30. tbl. 03. árg. 6. - 13. október 2021
GÍSLÍNA MEÐ BLEIK GRAFÍKVERK TIL SÖLU - HLUTI SÖLUVERÐSINS FER TIL KRABBAVARNAR Myndin með þessum litum er aðeins gerð í 20 upplögum. Allar myndirnar eru innrammaðar, og eru með ivory rammaefni, sandstone karton og eru með gleri með glampavörn og 70% UV vörn. Stærð myndarinnar er 15x15 cm en með rammanum 31x31 cm. Myndirnar verða tilbúnar til afhendingar um miðjan október. Verðið á myndinni er kr:35.000.Gíslína Dögg Bjarkadóttir lista- Hér er um grafíkverk að ræða og fer 5.000 kr. af upphæðinni kona verður með bleik grafík sem er unnið með tveimur til krabbavarnar í Vestmannaeyjum. verk í tilefni af bleika október photopolymer plötum. til sölu. Hún verður aðeins með Að þessu sinni notast ég við 2 20 eintök og mun hluti sölu- liti, velvet black með smá gylltu Hægt er að panta myndina: verðsins renna til Krabbavarn- í til að fá þennan mjúka brún- gislina@gmail.com eða í síma sanseraða lit og antík bleikan. 862-1133 ar í Vestmannaeyjum.
TÍGULL
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
Bleikt boð 14. OKTÓBER KL. 19:00 Krabbavörn í Vestmannaeyjum stendur fyrir bleiku boði fimmtudaginn 14. október. Bleika boðið er haldið á veitingastaðnum Einsa Kalda og opnar húsið kl. 19:00 Glæsilegur matseðill verður í boði - Italian street food sem er á 5.000 kr. Hægt verður að taka þátt í happadrætti - Allir velkomnir!
ITALIAN STREET FOOD SUPPLI AL TELEFONON CON RAGÚ RISOTTÓ BOLLUR MEÐ BEIKON, PARMESAN OG ÍSBÚA-OSTI CROCHETTE DI PATATE DJÚPSTEIKTAR KARTÖFLUR-KRÓKETTUR PANZEROTTI INNBAKAÐIR SJÁVARRÉTTIR Í SMJÖRDEIGI, HÖRPUSKEL, HUMAR, RÆKJUR BIANCA CON PROSCIUTTO ÍTÖLSK SAMLOKA MEÐ PARMASKINKU, MOZZARELLA, BASILÍKU OG TÓMÖTUM SPINACI E FORMAGGI CANNELLONI SPÍNAT OG OSTA CANNELONI SPÍTNAR, MASKARPONE, RICOTTA, TÓMATSALSA, PARMESAN
Bleiki dagurinn 15. október 2021 Á Bleika deginum hvetjum við vestmannaeyinga til að bera slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu. Hvernig væri nú að skipuleggja bleikt morgunkaffi í vinnunni eða heima fyrir? Einnig er tilvalið að klæðast bleikum fötum í tilefni dagsins. Heimili og vinnustaðir hafa verið dugleg við að smella einhverju góðgæti í ofninn og skreyta í tilefni dagsins. Einhverjar verslanir verða með tilboð á þessum degi. 900 Grillhús ætlar að vera með tilboð á sóttum pizzum og ágóðinn rennur til Krabbavarnar.
KRABBAVÖRN Í VESTMANNAEYJUM
Þóra Hrönn í Kubuneh var að tína fram bleikar vörur til að stilla upp út um allt í búðinni sinni og salan á öllum bleikum vörum sem seljast í oktober renna til Krabbavarnar. Hún vill benda fólki á að fá sér eitthvað bleikt til að vera í, í Bleika boðinu.
KÆRU KJÓSENDUR Í SUÐURKJÖRDÆMI
Fyrir hönd frambjóðenda Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi vil ég þakka fyrir stuðning ykkar og hvatningu í aðdraganda kosninga til Alþingis Íslendinga 25. september síðastliðinn. Við munum leggja okkur fram við að vinna að framgangi jafnaðarstefnunnar hér eftir sem hingað til.
Ég óska öðrum kjörnum þingmönnum til hamingju og vonast eftir þéttara samstarfi en áður um hagsmuni íbúa í Suðurkjördæmi. Í kosningaáherslum okkar lögðum við í Samfylkingunni höfuðáherslu á heilbrigðismálin og á að heilsugæsla í heimabyggð væri fyrir alla. Við lögðum fram skýra sýn á hvernig bæta mætti kjör eldra fólks og öryrkja. Barnabætur að norrænni fyrirmynd með óskertum barnabótum að meðallaunum er einnig forgangsmál okkar. Við leggjumst gegn sérstökum vegaskatti á Sunnlendinga fyrir sjálfsagðar vegabætur líkt og með nýrri brú yfir Ölfusá. Nýsköpun í atvinnumálumn og öflugar menntastofnanir, þar á meðal Garðyrkjuskólinn að Reykjum, skipta verulegu máli fyrir búsetuskilyrði um allt kjördæmið. Umferðaröryggi er víða ábótavant og
Baðlón ofan við Skansinn Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti 16. september 2021 skipulagslýsingu vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 og nýs deiliskipulags til að gera ráð fyrir baðlóni ofan við Skansinn. Skipulagsgögnin eru til sýnis hjá Umhverfis- og framkvæmdasviði Skildingavegi 5, frá og með 23 september 2021 til og með 21. október 2021 og má einnig finna í skipulagsgátt á vefsíðu sveitafélagsins: www.vestmannaeyjar.is Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 21. október 2021 í afgreiðslu Umhverfis- og framkvæmdasviðs eða á netfangið dagny@vestmannaeyjar.is
efla þarf lögreglu og viðbragðsaðila til muna. Ég mun í starfi mínu sem þingmaður halda áfram að vinna ötullega að þessum málum. Okkar draumar og hugsjónir í Samfylkingunni snúast um velferð fyrir alla. Að verja hagsmuni vinnandi fólks, verja mannréttindi og verja almannahagsmuni gegn rótgrónum sérhagsmunum hér á landi. Það er hlutverk okkar jafnaðarmanna og við megum aldrei sofna á verðinum. Við erum andstæðingar ranglætis og spillingar og viljum að langtímafjárfesting samfélagsins sé í menntun, heilsugæslu og umönnun barna. Bestu kveðjur, Oddný G. Harðardóttir
MIÐBÆJARFÉLAGIÐ HEIMABÆR HEFUR VERIÐ STOFNAÐ
24. september 2021 var stofnað félag áhugasamra eyjamanna um fegurri miðbæ. Heimabær er nafn hins nýja félags og verður það rekið af stjórn sem eiga þá ósk heitasta að búa okkur öllum fegurri miðbæ, þeim sem hér búa, þeim sem brottfluttir eru og þeim sem okkur heimsækja. Öll vinna stjórnar verður unnin í sjálfboðastarfi. Áhugasamir geta
gengið í félagið og mun allur ágóði árgjalda og frjálsra framlaga renna beint til uppbyggingar miðbæjarins. Bæði í að gera hann meira aðlaðandi, afmarkaðri, áhugaverðari og síðast en ekki síst fegurri. Í boði er að styðja við félagið með frjálsum framlögum og/eða að gerast félagi með greiðslu 5000, 10.000 eða 15.000 kr. árgjalds.
Tilgangur félagsins er að vinna að og hvetja á jákvæðan hátt að uppbyggingu miðbæjarins enn frekar. Öll vinna félagsmanna er unnin í sjálfboðavinnu. Stofnendur félagsins eru Arndís Kjartansdóttir, Theodóra Ágústsdóttir, Berglind Sigmarsdóttir, Sigrún Arna Gunnarsdóttir og Sara Sjöfn Grettisdóttir.
NÆRINGARÞJÁLFUN Sigurjón Ernir hjá UltraForm er að hefja Næringaþjálfun sem snýst um að byggja upp langtíma árangur í mataræði. Markmið næringarráðgjöf UltraForm er að hjálpa þér að læra inn á matvæli, byggja góðar venjur og ná langtíma árangri á þínu mataræði á sem heilbrigðasta og einfaldastan hátt. Við ætlum ekki að fara í einhvern ákveðinn kúr né borða kjúklingabringu með hrísgrjónum og brokkolí í öll mál og seint svelta þig alveg á kolvetnum. Við færum þér hugmyndir af hollum máltíðum, benda þér á réttu matvælin og höfum hlutföll próteina, fitu, kolvetna og trefja yfir daginn nokkuð rétt út frá langtíma sýn á hollu mataræði.
Ef þú vilt öðlast stjórn á þínu mataræði og líða sem best í eigin skinni þarftu að vita að það eru margir þættir sem spila inn í og við munum vinna með: máltíðaskipan, blóðsykursstjórn, föstur, macros/orkuefna skiptingu (fita, prótein, kolvetni og trefjar), bættum svefni, hvíld, hreyfingu, stressi, og fleiru.
Við viljum hjálpa þér að byggja upp heilsusamlegan lífsstíl sem er ekki of flókinn með það í huga að þú getur haldið þig við þann lífstíll til lengri tíma og um leið náð betri orku yfir daginn hvort sem þú æfir af kappi líkt og ég eða æfir ekkert.
Fyrsta námskeiðið er orðið fullt en hægt er að skrá sig á biðlista undir þjálfuninni á Sportabler eða senda póst á ultraform@ultraform.is
HLAUP Í GALWAY 2. OKTÓBER 2021 26 manna hópur frá Vestmannaeyjum fór saman til Írlands í hlaup í bænum Galway síðustu helgi. Það voru tæplega 1800 manns sem tóku þátt í Galway Run í ár. Allur ágóði af hlaupinu fer til styrktar ungrar konu og barna hennar sem missti mannin sinn fyrr á árinu. Alls tóku 22 þátt í hlaupinu af 26 manna hópnum. Tveir fóru heilt maraþon 42,2 km þeir Carlos Guani og Bjarni Ólafur Guðmundsson. Fimm úr hópnum fóru hálft maraþon 21,1 km. Thelma Gunnarsdóttir, Þröstur Jóhannsson, Anna Lilja Sigurðardóttir, Elís Jónsson og Þorgeir Friðgeirsson. Fimmtán hlupu 10 km, Kata Laufey, Jón Helgi, Gunnar Ingi, Auður, Kolbrún, Birgir, Guðrún Mary, Magnús, Adda, Lára Dögg, Huginn, Gyða, Þóranna, Elín og Guðrún Lilja. Mikil gleði var hjá hópnum og allir komu vel út úr þessu hlaupi, þótt Carlos hafi þurft að hætta í 35 km vegna eymsla í hnjám þá var hann sáttur með sitt. Margir persónulegir hlaupurunum.
sigrar
hjá
Fyrsta maraþonið í hús - klikkuð upplifun Bjarni Ólafur Guðmundsson (58 ára ) eða Daddi eins og við þekkjum hann flest, hljóp sitt fyrsta heilmaraþon 42,2 km um helgina. Af hverju kom þessi hugmynd upp? Guðrún mín sá þetta hlaup auglýst í mars á þessu ári en Galway er hennar heimabær á Írlandi. Ég var búin að hugsa um það lengi að gaman væri að taka heilt maraþon fyrir sextugt. Þarna var tækifærið og ég lét bara vaða.
Hvenær byrjaðir þú að æfa fyrir hlaupið? Ég byrjaði markvissar æfingar 7. júní eða 16 vikum fyrir hlaupið góða. Hvað var erfiðast í æfingarferlinu? Það er að halda aga og fara eftir planinu, í 99% tilfella hljóp ég einn og það er bæði gott og slæmt. Ég hefði samt alltaf kosið félagsskapinn. Hvernig var vikan fyrir hlaup? Hún var spennuþrungin, ég var að glíma við magavesen, iðrabólgu og hita og á fimmtudaginn var ég í raun búin að ákveða að hlaupa ekki. En svo kom föstudagurinn og ég var allur orðinn betri og hópurinn sem ég var í hvatti mig áfram og kom með góð ráð og ég lét slag standa. Hvað var erfiðast við hlaupið? Það var tvennt, annars vegar að þurfa að glíma við magavesen, sem lagaðist eftir klósettferð í miðju hlaupi og svo þegar ég var kominn á 39 km, en
þá gat ég ekki haldið þeim hraða sem ég ætlaði að enda á. Þá komu upp ráðin frá vinum að njóta og ég hægði bara á og naut þess að koma í mark með hópinn allan á hliðarlínunni sem var algjörlega klikkuð upplifun. Þegar ég heyrði í hópnum gaf ég allt í þetta og fór svo beint til hliðar eftir að markinu var náð og ældi úr með lungun. Ég viðurkenni það að ég átti pínu erfitt þegar ég sá elsku Guðrúnu mína álengdar eftir að hafa tekið við Maraþonmedalíunni. Þetta eru miklar og geggjaðar tilfinningar - stórkostleg upplifun. Okkur Guðrúnu langar að koma á framfæri æðislegum þökkum til allra í hópnum. Þetta var samhentur og flottur hópur, æðislegt að upplifa alla þessa fallegu sigra sem fólk var að ná í hlaupinu segir Daddi að lokum.
Hópurinn sáttur eftir góða mat
Nokkrir að byrja 21 km hlaupið
Kata Laufey vann Gunnar Inga með 1 sek
Guðrún Lilja og Þröstur
Biggi og Kolla
Allir tilbúnir í 10 km
10 km hópurinn
Elín og Þorgeir
Theó og Carlos
Auður og Gunnar Ingi
Thelma og Gyða
Elís og Þóranna
Guðrún og Daddi
HERMANN HREIÐARSSON ÞJÁLFAR ÍBV NÆSTA SUMAR
LÍFLEGUR OG ÖFLUGUR MIÐBÆR ER AÐDRÁTTARAFL
Á dögunum var stofnað félag áhugasamra eyjamanna um fegurri miðbæ. Heimabær er nafn hins nýja félags og verður það rekið af stjórn sem eiga þá ósk heitasta að búa okkur öllum fegurri miðbæ, bæði þeim sem hér búa, þeim sem brottfluttir eru og þeim sem okkur heimsækja.
Hvernig kom það til að þú og ÍBV hófuð samræður? Ég fékk símtal frá Daníel Geir, formanni ÍBV, sem spurði hvort það væri ekki góð hugmynd að koma saman og ræða málin. Verandi Eyjamaður í húð og hár var það engin spurning. Verður þú búsettur hér allan tímann yfir undirbúningstímabilið og svo í sumar? Já, við fjölskyldan erum að undirbúa flutning á eyjuna fögru í byrjun janúar. Mun fjölskyldan líka flytja til Eyja? Já, við Alexandra erum með stóra fjölskyldu og það kom aldrei annað til greina. Þrír litlir verðandi eyjapeyjar og svo er spurning hvort ég fái dæturnar ekki í ÍBV í sumar! Sérðu fyrir þér miklar breytingar á leikmannahópi? Nú hefst vinnan að alvöru og ég fer strax í að kynnast hópnum og svo leiðir tíminn í ljós hvaða breytingar verða. Ertu með einhvern í huga sem verður þér til aðstoðar, aðstoðarþjálfari? Vissulega, það er allt í vinnslu. Er eitthvað sem þú myndir vilja koma á framfæri? Við fjölskyldan erum full tilhlökkunar að gera okkur heimili á eyjunni og ég er gríðarlega spenntur að taka til starfa við þetta frábæra tækifæri - það verður taumlaus gleði á Hásteinsvelli næsta sumar! Sjáumst á vellinum ! Takk fyrir Hermann
Félagið er stofnað af áhugafólki um fallegan miðbæ í Vestmannaeyjum. Tilgangur félagsins er að vinna að og hvetja á jákvæðan hátt að uppbyggingu miðbæjarins enn frekar. Öll vinna félagsmanna er unnin í sjálfboðavinnu. Stofnendnum finnst að það þurfi að skilgreina miðbæinn betur, þannig að fólk taki eftir því hvar í raun miðbærinn er. Skapa heildarsýn í útliti og virkni „Markmiðið er að stuðla að samvinnu fyrirtækja í verslun og þjónustu ásamt íbúum í miðbænum til þess að fegra miðbæinn og skapa heildarsýn í útliti og virkni. Félagið sér fyrir sér litríkari miðbæ með aukna áherslu á liti og listir og er okkar von að miðbærinn verði miðja viðburða og umgjörðinn aðlaðandi til þess að þar skapist líf og samvera bæjarbúa á öllum árstíðum,“ sögðu stofnendur. Standa vörð um verslunarhúsnæði og varðveita gömul hús Félagið vill standa vörð um verslunarhúsnæði í miðbænum. „Of mikið af verslunarrými hefur verið breytt í íbúðir sem hefur í för með sér óæskilegar breytingar til þess að halda uppi líflegum miðbæ. Félagið vill einnig hvetja Eyjamenn til þess að varðveita gömlu húsin, þau eru menningararfur. Verndun og endurreisn gamalla húsa er mikilvægt og hægt er að sækja um styrkji í þeirri vinnu,“ sögðu þær. Fallegur og líflegur miðbær laðar að „Aðlaðandi miðbær hefur gríðarlega mikið að segja fyrir bæjarfélagið, það vilja allir bæjarbúar hafa fallegan miðbæ í sinni heimabyggð. Fallegur og líflegur miðbær laðar að sér gesti sem skapar líf í bænum og er gott fyrir fyrirtæki í verslun og þjónustu. Einnig getur líflegur og öflugur miðbær verið aðdráttarafl þegar fólk er að hugsa um fluttninga til Vestmannaeyja,“ sögðu þær að lokum.
TIL SÖLU GLÓFAXI VE 300 Almenn lýsing: Nýr plastbátur smíðaður í Bretlandi. Lengd skips 10,6 m. Breidd skips 3,39 m. Kjölur lagður árið 2017. Lokið við smíði og frágang hér á landi árið 2021. Haffæriskírteini 2021. Olíutankur 1500 L. Vatnstankur 42 L. Lestin rúmar kör fyrir ca. 5. tonn af fiski. Tveir startgeymar og tveir neyslugeymar. Vickers glussakerfi fyrir línu- og netaveiðar. Bátnum geta fylgt 5 DNG rúllur ef þannig semst.
Frekari upplýsingar veitir Lúðvík hjá Bona Fide lögmönnum s: 533-5577
VERÐ: 57 milljónir NÁNARI LÝSING: Vél: John Deere árg. 2021, 400 hö., 2800 RPM, 298 kw. Gír ZF með snuði Vinnuhraði 14 - 16 mílur Vélin hefur verið keyrð u.þ.b. 150 tíma Hliðarskrúfa að framan Dýptarmælir Furuno Time Zero Siglingatölva Furuno Radar. Loftnet Comrod Furuno VHF talstöð SC-70 Furuno GPS áttaviti Furuno sjálfstýring
GPS tæki. Áttaviti
Ný smúldæla
2 reykskynjarar
2 Nýir björgunargallar
1 Hitaskynjari
2 ný björgunarvesti
Viðvörunarbúnaðar varðandi sjó í vél
Inverter 3.300 w.
Örbylgjuofn Vaskur Útvarp
Björgunarbátur með Sigmund S 4000 sleppibúnaði Dekk sem rúmar 4 þrjúhundruð lítra kör og 1 fimmhundruð lítra kar
Ais
WC Myndavél í vatnsheldu húsi uppi á brú, og einnig myndavél í vél
Útistýri og inngjöf
Nýtt haffæriskírteini
legubekkir í lúkkar
Webasto
TASTE SUPER DAIRY
TVEIR FYRIR PRÓTEIN EINN BOOZT ALLA SUNNUDAGA
VERTU MEÐ OKKUR *2 fyrir 1 gildir fyrir allar skálar, safa, boozt og **vefjur. Gildir ekki með öðrum tilboðum. **Vefjur eru aðeins seldar í Fossvogi, á Reykjavíkurvegi, í Vestmannaeyjum og á Selfossi.
@leturstofan /leturstofan
HEIMADECOR OPNAR Á NÝJUM STAÐ Sigrún Arna opnaði nýja og glæsilega verslun síðastliðinn laugardag. En hún keypti hluta af húsnæði Geisla. Hún ásamt Halldóri Inga manninum sínum tóku þetta í gegn og er verslunin hin glæsilegasta. En Sigrún býður upp á ráðgjöf við innanhúshönnun og er með fallegar vörur fyrir heimilið í versluninni. Við óskum Sigrúnu og Halldóri til hamingju með þetta.
MEÐ ÖLLU
HOT DOG WITH EVERYTHING
329 kr.
CROISSANT & COFFEE
349 kr. Tilboð gilda út október 2021
N1 Vestmannaeyjar