Skip to main content

Tígull 33.tbl 03 árg.

Page 1

33. tbl. 03. árg. 20 -26 . október 2021


GLÆSILEGT BLEIKT BOÐ HJÁ KRABBAVÖRN Krabbavörn í Vestmannaeyjum hélt Bleikt boð síðastliðinn fimmtudag á Einsa Kalda. Kvöldið var einstaklega vel heppnað og glæsilegt. Matur frá Einsa Kalda í ítölsku þema, happadrætti var í gangi allan viðburðinn og flottir vinningar í boði. En allur ágóði rann til Krabbavarnar. Helga og Arnór sungu nokkur lög fyrir gesti kvöldsins einnig voru það Birgir Nielsen og Kolbrún sem fluttu lagið Esjan eftir Bríet. Planið er að þetta verði árlegur viðburður en uppselt var á kvöldið.

TÍGULL

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


Iðnaðarmenn óskast

Hafnareyri ehf. óska eftir að ráða vélvirkja, stálsmið eða starfsmann með sambærilega iðnmenntun til starfa á þjónustuverkstæði fyrirtækisins. Um er að ræða fjölbreytt störf í öflugum hópi starfsmanna sem vinnur m.a. við eftirlit, þróun, endurbætur og viðhald tækja og búnaðar. Vinnslustöðin hf. óskar eftir að ráða starfsmann í fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins. Um er að ræða störf við vélgæslu og viðhald búnaðar og tækja í verksmiðjunni.

Við leitum að starfsmanni:

Með iðnmenntun, reynslu eða í námi sem nýtist í starfi. Sem getur unnið sjálfstætt og með lausnamiðaða hugsun. Með áhuga á tækni og nýjungum. Sem er jákvæður og tilbúinn að takast á við nýjungar í tækni. Sem er stundvís og með góða samskiptahæfileika. Hafnareyri býður upp á margbreytileg störf og fjölbreytt verkefni þar sem hugvit, þekking og kunnátta starfsmanna gegnir lykilhlutverki. Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um.

Nánari upplýsingar:

Upplýsingar veitir Trausti Hjaltason, framkvæmdastjóri í síma 698 2632 eða á netfangið trausti@vsv.is og Unnar Hólm, verksmiðjustjóri í síma 692 1281 eða á netfangið unnarh@vsv.is. Umsókn skal skilað með tölvupósti á netfangið: trausti@vsv.is eða unnarh@vsv.is

Umsóknarfrestur er til og með 31. október nk.

Vinnslustöðin hf. / Hafnareyri ehf.

Hafnargötu 2

900 Vestmannaeyjar


VESTMANNAEYJINGAR ERU ÁNÆGÐIR MEÐ ÞESSA VIÐBÓT Í FLÓRUNA

Eygló Dís Alfreðsdóttir er eigandi Eydís Ísbúð og rekur Ísey Skyrbar hér í Eyjum ásamt manninum sínum Gísla Val Gíslasyni. Það er ýmis þjónusta sem þau eru að bjóða upp á. Hvernig hefur gengið hjá ykkur síðan þið opnuðuð? Það hefur gengið mjög vel, við erum mjög sátt og þakklát með startið og finnum það að Vestmannaeyjingar eru ánægðir með þessa viðbót í flóruna. Nú eruð þið með QR kóða fyrirkomulag, hvernig virkar það? Já passar, við höfum fengið að koma svokölluðum QR kóðum í nokkur fyrirtæki, en með því getur fólk skannað inn kóðann, skoðað matseðilinn og pantað, borgað og sótt til okkar á Ísey Skyr Bar. Þægilegt og fljótlegt. Geta allir pantað í gegnum það ? Eingöngu starfsmenn þeirra fyrirtækja sem hafa fengið kóðann geta pantað í gegnum hann. En við eigum enn nóg af QR kóðum sem við viljum endilega koma út í fleiri fyrirtæki, kaffistofur eða hvert sem þetta getur gagnast fólki og er þá hægt að koma við og fá kóða eða hafa samband við okkur. Hvenær opnið þið á morgnana ? Við opnum klukkan 9:00 alla virka daga og 11:00 laugardaga og sunnudaga. Langar líka að koma á framfæri að við erum með morgun-

tilboð alla virka daga til 10:00 og laugardaga til 12. Síðan er ný viðbót komin hjá okkur Ísey Skyr Bar að bjóða 2fyrir1 alla sunnudaga, en þá er tilvalið að taka fjölskylduna með í holla og næringaríka máltíð. Eruð þið að bjóða uppá einhverja veisluþjónustu eða fyrirtækjaþjónustu ? Já við höfum verið að þjónusta fyrirtækin í bænum, fyrirtæki hafa verið að panta hjá okkur fyrir t.d. fundi, morgunkaffi eða bara til að gleðja starfsfólkið sitt. Við höfum þá fundið út í sameiningu hvað hentar best hvort sem það er eitthvað frá Ísey Skyr Bar eða Eydís Ísbúð. Fyrirtækjapantanir berist á eyglo@eydisisbud.is Við erum einnig að leigja krapavélar og höfum sett saman ísveislur fyrir allskonar tilefni. Eitthvað að lokum? Já við erum bara ótrúlega þakklát fyrir hvað okkur hefur verið tekið vel. Við erum enn að læra ýmislegt og sem betur fer höfum við fengi aðstoð frá fullt af frábæru fólki sem hefur verið tilbúið að hjálpa okkur og ráðleggja. Eins vorum við ótrúlega heppin með starfsfólkið okkar sem hefur metnað fyrir því sem við erum að gera. Hlökkum til að sjá ykkur!


Móttökuritari óskast á HSU í Vestmannaeyjum Helstu viðfangsefni og ábyrgð

Hæfniskröfur

•

•

•

Móttaka, afgreiðsla og samskipti við skjólstæðinga. Símsvörun, ýmiss konar umsýsla og skráning gagna auk samskipta við aðrar deildir HSU.

•

• •

Stúdentspróf eða sambærileg menntun æskilegt. Starfið krefst hæfni og lipurðar í samskiptum, trúmennsku og nákvæmni í vinnubrögðum. Viðkomandi þarf að hafa góð tök á vinnu við tölvur. Viðkomandi þarf að hafa gott vald á íslensku máli og æskilegt er að viðkomandi geti átt tjáskipti á ensku.

Frekari upplýsingar um starfið • • • • • •

Stúdentspróf eða sambærileg menntun æskilegt. Starfið krefst hæfni og lipurðar í samskiptum, trúmennsku og nákvæmni í vinnubrögðum. Viðkomandi þarf að hafa góð tök á vinnu við tölvur. Viðkomandi þarf að hafa gott vald á íslensku máli og æskilegt er að viðkomandi geti átt tjáskipti á ensku. Náms- og starfsferilskrá fylgi umsókn. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Starfsmannafélag Vestmannaeyjabæjar hafa gert.

Umsókn skal skilað rafrænt á vef HSU - www.hsu.is - undir flipanum laus störf Umsóknarfrestur er til og með 21.10.2021 Nánari upplýsingar veitir: Guðný Bogadóttir, gudny.bogadottir@hsu.is S: 432-2500

Frumherji verður í Eyjum vikuna 25. - 28. október Tímapantarnir í síma 570 9090. Staðsettur við Faxastíg í húsi Björgunarfélagsins.

Frumherji Faxastígur / 570 9231


HLAKKAR TIL AÐ KYNNA FÓLKI FYRIR NÁLUM OG SKÁLUM kenni þá getur t.d. púls eða tunga gefið til kynna að það sé sitthvor orsök af vandanum. Hver og einn fær því alltaf sérsniðna meðferð. Markmiðið með nálarstungum er að tryggja gott orkuflæði í líkamanum og stuðla þannig að bættri andlegri og líkamlegri heilsu. Einnig er hægt að einblína á sértæka vanda, eins og t.d. svefn, bakverk, tennisolboga, mígreni, breytingarskeið, exem og margt, margt fleira. Ég mun líka bjóða uppá sérstaka slökunartíma þar sem eru notaðar nálar, olíur og orkupunktar nuddaðir.

Sigurlaug Bj. Böðvarsdóttir hefur nýlokið námi í kínverskum læknis- og grasafræðum og ætlar að bjóða upp á nálastungur og cupping meðferðir. Tígull fékk að vita nánari upplýsingar um það sem hún er að bjóða uppá. Fjölskylda: Foreldrar mínir eru Baui og Dísa, maðurinn minn er Georg Ögmunds og saman eigum við Lindu, Bryndísi, Benjamín, Boga, Úlf Baua og Öglu Hrönn Aldur: Eðal árgangur 80… Menntun: Ég á 20 ára sjúkraliða afmæli í ár og er núna líka með próf í kínverskum læknis- og grasafræðum. Hvað er námið langt sem þú varst að klára? Ég var í tæp 3 ár á skólabekk. Þetta var bæði fræðilegt nám um kínverska heimspeki og hvernig hún tengist líkamlegri og andlegri heilsu okkar. Það var t.d. farið yfir fræðin um yin og yang, frumöflin 5 sem við fæðumst í (eldur, jörð, málmur, vatn og viður), líffærin sem tilheyra þessum frumöflum, lífsorkuna Qi, orkuflæði

líkamans, samanburð á vestrænni og austrænni hugsun og hvernig allt þetta tengist svo í manninum sem ein heild! Andinn, líffærin, líkaminn, tilfinningar og svona mætti lengi telja. Síðan lærðum við um orkupunktana sem eru vel á fjórða hundrað, hvar hver og einn er staðsettur á líkamanum og hver virkni hvers punktar er. Af hverju fórstu í þetta nám? Hvað varð til þess? Ég var lengi búin að vera að hugsa um að bæta við mig einhverju námi. Georg hafði farið á námskeið í nálastungum og mér fannst það spennandi. Þegar ég sá svo auglýsingu um námið ákvað ég að stökkva til og hef ekki séð eftir því. Hvernig virka nálastungur? Í stuttu máli má segja að nálastungur séu eitt elsta form lækninga í heiminum. Örþunnum, einnota, sótthreinsuðum nálum er stungið í sérvalda orkupunkta á líkamanum eftir því hver einkennin eru. Jafnvel þó tveir einstaklingar komi með sömu ein-

Hvernig virkar Cupping meðferð og bara hvað er það og fyrir hverja er hún best? Cupping er eins og nálastungur gömul aðferð sem hentar flest öllum í hvaða líkamlega formi sem er. Cupping eru sogskálar sem eru settar á húðina, við það myndast undirþrýstingur sem getur t.d. dregið úr verkjum, aukið blóðflæði, dregið úr bólgum, losað um vöðvaspennu og losað um bandvef svo eitthvað sé nefnt. Hvar verður þú til húsa? Ég verð aðallega á Heilsueyjunni við hliðina á Hótel Vestmanneyjum. En ef einhver á erfitt með aðgengið þá get ég mætt hvert sem er. Hvernig er best að panta tíma? Bæði hægt að hringja í mig í síma 8696042 og senda skilaboð á mig á facebook, ég er líka með síðu þar sem heitir nálastungur, cupping og jurtir í Vestmannaeyjum. Eitthvað að lokum? Ég hlakka ótrúlega mikið til að kynna fólk fyrir nálum og skálum. Ég lenti sjálf í því að veikjast fyrir nokkrum árum og nálastungur hafa hjálpað mér mjög mikið svo ég vona að ég fái tækifæri til að hjálpa sem flestum að ná bættri líðan.


TASTE SUPER DAIRY

KARAMELLU

KETÓ FRAPPÓ

VERTU MEÐ OKKUR @leturstofan

NÝR KETÓ BOOZT

SUPER TASTY SUPER HEALTHY SUPER DAIRY

/leturstofan

HÖNNUN & UMBROT Logo Umbúðir Fréttabréf Nafnspjöld Boðskort Bæklinga Límmiðar

& allt sem þér dettur í hug. Góð hönnun skilar þér betri árangri og ímyndin verður betri. leturstofan@leturstofan.is

VÖRURNAR FÁST Í

Bárustíg 6 / 481 1826


ÞRAUTIR

GÍTAR FLAUTA FIDLA BASSI TROMMUR TROMPET BANJÓ HARPA SAXAFÓNN MUNNHARPA


UPPSKRIFT VIKUNNAR Indverskur Kjúklingapottréttur Hráefni: 900 g kjúklingabringur olía til steikingar 1 tsk turmeric krydd 1 tsk salt 3 stórir laukar skornir smátt. 4 tsk soya sósa. 1 tsk chilli 2 tsk tómatpúrra 1 tsk garam masala. 300 ml vatn 6 grænar paprikur 1 tsk hvítlauksduft 2 tsk tandoori masala Aðferð: Skerið bringurnar í bita. Hitið olíuna og steikið bitana gullin brúna setjið þá í skál. Hellið olíunni og setjið nýja olíu Brúnið laukinn á pönnu. Setjið papriku og allt kryddið Soya og tomatpúrru Hrærið vel og eldið í 1-2 mín. Setjið kjúklingana bitana saman við og hrærið vel saman. Setjið vatnið, látið suðuna koma upp lokið á pottinn og sjóðið í u.þ.b.15 mín. Gott að bera fram með hrísgrjónum og naan brauði !


Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa

Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma,

HALLDÓRA KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR Frá Bólstaðarhlíð í Vestmannaeyjum

HARÐAR RUNÓLFSSONAR Hraunbúðum í Vestmannaeyjum

Sérstakar þakkir fær yndislegt starfsfólk hjúkrunar- og dvalarheimilisins Hraunbúða fyrir hlýhug og góða umönnun. Fjölskylda og vinir

lést í faðmi fjölskyldunnar á Hraunbúðum miðvikudaginn 13. okóber. Jarðarförin fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum, föstudaginn 29. október klukkan 13:00. Athöfninni verður streymt á vef Landakirkju, landakirkja.is Þeir sem vilja minnast hennar er bent á Hollvinasamtök Hraunbúða. Fjölskyldan þakkar starfsfólki Hraunbúða fyrir einstaka umönnun og væntumþykju. Halldór Ingi Guðmundsson Guðmundur Guðmundsson Ólafur Guðmundsson Eygló Guðmundsdóttir Bjarni Ólafur Guðmundsson Þröstur Guðmundsson Erna Björnsdótir

Anna Þóra Einarsdóttir Sigríður Stefánsdóttir Valgerður Karlsdóttir Þór Kristinsson Guðrún Marý Ólafsdóttir

barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn


KONUKVÖLD 5. NÓVEMBER 19:00 - 21:00

En ekki halda að við munum gleyma ykkur körlunum! Það verður karlakvöld auglýst síðar. Skvísurnar í Fakó verða með kynningu á Nicholas Vahè matvöru og Meraki vörum. Kynning á skarti - Óskabönd. Happadrætti með flottum vinningum! - mjög skemmtilegir og kannski þekktir starfsmenn að afgreiða ! Skemmtileg tilboð og margt fleira. Takið daginn frá ! Heimadecor // Hilmisgötu // heimadecor.is // 866 6276


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 33.tbl 03 árg. by Leturstofan - Issuu