33. tbl. 02. รกrg. 30. september - 5. oktรณber 2020
ELSKA AÐ VAKNA Á ÞESSARI PARADÍSAREYJU
Tígull forvitnaðist um Eyjamanninn Jósef Róbertsson, aðstoðarverslunarstjóra Krónunnar í Eyjum. Hann er fæddur og uppalinn í Eyjum, flutti en kom aftur 2018. Nafn: Jósef Róbertsson (Jobbi). Aldur og fjölskylda: 42 ára á 3 börn eina 20 ára stúlku, 16 ára stúlku og 12 ára dreng. Starf: Aðstoðarverslunarstjóri í Krónunni Vestmannaeyjum. Fæddur og uppalinn Eyjamaður en flutti frá Eyjum 2003. Boðið starf í Krónunni í Eyjum sumarið 2018. Aðspurður um starfið og vinnustaðinn sagði Jobbi: „Venjulegur dagur hefst á bakstri
TÍGULL
fyrir kaffikallana sem koma um hálftíu. Síðan er það grænmetið, að fylla á og svo bara öll tilfallandi verk. Bændamarkaðurinn er einu sinni á ári, þrjár til fjórar helgar og kemur uppskeran til okkar daginn eftir upptöku sem tryggir ferskleika vörunnar. Það er frábær kjarni af gríðarlega reynslumiklu fólki að vinna hérna í Krónunni í Eyjum og virkilega góður andi ásamt skólafólki. Það eru eins og jól að fá nýjar vörur eins og vínberin sem við fengum um daginn. Ég bara varð að smella því á feisið til að auglýsa svona frábærar nýjungar.“
Um sjálfan sig sagði Jobbi: „Ég er svo gríðarlega félagslyndur. Elska að eiga samskipti við fólk enda búinn að vera í verslunarstörfum í um 16 ár og er svo ánægður að fá að gera það „heima“. Ég elska að fá að vakna á morgnana á þessari paradísareyju og fá að vinna við það sem ég elska. Áhugamálin er knattspyrna og ég er með héraðsdómararéttindi frá KSÍ. Er í heimaleikjaráði ÍBV í handbolta. Er að lýsa fyrir ÍBV tv í knattspyrnu. Er þjálfari hjá Ægi Íþróttafélagi fatlaðra. Er í vararáði VR hérna í Eyjum og eeeelska að elda mat,“ sagði Jobbi.
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir. Forsíðumynd: Helgi Rasmussen Tórzhamar.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
ÞÚ FÆRÐ VERKFÆRIN HJÁ OKKUR! Til að gera vinnuna við bygginguna auðveldari er nauðsynlegt að eiga góð verkfæri. Þar komum við sterkir inn með rafmagns- og batterýsverkfæri frá
/midstodin Strandvegur 30 / 481 1475 www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is
LÍTIÐ UM AÐ VERA EN FULLT Í BOÐI ÞRÁTT FYRIR KÓFIÐ
Menningar- og myndlistafélag Vestmannaeyja. Frá vinstri: Sigrún Þorsteins, Begga, Jóhanna Lilja, Viðar, Rikki og Konný.
Ég hef stundum hlaupið undir bagga með stelpunum á Tígli, Lind og Kötu Laufeyju og í þessari viku lofaði ég þeim grein og taldi mig hafa nógan tíma. Svo kom að helginni og engin hugmynd hafði poppað upp en ég vildi standa við mitt. Datt þá í hug að kanna hvað hægt er að gera í Vestmannaeyjum í kófinu mikla sem setur okkur skorður. Það reyndist meira í boði en mig grunaði og verður farið yfir það helsta. Ég hef stundum sagt að á einni helgi í Vestmannaeyjum er stundum meira að gerast en á heilu ári á sambærilegum stöðum á landinu. Síðasta helgi var ein af þessum venjulegu, lítið um að vera en þegar betur var að gáð var fullt í boði. Og hvílík veisla sem handboltafólkið okkar bauð upp á á laugardaginn. Heimaleikir karla og kvenna í Olísdeildinni gegn Val sem fór heim með skottið á milli lappanna. Spennan í hámarki hjá stelpunum sem voru marki undir í hálfleik, 10:11 en unnu með einu marki 23:22. Áhorfendur fengu mikið fyrir peninginn og þjálfarinn, Siggi Braga
sáttur með sínar konur í spjalli við mbl.is: „Ég er í skýjunum, stoltur af stelpunum og allt þetta. Öll klisjuorðin sem ég get sagt og þetta er yndislegt,“ sagði Siggi. Að hafa málsstað ÍBV strákarnir unnu Val með fjórum mörkum, 28:24. Í hálfleik var staðan 18:10 ÍBV í vil. Kári Kristján Kristjánsson, fyrirliði Eyjamanna kann að orða tilfinningar sínar og sagði við mbl.is: „Kúltúrinn í bandalaginu er orðinn ofboðslega sterkur,“ sagði Kári og nefndi nokkra leikmenn ofan af landi sem hefðu tekið út þroska með ÍBV. „Þetta eru peyjar sem komust inn í kúltúrinn og urðu betri leikmenn. Þetta skipti þá máli og eyjan var fljót að grípa þá. Það skiptir máli þegar þú ert að berjast fyrir málstað.“ Og veislan hélt áfram á laugardaginn. Karlalið ÍBV í fótbolta gerði góða ferð í Laugardalinn og vann 0:3 sigur á Þrótturum. Þar með eygja þeir von um að komast upp í efstu deild. Um þetta allt saman sagði Palli Magg á Facebokk: „Dramb er falli næst, á hvergi betur við í mannlífinu en í
íþróttum og pólitík. Því segi ég með mikilli auðmýkt: takk fyrir þennan laugardag - ég veit að þeir geta ekki allir orðið svona.“ Um kvöldið var svo farið með frú Þorsteinu til Einsa kalda og hans fólks þar sem m.a. var boðið upp á tapasrétti. Frábær matur, yndislegt starfsfólk og góð stemming gerði kvöldið eftirminnilegt. Sjálfur er Einar Björn efni í heila grein eða meira. Þá er það sunnudagurinn. Landakirkja og Hvítasunnusöfnuðurinn eru með öflugt starf, ekki síst um helgar. Sunnudagaskóla og barnastarf og messu og samkomu á sunnudögum. Sjálfur fer ég stundum í messu í Landakirkju og gott ef manni líður ekki aðeins betur á sálinni eftir að hafa hlutstað á þá Guðmund Örn og Viðar. Eitthvað sem hægt er að mæla með og nóg er plássið þrátt fyrir kófið. Á sunnudaginn sleppti ég messunni en mætti í Eldheima þar sem Hulda Hákon, myndlistarkona hefur verið með sýningu á verkum sínum síðan
í sumar. Komið var að lokum og bauð listakonan upp á leiðsögn um sýninguna sem hún kallar; Það sem konan gerði, bátsmaðurinn sagði og hundurinn sá. Hulda er ein af okkar öflugugustu listamönnum og var leiðsögnin á við góða messu. Aftur að fótboltanum, stelpurnar okkar mættu Breiðabliki í Kópavogi og höfðu ekki erindi sem erfiði en koma dagar og koma ráð. KFS bætti þetta upp með því að vinna Hamar í fyrri leik liðanna í undanúrslitum 4. deildar karla á Hásteinsvelli. Þar er gamli markakóngurinn, Gunnar Heiðar Þorvaldsson við stjórnvölinn og á möguleika á að koma sínum mönnum upp í þriðju deild. Um þrjú leytið var það afmæli hjá tengdamömmu, Þórunni Pálsdóttur, þeirri merku konu sem varð 92 ára á sunnudaginn, 27. september. Það var mikil veisla en allt innan kófmarka.
Tóta sá á eftir eiginmanninum, Grétari Þorgilssyni í vor. Mikil viðbrigði eftir 72 ár en lífið heldur áfram og hún heldur reisn sinni. Eldar sinn mat, þrífur og þvær þvotta og hugar að frímerkjasafninu sem er með þeim merkari. Loks var kíkt á opið hús hjá Myndlistarfélagi Vestmannaeyja sem er með aðstöðu í Hvíta húsinu við Strandveg. Þar hafa 30 félagar aðstöðu til að stunda list sína. Fjölbreytnin er ótrúleg og styrkur fyrir bæjarfélagið að geta skapað þessu fólki vettvang og samfélag til að sinna listinni. Hin árlega sýning Myndlistarfélagsins í Einarsstofu sem er opin á opnunartíma safnsins til 4. nóvember nk. Loks má minna á að söfn bæjarins eru opin um helgar. Já, ekkert að gerast í Eyjum þessa helgina en samt fleiri viðburðir en undirritaður komst yfir að kíkja á. Stundum er þetta spurning um að standa upp úr sófanum, gleyma kófinu í smá tíma og muna að lífið gengur sinn gang, svona að mestu. Ó.G
Tóta, Sandra vinkona og Steina systir.
Hulda og Helga Jónsdóttir sem sleppti ekki þessu dýrmæta tækifæri.
“Nei það verður ekkert um pysjur í ár, ég og Mari höfum ekkert fundið í holuskoðununum”
Mynd: Guðný Emilíana Tórshamar - texti: Ágúst Halldórsson
Er kominn tími á hreinsun á sænginni & koddanum?
15% afsláttur A F H R E IN S U N O G S Ó T T H R E IN S U N Á S Æ N G U M , K O D D U M O G Y F IR D Ý N U M Ú T S E P T E M B E R !
Á AÐ SKORA Á FÉLAGANA?
KOMDU OG KÍKTU VIÐ! MÁN - ÞRI - MIÐ OPIÐ FRÁ 17:00 - 23:00 FIM - FÖS - LAU - SUN OPIÐ FRÁ 16:00 - 23:00
S ÍM I: 4 8 1 1 1 1 9 O p ið t il 1 6 :0 0 v ir k a d a g a
HÆGELDAÐ LAMBALÆRI Í SMJÖRI MEÐ HVÍTLAUK - Uppskrift vikunnar -
Hægeldað lambalæri í smjöri með hvítlauk, kryddjurtum og kryddjurtabéarnaise sósu hráefni: 1 lambalæri, helst án lykilbeins 500 g smjör 6 tímíangreinar 6 rósmaríngreinar 5 hvítlauksgeirar, gróft saxaðir 1 ½ tsk nýmalaður pipar 1 stór poki með rennilás (zip lock) 2 tsk salt Aðferð: Setjið allt nema salt í pokann og lokið vel fyrir. Leggið pokann í steikingarpott og hellið volgu vatni yfir þannig að fljóti yfir lærið. Setjið lokið á og bakið í 67°C heitum ofni í 18 klst. Sigtið þá vökvann úr pokanum í pott. Hitið ofninn í 190°C. Setjið lærið í ofnskúffu og saltið. Bakið lærið í 10-15 mín. eða þar til
það er fallega brúnað. Berið fram með kryddjurtabéarnaisesósunni og t.d. bökuðu grænmeti og kartöflum. Kryddjurta béarnaisesósa: hráefni: 5 eggjarauður smjörið úr pokanum 1-2 msk. béarnaise-essense salt nýmalaður pipar Aðferð: Hitið smjörið í 60°C. Setjið eggjarauður í stálskál og þeytið yfir volgu vatnsbaði í 4-6 mín. eða þar til rauðurnar eru orðnar ljósar og loftmiklar. Hellið þá smjörinu í mjórri bunu í skálina og þeytið vel í á meðan. Bragðbætið með Béarnaiseessense, salti og pipar. Ofnsteiktir kartöflubátar Hráefni:
6-800 g kartöflur, mjöllitlar, t.d. Gullauga - helst frekar stórar 2 msk ólífuolía 0.5 tsk nýmalaður pipar 0.5 tsk salt, eða eftir smekk 0.25 tsk oregano Aðferð: Ofninn hitaður í 225 gráður. Kartöflurnar þvegnar og þerraðar vel og síðan skornar í fjórðunga (eftir endilöngu ef þær eru aflangar) og hver fjórðungur aftur í sundur í miðju, nema kartöflurnar séu þeim mun minni. Olían sett í skál, kryddinu hrært saman við, og síðan eru kartöflubátarnir settir út í og velt vel upp úr blöndunni. Bökunarpappír breiddur í ofnskúffu eða á bökunarplötu og kartöflubátunum raðað á hana þannig að hýðið snúi niður. Ef einhver olía verður eftir í skálinni er henni dreypt yfir. Sett í ofninn og bakað í 20-30 mínútur, eða þar til kartöflurnar hafa tekið góðan lit og eru meyrar í gegn.
HÖNNUN UMBROT Á AUGLÝSINGAEFNI LJÓSMYNDUN IÐNAÐARLJÓSMYNDUN VÖRUMYNDATAKA MYNDVINNSLA GREINASKRIF AUGLÝSINGASALA PRENTUN FJÖLFÖLDUN SKÖNNUN & RÁÐGJÖF
LETURSTOFAN | STRANDVEGUR 47 | LETURSTOFAN @ LETURSTOFAN.IS
WWW.1000ANDLIT.IS Nú gefst þér kostur á að kaupa myndina þína eða þinna í fullum gæðum á stafrænu formi án lógó okkar til að prenta sjálft, einnig bjóðum við uppá að prenta út fyrir þig gegn vægu gjaldi. Kíktu á heimasíðu verkefnisins og skoðaðu myndirnar af þér og þínum nánustu
SUDOKU
ORÐAÞRAUT
EPLI AGÚRKA
BANANI ANANAS MELÓNA PAPRIKA LAUKUR ASPAS
BLÁBER TÓMATAR
VILTU HAFA ÁHRIF? Opið er fyrir ábendingar, tillögur og styrkumsóknir vegna fjárhagsáætlunargerðar Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2021 undir heitinu “Viltu hafa áhrif 2021?” Markmiðið með þessu er að stuðla að auknu íbúalýðræði í Vestmannaeyjum með því að gefa fólki, fyrirtækjum og félagasamtökum tækifæri á að hafa áhrif á fjárhagsáætlun næsta árs. Fjölmargar góðar ábendingar hafa borist í gegnum tíðina. Má þar m.a. nefna styrki til fjölda sýninga, menningartengd bókaútgáfa, leiktæki á opnum svæðum og göngustíga.
Ábendingar og tillögur Áhugasamir einstaklingar og aðilar í Vestmannaeyjum sem vilja koma fram tillögum eða ábendingum varðandi fjárhagsáætlun 2021, eru hvattir til að koma þeim til skila í síðasta lagi 12. október 2020 á netfangið matthildur@ vestmannaeyjar.is eða með hefðbundnum pósti á póstfangið Vestmannaeyjabær við Bárustíg 15, 900 Vestmannaeyjum, b.t. Matthildar Halldórsdóttur. Styrkir Á sama hátt er áhugasömum einstaklingum og aðilum bent á að sækja um styrki eða framlög vegna verkefna fyrir árið 2021, að senda umsóknir til bæjaryfirvalda í síðasta lagi
/crispus
12. október 2020 á sama netfang eða póstfang. Í umsókninni þurfa að koma fram upplýsingar um nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang umsækjenda, lýsing á verkefninu, áætluð upphæð og framkvæmdatími (þar sem við á). Ef sótt er um styrk til fjárfrekra verkefna þarf að koma fram sundurliðuð áætlun um einstaka kostnaðarliði. Skilyrði er að umsókninni fylgi greinargerð sem skýrir verkefnið sem sótt er um styrk til sem og síðasta skattframtal eða ársreikningur. Áskilinn er réttur til að krefjast frekari gagna, þyki þess þörf.
Tannlæknar
6. - 9. október - Hjalti Þórðarson Við munum halda áfram að hafa opið en með breyttu sniði. Stofan verður opin eftir tímapöntunum en síminn verður alltaf opin fyrir pantanir Sími 772-6766 Hrönn: 694-2655 /Svanhvít : 772-3332 Hlökkum til að sjá ykkur!
Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40
Tímapantanir í síma 481-2772
„Hjá Sjóvá fengum við þær tryggingar sem hentuðu okkar fyrirtæki.“ — Loðnuvinnslan —
Tryggingar sem henta þínu fyrirtæki Nánar á sjova.is