Skip to main content

Tígull 34. tbl 05. árg.

Page 1

34. tbl. 05. árg. 25. - 31. október 2023


OPIÐ HÚS Í SÝNINGARÍBÚÐ Í ÁSHAMRI

Um helgina verður Hús fasteignasala með opið hús í sýningaríbúð í nýbyggingu við Áshamar 81. Fyrstu eigninar voru afhentar 1. október síðastliðinn og voru afhentar á skráðum afhendingardegi. Búið er að selja 3 af 4 eignum í fyrsta húsinu og byrjað er að selja eignir í næsta húsi sem verða afhentar næsta sumar.

Þeir feðgar Svanur Örn Tómasson húsasmiður og Aron Ingi Svansson eru búnir að vinna meira og minna saman síðan árið 2006. SA Smíðar byggðu Áshamar 95-103 og áður kom Svanur að byggingu á raðhúsum við Foldahraun. Framundan hjá þeim eru þrjú fjórbýli samskonar því sem er nú þegar risið ásamt stærra fjölbýli í Áshamri sem verið er að hanna fyrir þá. Einnig eru þeir með lóðir undir tæplega 2.000 fermetra atvinnuhúsnæði á nýju atvinnusvæði upp við flugvöll svo það er nóg framundan hjá þeim. Halldóra Kristín fasteignasali er með eignirnar í Áshamrinum í einkasölu og segir hún þær vera einstaklega bjartar og rúmgóðar, með mikilli lofthæð og einstakt útsýni. Það hefur komið fólki á óvart hvað öll rýmin eru stór og rúmgóð svo ég hvet fólk til að

kíkja á opna húsið um helgina. Allar íbúðirnar eru með sér inngangi ásamt sér rafmagni og hita. Húsin eru einangruð og klædd að utan með viðhaldsfrírri klæðningu. Vandað er til verka og eru eignirnar t.d mjög vel hljóðeinangraðar með 23 cm þykkri plötu á milli hæða, Timbur/ ál gluggar eru í húsunum með þreföldu gleri, hurðar eru einnig með þreföldu gleri. Íbúðirnar skilast fullbúnar án gólfefna, en votrými verða flísalögð. Við vorum með opið hús síðast í júní sem gekk mjög vel og seldum við nokkrar eignir í kjölfarið, nú erum við með sýningaríbúð sem er fullkláruð svo við hvetjum fólk sem er í kauphugleiðingum til að kíkja á okkur því sjón er sögu ríkari - við vonumst til að sjá sem flesta!

NÁUNGAKÆRLEIKUR Viðar Breiðfjörð vildi gefa af sér og afhenti Krabbavörn listaverk til uppboðs. Uppboðið stóð í 2 vikur eða þar til kl. 14 á bleika daginn. Það voru þau Guðrún Birna Leifsdóttir og Bjarni Samúelsson sem að buðu hæðst í verkið eða 200.000 krónur sem rennur óskert til Krabbavarnar. Viðar er fæddur 31. maí árið 1962 á Húsavík. Hann fluttist til Vestmannaeyja árið 1983 og hefur

TÍGULL

búið hér og starfað síðan. Náttúra Vestmannaeyja hefur verið honum innblástur í listsköpun sinni og skildi þá engan undra. Verk hans eru bæði olíumálverk, vatnslitaverk auk teikninga og beitir Viðar „blandaðri tækni“. Hann er vandvirkur, tekur sér tíma til þess að klára verk sín og hefur mörg járn í eldinum ef svo má segja, en hann vinnur við mörg verk samtímis.

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó. Á forsíðumyndinni eru mæðgurnar Esther, Elva, Hekla og Birta.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


Jákvæðari orka á Suðurlandi

Skiptu yfir í jákvæðari orku á atlantsorka.is


GLÆSILEG ÁRSHÁTÍÐ VSV Á LAUGARDAGINN Síðastliðið laugardagskvöld hélt Vinnslustöð Vestmannaeyja eina af sínum stærstu árshátíðum frá upphafi í Höllinni. Glæsilegur salur, sem skreyttur var af Heimadecor, tók á móti veislugestum VSV þegar þeir mættu í Höllina ásamt forréttahlaðborði. Veislumaturinn var frá Einsa Kalda og sáu þeir Auddi

og Steindi um að skemmta veislugestum ásamt Emmsjé Gauta. Að lokinni dagskrá hófst ball með Bandmönnum og bauð VSV öllum Vestmannaeyingum á ball. Glæsileg árshátíð í alla staði sem tókst frábærlega. Ljósmyndari Tíguls mætti á svæðið og smellti myndum af veislugestum.

Steindi og Auddi skemmtu veislugestum.

Glæsilegur salurinn í Höllinni.

Hrefna, Fanney og Katrín.

Einar, Sæþór og Hannes.

Ellý og Hafdís.

Gísli Geir og Lilja Björg.

Sindri og Guðni

Willum, Gísli Geir og Þórir.

Unnar Hólm og Jóhann.

Hafsteinn, Helga og Linda.

Jón Atli, Eysteinn og Árni.


Andrea, Þórdís og Steina.

Binni.

Benóný, Kári og Gunnar.

Guðmunda, Stella og Ingibjörg.

Luís, Maria, Vilma og Juan.

Jón, Óli og Viðar.

Guðrún, Arna og Berglind.

Ingólfur, Bergur og Magnús.

Jóný og Snjólaug.

Gunnar, Bjarni Rúnar og Daddi.

Valmundur Már og Theodór.

Ingi Bogi, Brynja og Sigga Inga.

Jóna, Íris og Edda.


HEIMARAF OPNAR 3. NÓVEMBER

Halldór Ingi, Sigrún Arna, Gunna og Tóti.

Á þessu ári tóku eigendur Geisla þá ákvörðun að selja raftækjaverslunina og eru það Sigrún Arna Gunnarsdótir og Halldór Ingi Guðnason munu reka hana áfram í sama húsnæði frá og með 1. nóvember. Verslunin mun heita Heimaraf. Tígull heyrði í Sigrúnu Örnu og Halldóri Inga með framhaldið. „Við erum orðin mjög spennt að opna dyrnar à nýju versluninni okkar. Raftæki verða að sjálfsögðu áfram í sölu hjá okkur“, segir Sigrún Arna. Heimaraf og Heimadecor verða sitthvor verslunin. Halldór stendur vaktina í Heimaraf og Sigrún í Heimadecor. „Ég á vera með annan fótinn þarna hinum megin hjá Halldóri og mun sennilega fá sniðugar hugmyndir að breyta einhverju hjá honum svona annars lagið“, segir Sigrún.

Við munum þjónusta Símann áfram hjá okkur ásamt því ætlum við að bjóða upp à fleiri vörur og þjónustu sem er ný hér í Eyjum. Við með framtíðarplön í hausnum og segir Halldór að það getur stundum komið sér vel að eiga hvatvísa konu sem fær misgáfulegar hugmyndir sem hún keyrir af stað. Heimadecor er ein af þessum hvatvísu hugmyndum sem Sigrún fékk og þau sjá svo sannarlega ekki eftir því. „Þetta hefur stækkað hratt og gætum við ekki verið ánægðari með okkar Heimafólk sem standa þétt við að halda rekstrinum gangandi, þetta væri ekki til án ykkar. Við vonum svo innilega að þið komið og sækið þjónustuna og viðskipti í Heimaraf. Við erum að kaupa af góðu búi og þið sjáið að Tóti og Gunna eru búin að þjónusta heimamenn í 50 ár. Það

sýnir hvað okkur finnst mikilvægt að geta gengið að þessari þjónustu hér à Eyjunni. Enda er ákveðin fjárfesting að kaupa sér raftæki, og ég tala nú ekki um stærri raftækin.Maður er búin að skoða à netinu og lesa sig til en langar alltaf að taka lokahringinn og sjá vöruna. Þà er voða gott að skjótast í búðina sem tekur 2 mínútur og hafa ábyrgðina og allt sem fylgir í þínum Heimabæ af vörunni sem þú varst að versla þér“, segir Halldór. Þau ætla að loka í nokkra daga um mánaðarmótin næstu og gera smà breytingar á rýminu. Þau hlakka til að opna föstudaginn 3. nóvember. Þau mæla með að kíkja í rýmingarsöluna hjá Geisla fram að mánaðarmótum. Þar er hægt að gera fràbær kaup og eru þau alltaf að bæta vörum á útsöluborðið hjá sér.


AFMÆLI?

ÞAÐ ER FRÁBÆR SKEMMTUN AÐ HALDA AFMÆLI Í BÍÓ AFMÆLIN FARA FRAM Á OPNUM VENJULEGUM SÝNINGUM, NEMA UM ANNAÐ HAFI VERIÐ SAMIÐ. ATHUGIÐ AÐ AUKA GJALD KANN AÐ VERA TEKIÐ FYRIR ÞAÐ.

KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Á EYJABIO.IS/AFMÆLI EÐA HAFÐU SAMBAND VIÐ OKKUR Á FACEBOOK


HUGRAKKAR STELPUR Nú er þetta í annað sinn sem þið farið af stað með námskeiðið Hugrakkar stelpur, hvað voru margar sem tóku þátt í fyrra skiptið? Það voru átta stúlkur sem að tóku þátt í námskeiðinu okkar í sumar. Hvað var það sem þið merktuð að stóð upp úr hjá stelpunum? Námskeiðið gekk vonum framar og var virkilega skemmtilegt. Við gerðum ýmsar æfingar, sumar þeirra krefjandi. Okkur þótti dýrmætt að sjá hvað stelpurnar voru jákvæðar, tillitsamar og hvetjandi hvor við aðra. Einnig sáum við framfarir hjá hverri og einni á ólíkan hátt. Í lokin ræddum við einmitt við stelpurnar um hvað stóð upp úr hjá þeim og svörin voru fjölbreytt. Rætt var um óöryggi og hvernig það getur haft hamlandi áhrif á okkur, stelpurnar töluðu um hvernig þær lærðu að taka eftir því og nota þá hugrekki til að takast á við aðstæður. Aðrar ræddu um samskiptaleiðir sem þeim þótti hjálplegar til að verða betri vinir og margar töluðu um hvernig þær ætla að byggja upp sjálfstraustið út frá þeim æfingum og umræðum sem þær lærðu með hugrekkið að vopni.

Er eitthvað sem þið tókuð eftir að þurfi að bæta inn í námskeiðið? Við fáum vonandi tækifæri til að þróa námskeiðið okkar, krakkarnir kenna okkur mikið og það er alltaf hægt að bæta efnið og gera betur. Okkur langar að geta boðið fleirum að taka þátt, en til þess þyrftum við að vera fleiri leiðbeinendur til að geta gefið hverjum og einum þátttakanda næga athygli og leiðsögn svo allir njóti sín sem best á námskeiðinu. Því bættum við einum leiðbeinanda við og erum því þrjár núna. Er á dagskrá að hafa námskeið fyrir stráka? Já, markmiðið okkar er að halda fleiri námskeið og einnig fyrir stráka, ásamt því að aðlaga námskeiðið að öðrum aldurshópum. Við erum með nokkrar útfærslur af námskeiðinu í vinnslu og stefnum að því að því að koma þeim í framkvæmd. Af hverju er hugrekki mikilvægt? Hugrekki er stórt hugtak og mikilvægi þess eftir því. Við þurfum hugrekki til að stíga inn í krefjandi aðstæður þrátt fyrir að upplifa ótta eða kvíða. Þegar við lærum að greina merki óöryggis og virkja hugrekkið okkar þá eflum

við sjálfstraust sem gagnast okkur við næstu áskoranir. Börn eru stöðugt að upplifa nýjar aðstæður og þroska færni sem krefst hugrekkis af þeirra hálfu. Til dæmis að kynnast nýjum vinum, prófa nýja tómstund, skipta um umhverfi, takast á við mistök og tala fyrir framan aðra. Eitthvað að lokum? Við viljum nota tækifærið til að þakka fyrir góðar undirtektir foreldra og krakka sem eru tilbúin til að taka þátt með okkur. Einnig viljum við þakka Leikfélagi Vestmannaeyja fyrir lánið á aðstöðunni og styrktaraðilum sem gera okkur kleift að halda þessu verkefni áfram. Við erum tilbúnar til að mæta á fundi eða viðburði og halda létta kynningu og stýra skemmtilegum leikjum sé þess óskað. Hægt er að hafa samband við okkur í gegnum netfangið hugrakkarstelpur@gmail.com. ATH! Vegna mikilla fyrirspurna höfum við ákveðið að bæta einum árgangi við skráninguna. Því geta stelpur í 2010 árgangi einnig tekið þátt í námskeiðinu í nóvember. Takmarkað pláss verður í boði.


OPIÐ HÚS

Nánari upplýsingar veitir: HALLDÓRA KRISTÍN ÁGÚSTSDÓTTIR - viðskiptafræðingur og löggiltur fasteigna- og skipasali * dora@husfasteign.is // ( 861-1105

Strandvegur 43a


MARÍA LEIKSTÝRIR GOSA María Sigurðardóttir er fædd í Reykjavík árið 1954. Hún leikstýrði hjá Leikfélagi Vestmannaeyja fyrir 2 árum, leikritinu 10 litlir Eyjapeyjar. En nú er hún mætt til Vestmannaeyja aftur til að leikstýra og er það Ævintýrið um hann Gosa. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég set upp ævintýrið um Gosa en þetta er leikgerð eftir Karl Ágúst Úlfsson með tónlist eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson. Mjög skemmtilegur söngleikur um spýtustrákinn Gosa og ævintýri hans,“ segir María. Hver er þín helsta tenging til Eyja? Ég á eina frænku sem býr hér, en helsta tengingin mín er annars þetta dásamlega fólk í Leikfélaginu. Finnst þér mikil breyting á leikhópnum? Ég er svo heppin að fá að leikstýra nokkrum aftur, sem voru með mér síðast og það er mjög skemmtilegt. Það er mikill kraftur og metnaður í Leikfélaginu enda unnu þau Áhugafélaga keppni síðasta leikárs og var boðið að sýna Rocky Horror í Þjóðleikhúsinu. Þarna er ungt fólk sem er ótrúlega hæfileikaríkt og yndislegar manneskjur. Búninga- og leikmyndahönnuður og dansaog gervahönnuður í GOSA eru úr hópi félaga í Leikfélaginu! Leikhópurinn okkar er um 30 manns, fullorðnir, unglingar og börn, sem allir standa sig fullkomlega og njóta þess að leika, dansa og syngja. Við vorum með prufur í haust og það mættu yfir 50 börn og fullorðnir sem vildu vera með. Við höfðum því miður ekki nógu mörg hlutverk fyrir alla, en þetta sýnir glöggt áhugann í Eyjum sem þýðir bjarta leiklistar framtíð. Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri? Ég hef verið heppin að fá að vinna með þessu hæfileikaríka og dásamlega fólki og mun sakna allra mikið þegar ég fer heim. Ég lofa fólki magnaðri skemmtun og miklu stuði á GOSA, og þakka hjartanlega fyrir mig.


HREKKJAVAKA! HALLOWEEN!

Hrekkjavakan verða haldin laugardaginn 28. október milli kl. 19:00 - 21:00. Börnin fá tækifæri til þess að ganga í hús og sníkja nammi ásamt því að skoða metnaðarfullar skreytingar víðsvegar um eyjuna. Heimilisföngin sem skráðu sig má sjá hér fyrir neðan. Góða skemmtun!

Búhamar 88

Hólagata 36

Illugagata 41

Faxastígur 8a eh

Hólagata 39

Illugagata 50

Hásteinsvegur 20

Hólagata 44

Illugagata 54

Hátún 8

Hólagata 47

Kirkjuvegur 57

Heiðarvegur 30

Hólagata 9

Kirkjuvegur 67

Heiðarvegur 41

Hraunbúðir

Skólavegur 19 eh

Heiðarvegur 50

Hraunslóð 2

Strembugata 25

Heiðarvegur 64

Hrauntún 31

Vallargata 12

Heiðarvegur 66

Hrauntún 48

Vestmannabraut 52

Helgafellsbraut 27

Höfðavegur 39

Hólagata 25

Illugagata 15

Hólagata 31

Illugagata 34

(Breiðholt)

Vesturvegur 11b Vesturvegur 13b (Reglubrautarmegin)

Tígull býður í „grikk eða gott“ á Vesturvegi 11B. (Gult hús á móti apótekinu) Við hvetjum börnin til að mæta til okkar í myndatöku


UPPSKRIFT VIKUNNAR Naan pizza með tælensku ívafi. Það er til heill hellingur af sniðugum hugmyndum af Naan pizzum á netinu. Hér kemur ein uppskrift af naan pizzu með tælensku ívafi.

Hráefni: 2 x naan brauð 2 x kjúklingabringa Rauðlaukur Paprika Rifinn ostur Jarðhnetur Kóríander Hellmann‘s hvítlauksmajónes (Roasted Garlic Mayonnaise) Aðferð: Skiptið kjúklingnum í hnetusósunni yfir naan brauðin. Skerið lauk og papriku í þunnar sneiðar og raðið yfir kjúklinginn. Næst fer rifinn ostur yfir allt og inn í ofn við 200°C í um 5-8 mínútur eða þar til osturinn er bráðinn. Toppið með vel af hvítlauksmajónesi, söxuðum jarðhnetum og fersku kóríander. Hnetusósa: 2 msk. Kikkoman soyasósa 2 msk. maple sýróp 1 msk. lime safi ½ tsk. Sriracha sósa ½ tsk. hvítlauksduft 125 g hnetusmjör (gróft) Setjið allt nema hnetusmjör í skál og hrærið saman, hellið yfir steikta kjúklingabitana á pönnunni. Hrærið síðan hnetusmjörinu saman við þar til allt hefur blandast vel og skiptið niður á naan brauðin. Uppskrift frá gotteri.is


Viltu minnast látins ættingja eða vinar? Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi. Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef. Verð: 12.400 kr.

Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma

MARGRÉT ÓLAFSDÓTTIR áður til heimilis að Vallargötu 16, Vetmannaeyjum, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum. Útförin fer fram frá Landakirkju föstudaginn 27. október kl. 13:00.

Ólafur Hermannsson María Ammendrup Ingveldur Hermannsdóttir Sigurður M. Jónsson Guðbjörg Hermannsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

HÖNNUN &PRENTUN

Á HINU OG ÞESSU Setjum upp og seljum auglýsingar í blöð fyrir hina ýmsu einstaklinga og félagasamtök t.a.m. • Afsláttarbók LEB • LEB blaðið • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja • Þjóðhátíðarblað Vestmannaeyja • Sjómannablaðið Víkingur • Heima er bezt • VM blaðið • Blað Rafiðnaðarsambandsins • Tímaritið Úti • Vikublaðið Tígull

900 Vestmannaeyjar // Vestmannabraut 38 leturstofan@leturstofan.is // s. 481 1161

leturstofan

leturstofan


ÞRAUTIR

DRAUGUR BEINAGRIND LEÐURBLAKA HAUSKÚPA

BÚNINGUR HREKKJAVAKA GRIKKUR GOTT HRÆÐSLA

GRASKER VAMPÍRA HROLLVEKJA KÓNGULÓARVEFUR

NORN


Auglýsingasími Tíguls: 481-1161 tigull@tigull.is

Vantar þig fyrirbæn?

Hafðu samband í síma 861-4848 betel@simnet.is Viltu biðja með öðrum? Sambæn hvern miðvikudag í hádeginu

Bókið tíma á facebook.com/thoreyljosmyndari eða á netfangi thoreyhh19@gmail.com Fundir eru sem hér segir:

Sunnudaga kl. 11.00 Mánudaga kl. 20.30 PPG bókarfundur Miðvikudaga kl 20.30

OKT

MIÐ

25 OKT

ÓÞÉTT? GLUGGA- OG HURÐASKIPTI

A lm e n n t v ið h a ld & s m íð i!

OKT

FIM

Flötum 29

Fallegur fatnaður á konur í öllum stærðum á sanngjörnu verði. Við tökum upp nýjar vörur vikulega.

www.skvisubudin.is

tannsi@eyjar.is

/skvisubudin

/skvisubudin

Kviku kl. 13:00 - 16:00

SÖNGDÍFUR SIGURRÓSAR

Vinaminni/Kviku kl. 16:00 - 17:00

SÖNGHÓPUR LALLA

Kviku kl. 17:00 - 18:00

DRENGJARADDIR LALLA

Vinaminni/Kviku kl. 17:00 - 18:00 SPILAVIST

FÖS

LEIKFIMI MEÐ ERNU JÓHANNESAR

ÞRI s. 772-1771 / 772-7175 / ggsmidir@gmail.com

HANDVERK & HITTINGUR

26 OKT

Litla Skvísubúðin

Neyðarsíminn: 844-5012

26

27

NÝJA

Tímapantanir í síma: 481-1012

FIM

OKT

AL-ANON

TANNLÆKNASTOFAN

OKT

25

Þriðjudaga kl. 20.30 NÝLIÐAR VELKOMNIR HÁLFTÍMA FYRIR FUNDI

25 MIÐ

Hvítasunnukirkjan Vestmannaeyjum

Passamyndir Fasteignaljósmyndun

MIÐ

1

NÓV

KVIKU kl. 19:30

Íþróttahús kl. 10:00 - 11:00

SUNDLEIKFIMI MEÐ HRAFNHILDI HÖNNU

Sundlaug Vestmannaeyja kl. 14:00 - 15:00

Frítt er í sundlaug íþróttamiðstöðvarinnar fyrir heimafólk 67 ára og eldri. Hressingarganga í Herjólfshöllinni alla daga kl. 08:00 - 12:00 Púttsalurinn pútt í kviku alla virka daga frá klukkan 13:30 - 14:00


Stofn

Páll elskar endurgreiðslur. Þess vegna er hann hjá Sjóvá.

Á hverju ári fá þúsundir tjónlausra viðskiptavina Sjóvá Stofnendurgreiðslu. Þannig hefur það verið í rúm 25 ár.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 34. tbl 05. árg. by Leturstofan - Issuu