Tígull 28.tbl 04 árg.

Page 1

12.000 manns komið í land í sumar Hann hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum íbúa Vestmannaeyja, allur sá fjöldi Eyjamanna sem lagt hefur leið sína til Eyja í sumar. Varla hefur liðið sá dagur að ekki er eitt slíkt við bryggju. Í síðustu viku fundust fyrstu lundapysjurnar í Eyjum og því pysjutímabilið formlega hafið með öllum sínum ævintýraljóma. Þau mikilvægu og gleðilegu tímamót urðu síðastliðinn mánudag 22. ágúst að framkvæmdir hófust Laufey Welcome Center á Bakka. Fyrstu pysjurnar að lenda hafnarFramkvæmdiráLaufey 28. tbl. 04. árg. 24. - 30. ágúst 2022 Á Leturstofunni bjóðum við upp á hönnun og umbrot á alls konar verkum. Auglýsingar / logo / sálmaskrár umbúðir / fréttabréf nafnspjöld / boðskort bæklinga / límmiða og allt sem þér dettur í hug. Vertu í sambandi við okkur og við förum yfir þetta í leturstofan@leturstofan.issameiningu. /leturstofan /leturstofan

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

Sem fylgir svo mikil innspýting í verslun og þjónustu í Eyjum. „Það má reikna til að tæplega 12.000 farþegar hafi komið í land hjá okkur það sem af er sumri,“ sagði Dóra Björk aðspurð um fjölda far þega á skipunum. Fjölbreytt og skemmtilegt starf Dóra Björk var ráðin í starf hafnar stjóra í mars á síðasta ári og hef ur því nú sinnt því í rúmt ár. Það lá því beinast við að spyrja hana að lokum hvernig starfið legðist í hana. „Þetta er mjög fjölbreytt og skemmtilegt starf. Margar áskor anir sem hefur verið gaman að takast á við. Hér er starfssemi alla daga ársins allan sólarhringinn þannig að það eru töluverð um svif í þessu starfi,“ sagði Dóra Björk.

Nýverið var hinsvegar samþykkt í framkvæmdar- og hafnarráði að stytta Hörgeyrargarð um allt að 90 metra. Með þessu á að vera hægt að taka á móti allt að 180 metra löngum og 30 metra breiðum skipum. Hingað til hef ur stærstu skipunum sem lagst geta við bryggju hér, verði snúið í Klettsvík og bakkað inn til hafn ar. Þrengsli við Hörgaeyrargarðinn hafa valdið vandræðum í slíkri aðgerð þar sem lóðsinn hafði ekki pláss til að athafna sig. Stytting garðsins gæfi nægilega breiða innsiglingarrennu til að þetta yrði síðurÞaðvandamál.máþví búast við því að skemmtiferðaskipunum fjölgi enn meir með þessari framkvæmd. Þessum fjölda skipa fylgir eðli málsins samkvæmt óragrúi fólks.

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is DREIFING: Hönnun: Lind lind@leturstofan.isHrafnsdóttir Auglýsingar: Katrín katalaufey@tigull.isLaufey Prentun:ÚTGÁFA:Prentun.is SKIL Á VinsamlegasthádeginuSkilAuglýsingarAUGLÝSINGUM:sendistá:tigull@tigull.isáauglýsingumeríámánudögum.bókiðtímalega.

12.000 MANNS KOMIÐ Hann hefur eflaust ekki farið framhjá mörgum íbúa Vestmanna eyja, allur sá fjöldi Eyjamanna sem lagt hefur leið sína til Eyja í sumar. Varla hefur liðið sá dagur að ekki er eitt slíkt við bryggju. Í samtali við Tígul sagði Dóra Björk Gunnarsdóttir, hafnarstjóri Vestmannaeyjahafnar, þetta tölu vert fleiri skip en í fyrra þegar skipin voru samtals um fjörutíu. „Það sem af er ári hafa komið rúmlega fimmtíu skip til okkar og enn er von á einum tuttugu,“ sagði Dóra Björk þegar Tígull náði tali á henni í síðustu viku. Skip þessi eru af misjafnri stærð eins og gefur að skilja og þau stærstu hafa þurft að liggja utan við Heimaey eða í Klettsvík þegar aðstæður leyfa, þar sem þau hafa ekki getað lagst að bryggju í Vest mannaeyjahöfn.

TÍGULL

Í LAND Í SUMAR

Hæ Eyjar! Ert þú auglýsirhugmynd?meðKrónaníVestmannaeyjumeftirstyrktarumsóknum Við höfum áhuga á að taka þátt í uppbyggingu í samfélaginu og auglýsum eftir styrktarumsóknum. Hvað getum við gert saman? Árlega veitir Krónan styrki til verkefna í nærumhverfi verslanna Krónunnar. Stefna Krónunnar er að styrkja verkefni sem hvetja til hreyfingu og hollustu barna og/eða uppbyggingu í samfélaginu t.d. á sviði menningar og lista eða menntunar. Til að sækja um þarf að fara inn á: kronan .is/ Umsóknarfresturstyrkirertil31.ágúst2022 Afgreiðslutímar á www.kronan.is

SLÆM MEÐFERÐ GÆLUDÝRA Í HERJÓLFI?

„Við hjá Dýravinafélagi Vest mannaeyja höfum undanfarið ár barist fyrir bættri aðstöðu dýra í ferjunni Herjólfi, sem siglir milli lands og Eyja, gegn mjög litlum áhuga stjórnenda ferjunnar,“ seg ir í upphafi bréfs Dýravinafélags Vestmannaeyja til Samgöngustofu, Mast, Sigurðar Inga Jóhannssonar, innviðaráðherra, Siglingastofn unar, HRFÍ, Vegagerðarinnar og stjórnar Herjólfs ohf. „Herjólfur er eini ferðamáti okkar til þess að komast hér á milli lands og Eyja. Hér er lágmarks dýraþjón usta en það koma 2 dýralæknar á mánaðarfresti og jafnvel sjaldnar. Á síðasta ári liðu 9 mánuðir á milli komu dýralækna. Sem segir okkur það að fólkið í Eyjum þarf að ferð ast mjög reglulega með gæludýr in sín hér á milli með Herjólfi. Eins og staðan er búin að vera síðastliðin 20 ár hafa dýr þurft að dúsa inni í bíl á bíladekkinu allar siglingar og þá skiptir engu hvort siglt sé í 3 tíma til Þorláks hafnar eða í 40 mín til Landeyja hafnar. Oftast hefur verið litið framhjá því að eigendur séu hjá skelkuðum og kvíðnum dýrum sínum á bíladekkinu þó svo að rýmingaráætlun Herjólfs nái ekki til bíladekksins. Ef óhapp verður á meðan sigling stendur yfir, er bíladekkið læst þannig að enginn kemst niður. Það þarf varla að taka fram hve mikil hætta getur skapast þarna. Það má líka nefna að í hverri einustu ferð fara a.m.k. 2 bílaþjófavarnir, ef ekki fleiri, af stað og valda alveg gríðarlegum hávaða. Við látum fylgja með myndband úr einni af fjölmörg um ferðum þar sem eigandinn sat í bíl sínum á bíladekkinu með hvolpinn sinn og hjóðmengunin var nánast óbærileg. Þessu höfum við mótmælt vegna hættulegra aðstæðna sem við og gæludýrin okkar erum sett í á hverjum degi en enn og aftur höfum við talað fyrir daufum eyrum. Við höfum einnig starfrækt Villikattarfélag þar sem þarf að koma veikum og slösuðum köttum undir læknis hendur á meginlandinu. Því er algjörlega óásættanlegt að þurfa að skilja kettina eftir eina í bílun um þegar þau eru illa á sig komin eða nýkomin úr aðgerð, geldingu eða öðru. Í dag hafa nú þegar 3 kettir dáið á bíladekkinu vegna aðstæðna þar. Og fjölmargir vera mjög illa á sig komnir þegar eig andinn/forsjáraðilinn kom að þeim eftir sjóferðina,“ segir meðal annars í bréfinu. Í samtali við Tígul sagði Guðný Halldórsdóttir, hjá Dýravinafé laginu, þau ekki vera fara fram á mikið. „Aðeins afmarkað svæði þar sem fólk og dýr getur verið saman um borð með sómasam legan aðbúnað. Að það sé auglýst vel þessar breytingar. Við höfum vilja eiga þetta samtal við þá sem þessu stjórna, koma með hug myndir og óskir og vinna þetta í sameiningu ekki með leiðindum og látum. Lausnin þarf að henta öllum Hörður Orri Grettisson, fram kvæmdastjóri Herjólfs ohf. sagði í samtali við Tígul að verið væri að leita lausna. „Við höfum síð ustu vikur verið að leita lausna og leiða fyrir dýr og eigendur þeirra útfrá þeirra aðstöðu sem skipið hefur upp á að bjóða. Það er tölu vert flókið þar sem að skipið hef ur ekki upp á marga möguleika að bjóða. Herjólfur ohf. leggur mikið upp úr ánægju farþega og reynir eftir bestu getur að stuðla að já kvæðri upplifun viðskiptavinarins á þjónustunni okkar,“ sagði Hörður Orri. „Að halda því fram að enginn áhugi sé á að bæta þessu hluti hjá Herjólfi er því rangt. Herjólfur flytur á ári 350.000 – 400.000 far þega. Lausnin þarf að henta öllum þessum farþegum ekki bara far þegum sem ferðast með gæludýr. Því finnst mér mikilvægt að vanda til verka, flýta sér hægt og gera hlutina vel.“

FLOTTAR HÁGÆÐA VÖRUR Á FRÁBÆRU VERÐI AKRÝLLITIR - OLÍULITIR - VATNSLITIR Hjá okkur er úrval af akrýllitum í System 3 línunni frá Daler Rowney, ásamt ýmsum íblöndunarefnum. Í olíulitum erum við með Georgian Oil frá Daler Rowney, ásamt íblöndunarefnum og lakk til þess að verkið endist. Vatnslita úrvalið okkar er bundið við sett sem við eigum í tveimur stærðum frá tveimur framleiðendum. Strigar - penslar - teiknibækur og fleira til Komið við og skoðið úrvalið! Strandvegur 30 / 481 1475 www.midstodin.is / midstodin@midstodin.is

Hráefni: 1 kg svínalund 2 msk salt 1 stk Stella Artois bjór CajSteikarkryddPHickory grillolía Grænmetisspjót 2 stk Ferskur maís skorinn niður 1 stk Rauðlaukur 1 stk Rauð papríka 10 stk sveppir Köld sósa 150 g majónes 150 g sýrður rjómi 2 stk hvítlauksrif salt og pipar eftir smekk

TABASCO® sósa eftir smekk

svínalundBjórmarineruðágrillið

Grænmetisspjót Skerið grænmetið niður og raðið á grillspjót. Penslið með Caj P og grillið á meðalháum hita í um 15 mínútur, snúið reglulega. Köld sósa Pískið allt saman og geymið í kæli fram að

Aðferð: Sinuhreinsið svínalundina og þerrið hana vel. Saltið og nuddið saltinu vel inn í vöðvann. Setjið í eldfast mót/annað ílát og hellið bjórn um yfir svo hann þeki lundirnar. Plastið vel og leyfið að marinerast yfir nótt helst (nokkrar klukkustundir duga samt til).

Takið lundirnar úr bjórleginum og þerrið að Kryddiðnýju. með góðu steikarkryddi og setjið á vel heitt grill. Penslið nokkrum sinnum með Caj P grillolíu á meðan kjötið eldast. Takið af grillinu þegar kjarnhiti er 65° og leyfið kjötinu að standa í að minnsta kosti 15 mínútur áður en þið sker ið það niður. Berið fram með bökuðum kartöflum, græn metisspjótum (sjá uppskrift hér að neðan) og kaldri sósu (sjá uppskrift hér að neðan).

notkunUPPSKRIFTVIKUNNAR

www.eyjabio.is ÞÚ GETUR FUNDIÐ NÆSTU BÍÓMYNDIR OG SÝNINGARTÍMA Á DRAGONMIÐVIKUDAGURKL.20:00BEASTLAUGARDAGURKL.20:00BALL SUPERFÖSTUDAGURKL.20:00NOPESUNNDAGURKL.14:00PETS HUNDURINNLAUGARDAGURKL.14:00HANKSUNNUDAGURKL.20:00BEAST

Þau mikilvægu og gleðilegu tíma mót urðu síðastliðinn mánudag 22. ágúst að framkvæmdir hófust Laufey Welcome Center á Bakka. Í ársbyrjun 2022 var fjármögn un á þjónustumiðstöðinni Laufey tryggð með aðkomu langtímafjár festa sem hafa mikla trú á verk efninu. Fyrsta stöðin, og sú mik ilvægasta fyrir Vestmannaeyjar, mun rísa á Bakka. „Þessi ferill hefur verið langur og strangur, sér í lagi þar sem fjár mögnunarferlið keyrði í fangið á Covid og allt viðskiptaumhverfi breyttist á svipstundu. Við fundum þó alltaf mikinn áhuga og velvilja í Vestmannaeyjum, hjá almenn ingi, bæjarstjórn, stjórn Herjólfs, ferðamálasamtökunum og ber einnig að nefna Lífeyrissjóðs VE sem hvatti okkur áfram vitandi mætavel hvaða þýðingu svona segull og veiðikofi myndi gera fyrir bæjarfélagið og þar með þeirra sjóðsfélaga. Einlægur og auðsýndur áhugi fjölmiðla í Vest mannaeyjum á verkefninu hvatti okkur líka til dáða,“ sagði Sveinn Waage, markaðsstjóri í samtali við Tígul. „Við þökkum öllum þessum aðilum kærlega fyrir stuðninginn.“ Sveinn sagði jarðframkvæmdir og landflutningar verða umtalsverð ar. „Við því má búast í undirbún ingi fyrir stórt bílaplan, öflugar hraðhleðslustöðvar og myndar lega byggingu, sem hefur tekið breytingum með betri þjónustu fyrir jafnt ferðamenn á Suður landi og Eyjamenn á öllu landinu, í huga,“ sagði Sveinn. Vonir standa til að Laufey verði risinn og starfandi, með fána Vestmannaeyja blaktandi við hún, á 50. ára afmælisári eldgossins 1973 á Heimaey. Þá sagði Sveinn Teiknistofu TPZ í Vestmannaeyjum hafa tekið að sér gæðaeftirlit með jarðfram kvæmdum næstu vikur og mánuði á Bakka og hafa þeir þegar hafið störf.

Fyrsta skóflustungan tekin síðastliðinn mánudag. Björgvin Björgvinsson frá teiknistofu TPZ, Ólafur Einarsson eigandi Þjótanda, Sveinn Waage og Davíð Halldórsson stjórnendur Laufeyjar.

LAUFEY – FRAMKVÆMDIR HAFNAR

Ingunn Ársælsdóttir Lúðvík SigríðurGuðlaugJóhannessonGísladóttirRósEinarsdóttir

og barnabörn Eygerður Anna Jónasdóttir Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÞORSTEINN GÍSLI ÞORSTEINSSON rafvirki, Hrauntúni 15, Vestmannaeyjum lést miðvikudaginn 17. ágúst. Útförin fer fram föstudaginn 26. ágúst kl. 13 frá Landakirkju, Vestmannaeyjum. Útförinni verður streymt af vef Landakirkju, landakirkja.is

Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi. Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef. Það kostar 10.000 kr. Viltu látinsminnastættingja eða vinar? Eiður Þorkelsson Þröstur Þorkelsson Rannveig Ása Hjördísardóttir Anna Guðrún Stefánsdóttir og barnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, PETRA MAGNÚSDÓTTIR Hraunslóð 3, Vestmannaeyjum, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum 9. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þorkell Þorkelsson

Jónas Þór Þorsteinsson Ingibjörg EyþórHéðinnÞorsteinsdóttirÞorsteinssonGísliÞorsteinsson

Ásmundur

Prentum sálmaskrár Hafðu samband við okkur á netfangiðeðaleturstofan@leturstofan.isísíma481-1161

ÞRAUTIR BJÖRGUNARFÓLK ENDURSKINSMERKI HÚFA VASALJÓS KASSI LUNDAPYSJA LUNDI PYSJUEFTIRLITIÐ P a o pysjubjörgun björgunar fólk endurskinsmerki

• Gott er að vera nokkur saman við pysjubjörgun því pysjurnar eru hræddar við okkur og reyna að flýja.

• Munum að alls ekki má halda á pysjunum að óþörfu eða leika með þær. Við það geta fjaðrir þeirra skemmst og þær misst fituna úr fiðrinu sem er þeim svo mikilvæg til að halda vatni frá líkamanum.

• Þegar heim er komið þarf að gæta þess að vel fari um pysjurnar. Loka kössunum vel og geyma á rólegum og svölum stað.

• Pysjur eru ekki vanar öðrum pysjum því ber að varast að hafa þær margar saman í kassa. Best er að aðeins ein pysja sé í hverjum kassa, aldrei fleiri en fjórar. Þær vilja nefninlega allar vera úti í horni.

• Ef lýst er með vasaljósi í augu pysjurnar blindast hún augnablik og er þá auðveldara að handsama hana.

• Allir að klæða sig vel og muna eftir vasaljósi og endurskinsmerki.

Í síðustu viku fundust fyrstu lundapysjurnar í Eyjum og því pysjutímabilið formlega hafið með öllum sínum ævintýra ljóma. Samkvæmt Margréti Lilju Magnúsdóttur, sem haft hefur umsjón með Pysjueftirlitinu þá byrjar þetta alltaf frekar rólega. „En svo er toppnum náð eftir svona tvær til þrjár vikur.“ Ekki er þó búist við mikið af pysju í bæinn að þessu sinni þrátt fyrir góð ár að undanförnu.

„Í upphafi sumars leit þetta mjög vel út, en svo í seinni hluta júlí var farið að skoða í lundabyggðina og þá var búið að afrækja einhver hreiður og dauðar pysjur og þær voru líka minni heldur en þær hefðu átt að vera. Þannig að það bendir allt til þess að það sé einhvers konar ætisskortur eða eitthvað að þannig að við búumst ekki við mjög mörgum pysjum núna,“ sagði Margrét Lilja. Náttúrustofa Suðurlands hefur fylgst með varpinu eins og undanfarin ár. Farið var í lundabyggðina í byrjun sumars og var þá varp í um 70% af lundaholum. Farið var aftur lok júlí og kom þá í ljós að talsverð afföll höfðu orðið af eggjum og pysjum og eru nú einungis pysj ur í um þriðjungi holanna. Erpur Snær Hansen, forstöðumaður Náttúrustofu Suðurlands tók því í sama streng og átti alls ekki von á jafn mikið af pysju í ár. „Ef ég ætti að giska á einhverja tölu myndi ég segja svona 3.000 pysjur.“

• Þeir sem hafa tök á, vigti pysjurnar áður en þeim er sleppt. Það er þó ekki nauðsynlegt.

• Aldrei skal sleppa pysju í höfnina eða á Skansinum, þá geta þær lent í olíu og þá er voðinn vís.

Jóna Hjördís með fyrstu pysjuna í ár.

• Gott er að setja gras í botninn á kassanum og skipta því út daglega.

• Best er að nota hreina kassa fyrir pysjurnar. Göt á kössum geta reynt hættuleg. Einnig mjög lágir kassar, þar sem pysjurnar geta meiðst við að reyna að flýja kassann. Plastkassa ætti aldrei að nota.

• Allar pysjur skal skrá í gagnagrunn á Lundi.is, hvort sem þær eru vigtaðar eða ekki.

• Það má líka setja pysjrnar í grasið og leyfa þeim að fara þegar þær eru sjálfar tilbúnar.

FYRSTU PYSJURNAR AÐ LENDA

• Það er mjög mikilvægt að sleppa pysjunum við fyrsta tækifæri. Því fyrr því betra.

VIÐ PYSJUBJÖRGUN ER VERT AÐ HAFA NOKKUR ATRIÐI Í HUGA:

• Á Heimaey eru margir góðir staðir til að sleppa pysjum. Meta þarf þó aðstæður. Ef hvasst er og mikið brim á vestur hluta eyjunnar er tilvalið að sleppa pysjunum í skjólinu austan megin.

• Alltaf þarf að fara varlega nálægt bjargbrún og mikilvægt að ein hver fullorðinn sé með í för.

VIÐ VERÐUM Í LITLU FÖSTUDAGINNSKÓLAVEGISKVÍSUBÚÐINNI62.SEPT.FRÁ10:00-18:00 ÞAÐ ER MIKILVÆGT AÐ PANTA TÍMA STRAX Í SJÓNMÆLINGU Í SÍMA 511-6699 EÐA 899-8801 VESTMANNAEYJARSJÓNERAÐKOMA 35% AFSLÁTTUR FYRIR ALDRAÐA OG ÖRYRKJA 30% AFSLÁTTUR FYRIR ALLT NÁMSFÓLK SJÓN BARNAGLERAUGU Á 20.000 KR.

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.