28. tbl. 06. árg. 31. júlí - 6. ágúst 2024

Gleðilega Þjóðhátíð!
Leturstofan og Tígull
óska Vestmannaeyingum og gestum gleðilegrar hátíðar!
28. tbl. 06. árg. 31. júlí - 6. ágúst 2024
Gleðilega Þjóðhátíð!
Leturstofan og Tígull
óska Vestmannaeyingum og gestum gleðilegrar hátíðar!
Kæru Þjóðhátíðargestir.
Það er mér sannur heiður að fá að bjóða ykkur velkominn á þessa stóru afmælishátíð.
Í ár eru liðin 150 ár frá því að við héldum okkar fyrstu Þjóðhátíð.
Það er ágætt að staldra aðeins við þá staðreynd og minna sig á hversu magnað það er. Upplifun af þjóðhátíð er mismunandi milli allra gesta. Hvað mig varðar, þá upplifi ég Þjóðhátíð ungur að aldri beint af kúnni. Fað-
Ellert ásamt syni sínum Daníel á Þjóðhátíð.
ir minn var í Þjóðhátíðarnefnd í mörg ár. Það þýddi að ég sá manninn ekki í þrjár vikur fyrir hátíð, ekkert á hátíðinni sjálfri og svo birtist hann örmagna á miðvikudeginum eftir. Mér fannst ég alltaf eiga stóran þátt í þessari hátíð þar sem ég var látinn rífa í sundur plastarmbönd og telja. Armböndin voru alltaf hernaðarleyndarmál, það mátti engin vita lit eða gerð armbandsins. Mér fannst ég vera í innsta hring. Það þýddi ekkert að
DREIFING:
telja vitlaust heldur. „Ef þú ruglast, þá byrjaru aftur.“
Í dag sit ég í Þjóðhátíðarnefnd með einstaklega færum hópi af fólki. Fólki sem þykir alveg einstaklega vænt um þennann stórmerkilega menningarviðburð okkar Eyjafólks. Þar er valinn maður í hverju rúmi. Í aðdraganda hátíðar fær maður líka að kynnast þessum ótrúlega hóp sjálfboðaliða sem leggur allt undir við að undirbúning þessarar hátíðar. Án þeirra væri engin Þjóðhátíð. Höfum það alveg á hreinu. Það er styrkur okkar félags og okkar byggðalags að eiga svona fólk. Fólk sem er tilbúið að gefa okkur öllum tíma sinn, fólk sem leggur hjarta og sál í að gera þetta að veruleika. Ég legg til að við höfum það í huga þegar við göngum um fallegasta hátíðarsvæði í heiminum að það var fólkið okkar sem gerði þetta mögulegt.
Ég vil einnig hvetja gesti til að vera vakandi! Könnum hvort allt sé í góðu og hikum ekki við að spyrja ef við erum ekki viss. Þjóðhátíð er fjölskylduhátíð fyrst og fremst okkur fullorðna fólkinu ber skylda að sýna, yngstu gestum og þeim sem eru að koma í fyrsta skipti, okkar bestu hegðun. Ég vona að allir njóti Þjóðhátíðar 2024 og skemmti sér sem allra best.
Afmæliskveðja
Ellert Scheving Pálsson, framkvæmdastjóri ÍBV
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn/Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó. Ljósmyndir/Addi í London. Forsíðumynd: Georg Theodórsson.
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is
Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
Hjölli við brennuna.
Við fengum Hjölla í létt spjall um þjóðhátíð, undirbúning og það sem skiptir mestu máli í hvíta tjaldinu.
Fjölskylda:
Elínborg Friðriksdóttir og Vordís Anja, dóttir okkar.
Sonur Davíðs í Tölvun og Aðalheiðar Jensdóttur.
Systkini eru Guðmundur Davíðson óperusöngvari, Nanna Berglind og Guðjón Kristinn.
Hver er fyrsta minning þín á þjóðhátíð?
Það er líklega bara þegar ég og Guðmundur unnum söngkeppnina 90 og eitthvað með laginu Heimaslóð.
Hver er hápunktur hátíðarinnar að þínu mat?
Hápunkturinn er hin eilífða klassík á miðnætti alla dagana.
Hvernig hefðir hafa skapast í kringum þig og þitt fólk þessa helgina?
Það var hefð að grilla pulsur kl. 7 á laugardagsmorgni í rústum brennunnar (sem er reyndar búið að banna í dag).
Hvað er mikilvægast í undirbúningnum? Eitthvað sem er alveg ómissandi?
Rækjusalatið og flatkökurnar.
Er fjölskyldan þín alltaf með hvítt tjald? Já það er alltaf venjan að vera með hvítt tjald.
Litli eða stóri pallurinn? Hvorugt, Hvítu tjöldin.
Fallegasta virkið, vitinn, hofið eða myllan? Myllan.
Fyrir hvað stendur hátíðin í þínum huga? Vináttu og gleði.
Hvaða þjóðhátíð stendur upp úr hjá þér og af hverju? 2016. Rosalegt ár, 20 stiga hiti alla helgina og þá byrjuðu allir dagar á að leika sér á spíttbát í kringum eyjuna með vinum og vandamönnum. Það var svo gott veður að við hoppuðum í sjóinn af bátnum og tókum sundsprett til að kæla okkur niður.
Eitthvað skemmtilegt eða eftirminnilegt atvik sem þú vilt deila með okkur? Eftirminnilegt er þegar ég steig á 1000 gráðu heitan nagla í brennunni við að grilla pulsur (ætli það sé ekki ein af ástæðum afhverju það er bannað í dag) og spítalaferð í kjölfarið. En Skemmitlegra er auðvitað sigurinn með fly on the wings of love
með Guðmundi, það var rosalegt gigg.
Hvað ertu búinn að vera lengi í þjóðhátíðarnefnd? Þetta er annað árið mitt.
Eitthvað að lokum?
Til hamingju með þessa 150 ára hátíð og Gleðilega hátíð, förum varlega og skemmtum okkur fallega.
Hjölli tekur að sér blokkflautuleik í hvítu tjöldunum.
Opnunartími yfir Þjóðhátið í Eyjum
1. ágúst 2. ágúst
3. ágúst 4. ágúst 5. ágúst
10:00 - 18:00 & opnum aftur 22:00 - 02:00 (Húkkarinn) 10:00 - 21:00 10:30 - 21:00 10:30 - 21:00 11:00 - 16:00
Djákninn // Strandvegur 47 // djakninn.is
Gleðilega þjóðhátíð!
Miðstöðin óskar Vestmannaeyingum og gestum gleðilegrar þjóðhátíðar.
Strandvegur 30 // s: 481 1475
Opnun yfir þjóðhátíðina: Föstudagur 10:00 - 12:00. Laugardag, sunnudag og mánudag er lokað. Opnum aftur kl 08:00 á þriðjudag.
Staða:
Nokkuð góð
Fjölskylduhagir:
Í sambúð með Evu Maríu Jónsdóttir, tvö börn og tvö stjúpbörn.
Fjöldi Þjóðhátíða?
Ekki viss en myndi segja 30+
Hvernig verður Þjóðhátíð eftir 50 ár?
Örugglega bara nánast eins.
Hvað er uppáhalds Þjóðhátíðarlagið þitt?
Þar sem hjartað slær (Jón Helgi bróðir uppveðrast allur þegar hann heyrir þetta ásamt "Ég er kominn heim")
Hvert er uppáhalds lagið í Brekkusöngnum? Ísland er land þitt
Litli pallurinn eða Stóri pallurinn?
Litli, nema þegar Miskunn (áður Merkúr spilar á stóra)
Hvert er fallegast; Vitinn, Myllan eða Hofið?
Vitinn er bara mörgum deildum ofar þegar kemur að fegurð, smíði eða öðru.
Hvað er skemmtilegast við Þjóðhátíð?
Undirbúningurinn
Hver er eftirminnilegasta Þjóðhátíðin?
Þegar kveiknaði í tjaldinu okkar (2011). Þegar mamma kom og sótti mig, Tryggva Gunn og Jóhönnu Jóhanns í brekkuna á hádegi á mánudeginum, ekki par sátt með unglingana.
Hvað er nauðsynlegt í tjaldið?
Flatkökur og lagterta.
Hver er kjarni Þjóðhátíðar/ Fyrir hvað stendur hátíðin í þínum huga?
Fjölskylduhátið er það sem kemur fyrst í huga.
Mætirðu jafnan á setninguna?
Auðvitað
Hefur þú verið í búning með vinahópi?
Nei, hef ekki verið svo frægur.
Lestu Þjóðhátíðarblaðið?
Það er bara partur af undirbúningnum.
Hvaða dagur eða kvöld Þjóðhátíðarhelgarinnar stendur upp úr?
Föstudagurinn, hann er bestur
Hvað er mikilvægast í undirbúningi fyrir Þjóðhátíð?
Að þurfa ekki að hlaupa eftir stæðum lengur :) En að reyna að halda jafnaðargeði í gegnum þetta er mikilvægast.
Fyrstu minningarnar af Þjóðhátíð í Herjólfsdal?
Ég man varla hvað ég var að gera í gær, en ef eitthvað þá dettir mér fyrst í hug að hlusta á Life if life á litla pallinum
Nú hefur þú verið að sjá um kerfið fyrir hvítu tjöldin, hvernig er reynslan af þessu?
Ég er þokkalega ánægður með hvernig þetta hefur þróast, það er verið að bæta þetta smá og smá eftir tillögur frá gestum. Ég er allavega mjög ánægður að þurfa ekki að hlaupa eftir stæði lengur.
Eitthvað að lokum?
Gleðilega þjóðhátið allir, góða skemmtun.
Gleðilega þjóðhátíð
Herbert Guðmundsson verður í Eyjunni á Þjóðhátið með varning til sölu með posa. Can’t Walk Away bolir, húfur og hettupeysur. Einnig hægt að forpanta og greiða á Herbert.is - pantanir afgreiddar í Eyjum. Afhent af Herberti
Vestmannaeyjabær óskar hátíðargestum góðrar skemmtunar í Herjólfsdal
Addi hefur verið duglegur með myndavélina á þjóðhátíðum síðastliðna áratugi og hann orðið gríðarlegt magn af myndum. Hér má sjá nokkrar skemmtilegar úr ljósmyndasafninu hans frá síðustu þjóðhátíðum.
Hve dátt er hér í dalnum inni, er dagur lýkur göngu sinni og þegar ljómar bálið bjarta, þá birtir yfir hverju hjarta.
Oddgeir Kristjánsson/Ási í Bæ
Góða skemmtun!
Fjölskylda:
Þriggja barna faðir, tveir tveggja mánaða nýbakaðir tvíburameistarar Máni og Stormur, og einn tveggja og hálfs árs prins Frosti, með Dagbjörtu G. Guðbrandsdóttur
Hvernig er tengingin þín til Eyja?
Margir halda að ég sé Eyjamaður því ég er svo oft í Eyjum, en það má eiginlega segja að tengingin mín til Eyja sé í gegnum Þjóðhátíð og svo Lundann þar sem ég mæti reglulega að spila fyrir Eyjamenn. Ég elska Vestmannaeyjar!
Hvenær komstu fyrst á Þjóðhátíð?
Ég kom fyrst á Þjóðhátíð fyrir meira en 10 árum síðan.
Hversu oft hefuru verið á Þjóðhátíð?
Ég hef mætt á hverju ári eftir að ég kom fyrst, svo þetta er yfir 10 skipti. Eftir að maður mætir einu sinni á Þjóðhátíð, þá getur maður ekki sleppt því!
Hver er hápunktur Þjóðhátíðarinnar?
Hápunktur Þjóðhátíðar er klárlega brekkusöngurinn á sunnudeginum og þegar blysin fara á loft. Það er rosalegt móment sem allir þurfa að upplifa!
Þjóðhátíðin!
Við fengum Victor í létt spjall um þjóðhátíðarferðirnar hans til Eyja.
Hvaða þjóðhátíðarlag er uppáhalds?
“Þar sem hjartað slær” með Fjallabræðrum og Sverri Bergmann er í miklu uppáhaldi, en nýja lagið með FM95BLÖ “Allt sem ég þarf” er algjör negla!
Hvað finnst þér mikilvægt að hafa í hvíta tjaldinu? Ertu ekki annars með einhverjum í hvítu tjaldi? Ég er ekki kominn með mitt eigið hvíta tjald eins og er, en það fer örugglega að styttast í það. Ég er samt með boð í fullt af hvítum tjöldum frá góðum vinum úr Eyjum og elska hvítu tjöldin. Það er gríðarlega mikilvægt að hafa gott nesti í hvítu tjöldunum og góðan gítar, píanó eða Soundboks til að henda í alvöru stemningu. Það er ekkert skemmtilegra en gott hvítt partýtjald!
Hvað er ómissandi á Þjóðhátíð?
Að vera vel undirbúinn með góð föt fyrir alls konar veður, en maður veit aldrei hvað Ísland býður upp á eins og hefur sést í sumar. Það skiptir samt engu máli hvernig veður er á Þjóðhátíð, það er alltaf stemning!
Hvar og hvenær verður þú að spila? Ég verð með yfir 10 gigg á Þjóð-
hátíð í ár, en ég byrja veisluna snemma í ár og mæti á miðvikudegi - tek Lundapartý á Lundanum bæði á miðviku- og fimmtudegi þar sem þau verða með Húkkarapepp. Svo verð ég alla daga að spila í Tuborg tjaldinu í Dalnum, en á daginn verð ég svo á Lundanum góða með fullt af leynigestum milli 12-20 föstu-, laug- og sunnudeginum, mæli með að allir kíki þangað yfir daginn. Ég verð svo með Kristmundi Axel á stóra sviðinu á föstudeginum um 1 leytið, en svo eru uppáhalds giggin mín á laugardeginum með FM95BLÖ um 23 leytið og Doctor Victor x DJ Muscleboy sett beint eftir flugeldasýninguna sem verður rosalegt!
Hvaða Þjóðhátíð stendur upp úr hjá þér og af hverju?
Ætli það sé ekki Þjóðhátíð árið 2019 þegar ég spilaði í fyrsta skipti á stóra sviðinu, en það var sumarið sem ég gaf út lagið “Sumargleðin” sem varð mjög vinsælt. Það var rosalegt að heyra og sjá allan Dalinn syngja með!
Eitthvað að lokum?
Gleðilega Þjóðhátíð kæru vinir og njótiði vel - þetta verður epískt!
Föstudagur02.ágúst kl.9-18
Laugardagur3.ágúst kl.11-16
Sunnudagur4.ágúst kl.12-16
Mánudagur5.ágúst LOKAÐ
Birta ásamt dóttur sinni og föður á Þjóðhátíð.
Fjölskylda: Ég er dóttir Baldurs Þórs Bragasonar og Helen Kjartans. Kærastinn minn er Andri Þór Gylfason og eigum við tvö börn Hrafntinnu og Baldur Þór.
Hver er þín fyrsta minning frá þjóðhátíð?
Fyrsta minningin mín er þegar ég var að sauma rennilásinn á tjaldið með pabba í biluðu roki á laugardegi uppúr hádegi, þegar tjaldið við hliðiná okkur sprakk upp og fauk upp Dalfjallið og hvarf yfir Eggjarnar, inni í tjaldinu sátu tvær konur með kaffibolla og auðvitað stökk pabbi til að aðstoða.
Hver er hápunktur hátíðarinnar að þínu mati og af hverju?
Svo margir hápunktar, en ætli það sé ekki þegar blysin kvikna og Þar sem hjartað slær byrjar að hljóma og öll fjölskyldan og vinir standa saman í brekkunni.
Hvernig hefðir hafa skapast í kringum þig og þitt fólk þessa helgina? Við stórfjölskyldan og vinir reynum að borða saman kvöldmat föstudag og laugardag fyrir dalinn.
Hvað er mikilvægast í undirbúningnum? Eitthvað sem er alveg
Við fengum Birtu í létt spjall um þjóðhátíð, undirbúning og það sem skiptir mestu máli í hvíta tjaldinu.
ómissandi? Mamma mín og pabbi hafa gert mínar þjóðhátíðar mjög eftirminnilegar og er pabba sárt saknað alla daga og sérstaklega þessa helgi, en Mikilvægast í undirbúningnum er auðvitað mamma mín, án hennar myndi þjóðhátíðin ekki vera eins og hún er. Ómissandi er fólkið sem er með okkur í tjaldinu, Lilja kristinns og Steini spítnó og fleiri.
Er fjölskyldan þín alltaf með hvítt tjald? Hverjir eru saman í því tjaldi? Við erum alltaf með hvítt tjald með mömmu og systkinum mínum, Lilja og Steini hafa verið með okkur síðan ég man eftir og svo fleiri vinir og kunningjar.
Litli eða stóri pallurinn? Stóri snemma kvölds og litli upp undir morgun.
Hvað er fallegast Vitinn, Myllan eða hofið? Hofið
Fyrir hvað stendur hátíðin í þínum huga? Þetta er skemmtilegasta helgi ársins og finnst mér skemmtilegast að eyða henni með fjölskyldum og vinum í mesta stuðinu. Brekkan á kvöldin og svo tjaldparty eftir miðnætti.
Hvaða þjóðhátíð stendur upp úr hjá þér og af hverju? Þjóðhátíðin 2019, á svo margar skemmtilegar minningar, veðrið var frábært, ég eyddi mestum tíma með mömmu, pabba og dóttur minni.
Eitthvað skemmtilegt eða eftirminnilegt atvik sem þú vilt deila með okkur? Eina þjóðhátíðina vorum við systur, Elísabet Bára inní tjaldi snemma morguns að borða snakk og ídýfu þegar við heyrum að það er brjálað stuð í litla danspallinum og við vildum auðvitað ekki missa af því svo við tókum snakkið og ídífuna með okkur niðrá pall sem vakti mikla lukku. Svo á ég einnig margar skemmtilegar minningar með mömmu og pabba, en þau eru mikið þjóðhátíðarfólk og ætli ég hafi ekki smitast af þeim. Þú hefur verið í undirbúningnum í Dalnum, ertu búin að vera lengi og hvernig finnst þér? Þetta er fyrsta árið mitt þar sem ég ákvað að mæta, hef í mörg ár verið á leiðnni en aldrei látið verða af því svo ég ákvað að prófa og þetta er mjög skemmtilegt.
Fjölskyldan í hvíta tjaldinu. Birta ´asamt foreldrum sínum.
Fjölskyldan á leið á þjóðhátíð.
Feðginin í brekkunni. Mögulega mánudagsmorgun?
Addi hefur verið duglegur með myndavélina á þjóðhátíðum síðastliðna áratugi og hann orðið gríðarlegt magn af myndum. Hér má sjá nokkrar skemmtilegar úr ljósmyndasafninu hans frá síðustu þjóðhátíðum.
Miðvikudagur 31. júlí
Hvítatjaldssúlur fara upp á eftirfarandi tímum:
17.00 Reimslóð, Þórsgata, Týsgata og Efri byggð
17.45 Ástarbraut, Veltusund og Klettar
18.30 Skvísusund og Lundaholur
19.15 Sigurbraut, Sjómannasund og Herjólfsgata
20.00 Þeir sem tóku ekki frá lóð
Fimmtudagur 1. ágúst 12:00 11:30 17:00 23:00 15:00
Aðeins bílar með súlur fá að fara inn í Dal á þessum tíma. Á öðrum tímum verður Dalurinn lokaður fyrir umferð.
Búslóðaflutningar verða á eftirfarandi tímum:
1. ágúst kl. 11.30 til 15:00 og kl. 17.30 til 20:00
2. ágúst kl. 9.30 til 11:00
Á öðrum tímum verður Dalurinn lokaður fyrir umferð.
Sem fengu aðgangsmiða að gjöf frá ÍBV þurfa að sækja armband milli kl. 12 og 16 fimmtudag á Básaskersbryggju. Hafið meðferðis gjafabréf og skilríki.
ATHUGIÐ aðeins fermingarbarnið sem gjafabréfið er stílað á getur nýtt það.
Við hvetjum Eyjamenn til þess að nálgast Þjóðhátíðararmbönd sín á Básaskersbryggju fimmtudaginn 1. ágúst. frá kl. 12 til 22.
ATHUGIÐ armböndin eru sett á á staðnum.
Innrukkun í Herjólfsdal hefst kl. 10.00 föstudaginn 2. ágúst
Portið bakvið Strandveg 50
PBT / Issi /Gemil /SZK / Hugo og Nussun / Háski / Ingi Bauer / Big Sexy
BÚSLÓÐIN
Í TJALDIÐ
Búslóðaflutningar leyfðir
9:00 - 11:30
SETNING ÞJÓÐHÁTÍÐAR
• Þjóðhátíð sett: Hörður Orri Grettisson formaður ÍBV
• Hátíðarræða: Þór Vilhjálmsson
Séra Viðar Stefánsson
blessar hátíðina
• Lúðrasveit Vestmannaeyja
• Bjargsig: Arnar Gauti Egilsson
• Samsöngur fyrir eldri borgara
í Tuborg tjaldinu
• KAFFIHLÉ
LÉTT LÖG Í DALNUM
LÉTT LÖG Í DALNUM
Á TJARNARSVIÐI
• Lalli Töframaður
• Skátafélagið Faxi
• Húgó - Nussun
• Jóhanna Guðrún
• Brekkusöngur Barnanna
Á BREKKUSVIÐI kl. 15-16:30
• Barnasöngkeppni Landsbankans
Á TJARNARSVIÐI
• SZK
• PBT
• BMX-Brós
• Hálandaleikar Fitness braut
• Elín Hall
• Molda og Karlakór Vestmannaeyja
• Frumflutningur Þjóðhátíðarlags Jóhanna Guðrún og Fjallabræður
• GDRN
• Bubbi
• PBT
Kynnir: Bjarni Ólafur Guðmundsson
Á TJARNARSVIÐI
• Sveppi
• Guðný Ósk og Arnór: Leitin að regnboganum
• Latibær
• Diljá
Á BREKKUSVIÐI kl. 15-16:30
• Barnasöngkeppni Landsbankans
• Eló
• Una Torfa
• Verðlaunaafhending búningakeppni
• Stuðmenn
• Leynigestir
• Helgi Björns
• FM95BLÖ
Kynnir: Einar Bárðarson
• Whales of Iceland - Biggi
• Sigurvegari í barnasöngkeppni Landsbankans
• 150 ára afmælistónleikar Stuðlabandið ásamt gestum / Diljá / Jóhanna Guðrún / Klara / Sverrir Bergmann / Ragga Gísla / Hreimur
Kynnir: Bjarni Ólafur Guðmundsson Dagskrá Þjóðhátíðar 2024 er birt með fyrirvara um breytingar
Guðmundsson
Biggi Nielsen barnasöng-
afmælistónleikar gestum
Guðrún Bergmann
Hreimur / Eló
Guðmundsson
BRENNA Á FJÓSAKLETTI
• Aron Can
• Kristmundur Axel
• XXX Rottweiler
• 12:00
• Háski
• Sprite Zero
• Ingi Bauer • Big Sexy
• Húgo - Nussun
Á TJARNARSVIÐI
• Mucky Muck
• Færibandið
FLUGELDASÝNING
BLYS BREKKUSÖNGUR
Magnús Kjartan
• Dj Muscleboy & Doctor Victor
• GusGus
• FMBelfast
• Færibandið
Á TJARNARSVIÐI
• Memm • Brimnes
• Birnir
• Clubdub
• Flóni
• Daniil
• Stuðlabandið og Diljá
breytingar / /thjodhatid /dalurinnokkar / www.dalurinn.is í boði
Á TJARNARSVIÐI
• Færibandið • Brimnes
Er með mikinn viðbúnað yfir Þjóðhátíðina og er þeim sem þarfnast
Óheimilt er að fljúga dróna (fjarstýrðu loftfari) á hátíðarsvæði án sérstaks leyfis yfirvalda. Stórir hátalarar eru ekki leyfilegir á hátíðarsvæðinu. Þetta er gert til að viðhalda þeirri góðu stemmningu sem verið hefur í hústjöldunum (notum söngröddina og gítarinn).
ÞJÓÐHÁTÍÐAR VAKT HSU
Sjúkraskýli er opið í
Herjólfsdal frá kl.
20:00 - 08:00
Vaktsími HSU er 1700
NEYÐARTILFELLI
hringið í síma 112
Aðgangsmiðar
BEKKJABÍLL Í DALINN
Þjóðhátíðarnefnd vill benda gestum á, að á nokkrum stöðum á hátíðarsvæðinu eru sérstakir gámar fyrir flöskur og dósir, hagnaður af þeim rennur í yngri Veitingatjaldið
Dóra á Þjóðhátíð.
Við fengum Dóru í létt spjall um þjóðhátíð, undirbúning og það sem skiptir mestu máli í hvíta tjaldinu.
Fjölskylda: Eiginmaður er Sverrir Örn Sveinsson og börnin eru Heimir Freyr, Eygló Rós og Sigurrós.
Hver er þín fyrsta minning frá þjóðhátíð?
Spenningurinn sem fylgdi því þegar maður sá bekkjarbílanna byrja að keyra um bæinn í vikunni fyrir þjóðhátíð, væri mikið til í að fá þá aftur.
Hver er hápunktur hátíðarinnar að þínu mati?
Ætli það sé ekki flugeldasýningin Hvað kemur þér í þjóðhátíðargírinn. Rúntur í dalinn að fylgjast með undirbúningi og þjóðhátíðarlögin, sérstaklega þessi gömlu og góðu.
Hvað er mikilvægast í undirbúningnum? Eitthvað sem er alveg ómissandi?
Hlusta á þjóðhátíðarlögin, baka og smyrja eitthvað í tjaldið og vera með fólkinu sínu.
Er fjölskyldan þín alltaf með hvítt tjald? Hverjir eru saman í því tjaldi?
Já, það er ómissandi, höfum verið með mömmu, Þór og bræðrum mínum undanfarin ár
Litli eða stóri pallurinn?
Byrja á stóra og enda á litla
Hvað er fallegast Vitinn, Myllan eða hofið?
No comment
Fyrir hvað stendur hátíðin í þínum huga?
Samvera með fjölskyldu og vinum
Hvaða þjóðhátíð stendur upp úr hjá þér og af hverju?
Engin sérstök - alltaf jafn gaman
Uppáhalds þjóðhátíðarlagið: Þú veist hvað ég meina mær og Draumur um þjóðhátíð
Eitthvað að lokum?
Bara shout-out á ÍBV og alla sjálfboðaliðanna sem koma að því að gera hátíðina okkar svona flotta - Gleðilega þjóðhátíð og góða skemmtun í dalnum!
Systkinin Sæþór Freyr, Valur Smári og Dóra.
Börn Dóru og Sverris: Eygló Rós , Heimir Freyr og Sigurrós.
Bílaverkstæði
HARÐAR & MATTA
Tillagan gerir ráð fyrir að tveir nýir 66 kV sæstrengir, Vestmannaeyjalínur 4 og 5 (VM4 og VM5) komi í land í Gjábakkafjöru austan við þann stað þar sem Vestmannaeyjalína 3 (VM3) kemur nú í land.
Eftir landtöku er gert ráð fyrir að strengirnir verði leiddir norður upp gil sem liggur í Gjábakkafjöru, að Skansvegi og þaðan leiddir í gegnum hraunið að mestu um göngustíga sem fyrir eru. Strengjaleiðirnar verða einnig nýttar til að búa til nýjar gönguleiðir.
Þó nokkrar leiðir að landi og að spennistöð voru skoðaðar en valkostir voru takmarkaðar vegna strengja sem fyrir eru og ekki er hægt að leggja háspennustrengi undir vegi. Þótti valin leið fela í sér mest rekraröryggi og minnst umhverfisrask.
Umhverfisáhrif sem hljótast af framkvæmd skipulagsins eiga að mestu við um rask á yfirborði á óröskuðu hrauni. Sértækir skilmálar hafa verið skilgreindir varðandi umgengni við framkvæmdir.
Athugasemdir berist fyrir 9. ágúst 2024
Skipulagsgögn eru aðgengileg á skipulagsvefsjá á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar, í afgreiðslu í Ráðhúsi Vestmannaeyja og á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (skipulagsgatt.is). Athugasemdir berist skriflega til og með 9. ágúst 2024 á netfangið dagny@vestmannaeyjar.is, í afgreiðslu Ráðhúss Vestmannaeyja eða í gegnum Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.
Höfundur lags og texta: Halldór Gunnar Pálsson, Klara Ósk Elíasdóttir,
Forspil: Bm - G - D x2
Ég veit ekki með ykkur en ég er byrjuð
fyrir löngu að telja niður
Mér finnst ég bíða endalaust en tíminn
bara aldrei líður
Og ég veit að það varst þú
sem kveiktir eldinn hér
Dsus2/F#
sem að brennur ennþá inni í mér
Það er ekkert sem að jafnast
D
á við þennan stað, því miður
Asus4 Bm
Í kvöld ég ætla að dansa alla nóttina
D/F# G
og syngja með
Asus4 Bm
Í kvöld ég ætla hverfa inn í brekkuna
D/F# D
og gleyma mér
Bm G D
Það eru töfrar inni í Herjólfsdal
Bm G D
Ég skil hjartað alltaf eftir þar
Bm G D
Og það bergmálar í öllu hér
Asus4 Bm
Í kvöld ég ætla að dansa alla
nóttina og syngja með
D/F# D Bm G D Bm G D
Það eru töfrar inni í Herjólfsdal
Ég skil hjartað alltaf eftir þar
Bm G D
Og það bergmálar í öllu hér
Bm G D
Allt sem sungið var á undan mér
Bm G D
Ohh - Ohhh
Bm G D
Ohh - Ohhh
Bm G D
Ohh - Ohhh
Bm G D/F#
Ohh - Ohhh
Ég sé blysin, ég sé brennuna
Asus4
Ég sé ljósin lýsa leiðina
Bm A/C#
Ég vil heyra alla eyjuna
G6
Asus4 Bsus4
Syngja með og meina það
C#m A E
Það eru töfrar inni í Herjólfsdal
C#m A E
Ég skil hjartað alltaf eftir þar
Allt sem sungið var á undan mér
Bm G D Bm
Ég horfi á stjörnubjartan himinninn
og vild’ég gæti stöðvað tímann
G D Bm
Þú og ég og þetta augnablik
vil muna alla ævi mína
Og ef það er annað líf eftir þetta líf
Muntu finna mig á þjóðhátíð
Það er ekkert sem að jafnast
G D Bm G D Dsus2/F# Bm G D
á við þennan stað, því miður
C#m A E
Og það bergmálar í öllu hér
C#m A E
Allt sem sungið var á undan mér
Gítarhljómar sem notaðir eru:
Birnir Sigurðarson er fæddur árið 1996 og því 28 ára. Hann er betur þekktur sem einfaldlega Birnir, er íslenskur tónlistarmaður og rappari. Birnir hlaut tvenn verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaununum árið 2022, annars vegar fyrir rapplag ársins (Vogur) og hins vegar fyrir bestu rappplötu ársins (Bushido). Birnir mun vera á Brekkusviðinu á sunnudagskvöldinu á Þjóðhátíðinni.
Hvað er Þjóðhátíð fyrir þér? Einstök upplifun.
Er kominn spenningur fyrir hátíðinni?
Já þokkalega.
Hvenær komstu fyrst á Þjóðhátíð, þá bæði sem gestur og skemmtikraftur?
2017 eða 2018, þá kom ég og var að spila á húkkaraballinu.
Hefur þú mætt á margar? Held ég hafi mætt svona 4 sinnum.
Hver er besta minning þín frá þjóðhátíð?
Stóra sviðið í fyrra eða þegar ég kom 2018, þá málaði ég bæinn rauðann og allir voru pirraðir út í mig.
Uppáhalds þjóðhátíðarlag allra tíma?
La dolce vita með Palla.
Við hverju má fólk búast frá þér á sviðinu í Herjólfsdal?
Mjög hárri orku, mikið af nýju og gömlu efni. Þetta verður ekkert grín show. Myndi mæta í stígvélunum ef ég væri þú.
Hvað er meira framundan hjá þér í tónlistinni?
Plata 3, plata 3, plata 3
Eitthvað að lokum?
Hlakka til að sjá ykkur í dalnum.
Addi hefur verið duglegur með myndavélina á þjóðhátíðum síðastliðna áratugi og hann orðið gríðarlegt magn af myndum. Hér má sjá nokkrar skemmtilegar úr ljósmyndasafninu hans frá síðustu þjóðhátíðum.
leið 1 MIÐBÆR
• Dalurinn
• Miðbær
• Dalurinn
Gengur milli kl. 12 og 18
leið 2 HAMARINN
• Dalurinn
• Miðbær
• Kirkjuvegur
• Foldahraun
• Áshamar
• Dalurinn
Gengur milli kl. 20 og 06
leið 3 HELGAFELL
• Dalurinn
• Helgafellsbraut
• Illugagata
• Dalurinn
Gengur milli kl. 20 og 06
Fullorðnir kr. 1.000 Börn (6-13 ára) kr. 500 Eldri borgarar kr. 500
Í tilefni af 150 ára afmæli þjóðhátíðar rifjum við upp gamla takta og bjóðum uppá bekkjabílaferðir.
Í boði eru fjórar ferðir á dag sem
leggja af stað frá íþróttamiðstöðinni:
kl. 13.45 / 14.10 // 19.45 / 20.10
Bíllinn stoppar eingöngu á fimm
Allar fartölvur um land allt
1.990 Fartölvutöskur
Verð frá
39.990
Skólafartölvur
Nafn: Berglind Bára Bjarnadóttir
Starf: Forstjóri BM lausna ehf. og geng í öll verkefni.
Menntun: Iðjuþjálfi, bowentæknir, flugfreyja, verkefnastjóri og unnið í mörg ár sem tæknimaður
Fjölskylda: Maki: Magnús Helgi Kristjánsson rafvirki, tækniteiknari og ljósahönnuður, Börn: Svala Rún ´02, Guðrún Lilja ´06 og Kristján Bjarni ´10.
Hvað getur þú sagt okkur um BM lausnir?
BM lausnir er fyrirtæki sem sérhæfir sig í viðburðahönnun annars vegar, við getum sér um viðburði frá A-Ö og allt þar á milli þar með talið að finna húsnæði, sjá um veitingar og ganga frá. Við vinnum með teikningar og hönnum sal / svæði og svið, sjáum um ljósa- og grafíkhönnun, prompter og það sem þarf að gera og ráðum inn
verktaka eftir umfangi. Hins vegar sérhæfum við okkur innan velferðartækninnar. Við vinnum að nýsköpun í þjónustu við þá sem ekki geta sinnt sínum grunnþörfum eins og aldraðir, langveikir og hreyfihamlaðir. BM lausnir hafa þá sýn að ávinningur væri gífurlegur ef vinnuvistfræði væri miðlað rétt til stofnana og umönnunaraðila og með nýrri þjónustu, tækni og nálgun væri hægt að spara mikið í þessum geira og um leið efla sjálfstæði þjónustuþega og vinnuvistfræði umönnunaraðila. Við bjóðum því upp á kennslu og ráðgjöf í vinnuvistfræði og notkun á nýjum tækjabúnaði sem er nýjung hér á Íslandi en er orðin vel þekktur á norðurlöndunum, hjúkrunarrúm með rafknúinni þrýstingssáravörn sem býður upp á marga möguleika og hentar einnig þeim sem ekki eru í sárahættu t.d. einstaklingum sem greindir eru með gigt, parkinson, alzheimer, spasma og glíma
við hræðslu og óöryggi. Svo er það líkamsþurrkan Valiryo, já þú þarft ekki lengur að nota handklæðið eftir sturtu, bara dansar fyrir framan líkamsþurrkuna.
Hvað er það sem þið sjáið um á Þjóðhátíðinni?
Við erum verkefnastjórar tæknimála hjá Þjóðhátíð. Við sjáum um að Brekkusviðið looki alltaf sem allra best ár hvert og allir þeir sem koma þar fram ;) Sjáum um sviðs- og ljósahönnun og grafík. Við hengjum allan búnað upp og breytum í raun sviðinu í leikhús. Setjum upp tjöld og allan búnað á réttan stað. Við höfum einnig umsjón með tæknibúnaði á Tjarnarsviðinu, Tuborgtjaldinu, trúbadortjaldinu og á Húkkaraballinu. Við sjáum um að öll tæknihliðin gangi upp og tengjum fólk saman og vinnum í þéttu samstarfi við Þjóðhátíðarnefnd, og Viktor okkar Hólm sviðsstjóra og einnig Palla okkar sviðsstjóra yfir
hátíðina. Við höfum alltaf verið með frábært crew með okkur sem eru algjör forréttindi og heimamenn sem eru okkur alltaf innan handar og hliðhollir, það gerir gæfumuninn.
Hafið þið verið lengi í samstarfi við ÍBV?
Já nokkur ár, ætli það sé ekki að detta í 25 árin. Við höfum átt mjög gott samstarf við ÍBV og frábært að sjá hversu faglega er unnið að öllu skipulagi.
Magnús tók þetta að sér fyrstu árin og ég sinnti börnunum en svo eftir að þau náðu góðum aldri til að koma og vera með okkur í þessu verkefni þá höfum við gert þetta að skemmtilegu fjölskylduverkefni. Allir hafa haft sitt hlutverk og þannig hefur þetta gengið upp. Krakkarnir hafa þroskast mikið í sínum hlutverkum og verið okkar matráðar, séð um að
búa til matseðla, versla inn og elda dýrindismat fyrir okkur og crew-ið okkar á meðan við vinnum hörðum höndum niður í Dal. Þau eru reyndar líka hörkudugleg með okkur á sviðinu, liðtæk við ljósavinnu og Guðrún Lilja vinnur oft með okkur í verkefnum, er þá prompterinn okkar.
Einhver skemmtileg minning sem að þú vilt deila með okkur? Hver Þjóðhátíð skilur eftir sig svo óteljandi góðar minningar það er erfitt að svara þessu en þó stendur klárlega uppúr hjá okkur öllum frábær sigling sem Óli Týr bauð okkur í. Sigling um eyjarnar og fræðsla um hverja eyju og allt sem fyrir varð. Við fengum að sjá Vestmannaeyjar frá nýju sjónarhorni og það var stórbrotið - virkilega, við vorum öll hugfangin. Og kynntumst hefðum og sögu samfélagsins. Veðrið var frábært og Óli er náttúrulega leiðsögumaður að
guð náð sem gerði þessa siglingu ógleymanlega. Eftir siglingu var svo boðið upp á bakkelsi og meðí sem elsku Jóhanna stóð fyrir. Hér er ennþá spurt fyrir hverja Þjóðhátíð; getum við farið í siglingu þetta árið? Það er þessi náungakærleikur sem er svo einkennandi hér hjá Eyjamönnum- og konum ;) Og svo auðvitað að droppa inn í Hvítu tjöldin þar sem alltaf er tekið vel á móti manni. Gleði, tónlist og góð samvera.
Við fjölskyldan erum svo þakklát fyrir að fá tækifæri á að taka þetta verkefni að okkur ár eftir ár og það gefur okkur fjölskyldunni svo heilmargar ánægjustundir.
Besta þjóðhátíðarlagið?
Að sjálfsögðu Lífið er yndislegt ;)
Eitthvað að lokum?
Sjáumst hress í Dalnum ykkar fallega.
Eyjafólki & gestum gleðilegrar þjóðhátíðar!
Gleðilega þjóðhátíð!
31. júlí 1. ágúst 2. ágúst 3. ágúst
ágúst
ágúst
miðvikudagur fimmtudagur föstudagur laugardagur sunnudagur mánudagur
ELKO Pop-Up verslun
við Krónuna í Eyjum
Lukkuhjól ELKO Útilegubúnaður
Ferðahleðslur
Fyndnir hattar
freistaðu gæfunnar í lukkuhjóli elko skannaðu kóðann til að sjá úrvalið