Tígull 31. tbl 05. árg.

Page 1

31. tbl. 05. árg. 27. september - 3. október 2023

Eftir fjögra ára hlé verður Eyjahjartað með samkomu sunnudaginn

1. október kl. 13:00 í Einarstofu í Safnahúsinu. Að vanda mun eðal Eyjafólk rifja upp gamlar minningar. Við höfum komið okkur saman um að þetta verði lokahnykkurinn á sérlega ánægjulegu ferli. Samkvæmt Einari Gylfa Jónssyni verður þetta síðasta Eyjahjartað sem þau standa að.

„Forveri Eyjahjartans eru tvær velheppnaðar Urðakattahátíðir á Goslokunum 2012 og 2013, þar sem Eyjafólk sem alist hafði upp á götum sem fóru undir hraun, rifjuðu upp minningar frá æskuárum sínum í máli og myndum. Þessar sögustundir fengu svo góð viðbrögð að við Atli Ásmundsson og Þuríður Bernódusdóttir leituðum samstarfs við Kára Bjarnason safnstjóra Safnahússins um að vera með sögustundir í svipuðum dúr. Síðan höfum við leitað til brottflutts Eyjafólks og fengið viðkomandi til að rifja upp minningarbrot úr æsku sinni. Fljótlega gáfum við þessum sögustundum nafnið “Eyjahjartað”. Það er skemmst frá því að segja að undirtektir hafa verið stórkostlegar, sem að sjálfsögðu hefur glatt okkur mikið. Lang flest þeirra sem við höfum leitað til hafa tekið erindi okkar vel og Vestmannaeyingar hafa fjölmennt á samkomurnar og stemmingin hefur verið full af glaðværð og hlýju. Á árunum 2016-19 voru haldnar 11 Eyjahjartasamkomur. Við höfðum ákveðið að sú sem við héldum í september 2019 yrði sú síðasta, en Kári manaði okkur upp í að halda alla vega eina enn. Þá kom Kóvid og setti heldur betur strik í reikninginn. En sem sagt við tókum okkur saman í andlitinu og erum nú búin að hóa saman eðal Eyjafólki af Höfuðborgarsvæðinu til að vera kjarninn í 12. og síðustu Eyjahjartasamkomunni. Sara Hafsteinsdóttir sem ólst upp í húsi afa síns, Oddgeirs Kristjánssonar. Hún hefur nýlokið farsælum starfsferli sem yfirsjúkraþjálfari í Borgarspítalanum og margir muna eflaust eftir henni úr sjónvarpsþáttunum Stormur, sem konunni á bak við sóttvarnarlækninn. Frásögn sína nefnir hún Það sem ekki má – Sigríður Johnsen, sem margir þekkja, sem Siggu hans Súlla á Saltabergi. Hún á að baki farsælan feril sem kennari og síðar skólastjóri í Mosfellsbæ. Hennar frásögn nefnist Ævintýri við hvert fótmál – Martin Eyjólfsson, betur þekktur í Eyjum sem Malli Bjargvættur, er fulltrúi “ungu kynslóðarinnar”. Flestir minnast hans fyrir 2 mörk með árs millibili, þegar hann bjargaði ÍBV frá falli úr efstu deild 2 ár í röð. Hann hefur átt fjölbreyttan og farsælan feril í utanríkisþjónustunni og gegnir nú embætti ráðuneytisstjóra. Hann nefnir frásögn sína Komið fagnandi. “ sagði Einar Gylfi Jónsson í samtali við Tígul.

TÍGULL

DREIFING:

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó. Forsíðumynd: Indíana Guðný

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

ÚTGÁFA:

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

Sara Hafsteinsdóttir: „Það sem ekki má“ Sigríður Johnsen: „Ævintýri við hvert fótmál“ Martin Eyjólfsson: „Komið fagnandi“

30. SEPTEMBER 11-17

OPIÐ ALLA HELGINA

1. OKTÓBER 13-17

Lokavika afmælistilboða, nú fer hver að verða síðastur að næla sér í tilboð

27. september 2023 • B i r t me ð fyri r v a r a u m br eyti n ga ,r in n slátta r vill u r og m y n da br e ng l

SVARTIR SAUÐIR MEÐAL SAUÐFJÁR BÆNDA

Og vert er að koma fram að þetta eru örfáir sem eiga í hlut hér,“ segir í grein Kötu Laufeyjar. En myndir og lista yfir mörk má sjá hér til hliðar.

Um miðjan júní þessa árs samþykkti umhverfis- og skipulagsráð að hækka gjaldskrá vegna lausagöngu búfjár í Vestmanneyjum. „Við handsömun eða önnur afskipti af lausagöngubúfé skal innheimta gjald sem hér segir: a) Fyrir hvert dýr kr. 14.500,- b) Vörslugjald fyrir hvern byrjaðan sólarhring. kr. 3.500,-“ Þá boðaði framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs aðgerðaáætlun og sem setja átti af stað á næstu dögumaðgerðir í samræmi við samþykkt um búfjárhald í Vestmannaeyjum. Það virðist þó litlum árangri hafa skilað.

Kata Laufey, blaðamaður Tíguls skrifaði, ef marka má viðbrögðin, mjög þarfa grein á vef okkar Tigull.is í vikunni sem leið. Þar talar hún um svarta sauði meðal sauðfjárbænda.

„Rollubændur sem eru með beitiland á Heimaey hafa komist upp með að hafa hluta af rollum sínum lausar um eyjuna í mörg ár. Já ég segi komist upp með það, þar sem þetta hefur viðgengist í mörg ár. Það getur bara ekki verið svona erfitt að hafa girðingar í lagi. Það er hluti af því að vera rollubóndi að viðhalda girðingum reglulega.

Lausagangur sauðfé á Heimaey hefur eyðilagt gróður í mörgum görðum, skíta út um allt og eru hættulegar í bílaumferð. Haft hefur verið samband við bæjaryfirvöld og kvartað, en voðalega lítið hefur verið gert í málunum. Enda benda rollubændur víst á hvor annan sem eiga fé hér á Heimaey.

Blaðamaður Tíguls ákvað að kíkja á málið og kanna hvort ekki sé hægt að gera eitthvað í málinu. Viti menn, það er til skrár yfir öll mörk og einnig skrá yfir þá sem eiga þau. Þetta er ekki flókið, nú hvetjum við ykkur að ná myndum af eyrum dýranna og senda til mín á facebook ( Kata Laufey ) ég skal sjá um að koma þeim til Brynjars hjá skipulags og umhverfisráði og hann þá getur farið í að senda rukkun á viðkomandi rollubændur. Svo er spurning hvort allt sauðfé sé rétt markað. Og oft þarf að skoða rollurnar vel til að sjá merkingu því þau eru sum mjög lík. Alls eru 29 rollubændur skráðir fyrir fé, og enn fleiri eru viðloga búgreinina. Eins og í flest öllum hópum eru svartir sauðir og hér á máltækið vel við því miður.

Á vefnum okkar má einnig sjá viðtal við Sigurð Þór Símonarson einn svokallaðra Bakkabræðra en þeir halda úti búfénaði á Breiðabakka. Þeir hafa ekki verið í vandræðum að halda sínu fé innan girðingar enda girðingarnar yfirfarnar reglulega. Sigurður segir þetta ekki vera flókið hjá þeim. „Það er númer eitt að hafa girðingarnar í lagi. Svo er það bara óskrifuð lög hjá okkur ef einhver rolla byrjar að hoppa yfir girðingu þá er bara hausin af henni og hún fer í kistuna.“

Viðtalið má sjá í heild sinni þegar þú skannar inn QR kóðann hér að neðan:

Hér er heimilisfólkið orðið mjög þreytt á lausagangi rollanna.

EYRNAMÖRK OG MARKHEITI

1. Alheilt

2. Andfjaðrað

3. Biti

4. Blaðrifað*

5. Blaðstýft

6. Boðbíldur*

7. Bragð

8. Fjöður

9. Gagnbitað

10. Gagnfjaðrað

11. Gagnhangfjaðrað

12. Gagnhófbitað

13. Gagnlaggað*

14. Gagnstigað

15. Geirskorið*

16. Geirstúfrifað*

17. Geirstýft*

18. Geirsýlt*

19. Hamarrifað*

20. Hamrað

21. Hangfjöður

22. Hálftaf

23. Heilgeirað

24. Heilhamrað

25. Heilrifað

26. Hófbiti

27. Hvatrifað

28. Hvatt

29. Laufað*

30. Lögg

31. Miðhlutað

32. Miðhlutað í stúf

33. Oddfjaðrað

34. Sneiðhamrað*

35. Sneiðrifað

36. sneitt

37. Sneitt í hálftaf*

38. Stig

39. Stúfrifað

40. Stúfrifað í hálftaf*

41. Stýft

42. Stýfthálftaf

43. Sýlhamrað

44. Sýlt

45. Sýlt í blaðstýft*

46. Sýlt í hálftaf

47. Sýlt í stúf*

48. Tvíbitað

49. Tvífjaðrað

50. Tvígagnbitað*

51. Tvíhangfjaðrað

52. Tvínumið*

53. Tvírifað í heilt

54. Tvírifað í sneitt

55. Tvírifað í stúf

56. Tvístigað

57. Tvístýft

58. Tvísýlt í stúf*

59. Vaglbiti*

60. Vaglrifað*

61. Þrífjaðrað*

62. Þrístigað*

63. Þrístýft*

* táknar að unnið skuli gegn notkun þessara marka. Þessi rolla er með mark sem kallast: Heilrifað sem er nr 25 á myndinni. Og er sama mark á hægri og vinstra eyra. (með fyrirvara um að rétta sé túlkað úr markinu.°) Þessi er með mörk, bragð eða hófbiti.

UPPSKRIFT VIKUNNAR

Kjúklingur með rjómabernaisesósu

Hér er á ferðinni ótrúlega góður kjúklingaréttur í rjómalagaðri bernaisesósu sem kemur skemmtilega á óvart. Þennan er tilvalið að prófa við fyrsta mögulega tækifæri. Einföld uppskrift dugar fyrir 4.

Hráefni:

4 stk. kjúklingabringur

2 msk. smjör til steikingar

500 ml matreiðslurjómi frá Gott í matinn

2 msk. dijon sinnep

4 tsk. estragon

4 tsk. bernaise essens

2 msk. kjúklingakraftur (1 teningur) sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar eftir smekk.

Aðferð:

Hitaðu ofninn í 200°C.

Brúnaðu kjúklinginn í smjöri á báðum hliðum. Kryddaðu með sjávarsalti og nýmöluðum pipar.

Settu kjúklinginn í eldfast mót og bakaðu í 20 mínútur í ofni þar til hann er fulleldaður. Helltu matreiðslurjóma í djúpa pönnu, síðan sinnepi, estragoni, kjúklingakrafti og bernaise essens.

Hitaðu upp að suðu, settu kjúklinginn út í og leyfðu að malla í 5 mínútur við lágan hita. Berðu réttinn fram með hrísgrjónum, steiktu eða fersku grænmeti og heitu snittubrauði. Uppskrift

fengin frá www.gottimatinn.is
HÆGT ER AÐ KAUPA MIÐA OG VELJA SÆTI Á EYJABIO.IS
FÖSTUDAGUR LAUAR- OG SUNNUDAG SUNNUDAGUR
Tillaga að meðlæti hrísgrjón, steikt eða ferskt grænmeti og heitt snittubrauð.
KL. 20.00 KL. 15.00 KL. 20.00

...fyrir hið ljúfa líf

15% MEIRA

Vantar þig fyrirbæn?

Hafðu samband í síma 861-4848 betel@simnet.is

Viltu biðja með öðrum?

Sambæn hvern miðvikudag í hádeginu

Hvítasunnukirkjan Vestmannaeyjum

TANNLÆKNASTOFAN

Flötum 29

Tímapantanir í síma: 481-1012

Neyðarsíminn: 844-5012

tannsi@eyjar.is

Passamyndir

Fasteignaljósmyndun

Bókið tíma á facebook.com/thoreyljosmyndari

eða á netfangi thoreyhh19@gmail.com

Auglýsingasími

Tíguls: 481-1161

tigull@tigull.is

NÝJA

VILTU HAFA ÁHRIF?

Opið er fyrir ábendingar, tillögur og styrkumsóknir vegna fjárhagsáætlunargerðar Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2024 undir heitinu “Viltu hafa áhrif 2024?”

NÝBREYTNI

Ákveðið hefur verið að tvískipta úthlutun heildarstyrkfjárhæðarinnar fyrir næsta ár. Þannig geta umsækjendur ýmist sótt um styrk nú fyrir verkefni á fyrri hluta næsta árs, eða seinna þegar líður á árið 2024, í tengslum við síðari úthlutun. Auglýst verður sérstaklega eftir umsóknum í tengslum við síðari úthlutun.

MARKMIÐ

Markmiðið með styrkjunum er að stuðla að auknu íbúalýðræði í Vestmannaeyjum með því að gefa fólki, fyrirtækjum og félagasamtökum tækifæri á að hafa áhrif á nærsamfélagið með góðum verkefnum. Fjölmargar góðar umsóknir og ábendingar hafa borist í gegnum tíðina. Má þar m.a. nefna styrki til fjölda sýninga, menningartengda bókaútgáfu, leiktæki á opnum svæðum og göngustíga.

ÁBENDINGAR OG TILLÖGUR

Áhugasamir einstaklingar og aðilar í Vestmannaeyjum sem vilja koma fram tillögum eða ábendingum varðandi fjárhagsáætlun 2024, eru hvattir til að koma þeim til skila í síðasta lagi 6. október 2023 á netfangið matthildur@vestmannaeyjar.is, eða með hefðbundnum pósti á póstfangið Vestmannaeyjabær við Bárustíg 15, 900 Vestmannaeyjum, b.t. Matthildar Halldórsdóttur.

STYRKIR

Á sama hátt er áhugasömum einstaklingum og aðilum bent á að sækja um styrki eða framlög vegna verkefna fyrir árið 2024, að senda umsóknir til bæjaryfirvalda í síðasta lagi 6. október 2023 á sama netfang eða póstfang.

Í umsókninni þurfa að koma fram upplýsingar um nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang umsækjenda, lýsing á verkefninu, áætluð upphæð og framkvæmdatími (þar sem við á). Ef sótt er um styrk til fjárfrekra verkefna þarf að koma fram sundurliðuð áætlun um einstaka kostnaðarliði.

Skilyrði er að umsókninni fylgi greinargerð sem skýrir verkefnið sem sótt er um styrk til sem og síðasta skattframtal eða ársreikningur. Áskilinn er réttur til að krefjast frekari gagna, þyki þess þörf.

Lokahóf 4. - 7. flokks fór fram á miðvikudaginn í blíðskaparveðri. Fótboltasumarið gekk vel og tóku iðkendur þátt í Íslandsmótum og hinum ýmsu opnu mótum þar sem allir fengu verkefni við hæfi og gleðin var ríkjandi.

4. og 5. flokkar kvenna komust alla leið í undanúrslit Íslandsmótsins og óskar félagið leikmönnum og þjálfurum innilega til hamingju með frábæran árangur.

Eliza Spruntule, Ragnar Mar Sigrúnarson og Stanislav Dyachenko munu láta af störfum eftir tímabilið, Eliza var með kveðjupartý fyrir 4. fl. kvk um síðustu helgi þar sem hún afhenti viðurkenningar. Við þökkum þeim öllum fyrir gott samstarf og óskum þeim velfarnaðar í nýjum slóðum.

ÍBV þakkar iðkendum fyrir að vera í framlínunni fyrir félagið, framundan er kærkomið frí fyrir bæði þjálfara og iðkendur, síðustu æfingar verða föstudaginn 29. september og hlökkum við til að sjá ferska fætur þegar æfingar hefjast aftur 23. október.

Eftirtaldir iðkendur fengu afhentar viðurkenningar:

4. flokkur kvenna

ÍBV-ari, yngra ár: Sóldís Sif Kjartansdóttir

ÍBV-ari, eldra ár: Lilja Kristín Svansdóttir

Mestu framfarir, yngra ár: Sara Björk Bjarnadóttir

Mestu framfarir, eldra ár: Katla Margrét Guðgeirsdóttir og Sandra Björg Gunnarsdóttir

Efnilegust, yngra ár: Tanja Harðardóttir

Efnilegust, eldra ár: Ísey María Örvarsdóttir

4. flokkur karla

ÍBV-ari, yngra ár: Arnar Gísli Jónsson

ÍBV-ari, eldra ár: Einar Bent Bjarnason

Mestu framfarir, yngra ár: Arnaldur Bjarni Sveinbjörnsson

Mestu framfarir, eldra ár: Pétur Dan Gunnarsson

Efnilegastur, yngra ár: Matthías Sigurðsson

Efnilegastur, eldra ár: Sigurmundur Gísli Unnarsson

5. flokkur kvenna

ÍBV-ari: Hlín Huginsdóttir

Mestu framfarir: Hrafnhildur Kristín Kristleifsdóttir

Ástundun: Ísafold Dögun Örvarsdóttir

5. flokkur karla

ÍBV-ari, yngra ár: Andri Snær Óskarsson

ÍBV-ari, eldra ár: Egill Davíðsson

Mestu framfarir, yngra ár: Þór Albertsson

Mestu framfarir, eldra ár: Breki Freyr Finnsson

Ástundun, yngra ár: Gauti Harðarson

Ástundun, eldra ár: Elvar Breki Friðbergsson

ÍBV Í KNATTSPYRNU
LOKAHÓF YNGRI FLOKKA
5. flokkur karla 5. flokkur kvenna 4. flokkur karla 4. flokkur kvenna

Viltu minnast látins ættingja eða vinar?

Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.

Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.

Verð: 12.400 kr.

Jákvæðari orka

á Suðurlandi

Skiptu yfir í jákvæðari orku á atlantsorka.is
ÞRAUTIR ÚTI ÓMAR VINDUR, EITLAR VETRAR MEIN. INN ERU HVERJAR KINDUR KOMNAR - NEMA EIN.

Bleikt Boð fyrir alla konur jafnt sem kalla

6. október kl. 19:30 í Höllinni

hjá Krabbavörn í Vestmannaeyjum (húsið opnar klukkan 19.00)

TINU TURNER SHOW með Bryndísi Ásmunds

Kiddi Bigfoot mun snúa skífunum eins og enginn sé morgundagurinn

Girnilegur ítalskur platti að hætti Einsa Kalda

BLUSH verður með kynningu

Happdrætti og allskonar skemmtilegt

Látið þetta ekki framhjá ykkur fara allt er þetta gert til að létta fólki lífið sem glímir við krabbamein

Daddi er kynnir kvöldsins

Miðaverð aðeins 3.000 kr. Hægt er að kaupa miða:

- í KUBUNEH

- við innganginn

- eða hjá Stínu Valtýrs 698-3354 / Þóru 868-4600

Bryndís Ásmunds

Frjáls framlög til Krabbavarnar kt. 6510902029 reikn.nr. 0582-26-2000

Höfum gaman - saman og látum gott af okkur leiða!

Krabbavörn

Vestmannaeyja

RAFMÖGNUÐ FJÖLSKYLDA

VERTU HLUTI AF KRAFTMESTU FJÖLSKYLDU LANDSINS

Jeep® fjölskyldan er án efa ein sú öflugasta sem þú munt kynnast. Meðlimir hennar koma í öllum stærðum og gerðum og engir tveir eru eins. Hvort sem þú ert í leit að traustum félaga fyrir þínar daglegu ferðir eða brjálaðri viðbót við líf þitt, þá er Jeep® með réttu lausnina fyrir þig.

Nýr Jeep® Grand Cherokee í fyrsta skipti í Plug-In-Hybrid útfærslu. Komdu og reynsluaktu – forsala hafin. Jeep® Renegade Plug-In Hybrid er hlaðinn aukabúnaði. Alvöru fjórhjóladrif með lágu drifi. Til afhendingar strax. Rafmagnaður Jeep® Compass Plug-In Hybrid skilar þér hvert sem er. Alvöru fjórhjóladrif með lágu drifi. Til afhendingar strax. Besta drifgetan í einstökum Jeep® Wrangler – fyrir þá sem þrá að lenda í ævintýrum. Til afhendingar strax. Goðsögnin rafmögnuð. Jeep® Wrangler Plug-In Hybrid með 35", 37" og 40" breytingapökkum í boði. Jeep® Avenger er fyrsti 100% rafknúni Jeep sögunnar og var valinn bíll ársins í Evrópu.
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • JEEP.IS • ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Tígull 31. tbl 05. árg. by Leturstofan - Issuu