Skip to main content

Tígull 31.tbl 02árg

Page 1

31. tbl. 02. árg. 16. - 22. september 2020

- Einn af flugmönnum Ernis Pétur Jökull


K

YN

N

IN

G

KÍRÓPRAKTOR ÞJÓNUSTA Í EYJUM Ég leitaði fyrst til kírópraktors 15 ára gamall vegna verkja í mjóbaki sem voru farnir að leiða niður í fætur, þá sérstaklega á morgnana og þegar ég var undir miklu álagi í íþróttum. Samhliða breyttum venjum fann ég hvernig kírópraktík hjálpaði mér að ná settum markmiðum hvað varðar heilsuna mína og sem íþróttamaður. Þar kviknaði áhuginn á því að verða sjálfur kírópraktor og geta í samvinnu við skjólstæðinga mína hjálpað þeim að ná settum markmiðum. Ég legg mikið upp úr því að kenna fólki hvernig það getur hjálpað sér sem best sjálft.

Jón Bjarki Oddsson er Kírópraktor sem mætir til Eyja a.m.k einu sinni í mánuði og þjónustar þá sinn kúnnahóp. Þegar hann er ekki að taka á móti viðskiptavinum í Fótaaðgerðastofu Vestmannaeyja þá er hans aðalaðstaða í Kírópraktor Lindum en hann er stofnandi og meðeigandi þar. Og að sjálfsögðu eru allir Vestmannaeyjingar velkomnir þangað líka. Tígull tók létt spjall við Jón Bjarka sem fræddi okkur um þjónustuna.

Hverjir eru þínir helstu viðskiptavinir? -Mínir helstu viðskiptavinir er fólk með stoðkerfisvandamál, bakverki, höfuðverki, vöðvabólgu svo dæmi sé nefnt. Aftur á móti er það farið að aukast verulega að fólk er farið að hugsa í fyrirbyggjandi aðgerðum, þá helst íþróttafólk. Í framtíðinni verður það vonandi þannig að fólk fari að hugsa meira í fyrirbyggjandi starfsemi, alveg eins og við gerum flest með tannlækna.

Er þetta fyrir allan aldur? Já þetta er fyrir allan aldur Hversu oft ertu að koma til Vestmannaeyja? Í sumar var ég að koma tvisvar sinnum í mánuði en stefni á að koma ekki sjaldnar en mánaðarlega. Hvar ertu þá til húsa? Fótaaðgerðastofu Vestmannaeyja, hjá henni Valgerði Jónu. Hefur þú einhverja tengingu til Eyja? Pabbi minn og tengdamamma eru bæði fædd og uppalin í Eyjum. Amma mömmu megin er einnig úr eyjum, hún flutti upp á land fyrir gos. Fyrir þau sem hafa áhuga á að nýta sér þjónustuna sem þú býður upp á hvert á fólk að snúa sér? Hægt er að bóka tíma hjá Jóni Bjarka á heimasíðunni www.kirolindum.is eða í gegnum Noona appið og í síma 534-1010.

Segðu okkur aðeins frá þér: Ég útskrifaðist sem Kírópraktor (Doctor of Chiropractic) frá Life University í Atlanta, Bandaríkjunum. Samhliða kírópraktornáminu útskrifaðist ég einnig með gráðu í þjálfunarfræðum (e. Excercise Science) Ég var í unglingalandsliðum bæði í handbolta og golfi og stunda golfíþróttina enn í dag.

TÍGULL

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir. Forsíðumyndina á Jói Myndó.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


Auglýst er eftir umsóknum í Uppbyggingarsjóð Suðurlands Menningarverkefni

Atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni

Bætt menning, velferð og samstarf svo lífsgæði eflist og mannlíf á Suðurlandi blómstri

Öflugt atvinnulíf á Suðurlandi með aukinni nýsköpun, bættri framleiðni og fleiri fyrirtækjum

Kynnið ykkur áherslur og úthlutunarreglur sjóðsins á www.sass.is

UMSÓKNARFRESTUR RENNUR ÚT ÞRIÐJUDAGINN 6. OKTÓBER, KL. 16:00 RÁÐGJÖF UM ALLT SUÐURLAND

Ráðgjafar eru á starfsstöðvum um allt Suðurland. Umsækjendur eru hvattir til hafa samband við ráðgjafa á vegum SASS og fá aðstoð við gerð umsókna.

STYRKIR@SASS.IS

S. 480-8200

Uppbyggingarsjóður er hluti af

WWW.SASS.IS

Viðskiptavinir vinsamlegast athugið! Heilsueyjan Spa er búin að loka í því formi sem hefur verið hingað til. Við höfum ákveðið að loka versluninni okkar. Við bjóðum áfram upp á þær meðferðir sem við höfum boðið upp á í sama húsnæði á Vestmannabraut 28, við Hótel Vestmannaeyjar. Jackie er að minnka verulega við sig og á næstunni tekur hún bara á móti sínum föstu viðskiptavinum og fáum aukalega. Við munum afgreiða öll útgefin gjafabréf eftir okkar besta getu. Jackie mun ekki selja fleiri gjafabréf eins og er. Hægt að ná í okkur og bóka tíma: Jackie í s:865.4820 Guðrúnu Maríu í s:865.6339 (senda skilaboð) Jackie & Guðrún María


ANTON EGGERTSSON EINN AF EIGENDUM PÍTSAGERÐARINNAR

BJÓÐUM UPP Á NÝJUNGAR Í VETUR

Anton Örn Eggertsson er einn eigandi Pítsagerðarinnar. Anton er með mikla reynslu af matreiðslustörfum og komið víða við. Má þar sem dæmi nefna Nauthól, Gló, Tryggvaskála og sá hann um veitingadeild í Ilva Korputorgi. Árið 2017 flutti hann ásamt Hildi unnustu sinni til Spánar þar sem hann var ráðinn sem yfirkokkur á veitingastaðnum Bushwacka. “Vinnumenningin er öðruvísi Spáni og þar er unnið 6 -7 daga vikunnar. Ég mætti snemma til að undirbúa daginn en gat farið heim í 2-3 klst eftir hádegi og tók svo við törn til 23:00”, segir Anton. Bjóðum upp á heimsendingarþjónustu Til að byrja með verður opið frá miðvikudegi - sunnudags frá 17:30. Við munum bjóða Eyjafólki upp á heimsendingar áfram. Við fundum fyrir því í covid að fólk var ánægt með heimsendingarþjónustuna. Eins og staðan er núna er ekki grundvöllur fyrir því að hafa opið í hádeginu þar sem við höfum verið að bjóða upp á hlaðborð sem var mjög vinsælt en vegna covid þá erum við ekki með það í gangi.

Verðum með nýjungar í vetur Í vetur ætlum við að leika okkur aðeins og fara aðeins út fyrir kassann og bjóða upp á alls konar nýjungar. Leyfa heimafólki að smakka rétti sem er vanalega ekki í boði á íslandi. Við ætlum að taka eitt land fyrir og búa til rétti líkt og þú myndir fá í því landi. Eins og t.d taco þá verður það eins og þú mundir fá það á götuhorni í Mexíkó. Pastaréttir þar sem við gerum pastað frá grunni með góðu hveiti og eins og þú myndir fá Ítalíu. Áherslan er lögð á að hafa eins nálægt upprunanum eins og hægt er. Hvað gerir pítsu frá Pítsagerðinni einstaka? “Við leggjum mikla áherslu á deigið okkar, einnig er mikið lagt í sósuna. Deigið er sama undirstaðan frá upphafi en með litlum breytingum. Við notum sérinnflutt ítalskt hveiti og erum með ákveðna röð þegar við hnoðum deigið. Til að ná því besta út úr hráefninu. Þetta er ótrúlegt ferli en það getur verið svo mikill munur á svona tilfærslum. Nú höfum við

unnið með þetta á þriðja ár og litlu breytingarnar eru að skila sér. Deigið er kaldhefað áður en það er notað til að leyfa glúteninu að brjóta sig niður. Leggjum áherslu á að kaupa inn gott hráefni sem skila sér í frábærri vöru ef það er meðhöndlað rétt. Í rauninni er eldbakstur meiri vísindi en hefðbundinn pítsabakstur. Hitastig skiptir miklu máli, hitastigið á bæði deigi og ofni skiptir miklu máli og fer hitastig og þroskastigið á deiginu eftir hvernig við stillum ofnin bæði botnplötu og “dome” hitann. Að vera með góðan ofn skipti líka töluverðu máli og ég myndi segja að hann væri með þeim bestu á heimsmælikvarða. Sósan er eins einföld og við getum mögulega haft hana og fáum ítalska plómutómata frá ítalu sem ræktaðir eru við rætur eldfjalls á San Marzano”, segir Anton sem hefur mikla ástíðu fyrir pítsubakstri. Enda fara flestar hans utanlandsferðir í lestur bæði um pítsabakstur og matreiðslu.


Wood burning oven &

T

SEN

T

SEN

TILBOÐ 1 G - special, pepperoní pítsa & hvítlauksbrauð

beer from local brewery

TILBOÐ 2

pítsa með 3 áleggstegundum nutella gott & 2 L gos

4.990 kr.

TT

SÓ

TT

pítsa með 3 áleggstegundum val um hvítlauksbrauð, margaritu eða brauðstangir & 0.5 L gos

3.790 kr.

5.190 kr.

TT

SÓ

TILBOÐ 2

tværi pítsur með 2 áleggstegundum, val um margaritu, hvítlauksbrauð eða brauðstangir & 2 L Gos

5.190 kr.

TILBOÐ 3 tvær pítsur með 3 áleggstegundum val um hvítlauks eða brauðstangir

3.790 kr.

SÓ

TILBOÐ 1

T

SEN

TILBOÐ 3 G - special, sparibrauðstangir & 2 L gos

4.290 kr.

pantanir í síma: 551 0055 #PITSUGERDIN /PÍTSUGERÐIN PÍTSUGERÐIN / BÁRUSTÍG 1 PITSUGERDIN@GMAIL.COM


UNNIÐ AÐ LAUSN Í SAMGÖNGUMÁLUM EYJANNA:

ÓMAR GARÐARSSON omar49@simnet.is Býður upp á einu öruggu utanlandsferðirnar Það var mikið högg fyrir Vestmannaeyjar þegar flugfélagið Ernir tók ákvörðun um að hætta áætlunarflugi til Vestmannaeyja um síðustu mánaðamót. Um svipað leyti var öllu starfsfólki Herjólfs ohf. sagt upp vegna erfiðrar stöðu félagsins. Ástæðan hjá báðum er helst færri farþegar og minni flutningar sem rekja má til heimsfaraldursins sem kenndur er við Covid 19. Herjólfur siglir áfram en síðasta flug Ernis var föstudaginn 4. september. Bæjarstjórn lítur stöðuna í samgöngum mjög alvarlegum augum og hefur rætt við þingmenn kjördæmisins, samgönguráðherra, fjármálaráðherra og vegamálastjóra. Í samtali við Tígul á mánudaginn staðfesti Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri að þreifingar og vinna séu í gangi. „En það er ekkert sem getur orðið opinbert á þessum tímapunkti,“ sagði Íris. Svipað kom fram hjá Ásgeiri Erni Þorsteinssyni, samskiptaog markaðsstjóra hjá Erni. Hann kannaðist við að málið sé rætt sem gefur vonir um að lausn finnist. Í bókun bæjarráðs í síðustu viku er áréttað mikilvægi þess að áætlunarflug sé til og frá Vestmannaeyjum og óskað eftir að

ríkið og Vegagerðin leysi úr málinu fljótt og örugglega. „Ríkið ber ábyrgð á að tryggja samgöngur á landinu. Vestmannaeyjabær gerir þá eðlilegu kröfu að reglulegum flugsamgöngum verði komið á að nýju eins fljótt og mögulegt er.“ Markviss markaðssetning Ferðmálsamtök Vestmannaeyja sendu frá sér ályktun á mánudaginn. Þar segir m.a. að besta leiðin til að endurreisa flugsamgöngur sé að skapa eftirspurn eftir Vestmannaeyjum. „Markaðssetja þær markvisst, skilgreina ferðaþjónustuna sem iðnað og tækifæri til uppbyggingar og atvinnusköpunar. Nýta þau augljósu tækifæri sem felast í magnaðri náttúru og merkilegri sögu sem Vestmannaeyjar eiga. Virkja mun betur þá fjárfestingu sem liggur nú þegar í ferðaþjónustunni, samtals um sex milljarðar, í söfnum, gistingu, þjónustu og afþreyingu. Horfa til framtíðar, byggja upp og stækka,“ segir í ályktuninni og bent á að reynslan sýni að tilraun í markaðssetningu fyrir innanlandsmarkað í sumar hafi gefist mjög vel og reynst góð fjárfesting. Halda þurfi áfram á sömu braut. „Í þetta þarf eingöngu framtíðarsýn og kjark til að framkvæma hana.“ Mikið í húfi Fólk í ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum hefur eðlilega áhyggjur af

stöðunni. „Maður gat séð þetta nokkuð fyrir. Þetta var þungur rekstur hjá þeim og ég var mest hissa á því hvað þeir voru búnir að hanga lengi á þessu. En maður sýnir þessu fullan skilning,“ sagði Gunnar Ingi Gíslason, hjá Víkingferðum þegar hann var spurður að því hvort ákvörðun Ernis hefði átt að koma á óvart. Hann sagðist reikna með því að róið sé að því öllum árum að leysa þennan hnút. Mikið sé í húfi, það finni hann á eigin skinni. „Núna erum við að bjóða upp á hópferðir til Vestmannaeyja fyrir minni hópa. Stíla inn á saumaklúbba og vinahópa og höfum náð frábærum samningum við hótel og veitingastaði. Getum boðið mjög góð verð og alveg synd að geta ekki flogið fólkinu yfir. Þó fluginu sé bætt inn í er þetta mjög hagstæður pakki. Ég held að ég sé eina ferðaskrifstofan á landinu sem er að bjóða upp á öruggar utanlandsferðir. Engin skimun, engin sóttkví, bara stuð og stemmari sagði Gunnar Ingi. Það er ljóst að mikil vinna er framundan að koma áætlunarflugi aftur í gang. Ernir njóta trausts og velvilja í Eyjum en dæmið verður að ganga upp. Bæjarstjórn hefur staðið saman í þessum slag sem er vísasta leiðin til árangurs. Gangi það ekki mun mörgum bregða við að geta ekki flogið til og frá Eyjum í vetur.


g i n n i e r KÓPAL 4 e ri litum k k e d í g e fáanl

SKRÚFAR UPP, SMELLIR SAMAN, MÁLAR! EKKERT SPARTL!

30% Afsláttur

af innimálningu

/midstodin Strandvegur 30 / 481 1475 www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is


LJÚFFENGUR VEGAN POTTRÉTTUR - Uppskrift vikunnar -

Pottréttur hráefni: 1-2 msk kókosolía 1 laukur 1/2 jalapeno 2-3 cm ferskt engifer 1 sæt kartafla 2 stilkar sellerí 1 lítið brokkolíhöfuð 3-4 gulrætur 1 rauð papríka 1 bolli rauðar linsubaunir. Krydd: 2 msk hollur grænmetiskraftur 1/4 tsk kardimomma 1/4 tsk kanill 1/2 tsk karrí 1/2 tsk turmeric 2-3 lárviðarlauf nokkur svört piparkorn smá maldonsalt 1/2 líter vatn 1 dós kókosmjólk 3 dl maukaðir tómatar í flösku.

Þessi uppskrift er frekar stór eða fyrir ca. 6-8 manns. Sniðugt er að elda mikið og taka með í nesti daginn eftir. Aðferð: Byrjið á að skera allt grænmetið niður. Skerið laukinn frekar smátt og mýkjið hann í olíu en ekki brúna. Skerið engiferið og jalapeno-ið smátt niður og setjið út í. Bætið síðan við sætu kartöflunni, selleríinu, gulrótunum, brokkolíinu og paprikunni. Kryddið. Setjið svo vatnið út í og látið malla í ca. 1/2 tíma þannig að rétt sjóði. Ekki hafa of mikinn hita. Hreinsið linsubaunirnar og setjið út í. Bætið tómötunum í flösku og kókosmjólkinni út í. Látið malla í 1/2 tíma. Því lengur sem þið getið látið réttinn vera í pottinum.

Vegan súkkulaðimús Einföld uppskrift að vegan súkkulaðimús. Aðeins tvö hráefni. Mjög góð borin fram með fullt af ferskum berjum. hráefni: 1 peli AITO jurtarjómi 50g 71% súkkulaði frá Himneskt Aðferð: Þeytið jurtarjómann í hrærivél, virkar ekki jafn vel að handþeyta. Fylgist vel með að þeyta ekki of mikið. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. Kælið súkkulaðið í smá stund og hrærið síðan rólega saman við rjómann í hrærivélinni. Passið aftur að hræra ekki of mikið.


HÖNNUN UMBROT Á AUGLÝSINGAEFNI LJÓSMYNDUN IÐNAÐARLJÓSMYNDUN VÖRUMYNDATAKA MYNDVINNSLA GREINASKRIF AUGLÝSINGASALA PRENTUN FJÖLFÖLDUN SKÖNNUN & RÁÐGJÖF

LETURSTOFAN | STRANDVEGUR 47 | LETURSTOFAN @ LETURSTOFAN.IS

ÞÚSUND ANDLIT HEIMAEYJAR SÍÐASTI SÉNS TIL AÐ TAKA ÞÁTT! FIMMTUDAG 24. september kl. 16:00 - 18:00

LAUGARDAG 26. SEPTEMBER kl. 13:00 - 19:00

FÖSTUDAG 25. SEPTEMBER kl. 16:00 - 19:00

SUNNUDAG 27. SEPTEMBER kl. 13:00 - 18:00

Mættu á Leturstofuna Strandvegi 47 og láttu smella af þér!


SUDOKU

ORÐAÞRAUT

SPIL GALDUR HJARTA TÍGULL LAUF TROMP NÓLÓ TVISTUR KÓNGUR DROTTNING


Aðstoðamaður óskast 28 ára karlmaður óskar eftir aðstoðarkonu/ manni, 20 ára eða eldri, til að aðstoða sig við daglegt líf. Starfið felst í umönnun, stuðningi og heimilisþrifum. Áhugamál hans eru tölvuleikir, bíómyndir og rokktónlist. Á heimilinu eru 4 hundar sem slefa ekki né fara úr hárum.

Á AÐ SKORA Á FÉLAGANA?

KOMDU OG KÍKTU VIÐ! MÁN - ÞRI - MIÐ OPIÐ FRÁ 17:00 - 23:00 FIM - FÖS - LAU - SUN OPIÐ FRÁ 16:00 - 23:00

Vaktir sem vantar á eru eftir samkomlagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningum. Viðkomandi verður að hafa bílpróf, hreint sakavottorð og tala eitthvað í íslensku. Áhugasamir sendi ferilskrá ásamt fyrirspurnum á netfangið heilsueyjan@gmail.com eða hafið samband við móður mannsins Jackie í S: 865-4820

/crispus

Við munum halda áfram að hafa opið en með breyttu sniði. Stofan verður opin eftir tímapöntunum en síminn verður alltaf opin fyrir pantanir Sími 772-6766 Hrönn: 694-2655 /Svanhvít : 772-3332 Hlökkum til að sjá ykkur!

ÉG VERÐ Í EYJUM 25.- 27. SEPTEMBER TÍMAPANTANIR Í SÍMA 534-1010 EÐA Á HEIMASÍÐUNNI OKKAR: WWW.KIROLINDUM.IS /Eyjaþrif

Tannlæknar 14. - 17. september - Birta Þórsdóttir 6. - 9. október - Hjalti Þórðarson

Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40

Tímapantanir í síma 481-2772 Alþrif / Hraðþrif að utan / djúphreinsun o.fl


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 31.tbl 02árg by Leturstofan - Issuu