29. tbl. 05. árg. 13. - 19. september2023
PYSJUTÍMABILIÐ HEFUR NÁÐ HÁMARKI
Lundapysjutímabilið er heldur seint á ferðinni þetta árið en virðist nú hafa náð hámarki. Nánar tiltekið þann 7. september síðastliðinn þegar 228 pysjur voru skráðar inn á Lundi.is. Það er þó langt frá því að vera met, en mesti fjöldi pysja á einum degi var 29. ágúst 2020 þegar 824 pysjur voru skráðar.
Þegar þetta er skrifað hafa verið skráðar 1561 pysja á Lundi.is þetta árið. Af þeim hafa 656 eða rúm 40%, verið vigtaðar að meðalþyngd 254 g. Sú þyngsta 539 g en sú léttasta 143 g.
Enn eru þó að finnast fullt af pysjum daglega og er rétt að hvetja fólk til að vera duglegt að skrá þær inn á síðuna. Það er mjög einfalt og alls ekki nauðsynlegt að vigta pysjurnar fyrir skráningu. Um þessar mundir eru þó ekki einungis lundapysjur að finnast í bænum heldur finnast einnig ungar skrofunnar og sjósvölunnar. Þessir ungar fljúga að ljósunum í bænum líkt og pysjurnar. Það gera einnig ungar stormsvölunnar, sem eru þó aðeins seinna á ferðinni.
Starfsmenn Náttúrustofu Suðurlands vilja gjarnan fá að merkja þessa fugla og er fólk beðið um að hafa samband við Rodrigo í síma 777 8159 ef þið finnið skrofur eða sjósvölur. Þessum fuglum er best að sleppa þegar farið er að rökkva.
Ef þú finnur meidda, blauta, skítuga, dúnaða eða mjög litla pysju eða annan fugl, eins og t.d. skrofu eða stormsvölu er gott að fara með hann til á Sea Life Trust svo hægt sé að meta hann og gefa honum viðeigandi aðhlynningu. Eftir opnunartíma er hægt að setja alla fugla í grænt kar við bílastæðið austan við Sea Life Trust.
Ljósmyndir/Addi í London
TÍGULL
DREIFING:
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó. Forsíðumynd/Addi í London.
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
ÚTGÁFA:
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is
Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
VEL HEPPNAÐ LANDSMÓT SKÓLAHLJÓMSVEITA
Landsmót skólahljómsveita fór fram í Vestmannaeyjum um helgina. Um var að ræða mót B hljómsveita, sem eru að mestu börn á aldrinum 8-12 ára. Upphaflega var ætlunin að vera með landsmót A og B hljómsveita í vor, en það var slegið af vegna veðurs. Þá var von á um 700 börnum ásamt rúmlega 100 fylgjendum, en fjöldinn á mótinu núna var um 210 börn ásamt um 40 fylgjendum.
Það leit ekki vel út um tíma með mót helgarinnar, enda gerði snarpa brælu á föstudeginum einmitt þegar áætlað hafði verið að gestirnir kæmu. Því var plan helgarinnar endurhannað og hópurinn kom með tveim fyrstu ferðum Herjólfs á laugardeginum. Þá var veðrið orðið eins og það gerist best í Eyjum og hélst það þannig fram á seinnipart sunnudags þegar gestirnir héldu heim. Börnunum var skipt upp í tvær lúðrasveitir, eina 130 manna og aðra 80 manna sem voru hér við æfingar í Íþróttamiðstöð og
Týsheimili ásamt því sem þau brugðu sér í sund og heimsóttu Eldheima. Gist var í Hamarsskóla, sem rúmaði gestina vel. Maturinn var á höndum Einsa Kalda og var framreiddur í Höllinni, þar sem einnig fór fram kvöldvaka laugardagsins. Voru börn og fullorðnir hæstánægðir með matseldina,
sem kom okkur sem þekkjum til starfsfólks Einsa ekkert á óvart. Jón Ævar töframaður kom á æfingarnar og á kvöldskemmtunina og sló þar í gegn með skemmtilegu töfrabragða uppistandi. Viking tours sáu um að koma öllum gestum á milli staða, sem var nauðsynlegur hluti heimsóknarinnar, enda búið að pakka dagskránni mjög þétt saman og nýta þurfti allar lausar mínútur til æfinga. Gestir mótsins lýstu yfir mikilli ánægju með starfsmenn Viking tours og þeirra þjónustu.
Það var vissulega svekkjandi að þurfa að aflýsa AB mótinu sem átti að halda í vor, en það varð þó til þess á endanum að mótið var haldið á miðju Lundapysjutímabilinu hér í Eyjum. Því var skipulögð lundapysjuveiði á laugardagskvöldinu frá kl.22:00. Rúmlega 200 börn leituðu að pysjum fram undir miðnættið, sem skilaði 10 pysjum. Þeim pysjum var svo sleppt morguninn eftir. Var þetta líklega einn af hápunktum ferðarinnar fyrir marga gestina sem aldrei höfðu upplifað slíkt áður.
Á sunnudeginum voru svo tónleikar þar sem báðar sveitir mótsins komu fram og spiluðu lögin sem æfð höfðu verið þessa tvo daga. Var ágætis mæting í Íþróttamið-
stöðina og var flutningur beggja lúðrasveitanna til fyrirmyndar og langt umfram það sem ætla mætti af ungum flytjendum með svo knappann tíma til æfinga.
Það voru glaðir gestir sem enduðu sunnudaginn í pulsupartýi í Höllinni áður en haldið var heim með ferð Herjólfs kl.17:00. Víða heyrðust börn leggja að foreldrum sínum áform um heimsókn til Vestmannaeyja næsta sumar. Skipulagning mótsins var í höndum Skólalúðrasveitar Vestmannaeyja og stjórn SÍSL (Samband Íslenskra Skólalúðrasveita). Þótti mótið heppnast afskaplega vel, þrátt fyrir erfiða fæðingu og mikla breytingu á plönum, eftir því sem veður og samgöngur leyfðu. Á endanum var þó haldið langþráð landsmót skólalúðrasveita hér í Vestmannaeyjum og var veðrið algerlega dásamlegt allan tímann á meðan því stóð.
Fyrir hönd mótshaldara vill Skólalúðrasveitin þakka öllum sem komu að því að gera þetta mögulegt. Var sama hvar borið var niður, allsstaðar var þjónustulundin í fyrirrúmi sem skilaði ánægjulegri upplifun gesta okkar.
6
-Nýjar vörur streyma inn
skvisubudin.is
Erum
Bárustíg
flutt á
GESTAKOKKAR VEITINGASTAÐANNA Á MATEY
DAGANA 21. - 23. SEPTEMBER
Adam Quershi
er gestakokkur GOTT á Sjávarrétta-hátíðinni MATEY 21.-23.september 2023. Hann kemur frá Michelinstjörnustaðnum ,,kol” í London sem er 23.sæti yfir bestu veitingastaði heims nú árið 2023. Hann hefur unnið á veitingastöðum víðs vegar um heiminn, frá París til Tókýó, Lima í Peru og á Karabísku eyjunum. Á Kol er mikil áhersla að nota staðbundin bresk hráefni með mexíkönskum aðferðum til að búa til einstaka rétti undir áhrifum Mexíkanskrar matreiðslu. Hann mun nýta okkar frábæra sjávarfang frá Vestmannaeyjum með samkonar hugmyndafræði og skapa einstakan matarupplifun.
Adrien Bouquet
er gestakokkur á Næs á Sjávarrétta-hátíðinni MATEY, 21.-23.september 2023. Adrien Bouquet er franskur kokkur með mikla reynslu af mörgum af skemmtilegustu stöðum Parísarborgar meðal annars Clownbar & Cheval d’or.
Hans ástríða liggur í japanskri matargerð sem hann lærði bæði í París og í Japan og notkun á frábæru fiskmeti. Mikill undirbúningur hefur verið í matseðlavinnu á milli næs og Adrians þar sem má vænta bæði japanskra og franska strauma með hráefninu okkar úr Vestmannaeyjum.
verður gestakokkur á Einsa Kalda sjávarréttarhátíðinni MATEY 21. - 23. september 2023. Francesco hefur unnið í löndum á borð við Hong Kong, Frakklandi og Tælandi og verið undir handleiðslu ítalska michelin kokksins Italo Bassi. Eftir 5 ár sem yfirkokkur á Corsica vinnur hann nú í ýmsum verkefnum í Norður Toskana.
Á Matey mun hann sýna fram á gæði sjávarafurðana okkar í ítalskri útfærslu.
Introducing Francesco Triscornia, our passionate Italian maestro, whose culinary journey embodies a cultural odyssey through cuisine. From the heart of Tuscany to kitchens worldwide, Francesco’s path has been a symphony of flavors.
Francesco Triscornia
Cúán Greene
verður gestakokkur á Slippnum á sjávarréttarhátíðinni MATEY 21 - 23. september 2023. Cúán er írskur kokkur og eigandi ÓMÓS Digest í Írlandi. Hann hefur áður unnið á mörgum af bestu veitingastöðum í heimi á borð við Michellin staðina Noma og Geranium. Hann var einnig yfirkokkur á veitingastaðnum Bastille í Dublin.
Cúán vinnur mikið með staðbundið hráefni í árstíð líkt og gert er á Slippnum en markmið hans með þátttöku á Matey er að bjóða fólki að upplifa samblöndu á írskri og íslenskri matarmenningu þar sem margt sameiginlegt er í hráefnum landanna. Cúán er þekktur fyrir að hugsa út fyrir boxið og veita ógleymanlegar matarupplifanir.
LISTASÝNINGIN KONUR Í SJÁVARSAMFÉLAGI HALDIN SAMHLIÐA MATEY 2023
Dagana 20.september 2023 - 24.september 2023 verður haldin áhugaverð listasýning í Eldheimum í Vestmannaeyjum í tilefni Sjávarréttahátíðarinnar Matey 2023.
14 listamenn sýna verk sem vekja athygli á fjölþættum störfum, hlutverkum og verkefnum kvenna í sjávarsamfélögum. Listasýningin verður opnuð formlega á opnunarhátíð Matey 20.september 2023, kl: 17:00 í Eldheimum og allir eru velkomnir og enginn aðgangseyrir.
Í tilefni af Matey – sjávarréttarhátíð árið 2022 var haldin sýning í Einarsstofu á verkum í eigu Vestmannaeyjabæjar sem sýndu konur í sjávarútvegi. Því miður fundust aðeins 3 verk í eigu listasafns Vestmannaeyjabæjar sem sýna konur við störf í sjávarútvegi.
Þó verk í eigu Vestmannaeyjabæjar, sem tengjast konum og sjávarútvegi, séu sorglega fá þá er ekki þar með sagt að slík verk séu ekki til í landinu, bara ekki í Vestmannaeyjum, nema þá auðvitað í einkaeigu inni á heimilum, og svo er auðvitað bara hægt að mála slík verk.
Því var ákveðið að blása til sýningar á Matey - sjávarréttahátíð árið 2023 og þar sem félögum í Lista-og menningarfélaginu í Vestmannaeyjum yrði boðið að taka þátt í sýningu sem ber yfirskriftina „Konur í sjávarsamfélagi.“ Á sýningunni í ár eru 12 listamenn sem sýna einstök verk eða seríu tengdu þemanu alls um 23 verk. Gíslína Dögg Bjarkadóttir listakona í Vestmannaeyjum er sýningarstjóri.
Líklega hefur konum í sjávarsamfélögum ekki verið gefin nægur gaumur þegar kemur að túlkun og
framsetningu listamanna í gegnum tíðina og ljóst að áherslan hefur fremur verið á störf karla hjá listafólki. Það er staðreynd að það er ekki bara nóg að veiða fiskinn, heldur þarf líka að hantera hann í framhaldinu á þann hátt að hægt sé að bera hann á borð fyrir fólk.
Sýningunni í Eldheimum er ætlað að heiðra og vekja athygli á fjölþættum störfum, hlutverkum og verkefnum kvenna í sjávarsamfélögum. Konur í sjávarsamfélögum sáu og sjá auðvitað einnig um öll hin fjölmörgu „ósýnilegu“ störf í landi sem nauðsynleg eru svo samfélagið sem heild geti þrifist.
FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER
KL. 20.00
FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER
KL. 20.00
SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER
KL. 15.00
HÆGT ER AÐ KAUPA MIÐA OG VELJA SÆTI Á EYJABIO.IS
KL. 20.00
HÖNNUN &PRENTUN
Á HINU OG ÞESSU
Setjum upp og seljum auglýsingar í blöð fyrir hina ýmsu einstaklinga og félagasamtök t.a.m.
• Afsláttarbók LEB • LEB blaðið
• Sjómannadagsblað Vestmannaeyja
• Þjóðhátíðarblað Vestmannaeyja
• Sjómannablaðið Víkingur
• Heima er bezt • VM blaðið
• Blað Rafiðnaðarsambandsins
• Tímaritið Úti • Vikublaðið Tígull
UMSÓKNARFRESTUR
3. OKT. KL. 16:00
900 Vestmannaeyjar // Vestmannabraut 38 leturstofan@leturstofan.is // s. 481 1161 UPPB
OG ÚTHLUTUNARREGLUR
ATVINNA & NÝSKÖPUN MENNING ERTU MEÐ FRÁBÆRA leturstofan leturstofan
hef p y KYNNTU ÞÉR ÁHERSLUR
ÞRIÐJUDAGINN
GÍTAR SAXAFÓNN TROMPET FLAUTA
BASSI FIÐLA HLJÓMBORÐ
ÞRAUTIR
KLARINET HARMONIKKA PÍANÓ TROMMUR
BÁSÚNA
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát föður okkar, tengdaföður, afa og langafa
SÆVALDS PÁLSSONAR
Skipstjóra og útgerðarmanns
Sérstakar hlýjar þakkir til starfsfólks
Hraunbúða fyrir einstaka umönnun og þjónustu.
Elías Geir Sævaldsson
Sigurgeir Sævaldsson
Gretar Þór Sævaldsson
Ásdís Sævaldsdóttir
Anna Gerða Bjarnadóttir
Lóa Hrund Sigurbjörnsdóttir
Kristný S. Tryggvadóttir
Hallgrímur Tryggvason
Erna Sævaldsdóttir barnabörn og barnabarnabörn
Gylfi Sigurjónsson
Viltu minnast látins ættingja eða vinar?
Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.
Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.
Verð: 12.400 kr.
NÝJA
TANNLÆKNASTOFAN
Flötum 29
Tímapantanir í síma: 481-1012
Neyðarsíminn: 844-5012
tannsi@eyjar.is
Passamyndir
Fasteignaljósmyndun
Bókið tíma á facebook.com/thoreyljosmyndari eða á netfangi thoreyhh19@gmail.com
komdu í reikningsviðskipti á elko.is
Fyrirtæki geta nú verslað á elko.is
ELKO ehf. | Lindum - Skeifunni - Granda - Akureyri - Flugstöð | 544 4000 | elko@elko.is