Skip to main content

Tígull 35.tbl

Page 1

35. tbl. 01. รกrg. 30. oktรณber 5.nรณvember 2019 Strandvegur 47 | 481 1161 | tigull@tigull.is | www.tigull.is


Sunna Einarsdóttir ung og efnileg myndlistakona - Sunna myndskreytti nýju bók Sigurgeirs -

Full nafn: Sunna Einarsdóttir Aldur: Verð 15 í Nóvember Áhugamál: Elska fótbolta, svo auðvitað að teikna. Hvar líður þér best? Heima og í Draumbæ hjá ömmu og afa Hvað óttastu mest? Ég er hræðilega myrkfælin Býrðu yfir leyndum hæfileika? Magadansinn minn er rosalegur Hvað geturðu sjaldnast staðist? Kökur og fara snemma að sofa Instagram eða snapchat? Verð að segja instagram Hvaða þættir eru í uppáhaldi hjá þér? Allt með Steinda, Audda, Sveppa og þeim. Grey’s Anatomy er líka í miklu uppáhaldi. Hvað finnst þér skemmtilegast að teikna? Dýr, svo er mjög gaman að teikna blóm. Er á planinu að halda sýningu? Sýningin mín er alltaf opin í andyrinu á Hótel Vestmannaeyjum og Einsa Kalda, endilega skellið ykkur!

TÍGULL

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


Brakandi brunch:

Allar helgar frá kl. 12:00-15:00

Alla miðvikudaga:

16” pizzur af matseðli á 1.990.-

Nýr matseðill ! Boltinn í beinni...

...og TUBORG snjórinn fellur 1.nóv kl 20:59

Opið alla daga vikunnar !

Mán - m 17:00 - 22:00 / Fös - lau 12:00 - 01:00 / Sun 12:00 - 22:00

Sjáumst á Pizza 67 - sími 481-1567


Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt: - Óli Lár og Helgi í Einarsstofu á laugardaginn Það var góð stemning á sjöundu sýningunni í sýningarröðinni, Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt í Einarsstofu á laugardaginn. Þar voru mætt Jóna Heiða Sigurlásdóttir og Friðrik Björgvinsson, ólík og hvort með sitt sjónarhorn á lífið og tilveruna en bæði bráskemmtileg. Jóna Heiða með myndir úr náttúrunni en Friðrik sýndi okkur náttúruna í stærra samhengi og fólk sem hann hefur átt samleið með um ævina. Líflegar lýsingar þeirra gáfu sýningunum meira gildi. Jóna Heiða hefur uppgötvað ýmislegt í Nýja hrauninu, fjársjóði sem hún vill ekki opinbera og Friðrik sagði m.a. frá eftirminnilegum loðnutúr á Huginn VE. Nú eru það Helgi Tórshamar og Ólafur Lárusson sem mæta. Helgi tiltölulega nýbyrjaður að taka myndir af krafti og Óli sem hefur í áratugi tekið myndir af því sem fyrir augu hans ber. „Ég byrjaði að taka myndir 1968, fermingarsumarið mitt. Fékk pening til að kaupa myndavél en það fór illa fyrir henni því hún bráðnaði í sól og eyðilagðist,“ segir Óli sem var í samkrulli með Kjartani heitnum Eggertssyni þegar kom að því að framkalla og stækka myndirnar á þessum árum. Óli hélt áfram að mynda og er í dag vel búinn tækjum, með eina Nikon og eina Leica sem er mikil galdravél. „Ég tek myndir af öllu og sýningin

á laugardaginn verður þverskurður af því sem ég hef verið að mynda í gegnum árin eða saga mín spannar hálfa öld.“ Helgi segist alltaf hafa verið með myndavéladellu og byrjaði snemma að taka myndir. Eyddi líka tímanum í að skoða myndir annarra en það var ekki fyrr en 2012 sem hann tekur til við að taka myndir fyrir alvöru. Þá urðu mikil tímamót í lífi hans. „Það var árið sem ég hætti að drekka og gerði Drottinn að leiðtoga lífs míns. Á þeim tíma átti ég þokkalega vél en nú var ástríða vöknuð. Ég keypti alvöru myndavél og fékk Bjarna Þór til að aðstoða mig. Á ég honum mikið að þakka. Trúin er mín stoð í baráttunni og það hjálpar líka að eiga sér tómstundagaman eins og

ljósmyndun,“ segir Helgi sem líka er tónlistarmaður. Hann sýnir m.a. myndir úr úteyjum og af smalamennsku. „Mér finnst gaman að taka myndir af fólki í smölun og við önnur tækifæri, sérstaklega þegar fólk veit ekki af myndavélinni. Ég sýni myndir teknar á jörðu niðri og myndir úr dróna. Svona sitt lítið af hverju.“ Sýningin byrjar eins og venjulega klukkan 13.00 á laugardaginn í Einarsstofu og stendur í einn til einn og hálfur klukkutími. Rétt er að árétta að um er að ræða ljósmyndir sem rúlla á sýningartjaldi og eru aðeins til sýnis þessa stuttu stund. Því er um að gera að mæta og njóta dagskrárinnar.

Við erum þjónustuaðilar fyrir eftirfarandi umboð

Nethamar ehf / Garðavegi 15 / 481 1216


VÍNYLPARKET

FRÁ DESIGNFLOORING Í BRETLANDI

FRÁBÆRT GÓLFEFNI SEM FÆST Í MÖRGUM GERÐUM OG LITUM. Verð: 7.990 kr. per m2

/midstodin Strandvegur 30 / 481 1475 www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is


Sigurgeir og Sunna slá saman í fallega bók: - Ævintýri með einfaldan og fallegan boðskap sem þau fanga vel -

Sunna, Sigurgeir, Saga, Lovísa og Birta

ÓMAR GARÐARSSON omar49@simnet.is „Munaðarlausa stúlkan er eitt af þessum gömlu góðu íslensku ævintýrum þar sem góðsemi og velvild er umbunað í lokin. Fallegur boðskapur sem á alltaf erindi við okkur,“ segir á baksíðu bókar sem Hólar gefa út og kom út fyrir skömmu. Sigurgeir Jónsson, kennari og blaðamaður með meiru skráir söguna og Sunna Einarsdóttir, 15 ára Eyjasnót myndskreytir. Þó einhverjir áratugir séu á milli þeirra í aldri hafa Sigurgeir og Sunna náð vel saman í gerð bókarinnar. Textinn rennur ljúflega og boðskapurinn er skýr og myndirnar falla einstaklega vel að sögunni. Þar er ekkert ofsagt hvorki í texta né myndum sem saman skapa skemmtilega heild.Já, bókin er falleg og lýsir virðingu höfunda fyrir verkefninu en að bókin varð að veruleika má einhverju leyti þakka afadætrum Sigurgeirs sem hafa miklar mætur á sögunni og annarri

sem hann skráði eftir minni eftir að hafa heyrt þær lesnar í Ríkisútvarpinu fyrir nokkrum áratugum. Guðjóni Inga Eiríkssyni hjá Hólaútgáfunni leist vel á söguna og vildi gefa út. „Það stendur jafnvel til að hin sagan komi út fyrir næstu jól,“ segir Sigurgeir þar sem við sitjum á heimili Sunnu að Bröttugötu 7 þar sem amma hennar, Margrét Íris Grétarsdóttir ólst upp að stórum hluta. „Ég var ekkert að hugsa um útgáfu en þegar Guðjón leitaði til mín eftir efni sýndi ég honum handritið og leist honum vel á. Ég sagði afadætrunum þessa sögu, alltaf þegar ég var að svæfa þær á kvöldin. Þar féllu öll önnur ævintýri í skuggann, sama hvort það var sagan af Rauðhettu og úlfinum, Mjallhvíti eða Búkollu. Þetta var saga númer eitt og hin sagan reyndar líka. Það dugði yfirleitt ein og hálf saga þar til þær voru sofnaðar.“ Datt Sunna strax í hug Guðjón stakk upp á að fá einhvern í Vestmannaeyjum til að myndskreyta söguna. „Þó afadæturnar séu drátthagar mjög fannst mér þær einum

of ungar og datt Sunna strax í hug. Þannig er tilurðin að þessu. Þetta er sígilt íslenskt ævintýri og minnir á söguna af Ásu, Signýju og Helgu þar sem Ása og Signý eru þær vondu en Helga sú góða eins og aðalsöguhetjan í Munaðarlausu stúlkunni. Á það við um nær allar góðar stúlkur í þjóðsögunum okkar, þær heita Helga,“ segir Sigurgeir. „Mér finnst æðislegt að hafa fengið þetta tækifæri,“ segir Sunna sem er upp með sér að Sigurgeir skyldi leita til hennar um að myndskreyta bókina. „Þetta var erfitt því ég er ekki vön að teikna svona myndir en var mjög gaman,“ bætir Sunna við sem ung varð þekkt fyrir athyglisverðar pennateikningar þar sem hugmyndafluginu er gefinn laus taumurinn. Sigurgeir er mjög ánægður með útkomuna hjá Sunnu sem fékk frjálsar hendur við myndsköpunina. „Við vorum mjög ánægðir með það að hún fer ekki inn í þennan hefðbundna torfbæjarstíl sem hefur einkennt margar bækur sem byggja á þjóðsögunum. Hún færir þetta


nær nútímanum og gerir það svona ljómandi vel. Það eina sem við vildum var að tengja myndirnar við einstaka þætti í sögunni en þær eru að öllu leyti hennar.“ „Það var pínuerfitt að ákveða útlit persónanna en það tókst,“ segir Sunna sem kom flestum vinkonunum á óvart þegar bókin kom út. Þær samgleðjast Sunnu og afinn og amman, Einar Hallgrímsson og Margrét eru að springa úr monti. Ofanbyggjarar og skyldleiki Sigurgeir telst í hópi Ofanbyggjara í Vestmannaeyjum, fólk sem bjó sunnarlega á Heimaey, fyrir ofan hraun eins og kallað var. Hann er kenndur við Þorlaugargerði og fyrir tæpum 20 árum byggði hann Gvendarhús sem er rétt hjá bæjunum í Þorlaugargerði. Einar og Margrét búa í Draumbæ ekki fjarri og hafa búið þar í um 20 ár. Hefur Draumbær verið annað heimili Sunnu og vel það. En tengingarnar eru fleiri. „Við langamma hennar, Tóta í Þingholti, erum þremenningar. Eigum

sömu langömmuna. Hún var síðasta konan sem dæmd var til dauða á Íslandi en dóminum aldrei fullnægt. Hennar dauðasynd var að eignast barn með stjúpföður sínum eftir að

móðir hennar lést. Hvorugt þeirra hafði hugmynd um að þetta væri óleyfilegt. En miðað við aldursmun okkar Sunnu gæti ég verið langafi hennar,“ segir Sigurgeir til að setja þetta í samhengi. Sunna var ekki gömul þegar hún vakti athygli fyrir pennateikningar sínar og hélt sína fyrstu sýningu fyrir einu og hálfu ári á veitingastaðnum Einsa kalda sem fjölskyldan á og rekur og Hótel Vestmannaeyjum. Og sýningin stendur enn og hún selur grimmt. „Það var 2016 sem ég byrjaði að teikna og ætla halda áfram á þessari braut. Ég hef ekki mikið teiknað á þessu ári en ég er ekki mjög lengi með hverja mynd þegar ég byrja. Þessa teiknaði ég á Þorláksmessu í fyrra,“ segir Sunna og bendir á mynd af ljónshöfði. „Hún heitir Amma ljón og er tileinkuð ömmu Margréti sem veiktist mikið rétt fyrir jólin í fyrra. Hún hefur síðan barist eins og ljón og náð ótrúlegum árangri,“ segir Sunna að endingu.

Sushi

Sjúkraliði og hjúkrunarfræðingur

óskastog í sumarafleysingar Sjúkraliði hjúkrunarfræðingur á sjúkradeildina í Vestmannaeyjum óskast í sumarafleysingar á sjúkradeildina í Vestmannaeyjum

Hæfniskröfur Barnalæknir Menntun frá viðurkenndri mennta-

Helstu verkefni og ábyrgð

• Um er að ræða fjölbreytt, krefjandi Helstu verkefni og ábyrgð störf með skemmtilegu og metnaðarfullu Mikið er lagt upp úr erstarfsfólki. að ræða fjölbreytt, krefjandi • Um góðri þvegfaglegri samvinnu þar sem störf með skemmtilegu og metnaðarfagmennska, umhyggja virðing fyrir fullu starfsfólki. Mikið er og lagt upp úr skjólstæðingum ogsamvinnu fjölskyldu þeirra er góðri þvegfaglegri þar sem höfð að leiðarljósi.

•

Hæfniskröfur stofnun.

Menntunlandlæknis frá viðurkenndri mennta/ staðfesting ••Starfsleyfi stofnun. menntastofnunar á framvindu náms.

Við ætlum að bjóða upp á GOTT sushi fimmtudaginn 31. október og föstudaginn 1. nóvember. Hægt að borða í sal og í take away!

Tryggvi Helgason Starfsleyfi landlæknis staðfesting ••Frammúrskarandi hæfni í/mannlegum barnalæknir menntastofnunar á framvindu náms. samskiptum. fagmennska, umhyggja og virðing fyrir •Starfsreynsla Frammúrskarandi æskileg. og fjölskyldu þeirra •skjólstæðingum verður með móttöku á hæfni í mannlegum Deildin er blönduð 21 rúma deild semer • samskiptum. höfð nærað yfirleiðarljósi. hjúkrun flestra sjúklingahópa, • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð. HSU-Vestmannaeyjum þar af eru 9 hjúkrunarrými. • Starfsreynsla æskileg. • Deildin er blönduð rúma deild sem Á sjúkradeildinni er21 einnig dagdeild nær yfir hjúkrun flestra sjúklingahópa, fimmtudaginn 14.•nóvember nk.vinnubrögð. lyfjagjafa. Frumkvæði og sjálfstæð þar af eru 9 hjúkrunarrými.

er á þrískiptum vöktum og aðra •ÁUnnið sjúkradeildinni er einnig dagdeild hvora helgi. lyfjagjafa.

er á þrískiptum vöktum og aðra • Unnið Frekari upplýsingar um starfið hvora helgi.

Tímabókarnir eru í síma

Um er að ræða sumarafleysingar á sjúkradeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Vestmannaeyjum. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningum sem fjármálaráðherra, Félag íslenskra Frekari upplýsingar um starfið hjúkrunarfræðinga og Sjúkraliðafélag íslands hafa gert. Um er að ræða sumarafleysingar á sjúkradeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands,

432-2500

Vestmannaeyjum. Sækja skal um rafrænt á vef HSU - www.hsu.is undir flipanum lausar stöður. Laun samkvæmt sem fjármálaráðherra, Félag og íslenskra Umsóknum þurfagildandi að fylgjakjarasamningum staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi fyrri störf. hjúkrunarfræðinga og Sjúkraliðafélag íslands hafa gert.

Pantaðu í síma 481 3060!

Umsóknarfrestur er til og með 11.03.2019

Sækja skal um rafrænt á vef HSU - www.hsu.is undir flipanum lausar stöður. Nánari upplýsingar Umsóknum þurfa aðveitir: fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi og fyrri störf. Arna Huld Sigurðardóttir arna.huld.sigurdardottir@hsu.is - 432-2600.

GOTT

Bárustíg 11

www.gott.is

gott@gott.is


Viðburðir FIM

31

Sjá nwáwn.atrigull.is w

SÓLI HÓLM VARIST EFTIRHERMUR

Rauðagerði

Alþýðuhúsið kl. 20:30

OKT

Opnunartími Féló fyrir 5. - 10. bekk

OKT

SUN

03 NÓV

SUN

03 NÓV

ÞRI

05 NÓV

ÍBV - FJÖLNIR OLÍSDEILD KARLA

Íþróttamiðstöðin kl. 15:00 ÍBV - VALUR OLÍSDEILD KVENNA

Íþróttamiðstöðin 14:00 ÍBV U - VÍKINGUR U 66 GRILL DEILD KVENNA

Íþróttamiðstöðin kl. 19:30

FIM

31 OKT

MÁN

04 NÓV

ÞRI

05 NÓV

30 OKT

MIÐ

30 OKT

MIÐ

30

MIÐ

OPIÐ HÚS FYRIR 8 - 10. BEKK

Rauðagerði kl. 19:30 - 22:00 OPIÐ HÚS FYRIR 5 - 7. BEKK

Rauðagerði kl. 16:30 - 18:30 OPIÐ HÚS FYRIR 8 - 10. BEKK

Rauðagerði kl. 19:30 - 22:00 OPIÐ HÚS FYRIR 5 - 7. BEKK

Rauðagerði kl. 16:30 - 18:30

MIÐ

30 OKT

MIÐ

30 OKT

FIM

31 OKT

MÁN

04 NÓV

FIMMTUDAGUR

FIMMTUDAGUR

31

31

OKT

FÖSTUDAGUR 01

OKT

FÖSTUDAGUR 01

NÓV

MÁN

04 NÓV

05 NÓV

kl. 21:00

LAUGARDAGUR

LAUGARDAGUR

02

02

NÓV

kl.17:00

SUNNUDAGUR 03

NÓV

HANDVERK & HITTINGUR

Vinaminni/Kviku kl. 13:00 - 16:00

STÚLKNAKÓRINN

Vinaminni/Kviku kl. 16:00

SÖNGHÓPURINN

Vinaminni/Kviku kl. 17:00

SPILAVIST

Hraunbúðum kl. 20:00

BOCCIA

Vinaminni/Kviku kl. 16:00

PERLUSAUMUR

Vinaminni/Kviku kl. 16:00 - 18:00

NÓV

ÞRI

kl. 17:00

LEIKFIMI

Íþróttamiðstöðin kl. 10:10 - 10:50

kl.21:00

SUNNUDAGUR 03

NÓV

NÓV

ÞRI

05 NÓV

LÍNUDANS

Vinnaminni/Kviku kl. 15:00

VATNSLEIKFIMI

Sundlaug Íþróttamiðstöð kl. 10:50 - 11:20

PÚTTSALURINN OPINN ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 12:30 - 14:00 HRESSINGARGANGA Í HERJÓLFSHÖLL ALLA DAGA 08:00 - 12:00

kl. 18:00

kl. 21:00

kl.18:00

kl. 21:00

FRÍTT Í SUND FYRIR HEIMAFÓLK 67 ÁRA OG ELDRI


Miðasala í síma 852-1940 6. sýning 2.nóvember kl. 15:00 7. sýning 3.nóvember kl. 15:00


Fólkið bakvið lista- & menningarfélagið - Kíktum á vinnustofuna hennar Jóný -

Næsti listamaður sem Tígull kynnir er hún Jóný. Við kíktum á vinnustofu hennar. Segðu okkur aðeins frá þér: Jónína Björk Hjörleifsdóttir en flestir þekkja mig sem Jóný og halda að það sé það sem ég heiti. Ég er menntaður sjúkraliði en vinn við ræstingar í dag. Léttari vinna fyrir kroppinn. Ég er gift Bergi Guðnasyni stýrimanni á Breka og eigum við 5 börn. Esther sem er kennari,Ingvar sem er sjómaður, Þórir sem er að klára flugvirkjann og Inga Hanna í skóla lífsins eins og er. Einnig eignuðumst við dreng sem við misstum á meðgöngu. Ég á 3 ömmubörn þau Berg Óla, Kötlu Margréti og Þórhildi Helgu. Ég er sátt við aðstöðuna í Hvíta húsinu og vorum við fljót að fylla hana. Í raun erum við með einn á kantinum sem vill rými fyrir vefstól og það finnst mér mjög spennandi auk þess sem hún málar. Held að segja megi að við séum strax búin að sprengja Hvíta húsið sem er náttúrulega bara jákvætt. Ég er eiginlega búin að koma mér

fyrir með trönurnar og sögina mína en mig vantar nokkra klst í sólarhringinn þar sem ég er líka með vinnustofu á Vestmannabrautinni. Þar erum við tvær að bardúsa sitthvað skemmtilegt. Þura sambýlingur minn þar vinnur með silfur skart og það er eitthvað sem eyjamenn verða bara að kíkja á. Sjálf er ég í mosaikinu og er mjög spennt í því. Hvað er framundan? Nú erum við að koma starfseminni í gang og ætlum að ráðast í sýningu í nóvember á nótt safnanna þar sem við minnumst listakonu sem var virt sem mikil listakona. Sýningin mun bera nafnið: Í anda Júlíönnu Sveinsdóttur. Fólk ræður hvað það tekur út sem virkni á þessa sýningu enda margt og mikið sem hún hefur afrekað. Vefnaður, mosaik, myndlist af ýmsu tagi svo þetta gefur talsverða möguleika. Við verðum ekki mjög mörg í þessari sýningu þar sem við fengum húsnæðið nú nýlega og ekki treysta sér allir með svona stuttum fyrirvara. Þegar kemur að fyrirmyndum í myndlistinni er alveg óhætt að

segja að ég á mér nokkra uppáhalds; Steinunn Einarsdóttir hefur kennt mér mjög mikið og kannski mest með því að samþykkja ekki allt sem mér dettur í hug. Laga, breyta og bæta. Konan er náttúrulega algjör dásemd og ég tel að hún sé ein af okkar öflugustu listakonum sem við höfum haft. Finnst hún eiga skilið að vera metin fyrir allt sem hún hefur gert fyrir menninguna hér í Eyjum. Önnur af mínum uppáhalds er Sigurdís Harpa og ég elska myndirnar hennar. Fíllinn og andlitsfríðu dömurnar hennar eru dásamlegar. Edda Heiðrún á dásamlegar myndir og hún kennir mér og mörgum að það á aldrei að gefast upp, love her. Bergur Thorberg fyrir að þora að vera öðruvísi. Bjarni Ólafur og Gíslína mögnuð hvor á sinn hátt. Svo Viðar, elska húsamyndirnar hans. Loisa Matt mögnuð, litirnir hennar. Þorgrímur Andri ómenntaður en magnaður listamaður, þarf ég ekki að fara að hætta? Svo þau sem eru að mála í Hvíta húsinu þið verðið bara að sjá.


Hver er þinn helsti innblástur? Þegar stórt er spurt er lítið um svör. Allt og ekkert. Er kannski bara á rúntinum og fæ þörf til að hendast í skúrinn minn. Eða að mig dreymir liti og sköpun, þá er voðinn vís. Oft eru það myndir, falleg orð, næstum allt og ekkert. Er með litla bók í töskunni minni og þegar mér dettur eitthvað í hug þá punkta ég það niður svo er spurning hvað verður úr.

Eyjum fyrir nokkrum árum og það fannst mér mjög gaman þar sem við náum mjög vel saman. Ég hef verið með eina einkasýningu og var hún í Einarsstofu. Mjög skemmtilegt og talsvert stressandi og fékk ég mjög flottar móttökur. Síðasta sýning sem ég tók þátt í var á goslokunum og árið endar með samsýningu í Einarsstofu. Í anda Júlíönnu Sveinsdóttur.

Þegar ég mála er ég yfirleitt með olíu. Ég hef líka mjög gaman að kol og krít. Hef lítillega fiktað með vatnsliti og svo er mosaik ofarlega á listanum núna þar sem ég er að vinna að einkasýningu á Reykjavíkursvæðinu. Verð á Kaffi Mílanó í mars.

Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum? Þegar ég byrjaði að mála hjá Steinu fyrir ansi mörgum árum var ég talsvert að mála mosaik bakgrunn. Á alveg von á því að fara í það aftur þegar trönurnar fara að virkjast. Ég er hrifin af jarðlitum og einnig undanfarið toga sterkir litir í mig.

Ég hef tekið þátt í nokkrum samsýningum, ætli þær séu ekki 15-20 með sýningum uppi á landi. Við Konný vorum líka með samsýningu hér í

Glerið er líka áskorun þar sem ekki er auðvelt að þurfa að skera hvern bút fyrir sig í myndina. Gæti sjálfsagt unnið það auðveldara veg en kýs erfiðu leiðina að skera eftir

auganu. Er með sérstakan stíl í því og hef gaman af því að fólk er farið að þekkja myndirnar mínar, þekkja stílinn minn. Ég sé fram á að starfsemin eigi eftir að ganga vel enda með fullt af snillingum þarna inni. Ekki má gleyma að Jóhanna Lilja og Konný stóðu sig frábærlega í þessu verkefni að koma Hvíta húsinu á laggirnar. Þökkum bænum, Palla og Þekkingarsetrinu, einnig Visku fyrir þetta líka. Palli er algjör snillingur og með hjartað á réttum stað.

Strandvegur 47 leturstofan@leturstofan.is Opið: 11:00 - 16:00 Robe keðja 3.990 kr. Robe eyrnalokkar 4.390 kr.

Robe armband 3.190 kr.

Maze keðja 3.990 kr.

Clips armband 4.990 kr.

Wave keðja 4.990 kr.


Frábært kvöld hjá krökkunum í skátastarfinu - Skátarnir tóku hrekkjavökuna alla leið -

Frosti Gíslason sér um skátastarfið í Eyjum og hefur haft það að hefð að halda upp á hrekkjavökuna ásamt krökkunum í skátunum. Þetta er fjórða árið röð. Eiginkona Frosta, Ingibjörg Grétarsdóttir á heiðurinn af þessari skemmtilegu hefð en hún sá einnig um að skreyta Skátastykkið fyrir hrekkjavökuna. Mikið er lagt í þetta kvöld og skreytingarnar stórkostlegar. Þetta er haldið fyrir börn í 2. - 10. bekk. Kvöldinu er skipt upp í þrjá hópa og því þrjú hryllingsstig. Skreytingarnar verða hræðilegri eftir því fyrir hvaða aldur þetta er, en allt innan skynsamlegra marka. Krakkarnir hafa sjálf séð um skemmtanir á kvöldinu en frumsamdir söngvar, dansar, leikrit og stuttmyndir voru meðal þeirra fjölmörgu atriða á Hrekkjavökuskemmtun skátanna í Eyjum í Skátastykkinu mánudagskvöldið 28.október síðastliðin. Tígull kíkti á hrekkjavökuna og fengu leyfi til að taka upp myndband sem birt verður á vefnum á Halloween eða hrekkjavökunni 31. október. Skátarnir í Eyjum leggja áherslu á skapandi skátastarf og bar skemmtun þeirra aldeilis vott af því. Umhverfi skátaskálans Hraunprýði í Skátastykkinu var fagurlega skreyttur á hræðilegan hátt. Skátarnir skemmtu sér vel að vanda og hlakka til áframhaldandi skapandi og skemmtilegs skátastarfs í vetur.


NÝJA TANNLÆKNASTOFAN

Til sölu Zuzuki swift - Árgerð 2013 - keyrður 103,319 km

Kæru Vestmannaeyingar Nýja tannlæknastofan, Flötum 29 býður ykkur velkomin. Tímapantanir í síma 481-1012 Einnig getið þið sent okkur tölvupóst á tannsi@eyjar.is Utan afgreiðslutíma er neyðarsíminn 844-5012. Hlökkum til að sjá ykkur.

Nýja tannlæknastofan // Flötum 29 Tímapantanir í síma: 481-1012 & 844-5012.

Nýskoðaður - Næsta skoðun 2021 - Nýsmurður - Verð: 1,050.000 kr. Nýleg nagladekk fylgja með. Bremsukerfi ný yfirfarið. 897-5413


vörurnar fást nú í Friðrik Ingi Óskarsson 892 - 9552 / fio@fio.is

Hrefna Berglind Ingólfsdóttir 848 - 2526 / hrefna@fio.is

www.fio.is / Hásteinsvegur 64 / 900 Vestmannaeyjar

ÖKUKENNSLA

20% AFSLÁTTUR

SNORRA RÚTS

af ilmkertum

Kennslubifreið: Mercedes Benz C200-C01

og ilmstöngum 29.okt - 1.nóv

• Akstursmat • Endurtökupróf • Ökuskóli

Jólailmirnir eru komnir !

20 ára reynsla! Sími 692-3131

Kíktu við !

Leið 52

STRÆTÓ

www.straeto.is 540 -2700

772-6766 Heiðarvegur 9

/crispus

Hægt er að borga fargjaldið inn í strætó Ferðir í Landeyjarhöfn!

Virkir dagar:

08:00 Herjólfsferð: 10:45 17:45 Herjólfsferð: 20:45

Frá Mjódd Frá Mjódd

Opnum 9, 10 eða 11 fer eftir pöntunum og erum til 18.00 virka daga opið á laugardögum eftir pöntunum. það er hægt að panta tíma allan sólahringinn á facebook

Helgar:

Frá Umferðarmiðstöð Frá Mjódd Frá Mjódd

07:55 08:05 Herjólfsferð: 10:45 15:15 Herjólfsferð: 18:15 Herjólfsferð: 10:45

www.straeto.is | 540-2700

www.ernir.is 481-3300

Frá Reykjavík

Frá Vestm.eyjum

Mán Þri Mið Fim Fös Lau Sun Brottför Lending

07:15 15:45 11:30 17:30

07:40 16:10 11:55 17:55

08:00 16:30 12:15 18:15

08:25 16:55 12:40 18:40

Tannlæknar 9. - 10. nóv - Hjalti Harðarson 21. - 24. nóv - Hjalti Harðarson 2. - 5. des - Ármann Hannesson

Hólagötu 40

Tímapantanir í síma 481-2772


Takk Vestmannaeyjar! Takk fyrir styrktarumsóknirnar!

Krónan styrkir þessi verkefni í Vestmannaeyjum styrktarárið 2019-2020:

• ÍBV í Vestmannaeyjum fyrir barnastarfið • Crossfit Eyjar fyrir Skólacrossfit Opið verður fyrir umsóknir fyrir styrktarárið 2020-2021 í apríl 2020.

www.kronan.is/styrkir

www.kronan.is Krónan Vestmannaeyjum – Opið mán.-fös. 9-20

helgar 10-19


Veislur Við hjá GOTT tökum að okkur allar tegundir að veislum, stórar sem smáar. Erum með aðstöðu í Alþýðuhúsinu ef ykkur vantar sal undir veisluna. Upplýsingar í síma 6628770 eða á gott@gott.is

/gottrestaurant

#gottveitingastadur


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 35.tbl by Leturstofan - Issuu