Skip to main content

Tígull 34.tbl

Page 1

34. tbl. 01. รกrg. 23. - 29. oktรณber 2019 Strandvegur 47 | 481 1161 | tigull@tigull.is | www.tigull.is


Korn um kæfisvefn - Til eru tæki sem veita öndunaraðstoð í svefni Kæfisvefn er ástand sem einkennist af endurteknum öndunartruflunum í svefni og syfju í vöku. Öndunarhlé í kæfisvefni verða oftast vegna þrengsla eða lokunar í efri hluta öndunarvegarins (frá nefi að koki). Þá reynir einstaklingurinn að ná andanum með sífellt kröftugri innöndunartilraunum. Einkennin eru verri ef legið er á bakinu. Sjaldgæfari eru svokölluð miðlæg öndunarhlé þar sem ekkert loftflæði á sér stað en heldur ekki nein tilraun til öndunar. Hjá fullorðnum telst það öndunarhlé ef öndunin hættir alfarið í 10 sekúndur eða lengur og það telst vera kæfisvefn þegar slík öndunarhlé í svefni eru 5 eða fleiri á klukkustund. Kæfisvefn þekkist bæði hjá börnum og fullorðnum en er algengastur hjá fullorðnum karlmönnum. Flestir þeirra sem þjást af kæfisvefni eru í yfirþyngd, það er þó ekki algilt.

Áfengi og svefnlyf stuðla að kæfisvefni og sama er að segja um nefstíflu af hvaða orsök sem er. Merki kæfisvefns geta verið; hrotur, órólegur svefn, sviti, martröð og að börn væta rúmið. Að deginum kemur oft fram morgunhöfuðverkur, syfja og sljóleiki. Syfjan að deginum getur

í sjálfu sér verið hættuleg, ef fólk sofnar við vinnu eða akstur, en fleiri hættur eru á ferðinni. Við kæfisvefn berst ekki nóg súrefni í blóðið og þar með verður súrefnisskortur í vefjum líkamans. Þetta getur valdið ýmsum einkennum, m.a. hjartsláttartruflunum hjá þeim sem hafa undirliggjandi hjartasjúkdóma. Það virðast tengsl milli kæfisvefns annars vegar og kransæðasjúkdóms, hás blóðþrýstings og æðasjúkdóma hins vegar. Það er full ástæða til að fá greiningu og meðferð við kæfisvefni. Megrun er mikilvæg hjá þeim sem eru of þungir. Engin árangursrík lyfjameðferð er til við kæfisvefni þó að ýmislegt hafi verið reynt. Til eru nokkrar gerðir tækja sem veita öndunaraðstoð í svefni og hafa þau sýnt sig í að geta bætt gæði svefns verulega. Þessi tæki eru þannig að einstaklingurinn sefur með grímu sem er tengd við loftdælu eða loftkút og við það hækkar þrýstingur loftsins við innöndun sem dregur úr eða kemur í veg fyrir kæfisvefn. F.h. Heilbrigðisstofnunar Suðurlands Helga Þorbergsdóttir, hjúkrunarstjóri heilsugæslustöðvarinnar í Vík

TÍGULL

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


/smarteyjan #smarteyjan smarteyjan

Glæsilegur fatnaður á dömur og herra Stærðir frá 34 upp í 56

www.smartey.is | Smart | Vestmannabraut 30 | sími: 481 3340


Þóra Hrönn og fjölskylda á leið til Gambíu - Aðstoða ungar stúlkur úti -

Tígull fékk aðeins að heyra í Þóru Hrönn og fjölskyldu, þau eru á leið til Gambíu í þriðja sinn síðan nóvember 2018. En þau eru að gera hreint út sagt ótrúlega hluti þar. Lofum Þóru Hrönn bara að taka yfir: Fyrst fórum við öll fjölskyldan ég, Daði, Óliver og Sunna. Mér fannst mikilvægt að taka krakkana með til að leyfa þeim að upplifa og sjá við hvernig aðstæður önnur börn lifa. Við Daði fórum svo tvö í febrúar á þessu ári og erum við á leiðinni núna aftur í október og verðum í 10 daga. Þá förum við öll fjölskyldan og fóstursonurinn Sæþór Páll Snædal Jónsson fer líka með. Við erum í rauninni að gera ansi margt í Gambíu. En þessi ferð mun að mestu leyti fara í að hitta stúlkur og fræða þær um eigin líkama og hvers vegna við förum á blæðingar. Ég afhendi þeim líka poka með margnota dömubindum. Mamma á heiðurinn að þessu verkefni hjá mér, hún hefur tekið þátt í alþjóðlegu verkefni sem heitir “Days for girls”. Það snýst um að sauma

margnota dömubindi og poka sem bindin fara svo í ásamt nærbuxum, þvottastykkjum og sápu. Þetta hafði hún verið að gera og senda á þetta verkefni í Bandaríkjunum sem kom svo pokunum á góða staði einhversstaðar í heiminum. Þegar ég fór að fara til Gambíu

fannst henni bara upplagt að ég tæki pokana með mér þangað. Svo úr varð að þegar ég fór til Gambíu í febrúar þá tók ég með mér poka fyrir 50 stúlkur. Ég er að gera þetta í samstarfi við heilsugæsluna í þorpinu. Þar er ég búin að fá tvo innfædda hjúkrunarfræðinga sem sjá um fræðslu fyrir stúlkurnar. Þær fá fræðslu um kynþroskan,

blæðingar, hvernig börnin verða til, getnaðarvarnir, hreinlæti o.s.frv. Ég er mjög spennt að fara út núna því þá ætla ég að hitta þessar 50 stúlkur aftur og tala við þær um hvernig og hvort bindin og fræðslan hafi hjálpað þeim eitthvað. Út frá þeirra svörum munum við svo breyta og bæta verkefnið og gera það að okkar eigin þ.e. hætta að vinna fyrir Days for girls og gera þetta algjörlega sjálfar. Eftir að ég kom heim í febrúar fékk ég skilaboð frá heilsugæslunni um að stúlkur og foreldrar þeirra hefðu komið til að spyrja hvenær þeirra stúlka yrði valin til að fá poka. Verkefnið er farið að spyrjast út og þörfin er mjög mikil. En þetta er mikil vinna, heima hjá mömmu stoppa saumavélarnar aldrei, vinnuvikan hennar er mikið meira en 40 klst. Hún er líka í saumaklúbb sem er rosalega duglegur að hjálpa til. Þetta eru mjög mörg handtök og þess vegna ætlum við að breyta bindunum og reyna að létta vinnuna. Ég er leiðinni núna út með poka fyrir 100 stúlkur og


50 konur því auðvitað fara konur líka á blæðingar, en Days for Girls verkefnið snýst bara um að hjálpa stúlkum. Eftir þessa ferð verð ég búin að fræða og afhenda 200 stúlkum og konum eitthvað sem bætir lífsgæði þeirra svo mikið að við getum ekki einu sinni ímyndað okkur það. Ég er búin að búa mér til spurningalista, hann nota ég til að spyrja stúlkurnar til að skilja betur þeirra aðstæður og hvernig ég get hjálpað þeim. Með því get ég þróað verkefnið og aðlagað að þeirra þörfum. Mig langar að benda á þessa grein (skannaðu inn QR kóðann til að komast inn á greinina)

því þar kemur fram hvað stúlkur í Afríku mega búa við. Þar kemur líka fram að í síðasta mánuði framdi 14 ára stúlka í Kenýa sjálfsmorð vegna þess að hún byrjaði á blæðingum sem fóru í fötin hennar í kennslustund og kennarinn rak hana út. Hann sagði hana skítuga. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir að þetta væri svona alvarlegt svo það má alveg segja að við getum bjargað lífum með þessu litla verkefni. Þetta er bara saga einnar stúlku sem rataði í fréttirnar, hvað með allar hinar. Okkur hjá Tígli finnst þetta magnað verkefni hjá þeim og fáum við að fylgjast með þessari ferð, myndir og upplýsingar um hvernig gengur og bíðum við spenntar eftir því.


Sagnheimar - Hörður Baldvinsson með margt á döfinni - Eyjamenn á Ólympíuleikunum í Berlín 1936 -

ÓMAR GARÐARSSON omar49@simnet.is Hörður Baldvinsson tók við sem safnstjóri Sagnheima, byggðasafns 15. maí 2019 af Helgu Hallbergsdóttur. Hörður er með M.Ed. próf í lýðheilsu- og kennslufræðum frá Háskólanum í Reykjavík ásamt diplómanámi í markaðs- og útflutningsfræðum og diplómanámi ásamt PMA í verkefnastjórnun. Hörður hefur mikla reynslu af rekstri sem og víðtæka reynslu á sviði verkefna- og viðburðastjórnunar. Hörður hefur starfað undanfarin sjö ár sem sviðsstjóri hjá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi ásamt því að gegna stöðu verkefnastjóra við Símenntunarmiðstöð Vesturlands. Hörður sem er borinn og barnfæddur Vestmannaeyingur er kvæntur Bjarneyju Magnúsdóttur leikskólastjóra og eiga þau tvær dætur. Alls sóttu sex um stöðu safnstjóra, þrír karlar og þrjár konur. Allar

umsóknir stóðust hæfniskröfur til starfsins og voru metnaðarfullar. Við viljum þakka umsækjendum kærlega fyrir auðsýndan áhuga og óskum Herði velfarnaðar í starfi, segir í fréttatilkynningu sem birtist á vef Þekkingarseturs Vestmannaeyja. Eyjamaður og Baldari „Pabbi minn var Baldvin Skæringsson og Þórunn Elíasdóttir móðir mín. Pabbi kemur frá Rauðafelli undan Eyjafjöllum og mamma mín er frá Bala í Þykkvabæ. Við vorum níu systkinin. Fyrst bjuggu þau í Steinholti sem stóð við Kirkjuveg 9a en seinna byggði hann Illugagötu 7. Þá var fyrra hollið af systkinahópnum farið að heiman en yngra hollið var á Illugagötunni hjá þeim. Þá fór pabbi að byggja í Hrauntúninu og við bjuggum um tíma í Gefjun við Strandveg, gömlu húsi sem þau eldri muna eftir á meðan hann var að klára húsið í Hrauntúninu. Það breyttist svo allt 23. janúar 1973. Þá fórum við upp á land og bjuggum fyrst

í Hafnarfirði en pabbi byggði sér svo hús í Mosfellsbæ. Þar bjuggu pabbi og mamma til dauðadags. Þannig að þau komu ekki aftur,“ segir Hörður sem sjálfur ílengdist í Mosfellsbænum. Konan sat fyrir þegar kom að námi Kona Harðar er Bjarney Magnúsdóttir, leikskólastjóri á Kirkjugerði, Eyjakona í húð og hár. „Pabbi hennar var Magnús Sigurðsson og mamma Guðrún Kristófersdóttir frá Oddsstöðum. Við flytjum til Reykjavíkur 1981 eða 1982. Eiginkonan fór í Fóstruskólann sem þá var og ég í Tækniskóla Íslands. Ætlaði að verða tæknifræðingur. En það var nú bara þannig að við vorum skítblönk og við höfðum ekki ráð á að vera bæði í skóla. Þannig að ég ákvað að fara að vinna hjá verksmiðjunni Vífilfelli sem framleiðir m.a. Coca Cola á meðan Bjarney kláraði sinn skóla. Eftir það var hugmyndin að ég færi aftur í skóla en það atvikaðist þannig að allt í einu var ég orðinn verksmiðjustjóri hjá Davíð Scheving Thorsteinssyni. Rak gosdrykkjahlutann fyrir hann og síðar


erlenda aðila, Seltzer Drinks. Þeir buðu mér svo til Bretlands og taka við verksmiðju þeirra í Wales.“ Starf og nám í Wales Gerði Hörður samning við þá um tvö ár og nýtti tækifærið og fór í háskóla í Swansea. „Í eitthvað sem heitir í dag, frumkvöðlafræði sem ég kláraði. Við flytjum heim árið 2000 og fór ég þá í rekstrarhagfræði og aðþjóða markaðssetningu við Háskóla Íslands. Vann hjá Iðntæknistofnun í fjögur eða fimm ár. Með því er ég alltaf að taka eitt og eitt fag í Háskólanum, verkefnastjórnun m.a. og fór svo í kennarann. Fyrst náði ég mér í réttindi grunnskólakennara og fannst þá vanta lítið upp á framhaldsskólaréttindi að ég skellti mér í það líka. Þá fannst mér vanta svo lítið upp á masterinn að ég tók mastersgráðu í kennslufræðum.“ Þarna fannst Herði eiginlega komið nóg af námi en þó ekki alveg. „Ég var búinn að vera 11 ár í skóla ef ég man rétt. Var að taka eitt eða tvö fög þannig að þetta var meira eins og hobbý.“ Fjölbreytt störf og meiri menntun Eftir að Hörður byrjaði að kenna fannst honum tilvalið að sérhæfa sig. „Ég sá um endurmenntun hjá Norðuráli á Grundartanga og þá sárvantaði kennara með þekkingu

á vökvatækni. Þá skrapp ég á hverju ári í fimm ár í skóla í Bretlandi og náði mér í diplómu í þessari tækni. Þetta var sumarskóli og tók ég yfirleitt tvö námskeið á sumri. Notaði sumarfríið mitt í þetta. Í tíu ár sá ég um verklegu deildirnar í Fjölbrautarskólanum á Akranesi sem sviðsstjóri þar ásamt því að kenna í álverinu. Ég var einnig starfsmaður Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands á Akranesi og kenndi út um allar jarðir. Tók að mér ýmis önnur verkefni, eitt og annað sem þörf var á á hverjum tíma,“ segir Hörður um það sem hann hefur verið að fram að þessu. Stefndu á Vestmannaeyjar En hugurinn stefndi alltaf heim til Eyja. „Við hjónin vorum búin að ákveða það fyrir löngu, að flytja til Eyja. Ég held að ég hafi fimm sinnum sótt um að komast í kennslu uppi í Framhaldsskóla. Einhverra hluta vegna komst ég ekki einu sinni í viðtal,“ segir Hörður og hlær. „Svo losnaði þessi staða í Sagnheimum og þetta hefur verið mitt áhugamál í gegnum tíðina. Pæla í gömlu dóti og fannst tilvalið að sækja um. Var svo heppinn að þeir vildu fá mig í starfið,“ segir Hörður og er mjög ánægður í dag. „Ég tek við mjög góðu búi af Helgu sem hefur lagt mikið á sig til að gera safnið að því sem það er í dag.

Flottar sýningar og frábært safn. Ég ætla að halda áfram á sömu braut, um það snýst málið,“ segir Hörður og það er af nógu að taka. Atburðir á Safnahelgi Nú er hann að undirbúa sýningu, Eyjamenn á Ólympíuleikum. „Þetta er saga fimm Eyjamanna sem skelltu sér á Ólympíuleikana í Berlín 1936. Ég ætla að fjalla um þessa leika og sýningin verður um Safnahelgina tíunda til tólfta nóvember í haust. Ég hef verið að viða að mér myndum úr fórum Ólympíufaranna og sumar sem aldrei hafa sést áður. Ég ætla að fjalla aðeins um ferðina og hvernig þeir upplifðu þetta.“ Annað verkefnið er endursýning á kvikmyndum sem sýndar voru sjöunda og áttunda mars 1921 fyrir fullu húsi í Nýjabíói sem stóð þar sem Hótel Vestmannaeyjar eru í dag. „Það er tími til kominn að sýna þær aftur og ég hef hugsað mér að rukka sama og var rukkað þá. Sem voru 20 aurar. Ég get ekki gefið til baka. Það verður bara að vera sem næst því en þetta er bara til gamans gert. Sýnt verður í Alþýðuhúsinu og ég ætla að raða upp stólum eins og í bíói. Það verður orgelleikur eins og var þegar þöglu myndirnar voru sýndar í gamla daga. Ég trúi ekki öðru en að þetta verði tilbreyting. Þetta eru tvær myndir og er önnur ein af fyrstu myndunum frá Charlie Chaplin. Fyrsta myndin sem sýnd var hér í Eyjum er því miður ekki lengur til. Myndirnar sem við sýnum eru um 25 mínútur hvor.“ Hörður segir svo nokkur verkefni í pípunum hjá Sagnheimum. „Mig langar að minnast þessara frábæru íþróttamanna sem hér voru í upphafi síðustu aldar og lögðu grunninn að því sem við höfum í dag. Þar má nefna Friðrik Jesson, Sigurður Sigurðsson og fleiri sem fóru á Ólympíuleikana í Berlín 1936.Síðast en ekki síst þá er svo sannarlega kominn tími til að minnast þeirra sem ruddu veginn í útgerð í Vestmannaeyjum,“ sagði Hörður að endingu.


Sjá nwáwn.atrigull.is w

Viðburðir MIÐ

FIM

23 24 OKT

LAU

26 OKT

OKT

SUN

26

FIM

24

Alþýðuhúsið kl. 20:00

OKT

OPIÐ HÚS FYRIR 5 - 7. BEKK

Rauðagerði kl. 16:30 - 18:30

MÁN

LEIKRITIÐ LÍNA LANGSOKKUR

OPIÐ HÚS FYRIR 8 - 10. BEKK

28

Leikhúsið kl. 15:00

Rauðagerði kl. 19:30 - 22:00

OKT

ÞRI

ÍBV U - VALUR U GRILL 66 DEILD KVENNA

OPIÐ HÚS FYRIR 5 - 7. BEKK

29

Eyjabíó 17:00

OKT

Rauðagerði kl. 19:30 - 22:00

OKT

HLJÓMSVEITIN BUFF FAGNAR 20 ÁRA AFMÆLI

OKT

OPIÐ HÚS FYRIR 8 - 10. BEKK

23

Friðarból kl. 10:00

OKT

26

MIÐ

QIGONG NÁMSKEIÐ

OKT

SUN

Opnunartími Féló fyrir 5. - 10. bekk

Leikhús Vestmannaeyja kl. 15:00

26 26

Rauðagerði

Eyjabíó kl. 17:00

LEIKRITIÐ LÍNA LANGSOKKUR

LAU

LAU

EVEREST FRÍTT Í BÍÓ

Rauðagerði kl. 16:30 - 18:30

OKT

FIMMTUDAGUR 24

FÖSTUDAGUR 25

OKT

MIÐ

23 OKT

MIÐ

23 OKT

MIÐ

23 OKT

MIÐ

23 OKT

FIM

24 OKT

MÁN

28 OKT

MÁN

28 OKT

OKT

ÞRI

29 OKT

kl.21:00

FÖS / LAU

LAU / SUN

25 OKT

26 OKT

ÞRI

kl.18:00

SUNNUDAGUR 27

26

OKT

27 kl.18:00 / 21:00

OKT

HANDVERK & HITTINGUR

Vinaminni/Kviku kl. 13:00 - 16:00

STÚLKNAKÓRINN

Vinaminni/Kviku kl. 16:00

SÖNGHÓPURINN

Vinaminni/Kviku kl. 17:00

SPILAVIST

Vinaminni/Kviku kl. 20:00

BOCCIA

Vinaminni/Kviku kl. 16:00

PERLUSAUMUR

Vinaminni/Kviku kl. 16:00 - 18:00

LÍNUDANS

Vinnaminni/Kviku kl. 15:00

VATNSLEIKFIMI

Sundlaug Íþróttamiðstöð kl. 10:50 - 11:20

PÚTTSALURINN OPINN ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 12:30 - 14:00

OKT

HRESSINGARGANGA Í HERJÓLFSHÖLL ALLA DAGA 08:00 - 12:00

OKT

kl. 21:00

29

LEIKFIMI

Íþróttamiðstöðin kl. 10:10 - 10:50

kl.18:00

FRÍTT Í SUND FYRIR HEIMAFÓLK 67 ÁRA OG ELDRI


Strandvegur 47 / leturstofan@leturstofan.is


Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt: - Friðrik í Eyjablikk og Jóna Heiða á laugardaginn Pétur Steingrímsson og Guðmundur Gíslason leyfðu gestum að kíkja í ljósmyndasafnið sitt í Einarsstofu á laugardaginn. Tónninn var sá sami, Vestmannaeyjar en sitt hvort stefið að nokkru leyti. Þá áttu þeir eitt sameiginlegt, fólk var áberandi í myndum beggja og var gaman að fá að kíkja í níræðisafmæli tengdapabba hans þar sem margt merkisfólk var samankomið. Það var ekki síður gaman að ferðast upp um fjöll og firnindi, mest Heimaklett og í úteyjar með Pétri. Nú er komið að sjöundu sýningunni í röðinni, Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt og þá geysast þau Jóna Heiða Sigurlásdóttir og Friðrik Björgvinsson fram og sýna okkur lítið brot af þeim myndum sem þau hafa tekið í gegnum árin. Myndir Jónu Heiðu eru hluti af listsköpun hennar en Friðrik er meira í daglega lífinu og sýnir okkur myndir sem hann hefur tekið á sjó og á landi með áherslu á fólkið sem hann hefur mætt í gegnum ævina. „Ég er að skrá og rannsaka það sem ég sé. Er mikið úti í náttúrunni, skoða flóruna, dýralíf og landslag. Ég hef alltaf haft áhuga á því vísindalega og það kemur fram í

myndum mínum,“ segir Jóna Heiða sem kennir við Framhaldsskólann. Hún lauk námi frá Listaháskólanum 2005 og bætti við sig kennararéttindum nokkrum árum síðar þegar hún lauk mastersnámi. „Ég ætla að sýna sitt lítið af því sem ég hef verið að gera og hlakka til á laugardaginn,“ sagði Jóna Heiða. Friðrik er framkvæmdastjóri Eyjablikks en var lengi til sjós sem vélstjóri. Hann byrjaði að taka myndir eftir 1980 og á hann mörg gullkornin í myndum sem hann hefur tekið á löngum sjómannsferli auk mynda sem hann hefur tekið

í landi. „Ég er þakklátur fyrir þetta tækifæri því það ýtir við manni að taka til í safninu,“ segir Friðrik. „Ég verð með valdar bátamyndir en legg áherslu á myndir sem ég hef tekið af fólki, köllum sem ég var með til sjós og hafi orðið á vegi manns í landi. Það var margt í safninu sem kom mér á óvart og verður gaman að sýna úrval úr safninu á laugardaginn.“ Eins og venjulega byrjar sýningin klukkan 13.00 á laugardaginn í Einarsstofu og stendur í einn til einn og hálfan tíma.

HALLOWEEN LÍKT OG Í fyrra þá ætla börnin að ganga í hús fimmtudaginn 31. október milli 18:00 - 21:00. Á facebook er viðburður sem heitir halloween og þar skráir fólk heimilisfang sitt ef það vill leyfa börnunum að koma í “GRikk eða gott”


Miðasala í síma 852-1940 4. sýning 26.október kl. 15:00 5. sýning 27.október kl. 15:00

Þaklist ehf Frumherji verður í Eyjum vikuna 28. - 31. október. Tímapantarnir í síma 570 9090. Staðsettur við Faxastíg í húsi Björgunarsveitarfélagsins.

Frumherji Faxastígur / 570 9231

Þakviðgerðir, Sérhæfi mig í flötum þökum. Tek að mér ýmsa smiðavinnu, parketlagnir, grindverk, sólpalla og fleira.

20 ára reynsla lærður smiður Smári Björn S: 849-2694 smaribjorn@gmail.com

/þaklist


Lista- og menningarfélag Vestmannaeyja hefja starfsemi í Hvíta húsinu

Undanfarna mánuði hefur Lista– og menningarfélag Vestmannaeyja unnið hörðum höndum að því að skapa vettvang fyrir listafólk í Vestmannaeyjum þar sem hægt er að starfa að list sinni. Í Hvíta húsinu eru nú starfræktar vinnustofur og vinnurými fyrir fólk úr ólíkum áttum sem vill vera hluti af skapandi og lifandi samfélagi, vinna að listsköpun sinni og leggja sitt af mörkum við að auðga menningarlíf Vestmannaeyjabæjar. Meðlimir Lista– og menningarfélagsins eru eins fjölbreyttir og þeir eru margir; ljósmyndarar, menntaðir, áhugamenn, málarar, hönnuðir, handverksfólk og svo mætti lengi telja. En allir með brennandi áhuga á list og menningu og hafa metnað í að láta félagið vaxa þannig að það skipi mikilvægan sess í menningarlífi Vestmannaeyja í framtíðinni. Tígull ætlar að kynna fólkið sem er starfandi í Lista- og menningarfélaginu. Við kíktum á vinnustofu Berglindar Sigmarsdóttur. Segðu okkur aðeins frá þér: Ég rek veitingastaðinn GOTT, Pítsugerðina og GOTT Reykjavík ásamt manninum sínum Sigga Gísla

og öðru góðu fólki. Ég á fjögur börn, Sigmar Snæ 19 ára, Clöru 17 ára, Anton 11 ára og Matta 9 ára. Elsku frændi minn Elvar 11 ára býr hjá okkur og svo eigum við fjölskyldan hundinn Ísold. Er formaður Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja, sit í knattspyrnuráði kvenna og er núna meðlimur í Lista- og menningarfélagi Vestmannaeyja.

sinni list, það eru svo ákveðnir kaffitímar og svona svo fólk getur náð spjalli. Það er gott að fá ráð og fylgjast með verkefnum annara. Hópurinn stefnir svo á að vera með nokkrar samsýningar yfir árið með ákveðið þema hverju sinni. Það er heiður að fá að vera hluti af þessum hópi. Margir að gera spennandi hluti.

Hvenær byrjaðir þú að mála? Ég hef alltaf verið að mála og föndra eitthvað af og til en byrjaði svona fyrir alvöru um síðustu áramót eftir að ég setti mér áramótaheit að eiga einhvern tíma með sjálfri mér og gefa mér tækifæri til þess að leika mér aðeins og stíga útúr þessu daglega amstri.

Hver er þinn helsti innblástur? Ég hugsa mínar myndir fyrst og fremst útfrá litum og þá getur það verið innblástur að skoða tísku bæði í fötum og húsbúnaði, hvaða liti ég vel að setja saman. Ég er mikil litasprengja, lífið er bara svo fjölbreytt og skemmtilegt og ég vil hafa það í öllum litum, bara spurning hverjir parast saman hverju sinni. Nota ekki svart eða grátt nema til að fá jafnvægi á hina litina. Ég mála með acryl á striga.

Hvernig líst þér á aðstöðuna í Hvíta húsinu? Hún er mjög fín, gott að hafa aðstöðu fyrir dótið og hafa tækifæri til að sjá hvað aðrir eru að gera, ná smá kaffispjalli og fá innblástur frá öðrum. Hvernig er starfsemin? Fólk kemur bara þegar það hefur tíma og sinnir

Áttu fyrirmynd í myndlistinni? Kannski ekki beint, Gunnella er með litaglaðar og barnslegar myndir sem mér finnst æðislegar, ég á tvær myndir eftir Odee sem er íslenskur samrunalistamaður, hann vinnur líka


30% AFSLÁTTUR

U G N I N L Á AF INNIM

/midstodin Strandvegur 30 / 481 1475 www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is


mikið með liti og svona teiknimynda “look”. Sara Vilbergs er í uppáhaldi og Gíslína okkar er líka frábær, ég á tvær myndir eftir hana og alveg til í fleiri. Svo eru nokkrir erlendir sem maður skoðar vel á Instagram. Þú varst með sýningu á Gott í sumar, ágóðinn fór í gott og þarft málefni, ertu til í að segja okkur frá því? Já ég var búin að mála nokkuð af myndum yfir veturinn og vildi reyna

láta gott af mér leiða og setti upp þessa sýningu – Eyjarnar í mínum litum- til þess að vekja fólk til umhugsunar um plastið sem við látum frá okkur, sem safnast upp í náttúrunni og seldi myndirnar til styrktar 4ocean sem eru samtök sem hreinsa plast og drasl úr sjónum. Hvað er framundan hjá þér í listinni? Ég er aðeins að vinna nýtt sem ég er svona að þróa með hinum

myndunum sem ég hef verið að gera. Hvernig myndir lýsa stílnum þínum? Barnslega litaglöð, sem ég kem þó reglu á með mikið af kassalaga formum. Stefnt er á sýningu tengda Júlíönu Sveins á Safnahelginni, ætlar þú að taka þátt í henni? Ég veit ekki hvort ég næ því, langar það en er svolítið að renna út á tíma. Sjáum til.

ORÐARUGL

BAKARI LÖGGA SJÓARI BANKASTJÓRI

SÖLUSTJÓRI BÓKARI KENNARI VERSLUNARSTJÓRI KAFARI RAFVIRKI


772-6766 Heiðarvegur 9

/crispus

Siglingaáætlun

Frá 30. mars - 30. nóvember 2019

Opnum 9, 10 eða 11 fer eftir pöntunum og erum til 18.00 virka daga opið á laugardögum eftir pöntunum. það er hægt að panta tíma allan sólahringinn á facebook

ÖKUKENNSLA

SNORRA RÚTS Kennslubifreið: Mercedes Benz C200-C01

Vestmannaeyjar brottför:

Landeyjarhöfn brottför:

07:00 - Alla daga

08:15 - Alla daga

09:30 - Alla daga

10:45 - Alla daga

12:00 - Alla daga

13:15 - Alla daga

14:30 - Alla daga

15:45 - Alla daga

17:00 - Alla daga

18:15 - Alla daga

19:30 - Alla daga

20:45 - Alla daga

22:00 - Alla daga

23:15 - Alla daga

Ef siglt er í Þorlákshöfn: Brottför frá Vestmannaeyjum 7:00 og 17:00 Brottför frá Þorlákshöfn 10:45 og 20:45

• Akstursmat • Endurtökupróf • Ökuskóli

+354 481 2800

20 ára reynsla! Sími 692-3131

Leið 52

Tannlæknar í október 26. - 27. okt - Hjalti Harðarson 9. - 10. nóv - Hjalti Harðarson 23. - 27. nóv - Hjalti Harðarson

Hólagötu 40

Tímapantanir í síma 481-2772

STRÆTÓ Virkir dagar:

08:00 Herjólfsferð: 10:45 17:45 Herjólfsferð: 20:45

Frá Mjódd Frá Mjódd Helgar:

Frá Umferðarmiðstöð Frá Mjódd Frá Mjódd

Að gefa betri fókus

07:55 Herjólfsferð: 10:45 08:05 Herjólfsferð: 10:45 15:15 Herjólfsferð: 18:15

www.straeto.is | 540-2700

www.ernir.is 481-3300

Frá Reykjavík

Að minnka matarlöngun Að gefa aukna orku

www.straeto.is 540 -2700

Hægt er að borga fargjaldið inn í strætó Ferðir í Landeyjarhöfn!

Italian Roast hjálpar til við eftirfarandi: Að slökkva á sykurlöngun

herjolfur@herjolfur.is

Básaskersbryggju - 900 Vestmannaeyjum

Frá Vestm.eyjum

Mán Þri Mið Fim Fös Lau Sun Brottför Lending

07:15 15:45 11:30 17:30

07:40 16:10 11:55 17:55

08:00 16:30 12:15 18:15

08:25 16:55 12:40 18:40


Jólakvöld á Einsa kalda

hefjast 23. nóv. töKUm á móti HópUm aðra DaGa EF ósKað Er

For rÉtta

pLatti K aLDUr

aðaL rÉtta

pLatti

HEitUr

aðaL rÉtta

pLatti

EFtir rÉtta pLatti

Jólakvöldin Einsa kalda verða:

23. nóv. / 29.-30. nóv. 5. - 7. des. / 12. - 14. des.

Sinnepssíld / Rauðrófusíld / Appelsínusíld Hreindýra-bollur, kapers, rauðrófur, fetaostur, graslaukur Graflaxinn okkar með kóríander- og fennelhjúp ásamt graflaxdressingu Reyktur lax með piparrótarsósu Hreindýrapaté / Gæsalifrarpaté / Sjávarréttapaté sEnDUm Hindberjadressing / Cumberland / Chantilly út í Bæ Grafin gæsabringa með bláberjavinagrettu Einiberja-, garðablóðberg- og rósapipar grafið naut ásamt pekanhnetuvinagrette Drottningaskinka, karamellaður ananas, græneplasalat, rauðvínssósa Roastbeef, steiktur laukur, remúlaði, bernaisesósa Birkireykt hangikjöt, sykurbrúnaðar kartöflur, jafningur, laufabrauð Smjörsteiktar kalkúnabringur, kalkúnafylling, ljós villibráðarsósa Hunangsgljáður hamborgarhryggur, heimalagað rauðkál, waldorfsalat, karamellaðar kartöflur, rauðvínssósa Dádýra medalía, rauðlaukssulta, sykruð epli, balsamiksoðgljái Brakandi svínapurusteik, hvítkál, fennel og rósakál, sykurbrúnaðar kartöflur og hvítvínssósa Jóla-tiramisú Frönsk súkkulaðikaka og ítalskur gelato vanilluís með birkisýrópi Dönsk eplakaka með kanilkaramellu Bláberja skyrkaka, hafrabotn með súkkulaðifyllingu og bláberjageli

Verð á mann kr. 8.900 | börn undir fermingu 3.500 kr.

minnUm EinniG á

GjaFa-

BrÉFin

oKKar vinsæLU

GErUm tiLBoð í Hópa

Jóla-smörre hefst 6. des og verður í boði föstudaga, laugardaga og sunnudaga milli kl 11:30 og 16:00 a / 23. des. verður skata og saltfiskur í hádeginu. 20.-23. des. verðum við með jóla-smörre og fleirra.

Borðapantanir í s. 481-1415


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 34.tbl by Leturstofan - Issuu