34. tbl. 03. árg. 27. október - 2. nóvember 2021
HALLOWEEN
XXXX
LAUGARDAGINN 30. OKTÓBER LABBAÐ Í HÚS MILLI 18 OG 20
TÍGULL
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
PS. ÁRANGUR - NÆRINGARÞJÁLFUN
Það eru þær Sandra Erlingsdóttir og Perla Ruth Albertsdóttir sem eru á bakvið Ps. Árangur en þær hófu samstarf í sumar. Tígull fékk að vita meira um starfsemi þeirra. Sandra er 23 ára og útskrifaðist með Bs. í íþróttafræði frá Háskólanum í Reykjavík sumarið 2021. Hún stendur nú í ströngu að ljúka námi frá Precision Nutrition og verður þá heilsu- og næringarþjálfari. Sandra er uppalin í Vestmannaeyjum en hefur komið víða við með fjölskyldunni sinni seinustu ár. Hún hefur verið í handbolta síðan hún var 6 ára og hefur alla tíð verið mikil íþróttastelpa og haft mikinn áhuga á öllu sem tengist heilsu og íþróttum. Hún er núna á sínu öðru tímabili með EH Aalborg í Danmörku. Sandra glímdi við átröskun í nokkur ár og síðan þá hefur brunnið fyrir því að hjálpa fólki með sína næringu og heilsu. Perla er 25 ára og útskrifaðist með
Bs. í íþróttafræði frá Háskóla Íslands á Laugarvatni árið 2018. Perla útskrifaðist með diplómu í íþróttasálfræði frá háskóla í Barcelona árið 2020 og er núna að klára næringarþjálfaranám frá Working Against Gravity. Perla er úr sveit í Hrútafirði á Norðurlandi Vestra, spilar handbolta með Fram og er núna búsett á Selfossi með eiginmanni og 5 mánaða syni. Hún hefur mikinn áhuga á öllu tengdu heilbrigðum lífsstíl og næringu, og leggur mikinn metnað í að aðstoða aðra í þeim málum. Hvernig kynntust þið? ‘’Við vitum ekki alveg hvernig við kynntumst almennilega, en við hittumst fyrst á landsliðsæfingum í handboltanum fyrir 5 árum og vorum svo bara allt í einu orðnar góðar vinkonur. Höfum við verið mjög nánar síðan og erum við ótrúlega spenntar yfir því að vera búnar að stofna saman fyrirtæki í okkar sameigin-
lega áhugasviði. Við höfum heyrt að við séum týndu systurnar sem sameinuðumst þarna á landsliðsæfingunum fyrir 5 árum. Hvað er Ps. Árangur? Ps. Árangur er fyrirtæki sem sérhæfir sig í næringarþjálfun, en hugmyndin um að stofna Ps. Árangur varð nánast bara til á einu kvöldi. Sandra var í símanum við pabba sinn þegar hann spurði hvort það væri ekki komin tími á að gera það að alvöru núna að fara að vinna með næringu, þar sem hún hafði mikið verið að hjálpa ungum stelpum með sitt samband við mat. Fyrsta manneskjan sem Sandra hugsaði að væri svo sannarlega góð og tilvalin með sér í þetta verkefni var Perla, en hún var líka sjálf reglulega að gefa fólki næringarráð. Síðan Sandra tók upp símann á seinasta ári hefur ekki verið aftur snúið. ‘’Það hefur verið ansi skrautlegt að vinna í að stofna fyrirtæki saman í
sitthvoru landinu og Perla nýbökuð móðir en við gáfum okkur góðan tíma í að skipuleggja og setja upp fyrirtækið nákvæmlega eins og við vildum hafa það. Við eyddum miklum tíma saman í sumar og hafa svo fjarfundir verið daglegt brauð síðustu mánuðina.’’ Fyrir hverja er Ps. Árangur? Ps. Árangur er fyrir alla! Sama hvort þú viljir þyngja þig, létta þig, verða sterkari, ná framförum í íþróttum eða bara lifa heilbrigðum lífstíl. Markmiðið okkar með næringarþjálfun Ps. Árangurs er að hjálpa fólki að læra hvernig hægt er að fá það allra besta út úr næringunni. Við notumst við hugmyndafræðina Macros (macros = macronutrients) en Macros snýst um það að finna út nákvæmlega hversu mikið einstaklingur þarf að innbyrða af næringu til þess að líða sem best og ná sínum markmiðum. Það eru engin boð og bönn, ekkert sem er “bannað” að borða, heldur borðar einstaklingurinn það sem hann langar í en skráir allt niður. Fljótlega lærir fólk svo inn á það hvað það er sem hentar þeirra líkama best og verður því mun meira meðvitað um hvað, hvenær og hversu mikið þau vilja “leyfa sér’’. Að skrá sig í næringarþjálfun á ekki að vera álitið sem “átak/megrun’’ sem er fylgt 110% í X margar vikur, síðan sé öllu hætt og fólk þá fljótlega komið aftur á sama stað og það var. Heldur leggjum við mikla áherslu á að þessi vegferð með okkur verði lífstílsbreyting sama hvort hún sé smá eða mikil. Næringaþjálfunin okkar á að vera fróðleikur, kennsla á nýjar venjur í mataræði, lífstíl og hugarfari, sem mun svo nýtast áfram í framtíðinni. Hvernig virkar þetta? Eins og staðan er núna erum við að bjóða upp á amk. 8 vikna næringarþjálfun. Það sem er innifalið í pakkanum er:
- Rafræn næringarþjálfun, með mikilli eftirfylgni frá þjálfara. - Rafrænt skjal, Árangurs skjalið þitt, sem verður þín dagbók í 8 vikur, en þar skráir þú inn ýmsar upplýsingar daglega. - Vikuleg verkefni, sem snúast að venjum í mataræði, hugarfari, almennri heilsu og fleiru. - Handbók Ps. Árangurs, sem er full af fræðsluefni um allt sem tengist góðri næringu og þar finnast svör við flestum spurningum sem gætu kviknað. - Youtube myndskeið með fræðsluefni um hvernig við notum forritið My Fitness Pal. - Aukalega fylgir með 8 vikna æfingaáætlun fyrir þá sem vilja nýta sér það, en hún er hönnuð til að henta byrjendum sem og lengra komnum.
Fyrir þá sem vilja skrá sig - hvernig er best að hafa samband? Senda okkur email á info@psarangur.is eða senda okkur skilaboð á instagram eða facebook ef fólk hefur spurningar * Við erum með forsöluverð fram að miðnætti á miðvikudag (27. október) fyrir 8 vikna námskeiðið okkar sem hefst 1.nóvember. Forsöluverðið er 19.990 kr. (almennt verð er svo 24.990 kr.)
LITLIR GESTIR Á HRAUNBÚÐUM Heimilisfólkið á Hraunbúðum fá til sín litla gesti annað slagið en það er þá ferfættlingurinn Tinna2 sem kíkir við. Það hafa allir gaman af dýrum svo þetta er mjög ánægðulegt og gaman að fá dýrin í heimsókn. Einnig kíkir hundurinn Bowie líka stundum á vakt með eiganda sínum sem er starfsmaður Hraunbúða.
SKEMMTILEG DAGSKRÁ Á BÓKASAFNINU UM SÍÐUSTU HELGI Það var líf og fjör um síðustu helgi á Bókasafninu. Á laugardaginn var verkefnið Kveikjum neistann kynnt í Einarsstofu af Hermundi Sigmundssyni prófessor og Svövu Þ. Hjaltalín sérkennara. En það er skólaþróunarverkefni sem Grunnskólinn í Vestmannaeyjum vinnur að næstu 10 árin. Helsta áhersla verkefnisins er að stórauka lestrarfærni barna og ungmenna, einnig er unnið með aðra þætti. Einnig opnuð sýning í Einarsstofu á Floorbooks verkefnum barna á leiksólanum Kirkjugerði. Lýsa má Floorbooks sem einskonar samvinnunámsbók þar sem drifkrafturinn er forvitni og leikur barnahópsins. Mikil gleði var í ratleik á efri hæðinni, Hrekkjavökuföndur í lesstofunni og boðið var upp á kaffi og smákökur.
ÞRAUTIR
HALLOWEEN VAMPÍRA
DRAUGAR KROSS
HROLLVEKJA BEINAGRIND
SKRÍMSLI GRIKKUR
GRASKER NAMMI
UPPSKRIFT VIKUNNAR Pasta með kjúklingi og rjómapestósósu Hráefni: 2 kjúklingabringur Ólífuolía Salt og pipar 1 krukka grænt pestó frá Filippo Berio 1 ½ dl rjómi 1/2 dl rifinn parmesan ostur 8-10 kokteiltómatar 1/2 dl ristaðar furuhnetur Fersk steinselja eða basilika Pasta Penne Aðferð: Skerið kjúklingabringurnar í tvennt langsum þannig að úr verða tvær þunn ar sneiðar. Steikið þær á pönnu upp úr olíu og saltið og piprið. Bætið pestóinu saman við. Hellið rjóm anum saman við og dreifið parmesan ostinum yfir. Blandið öllu saman. Bætið vatni eða rjóma saman við ef þið viljið hafa sósuna þynnri. Sjóðið pastað eftir leiðbeiningum. Skerið tómatana í sneiðar og dreifið yfir kjúklinginn. Dreifið að lokum furuhnetunum, stein selju eða basiliku og parmesan osti yfir allt saman.
VERTU MEÐ OKKUR
Sýningatíma má finna inn á
www.eyjabio.is
@leturstofan /leturstofan
leturstofan@leturstofan.is
FLENSUSPRAUTA
Nú er komið að bólusetningu gegn árlegri inflúensu á Heilsugæslunni í Vestmannaeyjum
Bólustt verður þriðjud., miðvikud. og fimmtud. frá kl. 13:30–15:30 Athugið að Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar. Frá 25. október til 8. nóvember frá kl 13:30-15:30 geta því einungis eftirfarandi áhættuhópar pantað tíma í flensusprautu: • • • •
Allir einstaklingar 60 ára og eldri. Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum. Barnshafandi konur. Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
Frá og með 15. nóvember geta aðrir pantað tíma í flensusprautu. Athugið að æskilegt er að það líði a.m.k. tvær vikur milli inflúensubólusetningar og COVID 19 bólusetningar.
Tímapantanir eru í síma 432-2500.
Vestmannaeyjafyrirtæki í fremstu röð! VIÐ ERUM STOLT AF ÞVÍ AÐ VERA Í HÓPI FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKJA Í VESTMANNAEYJUM SAMKVÆMT ÚTNEFNINGU
Frár