Tígull 30. tbl 05. árg.

Page 1

Sindri Þór Friðriksson:

BYRJAÐI AÐ MISSA

HÁRIÐ DAGINN

FYRIR FERMINGU

30. tbl. 05. árg. 20. - 26. september2023

UMHVERFISVIÐURKENNINGAR 2023

Umhverfisviðurkenningar

Rótarí og Vestmannaeyjabæjar voru afhentar síðastliðinn föstudag.

Umhverfisviðurkenningar

árið 2023 eru:

Snyrtilegasta fyrirtækið: Brothers Brewery

Snyrtilegasti garðurinn: Vestmannabraut 12-20

Snyrtilegasta eignin: Heiðarvegur 49. Ólöf Helgadóttir og Kristján Möller.

Vel heppnaðar endurbætur: Póley

Viðurkenningu fyrir framtak á sviði umhverfismála: Marínó Sigursteinsson

Tígull óskar þeim sem viðurkenningu hlutu til hamingju.

TÍGULL

DREIFING:

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó. Forsíðumynd/Addi í London.

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

ÚTGÁFA:

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

Jóna Sigga og Marínó. Jóna Sigga, Sara Sjöfn, Bergur og Adam Orri. Póley.

Fjölbreyttir FISKRÉTTIR á FRÁBÆRU verði

Fiskur og franskar kr. 2.490,-

Fiskur í sítrónusósu kr. 2.950,-

Fiskur í súrsætri sósu kr. 2.950,-

Fiskur í kung pow kr. 2.950,-

Fiskur í satay kr. 2.950,-

Fiskur í karrý kr. 2.950,-

Fiskur í svartpiparsósu kr. 2.950,-

NÝTT á matseðli:

Fiskur í rjómasinnepsósu kr. 2.950,-

Fiskborgari og franskar kr. 2.490,-

Jóna Sigga og Eydís. The Brothers Brewery. Vestmannabraut 12-20.
Opið alla daga 17:00 - 20:30 Strandvegur 49 | s. 537 1930 Á MATEY líkt og alla aðra daga teflum við fram einum
fiskikokki landsins, WANG.
Hlynur Vídó og Jói
fremsta
Skilið eftir af einum gesta okkar að lokinni himneskri máltíð.
/Sæland fish restaurant

ÓLÖF OG BASSI MEÐ SNYRTILEGUSTU EIGNINA 2023

Ólöf Helgadóttir og Kristján Möller (Bassi) hlutu viðurkenningu fyrir snyrtilegustu eignina 2023. Blaðamaður Tíguls leit í kaffi til þeirra hjóna á Heiðarveginn. Það má með sanni segja að þau séu vel að þessari viðurkenningu komin. Gullfalleg utan sem innan. Mikil ást og umhyggja hefur farið í að gera eignina eins fallega og hún er í dag. Hvort sem það eru trén, runnarnir grasflöturinn, húsið sjálft, og tala nú ekki um að innan. Myndirnar tala sínu máli. Það væri vel hægt að fá Ólöfu til að sjá um innanhúshönnun og þá Bassa meira um utanhús hönnunina en Ólöf segir að hann hafi fengið að ráða meiru með gróðurinn.

Þau keyptu Heiðarveginn árið 2003 sem eru þá 20 ár síðan. Eins og Bassi segir: svo þegar maður er komin hringinn með allt viðhald þá er komið að því að byrja aftur. Þau sneru öllu við inni, máluðu alla hurðar og glugga sem voru dökkar áður, eldhusið var tekið í gegn 2008, baðherbergið í covid 2020. Það er sem því aldrei dauð stund hjá þeim hjónum.

Glæsilegur pallur er á bakvið hús.

Staðsettnig húsins er alvega fullkomin sérstakelga fyrir ungt fólk með krakka í skóla, þar sem þú eruð mitt á milli Barnaskólans og íþróttamiðstöðvarinnar, þau hafa fengið þó nokkrar fyrirspurnir um að hvort þau séu til í að selja húsið. En það er ekki á dagskrá hjá þeim hjónum enda líður þeim ljómandi vel í húsinu.

HÉLDUM AÐ RAKARINN HAFI ÓVART RAKAÐ OF LANGT

Eru önnur einkenni sem að þú finnur fyrir? fyrir utan að fá blettaskalla? Nei, það sem ég er með er Alopicea areata sem er blettaskalli af Alopicea en svo er einnig til alopicea universalis sem lætur þig missa allt hár eins og vinkona mín hún Adrianna Anna er með. Svo eru margir fleiri hlutir í gegnum þetta eins og eitt sem er bara skegg og sumt bara í augabrúnum.

Þú ert svo ungur, þetta hlýtur að hafa verið áfall að greinast með þennan sjúkdóm?

Ég var nú svo sem ekki endilega sáttur að greinast með þetta en mér leið aldrei illa því ég hugsaði með mér að þetta færi á endanum en svo las ég mér til um þetta og varð mér þá ljóst að þetta mun alltaf fylga mér eins og staðan er í dag. Þetta er bara eitt verkefnið sem maður þarf að vinna með.

Er saga um sjálfsofnæmissjúkdóm í fjölskyldunni?

Ekki í nærfjölskydu og ekki sem ég veit af.

Sindri Þór Friðriksson hefur verið að takast á við sjúkdóminn Alopecia sem hann greindist með aðeins 14 ára gamall. Sindri er nú á tvítugsaldri og hefur undanfarið verið duglegur á samfélgasmiðlum að fræða fólk um sjúkdóminn og segja sín hlið. Foreldrar Sindra eru þau Hafdís Snorradóttir og Friðrik Þór Steindórsson og á hann tvær systur þær Rebekku Rut og Rakel Rut. Sindri segir þau hafa verið sín stoð og stytta í baráttunni við Alopecia. Blaðamaður Tíguls heyrði í Sindra.

Hvað er Alopecia?

Alopecia kallast blettaskalli á íslensku og er sjálfsofnæmissjúkdómur. Þetta þýðir að ónæmiskerfið lítur á hársekkina sem framandi hlut og ræðst á þá og eyðir hárunum. Sjúkdómurinn leggst jafn á karla, konur og börn og er algengari í fjölskyldum þar sem aðrir sjálfsofnæmissjúkdómar koma fyrir. Hármissirinn byrjar oft í kjölfar mikillar streitu, veikinda eða hormónabreytinga. Oftast fær fólk einstaka litla skallabletti á höfði, en stundum dettur allt hárið af, sem og augnhár, augabrúnir og jafnvel öll líkamshár. Sjúkdómurinn hefur oft mikil áhrif á líðan fólks og getur valdið kvíða og aukinni streitu. Oft vex hárið tilbaka en það getur tekið langan tíma. Erfitt er að meðhöndla blettaskalla en stundum er hægt að hafa áhrif á hárvöxtinn með sterakremum, sterasprautum og ónæmisbælandi lyfjum.

Hvenær byrjuðu einkenni Alopecia að koma fyrst í ljós hjá þér?

Ég man að þetta kom fyrst í ljós hjá mér 8. apríl 2017, daginn fyrir ferminguna mína. Fyrst héldum við að rakarinn hafi óvart rakað of langt með rakvélinni en það var nú ekki.

Eða er einhver annar í fjölskyldunni með Alopecia? Alopicea er ekki genatengt svo ef mamma þín og pabbi eru með það þýðir ekki að þú fáir það.

Varstu fyrir stríðni þegar að Alopecia fór að koma í ljós?

Í mínu tilfelli var ég lagður í einelti áður en ég fékk alopicea svo þetta var bara eitt annað vopnið sem var notað á móti mér. Eftir fyrstu 2 mánuðuna var ekki hægt að gera grín af mér lengur því ég byrjaði sjálfur að gera grín af þessu. Þótt ég hafi misst hárið þá þýðir það ekki að ég hafi misst húmorinn.

Hvernig líður þér með þetta í dag miðað við þegar þú varst fyrst að takast á við þetta?

Ég díla við þetta jafn mikið í dag og þegar ég fékk þetta fyrst því þetta er ekki skemmtilegast í heimi þegar þú hefur elskað hárið þitt svona mikið eins og ég. Þó svo að ég sé að berjast við fordóma þá læt ég það ekki hafa áhrif á mig og ég er sáttur við að ég sé að berjast við þetta frekar en Jói litli sjö ára drengur sem gæti ekki höndlað þetta.

Eru einhver skilaboð sem að þú vilt koma á framfæri varðandi sjúkdóminn? Eða til þeirra sem greinast? Ekki vera hræddur að vera þú, ég veit að margir hafa hárkollur til að fela þetta en þú þarft þess ekki, þú þarft aldrei að fela hver þú ert í raun og veru, ekki leyfa sjúkdómum að vinna. Þetta er bara eitt annað verkefni sem þú þarft að eiga við umfram aðra en alltaf vinnur þú á endanum.

Er til lækning eða ráð við sjúkdómnum?

Eins og staðan er í dag er ekki lækning til við þessu en það er verið að vinna í því.

Eitthvað að lokum?

Bara enn og aftur, og þetta er til allra, ekki láta sjúkdóminn vinna. Vert þú kóngurinn eða drottningin í þinni sögu.

Janúar
2020

DAGSKRÁ OPNUNARVIÐBURÐAR MATEY Í ELDHEIMUM MIÐVIKUDAGINN 20.SEPTEMBER

Öllum er boðið að koma og taka þátt í skemmtilegum opnunarviðburði Matey Seafood Festival sem haldin verður í Eldheimum 20. september kl: 17:00 - 18:30. Í boði verða tónlistaratriði, listasýning, smakk og léttar veitingar ásamt áhugaverðum erindum. Opnunar-viðburðurinn er fyrir alla. Enginn aðgangseyrir og allir eru velkomnir.

17:00 -18:30

Setning hátíðarinnar í Eldheimum

Tónlistarfólk úr Eyjum spilar létta tóna.

Kynningar og smakk á matvælum úr Eyjum frá Grími kokki, VSV, Ísfélagi Vestmanna eyja, Aldingróðri, Saltey og Brothers Brewery. Frumsýning og kynning á nýjum bjór frá Brothers Brewery. Léttar veitingar í boði frá Ölgerðinni.

Njáll Ragnarsson formaður bæjarráðs opnar hátíðina.

Sjávarsamfélagið Vestmannaeyjar [ Frosti Gíslason ]

Biggi Nielsen tónlistarmaður frumflytur nýtt tónlistarverk sitt, Hvalir Íslands.

Ferðaþjónustan í sjávarsamfélagi. [ Jóhann Guðmundsson, Brothers Brewery ]

Hugmyndafræði matarhátíðarinnar og hráefnið.

Kynning matreiðslumeistaranna Kynning á gestakokkum og réttum hátíðarinnar. [ Gísli Matthías Auðunsson ]

Listasýningin ,,Konur í sjávarsamfélaginu”

[ Gíslína Dögg Bjarkadóttir ]

GESTAKOKKAR

Francesco Triscornia Cúán Greene Adrien Bouquet Adam Quershi
Hægt er að panta borð og lesa nánar um hátíðina og gestakokkana á vefsíðu hátíðarinnar: matey.is

Viltu minnast látins ættingja eða vinar?

Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.

Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.

Verð: 12.400 kr.

HÖNNUN &PRENTUN Á

HINU OG ÞESSU

Setjum upp og seljum auglýsingar í blöð fyrir hina ýmsu einstaklinga og félagasamtök t.a.m.

• Afsláttarbók LEB • LEB blaðið

• Sjómannadagsblað Vestmannaeyja

• Þjóðhátíðarblað Vestmannaeyja

• Sjómannablaðið Víkingur

• Heima er bezt • VM blaðið

• Blað Rafiðnaðarsambandsins

• Tímaritið Úti

• Vikublaðið Tígull 900 Vestmannaeyjar // Vestmannabraut 38

// s. 481 1161

leturstofan@leturstofan.is
leturstofan leturstofan
LUNDAPYSJA VASALJÓS PAPPAKASSI FJÖR GULUR RAUÐUR GRÆNN BLÁR ÍBV KFS TÝR ÞÓR ÞRAUTIR

Vantar þig fyrirbæn?

Hafðu samband í síma 861-4848 betel@simnet.is

Viltu biðja með öðrum?

Sambæn hvern miðvikudag í hádeginu

Hvítasunnukirkjan

Vestmannaeyjum

NÝJA

TANNLÆKNASTOFAN

Flötum 29

Tímapantanir í síma: 481-1012

Neyðarsíminn: 844-5012

tannsi@eyjar.is

Passamyndir

Fasteignaljósmyndun

Bókið tíma á facebook.com/thoreyljosmyndari

eða á netfangi thoreyhh19@gmail.com

Auglýsingasími

Tíguls: 481-1161

tigull@tigull.is

Frumherji verður í Eyjum

vikuna 25. - 28. september

- Allar stærðir bíla -

Opnar kl. 13:00 á fyrsta degi

og lokar kl. 12:00 á síðasta degi

Tímapantarnir í síma

570 9090

(Stöðvarstjóri Jónas, 570 9128)

Staðsettur við Faxastíg í húsi Björgunarfélagsins.

Strandvegur 30 | s. 481-1475 | www.midstodin.is Opnunartími: 8-18 virka daga & 10-14 laugardaga
ÖLL VERKEFNI
OKKUR!
ÞÚ FÆRÐ FLOT, MÚR & VIÐGERÐAREFNI Í FLEST
HJÁ

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.