Tígull 33. tbl 06. árg.

Page 1


33. tbl. 06. árg. 2. - 8. október 2024

FYRIR AFA, NOKKRAR SMÁSÖGUR

NÝ BÓK EFTIR SIGURGEIR JÓNSSON

Sigurgeir ásamt sonardóttur sinni Katrínu Hersisdóttur.

Um helgina kom út ný bók eftir Sigurgeir Jónsson, rithöfund og kennara í Gvendarhúsi. Bók sem heitir „Fyrir afa, Nokkrar smásögur.“ Eins og nafnið bendir til er þetta smásagnasafn en heitið á bókinni er fengið út frá því að sonardóttir Sigurgeirs, Katrín Hersisdóttir, sem myndlýsir bókina,hefur undanfarin tvö ár stundað nám í samskiptahönnun við Listaskólann í Kolding í Danmörku. Hún hreinlega heimtaði að fá að myndlýsa bókina og þær myndir urðu síðan lokaverkefni hennar (bachelorverkefni) frá

TÍGULL

skólanum Hún gaf því verkefni nafnið „Fyrir afa,“ og útgefandi bókarinnar, Guðjón Ingi Eiríksson í bókaútgáfunni Hólum, hreifst svo af því nafni að hann lagði til að það yrði heiti bókarinnar. Í allt eru í bókinni níu smásögur frá ýmsum tímaskeiðum, átta þeirra eftir Sigurgeir en ein eftir breska rithöfundinn Jeffrey Archer sem Sigurgeir segir að hafi alltaf verið í sérstöku uppáhaldi hjá sér.

„Eitt árið, sem ég kenndi ensku við Framhaldsskólann hér, lét ég nemendur mína lesa sögu eftir Archer,

„Just Good Friends“, snilldarsögu með óvæntum endi eins og smásögur eiga gjarnan að vera, og þeir höfðu ánægju af þeim lestri. Ég þýddi síðan söguna yfir á íslensku og hafði svo samband við Archer þegar ákveðið var að gefa út bókina og spurði hvort ég mætti setja söguna hans með í þá útgáfu. Það var auðsótt mál og sagan er þarna, „Bara góðir vinir.“

Eins og áður segir eru þetta níu smásögur frá ýmsum tímaskeiðum sú elsta frá árinu 1972 en þær yngstu frá síðasta ári. Sumar þeirra elstu hafa birst áður í blöðum og tímaritum, t.d. birtist elsta sagan „Lakkrís og lausnargjald“ í Lesbók Morgunblaðsins fyrir 50 árum en Sigurgeir segir að kveikjan að henni hafi verið þegar hann sá ungan nemanda sinn í Barnaskólanum horfa á þegar skólafélagar hans voru að kaupa spritt fyrir föður hans í Apótekinu. Þá birtust tvær smásagnanna (hálfgerðar draugasögur) í jólablaði Eyjablaðsins, sem gamall skipsfélagi Sigurgeirs, Sveinn Tómasson, sá um ritstjórn á. Aðrar eru nýrri af nálinni og hafa fæstar birst áður. Þetta er 14. bókin sem kemur út eftir Sigurgeir; flestar hafa þær fjallað um mannlíf, félagslíf, hætti og siði í Vestmannaeyjum, auk tveggja barnabóka. Og hann segir að líkast til sé þetta endapunkturinn á sínum ferli sem rithöfundur. „Ég búinn að vera að eiga við þetta í rúmlega hálfa öld og eigum við bara ekki að segja að nú sé komið nóg,“ sagði Sigurgeir að endingu.

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

Dreifing fer fram á miðvikudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is DREIFING:

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

EYJABLIKKSMÓTIÐ FÓR FRAM UM HELGINA

Eyjablikksmótið var haldið síðastliðna helgi en það eru handboltamót sem ÍBV Íþróttafélag stendur fyrir tvisvar á ári.

Á vorin fyrir 5. flokk kk og kvk yngra ár og á haustin fyrir 5. flokk kk og kvk eldra ár.

Í ár voru tæplega 400 þáttakendur á mótinu og kepptu 5. flokkur eldra ár, strákar og stelpur. Mótið hófst seinni partinn á föstudaginn og lauk um hádegi á sunnudag. Á laugardagskvöldið var kvöldvaka þar sem fararstjórar og þjálfarar kepptu sín á milli í handbolta, þetta var upphitun fyrir landsleikinn, þar sem strákar og stelpur kepptu með Landsliði og Pressuliði. ÍBV átti 4 fulltrúa í þeim leik, Erla Hrönn Unnarsdóttir, Sienna Björt Garner, Elvar Breki Friðbergsson og Sindri Þór Orrason.

Stelpurnar í ÍBV 1 unnu 2. deild og spila því í 1. deild á næsta móti.

Aron Heiðar Guðmundsson þjálfar ÍBV strákana og Gísli Steinar Jónsson ÍBV stelpurnar

GÁFU ENDURBÆTUR AÐ VERÐMÆTI

TVEGGJA MILLJÓNA

er tekin þegar Oddfellow konur afhentu gjöfina formlega. Má

Síðastliðinn fimmtudag mættu Oddfellow konur, færandi hendi á heilsugæslu HSU í Vestmannaeyjum. Í þetta skiptið gáf þær endurbætur á bráðastofu heilsugæslunnar að verðmæti 2 milljóna.

„Keyptur var nýr meðferða bekkur sem kallast splint. Hann er í alla staði þægilegur í meðferð, gott að keyra hann og gott að liggja à honum

Skápur sem er með skáphurðum sem sést í gegnum (plexi gler)sem auðveldar okkur vinnuna og er Þessi skápur með því fyrirkomulagi að hjálpar okkur að halda utan um birgðastöðuna á deildinni. Þá er einnig búið er að setja upp nýtt og betra vinnuborð,“ sagði Iðunn Dísa Jóhannesdóttir, deildarstjóri á HSU í Vestmannaeyjum í samtali við Tígul. „Einnig fengum við bráðavagn sem geymir allt sem við þurfum í bráða aðstæðum og eykur öryggi bæði starfsfólks og sjúklinga.

Við erum mjög þakklát Oddfellow fyrir þeirra frábæra framlag. “ sagði Iðunn Dísa.

Myndin
sjá nýja skápinn á bakvið hópinn.
Bekkurinn góði og bráðavagninn.

ÞRAUTIR

TÝR

DAGATAL

TÆKIFÆRISKORT

VATNSBRÚSI

ÁHERSLUTÚSS ÚTVARP

BÆKLINGUR

SNAGAR KRISTALL MÁLBAND

ÞÆR

PYSJUR ERU EKKI GÆLUDÝR,

ERU EKKI LEIKFÖNG OG ÞÆR ERU EKKI HÉR TIL AÐ SKEMMTA OKKUR

Nú þegar pysjutíminn er að renna sitt skeið þetta árið þá höfum við á Sea Life Trust verið að renna yfir aðeins yfir hvernig það gekk og hvað má betur fara.

Mér finnst mjög sárt að hafa orðið vitni að því hvað hefði mátt forðast mörg slys og óþarfa aðgerðir á pysjunum ef fólk myndi bara meðhöndla þær rétt. Ég ætla að deila með ykkur nokkrum dæmum yfir slys sem hefði mátt forðast og gott er að hafa í huga á næsta ári.

Málningaslys

Um miðjan ágústmánuð fengum við inn pysju sem hafði orðið spreybrúsa að bráð. Sú pysja var mjög máttvana og hafði mikið af hvítum málningarslettum á sér. Þetta var greinilega olíumálning og dýrateymið fór strax í að reyna að þvo málninguna í burtu. Þegar vatn og sápa virkuðu ekki voru ýmis ráð prófuð en það erfiði virkaði því miður ekki. Sú pysja er því ekki orðin vatnsheld og er enn með þó nokkuð af málningu á sér og verður því íbúi hjá okkur í vetur á Sea Life Trust.

Blöðrufætur

Við fengum nokkrar pysjur inn sem þjáðust af svokölluðum Bumble feet eða blöðrufótum. Það gerist fyrir pysjur þegar fólk er með þær heima hjá sér of lengi og það er of mikið álag á fæturnar. Pysjur þurfa óslétt yfirborð til að ganga á og hafa ótakmarkað aðgengi að sjó og því hentar afskaplega illa að hafa fugla inni í húsum.

Þær pysjur þurftu nokkrar vikur til að jafna sig. Þeim

voru gefin lyf til að hjálpa til við batann og fengu krem á fæturnar. Svo fengu þær að vera eins mikið í sjó og þær vildu til að taka álagið af fótunum, því eins og við vitum eru lundar fyrst og fremst sjófuglar.

Við náðum að lokum að sleppa þeim öllum núna í byrjun september.

Leikfangaslys

Við fengum nokkur tilfelli um að pysjur hefðu annaðhvort gleypt eitthvað á heimili fólks, fest gogginn eða fæturnar í garni. Í þessum tilfellum höfðu pysjurnar verið lausar á heimilunum með þessum afleiðingum.

Við viljum góðfúslega minna á að pysjur eiga alls ekki að vera að leika með dót og það á alls ekki að “leika við” fugla yfirhöfuð. Fuglarnir njóta þess ekki og það eykur bara stressmagnið hjá þeim sem getur valdið því að þeir missa vatnsheldnina í fjöðrunum. Þeim á að sleppa við fyrsta tækifæri.

Óvatnsheldnar pysjur

Töluvert var um að við fengum inn pysjur sem voru

búin að missa vatnsheldnina í fjöðrunum og þeim fuglum þurftum við að halda um skeið. Oft má rekja þetta til að fólk noti ekki hanska þegar það er að meðhöndla fuglana og er að halda of mikið á þeim. Við útbjuggum kör og settum sjó og steina í þau sem við settum þær í í smá stund undir eftirliti, svo fóru þær undir hitalampa þar sem þær snyrtu sig og fjaðrirnar á meðan þær þornuðu. Og svo var þetta endurtekið eins og oft og þurfti.

Þess vegna er MJÖG mikilvægt að nota hanska, það er ekki lengur töff að vera hanskalaus.

Oliublautar pysjur

Síðustu tvö ár hefur verið að koma metfjöldi af olíublautum pysjum til okkar. Það ferli tekur margar vikur að vinna með. Það þarf fyrst að minnka allt áreiti hjá pysjunum svo þær fari ekki að stressast upp og éta olíuna. Svo tekur við langt og strangt þvottaferli og þó svo náist að þvo olíuna úr á nokkrum vikum þá á eftir að ná vatnsheldninni upp.

Hver ástæðan er fyrir þessum fjölda vitum við ekki fyrir víst. Hvort það sé að einhverjir einstaklingar eru að sleppa þeim nálægt höfninni eða á Skansinum eða hvort öll ljósin við höfnina hafi þessi áhrif á að pysjurnar fljúgi beint í höfnina vitum við ekki, en við viljum biðja alla að vera vakandi yfir ef þeir sjá einhvern með pysju við þessa staði. Einnig viljum við biðja til bæjaryfirvalda að hafa það í huga að slökkva þau ljós við höfnina sem hægt er fyrir næsta tímabil.

Vindáttin er gríðarlega mikilvæg. Allmargir lundar komu til okkar eftir að hafa verið sleppt úr rangri vindátt og þeir því fuku aftur á land og lentu á klettunum. Þeir voru mjög illa slasaðir. Með brotna gogga, vængbrotnir, fótbrotnir, mjaðmabrotnir og með ljót höfuðmeiðsl. Þessu hefði mátt komast hjá ef það væri bara fylgst betur með veðurátt og vindhraða. Pysjueftirlitið var duglegt að setja inn ábendingar til fólks um hvaða vindátt væri heppilegust til sleppinga og það er gott að fylgjast með þar.

Flesta af þessum fuglum þurfti að svæfa og það hefði svo sannarlega verið hægt að forðast þessi slys.

Það eru nokkrir punktar sem gott er að hafa í huga:

- Krakkar undir 6 ára eiga ekki að sleppa fuglunum, sama hversu sætt það er. Þau hafa ekki kraftinn til að koma þeim nægilega á flug. En ef það er nauðsynlegt að þau sleppi þá á alltaf að gera það úr Klaufinni svo engin hætta sé á að fuglarnir brotlendi í bjarginu.

- Best er að setja fuglana í grasið og leyfa þeim að fljúga sjálfum af stað þegar þeir eru tilbúnir.

- Notið hanska.

- Ekki leika við fuglana eða geyma þá lengi heima.

- Ekki sýna gæludýrunum ykkar fuglana.

- Setjið gras í botninn á kössunum og hafið helst 1 fugl í kassa. Aldrei má hafa fleiri en 4 fugla í rúmgóðum kassa því fuglarnir leita alltaf í hornin.

- Ef mótvindur er mikill farið þá frekar í Klaufina að sleppa eða hinum megin á eyjuna.

Þetta á að sjálfsögðu ekki bara við um pysjur. Ritur, Fýlar og Skrofur þurfa líka okkar hjálp af og til.

Þetta virðist kannski koma einkennilega fyrir sjónir hjá sumum þegar það er verið að reyna að fræða samfélag sem hefur stundað pysjubjörgun í áraraðir um rétta meðhöndlun fugla, en það virðist enn vanta meiri þekkingu á þessum fuglum. Annars værum við ekki að fá svona mikið magn af óþarfa slysatilfellum. Og við getum alltaf breytt og bætt okkur og samfélaginu okkar.

Draumur minn er að koma í fót fræðslu- og björgunarverkefni þar sem allir krakkar bæjarins geta verið með í að læra rétta meðhöndlun á fuglum og geta útskrifast sem Fuglabjörgunaraðilar. Þeir tækju svo við kyndlinum og hjálpuðu til við að fræða enn fleiri.

En ef við höfum öll þetta í huga og hjálpumst að við að minna hvert annað á.

UPPSKRIFT VIKUNNAR

LASAGNE

Athugið að þetta er stór uppskrift, hún passar í tvö meðalstór eldföst mót. En það er sniðugt að búa til lasagna í tvö form og frysta annað þeirra. Frysta það óeldað).

Kjötsósa:

1 kiló nautahakk

4 dósir niðursoðnir tómatar, ca. 400 g (ég nota yfirleitt mismunandi bragðbætta tómata, t.d. með hvítlauk, chili og basiliku)

1 tsk kjötkraftur

1 tsk heitt pizzakrydd t.d

frá Pottagöldum

1 tsk basiliku krydd

1 tsk oregano krydd

1/2 tsk hvítlaukskrydd salt og pipar

lasagna plötur

370 g rifinn ostur

Ostasósa:

400 g rjómaostur

2-3 dl mjólk

1 askja rifinn piparostur (100 g), hægt að nota venjulegan rifinn ost salt og pipar

Aðferð

Ofn hitaður í 200 gráður. Nautahakkið steikt á pönnu og kryddað. Tómötum í dós bætt út í og látið malla á meðan ostasósan er útbúin. Rjómaosturinn látin bráðna í potti við meðalhita. Mjólk, rifnum piparosti og kryddum hrært út í.

Lasagna sett saman: Fyrst er ostasósa sett á botninn á smurðu eldföstu móti. Því næst er lasagna plötum raðað yfir og svo er kjötsósunni dreift yfir lasagnaplöturnar. Endurtekið á meðan hráefni endast. Endað á ostasósunni og að lokum er rifnum osti dreift yfir.

Bakað í ofni við 200 gráður í ca. 25 mínútur. Berið fram með góðu brauði og salati.

Uppskrift fengin frá: eldhussogur.com

Starfsmaður óskast á Víkina leikskóladeild

GRV- Hamarsskóla

Starfsmaður í síþrif/ræstingu, 70% starf.

Starfsmaður í ræstingu sinnir alhliða þrifum í skólanum samkvæmt áætlun sem unnin er í samstarfi leikskólastjóra og viðkomandi starfsmanns. Vinnutími er samkvæmt samkomulagi, æskilegur vinnutími er eftir hádegi og mögulega seinnipart. Starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Megin verkefni:

- Þrif á deildum daglega samkvæmt áætlun og starfslýsingu.

- Aðstoðar við matarvagna í kaffitímum.

- Tilfallandi aðstoð í kaffitímum og eldhúsi.

- Tilfallandi aðstoð á deildum og í fataklefa.

- Sækir starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaðursegir til um og varðar starfsemi leikskólans.

Menntunar og hæfnikröfur:

- Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, ábyrgur og áhugasamur, vera jákvæður og lipur í samskiptum.

- Þarf að geta sýnt frumkvæði í starfi og sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.

- Hafa velferð og þroska barna að leiðarljósi.

- Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Vestmannaeyja (Stavey) eða Drífanda stéttarfélags. Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 15/2020. Umsóknir skulu berast með tölvupósti á skólastjóra: annaros@ grv.is eða aðstoðarleikskólastjóra: gudrun@grv.is

Umsóknarfrestur er til 9. október. Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningar.

Nánari upplýsingar um helstu verkefni og ábyrgð veitir aðstoðarleikskólastjóri Guðrún S. Þorsteinsdóttir gudrun@grv.is

Íbúðir aldraðra

Vestmannaeyjabær auglýsir lausa til umsóknar íbúð eldri borgara í Sólhlíð. Leiguverð fylgir leiguverði annarra íbúða hjá Vestmannaeyjabæ. Umsóknarfrestur er til 18.október nk. Umsóknir eru m.a metnar út frá félagslegum, heilsufarslegum og fjárhagslegum forsendum.

Sótt er um í gegnum íbúagátt á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð á skrifstofu Fjölskyldu og fræðslusviðs að Kirkjuvegi 23 (gamla Íslandsbanka) og skal þá fylgigögnum einnig skilað þangað. Mikilvægt er að skila inn öllum gögnum sem óskað er eftir eða nýjum gögnum hafi aðstæður breyst. Eldri umsóknir óskast staðfestar.

Frekari upplýsingar veitir Margrét Ingólfsdóttir, í síma 488-2000 eða á netfanginu margret@vestmannaeyjar.is. Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar í þjónustuveri Fjölskyldu- og fræðslusviðs að Kirkjuvegi 23.

SETUR FALLEGAN SVIP Á BÆINN

Addi í London ljósmyndari Tíguls rölti um Eyjuna okkar um daginn og tók myndir af litríku húsunum sem varð á vegi hans. Juan Art á fjögur af listaverkunum sem eru af veitingastöðunum Pítsugerðinni og Næs, einnig af Leturstofunni og svo Vosbúð.

eyjadreifing.is / eyjadreifing@eyjadreifing.is / s. 481-1161

ÞRAUTIR

JÆJA BÍLL HUNDUR KÖTTUR

BORÐ

EPLI

SÓL

FISKUR

MJÓLK

VATN LÍF

SJÓR

Viltu minnast látins ættingja eða vinar?

Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.

Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.

Verð: 12.400 kr.

Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýju og vináttu við andlát og útför elsku mömmu okkar, tengdamömmu, ömmu, langömmu og langalangömmu,

GUÐNÝJAR GUNNLAUGSDÓTTUR frá Gjábakka Höfðavegi 37

Kærleikskveðja til ykkar allra

Elías Vigfús Jensson Jensína Kristín Jensdóttir Guðný Jensdóttir

Sigríður Gísladóttir Halldór Bjarnason Guðmundur Gíslason barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn

Fallegur fatnaður á konur í öllum stærðum á sanngjörnu verði. Við tökum upp nýjar vörur vikulega.

Auglýsingasími

Tíguls: 481-1161 tigull@tigull.is

Nýsmíði Gólfhitafræsing

Gólfhitalögn

Kjarnaborun

Pallasmíði Þakvinna Innréttingar Utanhúsklæðningar aglverktakar@gmail.com

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.