29. tbl. 02. árg. 2. - 8. september 2020
SIGURGEIR Á VET TVANGI Í HEIMAEYJARGOSINU.
ALLT KENNT Í FJARNÁMI
Fisktækniskóli Íslands tók við námi í Veiðafæratækni/Netagerð árið 2018 var markmiðið að endurvekja áhuga á náminu. Síðan 2005 höfðu aðeins 2-3 nemendur verið skráðir á ári í námið. Unnið var að endurnýjun á námsskrá í veiðarfæragerð og fag- og verkgreinar og eru þær kenndar í fjarnámi, svo nemendur þurfa ekki að flytjast búferlum. Almennar greinar brautarinnar, geta nemendur hins vegar tekið í hvað framhaldsskóla sem er t.d í gegnum fjarnám. Farið var af stað með kynningarátak bæði til sjó og landi sem skilaði sér með frábærum nemendum. Netagerð er starfstengt nám á framhaldsskólastigi þar sem áhersla er lögð á að auka þekkingu og færni við hönnun, framleiðslu, viðhald og viðgerðir á veiðarfærum.
TÍGULL
Skólinn sér um kennslu á faggreinum sem deilt er niður á vor- og haustönn og er allt kennt í fjarnámi, með því að bjóða upp á þetta í fjarnámi þá geta nemendur verið um allt land og líka út á sjó. Námið er samningsbundið iðnnám og skiptist í bóklegar greinar og vinnustaðanám, samtals 204 einingar. Í vinnustaðanámi afla nemendur sér námssamningi í fyrirtæki sem samvarar 146 einingum. Námi í Veiðafæratækni/ Netagerð lýkur með sveinsprófi. Netagerð er löggilt iðngrein. Námið er í samstarfi við fagnefnd netagerðar og öll helstu fyrirtæki í veiðarfæragerð og þjónustuaðila á Íslandi. Við erum svo heppin að vera með frábæra kennara sem koma frá
Hampiðjunni og Veiðarfæraþjónustu Grindavíkur. Iðan hefur boðið upp á raunfærnimat fyrir starfsmenn sem hafa mikla og langa starfsreynslu af veiðafærum. Raunfærnimat er leið til að meta þá færni og þekkingu sem öðlast má á vinnumarkaði. Matið getur mögulega stytt nám og verið hvatning til að ljúka því. Við erum að sjá að stýrimenn og skipstjórar hafa verið að nýta sér þetta til að fá sem mest metið af sinni þekkingu það flýtir heilmikið fyrir náminu að fara í raunfærnimat. Opið er fyrir umsóknir í námið til 14. september. Nánari upplýsingar um námið má sjá á heimsíðu okkar www.fiskt.is
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
SIGURGEIR LJÓSMYNDARI FRÁ SKULD:
FJÓRAR MILLJÓNIR MYNDA Á YFIR SJÖTÍU ÁRA FERLI
Sigurgeir í Álsey þar sem hann byrjaði að taka myndir 12 ára gamall.
ÓMAR GARÐARSSON omar49@simnet.is Sigurgeir Jónasson, ljósmyndari og lífskúnstner ber aldurinn vel og ekki á honum að sjá að hafa legið við dauðans dyr aðeins hálfum mánuði áður en við spjölluðum saman. Hann hinn brattasti og að vinna í myndasafninu sínu sem telur hátt í fjórar milljónir mynda. Hann á athvarf í kjallara Safnahússins þar sem safnið er til húsa eftir að Sigurgeir og fjölskylda afhentu það Vestmannaeyjabæ til varðveislu fyrir tæpum sjö árum. Sigurgeir er náttúrubarn, með auga fyrir því fallega og jákvæða og hefur á rúmum 70 árum skráð sögu Vestmannaeyja í myndum og skilur eftir sig safn sem á sennilega ekki sinn líka hér á landi og þó víðar væri leitað.
Slapp fyrir horn Sigurgeir verður 86 ára í þessum mánuði en ekki að sjá að Elli kerling hafi náð að festa í hann klærnar svo nokkru nemi. En litlu mátti muna fimmtudaginn 13. ágúst sl. „Hvað gerðist? Ég varð blóðlaus og man lítið tvo sólarhringana á undan,“ segir Sigurgeir. „Man ekki eftir því hvort ég var heima eða í vinnunni. Ekki heldur hvort ég fór heiman að frá mér eða Sjúkrahúsinu þegar ég fór í þyrluna. Man ekkert,“ segir Sigurgeir. Hið rétta er að hann var í vinnunni, en fór á læknavaktina á þriðjudeginum 11.8. og er sagt að mæta í blóðprufu daginn eftir. Á fimmtudeginum er hann í vinnu á safninu fram að hádegi. Eftir hádegi, þegar læknirinn er búinn að fá niðurstöðu úr blóðprufunum er ákveðið að leggja hann inn á spítalann hér. Þá var hann orðinn mjög blóðlítill og var ákveðið
að senda hann suður. Mikil þoka var og þurfti þyrlu Landhelgisgæslunnar til að flytja hann á sjúkrahús í Reykjavík. Meira og meira blóð Verulega var af Sigugeiri dregið þegar hann mætti á sjúkrahúsið í Eyjum. Þar var dælt í hann tveimur pokum af blóði, einum í þyrlunni sem varð að lenda við Klaufina vegna þokunnar. „Ég fór á Borgarspítalann og þar var haldið áfram að dæla í mig blóði, fjórum pokum til viðbótar. Þaðan var ég sendur á hjartadeildina á Landspítalanum þar sem ég lá í viku í allskonar rannsóknum og speglunum. Ég látinn fasta á meðan hinir voru að éta steikur en ég kjötsoð og sætsúpur.“ Hann var speglaður og rannsakaður innst sem yst en enginn fannst lekinn. Hugsanleg ástæða var að
hann hafði étið nokkrar íbófentöflur við vöðvabólgu og þær sett gat á magann. „Var mér sleppt með þeim orðum að forðast íbófen og önnur bólgueyðandi lyf.“ Byrjaði ungur að mynda Í stuttri grein er erfitt að segja söguna alla af Sigugeir í Skuld en þessi sjúkrasaga lýsir okkar manni nokkuð vel. Kominn í vonlitla stöðu en lætur það ekki stoppa sig heldur áfram með jákvæðnina að vopni. Það var snemma ljóst hvert hugurinn stefndi og viðfangsefnið klárt, fólk í leik og störfum, atvinnulífið, úteyjar og viðburðir í Eyjum og náttúra Vestmannaeyja. Sumir atburðir í stærri kantinum og hafa myndir Sigurgeirs birst í blöðum og bókum um allan heim. „Tólf ára gamall byrjaði ég að taka myndir í Álsey og er til heilt albúm eftir mig frá þessu sumri. Upp úr fermingu var ég að mynda fyrir bæjarblöðin, Fylki og fleiri blöð.“ Fyrstu myndir Sigurgeirs í einu af stóru blöðunum voru af grindhvalavöðunni í Vestmannaeyjahöfn í ágúst 1958. „Það var í Tímanum og sama haustið byrjaði ég að mynda fyrir Morgunblaðið. Síðan er ég búinn að lafa á Mogganum eða þeir á mér,“ segir Sigurgeir og hlær. „Alltaf sem ljósmyndari og stundum fréttaritari líka.“
Sigurgeirs og eiginkonunnar, Jakobínu Guðlaugsdóttur heitinnar til Galapagoseyja 1985. Það var sannkölluð ævintýraferð á vit hins óvænta. „Við flugum til Miami, þaðan til Panama og Ekvador á búgarð hátt uppi í Andesfjöllum. Næst tók við tólf daga sigling á bát, 50 tonna og mikill hiti. Káetan sem við vorum í var ekki stærri en svo að annað okkar varð að vera í kojunni á meðan hitt klæddi sig úr eða í. Þetta var ekki konum bjóðandi en Jagga kvartaði ekki.“ Og þau urðu ekki fyrir vonbrigðum. „Náttúran og dýralífið er eitthvað sem maður hefur aldrei kynnst fyrr eða síðar. Öll dýrin svo spök að maður gat gengið að þeim. Það kom mér m.a. á óvart hvað egg albatrosins eru lítil. Albatrosinn með sitt tveggja og hálfs metra vænghaf kemur úr eggjum sem eru lítið stærri en kríuegg,“ segir Sigurgeir sem myndaði allt sem fyrir augu bar. Myndað þróun sjávarútvegs Þegar talið berst að myndatökum hér heima segir Sigurgeir að þar hafi fiskurinn og allt í kringum hann verið ofarlega á blaði þegar velja átti myndefni fyrir Morgunblaðið. „Ég held ég hafi farið í róðra á öllum tegundum veiðarfæra. Mislanga
en lengst voru það nokkrir dagar á skuttogaranum Vestmannaey. Vantaði snurvoð en fékk að fara einn róður þegar þeir voru að veiða þorsk í tilraunaeldið í Klettsvíkinni.“ Sigurgeir hefur fylgt eftir allri þróun í fiskverkun. „Já, maður hefur séð allar breytingar í fiskvinnslu á þessum tíma. Fyrst voru tvær konur á borði, svo fjórar, næst tók flæðilínan við og nú sjálfvirknin. Það hefur verið gaman að mynda breytingar og þróun í fiskveiðum og vinnslu og nú er öll þessi merka saga til.“ Tvö eldgos Tvo stóra viðburði, Surtseyjargosið 1963 og Heimaeyjargosið 1973 fékk Sigurgeir í fangið. „Ég fór 130 ferðir með bát út að Surtsey, oftast á Haraldi. Ég var aldrei hraustur til sjós og lifði á sjóveikispillum, hálfvankaður. Já, það var mikið lagt á sig.“ Þarna urðu eldingarmyndirnar til sem borið hafa hróður Sigurgeirs um allan heim og framundir þetta er verið að fá þær til birtingar. „Með þeim komst ég á kortið hjá stóru blöðunum úti í heimi, Life, National Geographic, Paris Match og fleirum.“ Heimaeyjargosið hafði mikil áhrif á Sigurgeir eins og aðra Eyjamenn
Ævintýraferð með Árna Johnsen Nokkrar ferðir fór hann um landið með Árna Johnsen að safna efni í Sjómannadagsblað Moggans sem þá kom út á hverju ári. „Einu sinni myndaði ég Grímsvatnagos af því að ekki var hægt að fljúga frá Reykjavík. Svo voru einstaka verkefni út um land sem ég tók að mér.“ Saman fóru þeir Árni mikla ævintýraferð til Honkong með Cargolux með millilendingu í Tælandi. „Við þurftum að lenda í Sýrlandi til að taka eldsneyti og þar fékk ég heiftarlega matareitrun eftir að hafa étið kjúkling. Varð hundveikur.“ Einstök ferð með Jöggu Ekki var hún síðri ferð þeirra hjóna,
Sigurgeir hefur tekið margar magnaðar fuglamyndir. Hér er Hringvía með æti.
með allri sinni eyðileggingu en um leið stórfengleika. „Við fjölskyldan eins og svo margir aðrir misstum húsið okkar við Grænuhlíð undir vikur og hraun. Ég var hérna allan tímann og myndaði það mikla sjónarspil sem gosið var. Sorgin var líka mikil en við komumst í gegnum þessa þraut.“ En hvað finnst Sigurgeir skemmtilegast að mynda? „Fólk og aftur fólk. Auðvitað skilja myndir úr Surtsey og Heimaeyjargosinu mest eftir sig en fólkið er númer eitt ásamt öllu því sem snýr að sjónum,“ segir Sigurgeir sem sennilega hefur myndað flesta Eyjamenn á um 70 ára ferli sem ljósmyndari. Og er ennþá að.
Landtaka á steðjanum í Álsey
Andrés í Mjölni að toga í korkateininn.
Mokfiskerí á Erlingi. Gunni Malli, Frikki Ragnars og Stebbi Friðriks.
www.sigurgeir.is
g i n n i e r e KOPAL 4 m u t i l i r k k e d í g e l n fáa
SKRÚFAR UPP, SMELLIR SAMAN, MÁLAR! EKKERT SPARTL!
KÓPAL 4 er sérlega hentug á stofur og víðar þar sem óskað er mattrar áferðar án þess að slakað sé á kröfum um þvottheldni.
Við fylgjum almannavörnum og minnum viðskiptavini okkar á að fylgja 2 metra reglunni
/midstodin Strandvegur 30 / 481 1475 www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is
LUNDAPYSJUÆVINTÝRIÐ GERIST VÍST BARA Í HEIMAEY OG HVERGI ANNARS STAÐAR Í VERÖLDINNI
Tígull heyrði af Lundapysjufjöri þar sem að hátt í 80 pysjum var bjargað þegar upptökur áttu sér stað á bryggjunni. Við heyrðum í Erlu Ásmundsdóttur sem var stödd á Eyjunni með kvikdmyndateyminu meðan tökur stóðu yfir. Unga fólkið í tökuliðinu tók það að sér að elta uppi lundapysjur meðan tökuliðið var að skjóta. Það var þó oft þannig að pysjurnar bókstaflega duttu niður við hliðina á manni en stundum varð mikill eltingaleikur að ná í þær sem voru fráar á fæti. Getur þú sagt okkur frá þessu kvöldi? Þetta var frábært kvöld og nótt, við vorum við tökur við Fiskmarkaðinn. Vorum að kveikja bál við Fiskmarkaðinn og miklar tæknibrellur, eldpípur og ljóskastarar út um alla Friðarhöfnina. Ljósið er tælandi fyrir lundapysjurnar og er það trú Vestmanneyinga að þær leiti í ljósið á nóttinni er þær fljúga úr hreiðrinu. Þetta húllumhæ var
til þess að pysjurnar í Klifinu og Heimakletti flugu allar á ljósasjóvið og þeim hreinlega rigndi yfir okkur. Hvernig viðbrögð voru hjá kvikmyndateyminu og öllum þeim sem voru á staðnum? Kvikmyndatökuliðið og leikarar höfðu aldrei séð annað eins og 50 manns sem aldrei höfðu upplifað þessi ósköp áður urðu allt í einu að 5 ára gömlum sem hlupu út um alla bryggju á eftir pysjunum. Slegist var um hverja pysju, en blessunarlega séð var það ekki handalögmálið sem skar úr um það hver hreppti hnossið enda algjör gnægð þegar lundapysjur voru annars vegar. Það er ljóst að lundastofninn, sem áður hafði verið nánast uppiskroppa sökum ætis, hefur náð sér og pysjuveiðin er nú eins og maður man eftir henni sem barn. Pólska kvikmyndateymið, og auðvitað Íslendingarnir ofan af landi (Norðurey eins og Eyjamenn kalla hana), öðluðust fljótt leikskilning og voru eins og hörðustu pysjusafnarar
í Eyjum og slóust um hverja lundpysjuna og höfðu allir gaman af. Kannski margir sem höfðu ekki upplifað pysjubjörgun áður eða hvað? Enginn í teyminu, að eyjamönnum utanskildum, hafði upplifað neinu þessu líkt. Ég komst líka að því að lundapysjuveiðin, eða björgunaraðgerðin eins og væri réttar að kalla það, er ekki á vitorði Norðureyjaskeggja enda spurðu sumir á Messenger og Snapchat hvað við værum að gera með mörgæsir eða endur! Pólverjarnir póstuðu myndum og vídeó á fésbókina og héldu ættingjar þeirra í heimalandinu líka að þau væru að eltast við mörgæsaunga. Það vill oft gleymast hvað þetta er einstakur atburður og fordæmalaus. Lundapysjuævintýrið gerist víst bara í Heimaey og hvergi annars staðar í veröldinni.
Hvernig og hvar náðuð þið að hýsa pysjurnar? Pysjurnar 2-3 voru settar í hvern kassa og farið var með þær í flutningabíl heim til Kristínar Sjafnar frænku minnar og Gísla Stefáns og var bílskúrinn hjá þeim fylltur af kössum og var þvílík pysjulykt í bílskúrnum að annað eins hefur ekki fundist síðustu ár fyrir utan veggi Gúanósins eða Lundabústaðanna á úteyjunum. Hvernig gekk að ná þeim? Það voru auðvitað ýmiss konar aðferðir, hlaup og bogur sem minntu á afkáralegar stellingar og oft var hlegið mikið af aðförunum en allt fór vel og allir höfðu ótrúlega gaman af þessu ævintýri. Hvernig var að sleppa þeim? Tók það langan tíma? Nei, lengstan tíma tók að vigta pysjurnar og skrá þær hjá Sea Life Trust. Við mættum 15 manns til að sleppa pysjunum við bjargsbrún Hamarsins á Torfmýri. Þeir sem eru ekki kunnugir staðháttum þá er Hamarinn yndisfagurt svæði á vesturenda Heimaeyjar. Þar sjást nánast allar úteyjar eyjaklasans og bjargið er kjörinn staður til að sleppa pysjum þar sem þær hafa góða hækkun til að ná flugtaki. Það er ákveðið listform að sleppa pysjunum, sumir kasta þeim með svokallaðri ömmukasts aðferðinni en atvinnumenn skjóta þeim eins og pappírs skutlum.
Hvernig ganga tökurnar? Hvenær lýkur tökunum? Gekk rosalega vel, veðrið var aðeins að stríða okkur fyrstu dagana en síðan var bongó blíða og allt gekk upp og engin vandræði hlutust af tökunum þó ýmsir hafi haft miklar áhyggjur að hlutir færu úr böndum. Eldur og sprengingar eru ekki það sem menn eru vanir í Eyjum en þetta var fagmannlega undirbúið og unnið í samstarfi við lögreglu, slökkvilið og önnur yfirvöld. Við erum öll afar þakklát fyrir alla viðtökur í Eyjum, vinsamleg viðbrögð við öllum okkar fyrirspurnum og erfiðum spurningum og samstarfi sem ekki var sjálfgefið að öllum væri vel við. En með góðri samvinnu, trausti og vel skipulögðu liði tókst þetta allt. Allur hópurinn átti frábæran tíma í Eyjum sem á stað í hjarta allra sem tóku þátt í
verkefninu. Við erum ykkur öllum þakklát. Hvernig vildi til að þú fórst í þetta verkefni? Í vor fékk ég símtal og beðin um að taka þátt í þessu spennandi verkefni. Ég gat alls ekki neitað því og eyddi ég því sumarfríinu mínu til þess að flytja aftur „heim“ í mánuð og vinna. Ég var að vinna í þessum brasa í um 7 ár en hætti fyrir 3 árum síðan. Þegar að ég var spurð hvort ég þekkti einhvern sem gæti komið til okkar og aðstoðað við að keyra crewið, sjá um kaffið og meðlætið og vera covidbarnapían okkar datt mér í hug að heyra í nokkrum fjölskyldumeðlimum. Gengu því til liðs við okkur Magnús Karl bróðir, Andri Páll frændi og Sigrún Ella eða Lella frænka. Þau komu öll inn í þetta verkefni eins og þau hefður aldrei gert neitt annað.
UMHVERFISVERÐLAUN VESTMANNAEYJABÆJAR OG RÓTARÝ
Umhverfisverðlaun Vestmannaeyjabæjar og Rótarý voru afhent á dögunum (26. og 27. ágúst). Afhending verðlaunanna var með breyttum hætti þetta árið þar sem verðlaunahafar voru sóttir heim. Eftirfarandi veittar í ár:
viðurkenningar
voru
Fallegasti garðurinn: Illugagata 33, eigendur Elías Friðriksson og Kolbrún Kristjánsdóttir Fyrirmyndar endurbætur: Búhamar 1, eigendur Margrét Skúladóttir Sigurz og Kristján Gunnar Rikharðsson. Snyrtilegasta fyrirtækið: Pósturinn – Íslandspóstur – Ingimar Sveinn Andrésson stöðvarstjóri tekur á móti ykkur Snyrtilegasta gatan: Skólavegur – Birgir Sveinsson og Ólöf Jóhannsdóttir taka á móti ykkur á Skólavegi 26 Snyrtilegasta eignin: Þorlaugagerði eystri, eigendur Garðar Arason og Ingibjörg Jónsdóttir
NÁM Í NETAGERÐ - VEIÐAFÆRATÆKNI STARFSTENGT NÁM
Haustönn 2020
Innritun
Á haustönn 2020 býður Fisktækniskóli Íslands upp á nám í netagerð (veiðarfæratækni). Námið er í samstarfi við fagnefnd netagerðar, og öll helstu fyrirtæki í veiðarfærðargerð og þjónustuaðila á Íslandi.
Upplýsingar um innritun og frekari upplýsingar um námið má sjá á heimsíðu skólans www.fiskt.is sími 412-5966 info@fiskt.is
Kenndar verða verk- og faggreinar netagerðar samkvæmt samþykktri námskrá 2016.
KJÚKLINGARÉTTUR OG OFNBAKAÐ GRÆNMETI - Uppskrift vikunnar -
Ofnbakaður grænmeti Hráefni: 2 paprikur 1-2 sætar kartöflur flysjaðar og skornar í teninga 3 kartöflur, skornar í bita 1 rauðlaukur, afhýddur og skorinn í fernt 3 gulrætur, skornar í bita 1 msk timjan 2 msk rósmarín 1/4 bolli ólífuolía 2 msk balsamic-edik salt og ferskur svartur pipar, að þínum smekk. Aðferð: Hitið ofninn í 200°. Blandið öllu grænmetinu saman. Í aðra skál setjið timjan, rósmarín, olíu, edik, salt og pipar, blandið vel.
Hellið krydd blöndunni yfir grænmetið og hrærið öllu vel saman. Dreifið grænmetinu vel á bökunar plötu, bakið í 30-40 mín, þar til grænmetið er orðið meyrt í gegn og hefur tekið lit. Hrærið á ca. 10 mín fresti.
Bætið þá matreiðslurjóma, piparosti, rauðu pestó, soyasósu og tabasco sósu saman við, bræðið ostinn og smakkið sósuna til. Brúnið kjúklingabringurnar á annarri pönnu, á hvorri hlið og setjið síðan í eldfast mót.
Kjúklingaréttur
Hellið sósunni yfir bringurnar og látið inn í 175°c heitan ofn í um hálftíma eða þar til kjúklingabringurnar eru fulleldaðar.
Hráefni: 4-5 kjúklingabringur 4 stk hvítlauksrif (smátt skorinn) 1/2 l matreiðslurjómi 1 stk piparostur 1 krukka rautt pestó 2 msk soyasósa 5-10 dropar tabasco sósa Aðferð: Setjið um 1/2-1 msk af smjöri og léttsteikið hvítlaukinn.
Gott er að hafa ferskt salat með.
Ársþing Íþróttabandalags Vestmannaeyja fyrir árið 2019 verður haldið fimmtudaginn 17. september n.k. kl. 20:00 í Týsheimilinu. Stjórn Íþróttabandalags Vestmannaeyja
Við óskum eftir starfsmanni í hlutastarf. Nánari upplýsingar veitir Hafdís Snorradóttir hafdis@eyjar.is Umsóknarfrestur er til og með 14. september.
SUDOKU
ORÐAÞRAUT
JÓGÚRT SKYR RJÓMI KOTASÆLA ÍDÝFA SMJÖRVI
MJÓLK OSTUR MAJÓNES SMJÖRLÍKI
Hönnun / umbrot á auglýsingaefni / greinaskrif Bæklingar - vefbanner - fréttabréf - auglýsingasala - ársreikningar - boðskort o.fl. Ljósmyndun & prentun. leturstofan@leturstofan.is
Á AÐ SKORA Á FÉLAGANA?
KOMDU OG KÍKTU VIÐ! MÁN - ÞRI - MIÐ OPIÐ FRÁ 17:00 - 23:00
Viltu auglýsa fyrirtækið þitt eða koma greinum á framfæri? Afmæliskveðjur / minningagreinar / dánartilkynningar / Nýfædd Eyjabörn Sendu okkur á netfangið: tigull@tigull.is
FIM - FÖS - LAU - SUN OPIÐ FRÁ 16:00 - 23:00
/crispus
FIMMTÍU FIMMTÍU ÁR ÁR
Við munum halda áfram að hafa opið en með breyttu sniði. Stofan verður opin eftir tímapöntunum en síminn verður alltaf opin fyrir pantanir Sími 772-6766 Hrönn: 694-2655 /Svanhvít : 772-3332 Hlökkum til að sjá ykkur!
FIMMTÍU FIMMTÍU PRÓSENT PRÓSENT 50% 50% afsláttur afsláttur af af öllum öllum flugsætum í allt flugsætum í allt sumar sumar –– bókað bókað áá ernir.is ernir.is
Tannlæknar 1. - 4. september - Hjalti Þórðarson
Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40
Tímapantanir í síma 481-2772
Wood burning oven &
T
SEN
T
SEN
TILBOÐ 1 G - special, pepperoní pítsa & hvítlauksbrauð
beer from local brewery
TILBOÐ 2
pítsa með 3 áleggstegundum nutella gott & 2 L gos
4.990 kr.
TT
SÓ
TT
pítsa með 3 áleggstegundum val um hvítlauksbrauð, margaritu eða brauðstangir & 0.5 L gos
3.790 kr.
5.190 kr.
TT
SÓ
TILBOÐ 2
tværi pítsur með 2 áleggstegundum, val um margaritu, hvítlauksbrauð eða brauðstangir & 2 L Gos
5.190 kr.
TILBOÐ 3 tvær pítsur með 3 áleggstegundum val um hvítlauks eða brauðstangir
3.790 kr.
SÓ
TILBOÐ 1
T
SEN
TILBOÐ 3 G - special, sparibrauðstangir & 2 L gos
4.290 kr.
pantanir í síma: 551 0055 #PITSUGERDIN /PÍTSUGERÐIN PÍTSUGERÐIN / BÁRUSTÍG 1 PITSUGERDIN@GMAIL.COM