Tígull 32. tbl 06. árg.

Page 1


32. tbl. 05. árg. 25. september - 1. október 2024

UPPSKRIFT VIKUNNAR

KJÚKLINGARÉTTUR FYRIR FJÓRA

Hráefni:

900 g kjúklingabringur

200 g beikon

2 bananar

200 ml Felix chilísósa

500 ml rjómi

1.5 dl salthnetur

salt pipar

Aðferð:

Blandið chilísósu og rjóma saman í skál og blandið vel saman. Steikið beikon þar til stökkt og skerið í bita.

Skerið kjúklinginn í bita og kryddið með salti og pipar. Hitið olíu á pönnu og steikið kjúklinginn á pönnunni.

TÍGULL

DREIFING:

Setjið kjúklinginn í ofnfast mót og beikonbitana yfir. Skerið banana í sneiðar og setjið yfir. Hellið chilí rjómasósunni yfir allt og stráið salthnetum yfir allt.

Setjið í 200°c heitan ofn í 15 mínútur. Í þennan rétt er hægt er að kaupa tilbúinn kjúklinginn og rífa niður til að flýta fyrir.

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

Dreifing fer fram á miðvikudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

BÍLINN ÞINN!

FRÁBÆRAR VÖRUR FYRIR

LOKAHÓF KNATTSPYRNUNNAR

Lokahóf knattspyrnunnar fór fram síðastliðinn laugardag. Þar var mikið um dýrðir og einstaklega góð stemmning. Bjarni Ólafur Guðmundsson betur þekktur sem Daddi Diskó fór með veislustjórn, matur kvöldsins var í höndum Einsa Kalda. Elías Árni sjúkraþjálfari sýndi frábæra takta á gítarnum og tók lagið ásamt meistaraflokki karla. Það má því þá með sanni segja að lokahóf knattspyrnudeildar hafi verið einstaklega skemmtilegt og vel heppnað.

Þær Kristín Erna Sigurlásdóttir, Júlíana Sveinsdóttir og Sigríður Lára Garðarsdóttir hafa lagt skónna á hilluna.

Eftirfarandi leikmenn hlutu viðurkenningar fyrir tímbilið:

MEISTARAFLOKKUR KVENNA

Besti leikmaðurinn: Natalie Viggiano

ÍBV-ari:

Selma Björt Sigursveinsdóttir

Markahæsti leikmaðurinn: Olga Sevcova

Efnilegasti leikmaðurinn: Helena Hekla Hlynsdóttir

MEISTARAFLOKKUR KARLA

Besti leikmaðurinn: Vicente Valor

ÍBV-ari: Tómas Bent Magnússon

Markahæsti leikmaðurinn: Oliver Heiðarsson

Efnilegasti leikmaðurinn: Viggó Valgeirsson

2. FLOKKUR KVENNA

Besti leikmaðurinn: Embla Harðardóttir

ÍBV-ari: Bertha Sigursteinsdóttir

Oliver, Selma Björt, Viggó, Helena Hekla, Embla, Tómas, Bertha og Vincente.

Skannaðu QR kóðann til að sjá fleiri myndir frá lokahófi ÍBV

SKJÖLDUR KARLARÁÐSTEFNA

Þann 19. október verður haldin í fyrsta sinn karlaráðstefna í Vestmannaeyjum sem ber yfirskriftina Skjöldur. Kvennaráðstefnan MEY hefur nú fest sig í sessi og er komið að því að gera það sama fyrir drengina okkar.

Markmiðið er að eiga góðan dag í gleði og frábærum félagsskap.

Skjöldur er tilvalinn viðburður fyrir vinnustaði – vini – feðga– bræður – frændur eða bara alla karlmenn sem vilja gera sér glaðan dag og næra líkama og sál.

Ráðstefnan verður haldin í Sagnheimum 19. október frá kl 13:00 – 17:00

Boðið verður upp á léttar veitingar í mat og drykk á meðan á ráðstefnu stendur. Á milli kl 17­19 verður smakkupplifun á Brothers brewery og happy hour. Dagurinn endar á burger og bjór á Einsa Kalda kl 19:00 sem er einnig innifalinn í verði.

Allir fá fallega gjöf

Verð 24.000 kr. og er hægt að sækja um endurgreiðslu hjá stéttarfélögum

Vertu með okkur í liði!

Hjúkrunarfræðingur

Óskum eftir að ráða öflugan hjúkrunarfræðing til starfa á sjúkradeild HSU í Vestmannaeyjum

Um er að ræða framtíðarstarf á framsæknum vinnustað

Starfshlutfall og upphafsdagur starfs eftir samkomulagi

Nánari upplýsingar má finna á hsu.is undir laus störf

LESTRAROFURHETJURNAR

LÁSU 432 BÆKUR Í SUMAR

Síðast liðinn laugardag, 21. september sl. var haldin sameiginleg uppskeruhátíð Sumarlesturs Bókasafnsins og GRV fyrir sumarið 2024.

Bergrún Íris Sævarsdóttir rithöfundur mætti á svæðið og ræddi um hvernig bók verður til, frá fyrstu hugmynd til prentunar.

Það var greinilegt að meðal viðstaddra voru ýmsir með rithöfund í maganum því í lok spjallsins hafði Bergrún Íris orð á því hversu ánægð hún væri með gott hljóð og athygli sem hún hefði fengið. Að loknu spjalli hennar var margt í boði á bókasafninu sem var skreytt í þema Sumarlestursins sem er Lestrarofurhetjur. Í Einarsstofu var boðið upp á sokkakast sem margir nýttu sér. Þá var einnig hægt að föndra, perla og lita ofurhetjur og mátti víða um safnið sjá unga sem eldri skemmta sér saman. Þá var hægt að fara í myndatöku þar sem unnt var að „dressa sig upp“ í ofurhetjubúning. Að lokum var boðið upp á pylsur sem runnu ljúflega niður.

Samtals tóku 105 börn þátt í sumarlestrinum að þessu sinni með því að skila inn lestrarmiðum fyrir samtals 432 bækur. Lestrarmiðarnir voru hengdir upp á barnadeild safnsins. Um er að ræða töluverða aukningu á þátttöku í sumarlestrinum þar sem 77 börn tóku þátt í fyrra og einnig eru töluvert fleiri bækur lesnar þetta sumar en hið síðasta.

Það hefur ekki verið venja á uppskeruhátíðinni að verðlauna sérstaklega þau sem lesa mikið, markmiðið hefur verið að hvetja sem flesta til að taka þátt í ævintýrinu að kynnast bókinni. En það var ekki hægt annað en að verðlauna 7 ára dreng sem las hvorki meira né minna en 49 bækur, bæði á íslensku og pólsku og hann heitir Marcel Ignaczar.

„Starfsmenn Bókasafnsins geta ekki annað en verið ánægð og þakklát fyrir afrakstur sumarsins. Mæting á laugardaginn var góð og mæting barna í Vestmannaeyjum á safnið og þátttaka eykst ár frá ári,“ sagði Kári Bjarnason, forstöðumaður í samtali við Tígul og bætti við. „Um leið og minnt er á að nauðsynlegt er að vera dugleg með að halda áfram að lesa vilja starfsmenn nefna að þau sem ekki áttu tök á því að mæta en voru skráð í sumarlesturinn geta náð sér í glaðning á Bókasafnið meðan birgðir endast.“

UMHVERFISVIÐURKENNINGAR

Vestmannaeyjabær afhenti síðastliðinn mánudag hinar árlegu Umhverfisviðurkenningar árið 2024. Tígull óskar öllum þeim sem hlutu viðurkenningu innilega til hamingju.

Fegursti garðurinn:

Hólagata 21

Kolbrún Matthíasdóttir og Hörður Pálsson

Snyrtilegasta eignin: Gerðisbraut 4

Ágúst Halldórsson og Hólmfríður Arnar (Lóa)

Endurbætur til fyrirmyndar:

Heimagata 26

Barbora og maður

Snyrtilegasta fyrirtækið: Næs

Gísli Matthías og Hafdís Ástþórsdóttir

Framtak á sviði umhverfismála: Páll Scheving

Endurbætur til fyrirmyndar

Heimagata 26 ­ Barbora og Gísli Matthías Sigmarsson

Snyrtilegasta eignin

Gerðisbraut 4

Ágúst Halldórsson og Hólmfríður

Arnar (Lóa)

Fegursti garðurinn

Hólagata 21

Kolbrún Matthíasdóttir og

Hörður Pálsson

Snyrtilegasta fyrirtækið

Næs

Gísli Matthías Auðunsson

NÝNEMABALL FÍV

Nemendafélag Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum hélt nýnemaball fyrir nemendur skólans þann 12. september síðastliðinn. Þetta er fyrsta nýnemaball í nokkur ár og vakti það mikla lukku meðal nemenda skólans. Ballið var haldið í sal skólans og tónlistamaðurinn Ízleifur kom og flutti lögin sín. Nokkrir nemendur tóku síðan við keflinu, spiluðu og sungu/röppuðu bestu lögin í dag það sem eftir var af kvöldinu.

Að halda viðburði og fá tónlistarmenn til að koma og troða upp getur verið kostnaðarsamt. Svona viðburðir eru mikilvægir til að halda uppi góðu félagslífi i í skólanum og til að fjármagna ballið þurfti nemendafélagið að leita af styrkjum. Ísfélagið, Vinnslustöðin og Laxey ákváðu í sameiningu að styrkja félagsstarfið og með þeirra aðstoð varð ballið að veruleika. Einnig vildu þessi fyrirtæki gefa nemendum bleik ljósahálsmenum sem nemendur báru á sér á ballinu, til að sýna samstöðu og heiðra minningu hennar Bryndísar Klöru sem lést fyrir stuttu eftir hörmulegan atburð.

Ballið gekk vel fyrir sig og allir nemendur skemmtu sér vel og fallega. Nemendafélaginu langar að lokum að þakka fyrirtækjunum sem styrku þau innilega fyrir stuðninginn.

eyjadreifing.is / eyjadreifing@eyjadreifing.is / s. 481-1161

ÞRAUTIR

GÍTAR FRANSKAR KJÓLL HUNDUR

SJÓNVARP

BELJA ÍSSKÁPUR

LJÓSAKRÓNA

SÍMI

HLIÐARBORÐ

STIGI ÚLPA

Viltu minnast látins ættingja eða vinar?

Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.

Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.

Verð: 12.400 kr.

Auglýsingasími

Tíguls: 481-1161

tigull@tigull.is

Fallegur fatnaður á konur í

öllum stærðum á sanngjörnu verði.

Við tökum upp nýjar vörur vikulega.

www.skvisubudin.is

/skvisubudin

/skvisubudin

Flötum 29

Tímapantanir í síma: 481-1012

Neyðarsíminn: 844-5012

tannsi@eyjar.is

Nýsmíði

Gólfhitafræsing

Gólfhitalögn

Kjarnaborun

Pallasmíði

Þakvinna

Innréttingar

Utanhúsklæðningar aglverktakar@gmail.com

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.