Tígull 29.tbl 04 árg.

Page 1

29. tbl. 04. árg. 31. ágúst - 6. september 2022

Framundan er svo singa along með Guðrúnu Árnýju, uppistand með Þórhalli Þórhallssyni, geggjuð jólahlaðborð þar sem Stefán Hilmarsson verður sérstakur gestur og svo mun Ari snúa aftur í nóvember. Framundan er líka Lundaball sem ekki var unnt að halda í fyrra og er mikil tilhlökkun fyrir því hjá okkur,“ segir Daníel ÞaðGeir.er þekkt að oft eru Íslendingar á síðustu stundu með skipulag og að kaupa sér miða en Hallarmenn sjá ákveðna breytingu í farvatninu í þeim efnum. „Það er gott að einhverju leyti að mæta lífinu þannig að hlutir reddist en stundum reddast þeir bara ekki. Það upplifðu einhverjir sem komust ekki á Bjartmarstónleikana, enda varð uppselt talsvert áður en þeir voru haldnir. Við erum strax búnir að fá fyrirspurnir um brúðkaup næsta sumar, enda hvergi betra að halda góða veislu en hjá okkur.“ En er eitthvað að lokum sem þið viljið koma á framfæri? „Já, kannski tvennt. Takk fyrir þann hlýhug sem þið hafið sýnt okkur og endilega verið dugleg að mæta. Við tökum öllum ábendingum um viðburði vel og viljum sinna þessu svo sómi sé af. Svo má líka koma því á framfæri að það er engin veisla að þrífa konfettí en Svanur getur sagt ykkur betur frá því,“ sagði Daníel Geir kíminn að lokum.

VILJA SINNA ÞESSU SVO SÓMI SÉ AF:

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.TÍGULL Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is DREIFING: Hönnun: Lind lind@leturstofan.isHrafnsdóttir Auglýsingar: Katrín katalaufey@tigull.isLaufey Prentun:ÚTGÁFA:Prentun.is SKIL Á VinsamlegasthádeginuSkilAuglýsingarAUGLÝSINGUM:sendistá:tigull@tigull.isáauglýsingumeríámánudögum.bókiðtímalega. FYRSTA ÁRIÐ LIÐIÐ HJÁ NÝJUM REKSTRARAÐILUM HALLARINNAR Fyrir ári síðan stofnuðu tveir félagar fyrirtækið Kátt í Höllinni ehf. og voru með stóra drauma um Höllina í Vestmannaeyjum. „Það er eiginlega magnað að hugsa til þess að ár sé síðan við tókum við, því tíminn hefur ætt áfram,“ segir Daníel Geir Moritz, annar eiganda Kátt í Höllinni ehf. Daníel Geir hefur rekið Höllina með félaga sínum, Svani Gunnsteinssyni, og er óhætt að segja að fyrsti veturinn hafi verið óhefðbundinn vegna heimsfaraldurs. „Það var að einhverju leyti bilun að fara út í þetta á þeim tímapunkti sem við hófumst handa en þrátt fyrir ákveðin vonbrigði út af covid gekk þetta ljómandi vel. Við fengum til okkar viðburði sem höfðu frestast og vóg það upp á móti að einhverju leyti. Tilhugsunin að setja saman dagskrá fyrir haustið núna án þess að vera að velta þessu fyrir sér er svakalega góð og hefur líka verið gaman að finna þann stuðning sem Eyjamenn hafa sýnt okkur í þessu verkefni. Við erum auðvitað ekkert án fólksins hérna.“ Fjölmargir viðburðir hafa verið á þessu fyrsta rekstrarári nýrra rekstraraðila og segir Daníel Geir þá hafa gengið vel. „Við dembdum okkur beint í djúpu laugina og var fyrsti viðburðurinn í okkar umsjá árshátíð Vinnslustöðvarinnar. Hún gekk mjög vel og færði okkur byr í seglin. Síðan fylgdu góðir viðburðir eins og jólahlaðborðin, uppistand með Ara Eldjárn, árshátíð Vestmannaeyjabæjar og afmæli Ísfélagsins, svo dæmi séu tekin. Eitt af markmiðum okkar var að ná upp forsölustemningu í Vestmannaeyjum og verður hún alltaf á Tix á viðburðum sem við höldum. Það sannaði sitt þegar Bjartmar mætti um Goslokahelgina og voru þá haldnir fjölmennustu tónleikar í Höllinni í manna minnum. Það var virkilega skemmtilegt, enda kallinn magnaður og stemninginn hjá Eyjamönnum eins og hún gerist hvað Veturinnbest.“er framundan og leikur marga forvitni á að vita hvað verði í Höllinni. „Við erum að reyna að höfða til sem flestra og fyrir mér er ákveðin ábyrgð í rekstri á svona húsi. Mér finnst skipta miklu máli að listamenn úr Eyjum sem vilja koma fram í Höllinni fái brautargengi og að þeir taki þátt á tónleikum og árshátíðum. Við leggjum mikið upp úr því og sem dæmi er hljómsveitin Brimnes með haustball á laugardaginn.

Reykjavík • Mörkin3 • 5636900 | Akureyri • Undirhlíð2 • 31.ágúst2022•Birtmeðfyrirvaraumbreytingar,innsláttarvillurogmyndabrenglAFMÆLISVEISLAALLAVIKUNA•WWW.TOLVUTEK.IS SENDUM FRÍTT Hvertálandsem eralltað10kg

Spjall við SKÓLABÖRNIN Nafn: Bjartey Ósk Smáradóttir Foreldrar: Sigurlína Guðjónsdóttir og Smári Kristinn Harðarson. Aldur: 11 ára að verða 12 ára 9. desember. Bekkur: 7. bekkur. Hvað gerðir þú skemmtilegt í sumar? Ég fór til Spánar með Lúðrasveitinni og mömmu minni. Svo fór ég til Færeyja með pabba mínum. Ég fór svo á ættarmót með mömmu og Halla svo fór ég á TM-mótið í eyjum og Símamót uppá landi. Og svo Þjóðhátíð og það var mjög gaman. Hvað er skemmtilegast í skólanum? Mér finnst mjög skemmtilegt í lotum í skólanum þar er ég að gera allskonar hluti eins og að teikna, baka og smíða. Frímínútur eru mjög skemmtilegar þá fer ég í fótbolta á gervó. Hvað viltu vinna við þegar þú verður stór? Úff er ekki búin að ákveða það en búin að hugsa að verða kannski dýralæknir eða innanhúsarkitekt svona sem hjálpar fólki að skreyta húsið sitt. En er ekki ákveðin þetta eru hugmyndir. Nafn: Elimar Andri Andrason. Foreldrar: Kristrún og Aaron og Andri og María Aldur: 9 ára. Bekkur: 4. bekkur Hvað gerðir þú skemmtilegt í sumar? Ég fór til Englands og við gerðum fullt skemmtilegt en skemmtilegast var í skemmtigarðinum Woodland en það var reyndar ein scary rennibraut sem ég þorði ekki í. Hvað er skemmtilegast í skólanum? Skemmtilegast í skólanum eru frímínútur útaf þá þarf ég ekki að læra. Hvað viltu vinna við þegar þú verður stór? Mig langar að vera atvinnumaður í fótbolta og handbolta og einnig listamaður sem málar og teiknar myndir.

Nafn: Hrafnkell Darri Steinsson. Foreldrar: María Rós Friðriksdóttir og Steinn Þórhallsson. Aldur: 10 ára. Bekkur: 5. JF Hvað gerðir þú skemmtilegt í sumar? Ég fór á skátamót á Úlfljótsvatni, á Þjóðhátíð og til Tenerife. Það var allt saman ótrúlega skemmtilegt. Hvað er skemmtilegast í skólanum? Mér finnst skemmtilegast í stærðfræði, dansi og myndmennt. Hvað viltu vinna við þegar þú verður stór? Mig langar að verða leikari og dansari. Nafn: Lúcía Ísfold Guðmundsdóttir. Foreldrar: Kristín Harpa Halldórsdóttir og Einar Guðmundur Björnsson Aldur: 6 ára. Bekkur: 1. ÞJ Hvað gerðir þú skemmtilegt í sumar? Að passa Garm, hundinn hans bróður míns. Og ég fékk að vera í kjólum í allt sumar. Hvað er skemmtilegast í skólanum? Að fara í sund. Hvað viltu vinna við þegar þú verður stór? Að vera dýralæknir og hjálpa dýrum. Nafn: Pétur Bjarnason. Foreldrar: Tinna Hauksdóttir og Bjarni Geir Pétursson. Aldur: Ég er 6 ára. Bekkur: Ég man ekki hvað 1 bekkurinn minn heitir. Hvað gerðiru skemmtilegt í sumar? Tjaldútilegu, ipad, leika við vini mína, kaupa páfagauk, fór til Grikklands og fór upp rosa stórt fjall Seifsfjall og fór inní hellinn, fórum í sjóræningjabát og ég hoppaði í sjóinn. Hvað er skemmtilegast í skólanum? Í frímó! Hoppudýnan, gott veður og svona. Hvað viltu vinna við þegar þú verður stór? Easy spurning! Það er fótbolta- og körfuboltamaður.

STÓRAFMÆLI SKIPALYFTUNNAR Í nóvember á síðasta ári voru liðin fjörtíu ár frá stofnun Skipalyftunnar. Áfanganum var hinsvegar ekki hægt að fagna þá, þar sem samkomutakmarkanir voru. Síðastliðinn föstudag var hins vegar ekkert að vanbúnaði og því slegið upp heljarinnar veislu.

Nú fer að koma að uppsetningu á barnaleikriti hjá okkur og leitum við eftir fólki í áhreynarprufur. Gert er ráð fyrir að prufur verði helgina 10. og 11. september nk. Við munum við auglýsa tímasetningar á næstu dögum. Við viljum því benda fólki á að fylgjast vel með á FB síðu leikfélagsins facebook.com/leikfelagve og einnig á heimasíðu félagsins leikfelagve.is Frekari upplýsingar eru einnig veittar á maili okkar leikfelagve@outlook.com eða síma 868-5887 Guðbjörg Erla. Áheyrnarprufur verða í leikhúsinu Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson. Aldurstakmark er 13.ára og eldri. (8. bekkur) www.eyjabio.is ÞÚ GETUR FUNDIÐ NÆSTU BÍÓMYNDIR OG SÝNINGARTÍMA Á SUNNUDAGURKL.14:00LAUGARDAGURKL.14:00 SUNNUDAGURKL.20:00 SUPERPETS BEAST HUNDURINN HANK Í KLÓM KATTARINS

Líkt og í öðrum skólum eyjanna er starf Tónlistarskóla Vestmannaeyja komið á fullt og komast færri að en vilja við hann. „Í dag eru skráðir 110 nemendur við skólann og um 25 eru á biðlista,“ sagði Jarl Sigurgeirsson, skólastjóri Tónlistarskólans í spjalli við Tígul í vikunni. „Við erum enn að taka inn nemendur af biðlistanum og gerum ráð fyrir að nemendur verði um 115-120.“ Þá sagði Jarl þessar tölur vera vel í takt við fjölda síðustu ára. Þetta væri þó ekki allur fjöldinn sem nyti þjónustu skólans því kennarar hans sinna einnig tónmenntarkennslu við GRV. „Kennarar skólans sinna einnig tónmenntakennslu í 5 ára deild og 1.-4. bekk grunnskólans auk þess sem Karlakór Vestmannaeyja, Kvennakór Vestmannaeyja og Lúðrasveit Vestmannaeyja starfa öll undir hatti skólans. Þar bætast við rúmlega 400 manns sem njóta þjónustu skólans en eru þó ekki skráðir nemendur,“ sagði Jarl. Gítar og píanó vinsælust Jarl segir að kennt sé á flest hefðbundin hljóðfæri við skólann ásamt söng. „Þau hljóðfæri sem við kennum á núna eru trompet, baritonhorn, básúna, túba, blokkflauta, þverflauta, klarinett, saxofónn, píanó, gítar og söngur. Einnig er hægt að læra á fiðlu og selló, en sú kennsla fer ekki í gang fyrr en síðar á önninni.“ Til viðbótar við þessa kennslu eru kenndar tónfræðigreinar við skólann auk þess sem starfrækt er skólalúðrasveit í tveimur deildum ásamt fleiri samspilshópum.

Opið fyrir umsóknir allt árið „Það er alltaf hægt að skrá sig í nám, allan sólarhringinn allt árið um kring. Skráningin fer fram á netinu og dettur þá umsækjandi inn á biðlistann. Við fáum tilkynningu um umsóknir og getum tekið nemendur strax inn ef laust er á viðkomandi hljóðfæri. Annars höfum við samband þegar þar að kemur. Við höfum hvatt foreldra og verðandi nemendur til að leggja inn umsókn þar sem nokkur bið getur orðið á því að komast inn í nám. Því fyrr sem sótt er um því betra.“ Hægt er að sækja um nám á þessari

aspx?orgId=34&periodId=8https://schoolarchive.net/school/AdmissionForm.slóð.

Alltaf á leiðinni Tónlistarskólinn er í dag til húsa við Vesturveg þar sem áður var til húsa Stýrimannaskólinn í Vestmannaeyjum og er vægast sagt komið til ára sinna. Nú stendur hinsvegar til að stækka Hamarsskóla og mun Tónlistarskólinn flytjast þangað í kjölfarið. „Við hlökkum mikið til að flytja í væntanlegan nýjan tónlistarskóla. Frá því að ég hóf störf við skólann árið 2006 höfum við alltaf verið á leiðinni í nýtt húsnæði og því hefur ekki þótt tilefni til að leggjast í framkvæmdir á skólanum okkar.

Núverandi húsnæði hefur reynst okkur vel og er á ýmsan hátt ágætt. En það er orðið ansi lúið og margt sem betur mætti fara. Enda er núverandi húsnæði alls ekki hannað sem tónlistarskóli í upphafi og margt varðandi hljóðvist og annað sem er ekki eins og best verður á kosið. Þá er aðgengi fyrir hreyfihamlaða hér við skólann ekki neitt.“ Jarl sagði það verða mikla bót að fá Tónlistarskólann inn í grunnskólann. „Við erum sannfærð um að það mun efla bæði grunnskólann og tónlistarskólann. Best væri ef framtíðarsýn í skólamálum væri að allur grunnskólinn og tónlistarskólinn yrði á sama stað í nálægð við íþróttamannvirkin. Það er draumur sem þarf ekki endilega að vera svo fjarlægur,“ sagði Jarl og bætti við að lokum. „Við bindum miklar vonir við að vel verði staðið að framkvæmd og byggingu nýs tónlistarskóla og teljum að sú bygging eigi eftir að verða tónlistarlífi og þá lífinu almennt til mikils framdráttar í bæjarfélaginu okkar.“

BEST Í HEIMI AÐ VERA Í LÚÐRASVEIT

Aðspurður um vinsælustu hljóðfærin sagði Jarl gítar og píanó vera langvinsælustu hljóðfærin og hafa verið. „Það er alltaf talsverður biðlisti á þau hljóðfæri. Trommur koma þar á eftir og söngurinn. Blásturshljóðfærin hafa átt undir högg að sækja, en um leið er þá minni biðlisti ef sótt er um nám í slíkt. Þá fær maður líka tækifæri að vera með lúðrasveitinni, sem er að okkar mati best í heimi,“ sagði hann og hló.

MARKMIÐ ÞINGSINS: Markmið þingsins er að skapa umræðu meðal áhugasamra um öldrunarmál. Draga fram væntingar, viðhorf og hugmyndir um hvernig stuðla megi að farsælum efri árum íbúa í Vestmannaeyjum. Vilt þú hafa áhrif? Óskað er eftir þátttakendum á öllum aldri og einnig starfsfólki sem tengist öldrunarmálum. FYRIRKOMULAG: Umræður á borðum sem stýrt er af borðstjórum sem sjá til þess að allar skoðanir komi fram og Framtíðarþing um farsæl efri ár í Vestmannaeyjum verður haldið í Eldheimum miðvikudaginn 7. september kl 18:00 – 20:00 Farsæl efri ár í Vestmannaeyjum Starfshópur um framtíðarsýn í öldrunarþjónustu halda utan um niðurstöðurnar. Niðurstöður þingsins verða innlegg í stefnumótunarvinnu um framtíðarstefnu öldrunarþjónustu í Vestmannaeyjum. Vonumst til að sem flestir sjái sér fært að mæta. Skráning á thelma@vestmannaeyjar.is eða í síma 488-2017. Veitingar í boði

Hráefni: 4-5 dl rifinn kjúklingur 10 sneiðar beikon 1 ½ dl blaðlaukur 2 tómatar 3 pkn hveititortillur 1 krukka salsasósa 1 krukka ostasósa 2 dl Havarti ostur með jalapeno 2-4 dl rifinn mozzarella ostur 2 dl rifinn cheddar ostur Aðferð: Byrjið á því að leggja beikonið á bök unarplötu þakta bökunarpappír og bak ið í 10-12 mínútur við 200°C eða þar til beikonið er orðið stökkt. Skerið blaðlauk, tómata og beikon smátt. Setjið rifinn kjúkling í skál. Bætið út í blaðlauknum, tómötunum, beikoni, 2 dl rifnum Havarti osti með jalapeno, 1 dl rifnum cheddar osti og salsa sósunni. Blandið vel saman. Skerið tortillurnar til helminga og smyrj ið með rúmlega 1 tsk af ostasósu. Dreifið rifnum mozzarella osti yfir og rúmlega 1 msk af kjúklingablöndunni á alla helm ingana. Rúllið tortillunum upp þannig að þær mynda kramarhús. Notið hringlótt eldfast mót eða bök unarpappír. Setjið þá sósuskál sem þið ætlið að nota í miðjuna. Raðið tortilla rúllunum upp í hring. Blandið saman 1 dl cheddar ost og 1 dl mozzarella ost. Dreifið helmingnum af ostinum yfir tortilluhringinn og raðið svo restinni af tortillurúllunum ofan á þannig að það myndist tvær hæðir. Dreifið svo restinni af ostinum yfir. Takið sósuskálina frá og bakið í ofni við 190°C í 10-12 mínútur eða þar til ostur inn er bráðnaður. Gott er að hafa salsasósu eða quacamole í sósuskálinni.

VIKUNNARUPPSKRIFT Quesadilla

Aðferð: Blandið öllum hráefnunum saman með töfrasprota eða mat vinnsluvél. Quacamole er svo sett í sósuskálina í miðju qu asadias hringsins. hringur

Quacamole

Hráefni: 3 avókadó 1 dl sýrður rjómi Safi úr 1 lime ½ tsk salt ¼ tsk pipar ¼ tsk laukduft ¼ tsk hvítlauksduft Chili flögur eftir smekk

// Nánari upplýsingar á vestmannaeyjahlaup.is // Skráning hafin á netskraning.is TAKTU ÞÁTT! 5 eða 10 km Rásmark verður íföstudaginnafhentKeppnisnúmerSkráningÞátttökugjaldogUpphituníþróttamiðstöðina.viðhefstkl.12.35hlaupiðræstkl.13.00.erkr.3.000.ánetskraning.is.oggögnmillikl.18og202.septemberÍþróttamiðstöðinni. kl.12:15HLAUPIÐKRAKKAálaugardaginn.Allir 6 ára og yngri velkomnir.Það þarf ekki að skrá sig.Hlaupið verðurupp Brekkugötu.

ÞRAUTIR SKÓLI BÆKUR REIKNIVÉL STÆRÐFRÆÐI ÍSLENSKA BÓKMENNTIR LÍFFRÆÐI SKÓLATASKA PENNAVESKI ENSKA

Prentum sálmaskrár Hafðu samband við okkur á netfangiðeðaleturstofan@leturstofan.isísíma481-1161 Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi. Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef. Það kostar 10.000 kr. Viltu látinsminnastættingja eða vinar? Jónas Þór Þorsteinsson Ingibjörg EyþórHéðinnÞorsteinsdóttirÞorsteinssonGísliÞorsteinsson Ingunn Ársælsdóttir Lúðvík SigríðurGuðlaugJóhannessonGísladóttirRósEinarsdóttir og barnabörn Eygerður Anna Jónasdóttir Ásmundur Eiður Þorkelsson Þröstur Þorkelsson Rannveig Ása Hjördísardóttir Anna Guðrún Stefánsdóttir og ÞorkellbarnabörnÞorkelsson Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÞORSTEIN GÍSLA ÞORSTEINSSON rafvirkja, Hrauntúni 15, Vestmannaeyjum Fjölskyldan þakkar starfsfólki HSU í Eyjum innilega fyrir einstaka umönnun og væntumþykju. PETRU MAGNÚSDÓTTUR Hraunslóð 3, Vestmannaeyjum Sérstaklega þökkum við starfsfólki Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum fyrir einkar alúðlega umönnun.

Er tilefni? tigull@tigull.is Nýtt skólaár er hafið. Tígull tók stöðuna á Guðbjörgu Sól formanni nemendafélags FÍV og fékk að vita hvað væri framundan hjá þeim. Seinasta fimmtudag hélt nemendafélagið kahoot spurningakeppni og svo fótboltamót um kvöldið sem vakti mikla lukku. Einnig fengu þau kennarana til þess að koma og grilla pylsur fyrir nemendur. Skemmtilegir viðburðir hafa verið seinustu ár eins og Partners mót, Fifa keppni, körfuboltamót og borðtennismót. Þá býður nemendafélagið upp á nemendakort sem gefa afslætti hér og þar. „Markmiðið hjá okkur í nemendaráðinu er einfaldlega að hafa félagslífið fjölbreytt og skemmtilegt þannig að það höfði til allra í skólanum. Okkur langar til að hafa mikið af viðburðum og njóta þess. Við erum með fullt af hugmyndum og ætlum að halda fleiri mót tengdum íþróttum, spilakvöld, bingó, skemmtikvöld og fleira,“ segir Guðbjörg Sól. Í nemendafélaginu eru: Guðbjörg Sól formaður, Sunna Einarsdóttir varaformaður, Elmar Erlingsson gjaldkeri, Eyþór Orri Ómarsson íþróttaformaður, Berta Sigurðardóttir ritari, Birkir Björnsson nýnemi og þeirra hægri hönd er Breki Þór Óðinsson. Árshátíðin tilhlökkunarefni Árshátíðin er alltaf mest áberandi viðburður skólans og er mikil tilhlökkun fyrir henni. Síðustu ár hafa verið skemmtileg þema eins og þjóðhátíðar þema, Euphoria þema og Hawaii þema. Hún verður haldin á næstu önn svo við erum meira að einblína á það sem við ætlum að gera núna í vetur. Við ætlum okkur þó að vera skipulögð og kaupa skraut tímalega og bóka sal og tónlistarmann á þessari önn,“ segir Guðbjörg Sól að lokum. FJÖLBREYTT OG SPENNANDI FÉLAGSLÍF FRAMUNDAN HJÁ FÍV Réttarmói 8 - Fljótshlíð Nýlegt 4ra herbergja hús á eignarlóð í landi Hellishóla í Fljótshlíð, skráð sem lögbýli. Húsið er fallega hannað, stendur innst í fallegu sumarhúsahverfi og frágangur til fyrirmyndar. Heimild til að byggja aukalega á lóðinni. Stærð: 128,7 m2 Eignarlóð: 3,587 m2 Svefnherbergi: 3 Baðherbergi: 2 Heitur pottur Verð 74.900.000 Brúarstræti 2 www.heimalandfasteignir.isSelfossi Opið hús 11. sept. kl. 13 14 Nánari upplýsingar veitir Guðný Guðmundsdóttir löggildur fasteignasali í síma 821 6610 Þú getur sent okkur grein og við birtum. Er komið að stórafmæli hjá pabba, ömmu, félaga eða vinkonu? Eða liggur þér eitthvað á hjarta sem þú vilt koma á framfæri? Hægt er að fylgjast með nemendafélaginu á instagram undir nafninu: nemofiv

ALLIR SPENNTIR FYRIR SKÓLAÁRI ÁN TAKMARKANNA

Grunnskóli Vestmannaeyja hefur hafið enn eitt skólaárið og enn einn árgangurinn, 49 nemendur sem nú hefja sína skólagöngu. „Við í skólanum erum alltaf spennt á haustin þegar nýtt skólaár byrjar. Það er alltaf ákveðin tilhlökkun að byrja aftur í skólanum, taka á móti nýjum nemendum í 1. bekk og sjá hvað nemendur hafa stækkað og þroskast yfir sumarið,“ sagði Anna Rós Hallgrímsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Vestmannaeyja í samtali við Tígul í vikunni. „Við erum líka spennt að sjá fyrir okkur eðlilegt skólaár og skólahald án nokkurra takmarkanna, eitthvað sem hafði einkennt síðustu tvö til þrjú skólaár hjá okkur.“ Tæki á hvern nemenda Anna Rós sagði ýmislegt spennandi í gangi í skólanum. „Spjaldtölvuinnleiðingin hefur gengið mjög vel og nú erum við komin með tæki á hvern nemanda í skólanum, nemendur hafa núna annað hvort ipad eða chromebook tölvu til afnota í skólanum og góðan aðgang að öðrum tækjum. Þetta hefur haft góð áhrif á skólastarfið og breytt kennsluháttum til hins betra. Kennarar hafa einnig góðan aðgang að tækjum og verkefnastjóra sem styður þá í starfsþróun í þessum efnum. Í tengslum við þróunarverkefnið okkar Kveikjum neistann, höfum við gert breytingar á stundatöflum í 1. og 2. bekk, þar sem áhersla er á einfaldari skóladag, hreyfingu snemma dags og þjálfunartíma þar sem nemendum er skipt í hópa og fá námsefni við hæfi, þessa tíma höfum við einnig innleitt í alla árganga í Hamarsskóla. Einnig erum við að leggja meira upp úr vali hjá nemendum á yngsta stigi. Með ýmis konar ástríðu- og/eða áhugasviðstímum.“ Almenn ánægja með Kveikjum neistann Þróunarverkefnið okkar Kveikjum neistann fór af stað síðasta og fyrsta skólaárinu í því lauk í vor og er Anna Rós ánægð með hvernig til tókst. „Núverandi 1. bekkur fer inn í verkefnið núna á þessu skólaári og er þá annar árgangurinn sem fer inn í verkefnið. Fyrsta árið gekk mjög vel og við erum mjög ánægð með þann árangur sem náðist og fyrstu niðurstöður gefa okkur góða vísbendingu um að við séum á réttri leið. Verkefnið snýst um að bæta árangur í læsi, mæta nemendum þar sem þau eru stödd, gefa þeim réttar áskoranir og hjálpa þeim að finna sína ástríðu. Í verkefninu er einnig mikið unnið með að efla gróskuhugarfar og er það líklega stærsta áskorunin, að efla hugarfar þannig að þrautseigja og trú á eigin getu sé ofan á og að fá alla með í það, starfsfólk skólans, nemendur og foreldra.“ Þar sagði Anna Rós árangursríkt skólastarf felast. „Árangursríkt skólastarf felst að mínu mati í því að kennarar, foreldrar og nemendur vinni saman að því að byggja ofan á þá þekkingu, leikni og hæfni sem nemendur búa yfir á hverjum tíma. Að ná árangri er samstarfsverkefni okkar allra og góður árangur næst ekki nema allir axli sína Rannsóknirábyrgð.hafa sýnt að foreldrar eru einir helstu áhrifavaldar í lífi barna sinna. Carol Dweck, prófessor í sálfræði og ein af þeim sem hefur unnið mikið með að þróa gróskuhugarfar segir að: Ef foreldrar vilja gefa börnum sínum gjöf þá er besta gjöfin sú að kenna þeim að takast á við áskoranir, eflast af mistökum, að njóta þess að leggja sig fram og halda áfram að læra. Þetta mun veita börnunum færni til að byggja upp og viðhalda sjálfstrausti sem endist þeim alla ævi. Þetta er samstarfsverkefni okkar allra, ég hef sagt það oft áður að Vestmannaeyjar eru mikið íþróttasamfélag, við höfum metnað til að standa okkur vel í íþróttum og foreldrar styðja vel við börnin sín á þeim vettvangi. Það er mín ósk að við náum þessum metnaði inn í skólann líka,“ sagði Anna Rós Hallgrímsdóttir, skólastjóri við GRV að lokum

SEPTEMBER Í HÖLLINNI LAUGARDAGUR 24. SEPT ÞÓRHALLSÞÓRHALLUR MEÐ UPPISTAND Á HÁALOFTINU Tryggið ykkur miða á viðburði tix.is/hollinHallarinnar FÖSTUDAGUR 16. GUÐRÚNSEPTÁRNÝ SING ALONGPARTÝ FRÍTT INN LAUGARDAGUR 3. SEPT BALL MEÐ BRIMNES Kátt Höllinnií Það verðurívetur LÉTTÖL 2.25%

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.