Tígull 28. tbl 05. árg.

Page 1

28. tbl. 05. árg. 6. - 12. september2023

VÍKINGAHÁTÍÐIN LOKAPUNKTUR Á SUMARLESTRI BÓKASAFNS VESTMANNAEYJA

Laugardaginn 2. sept var haldin Víkingahátíð á Bókasafni Vestmannaeyja. Hátíðin var í raun lokapunkturinn á Sumarlestri Bókasafnsins og GRV.

Þema Sumarlestursins í ár var Víkingar og var Bókasafnið skreytt eftir því og meira að segja var smíðað lítið víkingaskip sem hægt var að leika sér í. Krakkarnir fengu lestrarhest í byrjun sumars og þar merktu þau inn á kort siglingaleið fyrir hvert skipti sem þau lásu.

Víkingarnir Ásgeir Hjaltalín og Birita í Dali komu og sungu og spiluðu á trommu, Ásgeir sýndi svo vopn og aðra muni og sagði frá þeim, Birita kenndi fólki að kríla, dregið var í happdrætti, hægt var að leysa rúnaþraut, lita víkingamyndir og gæða sér á dýrindis kleinum.

Þau börn sem voru skráð í Sumarlesturinn fengu í glaðning frá Bókasafninu og fyrir þau sem ekki komust á hátíðina þá er enn hægt að sækja sér glaðning í afgreiðslu safnsins. Krakkarnir sem tóku þátt í Sumarlestrinum lásu 367 bækur í sumar sem er glæsilegur árangur. Þetta er í sjötta sinn sem Bókasafnið stendur fyrir Sumarlestri í þessari mynd. Valið er þema fyrir hvern Sumarlestur og hefur það heppnast vel. Krakkarnir og foreldrar þeirra hafa tekið við sér og skráning í Sumarlesturinn hefur aukist ár frá ári.

TÍGULL

DREIFING:

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó. Forsíðumynd/ Tói Vídó /Sigmar Þröstur á hlaupum í Vestmannaeyjahlaupinu.

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

ÚTGÁFA:

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

HEFUR FARIÐ MEÐ KROSSINN TIL 185 LANDA UNDANFARIN 38 ÁR

Keith Wheeler kemur frá Bandaríkjajunum en hann er þekktur fyrir að bera viðarkross á herðum sér um allan heim. Á 39 árum hefur hann farið með krossinn til 185 landa. Hann lýsir því svo, að Guð hafi kallað hann til að vera boðberi friðar og sáttargjörðar.

„Í rúmlega tvö ár hafa verið

bænastundir í Hvítasunnukirkjunni milli klukkan 12.00 - 13.00 á miðvikudögum þar sem við biðjum fyrir landinu, Eyjum og málefnum sem við fáum og langar okkur til að bjóða fleirum að vera með“, segir Þóranna Sigurbergsdóttir. Miðvikudaginn 30. ágúst kom Keith ásamt hjónum frá Keflavík og var með okkur á bænastund.Við vorum 11 manns saman-

HÖNNUN &PRENTUN Á HINU OG ÞESSU

Setjum upp og seljum auglýsingar í blöð fyrir hina ýmsu einstaklinga og félagasamtök t.a.m.

• Afsláttarbók LEB • LEB blaðið

• Sjómannadagsblað Vestmannaeyja

• Þjóðhátíðarblað Vestmannaeyja

• Sjómannablaðið Víkingur

• Heima er bezt • VM blaðið

• Blað Rafiðnaðarsambandsins

• Tímaritið Úti • Vikublaðið Tígull

komin. Keith er auðmjúkur og vinalegur en við vorum að hitta hann í fyrsta skipti. Við hjónin fengum okkur að borða með honum og svo setti hann saman krossinn og spurði okkur hvar væri best að ganga. Hann gekk af stað og heilsaði mörgum og sýndi fólki áhuga. Hann bað fyrir nokkrum. Krossinn sem hann er með er þriðji krossinn hans. Fyrsti týndist í flugi og næsti var orðinn mikið eyddur og brotnaði. Keith er 65 ára og á konu og fimm börn. Hann hefur farið í fangelsi um 40 sinnum og krossinn 50 sinnum. Keith hefur lent í margs konar háska á ferðum sínum en hann heldur áfram að boða frið og kærleika Jesú Krists. Við hjónin vorum í Youth With a Mission skóla í Englandi fyrir 46 árum og var gaman að tala við Keith um sameiginlega vini frá þeim tíma. Það var gott að kynnast Keith og mikill heiður að hann hafi gengið með krossinn um götur Heimaeyjar. Hann var áhugasamur um Vestmannaeyjar og fór sáttur með Herjólfi um kvöldið.

Nánari upplýsingar um Keith eru á vefsíðunni: kw.org

900 Vestmannaeyjar // Vestmannabraut 38 leturstofan@leturstofan.is // s. 481 1161

Þjónusta TM er hugsuð fyrir þig

Á tm.is og í TM appinu getur þú gengið frá öllum tryggingum hvar og hvenær sem þér hentar.

HANDABOLTATÍMABILIÐ FRAMUNDAN

Blaðamaður Tíguls heyrði í þjálfurum meistaraflokkanna í handknattleik fyrir komandi tímabil. Magnús Stefánsson þjálfari Meistaraflokks karla í handknattleiks tók við af Erlingi Richardssyni eftir síðasta tímabil en Magnús var aðstoðaþjálfari á síðastu leiktíð. Sigurður Bragason þjálfari Meistaraflokks kvenna tók við þeim árið 2020 en var áður aðstoðarþjálfari 2019 þegar að Hrafnhildur Skúladóttir var með liðið. Sigga Braga til halds og traust er Hilmar ágúst Björnsson sem hefur verið með Sigga síðan hann tók við sem aðalþjálfari.

góð, við erum með góða blöndu af eldri og yngri leikmönnum og það er mjög heilbrigð samkeppni um stöður í liðinu.

Reiknaru með að styrkja hópinn enn frekar?

Við erum gríðarlega ánægðir með hópinn eins og hann er í dag og sjáum ekki fram á að bæta fleiri leikmönnum við enda er það óskrifuð stefna hjá okkur að reyna að koma eins mikið af okkar ungu og efnilegu leikmönnum á legg, því viljum við skilja eftir smá svigrúm fyrir þá að athafna sig í.

Hvernig leggst komandi tímabil í þig?

Komandi tímabil leggst vel í okkur, það er mikil tilhlökkun í drengjunum og þeir hafa æft vel í sumar og það sem af er hausti.

Eru miklar breytingar á hópnum og hverjar þá?

Það er óhætt að segja að það séu talsverðar breytingar á liðinu en þeir Róbert, Rúnar og Janus hafa róið á önnur mið og því talsverður missir af þeim bæði í vörn og sókn. Við fengum til liðs við okkur ungan dreng frá Portúgal, Daniel Vieira sem leikur í stöðu hægri skyttu. Hann á eftir að aðlagast liðinu og deildinni en hann kemur til með að styrkja liðið. Svo erum við ríkir af ungum og mjög efnilegum leikmönnum sem eru farnir að banka á dyrnar hjá okkur en það eru drengir sem komið hafa upp í gegnum öflugt yngri flokka starf hjá okkur, svo það er óhætt að segja að framtíðin sé björt hvað það varðar.

Hvernig er staðan á hópnum, eru allir heilir?

Staðan á leikmanna hópnum er

Við finnum fyrir miklum meðbyr í bænum okkar og miklum áhuga fyrir liðinu sem gefur drengjunum mikinn drifkraft í að standa sig. Eins eru mjög margir sjálfboðaliðar að leggja hönd á plóg við hin ýmsu verkefni sem tengjast liðinu, leikjunum eða umgjörðinni í heild sinni, það eitt og sér er mikil vítamínsprauta inn í hópinn og hvetur drengina til að standa sig eins vel og þeir geta því við vitum það vel að það er ekki sjálfsagt að hafa alla þessa sjálfboðaliða að sinna þessu gríðar-

lega óeigingjarna starfi sem þeir gera frábærlega. Við viljum koma á framfæri sérstökum þökkum til sjálfboðaliða okkar, þeir eiga hvað stærstan þátt í velgengni ÍBV í handbolta síðastliðin rúman áratug, án þeirra værum við ekki neitt. Sjáumst á vellinum gott fólk, áfram ÍBV.

Hvernig leggst komandi tímabil í þig?

Við erum öll bara mjög spennt. Við áttum frábært tímabil í fyrra, í raun það besta í kvennaboltanum hér í einhver 15-20 ár. Þannig að við viljum reyna að halda okkur þarna í toppnum og spila fleiri stóra leiki.

Eru miklar breytingar á hópnum og hverjar þá?

Já það eru eru 6 stelpur sem áttu leiki í fyrra sem verða ekki með. Þar munar mest um Hörpu Valey sem flutti á Selfoss, hún hefur verið í stóru hlutverki hjá okkur síðustu 4 tímabil. Þá er Ásta Björt ófrísk og fær þar að leiðandi frí. Við misstum 3 unga markverði

Magnús Stefánsson, þjálfari Sigurður Bragason, þjálfari Roland Eradze, aðstoðarþjálfari Mfl. kk.

sem voru í hóp í fyrra. Þá flutti Ólöf María í borgina, en hún fær pottþétt ógeð þar um áramót og kemur aftur.

Nýjir leikmenn eru Britney Cox skytta sem kom frá Stjörnunni, Ásdís Guðmundsdóttir línumað-

í nokkuð stóra aðgerð á hné og hásinum í sumar. Það er enn nokkuð í land með hana. Þá fór Sunna í aðgerð á olnboga í sumar og er að byrja á fullu. Annars eru allar nokkuð brattar

Reiknaru með að styrkja hópinn enn frekar?

MEISTARAFLOKKAR ÍBV Í HANDBOLTA

Nú fer senn að hausta og því tímabært að handboltanum sé kastað á ný. Það er því ráð að kynnast leikmönnum aðeins. Kvennalið ÍBV hefur leik á úti þegar þær fara til Akureyrar og heimsækja lið KA/Þór í fyrsta leik sínum í Olísdeildinni laugardaginn 9. september kl. 13.30.

Agnes Styrmisdóttir 15 ára - miðja Birna María Unnarsdóttir 16 ára - miðja Elísa Elíasdóttir 19 ára - lína Marta Wawrzynkowska 31 ára - mark Amelía Einarsdóttir 19 ára - vinstra horn Britney Cots 26 ára - lína Erika Ómarsdóttir 23 ára - horn Sandra Dís Sigurðardóttir 27 ára - skytta Ásdís Guðmundsdóttir 22 ára - lína Bríet Ómarsdóttir 21 árs - lína Hrafnhildur Hanna Þrastard. 28 ára - skytta/miðja Herdís Eiríksdóttir 18 ára - miðja Sara Dröfn Richardsdóttir 18 ára - horn Birna Dís Sigurðardóttir 15 ára - horn Dagbjört Ólafsdóttir 18 ára - horn Karolina Oslzowa 30 ára - skytta/miðja Sunna Jónsdóttir 34 ára - miðja Birna Berg Haraldsdóttir 30 ára - skytta Edda Bognar 18 ára - mark Margrét Castillo 23 ára - skytta
#23 #4 #6 #14 #8 #27 #22
#7 #17 #15
#15 #29
#28
#34 #10
#2
#5
#11 #1

Olísdeild karla hefst einnig laugardaginn 9. september en þá fara þeir í Garðabæinn og spila gegn Stjörnunni í TM höllinni og hefst leikurinn kl. 18:15.

Daníel Esteves Vieira 23 ára - skytta Gauti Gunnarsson 21 árs - hornamaður Nökkvi Snær Óðinsson 24 ára - hornamaður Sveinn José Rivera 25 ára - línumaður Andri Andersen 19 ára - línu/varnarmaður Dánjal Ragnarsson 2 árs - skytta Hinrik Hugi Heiðarsson 18 ára - línumaður Pavel Miskevich 26 ára - markvörður Theodór Sigurbjörnsson 31 ára - hornamaður Arnór Viðarsson 20 ára - skytta Ísak Rafnsson 31 ára - varnarmaður Breki Þór Óðinsson 20 ára - hornamaður Andrés Marel Sigurðsson 18 ára - hornamaður Ívar Bessi Viðarsson 19 ára - varnarmaður Dagur Arnarsson 27 ára - miðjumaður Kári Kristján Kristjánsson 39 ára - línumaður #2 #17 #4 #21 #23 #18 #9 #29 #27 #20 #10 #3 #28 #22 #7 Elmar Erlingsson 19 ára - miðjumaður Friðrik Hólm Jónsson 25 ára - hornamaður Gabríel Martinez Róbertsson 24 ára - hornamaður #64 #88 #7 #46
33
Petar Jokanovic ára - markvörður
23
Pintér Dániel ára - skytta Sigtryggur Daði Rúnarsson 27 ára - miðjumaður/skytta #24 #31

LJÓSMYNDIR ÚR VESTMANNAEYJAHLAUPINU

Vestmannaeyjahlaupið fór fram í þrettánda sinn síðastliðinn laugardag en hlaupið hefur farið fram árlega frá árinu 2011. Fimmtíu hlauparar tóku þátt í ár. Hér má sjá úrslitin:

10 km. kvk

1 Sandra Dís Pálsdóttir 0:52:13

2 Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 0:53:09

3 Erla Rós Sigmarsdóttir 0:58:02

10 km. kk

1 Hannes Jóhannsson 0:38:26

2 Kristinn Árnason 0:40:55

3 Sæþór Hallgrímsson 0:42:22

5 km. kvk

1 Íris Sverrisdóttir 0:25:38

2 Henný Davíðsdóttir 0:29:03

3 Elín Sandra Þórisdóttir 0:29:55

5 km. kk

1 Haukur Leó Magnússon 0:22:53

2 Aron Ingi Sindrason 0:26:11

3 Sebastian Styrmisson 0:26:19

Allir klárir að byrja hlaupið. Hjálmar Jónsson. Bjartey Smáradóttir Björgvin Hallgrímsson. Arnar Gísli, Henný Dröfn, Robert Thorne, Sylvía Dögg og Ísafold Dögun. Upphitun. Magnús Örn Möller. María Rós Friðriksdóttir og Ása Ingibergsdóttir. Haukur Leó Magnússon. Benóný Benónýsson og Sæþór Gunnarsson. Aron Sindrason, Sindri Ólafsson, Aron Sindrason og Sæþór Gunnars. Ólöf Ragnarsdóttir. Íris Sverrisdóttir. Esther Óskarsdóttir og Magnús Stefánsson. Aron og Ísafold Dögun. Sigurlína Guðjónsdóttir.

SPJALL VIÐ FORMANN NEMENDAFÉLAGSINS

Við ræddum við formann nemendafélagsins Ingu Dan Ingadóttur og hún segir að haustið fari vel af stað í FÍV. Nemendafélagið hóf félagsstörf í síðast liðinni viku með hinum árlega viðburði “Nýnemagrillinu”. Eins og vanalega stóðu Óli Týr og Einar Fidda yfir kolunum. “Það var gríðarlega flott mæting í grillið og vorum við mjög stolt með þennan fyrsta viðburð skólaársins.“ Miklar væntingar eru fyrir komandi skólaári og í nemendafélaginu er búið að plana fjölbreytta og skemmtilega viðburði.

„Næsti viðburður hjá okkur er hið árlega fótboltamót FÍV-Cup.“

Það eru kannski ekki margir sem átta sig á því að þetta mót er ein af elstu hefðum nemendafélags FÍV.

Það myndast alltaf mikil stemming í kringum FÍV-Cup sem verður, eins og undanfarin ár, haldið á gervisgrasvelli Barnaskólans. Tvö 5 manna lið nemenda keppa í einu í einskonar riðlakeppni og liðið sem vinnur keppir við annað vinningslið þangað til að eitt lið stendur eftir sem sigurvegari. „Skráningin hefur gengið rosa vel og mörg lið hafa skráð sig til leiks. Það er skemmtilegt að fylgjast með liðunum verða til og við höfum heyrt að mörg þeirra ætla að mæta í búningum. Svo má ekki gleyma að nefna áhorfendastúkuna sem er alltaf full og þar vantar ekki stemninguna. Það þarf alls ekki að hafa neitt vit eða sérstakan áhuga á fótbolta til að taka þátt eða horfa

á vegna þess að þetta snýst meira um að hittast heldur en sjálfan boltann.“ „Það er mikilvægt fyrir okkur nemendurna í FÍV að hafa gott félagslíf í skólanum og það er helsta stefna nemendafélagsins að halda áfram að byggja upp gott og öflugt félagsstarf. Við erum mjög spennt fyrir þessu skólaári og ætlum að reyna að gera félagslífið enn þá betra.” segir Inga Dan.

Að lokum langar nemendafélagið að hvetja alla nemendur til að mæta og megi fjörugasta liðið sigra!

Haustið í HÖLLINNI

LAUGARDAGUR 16. september

Munchen Street Food Beer Pong og aðrir bjórleikir

LAUGARDAGUR 23. september

LUNDABALL Jónsi & hljómsveit

LAUGARDAGUR 30. september

GOSPELTÓNLEIKAR með kór Lindakirkju

tix.is/hollin

LAUGARDAGUR 28. Október

Matti Matt Kiddi Bigfoot LÉTTÖL
Fylgist með okkur á Facebook, því meira á
Tryggið ykkur miða á viðburði Hallarinnar, því það er svo gaman að hlakka til
eftir að koma!
ÞRAUTIR GULUR SVÍN HJARTA ÚTSÝNI SKÓGUR FJALL HVÍTUR PEYSA BROS GLEÐI TÓNLIST GEISLADISKUR

GEIR HAUKUR SÖLVASON

Elsku faðir okkar, tengdafaðir, afi og sambýlismaður, lést á Hraunbúðum Vestmannaeyjum þann 26. ágúst síðastliðinn.

Úförin fór fram í kyrrþey.

Helga Svandís Geirsdóttir

Alfreð Geirsson

Ágúst Már Þórðarson

Guðbjörg Pálmadóttir

Grétar H. Skarphéðinsson

NÝJA

TANNLÆKNASTOFAN

Flötum 29

Tímapantanir í síma: 481-1012

Neyðarsíminn: 844-5012

tannsi@eyjar.is

Passamyndir

Fasteignaljósmyndun

Bókið tíma á facebook.com/thoreyljosmyndari eða á netfangi thoreyhh19@gmail.com

Elskulegur bróðir minn, frændi og vinur,

ÞÓRÓLFUR VILHJÁLMSSON

Skipa- og húsasmíðameistari

Hásteinsvegi 62, Vestmannaeyjum

lést fimmtudaginn 24. ágúst á Heilbrigðisstofnun suðurlands í Vestmannaeyjum.

Útför hans fer fram frá Landakirkju

fimmtudaginn 7. september kl 13. Blóm afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög.

Sigfríður Vilhjálmsdóttir

Boris Jóhann Stanojev

Sóley Erla Stanojev og aðrir ættingjar og vinir

HÆGT ER AÐ KAUPA MIÐA OG VELJA SÆTI Á EYJABIO.IS FIMMTUDAGUR
FÖSTUDAGUR
KL. 20.00 KL. 20.00
7. SEPTEMBER
8. SEPTEMBER
HÁGÆÐA VINNUFÖT FÁST HJÁ OKKUR HÆGT ER AÐ ÚTVEGA ALLSKONAR KLÆÐNAÐ Í HINUM ÝMSU STÆRÐUM Strandvegur 30 / 481 1475 www.midstodin.is / midstodin@midstodin.is

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Tígull 28. tbl 05. árg. by Leturstofan - Issuu