Skip to main content

Tígull 32. tbl

Page 1

32. tbl. 01. árg. 09. - 15. október 2019 Strandvegur 47 | 481 1161 | tigull@tigull.is | www.tigull.is

Breyttur opnunartími: Wood burning oven &

beer from local brewery

Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Laugardagur Sunnudagur Mánudagur Þriðjudagur

11:30-14:00 og 17:30-21:00 11:30-14:00 og 17:30-21:00 11:30-14:00 og 17:30-21:00 11:30-14:00 og 17:30-21:00 11:30-14:00 og 17:30-21:00 Lokað Lokað

pantanir í síma 551 0055


Verum dugleg að nota endurskinsmerki í skammdeginu - Aðsend grein frá HSU Nauðsynlegt er að gangandi vegfarendur noti endurskinsmerki. Það liggur fyrir að í myrkri sjást gangandi vegfarendur illa þrátt fyrir götulýsingu og ökuljós bifreiða. Ökumenn sjá gangandi vegfarendur með endurskinsmerki fimm sinnum fyrr en ella. Ef ekið er með láguljósin sér ökumaður gangandi vegfaranda sem er dökkklæddur, ekki fyrr en í 25 m fjarlægð en ef viðkomandi er með endurskinsmerki sést hann aftur á móti fimm sinnum fyrr eða í 125 metra fjarlægð. Til eru margar stærðir og gerðir af endurskinsmerkjum, þau eru ódýr og öflug forvörn sem geta skilið milli lífs og dauða. Endurskinsmerki þurfa að vera rétt staðsett, best er að hafa þau eins neðarlega og hægt er og að þau sjáist frá öllum hliðum. Heppilegast er að velja fyrir börnin fatnað, skó og töskur sem hafa endurskinsmerki á sér. Hvar? - Hangandi merki er best að hafa beggja vegna á hliðum, neðst á yfirhöfn - Límd merki er best að hafa bæði að framan og aftan neðst á yfirhöfn og fyrir miðju - Á skóm eða neðarlega á buxna-

TÍGULL

skálm - Fremst á ermum - Allar skólastöskur/bakpokar eiga að vera með endurskinsmerki - Á barnavögnum er best að hafa endurskin á öllum hliðum

skapast lífshætta. Endurskinsmerki sem standast kröfur eru CE merkt, eru merkt nafni framleiðanda og tegund og merkt með staðlinum EN13356. Sömu reglur gilda fyrir öll endurskinsmerki sama hvernig þau líta út, t.d endurskinsborði, hangandi endurskinsmerki, skokkbönd, hárskraut, límmerki, saumborða og límborða. Nú þegar skammdegið er gengið í garð er tilvalið að minna á að nota endurskinsmerki jafnt börn sem fullorðnir. Í myrkrinu sjáumst við illa og er því notkun endurskinsmerkja bráðnauðsynleg. Ég hvet foreldra til að sýna ábyrgð og gott fordæmi með því að nota þessi nauðskynlegu öryggistæki sjálf sem og að sjá til þess að börnin séu vel merkt. Endurskinsmerki eru fyrir alla.

Mikilvægt er að hafa í huga sé endurskinsmerkið orðið gamalt, máð og rispað þá getur verið að það sé búið að tapa endurskinseiginleikunum og borgar sig að skipta út endurskinsmerkjum reglulega.

f.h. Heilbrigðisstofnunar Suðurlands Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir, hjúkrunarstjóri heilsugæslustöðinni á Kirkjubæjarklaustri. Heimildir: landlaeknir.is samgongustofa.is neytendasamtokin.is

Endurskinsmerki sem uppfylla ekki kröfur um endurskin veita falskt öryggi og getur þar af leiðandi

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


BLEIKUR

OKTÓBER

KVÖLDOPNUN

FLESTRA VERSLANA FÖSTUDAGINN 11. OKTÓBER OPIÐ TIL 22:00 HLUTI AF SÖLU DAGSINS RENNUR TIL EYJARÓSAR KRABBAMEINSFÉLAGSINS Í VESTMANNAEYJUM

Félag kaupsýslumanna í Vestmannaeyjum


Bleiki dagurinn 11. október - Miðbærinn skreyttur og verslanir opnar til 22:00 -

Bleiki dagurinn hefur notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár í bleikum október. Þennan dag hvetjum við eyjamenn til að bera slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning og samstöðu. Miðbærinn okkar verður skreyttur, verslanir verða opnar til kl. 22:00, tilboð og fleira skemmtilegt verður um allan bæ. Frá klukkan 15-22 verða Krabbavörn með bás í Bárugötunni þar sem þær ætla að selja allar fallegu bleiku tuskurnar, heitt súkkulaði, spjall og svo hljóma ljúfir tónar frá tónlistarfólki okkar hér í Eyjum. Njótum kvöldsins saman og vekjum um leið athygli á átaki Bleiku slaufunnar og baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Við vonumst til að flestir láti sjá sig.

Félagsmenn fjölgað um helming Gaman er að segja frá því að félagsmönnum Krabbavarnar hefur fjölgað um helming á síðustu fjórum vikum. Bleika slaufan 2019 Bleika slaufan 2019 er hönnuð af Guðbjörgu Kristínu Ingvarsdóttur, skartgripa­hönnuði í AURUM Bankastræti. AURUM by Guðbjörg hefur fest sig í sessi sem eitt glæsilegasta hönnunarmerki landsins og fagnar 20 ára afmæli í ár. Í ár er spennandi nýjung því í fyrsta sinn er Bleika slaufan hálsmen. Vönduð og falleg hönnun þar sem blómin vísa til vellíðunar og jákvæðni en hringurinn táknar kvenlega orku og veitir vernd.


/smarteyjan #smarteyjan smarteyjan

Í TILEFNI AF BLEIKA FÖSTUDEGINUM

11. OKTÓBER ÆTLUM VIÐ AÐ LÁTA

15%

AF ÖLLUM SELDUM VÖRUM RENNA TIL KRABBAVARNAR Í VESTMANNAEYJUM

OPIÐ TIL 22:00 www.smartey.is | Smart | Vestmannabraut 30 | sími: 481 3340


Vestmannaeyjar með þeirra augum - Bjarni og feðgarnir Hörður og Friðrik Það var vel mætt á sýningu Sifjar Sigtryggsdóttur og Adda í London í Einarsstofu á laugardaginn sem var sú fimmta í sýningaröðinni, Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt. Og áfram er haldið og á laugardaginn sýna Bjarni Sigurðsson, sem stýrir eldhúsinu á Sjúkrahúsinu og Friðrik Harðarson með eigin myndir og myndir sem faðir hans, Hörður Sigurgeirsson, ljósmyndari skildi eftir sig þegar hann lést. Bjarni segist vera giftur til Vestmannaeyja en kona hans er Kristjana Margrét en forleldrar hennar eru Hörður Þórðarson og Anna María Kristjánsdóttir. Hann tók við eldhúsinu af Ævari Austfjörð í sumar en stóra áhugamálið er ljósmyndun. „Ég hef verið að taka myndir frá því ég var polli en tók mér pásu þegar maður lagði áherslu á að koma sér áfram í kokkastarfinu,“ segir Bjarni sem ekki aðeins féll fyrir Eyjastúlkunni Kristjönu. „Ég heillaðist einnig af því sem Heimaey og Vestmannaeyjar allar hafa upp á að bjóða. Myndirnar sem ég sýni eru mjög litríkar en ég legg áherslu á liti í öllu sem ég geri. Reyni að fanga litina í hversdagsleikanum.“

Stafahálsmen frá

Friðrik mætir með myndir sem ná yfir lengra tímabil en ljósmyndir Harðar föður hans. Hörður kom frá Akureyri og rak hér ljósmyndastofu á árunum 1950 til 1965. „Í allt liggja eftir hann um 170 þúsund myndir sem hann tók í Vestmannaeyjum og aðeins ein mynd af hverju,“ segir Friðrik. „Þetta eru mest myndir af einstaklingum en líka myndir af hópum og þegar kom að því að klára filmuna fór hann út og tók myndir af því sem fyrir augu bar. Myndir af atvinnu- og mannlífi í Vestmannaeyjum. Allar mannamyndirnar eru merktar og ég veit hverjir hóparnir eru,“ segir Friðrik sem nokkrum sinnum hefur haldið sýningar á myndum föður síns.

En þetta er í annað skipti sem hann teflir fram eigin myndum. Hann var átta ára þegar pabbi hans gaf honum fyrstu myndavélina og byrjaði strax að taka myndir. Allt safnið hans glataðist í gosinu en hann hélt áfram og fáum við að sjá sýnishorn af því á laugardaginn. „Þetta verður sitt lítið af hverju frá okkur pabba en sjálfur heillast ég af náttúrunni. Ekki síst briminu sem lemur eyjuna okkar og það tók mig þrjú ár að taka myndir af sólarlagi allan hringinn.“ Enn og aftur má því búast við skemmtilegri sýningu í Einarsstofu sem hefst eins og venjulega klukkan 13.00 á laugardaginn og stendur yfir í 60-90 mínútur.

Falleg gjöf 5.990 kr.

Fást hjá okkur

Strandvegur 47


30% AFSLÁTTUR

U G N I N L Á AF INNIM

/midstodin Strandvegur 30 / 481 1475 www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is


Viðburðir MIÐ

09 OKT

MIÐ

09 OKT

FIM

10 OKT

SUN

13 OKT

SUN

13 OKT

MÁN

14 OKT

ÞRI

15 OKT

ÍBV - SELFOSS OLÍSDEILD KARLA

Íþróttamiðstöð kl. 18:30

Sjá nwáwn.atrigull.is w

Rauðagerði

09

Opnunartími Féló fyrir 5. - 10. bekk

MIÐ

ÍBV U - ÍR U 2. DEILD KARLA

Íþróttamiðstöð kl. 19:30 FJÁRMÁL VIÐ STARFSLOK

#felo_eyjar / Rauðagerði félagsmiðstöð

Akóges kl. 17:00 - 18:00

MIÐ

ÍBV U - FRAM U GRILL 66 KVENNA

09

Íþróttamiðstöð kl. 14:00

OKT

FIM

ÍBV U - HÖRÐUR 2. DEILD KARLA

10

Íþróttamiðstöð kl. 14:30

OKT

MÁN

FRÍTT - NÁMSKEIÐ TRYGGVA HJALTA

14

Framhaldsskólinn kl. 20:30

OKT

ÞRI

ÍBV - AFTURELDING OLÍSDEILD KARLA

15

Íþróttamiðstöð kl. 18:30

OKT

OPIÐ HÚS FYRIR 8 - 10. BEKK

Rauðagerði kl. 19:30 - 22:00 OPIÐ HÚS FYRIR 5 - 7. BEKK

Rauðagerði kl. 16:30 - 18:30 OPIÐ HÚS FYRIR 8 - 10. BEKK

Rauðagerði kl. 19:30 - 22:00 OPIÐ HÚS FYRIR 5 - 7. BEKK

Rauðagerði kl. 16:30 - 18:30

www.eyjabio.is

FIMMTUDAGUR 10 OKT

MIÐ

FÖSTUDAGUR 11

LAUGARDAGUR 12

OKT

OKT

09 OKT

MIÐ

09 OKT

MIÐ

09 OKT

FIM

10 OKT

MÁN

14 OKT

MÁN

14 OKT

ÞRI

15 OKT

ÞRI

15 OKT

OKT

LEIKFIMI

Íþróttamiðstöðin kl. 10:10 - 10:50

HANDVERK & HITTINGUR

Vinaminni/Kviku kl. 13:00 - 16:00

STÚLKNAKÓRINN

Vinaminni/Kviku kl. 16:00

SÖNGHÓPURINN

Vinaminni/Kviku kl. 17:00

SPILAVIST

Vinaminni/Kviku kl. 20:00

PERLUSAUMUR

Vinaminni/Kviku kl. 16:00 - 18:00

BOCCIA

Vinaminni/Kviku kl. 16:00

VATNSLEIKFIMI

Sundlaug Íþróttamiðstöð kl. 10:50 - 11:20

LÍNUDANS

Vinnaminni/Kviku kl. 15:00

PÚTTSALURINN OPINN ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 12:30 - 14:00 HRESSINGARGANGA Í HERJÓLFSHÖLL ALLA DAGA 08:00 - 12:00

kl. 21:00

kl.21:00

kl.21:00

FRÍTT Í SUND FYRIR HEIMAFÓLK 67 ÁRA OG ELDRI


SUSHI

Við ætlum að bjóða uppá GOTT sushi í Eyjum fimmtudag 10. og föstudag 11. október. /gottrestaurant

#gottveitingastadur

Höldum upp á bleika daginn 9. - 11. október

42

20%

af seldum vörum dagana 9. - 11. október milli 11:00 - 16:00 rennur til Krabbavarnar í Vestmannaeyjum.

facebookleikur Minnum á skemmtilegan leik sem er í gangi á facebooksíðunni okkar. Endilega kíkið á facebooksíðu Tíguls!

Strandvegur 47 / 481 - 1161


Hugfangin af Norður Kýpur - Skoðunarferðir fyrir áhugasama um fasteignakaup -

Óskar Axel, Jóna Dóra og Stefán kynntu tækifæri á Norður Kýpur í Vestmannaeyjum 29. september síðastliðinn. Þau kynna fyrir fólki sem hafa áhuga á fasteignakaupum í Kýpur eða þeim sem vilja leigja sér íbúð fyrir fríið. Þau eru nú stödd í Kýpur í þriðju Íslendinga hópferðinni en stefna á að fara þá fjórðu í nóvember þar sem þau skoða vandlega öll flottustu verkefnin, læra allt um Kýpur og upplifum menninguna. Þau ætla að bjóða upp á netkynningu á meðan þau eru úti þar sem þau kynna verkefnið og þar getur fólk tekið þátt live beint frá tölvunni heima. Verkefnið er unnið í samstarfi við Freedom sem eru hópur af reynsluríkum Norðmönnum og Dönum sem hafa keypt á Norður Kýpur í stórum stíl. Þeirra markmið er að miðla reynslu sinni og sérþekkingu á öllu tengdu fasteignum á Norður Kýpur og trúa því að slík kaup veiti frelsi. “Kýpur er áfangarstaður sem allir ættu að heimsækja,” segja þau Óskar Axel og Jóna, sem fjárfestu í sinni fyrstu fasteign á eyjunni árið 2017. Þau segjast vera “upp fyrir haus” hugfangin af því sem þessi litla eyja hefur uppá að bjóða, en á eyjunni má finna stórkostlegar strendur, ljúffenga matargerð, framandi kennileiti, vatnsíþróttir,

skemmtanalíf, golf og margt fleira sem hægt er að njóta yfir daginn. Þetta er frábært tækifæri til að upplifa Kýpur. Ef þú ert í hugleiðingum að kaupa þér fasteign þá eru reynsluríkir aðilar sem upplýsa þig um fasteignamarkaðinn á Norður-Kýpur og við skoðum tækifærin sem eru í boði og allir munu taka vel á móti þér. Það sem þú munt sjá: Hvernig er að ferðast og búa á Kýpur. Hvernig samfélag er á Kýpur. Uppbygging á Kýpur. Þjónustur í boði á Kýpur. Afhverju Kýpur er skipt í Norður og Suður og hvort að Kýpur sé staður fyrir þig. Það sem þú munt læra: Allt um flottustu verkefnin sem eru í byggingu. Mismunandi byggingarstaðla og áherslur framleiðanda. Lánakjör og vextir. Virði fasteignar fokheld/ fullfrágengin. Eignarhald, viðhald og útleigustarfsemi á Kýpur. Einlægar sögur frá öðrum eigendum og þeirra fjárfestingum. Hægt er að hafa samband við okkur í síma 845-3150 eða með því að senda skilaboð í gegnum Facebook síðuna – Keyptu eða Leigðu á Kýpur.


Við bjóðum: • 5 fríar nætur. • Aðstoð við að bóka flugmiða. - kostar 35-50.000 kr. (fram og tilbaka). • Við látum sækja þig á flugvöllinn. • Út að borða. • Skoðum flottustu verkefnin. • Allar helstu upplýsingar um eyjuna. • Erum með bíl til að skutlast. • Hægt að bæta við auka nóttum. • 100% skuldbindingalaust. Næstu ferðir verða 8-11. nóvember og 29. nóvember - 2. desember.

Leiguíbúðirnar: Fyrir þá sem hafa áhuga á að skella sér í frí þá eru þau með nokkra valmöguleika í boði. Þau bjóða upp á leigu á tveimur þjónustusvæðum á Norður-Kýpur sem kallast, Litla Paradís og Sjávarþorpið. Á báðum svæðum er veitingastaður, markaður, inni- og útisundlaug, spa, líkamsrækt, leiksvæði fyrir börn og bílaleiga. Verðdæmi: Litla Paradís Vika í íbúð, 2 gistipláss. 1 svefnherbergi - 59.000 kr. Vika í íbúð, 4-5 gistipláss. 2 svefnherbergi - 69.000 kr. Vika í íbúð, 6-7 gistipláss. 3 svefnherbergi - 89.000 kr. Sjávarþorpið Vika í íbúð, 2-4 gistipláss. 1 svefnherbergi - 69.000 kr. Vika í íbúð, 4-6 gistipláss. 2 svefnherbergi - 89.000 kr. 3 svefnherbergi - 109.000 kr.


Leikfélagið sýnir Línu Langsokk í næstu viku - Tígull tók létt spjall við leikstjórann og þrjá leikara -

Tígull fékk að kíkja á leikæfingu hjá leikfélaginu. Þau eru að setja upp verkið um hana Línu Langsokk og það litla sem við sáum af æfingunni var hreint út sagt frábært. Við getum varla beðið eftir að fá að sjá þau öll þann 18.október þegar leikritið verður frumsýnt. Við tókum smá spjall við þrjá af leikurunum. Ísey Heiðarsdóttir leikur óþekktarorminn hana Línu Langsokk. Ísey er vel þekkt á eyjunni vegna leik síns í Víti í Vestmannaeyjum sem hún fór á kostum í. Af því að dæma sem við sáum af æfingunni þá er henni jafnvel að takast að gera enn betur í þessu hlutverki sem er ótrúlegt því hún var frábær í Víti í Vestmannaeyjum. Ísey sagði okkur að Lína sé draumahlutverkið hennar enda nokkuð lík Línu með rautt hár og stríðnispúkaglott. Ísey er með góðan fimleikagrunn sem kemur sér vel í þessu hlutverki þar sem hún skoppar og hoppar um sviðið í heljarstökkum og handahlaupum. Svo eru það þau Sara Sindradóttir

sem leikur hana Önnu og Gabríel Ari Davísson sem leikur Tomma en þau eru sætu prúðu systkinin sem Lína er að skottast með. Bæði Sara og Gabríel eru að leika í sínu þriðja verki en þau voru í Klaufunum og Latabæ. Öll eru þau sammála því hve gaman það sé að taka þátt í að setja upp svona leikrit. Þau fara langt út fyrir þægindarrammann á mörgum sviðum, meðal annars með því að syngja fyrir framan fullan sal af fólki, virkilega vel gert. Nánar um þau: Ísey Heiðarsdóttir Aldur: 13 ára (8.bekk) Fjölskylda: Lísa Nálsdóttir, Heiðar Þór Pálsson, Ernir og Embla Fyrirmynd í leiklistinni: Ágústa Eva (enda er hún frænka mín). Sara Sindradóttir Aldur: 13 ára (8.bekk) Fjölskylda: Sæfinna Ásbjörnsdóttir, Sindri Þór Grétarsson, Grétar og Aron Fyrirmynd í leiklistinni: Cole Sprouse og Ágústa Eva.

Gabríel Ari Davíðsson Aldur: 13 ára (8.bekk) Fjölskylda: Anna Hulda Ingadóttir, Davíð Þór Hallgrímsson, Daníel Frans og Rafael Bóas Fyrirmynd í leiklistinni: Tom Cruise Að lokum tókum við smá spjall við leikstjórann: Ólafur Jens Sigurðsson, 46 ára þriggja barna faðir úr Reykjavík, leikstjóri og leiklistarkennari að mennt. Ólafur leikstýrði einnig Latabæ í fyrra og líkaði það svo vel að hann ákvað að koma aftur og leikstýra aftur þessum frábæra hóp. Til gamans má geta þess að þessi hópur er nánast sá sami og var í Latarbæjarsýningunni. Ólafur hefur farið víða um landið og leikstýrt ýmsum leikhópum. Fyrirmynd hans í leiklistinni er Anthony Hopkins. Að lokum þá hvetja þau ykkur öll að koma og sjá Línu Langsokk, þið verðið ekki svikin af því.


Þaklist ehf Þakviðgerðir, Sérhæfi mig í flötum þökum. Tek að mér ýmsa smiðavinnu, parketlagnir, grindverk, sólpalla og fleira.

20 ára reynsla lærður smiður /SKIPALYFTAn

Smári Björn S: 849-2694 smaribjorn@gmail.com

/þaklist

SKIPALYFTAN EHF / EIÐI VESTMANNAEYJUM / 488 3550 / WWW.SKIPALYFTAN.IS OPNUNARTÍMI: Virka daga 07:30 - 18:00 / Lau 10:00 - 14:00

482-1000

www.grillhus.is /900grillhus

900 Grillhús fer í vetrarfrí eftir 12. október Af því tilefni verður 2 fyrir 1 af öllum drykkjum og af matseðlinum okkar alla vikuna. (Gildir ekki í heimsendingu) Opið verður alla vikuna frá 17:00 og eitthvað frameftir, fer allt eftir stemningunni. Hægt verður að panta veitingarsalinn í vetur fyrir afmæli, partý eða fundi á netfangið: 900grillhus@gmail.com Hlökkum til að (sjá) ykkur!

2

1 ir

fyr


Stofnun ADHD samtaka í Eyjum - Fyrsti fundur verður haldinn 15. október -

Í haust tóku sig saman nokkrir foreldrar barna með ADHD og fullorðnir einstaklingar með ADHD sem höfðu áhuga á samstarfi við ADHD samtökin á Íslandi með fræðslu og námskeið í Vestmannaeyjum. Markmið ADHD samtakanna er að börn og fullorðnir með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir mæti skilningi alls staðar í samfélaginu og fái þjónustu sem stuðlar að félagslegri aðlögun þeirra, möguleikum í námi og starfi og almennt bættum lífsgæðum. Í samvinnu við ADHD samtökin á Íslandi stefnum við á að vera með ADHD–eyjar sem myndi standa fyrir opnum spjallfundum um ýmis málefni ca 1x í mánuði. Eins er stefnt á að fá ADHD samtökin til að halda námskeið líkt og þau sem boðið er upp á í Reykjavík og á Norðurlandi. Markhóparnir fyrir námskeiðin og spjallfundina sem yrði boðið upp á eru foreldrar barna með ADHD, kennarar, þjálfarar, makar, einstaklingar með ADHD og aðrir aðstandendur. Dæmi um spjallfundi sem við höfum hug á að bjóða upp á: • Hvað gera ADHD samtökin • Betra líf með ADHD – spjallfundur • ADHD og systkini • ADHD og einelti • ADHD í tómstundarstarfi og íþróttum • ADHD og lyf • Undirbúningur jóla og ADHD • Erindi frá fagaðilum í Vestmannaeyjum. • Námskeið sem ADHD samtökin á Íslandi bjóða upp á eru m.a.:

• • • •

Taktu stjórnina, fræðslunámskeið fyrir fullorðna með ADHD Ég get námskeið fyrir 14- 16 ára, gæti verið hægt að hafa það upp í 18 ára Fræðslunámskeið fyrir foreldra barna 13- 18 ára Fræðslunámskeið fyrir foreldra barna 6-12 ára

Við erum búin að heyra í forsvarsmönnum sveitarfélagsins sem tóku virkilega vel í þessa hugmynd okkar og eru m.a. tilbúnir að lána okkur húsnæði undir fundi og námskeið og aðstoða okkur með fræðslu eins og kostur er. Það er okkur ómetanlegt og í takti við það góða starf sem unnið er nú þegar í skólum og leikskólum. Við munum á næstu dögum óska eftir styrkjum til fyrirtækja í bænum til þess að standa straum af ferða og gistikostnaði vegna þessa. Einnig munum við vera með facebook síðu og sér umræðuhóp þar sem hægt er að fjalla um svæðisbundin málefni. 15. október næstkomandi verður fyrsti spjallfundur hjá okkur sem er þá stofnfundur á sama tíma. Elín H. Hinriksdóttir formaður samtakanna mun koma til okkar og mun vera með almenna kynningu á ADHD og svo er opið fyrir gott spjall eins og umræðan þróast. Októbermánuður er alþjóðlegur vitundarmánuður um ADHD og því upplagt að byrja starfið hjá okkur nú. Spjallfundurinn er öllum opinn og ókeypis, nánari tímasetning og staðsetning verður auglýst síðar. Fjölmennum, fræðumst og skiptumst á reynslusögum og skoðunum um líf með ADHD. /adhdeyjar Ása Ingibergs og Ásta Björk Guðnadóttir adhdeyjar@gmail.com


772-6766 Heiðarvegur 9

/crispus

Siglingaáætlun

Frá 30. mars - 30. nóvember 2019

Opnum 9, 10 eða 11 fer eftir pöntunum og erum til 18.00 virka daga opið á laugardögum eftir pöntunum. það er hægt að panta tíma allan sólahringinn á facebook

ÖKUKENNSLA

SNORRA RÚTS Kennslubifreið: Mercedes Benz C200-C01

Vestmannaeyjar brottför:

Landeyjarhöfn brottför:

07:00 - Alla daga

08:15 - Alla daga

09:30 - Alla daga

10:45 - Alla daga

12:00 - Alla daga

13:15 - Alla daga

14:30 - Alla daga

15:45 - Alla daga

17:00 - Alla daga

18:15 - Alla daga

19:30 - Alla daga

20:45 - Alla daga

22:00 - Alla daga

23:15 - Alla daga

Ef siglt er í Þorlákshöfn: Brottför frá Vestmannaeyjum 7:00 og 17:00 Brottför frá Þorlákshöfn 10:45 og 20:45

• Akstursmat • Endurtökupróf • Ökuskóli

+354 481 2800

20 ára reynsla! Sími 692-3131

Leið 52

Tannlæknar í október 9. - 11. okt - Hjalti Þórðarson 12. - 13. okt - Hjalti Harðarson 17. - 18. okt - Rakel Ósk Þrastardóttir

herjolfur@herjolfur.is

Básaskersbryggju - 900 Vestmannaeyjum

STRÆTÓ

www.straeto.is 540 -2700

Hægt er að borga fargjaldið inn í strætó

Virkir dagar:

08:00 Herjólfsferð: 10:45 18:00 Herjólfsferð: 20:45

Frá Mjódd Frá Mjódd Helgar:

Hólagötu 40

Tímapantanir í síma 481-2772

Frá Umferðarmiðstöð Frá Mjódd Frá Mjódd

www.straeto.is | 540-2700

Italian Roast hjálpar til við eftirfarandi: Að slökkva á sykurlöngun

www.ernir.is 481-3300

Frá Reykjavík

Að minnka matarlöngun Að gefa aukna orku Að gefa betri fókus

07:55 Herjólfsferð: 10:45 08:10 Herjólfsferð: 10:45 15:15 Herjólfsferð: 18:15

Frá Vestm.eyjum

Mán Þri Mið Fim Fös Lau Sun Brottför Lending

07:15 15:45 11:30 17:30

07:40 16:10 11:55 17:55

08:00 16:30 12:15 18:15

08:25 16:55 12:40 18:40


Húsasmiðjublaðið er komið út

25% Skoðaðu tilboðin á husa.is

afsláttur

af allri LADY innimálningu

LADY er bæði Svansvottuð og með Evrópublómið Jotun framleiðir umhverfisvæna hágæðamálningu. LADY er bæði Svansvottuð og með Evrópublómið.

a l s i e Haustv

25% 25% 25% 25% Flísar af öllum flísum

afsláttur

Pa r ket

afsláttur

B l ö n du n a r t æ k i

afsláttur

af öllum GROHE sturtutækjum, handbrúsum og blöndunartækjum

af öllu parketi

r P ot t a r & p ö n n u

afsláttur

af öllum BEKA pottum og pönnum

30% 25% 25% 25% Allt að

Ve r k fæ r i

afsláttur

af völdum Hikoki verkfærum

B aðtæ k i

afsláttur

af öllum LAUFEN salernum og handlaugum

25% afsláttur

af haustlaukum Eitt mesta úrval landsins

Nú er rétti tíminn til að setja niður haustlauka. Haustlaukar, loforð um litríkt vor.

H á þ r ý st i d æ lu r

afsláttur

af öllum NILFISK háþrýstidælum og ryksugum

af öllum Philips ljósum

afsláttur

Gildir ekki af Hue

3 stk.

999 Erikur

P h i l ip s l j ó s

kr

Erikur/callunur

Margar gerðir, þú velur lit og tegund. Blómapottar seldir sér

allt Sendum um landa.is vefverslun hus


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 32. tbl by Leturstofan - Issuu