Tígull 31. tbl 06. árg.

Page 1


tbl. 05. árg. 11. - 17. september 2024

31.

MARKMIÐIÐ 200 PYSJUR OG VIÐTAL

Það má nú telja næsta öruggt að síðasta pysjan sé lent í bænum þetta öruggt enda Lundinn löngu stunginn af. Á Lundi.is voru skráðar 4206 pysjur þetta árið af fjölmörgu björgunarfólki. Metnaðurinn er þó mismikill hjá björgunarfólkinu en bræðurnir Eyþór Logi og Baltasar Brimar Sævarssynir settu sér það markmið í upphafi lundapysjutímans að finna tvö hundruð pysjur og komast í Tígul fyrir vikið. Fjölskyldan fer eins og flestar fjölskyldur í Eyjum í pysjuleit á hverju ári en í ár tók hún björgunarstarfið af meiri metnaði en áður þar sem mamman, Anný, hafði brotið á sér fótlegginn í brekkunni á síðasta kvöldi Þjóðhátíðar, og þurfti þess vegna að reyna sem minnst á fótinn vikurnar á eftir. Reyndist pysjuleitin því tilvalin af-

TÍGULL

DREIFING:

þreying fyrir fjölskylduna, þar sem mamman hélt sig í farþegasætinu á bílnum meðan pabbinn keyrði á milli staða og krakkarnir, vopnuð vasaljósum og kössum, leituðu logandi ljósum af pysjum í vanda. Þar sem pysjurnar komu snemma úr hreiðrum í ár, og skólinn ekki hafin, var farið kvöld eftir kvöld eftir myrkur að leita og oft fram á nótt.

Eyþór Logi og Baltasar Brimar höfðu á mánudeginum eftir Þjóðhátíð tekið sviðið úr tjaldinu á Pizza 67, sem foreldrarnir reka, í sundur og smíðað úr því lítinn kofa sem þeir ætluðu að nota til leiks. Hins vegar áttuðu þeir bræður sig fljótlega á því að kofinn hentaði mjög vel til að geyma pysjurnar þar til þeim yrði sleppt. Varð kofinn því að sannkölluðu

pysjuhóteli, þar sem betur fór um pysjurnar en í pappakössum. Á hverri nóttu gistu allnokkrar pysjur í kofanum, en eina nóttina gistu alls 40 pysjur hjá fjölskyldunni. Þar sem mamman þurfti alltaf að bíða í bílnum, tók hún upp á því að skrá vel fjölda og alla staði þar sem pysjurnar fundust, svo pysjubókhaldið þetta árið varð töluvert ítarlegra en áður. Voru þær upplýsingar sendar samviskusamlega inn til pysjueftirlitsins. Þegar heildarfjöldinn var kominn vel yfir hundrað ákvað Eyþór Logi að setja stefnuna á að finna 200 pysjur, og að það yrði til þess að hann kæmist í Tígul. Þeir bræður, með aðstoð systur sinnar og foreldra, náðu því takmarki og gott betur, því þær urðu í heildina 202 talsins í ár.

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki.

Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

Dreifing fer fram á miðvikudögum og er blaðinu dreift inn á öll heimili í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

TAKK FYRIR OKKUR!

Klara Káradóttir og Agnes Lilja Styrmisdóttir vilja koma á framfæri þakklæti til þeirra fyrirtækja sem styrktu þær þegar þær tóku þátt í opna evrópumótinu í Svíþjóð með U16 landsliðinu í handbolta í sumar.

Og aðrir sem vildu ekki láta nafn síns getið.

/skvisubudin Litla Skvísubúðin

Fallegur fatnaður á

konur í öllum stærðum á sanngjörnu verði. Við tökum upp nýjar vörur vikulega.

www.skvisubudin.is

/skvisubudin

Flötum 29

Tímapantanir í síma: 481-1012

Neyðarsíminn: 844-5012

tannsi@eyjar.is

SMIÐIR & PÍPARAR

Nýsmíði

Gólfhitafræsing

Gólfhitalögn

Kjarnaborun

Pallasmíði

Þakvinna

Innréttingar

Utanhúsklæðningar

Í EINARSSTOFU FIMMTUDAGINN

12. SEPTEMBER KL. 20.00

ÞÓRHALLUR HELGI BARÐASON, GUÐMUNDUR ÖRN JÓNSSON, PÁLL MAGNÚSSON, KITTY KOVÁCS

GÍSLI STEFÁNSSON, ÞÓRIR ÓLAFSSON, KRISTINN JÓNSSON, VIÐAR STEFÁNSSON, og KARLAKÓR VESTMANNAEYJA undir stjórn MATTHÍASAR HARÐARSONAR

FRÍR AÐGANGUR

Er september þinn skoðunarmánuður?

Frumherji í Eyjum

vikuna 23. - 26. september

Stórir bílar einnig skoðaðir

Lokað í hádeginu

Tímapantanir í síma

570 9090

Faxastígur 38

Félagsmiðstöðin v/Strandveg auglýsir eftir

frístundaleiðbeinendum

Umsóknarfrestur er til og með 15. september

Helsta markmið félagsmiðstöðva er að þjálfa og auka félags- og samskiptafærni barna og unglinga, veita þeim stuðning og tækifæri til að sinna áhugamálum sínum, ásamt því að sinna forvörnum.

Markhópur félagsmiðstöðva er börn og unglingar á aldrinum 10-16 ára. Vinnutíminn er 3-6 tímar í senn á stuttum vöktum seinni hluta dags og/eða á kvöldin. Hentar vel fólki í skóla.

Helstu verkefni og ábyrgð

- Skipuleggja starf í félagsmiðstöð fyrir börn og unglinga á aldrinum 10-16 ára

- Vera leiðbeinandi í leik og starfi

- Samráð og samvinna við börn og unglinga

- Vaktaskipulag í samráði við forstöðumann

Hæfniskröfur

- Vera orðin 18 ára

- Hafa hreint sakavottorð

- Jákvæðni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi

- Góð færni í mannlegum samskiptum

- Hafa áhuga á að starfa með börnum og ungmennum

- Hafa velferð og þroska barna og unglinga að leiðarljósi

- Uppeldismenntun og reynsla af störfum á vettvangi tómstunda eða æskulýðsmála er kostur

Nánari upplýsingar veitir Eyrún Haraldsdóttir verkefnastjóri

Tómstunda- og æskulýðsmála: eyrunharalds@vestmannaeyjar.is

Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri og hafa hreint sakavottorð. Laun miðast við og eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stavey/Drífanda. Umsókn sendist merkt viðkomandi starfi sem sótt er um.

Umsóknir skulu almennt berast með rafrænum hætti í gegnum heimasíðu Vestmannaeyjabæjar eða með tölvupósti á verkefnastjóra. Slóðin á umsóknar hnappinn er: https://www.vestmannaeyjar.is/thatttaka/umsoknir/ Hvetjum alla áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.

MEISTARAFLOKKARNIR Í HANDBOLTA

Blaðamaður Tíguls heyrði í þjálfurum meistaraflokkanna í handknattleik fyrir komandi tímabil. Magnúsi Stefánssyni þjálfara meistaraflokks karla og Sigurði Bragasyni þjálfara meistaraflokks kvenna. Sigga Braga til halds og traust er Hilmar ágúst Björnsson og með Magga er hann Roland Eradze.

Hvernig leggst komandi tímabil í þig? Bara eins og í öll hin 6 skiptin, þá er maður bara spenntur. Eins leiðinlegt og haustið er, sumarið búið og svona, þá er byrjunin á handboltanum alltaf skemmtileg.

Eru miklar breytingar á hópnum og hverjar þá? Já það má eiginlega segja að það séu miklar breytingar. Annað tímabilið í röð missum við mikið af stelpum út út hóp sem er áhyggjuefni. Núna voru það 8 stelpur sem fóru úr hópnum frá því í fyrra. Það hvarf heilt gott byrjunarlið. Amelía, Hanna, Elísa, Ásdís, Þóra, Edda og Ester fóru allar út hóp og í raun fáum við bara eina í staðin. Sem er Yllka, leikmaður frá Kósóvó. Við erum nú samt að endurheimta leikmenn sem voru meiddir. Þar munar mest um Brit-

ney. Herdís Eiríks er að ná sér til baka. Þóra Guðný tók fram skónna og kemur til með að hjálpa okkur. Við fengum aftur Bernódíu og Ólöfu Maren.

Hvernig er staðan á hópnum, eru allar heilar? Það er nú þannig að það eru aldrei allar heilar, þannig hefur það ekki verið í þessi 6 tímabil sem ég hef verið með liðið. Hanna þurfti að láta staðar numið eftir krónísk hnémeiðsli. En sem betur fer eru ekki alvarleg meiðsli í gangi núna. Meira svona tognanir og þannig meiðsli.

Reiknar þú með að styrkja hópinn enn frekar? Að sjálfsögðu myndi ég vilja það en það eru bara ekki til peningar í það.

LEIKIR

FRAMUNDAN

MEISTARFLOKKUR KVENNA

ÍBV - Valur

fös. 13. september kl. 17:30

Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja

ÍR - ÍBV

mið. 18. september kl. 18:00 Skógarsel

Stjarnan - ÍBV

lau. 05. október kl. 16:30 Heklu Höllin

ÍBV - Selfoss

lau. 12. október kl. 14:00

Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja

MEISTARAFLOKKUR KARLA

ÍBV - Stjarnan

fös. 13. september kl. 19:45

Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja

FH - ÍBV

fim. 19. september kl. 18:30 Kaplakriki

ÍBV - Fjölnir

fim. 26. september kl. 19:00

Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja

Grótta - ÍBV

fim. 03. október kl. 18:30

Hertz höllin

Sigurður Bragason, þjálfari
Hilmar Ágúst Björnsson aðstoðarþjálfari Mfl. kvk

Ásdís

Dagbjört Ýr Ólafsdóttir Hansen

Agnes Lilja Styrmisdóttir
Birna Dís Sigurðardottir
Herdís Eiríksdóttir
Erika Ýr Ómarsdóttir
Alexandra Ósk Viktorsdóttir
Birna María Unnarsdóttir
Margrét Björg Castillo
Klara Káradóttir
Ásta Björt Júlíusdóttir
Halla Hjarðar
Britney Cots
Sunna Jónsdóttir
Ólöf Maren Bjarnadóttir
Anna Sif Sigurjónsdóttir
Bernódía Sif Sigurðardóttir
Marta Wawrzynkowska
Þóra Guðný Arnarsdóttir
Karolina Olszowa
Birna Berg Haraldsdóttir
Birna Dögg Egilsdóttir
Helga Margrét Thorlacius
Yllka Shatri #14 #19
#5 #3 #15 #11 #10 #33 #17

Hvernig leggst komandi tímabil í þig?

Komandi tímabil leggst vel í okkur þjálfarana. Strákarnir hafa verið að æfa afar vel í sumar í líklega flottustu lyftingaraðstöðu félagsliða á landinu og þeir hafa hugsað vel um sig. Við höfum komið okkur upp mjög góðu handriti undanfarin ár ef ekki áratug svo að það vita allir hvað þeir þurfa að gera og um hvað þetta snýst.

Eru miklar breytingar á hópnum og hverjar þá?

Það eru talsverðar breytingar á hópnum, þeir Arnór og Elmar eru farnir á vit ævintýranna í atvinnumennsku en þeir spiluðu stórt hlutverk hjá okkur síðastliðið tímabil. Við höldum þó reynslumiklum leikmönnum í liðinu sem halda áfram að draga vagninn og leika stórt hlutverk í liðinu ásamt því að ala upp komandi kynslóð leikmanna sem síðar taka við keflinu af þeim eldri. Við höfum fengið til okkar efnilegan leikmann frá HK, Kristófer Ísak. Kristófer dettur beint inn í „handritið“ og fær tíma til að þroskast sem leikmaður og aðlagast okkar leikstíl. Róbert Sigurðarson er leikmaður sem Eyjamenn þekkja en hann er kominn aftur til okkar sem er virkilega ánægjulegt og góð styrking. Með innkomu Róberts kemur gott æfinga siðferði og mikill agi sem

yngri leikmenn munu njóta góðs af að læra af. Marino Gabrieri er króatískur leikmaður, vinstri skytta, hann er óðum að komast í gott stand og er að aðlagast okkar leikstíl, Marino mun án efa styrkja okkur vel ef hann spilar eins og vonir standa til.

Við erum svo hægt og rólega að fá inn drengi sem koma úr okkar starfi en þar eru leikmenn sem eru farnir að banka hressilega á dyrnar í meistaraflokk ÍBV og það verður spennandi að fylgjast með þeim í vetur og næstu árin.

Hvernig er staðan á hópnum, eru allir heilir?

Staðan á leikmanna hópnum er mjög góð, við eigum gríðarlega stóran og efnilega hóp í 3.flokki karla og virkilega efnilega drengi sem leika með venslaliði/U-liði félagsins á komandi tímabili þar sem þeir koma til með að öðlast mikilvæga reynslu sem mun nýtast þeim afar vel. Ívar Bessi er þó að glíma við meiðsli sem hann varð fyrir á dögunum en það er vel haldið utan um hann svo að hann kemur sterkur til baka þegar sjúkraþjálfarinn gefur grænt ljós. Ívar Bessi er afar mikilvægur fyrir okkur og okkar leikstíl svo að það er vont að missa hann út, en hann er ungur að árum og fær þann tíma sem hann þarf til að jafna sig.

Reiknaru með að styrkja hópinn enn frekar?

Það er ekki í okkar plönum að stækka hópinn neitt frekar með nýjum leikmönnum.

Eitthvað að lokum?

Vonandi höldum við öll áfram að huga að innviðum okkar og aðstöðu en það er rými til bætingar þar sem og góður hugur þeirra er fara með þau mál. Þessu þarf að huga vel að því að starfið okkar er afar blómlegt og erum við með um 49 leikmenn frá 3.flokki og upp í meistaraflokk. Yngri leikmenn okkar hafa alist upp við gott æfinga siðferði og góðan aga. Þeir eru mjög virkir í öllu félagsstarfi, hvort heldur sem það er að koma að þjálfun yngri flokka, fjáraflanir, dómgæslu eða hvað annað. Þeir hafa lært af þeim eldri sem hafa skapað góðan farveg. Þessu fylgir gríðarlega mikil vinna og gott utanumhald undanfarin ár. Án þess að taka einhvern sérstaklega út fyrir sviga að þá er óhætt að nefna Bergvin Haraldsson á nafn en hann hefur sinnt starfi yfirþjálfara hjá okkur og á stóran þátt í þeirri uppbyggingu sem á sér stað.

Það er eiginlega ekki hægt að loka þessu spjalli án þess að minnast á allan þann hafsjó af sjálfboðaliðum sem við eigum, þeir ganga í öll þau störf sem þarf að sinna og vinna þau af mikilli alúð enda brenna þau fyrir það sama og við leikmenn og þjálfarar, að sjá ÍBV í fremstu röð. Þetta eru fyrrum leikmenn liðsins í gegnum árin og áratugina sem og stuðningsmenn sem alltaf svara kallinu.

Magnús Stefánsson, þjálfari
Roland

Andrés

Egill Oddgeir Stefánsson
Hinni
Kristófer Ísak Bárðarson
Sigtryggur Daði Rúnarsson
Andri Andersen
Adam Smári Sigfússon
Elís Þór Aðalsteinsson
Ísak Rafnsson
Nökkvi Snær Óðinsson
Sveinn José Rivera
Andri Erlingsson
Marel Sigurðsson
Ívar Bessi Viðarsson
Dagur Arnarsson
Breki Þór Óðinsson
Jason Stefánsson
Daníel Esteves Vieira
Kári Kristján Kristjánsson
#73
#10 #29 #27 #12 #4 #17 #31 #11
#22
#7
#3 #6 #18
Gabríel Martinez Róbertsson Gabrieri Marino Gauti Gunnarsson
#19 #74 #9 #46
Pavel Miskevich Petar Jokanovic
Róbert Sigurðsson
#21 #43 #24

LJÓSMYNDIR ÚR VESTMANNAEYJAHLAUPINU

Hlynur Andrésson og Helga Guðný Elíasdóttir sigruðu í 5 km. í Vestmannaeyjahlaupinu sem fram fór á laugardaginn. Bæði settu þau brautarmet, Hlynur á tímanum 15:31 og Helga Guðný fór hringinn á 19:49. Þórólfur Ingi Þórsson sigraði í 10 km. karla á 34:51 og er það í þriðja sinn sem hann sigrar í hlaupinu. Hann vann 2022 og í fyrsta skipti þegar það var haldið árið 2011. Íris Dóra Snorradóttir kom fyrst kvenna í mark á 40:03. Addi í London tók myndir í hlaupinu.

Alls luku 108 keppendur keppni. Meðal þeirra voru bestu hlauparar landsins s.s. eyjamaðurinn Hlynur Andrésson sem nýlega sigraði í 10 km. Reykjavíkurmaraþoni. Hann á nú brautarmet bæði í 5 og 10 km. í Vestmannaeyjahlaupinu. Þá var áhugavert að sjá hve margir ungir hlauparar tóku þátt og luku keppni á góðum tímum. Spennandi verður að fylgjast með þeim á næstu árum. Eyjaskokk þakkar Íslandsbanka, þeim fyrirtækjum sem styrktu viðburðinn og öllum þeim sem lögðu hönd á plóg. Hér eru þrír efstu í hverjum flokki:

5 km karla

Hlynur Andrésson 15:31

Daníel Snær Eyþórsson 18:15

Jón Orri Jónsson 19:58

5 km kvenna

Helga Guðný Elíasdóttir 19:49

Mari Jarsk 21:32

Eva Skarpaas 23:17

Íris Dóra, Hlynur og Þórólfur.

10 km karla

Þórólfur Ingi Þórsson 34:51

Sigurjón Ernir Sturluson 35:05

Hannes Johannsson 36:07

10 km kvenna

Íris Dóra Snorradóttir 40:03

Fríða Rún Þórðardóttir 40:54

Magnea Jóhannsdóttir 50:17

Ánægjulegt að sjá hversu mörg börn tóku þátt í hlaupinu.

Sigmar Þröstur, Sindri, Kristinn, Hjalli og Héðinn Karl. Aníta, Jón Bjarki, Gabríel og Adda Dís.
Jóel að koma í mark.
Hlín og Jóel.
Nökkvi Dan, Sindri, Héðinn Karl og Magnús Berg. Maggi og Nonni. Nökkvi Dan, Egill og Jósúa.

HUGMYND SEM VATT UPP Á SIG

Jóhann Ingi Óskarsson og Jónas Guðbjörn Jónsson.

AGL er alhliða verktakafyrirtæki sem býður upp á gólfhitafræsingar, pípulagningavinnu og almenna smíðavinnu. Við ræddum við Jóhann Inga Óskarsson einn eiganda

AGL en þeir Jóhann og Jónas Guðbjörn Jónsson eru eigendur fyrirtækisins. Jóhann er húsasmiður að mennt og Jónas pípulagningameistari. Verktakafyrirtækið AGL var stofnað í ágúst 2022 og þurftu þeir fljótlega að bæta við sig starfsmönnum en í dag eru AGL með 6 starfsmenn í heildina.

„Ég kom með hugmynd til Jónasar um að stofna fyrirtæki við gólfhitafræsingu sem aukavinnu við okkar vinnu sem svo vatt upp á sig“, segir Jóhann.

Aðspurður hvað sé þeirra helstu verkefni segir Jóhann það vera að taka í gegn baðherbergi og breyta bílskúrum í íbúðir ásamt þakvinnu og klæðningum og bætir við að þar sem hitaveitukostnaður hefur hækkað gríðarlega undanfarið þá væri sniðugt að fá Jónas til að fara yfir kerfið hjá sér og hann getur

örugglega sparað fólki töluverðar fjárhæðir í hitunarkostnaði.

Meðal stærstu verkefna þeirra til þessa er breytingin á Hlýju tannlæknastofu, verkefnastaðan er fín en getum alltaf bætt við okkur verkefnum.

Við erum í samstarfi við rafvirkja, múrara og flísara og getum gefið fólki verð í heildarverk

Jóhann segir vera heilbrigða samkeppni milli allra aðila enda eru þeir aðallega í samstarfi við iðnaðarmenn sem hefur gengið mjög vel og segir þá vinna vel saman og ráðfæra sig við hvorn annan.

Eitthvað að lokum sem AGL vill koma á framfæri?

Fyrir þau sem að vilja nýta sér þjónustu AGL er hægt að hafa samband í síma 768-5228 og 896-0074, netfangið: aglverktakar@gmail.com eða senda okkur skilaboð á Facebook.

Gólfhitafræsun

Pípulagnir, uppsetning á innréttingu og

Gólfhiti, grinda veggi, pípulagnir, raflagnir, flísalögn. Frágangur.
Gólfhiti, grinda veggi, pípulagnir, raflagnir.
Verk í vinnslu. Klæðning, pússning, þakskipting.
Sérsmíðaður skápur yfir lagnagrind.
Gólfhiti, uppsetning á fibo tresbo, innréttingu, pípulagnir og raflagnir.
sturtugleri.

ÞRAUTIR

Sudoku Challenge!

Enter numbers in the empty squares so that the numbers 1-9 appear only once in each row, column and box 1 6 4 2 9 1 9 6 3 6 2 4 6 8 3 2 8 5 6 6 1 2 3 8

GULUR SVÍN HJARTA ÚTSÝNI

SKÓGUR

FJALL

HVÍTUR

PEYSA BROS GLEÐI TÓNLIST GEISLADISKUR

Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma

ÁSTA

KATRÍN ÓLAFSDÓTTIR

lést á gjörgæsludeild Landsspítalans, laugardaginn 24. ágúst sl.

Útför hefur farið fram í kyrrþey að hennar eigin ósk.

Rósa Konný Jóhannesdóttir Einar Páll Pétursson

Daníel Örn Wirkner Jóhannesson

og barnabörn.

Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi

GUNNAR K. GUNNARSSON

lést þann 4. september á HSU í Vestmannaeyjum. Útför hans verður gerð frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 14. september kl. 13:00

Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir

María Kristín Gunnarsdóttir

Gunnar Geir Gunnarsson

Inga Lilý Gunnarsdóttir

Atli Þór Þórsson

Fríða Björk Arnardóttir

Hilmar Þórlindsson

og barnabörn.

Viltu minnast látins ættingja eða vinar?

Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.

Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.

Verð: 12.400 kr.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.