

Þingmenn Suðurkjördæmis um borð í nýjum Þór. Frá vinstri; Vilhjálmur Árnason, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Jóhann Friðrik Friðriksson, Guðrún Hafsteinsdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Guðbrandur Einarsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir og Ásmundur Friðriksson.
Kjördæmavika Alþingis er að baki. Þá starfar þingið ekki heldur gefst alþingismönnum færi á að fara um kjördæmin sín og heilsa upp á fólk á heimaslóðum sínum.
Allir þingmenn Suðurkjördæmis ferðuðust saman í kjördæmavikunni og hittu sveitarstjórnarfólk í síð ustu viku. Að baki eru nær 1.400 kílómetra akstur og það segir sína sögu. Þingmenn funduðu með sveitarstjórnum og við átt um þar uppbyggileg og góð samtöl um það sem helst brennur á þeim sem eru í forystu á hverjum stað. Sömu eða svipuð megináhersluatriði eru í sveitarfé lögunum en auðvitað eru líka sérhæfðari mál sem áhersla er lögð á hér og þar. Á góma bar heilbrigð ismál, samgöngur og orkumál en einnig skólamál og menntun, landbúnaðarmál, fæðuöryggi og fjöl breytileiki atvinnulífs.
Einnig funduðu þingmenn með lögreglustjórum og fóru yfir málefni lögreglunnar. Brýnt er að fjölga lög reglumönnum til þess að tryggja öryggi borgaranna enda er á hverjum tíma gríðarlegur fjöldi gesta í kjör
dæminu, bæði ferðamenn og allur sá fjöldi sem á eða er í sumarbústöðum.
Suðurkjördæmi er víðfeðmt og fjölbreytt. Þar er hliðið að Íslandi, Keflavíkurflugvöllur. Um það bil helmingur orku landsmanna verður til í Suðurkjör dæmi og þar eru margar af vinsælustu náttúruperl um landsins. Mörg öflugustu sjávarútvegsfyrirtæki landsins eru í Suðurkjördæmi og síðast en ekki síst er þar að finna ótrúlega mikinn mannauður. Svo mætti áfram telja.
Það er verkefni okkar allra að efla kjördæmið enn frekar, treysta innviði og skapa umgjörð vaxtar og velsældar. Við þingmenn kjördæmisins erum sam hentur hópur og ætlum okkur að standa vel við bakið á íbúum kjördæmisins.
Við þökkum góðar móttökur og horfum full tilhlökk unar til starfsins á komandi þingvetri.
Fyrir hönd þingmanna kjördæmisins, Guðrún Hafsteinsdóttir
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó. Forsíðumynd af Valgerði tók Ásta Kristjánsdóttir eigandi Studio8.
ÚTGÁFA:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is
Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.
bókið tímalega.
Eins og glöggir Eyjamenn hafa jafnvel orðið varir við erum við á Leturstofunni smám saman að taka til hendinni í höfuðstöðvum okkar að Vestmannabraut 38. Eitt af því sem okkur langar að gera er að gera sögu hússins góð skil. Til þess vantar okkur tilfinnilega myndir úr starf semi í húsinu og þá sér í lagi úr mjólkurbúðinni. Húsgrunnurinn var upprunalega ætlaður húsi Sparisjóðs Vestmannaeyja en þau gengu ekki eftir. Fór svo að Mjólkursamsalan í Reykjavík keypti grunninn og fyrir nýja mjólkurbúð. Opnaði hún þann 17. Apríl 1955. Fjöldin allur af fyrirtækjum hefur verið star fræktur í húsinu síðan þá. Þar á meðal Spari sjóður Vestmannaeyja, ferðaþjónusta, upplýs ingamiðstöð og ýmsar verslanir.
Ef þú átt eða veist um myndir eða uppplýsingar um sögu hússins væri gaman að fá að sjá og heyra. Endilega sendu okkur þá línu á netfangið leturstofan@leturstofan.is
Veitingastaðurinn NÆS verður opinn sjö daga vik unnar frá hádegi fram á kvöld til jóla, til að byrja með og þá verður tekin staðan hvernig þau ætla að hátta restina af vetrinum. „Við vilju byggja NÆS upp sem stað sem er með fjölbreytta þjónustu.“ sagði Gísli Matthías sem er mjög spenntur fyrir vetrinum. „Að sjálfsögðu er mikilvægt að fólk nýti sér þjón ustuna svo það sé hægt að halda opnu eins mikið og hægt er.“
Verður Sælkerabúð Slippins eitthvað opin?
„Við höfum ákveðið að við verðum ekki með sælkera búð Slippsins í ár því miður!
En við ætlum að taka upp fiskibakkana aftur í nóv ember og bjóða upp á, í allan vetur, glænýja fiskrétti sem verða tilbúnir í ofninn heima, með einföldum eldunarleiðbeiningum. Hægt verður að vera í áskrift sem verður ódýrara eða panta með dags fyrirvara. Einnig ætlum við að bjóðs upp á sælkerakörfurnar sem voru svo vinsælar sem og nauta-wellington en í þetta skipti bara fyrir áramót.
Í byrjun desmeber munum við svo bjóða upp á frá bæra jólaveislu á Slippnum sem við erum að fara að auglýsa. Auk þess verðum við með skemmtilegan jólasmakkseðil á NÆS.“
Hvaða nýjungar eru í boði?
„Við höfum nú þegar bætt nokkrum réttum inn á kvöldmatseðillinn á Næs og svo erum við að byrja með hádegishlaðborð á hagstæðu verði þar sem matseðillinn birtist á facebooksíðu okkar vikulega. Einnig verður hægt að koma í smárétti og fá fisk dagsins ef fólk kýs það heldur.
Þá ætlum við einnig að byrja með öflugan take-away seðil sem hægt verður að panta í síma eða um net kerfið okkar.
Í nóvember ætlum við svo að opna NÆS veisluþjón ustu sem mun geta séð um veislur af öllum stærðum og gerðum fyrir hvaða tilefni sem er.“
Hvað með eins og drykkjarseðilinn, ertu með þar einhverja framandi og skemmtilega drykki? Kokteilaseðillinn á NÆS er mjög skemmtilegur. Svo erum við líka að brugga kombucha, áfengislaust gerjað te, sem er í senn bragðgott og áhugavert.
„Sumarið var algjörlega frábært á báðum stöðum bæði Slippnum og NÆS. Við vorum heppin með frábært starfsfólk sem skilaði frábæru sumri.
Nú erum við full tilhlökkunar fyrir vetrinum sem hefur alltaf verið erfitt að tækla hér í Eyjum. En við vonum að með bættri þjónustu muni það takast.“
„Matey gekk vonum framar, þetta er viðburður sem á bara eftir að stækka. Það var magnað hvernig ferðaþjónustan og matvælafyrirtækin tóku hönd um saman að gera enn einn flotta viðburðinn sem við Vestmannaeyingar eigum.“
Nemendur
Við erum stolt að segja frá því að Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum er formlega orðinn UNESCO skóli og hefur fengið leyfi til að nota merki UNESCO skóla sem gæðastimpil á því góða starfi sem unnið er í skólanum.
Skólinn hefur haft umhverfismál að leiðarljósi undanfarin ár og hefur þegar innleitt öll fimm skrefin í grænum skrefunum. Nú er Framhaldsskólinn orðinn UNESCO skóli og það merkir að stefna skólans er byggð á stefnu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóð anna. Skólinn hefur einsett sér að nemendur, starfs menn og allt skólasamfélagið leggi sig fram við að gera það sem þeir geta til að stuðla að sjálfbærni á öllum sviðum. En til að vera UNESCO skóli þá skuld bindur skólinn sig til að vinna að verkefnum sem tengjast;
- Alþjóðasamvinnu
- Starfsemi Sameinuðu þjóðanna - Heimsmarkmiðum um sjálfbæra þróun - Friði og mannréttindum.
Skólinn hefur skuldbundið sig til að halda árlega upp á tvo ólíka alþjóðadaga Sameinuðu þjóðanna. Þar er úr ótal dögum að velja svo sem alþjóðadaga: læs is, mannréttinda, hafsins, einhverfu, barnsins, friðar, jarðarinnar og vísinda og auðvitað verða það nem endur skólans sem velja hvaða dagar það eru sem við höldum sérstaklega upp á.
Skólinn ætlar að standa árlega fyrir einum viðburði sem tengist Sameinuðu þjóðunum sem á samhljóm við gildi þeirra eða heimsmarkmiðin. Skólinn ætlar að vera með sýningar á verkefnum sem tengjast gild
um Sameinuðu þjóðanna og standa að viðburðum sem snúa að umhverfisvernd, loftlagsaðgerðum eða góðgerðamálum. Jafnframt skilar skólinn árlega til Félags Sameinuðu þjóðanna yfirliti yfir þau verkefni sem skólinn hefur sinnt innan vettvangs skólanetsins.
Það er mikil viðurkenning fyrir skólann að fá þennan gæðastimpil og tilheyra skólaneti UNESCO. Nú er skólinn kominn með aðgengi að skólasíðu samtakanna og veitir það skólanum aukin tækifæri til samstarfs við aðra UNESCO skóla. Nemendur fá nú tækifæri til að taka þátt í verkefnum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna um allan heim og Sendiráð Ís lands í ólíkum þjóðum leitast við að vísa til skólanna spennandi verkefnum og tækifærum sem tengjast gildum UNESCO. Jafnframt fá nú kennarar og nem endur tækifæri til að taka þátt í ráðstefnum og þing um á vegum UNESCO og skólanetum annara landa.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
lést á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum fimmtudaginn 6. október 2022. Útförin verður gerð frá Landakirkju föstudaginn 14. október kl. 13 og streymt á vef Landakirkju, landakirkja.is Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Slysavarnadeildina Eykindil.
Fyrir hönd aðstandenda
Þórdís Borgþórsdóttir
Ragnheiður Borgþórsdóttir
Emilía Borgþórsdóttir Páley Borgþórsdóttir
Borgþór Eydal Pálsson ömmu- og langömmubörn
Oddur Már Gunnarsson
Sindri Óskarsson
Karl Guðmundsson
Arnsteinn Ingi Jóhannesson
Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.
Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.
Verð: 12.400 kr.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall móður okkar,
Hraunbúðum Vestmannaeyjum
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hraunbúða fyrir góða umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda
Stefán Friðþórsson
Brynja Friðþórsdóttir Guðlaugur Friðþórsson Sigurhanna Friðþórsdóttir
María Tegeder Jón Atli Gunnarsson
Elskulegur eiginmaður, sonur, faðir, tengdafaðir, stjúpi & afi
lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum, 1. október 2022. Útförin verður gerð frá Selfosskirkju föstudaginn 14. október kl. 14. Beint streymi verður á vef Selfosskirkju. Blóm & kransar vinsamlega afþökkuð, þeim sem vilja minnast hans er bent á Parkinsonsamtökin.
Jóhanna Gunnarsdóttir
Sigrún Kristjánsdóttir Dagbjört Stefánsdóttir Sigrún Stefánsdóttir
Gísli Stefánsson Kristín Stefánsdóttir
Alda Jónsdóttir
Marta Jónsdóttir
Gunnar Kristmundsson
Þórarinn Guðni Sveinsson
Bjarki Björnsson
Guðrún Bergrós Tryggvadóttir
Davíð Sigurðsson
Arnþór Jónsson
Þröstur Valmundsson & barnabörn
Hvenær fluttir þú aftur til Vestmannaeyja? „Ég ákvað að flytja 2018, til reynslu og sjá hvernig það gengi. Þá aðallega hvort ég hefði nóg að gera. Það hefur gengið eftir, því ef bæjarsjóður hefði ekki tekið þátt þá hefði ég líklega ekki komið.“
Aðspurður hvernig honum fyndist að vinna með einstaklingunum í sumarvinnunni sagði Eiríkur það mjög gefandi að vinna með fólkinu og það sé það sem stendur upp úr ásamt því að gera bæinn fallegan.
Uppáhalds árstími og afhverju? „Þeir hafa allir sinn sjarmann, en ég myndi segja vorin og haustin. Sumarið fór mikið í stjórnun og að halda hópnum saman og minna í garðyrkjuvinnu sem ég hef mest gaman af en þetta hefur allt sinn sjarma.“ Áttu þér uppáhalds plöntu?
„Það er auðvitað lúpínan. Hún er bæði falleg og þrautseig, bindur jarðveg við erfiðar aðstæður og myndar jarðveg. Allur blómstrandi runnagróður finnst mér fallegur.“
Eiríkur Ómar Sæland eða Eiríkur blómi, eins og margar kannast við hann sem, þegar hann bjó hér í Eyjum árum áður og rak blómaverslun, hefur haft nóg að gera við að gera bæinn okkar fallegan.
Eiríkur er garðyrkjufræðingur frá Garðyrkjuskólanum og lærði auk þess blómaskreytingar í Noregi á sínum tíma. Hann er eigandi fyrirtækisins Sælandsgarðar ehf. ásamt syni sínum Kolbeini. Sælandsgarðar eru garðaþjónusta sem sérhæfir sig í slætti, trjá- og runnaklippingum, trjáfellingum, beð hreinsunum, hellulögnum og fleiru. Sælandsfjölskyldan er mikil garðyrkjufjölskylda og ýmsir aðrir fjölskyldumeðlimir eru með græna fingur, til dæmis lauk Kolbeinn Sæland sonur Eiríks sveinsprófi í skrúðgarðyrkju árið 2018, bróðir Eiríks, Sveinn, í blómarækt og á eina af stærstu garðyrkju stöðvum á Íslandi, Espiflöt.
Eiríkur á tvö börn, þau Huldu sem vinnur sem sjúkra liði á Hraunbúðum og Kolbein sem er sjómaður að hluta til og vinnur við skrúðgarðyrkju á Vestfjörðum á móti sjómennskunni.
Eiríkur starfaði fyrir Reykjavíkurborg, Garðheimum og svo sjálfstætt. Starf hans hjá Reykjavíkurborg var svipað og hann hefur verið að gera hér fyrir Vest mannaeyjabæ. Gera borgina fallegri og sá hann alfar ið um sumarblómin í miðbæ Reykjavíkur ásamt fleiri verkefnum.
Nú hefur þú átt stóran hlut af því að gera bæinn okk ar fallegan og nýbúið að setja niður haustblómin. Hvað er svo framundan? „Ég verð vonandi að vinna hjá bænum sem lengst –er að fá alltaf fleiri verkefni og verður líklega nóg að gera fram í nóvember. Svo hef ég verið að vinna sjálf stætt í nóvember, janúar og febrúar og sinni föstum kúnnum í Reykjavík eins og fyrir húsfélög í blokkum og ýmsilegt fleira. Í mars reikna ég með að hefja þá störf fyrir Vestmannaeyjabæ aftur.“
Kolbeinn, dóttir hans og Eiríkur.Hvað sérðu fyrir þér til að gera bæinn okkar enn glæsilegri? „Maður er að hugsa hvað er hægt að bæta dag frá degi. Mér finnst kannski helst þurfa meira af runnagróðri til að bæta skjól fyrir bæjarbúa þ.e. meira af beðagerð. Það er að heppnast mjög vel við Hamarsskóla þar sem við gerðum, skjólbelti og skjólgirðingu og vonast til að það rótfesti sig eftir tvö ár og þá mun það veita skjól við skólann og íbúðirnar þar um kring. Ég er mjög þakklátur bæjarstjórninni fyrir að taka vel í þessa hluti og gefa mér tækifæri á að gera það sem mér fannst vanta upp á. Allt unnið í samráði við framkvæmdarstjóra og byggingarfulltrúa.
Það var í maí 2020 sem að ég finn ber í öðru brjósti og óska þá strax eftir að fá tíma í myndatöku sem að tekur um 3-4 vikur en mikið álag var á öllu heilbrigðiskerfinu á þessum tíma vegna Covid. Ég fæ svo tíma á laugardegi í fyrstu viku í sumarfríi sem verður svo til þess að það er hringt í mig á Húsavík þar sem ég var ásamt fjölskyldunni og við boðuð á fund eftir viku. Þá um leið, þó að hafa ekki fengið staðfestingu í símtal inu, vissum við að um krabbamein væri að ræða. Fundurinn staðfesti svo þetta allt saman en um leið var okkur einnig tjáð að þetta væri hægvaxandi æxli sem yrði bara tekið með léttum fleygskurði og svo í framhaldi yrði hugsanlega einhverjir geislar. Það var svo ald eilis ekki þannig.
Ég var send í uppskurð í ágúst þar sem allt vinstra brjóstið var tekið ásamt eitlum þar sem þetta litla æxli var orðið mun stærra og mun hraðvaxandi heldur en okkur hafði verið kynnt áður. Krabba mein fannst í fjórum eitlum en þau enduðu á að taka mun fleiri, af því að það fannst í þessum fjórum. Þarna tekur svo við mun stærra verkefni en við vorum búin að undirbúa okkur undir. Í kjölfarið á þessu er mér tjáð að ég þurfi lyfja og geislameðferð. Þó að upphaf lega biðin, eftir myndatöku og svo staðfestingu, hafði liðið eins og heil eilífð þá var allt ferlið, þegar að hér er komið við sögu, mjög hratt og í raun kom okkur á óvart hvað það var vel haldið utan um allt saman.
Með eitt brjóst og ekkert hár Í október þetta sama ár fer ég í fyrstu af sex lyfjagjöfunum sem voru gefnar á þriggja vikna fresti í fimm tíma í senn. Lyfin fóru ágæt lega í mig til að byrja með en end aði á því að vera algjör skelfing undir lokin. Að mörgu leyti kemur eitt átakamesta mómentið í þessu ferli strax eftir fyrstu lyfjagjöf. Á annarri viku eftir lyfjagjöfina byrj að hárið að fara og ótrúlegt að
Valgerður er ófeimin að deila sinni sögu. Ljósmynd: Ásta Kristjánsdóttir.
vera komin þarna með eitt brjóst, en ég grét kannski mest yfir því að missa hárið. Stelpurnar á hár greiðslustofunni Sjampó voru þó einstaklega faglegar og frábærar þegar að þær tóku á móti mér til að fjarlægja hárið. Það kom mér samt verulega á óvart hvað það fór mér svo bara einstaklega vel að vera stutthærð. Það var þarna sem ég upplifði mig í fyrsta sinn veika en fram að þessu hafði þetta verið frekar bara tekið á hörkunni.
Eðlilega voru dagarnir þó mjög misjafnir þegar kom að andlegu hliðinni.
Við vorum einstaklega heppin að veturinn var okkur hagstæður og náðum við öllum sex lyfjameð ferðunum í Landeyjahöfn. Ég náði því alltaf að vera komin heim strax eftir lyfjagjöf þannig að ég gat verið lasin heima í stað þess að vera föst í borg óttans. Bæði
gat Jói stjórnað sinni vinnu þannig að hann komst alltaf með mér, ásamt því að Guðmundur sonur okkar þurfti ekki að vera mikið að heiman heldur. Þó að vissulega hafi það verið þannig að þegar að ég greindist var öll fjölskyldan með okkur í þessu og allir að reyna allt til að láta mér líða sem best og ná skjótum bata. Til dæmis með því að hjálpa til við pössun eða eins og mamma sem sendi sms alla daga kl 10 á morgnanna til að athuga hvernig ég væri. Stundum hringdi ég til baka eða bara skrif aði það, fór eftir því hvernig ég var. Ég fór m.a. í lyfjagjöf á milli jóla og nýárs sem að gekk upp þrátt fyrir allt jóla- og áramótastúss. Síðast lyfjagjöfin var svo í janúar og var þá farin að fara frekar illa í mig enda ferlið búið að taka mikla orku og þolið á þrotum. Þrátt fyr ir að hafa talið mig vera í ágætis formi fyrir þetta ferli þá eru lyfin bara svo mikið eitur að það tekur af manni allan mátt. Eftir lyfjagjafirnar var svo tekin mánaðarpássa til að safna orku fyrir næsta ferli sem var þriggja vikna geislameðferð þar sem ég fengi geisla á hverjum virkum degi en það lengdist svo fram í fjórðu vikuna útaf jarðskjálfta. Þann tíma dvaldi ég ein í Reykjavík á meðan að Jói og Guðmundur voru heima en ætlunin var að ég kæmi heim um helgar en það datt út fyrstu helgina vegna veðurs en gekk svo upp eftir það. Jói kom svo og var með mér síðustu dagana áður en við fórum heim. Þarna hafði Jói einnig hætt í vinnu sem hann hafði verið í síðustu 13 árin þar á undan til að sinna brugghúsinu og mér alfarið en fyrir þetta ferli hafði hann unnið nánast 200% vinnu á milli þessara tveggja vinnustaða og það einfaldlega gekk ekki lengur upp.
Covid kom sér vel Covid og krabbamein var fullkom ið samband þar sem að ég er mikil félagsvera og vil helst taka þátt í öllu. Verandi nánast ekki með orku til að hreyfa mig hentaði mér mjög vel að öllum var skipað að vera heima. Þannig að mér fannst ég ekki vera að missa af neinu skemmtilegu, engar utanlands ferðir voru nánast leyfðar þannig
við segjum stundum að fyrst þetta þurfti að gerast, var þetta trúlega besti tíminn til að fá krabbamein. Fólkið í kringum mig bar mig á höndum sér og sýndi okkur ómældan stuðning hvort sem það voru systkini okkar eða vinir. Svo bættust bara fleiri vinir í hópinn sem vildi gleðja okkur. Stund um var líka hægt að sjá broslegu hliðina á þessu öllu og var það í einum af samkomutakmörkunun um að það máttu einungis tutt ugu koma saman og var ég ásamt Maríönnu dóttur minni að fara á kaffihús. Við spurðum hvort það væri sæti fyrir okkur en dreng urinn sem var að afgreiða hélt ekki en þá tók ég af mér húfuna og skallinn blasti við þá hljóp drengurinn upp til handa og fóta og reddaði okkur sæti strax. Mér
fannst þetta mjög fyndið en dóttir minni ekki eins.
Krabbavörn í Eyjum hjálpaði mikið Maður heyrir alltaf slæmu hliðarn ar af öllu í heilbrigðiskerfinu en mér fannst mér vel tekið á móti mér hvort sem það var hér í Eyjum eða í Reykjavík. Félagsfræðingur hringdi t.a.m. reglulega í mig til að spyrja hvort mig vantaði einhver vottorð og benda mér á leiðir til þess að sækja um hitt og þetta sem ég hefði rétt á. Þó vissulega sé það dýrt að veikjast þá er stað ið vel við bakið á manni á öllum stöðum. Krabbavörn í Eyjum hjálp aði mér vel bæði fjárhagslega og svo að geta mætt á þriðjudags fundi til að fá stuðning frá öðrum sem hefðu gengið í gegnum svip aða hluti.
Stelpurnar á hárgreiðslustofunni Sjampó voru þó einstaklega faglegar og frábærar þegar að þær tóku á móti mér til að fjarlægja hárið.Nældi sér í Háskólagráðu í leiðinni Í öllu þessu ferli náði ég auk þess að útskrifast með B.ed. í Leikskóla kennaranum. Það nám hjálpaði mér líka oft á fætur, að ég þyrfti að læra og stúlkurnar sem voru með mér í náminu voru tilbúnar til að hittast þegar ég hafði orku og getu til. Í dag er ég komin aftur í vinnu á minn uppáhalds vinnustað sem er leikskólinn Sóli. Þar fæ ég að njóta þess að hitta drengina mína á hverjum degi ásamt mínu frábæra samstarfsfólki. Ég er að klára síðasta Master árið mitt í Háskóla Íslands og hlakka til að fá að taka á móti því skírteini í vor. Ég tók þá ákvörðun að fara í uppbyggingu á brjóstinu og er það ferli sem mun taka mig næstu tvö árin. Það er eitthvað sem ég tilbú in að takast á við og hef rætt það við mína fjölskyldu, þau standa með þeirri ákvörðun en auðvitað verður hver að taka ákvörðun fyrir sig en þetta var mín.
Ljúft að vera ber Í kjölfarið á þessu höfum við hjá The Brothers Brewery svo feng ið allar stúlkurnar í brugghúsinu til þess að koma saman, í annað sinn í ár, til að brugga sérstakan Októberbjór þar sem við reynum að gefa til baka. Ágóði af sölu á þeim bjór í fyrra fór í Krabbavörn
hér í Eyjum og verður sama uppi á teningnum í ár. Bjórinn sem við brugguðum í síðasta mánuði verð ur kynntur á föstudaginn og fer söluverðið af þeim bjór beint til Krabbavarnar í Eyjum allan föstu daginn. Bjórinn er krækiberja skyr
sour þar sem stúlkurnar úr brugg húsinu týndu 16 kg af krækiberj um hér í Eyjum til að setja í bjór inn. Bjórinn fengið nafnið Ljúft að vera ber. Við vonumst til að sjá sem flesta á brugghúsinu þegar að við kynnum hann til leiks.
600-700 g nautahakk
½ lítill laukur, fínhakkaður 1 egg
½ dl brauðmylsna
½ dl mjólk salt og pipar krydd eftir smekk ca. 150 gr Philadelphia ostur með Sweet Chili
2-3 msk sojasósa
30 gr smjör, brætt
1-2 dl rjómi eða mjólk
1 tsk nautakraftur
1 msk hveiti eða sósujafnari
2 tsk rifsberjahlaup
Ofn stilltur á 200 gráður. Laukurinn steiktur á pönnu þar til hann er orðinn mjúkur. Hakki, lauk, eggi, brauð mylsnu, mjólk og kryddi blandað vel saman. Helm ingnum af kjötblöndunni sett ofan í eldfast mót og hún mótuð í hleif. Rauf gerð eftir endilöngum hleifn um og hún fyllt með Philadelphia osti. Raufinni lok að vel, afgangnum af kjötblöndunni lagður ofan á og haldið áfram að móta hleifinn. Hann er gerður vel þéttur svo osturinn leki ekki út. Smjör brætt í potti og sojasósu bætt út í. Sósunni er því næst hellt yfir kjöthleifinn og hann bakaður í ofni í 40-50 mínútur, fer eftir þykktinni. Þegar kjöthleifurinn er eldaður í gegn er hann tekinn úr eldfasta mótinu og settur
undir álpappír. 2-3 dl af vatni er hellt út í eldfasta mótið sem er sett aftur inn í ofninn og hann stilltur á grill. Þegar vökvinn fer að sjóða eftir nokkrar mínútur er honum hellt yfir í pott og 1-2 dl af rjóma eða mjólk hellt út í. Sósan er svo þykkt með hveitijafningi (smá vatn og hveiti hrist eða hrært saman) eða sósujafn ara. Rifsberjahlaupi er að lokum bætt út í sósuna og hún smökkuð til með salti og pipar. Uppskrift frá elsdhussogur.com
Opnunartímar:
Mánudagur - lokað
Þriðjudagur - 13.00 til 17.30
Miðvikudagur - 13.00 til 17.30
Fimmtudagur - 13.00 til 17.30
Föstudagur - 13.00 til 17.30
Laugardagur - 12.00 til 15.00
Sunnudagur - lokað