B g o i n n ju ið Húsasm ber kl. 18-21 m e óv n . 7 n in ag d tu m fim

2afs0% láttur af öllum

smáraftækjum

2af5 % sláttur af seríum & jólaskrauti

25% afslá ttur

af öllum búsáhöldum

20% afslá

25% afslá ttur

af öllum vörum í Blómavali

ttur

af öllum

verkfærum

Tískusýning kl. 19:00 - Litla skvísubúðin og Salka Kynningar frá: Petmark, My Letra, Útgerðinni, Heimilislíf o.fl. www.leturstofan.is

Komdu og upplifðu jólastemningu með okkur!


Hin hliðin á Sigurgeir ljósmyndara í Einarsstofu kl. 17.00 föstudag - Litir og skuggar í fjöru- og sjávarpollum -

„Ég sýni mjög afmarkaðar myndir sem virkar ekki mjög áhugavert þegar maður segir það, en í þeim legg ég áherslu á fjöru- og sjávargróður. Það sýnist kannski ekki mjög spennandi en þarna er ég að sýna að ljósmynd er ekki bara ljósmynd,“ segir Sigurgeir Jónasson, ljósmyndari sem sýnir í Einarsstofu kl. 17.00 á föstudaginn. Sýningin er hluti af Safnahelgi og sýningarröðinni, Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt. Þarna skoðar Sigurgeir það smáa í náttúrunni og einbeitir sér að fjörunni. Þær hafa orðið til á löngum tíma en ferill Sigurgeirs sem ljósmyndara spannar heil 70 ár. „Mig langar að benda fólki á að það sem það sér sem fallegt er eitthvað meira og að fram komi hvernig náttúran varð til. Það er ljósmyndarans að höfða til áhorfandans þannig að honum finnist hún einhvers virði og sé falleg,“ segir Sigurgeir um þetta hugðarefni sitt. Og það þarf margt að haldast í hendur til að dæmið gangi upp og myndin verði eins og hann vill að hún verði. „Fjara er ekki bara fjara og það er að ýmsu að huga áður en lagt er af stað. Vandamálið sem maður stendur frammi fyrir er að myndefnið sé til staðar, birtuskilyrði eins og maður vill hafa þau. Það þarf að gerast á bláfjöru og við þau skilyrði

að myndefnið skili sér sem best. Að vera á réttum stað og á réttum tíma eins og sagt er,“ segir Sigurgeir. Ein mynd kostar þolinmæði Mikið af myndunum eru teknar í fjöru- og sjávarpollum. „Og það þarf að vera alveg stafalogn og eins og ég sagði áðan, öll skilyrði að vera hagstæð til að maður nái því sem ég ætla mér.“ Ljósmyndun er þolinmæðisvinna og það var stundum ekki tekið út með sældinni þegar notast var við filmur. „Það gat tekið mig mörg ár að ná því sem ég ætlaði mér. Þurfti að mæta mörgu sinnum á staðinn. Þegar maður tók myndir á filmuvélar þurfti maður að bíða og sjá árangurinn. Þurfti maður að senda filmurnar til útlanda í framköllun og bíða svo í þrjár til fimm vikur eftir að fá þær til baka. Það er ekki eins og í dag, með stafrænu tækninni að þú tekur 30 til 40 myndir og sérð strax hvort þær hafa heppnast eða ekki. Og velur þá bestu.“ Aðspurður um sýninguna á föstudaginn segir Sigurgeir að myndirnar séu að mestu teknar 30 til 50 ára tímabili. „Viðfangsefnið er mest Heimaey en eitthvað úr öðrum eyjum. Það er ekkert landslag, er kannski frekar leikur að litum og skuggum ásamt mannamyndum,“ segir Sigurgeir að endingu.

Eins og áður segir spannar ljósmyndaferill Sigurgeirs um sjö áratugi. Hann var í fjölda ára ljósmyndari fyrir Morgunblaðið. Sigurgeir og fjölskylda afhentu Vestmannaeyjabæ myndasafnið til varðveislu sjötta janúar 2014. Það er um fjórar milljónir mynda og hefur að geyma sögu Vestmannaeyja í myndum frá 1960. Er ennþá Sigurgeir sem varð 85 ára í haust er enn að mynda og vinnur við flokkun mynda sinna í Safnahúsinu. Sigurgeir var valinn Bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2006 og Eyjafréttir völdu hann mann ársins 2016. Þeir er ekki margt Eyjafólkið sem ekki hefur lent á mynd hjá Sigurgeir og myndir eftir hann hafa farið víða. Frægastar eru myndir hans af Surtseyjargosinu 1963 og hann tók margar eftirminnilegar myndir í Heimaeyjargosinu 1973. Nú gefst tækifæri á að kynnast hinni hliðinni á Sigurgeir í Skuld sem hefur skilað af sér þriðja stærsta ljósmyndasafni landsins og því stærsta sem einkaljósmyndari á Íslandi hefur tekið. Sýningin hefst klukkan 17.00 á föstdaginn og er fólk beðið um að athuga breyttan sýningartíma sem er vegna Safnahelgar.


VÍNYLPARKET

FRÁ DESIGNFLOORING Í BRETLANDI

FRÁBÆRT GÓLFEFNI SEM FÆST Í MÖRGUM GERÐUM OG LITUM. // Vatnshelt // Hljóðdempandi // Frábært yfir upphituð gólf //Auðvinnanlegt //Ekkert undirlag

Verð: 7.990 kr. per m2

- Kíkið við, sjáið úrvalið & spjallið við sérfræðingana í búðinni!

/midstodin Strandvegur 30 / 481 1475 www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is


Vitundarvakning um sykursýki týpu 1 er í nóvember ár hvert - 14. nóvember er alþjóðadagur sykursjúkra -

XXXXX

Hér í Vestmannaeyjum eru rúmlega 20 manns á öllum aldri með týpu 1 af sykursýki og gæti það verið manneskjan við hliðina á þér, þetta sést ekki utan á okkur. “Í raun erum við bara venjulegt fólk með insulínið utan á okkur í staðinn fyrir í briskirtlinum” Hver er orsökin? Ekki er vitað í raun hvað orsakar sykursýki týpu 1 en margt bendir til að erfðir, vírusar og áföll hafi áhrif. En við vitum að sykursýki er ekki smitandi og enginn þróar með sér sykursýki af týpu 1 vegna of mikillar neyslu sykurs. Nokkur atriði sem er gott fyrir alla að vita: - Týpa 1 er ólæknandi, við vöxum ekki uppúr honum og það er ekkert sem við gátum gert til að koma í veg fyrir hann. - Týpa 1 er lífshættulegur sjúkdómur. Ef við fáum ekki insulín í sprautuformi þá deyjum við. - Týpa 1 er ekki lífstílssjúkdómur. - Týpa 1 skiptist ekki í mörg stig og það er enginn með týpu 1 á mjög alvarlegu stigi. Allir sem eru með týpu 1 eru jafn mikið sykursjúkir.

- Enginn hreyfing, matur eða annað getur lagað týpu 1 en það er góð regla fyrir okkur að hugsa einstaklega vel um okkur og sykur, óheilbrigt samband við mat og alkóhól er ekki æskilegt. Hreyfing er líka allra meina bót. Bráðnauðsynlegt er fyrir sykursjúka að hugsa vel um fætur og hendur því að taugaskemmdir eru algengur fylgikvilli ásamt sjóndepurð (sjá nánar á diabetis.is) Við höfum ekkert val og það er sárt að heyra þegar að fólk segir við okkur: Ég gæti aldrei sprautað mig svona oft! Við viljum halda lífi, það er okkar val. Einstaklingar með sykursýki týpu 1 telja flestir kolvetnin í matnum sínum og gefa sér insulín miðað við það. Þegar að einstaklingur með týpu 1 er að borða þá ættir þú ekki að segja: “ættir þú nokkuð að vera að borða þetta?” Við megum borða ALLT eins og allir og allt er gott í hófi eins og hjá “heilbrigðum”. 5-15 stungur í fingurinn á dag til að athuga blóðsykursmagnið. Nýlega hefur komið á markað lítið tæki sem er tengt við okkur svo við þurfum

ekki að stinga okkur svo oft, “sensor” kallast það tæki. Mikil bylting fyrir þá sem geta notað það. 5-10 stungur í maga/læri á dag til að gefa okkur insulín. Nú hefur komið á markað “dæla” sem er einskonar utanáliggjandi bris sem leysir sprauturnar af hólmi. 1 stunga á 3ja daga fresti í stað 5-10 stungur á dag. Mikil bylting og gleðiefni. Við eigum misjafna daga og margt getur haft áhrif á dagana okkar þess vegna er nauðsynlegt fyrir okkur að þið vitið að þetta er oft basl þó að líf okkar sé oftast bara mjög gott. Þetta er barátta sem við stöndum oft ein í þó við séum umvafin fjölskyldu og vinum. Enginn getur leyst okkur af. Við erum þakklát fyrir skilning sem við mætum en fræðsla fyrir alla er okkur lífsnauðsynleg. Mikill munur er á týpu 1 og týpu 2 og er nauðsynlegt að fólk geri sér grein fyrir óskyldleika sjúkdómsins. Einkenni týpu 1 og hættumerki blóðsykursjokks og blóðsykursfalls má finna inná www.diabetis.is Sonja Ruiz Martinez og Anna Ester Óttarsdóttir.


/smarteyjan #smarteyjan smarteyjan

20%

afsláttur

AF ÖLLUM VÖRUM MIÐVIKUDAG 6.NÓV TIL LAUGARDAGS 9.NÓV

HLAKKA TIL AÐ SJÁ ÞIG Á KONUKVÖLDINU! OPIÐ TIL 22:00 Á MIÐVIKUDAGSKVÖLD

www.smartey.is | Smart | Vestmannabraut 30 | sími: 481 3340


Viðburðir MIÐ

06 NÓV

Sjá nwáwn.atrigull.is w

ÍBV U - SELFOSS U 2. DEILD KARLA

MIÐ

Íþróttamiðstöðin kl. 19:30

06

KONUKVÖLD GEISLA

MIÐ

MIÐ

06

NÓV

06

NÓV Haldið í versluninni Geisla kl. 19:00 - 21:00

MIÐ

06 NÓV

FIM

07 NÓV

FIM

07 NÓV

FIM

07

AGLOWFUNDUR

Safnaðarheimilinu kl. 20:00 AFSLÁTTARKVÖLD HÚSASMIÐJUNNAR

Haldið í Húsasmiðjunni kl. 18:00 - 21:00 AFSLÁTTARKVÖLD DÍZO

Hársnyrtistofan Dízo kl. 19:00 - 22:00 KÓTILETTUVEISLA

NÓV

Höllin kl. 19:30

FÖS

08 NÓV

NÓV

FORSÝNING Á NÝJU MYNDBANDI FOREIGN MONKEYS

The Brothers Brewery kl. 21:00

LAU

09 NÓV

SUN

10 NÓV

JÓL Í EYJUM MARKAÐUR

Höllin kl. 12:00 - 17:00 ÁRGANGAMÓT ÍBV Í FÓTBOLTA

Herjólfshöllin kl. 12:00 - 17:00

SUN

10 NÓV

JÓL Í EYJUM MARKAÐUR

Höllin kl. 13:30 - 23:30

MIÐ

06 NÓV

MIÐ

06 NÓV

FIM

07 NÓV

FÖS

08 NÓV

FIMMTUDAGUR

FIMMTUDAGUR

07

07

NÓV

FÖSTUDAGUR 08

NÓV

FÖSTUDAGUR

11 NÓV

08

NÓV

MÁN

11 NÓV

kl. 21:00

LAUGARDAGUR

LAUGARDAGUR

09

09

NÓV

kl.17:00

SUNNUDAGUR 10

NÓV

kl.21:00

SUNNUDAGUR 10

NÓV

NÓV

ÞRI

12 NÓV

ÞRI

12 NÓV

kl. 18:00

kl. 21:00

HANDVERK & HITTINGUR

Vinaminni/Kviku kl. 13:00 - 16:00

STÚLKNAKÓRINN

Vinaminni/Kviku kl. 16:00

SÖNGHÓPURINN

Vinaminni/Kviku kl. 17:00

SPILAVIST

Hraunbúðum kl. 20:00

SÖNGHÓPURINN

Á Hraunbúðum kl. 14:45 BOCCIA

Vinaminni/Kviku kl. 16:00

NÓV

MÁN

kl. 17:00

LEIKFIMI

Íþróttamiðstöðin kl. 10:10 - 10:50

kl.18:00

kl. 21:00

PERLUSAUMUR

Vinaminni/Kviku kl. 16:00 - 18:00

LÍNUDANS

Vinnaminni/Kviku kl. 15:00

VATNSLEIKFIMI

Sundlaug Íþróttamiðstöð kl. 10:50 - 11:20

PÚTTSALURINN OPINN ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 12:30 - 14:00


Safna

Helgin 7.-10. nóvEMBER 2019

Fimmtudagur 7. nóvember kl. 17:00 í Einarsstofu, Safnahúsi.

LAUGARDAGUR 9. nóvember kl. 13:00 í Einarsstofu, Safnahúsi.

Lista- og menningarfélag Vestmannaeyja opnar samsýninguna Í anda Júlíönu Sveinsdóttur.

Bjarni Harðarson kynnir nýjar bækur hjá Sæmundarútgáfunni. Harpa Rún Kristjánsdóttir og Guðjón Ragnar Jónasson lesa úr nýjum bókum sínum.

Félagið verður með opið hús að Strandvegi 50 (Hvíta húsinu) helgina 9.-10. nóvember, kl. 16:00-18:00.

LAUGARDAGUR 9. nóvember kl. 14:30 í Einarsstofu, Safnahúsi. Fimmtudagur 7. nóvember kl. 18:00 í StafkIRkju. Setning Safnahelgar.

Föstudagur 8. nóvember kl. 17:00 í Einarsstofu, Safnahúsi. Úr safni Sigurgeirs ljósmyndara. Sigurgeir frá Skuld sýnir valdar listrænar myndir og Helga Hallbergsdóttir fer yfir syrpu hans af verkefninu Hraun og menn.

LAUGARdagur 9. nóvember kl. 12:00 í Einarsstofu, Safnahúsi. Súpa í boði Söguseturs 1627.

LAUGARdagur 9. nóvember kl. 12:30 í Einarsstofu, Safnahúsi. Bjarni Harðarson f.h Sæmundarútgáfunnar og Ragnar Óskarsson f.h Söguseturs 1627 skrifa undir samning um útgáfu á Reisubók sr. Ólafs Egilssonar.

Guðrún Bergmann fjallar um 5 einfaldar leiðir til að bæta heilsuna og kynnir nýjustu bók sína BETRA LÍF fyrir konur á besta aldri.

LAUGARDAGUR 9. nóvember kl. 16:00 í HVÍTASUNNUKIRKJUNNi, STÓRA SALNUM. Lúðrasveit Vestmannaeyja með hátíðartónleika í tilefni af 80 ára afmæli sveitarinnar.

SUNNUDAGUR 10. nóvember kl. 13:00 í Einarsstofu, Safnahúsi. Hörður Baldvinsson, safnstjóri Sagnheima segir frá för fimm Eyjamanna á Ólympíuleikana í Berlín 1936.

SUNNUDAGUR 10. nóvember í Einarsstofu, Safnahúsi. Að loknu erindi Harðar er opnuð sýning á myndum og fleiru sem tengist för þeirra. Voru Eyjamennirnir fimm í hópi 50 Íslendinga sem fóru á þessa frægustu Ólympíuleika allra tíma.


Fólkið bakvið lista- & menningarfélagið - Kíktum á vinnustofuna hennar Elínar Árnadóttur -

Elín Árnadóttir heiti ég, 30 ára eyjamær og er menntuð sem kjólaklæðskeri. Ég á og rek saumastofu sem heitir Einstök saumastofa en einnig vinn ég sem móttökuritari á HSU. Ég er gift Arnari Ingólfssyni, hann er meistari í bifreiðasmíði og vinnur í Bragganum. Saman eigum við tvo drengi, Ingólf Mána 5 ára og Gunnar Dag 1 árs. Ég hef alltaf haft áhuga á öllu sem tengist handverki og hannyrðum og lærði ég ung á saumavélina hennar mömmu. Ég hef alltaf haft mikla þörf fyrir að skapa, það kom því ekki á óvart að ég tók stúdentspróf af Lista- og hönnunarbraut í Tækniskólanum og seinna fór ég svo á Fataiðnbraut. Ég útskrifaðist þaðan 2017 og tók strax á eftir sveinspróf í kjólasaum. Mér gekk það vel í sveinsprófinu að Iðnaðarmannafélag Reykjavíkur tilnefndi mig til bronsverðlauna fyrir “sérlega vel útfært sveinspróf” eins og þau orðuðu það. En það sem mér þótti sérlega vænt um var að það hafa ekki verið gefin verðlaun eða viðurkenning fyrir sveinspróf í kjólasaum í mörg ár eins og sveinsprófsdómarinn tilkynnti mér. En það sem toppaði það var að mér var boðin vinna á mjög virtri saumastofu í Reykjavík sem sérhæfir sig í samkvæmis- og brúðarkjólum, maður kemur sjálfum sér sífellt á óvart. Við fjölskyldan fluttum til Vestmannaeyja strax eftir sveinsprófið mitt en það var alltaf draumur okkar að flytja aftur heim. Í húsinu sem við keyptum okkur hér í eyjum var ég ekki lengi að eigna mér eitt herbergi og opnaði þar litla saumastofu. Eftirspurnin var mikil og varð ennþá meiri þegar ég var með einu opnu saumastofuna á eyjunni. Ég fór í fæðingarorlof í nóvember í fyrra þegar yngri strákurinn okkar fæddist og saumaði ég mikið í fæðingarorlofinu, en þó mest fyrir mig sjálfa. Við hjónin

giftum okkur í sumar en ég hannaði og saumaði brúðarkjólinn minn og tvo blómastelpukjóla, eitt af því skemmtilegra sem ég hef gert hingað til. Ég var ákveðin að opna ekki aftur saumastofuna heima eftir fæðingaorlofið enda rýmið sem ég hafði löngu sprungið og varð ég því rosalega glöð þegar mér bauðst aðstaða í Hvíta húsinu. Áður en ég fór í fæðingarorlof var ég einnig að sauma barnafatnað og selja. Ég kallaði barnafatamerkið Moon eftir eldri stráknum mínum sem heitir Máni í seinna nafni. Ég seldi fatnaðinn í Gallerý Tyrkja Guddu sem er því miður búið að loka. Þar komu saman margar hæfileikaríkar handverkskonur og var ýmislegt til sölu. Hér er svo mikið af hæfileikaríku fólki, þess vegna er svo frábært að Lista- og menningarfélag Vestmannaeyja sé komið með aðstöðu í Hvíta húsinu. Ótrúlega gaman að sjá hvað fjölbreytileikinn er mikill í sambandi við list og sköpun og gaman að sjá alla saman komna á einum stað. Ég er mikið spurð hvort ég ætli að fara aftur út í það að sauma barnafatnað. Ég verð að viðurkenna

það að ég er ekki búin að ákveða hvað ég geri. Ég hef meiri áhuga á að sauma kvenfatnað en ég tók samninginn minn fyrir sveinsprófið hjá RYK Íslensk hönnun en þar er hannaður og framleiddur fatnaður á konur. Mér fannst ótrúlega gefandi og skemmtilegt að vinna þar og er það eiginlega draumurinn að vera með saumastofu og framleiða kvenfatnað. Mér fannst svo ótrúlega gaman að hjálpa konum að finna föt sem passaði þeirra vexti. Það eru ekki allir sem passa í staðlaðar stærðir og vorum við mikið í því að stytta, lengja, víkka, þrengja o.s.fr. En svo verður maður auðvitað að taka það inn í myndina hvort það sé markaður fyrir svona framleiðslu hér í eyjum en ég ætla að vera skynsöm og byrja rólega og sjá hvað gerist. Einstök saumastofa býður upp á sérsaum, viðgerðir, breytingar, mælingar og fl. Það er stór og góður mátunarklefi á saumastofunni og því get ég auðveldlega aðstoðað við mælingar, mátanir og fl. Það þarf ekki að hringja á undan sér, það er bara að mæta á opnunartíma en auðvitað má hafa samband við mig sérstaklega ef það er eitthvað. Stór verkefni eins og sérsaumur eða t.d. breytingar á brúðarkjólum og fleira sem taka lengri tíma þá er gott að heyra í mér og við ákveðum tíma saman. Ég vil einnig vekja athygli á því að ég er ein sem vinn á saumastofunni svo endilega að koma tímalega með fatnað sem þarf að vera tilbúinn fyrir ákveðna dagsetningu. Einstök saumastofa er opin alla virka daga frá kl. 13:00-15:00 og er hún við Strandveg 50, 2. hæð (Hvíta húsið). Ef þessi opnunartími hentar ekki er hægt að hafa samband við mig í S: 698-2262 eða á facebook (/einstoksaumastofa). Mig langar líka að nýta tækifærið og þakka kærlega fyrir frábærar móttökur.


Afsláttarkvöld Við verðum á Húsasmiðjukvöldinu 7.nóvember 18:00 - 21:00

FIMMTudaginn 7. nóvember

15%

KL. 19:00 - 22:00

Nú er komið að okkar árlega kvöldi! þar sem við kynnum jólatilboðin okkar og erum með geggjaðan afslátt af öllum okkar vörum og raftækjum.

afsláttur

Baldur Rafn Gylfason frá b.pro lætur sig ekki vanta! Fljótandi veigar, stemmning & stuð!!

Notalegt konukvöld í Geisla Miðvikudaginn 6. nóvember frá kl. 19:00 - 21:00

Að venju verður þetta glæsilegt kvöld með tískusýningu, lifandi tónlist, kynningar og ótal glæsilegir vinningar frá okkar samstarfsaðilum. Einnig verða tilboð í gangi þetta kvöld og vonumst við til þess að sjá sem flestar !

Hilmisgata 4 sími 481 - 3333


Þrettándinn ekki síðri menningarviðburður en þjóðhátíð - Sighvatur Jónsson, Geir Reynisson og Hrefna Díana Viðarsdóttir gera heimildarmynd um þrettándann í Eyjum -

Lokavinnsla heimildarmyndarinnar Þrettándinn stendur nú yfir hjá framleiðslufélaginu SIGVA media sem Sighvatur Jónsson fjölmiðlamaður og framleiðandi stofnaði fyrir fjórtán árum. Þetta er önnur mynd félagsins á árinu um menningarviðburð Vestmannaeyja. Sighvatur og Skapti Örn Ólafsson Eyjamaður gerðu í sumar Fólkið í Dalnum, heimildarmynd um Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Þjóðhátíðarmyndin - góðar viðtökur og mikið áhorf Fólkið í Dalnum fékk góðar viðtökur. Yfir þúsund manns sáu myndina í kvikmyndahúsum í Reykjavík og Vestmannaeyjum. Myndin var sýnd á RÚV viku fyrir þjóðhátíð og var í efstu þremur sætunum á áhorfslistum mismunandi markhópa yfir sjónvarpsefni þá vikuna. Samkvæmt áhorfstölum RÚV var uppsafnað áhorf 32% og hlutdeild 82,4% sem er í meira lagi fyrir heimildarmyndir af þessu tagi. „Mér finnst þrettándinn líka vera mjög merkilegur menningarviðburður Vestmannaeyja,“ segir Sighvatur.

Við Skapti byrjuðum að mynda á þjóðhátíð 2014 fyrir Fólkið í Dalnum. Í ársbyrjun 2015 ákvað ég að byrja að safna efni um þrettándann í Eyjum líka. Ég fékk Geir Reynisson, vin minn, mér til aðstoðar. Við Geir höfum brallað mikið saman frá útvarpsárunum við Gufuna fyrir þjóðhátíð. Geir þekkir þrettándahátíðina vel. Hann hefur komið að undirbúningi og framkvæmd hennar á ýmsum sviðum. Geir hefur hjálpað mér við ýmsa hugmyndavinnu, val á viðmælendum og hefur tekið mörg viðtölin með mér. Snemma í ferlinu hafði ég samband við Hrefnu Díönu Viðarsdóttur sem gerði rannsóknarritgerð um þrettándann í Vestmannaeyjum. Það var BA ritgerð hennar í þjóðfræði við Háskóla Íslands 2012. Hrefna Díana gerði líka útvarpsþátt fyrir RÚV úr viðtölum sem hún tók við vinnslu ritgerðarinnar“ segir Sighvatur. Mikil vinna að fjármagna heimildarmyndir Sighvatur segir að framleiðsla heimildarmynda sé tímafrek og

það fari mikil vinna í fjármögnun þeirra. Fjármagn er fengið með sölu sjónvarpsréttar og endurgreiðslu frá Kvikmyndamiðstöð Íslands á 25% framleiðslukostnaðar. Stærstan hluta fjármagnsins þarf að sækja í formi styrkja frá ýmsum aðilum. „Að þessu leyti eru myndirnar um þjóðhátíð og þrettánda svipaðar, við erum að leita til styrktaraðila í Vestmannaeyjum eða sem tengjast Eyjasamfélaginu. Viðtökur hafa verið jákvæðar þó vitanlega geti ekki allir verið með í báðum myndum. Við leitum líka til einstaklinga með svokallaðri hópfjármögnun hjá Karolina Fund. Á Facebook síðu þrettándamyndarinnar er tengill á söfnunarsíðuna,“ segir Sighvatur. Hægt er að styrkja framleiðendur myndarinnar meðal annars með „tröllaklappi á bakið“ og kaupum á bíómiðum. „Á Karolina Fund er líka hægt að kaupa heimsókn í tröllasmiðjuna í Eyjum sem er ævintýraheimur út af fyrir sig. Í þessu látlausa atvinnuhúsnæði kviknar bókstaflega líf á fyrstu dögum ársins þar sem tröll af ýmsum stærðum


og gerðum vakna fyrir þrettándann,“ segir Sighvatur. Þrettándagleði ÍBV fer að þessu sinni fram að kvöldi föstudagsins 3. janúar 2020. Höfundum myndarinnar tókst að ná samkomulagi við ólíkindatólin Grýlu og Leppalúða um að bjóða styrktaraðilum myndarinnar að panta heimsókn frá þeim heiðurshjónum í lok þrettándagleðinnar. „Við upptökur myndarinnar hefur myndast náið samband við Grýlu og Leppalúða. Ég hef fengið leyfi til að vera með þeim á þrettándavagninum. Það var reyndar eins og uppgjör við æskuhræðsluna að fá að mynda þau og öll tröllin þar. Ég var svo rosalega hræddur við þetta allt saman sem ungur peyi að mamma þurfti oft að fara snemma með mig heim,“ rifjar Sighvatur upp. Hann áréttar að takmarkaður fjöldi heimsókna frá Grýlu og Leppalúða er í boði - fyrstir panta, fyrstir fá. Þrettándinn frumsýndur í Eyjabíói milli hátíða Heimildarmyndin Þrettándinn verð-

ur frumsýnd í Eyjabíói í Vestmannaeyjum föstudaginn 27. desember næstkomandi. Þá verður boðið upp á sérstaka þrettándasýningu á myndinni í Eyjum laugardaginn 4.

janúar 2020. Stefnt er að sýningu myndarinnar í kvikmyndahúsi á höfuðborgarsvæðinu og verða nánari upplýsingar veittar um það síðar.

Þaklist ehf Þakviðgerðir, Sérhæfi mig í flötum þökum. Tek að mér ýmsa smiðavinnu, parketlagnir, grindverk, sólpalla og fleira.

20 ára reynsla lærður smiður Smári Björn S: 849-2694 smaribjorn@gmail.com

Miðasala í síma 852-1940 /þaklist

8. sýning 9.nóvember kl. 15:00 9. sýning 10.nóvember kl. 15:00


Endilega kíkið á okkur eða hafið samband á Facebook eða á eyjaborn@eyjaborn.is /eyjaborn

Vegna mikillar eftirspurnar viljum við gleðja ykkir með því hafa fasta opnunartíma í nóvember og desember. Við verðum með úrval af Lego, Playmobil, Babyborn, Barbie, Disney, Fisher price, Lamaze, Marvel o.mfl.

Við bjóðum upp á sérpantanir á leikföngum ef pantað er fyrir 20. nóvember

Elín Árnadóttir- Kjólaklæðskeri

ÖKUKENNSLA

SNORRA RÚTS

Frá 14.nóv: Fimmtudaga 13.00-17.00 Föstudaga 13.00-17.00 Laugardaga 11.00-14.00

Kennslubifreið: Mercedes Benz C200-C01

• Akstursmat • Endurtökupróf • Ökuskóli

Desember Alla virka daga 13.00-18.00 Laugardaga 11.00-14.00

20 ára reynsla! Sími 692-3131

Eyjabörn / Strandvegur 47 / 481 3001 Leið 52

STRÆTÓ

www.straeto.is 540 -2700

772-6766 Heiðarvegur 9

/crispus

Hægt er að borga fargjaldið inn í strætó Ferðir í Landeyjarhöfn!

Virkir dagar:

08:00 Herjólfsferð: 10:45 17:45 Herjólfsferð: 20:45

Frá Mjódd Frá Mjódd

Opnum 9, 10 eða 11 fer eftir pöntunum og erum til 18.00 virka daga opið á laugardögum eftir pöntunum. það er hægt að panta tíma allan sólahringinn á facebook

Helgar:

Frá Umferðarmiðstöð Frá Mjódd Frá Mjódd

07:55 08:05 Herjólfsferð: 10:45 15:15 Herjólfsferð: 18:15 Herjólfsferð: 10:45

www.straeto.is | 540-2700

www.ernir.is 481-3300

Frá Reykjavík

Frá Vestm.eyjum

Mán Þri Mið Fim Fös Lau Sun Brottför Lending

07:15 15:45 11:30 17:30

07:40 16:10 11:55 17:55

08:00 16:30 12:15 18:15

08:25 16:55 12:40 18:40

Tannlæknar 9. - 10. nóv - Hjalti Harðarson 21. - 24. nóv - Hjalti Harðarson 2. - 5. des - Ármann Hannesson

Hólagötu 40

Tímapantanir í síma 481-2772


JÓLAGJAFAHANDBÓK TÍGULS KEMUR ÚT 13. NÓVEMBER Næsta tölublað Tíguls verður tileinkað jólag jafainnkaupum. Ef þú vilt trygg ja þínu fyrirtæki pláss í blaðinu þá getur þú sent okkur tölvupóst á tigull@tigull.is eða hringt í síma 481 - 1161. Blaðið kemur út 13. nóvember. Endilega látið okkur vita fyrir föstudaginn 8. nóvember ef þið viljið taka þátt.

Við skulum

BYRJA Á ÞVÍ AÐ SMYRJA

Ökum af stað út í veturinn, vel smurð og sæl.

Sértilboð á smurþjónustu hjá öllum viðurkenndum þjónustaðilum Toyota á Íslandi, dagana 4. - 15. nóvember

Nethamar ehf / Garðavegi 15 / 481 1216

Sértilboð á olíum, olíusíum, loftsíum, frjókornasíum, bensín- og hráolíusíum, þurrkublöðum, þurrkugúmmíi, ljósaperum, rúðuvökva, froslegi, Adblue og vinnusölu.* *Afsláttur af vörum gildir eingöngu með vinnusölu.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 36. tbl by Leturstofan - Issuu