Skip to main content

Tígull 30.tbl 02árg.

Page 1

30. tbl. 02. รกrg. 9. - 15. september 2020


VERKEFNIÐ 1000 ANDLIT HEIMAEYJAR

Það ættu flestum Eyjamönnum að vera kunnugt um menningarog listaverkefnið Þúsund andlit Heimaeyjar. En Bjarni Sigurðsson og Leturstofan fóru af stað í sumar með menningar- og listaverkefni sem heitir Þúsund andlit Heimaeyjar. Hugsunin á bakvið verkefnið er þannig að íbúum Vestmannaeyja ásamt þeim sem hafa tengingu þangað gafst kostur á að koma í myndatöku og fá mynd af sér. Myndatakan var að kostnaðarlausu fyrir þátttakendur og fengu allir rétt til að birta sýna mynd á samfélagsmiðlum. Einnig verður

TÍGULL

boðið upp á myndirnar í fullri stafrænni upplausn eða prentaðri útgáfu, en heimasíða verkefnisins mun opna fljótlega. Nú þegar hafa safnast saman myndir af yfir 1300 ólíkum andlitum og verður verkefninu lokað með síðustu myndatökunni dagana 24-27. september. En þá geta þeir sem eftir eiga að mæta í myndatöku látið sjá sig. Þess má geta að Landinn sem sýndur hefur verið á RÚV um árabil og einn vinasælasti sjónvarpsþáttur landsins

sýndi verkefninu áhuga og fylgdist með þegar verkefnið var í gangi á Hraunbúðum en Bjarni fór þangað og bauð heimilisfólki og starfsfólkinu þar upp á myndatöku fyrir verkefnið. Bjarni Sigurðsson hefur séð um að taka ljósmyndirnar en Bjarni lærði ljósmyndun á Upplýsinga- og margmiðlunarbraut Iðnskólans í Reykjavík árið 2005. Bjarni starfar sem yfirmatreiðslumeistari á HSU Vestmannaeyjum.

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir. Forsíðumyndina á Tói Vídó en það eru þau Eva Skarpaas og Sindri Ólafsson sem eru að hlaupa.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


Sushi FIMMTUDAG - FÖSTUDAG - LAUGARDAG

Borðapantanir og take away 481 3060 #gottveitingastadur Bárustíg 11 900 Vestmannaeyjar

/gottrestautant 481-3060

www.gott.is

gott@gott.is


SIGURVEGARAR VESTMANNAEYJAHLAUPSINS

VESTMANNAEYJAHLAUPIÐ - MYNDIR

Sigurvegarar í 5 km karla: 1.sæti: Hannes Jóhannsson tími 18:59 ( Brautarmet ) 2. sæti: Leó Viðarsson, tími 20:02 3. sæti: Hjálmar Jónsson, tími 21:14 Sigurvegarar í 5 km stúlkur: 1. sæti: Ásbjörg Ósk Snorradóttir, tími 22:18 ( Brautarmet ) 2. sæti: Magnea Jóhannsdóttir, tími 23:44 3. sæti: Ester Rúnarsdóttir, tími 24:21 Sigurvegarar í 10 km stúlkur: 1.sæti: Guðrún Inga Ragnarsdóttir, tími 47:48 2. sæti: Eva Skarpaas, tími 48:24 3. sæti: Berglind Berndsen, tími 51:07 Sigurvegarar í 10 km karla: 1. sæti: Hlynur Andresson, tími 31:41 ( Brautarmet ) 2. sæti: Arnar Ragnarsson, tími 41:04 3. sæti: Ásgeir Guðmundsson, tími 45:08


FULL BÚÐ AF GLÆSILEGUM HAUSTVÖRUM ÚTSÖLULOK

Á DÖMUFATNAÐI VERÐ 1.000 & 2.000 KR.

/smarteyjan #smarteyjan smarteyjan www.smartey.is | Smart | Vestmannabraut 30 | sími: 481 3340


SKOTFÉLAG VESTMANNAEYJA

Tígull hafði samband við Óskar Elías Sigurðsson, formann Skotíþróttafélags Vestmannaeyja, og fengum að fræðast aðeins um félagið. Í félaginu eru 60 greiðandi félagsmenn. Í stjórninni eru: Óskar Elías Sigurðsson formaður, Finnur Freyr Harðarsson varaformaður, Adolf Þórsson ritari, Jón Helgi Sveinsson gjaldkeri og Gylfi Frímannsson meðstjórnandi. Við í stjórninni hittumst mjög reglulega, en í þessu covid ástandi var minna um það. Við héldum til dæmis engin mót í ár en í fyrrasumar héldum við 3 mót. Í ár vildum við frekar einbeita okkur að framkvæmdum og fór sumarið í þær. Félagið var stofnað um 1990 og var þá deild innan Týs. Félagið fékk svo sína kennitölu og var því stofnað

24.03.2010 og árið 2019 var hafist handa við að endurvekja félagið með það að markmiði að koma upp alvöru skotæfingasvæði. Frá því að við tókum við þá eru nokkrar framkvæmdir búnar og aðrar í vinnslu, og eru til dæmis komin þrjú steypt borð á litla skotvellinum en þar er eingöngu skotið með randkveiktum caliberum. Bráðabirgða aðstaða er fyrir stærri caliber þar sem hægt er að skjóta á 100m og 200m og bráðabirgða haglabyssuvöllur. Eins og er erum við að klára að girða af svæðið, og það er gert með öryggi í huga en eins og gefur að skilja þarf þessi starfsemi nokkuð pláss. Eins komum við til með að setja upp skilti á svæðið sem leiðbeinir fólki hvernig á að umgangast svæðið sem og hvernig gangandi vegfarendur geta gengið við svæðið. Fyrir liggur að halda áfram uppbyggingu á svæðinu,

s.b. riffilvöllur fyrir stóra riffla og í framhaldi haglabyssuvöllur. Allar þessar framkvæmdir eru hugsaðar til að hafa aðstöðu fyrir skotíþróttir á einum stað, þar sem öryggið er í fyrirrúmi. Mikill áhugi er á starfinu í félaginu okkar og við höfum fengið ótrúlega góð viðbrögð frá aðilum sem við höfum leitað til eins og Vestmannaeyjabæjar, fyrirtækja og einkaaðila. Allir hafa tekið okkur vel, og hefur það hjálpað okkur ótrúlega mikið. Síðan er reglulega tiltektardagar hjá okkur þar sem allt svæðið er tekið og hreinsað. Það má í raun hver sem er koma í félagið en til þess að geta stundað þessa íþrótt þarftu skotvopnaréttindi. Og þeir sem vilja skrá sig í félagið geta haft samband við okkur á facebooksíðu félagsins eða email skotvey@gmail.com


ÞÚSUND ANDLIT HEIMAEYJAR

VERTU MEÐ! Mættu á Leturstofuna Strandvegi 47 og láttu smella af þér!

SÍÐASTI SÉNS TIL AÐ TAKA ÞÁTT! FIMMTUDAG 24. september kl. 16:00 - 18:00 FÖSTUDAG 25. SEPTEMBER kl. 16:00 - 19:00 LAUGARDAG 26. SEPTEMBER kl. 13:00 - 19:00 SUNNUDAG 27. SEPTEMBER kl. 13:00 - 18:00


FISKRÉTTUR Í OFNI MEÐ KARRÝ OG MANGO - CHUTNEY - Uppskrift vikunnar -

Fiskréttur hráefni: 2-3 stór ýsu- eða þorskflök 1/2 rauðlaukur 3 stórar gulrætur 1 græn paprika 1 epli 1 dl kókosmjólk 1 dós(180g) hrein jógúrt 1/2 – 1 dl sýrður rjómi 2-3 tsk karrý 1/2 fiskikrafts-teningur 1 dl mango chutney 3/4 msk sítrónupipar 1 msk ítalskt sjávarréttakrydd salt og pipar eftir smekk Aðferð: Fiskurinn er skorinn í hæfilega stóra bita og kryddaður létt með karrý áður en honum er raðað í botninn á eldföstu móti. Grænmetið er skorið niður og látið mýkjast í 3-4 mínútur í potti ásamt smá olíu. Kókosmjólk,

jógúrt og sýrðum rjóma er bætt við en það er allt í góðu að nota meira af einhverjum vökvanum og sleppa öðrum. Kryddunum, mango-chutney og skornu epli er síðan bætt við og sósan er látin malla í um 5 mínútur. Henni er síðan hellt yfir fiskinn og þetta er bakað á 200°C í 20-25 mínútur.

engifer hvítlaukur olía

Ofnbakað grænmeti Það er hægt að útbúa nettan skammt í litlu fati en það er líka hægt að fylla heila ofnskúffu af rótargrænmeti og baka.

Rífið niður vænan bita af engifer og pressið vænan skammt af hvítlauk og blandið saman við. Bætið nokkrum timjanstönglum saman við.

hráefni: Sætar kartöflur kartöflur laukur gulrætur steinseljurót rófur timjan

Aðferð: Veljið grænmeti eftir ykkar smekk en passið ykkur þó á því að hafa sætu kartöflurnar í aðalhlutverki. Skerið í grófa bita og setjið í ofnfast fat.

Saltið með Maldon-salti og kryddið með nýmuldum pipar. Hellið hressilega af ólívuolíu yfir. Eldið við 180 gráður í um klukkustund eða lengur. Hrærið nokkrum sinnum í grænmetinu á meðan.


HÖNNUN UMBROT Á AUGLÝSINGAEFNI LJÓSMYNDUN IÐNAÐARLJÓSMYNDUN VÖRUMYNDATAKA MYNDVINNSLA GREINASKRIF AUGLÝSINGASALA PRENTUN FJÖLFÖLDUN SKÖNNUN & RÁÐGJÖF

LETURSTOFAN | STRANDVEGUR 47 | LETURSTOFAN @ LETURSTOFAN.IS

ÖKUKENNSLA

SNORRA RÚTS Kennslubifreið: Mercedes Benz C200-C01

Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu

HÖLLU GUÐMUNDSDÓTTUR sem lést 8. ágúst s.l. Vegna samkomutakmarkana hefur útförin farið fram án auglýsingar en streymt var frá athöfninni 21. ágúst Þórunn Lind Elíasdóttir Unnur Lilja Elíasdóttir Kristín Elfa Elíasdóttir Guðmundur Elíasson Sigrún Elíasdóttir Eygló Elíasdóttir Elísa Elíasdóttir Baldvin Elíasson

Gunnólfur Lárusson Sigurjón Hinrik Adólfsson Hólmfríður Ólafsdóttir Logi Friðriksson Viðar Sigurjónsson Magnús Benónýsson Íris Davíðsdóttir

Barnabörn og barnabarnabörn.

• Akstursmat • Endurtökupróf • Ökuskóli

20 ára reynsla! Sími 692-3131

Nýgift / Afmæliskveðjur / Nýfædd Eyjabörn Minningagreinar / Dánartilkynningar Sendu okkur á netfangið: tigull@tigull.is


SUDOKU

ORÐAÞRAUT

BLÓM VESKI KERTI LJÓSMYND BÍLAR BAKA TANNBURSTI MALBIKUN GRAFA SÓL


Á AÐ SKORA Á FÉLAGANA?

KOMDU OG KÍKTU VIÐ! MÁN - ÞRI - MIÐ OPIÐ FRÁ 17:00 - 23:00 FIM - FÖS - LAU - SUN OPIÐ FRÁ 16:00 - 23:00

/crispus

BREYTTUR OPNUNARTÍMI Breyttur opnunartími vegna styttingu vinnuviku.

Opið frá kl. 08:00 - 17:45

Hilmisgötu || 481 3333

Við munum halda áfram að hafa opið en með breyttu sniði. Stofan verður opin eftir tímapöntunum en síminn verður alltaf opin fyrir pantanir Sími 772-6766 Hrönn: 694-2655 /Svanhvít : 772-3332 Hlökkum til að sjá ykkur!

Tannlæknar 14. - 17. september - Birta Þórsdóttir 6. - 9. október - Hjalti Þórðarson

Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40

Tímapantanir í síma 481-2772


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 30.tbl 02árg. by Leturstofan - Issuu