Tígull 33.tbl 04. árg.

Page 1

33. tbl. 04. árg. 28. september - 4. október2022

21. september síðastliðinn var alþjóðlegi Alzheimerdagurinn. Við heyrðum því í Söru Rún Markúsdóttur, formanni Alzheimerfélagsins í Vestmannaeyjum og fengum smá fræðslu um starfið.

„Alzheimerfélagið í Vestmannaeyjum er lítið góð gerðafélag sem var stofnað árið 2016. Ég kom í fé lagið árið 2018 og er að taka við sem formaður núna árið 2022,“ sagði Sara Rún í samtali við Tígul. „Ég byrjaði sjálf að mæta með afa mínum sem að standandi í Alzheimerkaffið árið 2018 og vorum við fljót að sjá hversu mikinn stuðning og fræðslu var að fá útúr því,“ sagði Sara Rún.

Hún sagði Alzheimerkaffið hafa verið í pásu síðast liðinn tæp tvö ár en vera að byrja aftur á fullu núna. „Við erum búin að halda eitt kaffi í september og stefnum á tvö í viðbót fyrir áramót ásamt því að halda bingó í desember.

Á hverju kaffi er boðið upp á fræðslu sem tengist málefninu, söng og auðvitað kaffi og meðlæti.“

Þá sagði Sara Rún félagið vera með þrjá tengiliði hér í Eyjum sem alltaf er hægt að leita til en það eru Iðunn Jóhannesdóttir, Sigrún Hjörleifsdóttir og Þórdís Gyða Magnúsdóttir og hafa þær leiðbeint mörgum fjölskyldum í gegnum þetta ferli. „Viðar prestur hef

TÍGULL

DREIFING:

ur einnig verið með aðstandendafundi í kirkjunni þar sem aðstandendur geta komið saman og rætt sín á milli. Það er mikil þörf á stuðning við aðstandend ur þar sem sjúkdómurinn hefur áhrif á fleiri en þann veika.

Við höfum í gegnum árin stutt vel við Hraunbúðir og spítalann og gefið þangað allskonar hjálpartæki og fræðslu fyrir starfsfólk.

Á Hraunbúðum var útbúin sérhæfð eining fyrir einstaklinga með heilabilun og aðra þunga hjúkr unarsjúklinga. Alzheimerfélagið tók þátt í því og að stoðaði við að kaupa ýmis hjálpartæki fyrir fólk með heilabilun.“

Í Vestmannaeyjum er einnig nýtilkomin dagdvöl með fimm sérhæfð dagdvalarrými og er nýr starfandi iðju þjálfi þar, ásamt breytingum á aðstöðunni. „Við sem félag leggjum mikið upp úr stuðning við þann veika og fjölskyldu hans og hvet ég fólk að hafa samband við okkur ef það eru einhverjar spurningar. Einnig langar mig til að hvetja sem flesta að mæta á kaffi hjá okkur, þetta er fyrir alla sem vilja fræðast meira og vera í góðum félagsskap.“

Bendi einnig á facebook síðuna okkar : https://www. facebook.com/alzheimerstudningsfelagveyjar

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki.

Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

ÚTGÁFA:

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega. AFTUR 2 ÁRA PÁSU

ALZHEIMERKAFFIÐ HEFST
EFTIR

VILTU HAFA ÁHRIF?

Opið er fyrir ábendingar, tillögur og styrkumsóknir vegna fjárhagsáætlun argerðar Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2023 undir heitinu “Viltu hafa áhrif 2023?” Markmiðið með þessu er að stuðla að auknu íbúalýðræði í Vest mannaeyjum með því að gefa fólki, fyrirtækjum og félagasamtökum tækifæri á að hafa áhrif á fjárhagsáætlun næsta árs. Fjölmargar góðar ábendingar hafa borist í gegnum tíðina. Má þar m.a. nefna styrki til fjölda sýninga, menningartengd bókaútgáfa, leiktæki á opnum svæðum og göngustíga.

ÁBENDINGAR OG TILLÖGUR

Áhugasamir einstaklingar og aðilar í Vestmannaeyjum sem vilja koma fram tillögum eða ábendingum varðandi fjárhagsáætlun 2023, eru hvattir til að koma þeim til skila í síðasta lagi 5. október 2022 á netfangið matthildur@ vestmannaeyjar.is, eða með hefðbundnum pósti á póstfangið Vestmannaeyjabær við Bárustíg 15, 900 Vestmannaeyjum, b.t. Matthildar Halldórsdóttur.

STYRKIR

Á sama hátt er áhugasömum einstaklingum og aðilum bent á að sækja um styrki eða framlög vegna verkefna fyrir árið 2023, að senda umsóknir til bæjaryfirvalda í síðasta lagi 5. október 2022 á sama netfang eða póstfang.

Í umsókninni þurfa að koma fram upplýsingar um nafn, heimilisfang, síma númer og netfang umsækjenda, lýsing á verkefninu, áætluð upphæð og framkvæmdatími (þar sem við á). Ef sótt er um styrk til fjárfrekra verkefna þarf að koma fram sundurliðuð áætlun um einstaka kostnaðarliði. Skilyrði er að umsókninni fylgi greinargerð sem skýrir verkefnið sem sótt er um styrk til sem og síðasta skattframtal eða ársreikningur. Áskilinn er réttur til að krefjast frekari gagna, þyki þess þörf.

ÞAKKLÁT HVERSU VEL GENGUR

Þóra Hrönn Sigurjónsdóttir, eig andi verslunarinnar Kubuneh var í skýjunum hversu vel gengur þegar við tókum tal af henni í vikunni. „Kubuneh gengur alveg svaka lega vel. Sem betur fer er alltaf að bætast í kúnnahópinn og ég er svo þakklát fyrir að fólk sé að gefa búðinni séns.“ Þóra Hrönn segir marga vera búna að dæma búðina fyrirfram þar sem hún selur not aðar vörur en eiga svo ekki til orð yfir hvað allt er snyrtilegt og fínt þegar inn er komið, búðin sjálf og allt sem er til sölu. „Sumarið var alveg sturlað og gaman að segja frá því að laugardagurinn á Þjóð hátíðinni var söluhæsti dagurinn frá opnun þá seldust 172 hlut ir. Allt er talið sem selst þannig að ég veit að fyrsta árið seldust 12.186 hlutir og það sem af er þessu ári hafa selst 11.024 hlutir. Frá því að Kubuneh opnar hafa því 23.210 hlutir fengið framhaldslíf hjá okkur.“

Þóra segir dagana hjá sér mis munandi allt eftir því hversu mikla aðstoð hún fær frá sjálboðaliðum með búðina. „Það er frábært þegar við Þórunn getum tekið morgnana í Kubuneh því þá er vinnufriður en búðin opnar ekki fyrr en klukkan 13. Ef vaktirnar eftir hádegi eru mann aðar þá sinni ég útgerðarvinnunni eftir hádegi. Ef ég þarf að vera í búðinni eftir hádegi þá sinni ég hinni vinnunni á morgnana. En það sem ég geri alltaf á mánu dags og föstudagsmorgnum er að fara með Þórunni Jóns að losa úr Rauða Kross gámunum. Í leiðinni losa ég mig við það sem hefur komið í Kubuneh en þykir ekki söluvænlegt.

Ég myndi halda að 20% af því sem kemur í Kubuneh fari í sölu. Magn ið sem kemur inn er svo gríðarlegt að það gefur auga leið að það er ekki hægt að selja það allt. Við veljum bara það allra besta. Við fáum rosalega mikið af fatnaði sem hefur aldrei verið notaður og er enn með miðanum og því finnst

mér oft erfitt að segja að við selj um bara notuð föt því það er alls ekki þannig.“

Til að koma í veg fyrir að flíkur sem ekki eru söluvara fari í sölu fara þrjár mismundandi mann eskjur yfir hverja einustu flík. „Það sem kemst ekki í gegnum þessa skoðun fer í Rauða Kross inn en við erum líka í samstarfi við þrjár listakonur í Hvíta Hús inu sem fá hráefni hjá okkur, að allega ull og leður. Við reynum eins og við getum að koma öllu í einhverja endurvinnslu og það er bara frábært ef það getur verið eitthvað hérna innanbæjar,“ sagði Þóra Hrönn og biðlar til fólks að koma bara með heil og hrein föt í Kubuneh. „Það er ágætt að hugsa bara myndi vinkona/vinur minn kaupa þetta. Við seljum ekki staka sokka, skítug föt, hnökraðar peys ur o.s.frv. og ég er ekki að senda neitt af því sem kemur í lúguna til Gambíu en ef að því kemur þá mun ég kalla eftir því.“ Ásamt því að reka verslunina og eitt stykki útgerð rekur Þóra Hrönn einnig Heilsugæslu í Kubuneh. „Heilugæslan gengur vel, búðin gerir okkur kleift að gera þetta vel. Við erum búin að laga húsnæðið og allt í kring heilmikið.

Núna er hjúkrunarfræðingur frá okkur í ljósmóðurnámi. Við borgum námið hennar, uppihald og húsasleigu. Ég er búin að kaupa CRP mæli sem verður al gjör bylting fyrir bæði starfsfólk og sjúklinga. Þessi mælir mælir á einfaldan hátt hvort sjúklingur sé með sýkingu og því hægt að meðhöndla sjúklinginn betur en áður. Með þessu eigum við að geta minnkað sýklalyfjanotkun heilmikið.

Það búa ca.2.000 manns í þorpinu Kubuneh en það eru 9 þorp þar í kring og þar búa um 10-12.000 manns og allt þetta fólk hefur aðgang að heilsugæslunni okk ar,“ sagði Þóra Hrönn. Hún reyn ir einnig að fara reglulega út til Kubuneh ásamt því að fylgjast með úr fjarska. „Við erum að fara út núna 1. nóvember, með okkur fer heilsugæslulæknir, hjúkrunar fræðingur, ljósmóðir og múr ari sem mun fá það verkefni að steypa risa bílaplan og innkeyrslu fyrir sjúkrabílinn. Hann mun kenna strákunum okkar úti að gera hlutina eins og við gerum þá svo þeir endist þ.e. koma til þeirra þekkingu sem þeir geta svo nýtt sér áfram,“ sagði þessi kraftmikla kona að lokum.

Basiru og Þóra Hrönn. Basiru er starfsmaður heilsugæslunnar.

Mánudaginn 3. október næstkomandi mun Einhugur - foreldra og aðstandendafélag einhverfra barna í Vestmanneyjum standa fyrir opnum fræðslufundi á vegum Einhverfusamtakanna á Íslandi. Fundurinn verður haldinn í sal Barnaskólans kl. 19:30

Guðlaug Svala Kristjánsdóttir ráðgjafi og verkefnastjóri hjá Einhverfusamtökunum

Félagið hefur fengið til liðs við sig Guðlaugu Svölu Kristjánsdóttur, ráðgjafa og verkefnastjóra hjá Einhverfusamtökunum. Guðlaug Svala hefur haldið fjöldan allan af fyrirlestrum fyrir bæði fagfólk, foreldra og aðra aðstandendur og þekkir hún einhverfu af eigin raun og sem foreldri.

Meginefni fræðslunnar verður skólaumhverfið og er fræðslan ætluð að auka skilning og þekkingu á litrófi einhverfunnar og þar með stuðla að bættum samskiptum og líðan barna á einhverfurófinu innan skólaumhverfisins.

Við erum afar spennt að fá Guðlaugu Svölu til okkar og vonumst til að sjá sem flesta á þessum fyrsta fræðslufundi vetrarins hjá félaginu.

FRÆÐSLUFUNDUR Á VEGUM EINHVERFUSAMTAKANNA Á ÍSLANDI MÁNUDAGINN 3. OKTÓBER KL. 19.30 Í SAL BARNASKÓLANS

OG FYRSTA ÚTHLUTUN ÚR

MINNINGARSJÓÐI GUNNARS KARLS

Síðastliðinn laugardag var rampur nr. 160 í átakinu Römpum upp Ísland vígður hér í Eyjum í samvinnu við Vestmannaeyjabæ. Rampurinn er við inngang The Brothers Brewery þar sem vígslan fór fram og var vel mætt. Það voru vinirnir Halldór Björn Sæþórsson og Guðjón Ólafsson sem að klipptu á borðann. Tríó Þóris Ólafssonar spilaði nokkur af uppáhaldslögum Gunnars Karls. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri hélt tölu og Helga Jó hanna Harðardóttir fulltrúi fjölskyldu- og tómstundaráðs talaði um mikilvægi aðengi fatlaðra í Eyjum.

Þá var einnig tilkynnt um fyrstu úthlutun úr minningar sjóði sem fjölskylda Gunnar Karls hefur stofnað í minn ingu hans. Arna Sigríður Albertsdóttir hlýtur fyrsta styrk inn úr sjóðnum en Arna er íslensk handhjólreiðakona, fædd og uppalin á Ísafirði. Eftir að hafa æft fjölda íþrótta í æsku byrjaði hún að handhjóla eftir að hafa lamast í skíðaslysi árið 2006. Árið 2015 varð hún fyrsti íslenski íþróttamaðurinn til að keppa á heimsmeistaramóti á vegum Alþjóða Hjólreiðasambandsins og árið 2021 varð hún fyrsti Íslendingurinn til að taka þátt í handahjólreið um á Ólympíuleikum fatlaðra.

Þorleifur Gunnlaugsson formaður stjórnar átaksins Römpum upp Ísland, Haraldur, Íris, Hrefna, Guðjón, Halldór Björn, Eyrún, Kristín og Hjálmdís Hafsteinsdóttir, kona Þorleifs. Systurnar Hrefna og Eyrún. Guðjón og Halldór Björn Alda, Guðjón, Halldór Björn og Kristín.
RAMPUR NR. 160 VÍGÐUR HÉR Í EYJUM

Römpum upp Ísland

Aðgengi á Íslandi er oft mjög tak markandi fyrir hreyfihamlaða. Því er mikilvægt að koma upp römpum eða tryggja aðgengi með öðrum hætti. Ramparnir geta verið jafn misjafnir og þeir eru margir — og þeir eiga svo sannarlega að vera margir.

Oft þarf ekki annað en að leysa að gengi upp eina tröppu eða yfir háan þröskuld með einföldum hætti. Með sameiginlega átaki þjónustuaðila, verktaka og yfirvalda á þetta ekki að vera mikið mál — og með því stuðlum við að bættu umhverfi og betra að gengi á Íslandi.

1000 rampar fyrir 11. mars 2026 Tilgangur verkefnisins er að auka að gengi hreyfihamlaðra að þjónustu, verslun og veitingahúsum á Íslandi. Haraldur Þorleifsson, stjórnandi hjá Twitter og stofnandi hönnunarfyr irtækisins Ueno, er hvatamaður verkefnisins. Stofnfé sjóðsins eru fram lög einstaklinga, fyrirtækja, samtaka og stofnana sem vilja leggja sitt af mörkum til að tryggja aðgengi hreyfi hamlaðra um allt land.

Nú fyrir stuttu komu verktakar hingað til Eyja frá verkefninu og settu upp sjö rampa í samstarfi við Vestmannaeyja bæ. Hér má sjá nokkrar myndir.

Fótaaðgerðastofa Vestmannaeyja og Sjómannafélagið Jötunn,.

Leturstofan Vestmannabraut, fyrir og eftir. Hárstofa Viktors, Vestmannabraut. Litla Skvísubúðin á Skólavegi. Sjampó Vestmannabraut, fyrir og eftir. Volcano 73 Bárustíg, fyrir og eftir. The Brothers Brewery, Bárustíg
RAMPAR Í EYJUM

Búist er við gríðarlegri stemningu næstkomandi laugardag þegar LOKSINS verður haldið Lundaball og hvað þá þegar Brandarar eiga í hlut. Það get ur bara ekki klikkað. Við heyrðum í veislustjórum kvöldsins, þeim Þorbirnir Víglundssyni og Gunnari Friðfinnssyni. Þeir hafa fundað slitlaust síðustu vik ur og komið saman glæsilegri skemmtidagskrá sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

Hvenær héldu Brandarar síðast Lundaball?

Brandarar sáu síðast um ballið árið 2013 og var sagt eftir það ball að það hafi verið það allra flottasta sem haldið hefur verið. Við ætlum að toppa þetta í ár enda allir þyrstir í ball eftir að Lundaballi hafi verið frestað í tvígang út af fjand ans Covidinu. Það ætti því enginn að láta þetta fram hjá sér fara.

Hvað eru margir félagsmenn í Brandi?

Virkir félagasmenn í Brandi telja um 35 manns.

Munið þið hvað eru mörg veiðifélög hér í Vestmannaeyjum ?

Það má segja að það séu átta starfandi veiðifélög í Eyjum. Fyrst ber að nefna Bjargveiðimannafé lagið Brandur en það eru einnig starfandi félög í Elliðaey, Bjarnarey, Suðurey, Hellisey, Álsey, Ysta kletti og svo Heimalandið.

Hvaða ár er Bjargveiðifélagið Brandur stofnað? Bjargveiðifélagið Brandur er stofnað árið 1952. Og var það þá stofnað í kringum félagsskap manna sem stunduðu veiðar í eynni og byggðu þeir fyrsta veiðihúsið sama ár.

Eru konur í félaginu? Það eru um 35 (eigin)konur í félaginu sem eru virkir stuðningsfulltrúar karl ana.

Hvað ætlið þið að bjóða upp á í skemmtun og mat? Skemmtun er að mestu í höndum Brandara sjálfra en við höfum að auki fengið úrval af öðr um skemmtikröftum og tónlistarfólki okkur til aðstoðar til að gera kvöldið ógleymanlegt. Ein ar Björn, ásamt sínu fólki hjá Einsa Kalda munu sjá um matinn sem verður ekki af verri endanum. Matseðillinn ber keim af villibráðakvöldi þar sem bæði fiskur og lundi fá góð skil. Það ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi á matseðlinum og svo verður hin margrómaða sjávarréttasúpa á mið nætti til að fólk hafi næga orku til að dansa af sér rassinn inn í nóttina þar sem hljómsveitin Kókos mun leika fyrir dansi.

Tobbi, Gunnar og Siggi Vídó. Hjálmar, Tobbi, Gunnar, Siggi og Gunni.
BRANDARAR SJÁ UM LUNDABALLIÐ Í ÁR

Hráefni:

1 ½ samlokubrauð langskorið (10 sneiðar)

1½ kg rækjur rækjur til skreytingar 10-15 harðsoðin egg (söxuð smátt)

½ dós af aspas (saxa smátt og þerra vel) 750-1000 g majónes

1 dós sýrður rjómi sítrónusafi eftir smekk þunnar sítrónu- og agúrkusneiðar til skreytinga

Aðferð:

Blandið saman rækjum, aspas, eggjum, 750 g af majónesi, sýrðum rjóma og sítrónusafa. Raðið tveim ur brauðsneiðum hlið við hlið og smyrjið brauðið með blöndunni. Leggið svo næsta lag af brauði ofan á og smyrjið með rækjublöndunni. Allt í allt verður brauðtertan fimm hæðir með fjórum lögum af salati. Smyrjið brauðtertuna á öllum hliðum með þunnu lagi af majónesinu sem eftir er og passið að hylja tertuna alveg, annars þornar brauðið. Þekjið hliðarn ar svo með eggjum, radísum, þunnum sítrónu- og agúrkusneiðum eða því sem hentar. Brauðtertan er svo skreytt með rækjunum sem eftir eru og öðru því sem fólk velur sjálft.

UPPSKRIFT VIKUNNAR Rækjubrauðterta Er kominn tími á að skipta um tímareim? Eða að smyrja bílinn? Bókaðu tíma fyrir bílinn þinn í síma 481 1216 Fundir eru sem hér segir: Sunnudaga kl. 11.00 Mánudaga kl. 20.30 PPG bókarfundur Miðvikudaga kl 20.30 AL-ANON Þriðjudaga kl. 20.30 NÝLIÐAR VELKOMNIR HÁLFTÍMA FYRIR FUNDI HEIMAGATA 24 /skvisubudin Litla Skvísubúðin Fallegur fatnaður á konur í öllum stærðum á sanngjörnu verði. Við tökum upp nýjar vörur vikulega. www.skvisubudin.is /skvisubudin

SUDOKU

Prentum

Viltu

Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.

Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef. Það kostar 10.000 kr.

Sunnudagur kl. 14:00 Laugardagur kl. 15:00 AbbababbAbbababb Sunnudagur kl. 20:00 Smile ÞÚ GETUR FUNDIÐ NÆSTU BÍÓMYNDIR OG SÝNINGARTÍMA Á WWW.EYJABIO.IS
sálmaskrár Hafðu samband við okkur á netfangið leturstofan@leturstofan.is eða í síma 481-1161
minnast látins ættingja eða vinar?

Kyrrðarbænasamtökin á Íslandi bjóða upp á námskeið um Kyrrðarbæn laugardaginn 8. október 2022 kl. 10-15 í Landakirkju í Vestmannaeyjum.

Kyrrðarbæn er íhugunaraðferð úr kristinni hefð sem hefur verið stunduð í einhverri mynd alveg frá frumkristni. Á námskeiðinu verður fjallað um þessa íhugunaraðferð, hún kennd og iðkuð.

Kyrrðarbæn er afar einföld iðkun sem fer fram í þögn og gengur út á að hvíla í nær veru Guðs og samþykkja verk heilags anda innra með okkur. Þótt aðferðin sé einföld hefur hún umbreytandi áhrif á iðkandann með auknum andlegum þroska sem leiðir m.a. til aukinnar sjálfsþekkingar og dýpra sambands við Guð og menn.

Kennarar námskeiðsins eru Einar Benedikt Gröndal og Þóranna M. Sigurbergsdóttir ásamt Erlu Björgu Káradóttur mentori sínum. Þau hafa kennsluréttindi í Kyrrðarbæn og hafa ástundað hana um árabil.

Skráning: https://kyrrdarbaen.skramur.is/input. php?id=6

Verð: 4.000 kr. Innifalið er léttur hádegis matur og námsgögn. Ef spurningar vakna má hringja í Þórönnu í síma 695 2126.

KYRRÐARBÆNANÁMSKEIÐ
Verð: 4.900 kr. Vetraropnun Virka daga //eydisisbud eydisisbud Vesturvegur 5 / 481 1004 Laugardaga og sunnudaga 11:00 16:00 19:30 - 22:00 12:00 16:00 19:30 22:00 Frá 1 október PASSAMYNDIR Í ÖLL SKILRÍKI! Passamyndir fyrir öll íslensk skilríki: Við tökum passamyndir fyrir ökuskírteini, nafnskírteini, debetkort, ýmis réttindi, leyfi, skírteini, umsóknir og félagsmiðla. Auðkennismyndir - ID: Myndir fyrir ýmiskonar auðkenni svo sem erlendar vegabréfsáritanir, Visa, starfsmannamyndir, ýmis skilríki, öryggisog aðgangsskort ásamt fleiru. 6 útprentaðar myndir.
KASTALI DREKI HESTAR SKJÖLDUR SVERÐ TRÉ RIDDARI KONUNGUR TJÖRN BLÓM Menningarverkefni UMSÓKNARFRESTUR RENNUR ÚT ÞRIÐJUDAGINN 4. OKTÓBER, KL. 16:00 STYRKIR@SASS.IS S. 480-8200 WWW SASS.IS Uppbyggingarsjóður er hluti afRÁÐGJÖF UM ALLT SUÐURLAND Ráðgjafar eru á starfsstöðvum um allt Suðurland. Umsækjendur eru hvattir til hafa samband við ráðgjafa á vegum SASS og fá aðstoð við gerð umsókna. Bætt menning, velferð og samstarf svo lífsgæði eflist og mannlíf á Suðurlandi blómstri Öflugt atvinnulíf á Suðurlandi með aukinni nýsköpun, bættri framleiðni og fleiri fyrirtækjum Auglýst er eftir umsóknum í Uppbyggingarsjóð Suðurlands Kynnið ykkur áherslur og úthlutunarreglur sjóðsins á www.sass.is Atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni
Aðalfundur ÞroskahjálpPRÓTEIN BOOZT SUPER TASTE DAIRY OPIÐ Í VESTMANNA E YJUM VIRKA DAGA 11: 0 0 -16: 0 0 Almenn fundar störf Kosið í stjórn Önnur mál Kynning á starfsseminni og hvað er framundan. 26. október kl. 20:30 í Heimey, faxastíg 46 Aðalfundur Gleðigjafanna Almenn fundar störf Kosið í stjórn Önnur mál kynning á starfsseminni og hvað er framundan. 26. október kl. 19:30 í Heimey, faxastíg 46
Bjargveiðimannafélagið Brandur SJÁUMSTÍHÖLLINNIÁLAUGARDAGSKVÖLD! HLJÓMSVEITINKÓKOSHELDURUPPISTUÐINU MIÐAVERÐ:3.000KR. BALLIÐHEFST23:30 TRUFLUÐUFJÖRILOFAÐ! LUNDABALL Höllin Vestmannaeyjum Laugardaginn 1. október kl. 23:30 2022

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.