Tígull 35. tbl 06. árg.

Page 1


35. tbl. 06. árg. 9. - 15. október 2024

LANGAR ÞIG AÐ SYNGJA Í KÓR?

Kvennakór Vestmannaeyja.

Karlakór Vestmannaeyja.

Að syngja í kór er einstök upplifun. Að verða hluti af heild og samhljóm er ólýsanleg tilfinning. Við í Vestmannaeyjum búum við þann munað að hafa þrjá starfandi kóra en þeir eru Karlakór Vestmannaeyja, Kvennakór Vestmannaeyja

TÍGULL

og Kór Landakirkju. Gegnum tíðina hefur skapast mikil samvinna á milli kóranna og hafa þeir tekið þátt í hinum ýmsu verkefnum saman. Kórarnir hafa til dæmis sungið á goslokatónleikum með Lúðrasveit Vestmannaeyja, á

Eyjatónleikum í Hörpu og margt fleira.

Um þessar mundir er starfsemi kóranna að komast í gang. Karlakórinn æfir á sunnudögum kl. 1618 og Kvennakórinn æfir á mánudögum kl. 20-22.

Eru þar allir hjartanlega velkomnir og báðir þessir kórar eru með mjög spennandi verkefni fram undan. Kór Landakirkju er svokallaður blandaður kór, skipaður bæði konum og körlum. Sú mýta hefur skapast að Kór Landakirkju syngi bara sálma. En það gæti ekki verið lengra frá því sem er í raun. Einnig er engin krafa að vera trúaður eða syngja við messur. Í engum af kórunum er gerð krafa um fyrri söngreynslu.

Að syngja er eins og hver önnur athöfn sem lærist með tímanum. Alveg eins og við lærum að hjóla, prjóna, hlaupa eða hvað sem er. Ekkert aldurtakmark er á söng og því geta allir verið með. Kór Landakirkju æfir fyrir jólatónleikana á miðvikudögum kl. 20. Þar geta áhugasamir mætt eða haft samband við kórstjórann, hana Kitty Kovács, og athugað hvort þetta sé eitthvað fyrir þá.

Til viðbótar við kórana þrjá sem nefndir eru hér að ofan, er einnig starfandi barnakór en hann æfir í Safnaðarheimilinu á mánudögum klukkan 16:30.

Matthías Harðarsson formaður kórs landakirkju og stjórnandi karlakórs vestmanneyjar

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó. Forsíðumyndina tók Magnús Bragason þegar Gunnar Friðfinnsson og Betsý Ágústsdóttir nutu veðurblíðunnar í Klaufinni.

Dreifing fer fram á miðvikudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is DREIFING:

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

JÓNÝ HANNAR HLJÓMEYJARPLATTANN

Síðastliðið vor þegar undirbúningur Hljómeyjar var í fullum gangi kom upp sú hugmynd að færa þeim húsráðendum sem hafa opnað stofur sínar þakklætisvott fyrir þeirra framlag til Hljómeyjar-hátíðarinnar. Hljómeyjarbræður hittu listakonuna Jóný til að bera undir hana hvort þau gætu unnið saman til að útbúa einstakt listaverk fyrir hvern og einn. Jóný tók ákaflega vel í verkefnið og var í kjölfarið handsalað samstarf um að Jóný yrði formlega listamaður Hljómeyjar. „Það er mikill heiður fyrir hátíðina að fá svo hæfileikaríkan listamann til samstarfs, sem verður eflaust uppspretta ýmissa verka í komandi framtíð. Jóný tók sig til og hannaði og handsmíðaði einstaka platta fyrir alla húsráðendur sem tekið hafa þátt. Plattarnir eru ártalsmerktir og þemað tónlist og Vestmannaeyjar“ sögðu Birgir og Guðmundur. Hljómeyjarbræður fóru af stað sl. sunnudag og heimsóttu alla húsráðendur sem voru heima og afhentu þeim þakklætisvottinn. „Það er nefninlega ekki hægt að halda Hljómey án allra þeirra frábæru aðila sem eru tilbúin að opna stofur sínar fyrir tónlistarfólkinu okkar. Heimafólkið okkar á því ekkert minna í hátíðinni en skipuleggjendurnir. Það mun taka tíma að ná í alla okkar frábæru húsráðendur – bara hluti þeirra var heim þegar farið var af stað. Við viljum þakka Vestmannaeyingum fyrir frábærar móttökur, fyrir einstaka gleði og gestrisni á heimsmælikvarða.“

Skipulagning á næstu hátíð er komin á fullt og mikil tilhlökkun er til staðar. Fyrstu tónlistarmenn verða kynntir inn um miðjan janúar nk. og miðasala mun hefjast í byrjun febrúar. Spáin er frábær!

„Sjáumst á Hljómey 25. apríl 2025!“

Birgir Nielsen ásamt Jóný.
Birgir og Jói á The Brothers Brewery.
Birta og Birgir.
Birgir ásamt hjónunum Öddu og Magga.

NÝFÆDDIR VESTMANNAEYINGAR

Nafn: Drengur Óskarsson

Fæðingardagur: 24. ágúst ‘24

Foreldrar: Díana Ólafsdóttir og Óskar Elías

Zoega Óskarsson

Þyngd: 3522 g

Lengd: 48 cm

Nafn: Drengur Dagsson

Fæðingardagur: 13. september ‘24

Foreldrar: Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir

Þyngd: 3340 g

Lengd: 49 cm

Nafn: Drengur Sæþórsson

Fæðingardagur: 26. ágúst ‘24

Foreldrar: Sæþór Birgir Sigmarsson og Karen Ósk Kolbeinsdóttir

Þyngd: 2946 g

Lengd: 46 cm

LIONSKLÚBBUR VESTMANNAEYJA

KARLAR Í SKÚRUM

• Tilgangurinn að auka lífsgæði gegnum handverk, tómstundir og samveru.

• Handverk auðveldar körlum að tengjast og spjalla.

• Glæsileg aðstaða í kjallara Hraunbúða, búin fullkomnum tækjabúnaði fyrir allt handverk.

Formleg opnum aðstöðu verkefnisins KARLAR Í SKÚRUM í Vestmannaeyjum verður

í sal dagdvalarinnar á Hraunbúðum föstudaginn 18. október n.k. kL. 14.30

EYJAMENN ERU HVATTIR TIL AÐ MÆTA OG KYNNA SÉR VERKEFNIÐ !

Gestir frá Hafnarfirði og Mosfellsbæ mæta og kynna starfsemina í sínum klúbbum.

• Örn Ragnarsson formaður félags trérennismiða á Íslandi mætir og segir frá handverkshópnum Snúið og Skorið í Hafnarfirði

• Jón Bjarni Bjarnason formaður Karla í Skúrum í Hafnarfirði skýrir starfsemi félagsins, sem er með mörg járn í eldinum.

• Fulltrúar frá Karlar í Skúrum Mosfellsbæ mæta og mun Páll Steindórsson segja frá fjölbreyttu og kraftmiklu starfi þeirra.

Á laugardeginum 19. Október frá kl. 10.00 til kl. 15.00 gestirnir verða með námskeið í rennismíði sem Örn mun annast og Páll verður með námskeið í tálgun og útskurði. Einnig verður farið yfir umgengni um verkfæri og brýningu renni- og útskurðarjárna.

HVETJUM SEM FLESTA ÁHUGAMENN AÐ MÆTA

Á ÞETTA EINSTAKA TÆKIFÆRI.

Seinna í haust eða vetur mun Bjarni Þór Kristjánsson tréskurðarmeistari vera með námskeið í útskurði og tálgun.

Karlar í skúrum er úrræði sem gefur karlmönnum stað og stund til þess að hittast og vinna að sameiginlegum og eða eigin verkefnum á sínum hraða. Markmið verkefnisins er að skapa aðstæður þar sem heilsa og vellíðan karla er höfð í fyrirrúmi og þeir geti haldið sér við líkamlega, andlega og félagslega. Megináhersla er lögð á vinnu í tré og hvers konar annað handverk og er tilgangurinn að auka lífsgæði gegnum handverk, tómstundir og ekki síst samveru.

Örn Ragnarsson formaður félags trérennismiða á Íslandi

LEIKSKÓLINN KIRKJUGERÐI FAGNAR 50 ÁRUM

Leikskólinn Kirkjugerði fagnar 50 ára afmæli á fimmtudaginn 10 október. Af því tilefni bjóðum við gestum og gangandi að koma í opið hús frá kl:15.00-16.00. Leikskólinn Kirkjugerði var reistur árið 1974 fyrir gjafafé frá Hjálparstofnun kirkjunnar. Skólinn var upphaflega tveggja deilda leikskóli. Árið 1976 var lítið hús reist á lóð leikskólans og nýtt sem ein deild. Árið 1991 var byrjað að byggja við leikskólann og árið 1994 hafði skólinn verið stækkaður um 563 fermetra. Árið 2018 var aftur byggt við Kirkjugerði og einni deild bætt við skólann, salur og kaffistofa starfsmanna voru stækkuð. Nýtt og stærra eldhús og vinnuaðstaða starfmanna var bætt. Leikskóladeildirnar okkar bera allar nöfn víka á Heimaey: Stafnsnes-, Kletts-, Kópa-, Presta- og Höfðavík. Árið 2024 bættist við ný deild sem fékk nefnið Bjarnarey. Þá var Kirkjugerði orðin sex deilda skóli

með 107 nemendum. Kirkjugerði var frá upphafi rekið sem hálfdagsleikskóli og komu börnin með nesti að heiman. Árið 1998 var farið að gefa kost á meiri sveigjaleika í vistun og um sama leiti var farið að bjóða uppá morgunmat, hádegismat og nónhressingu í leikskólanum. Í Kirkjugerði er unnið eftir leikskólastefnu í anda hugsmíðahyggju en kjarni þeirrar stefnu er viðurkennandi samskipti, sjálfræði, lýðræðisleg vinnubrögð og jafnrétti.

Leiðarljós okkar er: Jákvæður agi, gleði og félagsfærni.

Í Kirkjugerði er Floorbooks aðferðarfræðin notuð í hópastarfi á flestum deildum. Floorbook aðferðarfræðin hvetur barnið til að vera virkur þátttakandi í eigin þekkingarleit. Drifkraftur þekkingarleitarinnar er forvitni og leikur barnsins. Barnið er hvatt til að

ígrunda, skrá og skipuleggja viðfangsefnið hverju sinni og hafa áhrif á eigin námsframvindu. Þróunarverkefnið okkar í Kirkjugerði næstu tvö árin verður að innleiða Barnasáttmála

Sameinuðu þjóðanna. Að þeirri innleiðingu lokinni verður Kirkjugerði Réttindaskóli UNICEF og hlökkum við mikið til þess að takast á við þetta nýja og spennandi verkefni.

Við vonumst til þess að sem flestir gefi sér tíma til þess að koma við hjá okkur á fimmtudaginn 10. október á milli kl:15:00-16:00, skoða glæsilega skólann okkar og það faglega og flotta starf sem unnið er í Kirkjugerði.

Eyja Bryngeirsdóttir Skólastjóri Kirkjugerðis

ÞRAUTIR

HEILSA HREYFING

SVEFN

RÚTÍNA

MATARÆÐI HUGLEIÐSLA

SAMVERA SKEMMTUN

VATNSDRYKKJA

NÚVITUND

GLEÐI HLÁTUR

Frumherji í Eyjum dagana 21. - 24. október

Tímapantanir í síma 570 9090

Faxastígur 38 (Lokað í hádeginu)

Nýsmíði

Gólfhitafræsing

Gólfhitalögn

Kjarnaborun

Pallasmíði

Þakvinna

Innréttingar

Utanhúsklæðningar

UPPBOÐ UPPBOÐ

TIL STYRKTAR Krabbavörn Vestmannaeyja

UPPBOÐINU LÝKUR Á BLEIKA DEGINUM 23. OKTÓBER KLUKKAN 14:00

Viðar Breiðfjörð ætlar að endurtaka leikinn og hafa uppboð á listaverki til styrktar Krabbavarnar í Eyjum. „Það eru forréttindi að búa í Eyjum og þess vegna vil ég láta gott af mér leiða og gefa verkið sem ég kalla bátar, bíll og hús til krabbavarnar Eyjum. Mér líður það vel hér í Eyjum að ég lít á Vestmannaeyinga sem eina stóra fjölskyldu, “ sagði Viðar Breiðfjörð.

Þau sem að hafa áhuga á uppboðinu geta farið á vefsíðu Tíguls og smellt á efsta borðann þar eða skannað inn QR kóðann hér:

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.