28. tbl. 02. árg. 26. ágúst - 1.september2020
SVEIT GOLFKLÚBBS VESTMANNAEYJA Í 1. DEILD EFTIR MÓTIÐ UM HELGINA
Íslandsmót golfklúbba í flokki +50 ára fór fram víða um landið dagana 2022. ágúst. En Íslandsmót golfklúbba – eldri kylfinga 1. deild og 2. kvenna var haldið hér í Vestmannaeyjum hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja. Frábært veður var í Eyjum þessa daga og gekk mótið vel að sögn Hallgríms Steinssonar mótstjóra. Í mótstjórn voru Hallgrímur Steinsson, Þórður Ingason, Styrmir Jóhannsson, Harpa Gísladóttir og Thelma Sveinsdóttir.
TÍGULL
Dómari var Þórður Ingason.
Úrslit helgarinnar: 1.deild
Sveit Golfklúbbs Vestmannaeyja var með sveit í 2. deildinni en gerðu sér lítið fyrir og unnu keppnina. Þær munu því spila í 1. deild næsta sumar. En sveitina skipa þær Katrín Harðardóttir, Hrönn Harðardóttir, Alda Harðardóttir, Guðmunda Bjarnadóttir, Elsa Valgeirsdóttir og er Unnur Sigmarsdóttir liðsstjóri.
Golfklúbburinn Keilir Golfklúbbur Reykjavíkur Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar Úrslit helgarinnar: 2.deild Golfklúbbur Vestmannaeyja Golfklúbbur Kiðjabergs Golfklúbburinn Öndverðarnes
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir. Forsíðumynd: Helgi Rasmussen Tórzhamar
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
HAFÐI EKKI EINU SINNI ORKU TIL AÐ TALA VIÐ FJÖLSKYLDUNA MÍNA Í SÍMA Landsspítalanum og komu niðurstöður þar ekki nægilega vel út. Það er fyrirhugað að ég fari aftur í rannsóknir til þeirra í haust. Hvað viltu ráðleggja fólki sem var að greinast? Að taka þessari veiru mjög alvarlega. Fara eftir því sem fyrir er lagt í einu og öllu. Þessi veira er dauðans alvara. Hvað viltu ráðleggja fólki sem tekur þessu ekki full alvarlega ? Í dag hljóta allir að taka þessu alvarlega. Við höfum misst fólk og margir hafa misst heilsuna sína eins og ég. Þetta er því dauðans alvara. “Þessar hafa verið duglegar að ýta mér áfram”, segir Dollý.
Sólveig Adólfsdóttir eða Dollý eins og flestir þekkja hana greindist með Covid19 þann 21. mars sl. og var þá orðin alvarlega veik. Hún var send á Landsspítalann á covid-deildina í einangrun. Tígull fékk að heyra hennar reynslu af veirunni. Nafn, fjölskylda og aldur: Sólveig Adolfsdóttir, gift Þór Í. Vilhjálmssyni og eigum við þrjú uppkomin börn, 8 barnabörn og 4 barnabarnabörn. Ég er 74 ára gömul. Hvenær greindist þú? Ég veikist 13. mars en greinist með COVID - 19 laugardaginn 21. mars. Hvernig grunaði þig að þú værir smituð? Mig grunaði það svo sem ekki þar sem ég var búin að vera skoðuð nokkrum sinnum hjá læknum upp á Heilbrigðisstofnuninni og það var ekki orðað þá. Það er ekki fyrr en ég er komin í sjúkraflugvél, alvarlega veik á leiðinni til Reykjavíkur sem það lá fyrir að ég var smituð af þessari veiru.
Hvernig lýstu veikin sér hjá þér? Ég fékk mjög háan hita viku áður en ég greindist með veiruna og var mjög máttfarin. Ég hafði ekki krafta til að standa í fæturnar sjálf og kom það fyrir að ég hreinlega datt niður og réð ekki við að koma mér upp aftur. Ég fékk lungnabólgu, mikinn hósta og vanlíðan. Ég missti allt bragð- og lyktarskyn og átti erfitt með að nærast. Þessu fylgdi mikill niðurgangur. Varstu við fulla heilsu þegar þú greindist? Já miðað við aldur var ég í ágætis formi. Ég var dugleg að hreyfa mig, var t.d. í Janusarverkefninu og í sundleikfimi ásamt því að fara í daglega göngutúra. Hvernig ertu í dag 4 mánuðum eftir útskrift? Ég á enn langt í land. Ég er er mjög máttfarin og úthaldslítil þrátt fyrir að ég sé farin að hreyfa mig aðeins aftur. Jafnvægisskynið mitt er ekki gott og hefur það áhrif. Ég er búin að fara í rannsóknir hjá
Hvernig leið þér þegar þú fékkst jákvæða niðurstöðu út testinu? Ég á erfitt með að svara því þar sem ég var svo veik og ekki með fulla meðvitund á þeim tíma. Ég þurfti á súrefnisgjöf að halda og lá í einangrun inn á COVID deildinni á Borgarsspítalanum (deild A-7) og svaf mikið. Ég hafði ekki einu sinni orku til að tala við fjölskylduna mína í síma, það veik var ég. Gerðir þú þér grein fyrir alvarleikanum þá ? Já, ég hélt að ég myndi ekki hafa þetta af. Ég heyrði að fólk var að deyja á deildinni sem ég lá á og var ég hrædd, enda mikið veik. Að lokum langar mig að færa starfsfólkinu á Smitsjúkdómadeildinni A-7 á Landsspítalanum mínar bestu þakkir fyrir frábæra umönnun á afskaplega erfiðum tímum. Starfsfólkið var vakið og sofið yfir sjúklingunum sem lá þarna og margir þeirra gengið fram af sér í vinnunni. Erfitt að gefa ráðleggingar þar sem veikindin geta verið svo mismunandi á milli einstaklinga.
20%
AFSLÁTTUR
AF GÓLFEFNUM FRÁ ÁLFABORG
Strandvegur 30 / 481 1475 / www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is
HRAÐÞRIF, ALÞRIF OG DJÚPHREINSUN
Kjartan Sigurðsson stofnaði Eyjaþrif 13. nóvember á síðasta ári. En hann er giftur Hlíf Helgu Káradóttir og eigum þau saman fjórar dætur, þær Andreu, Bjartey, Lísbet og Natalíu. Hann er fæddur og uppalinn á skaganum, en hefur búið í Eyjum í 32 ár. Hann starfar við karaviðgerðir hjá Ós ehf en er að bjóða upp á bílaþrif í aukavinnu. Hann tekur að sér að þrífa og bóna bíla. Hraðþrif og alþrif á bílum ásamt djúphreinsun á sætum. Það tekur ca. 2, 5 - 3 klukkustundir að þrífa bíl. Innifalið í Alþrif er eftirfarandi: Tjöruþvottur, sápuþvottur með svampi og þurrkaður, felgur og dekk þvegin með felguhreinsi (felgusýra til að ná bremsusóti), sterkt bón er borið á allan bílinn, rúður hreinsaðar, hurðarföls hreinsuð, mælaborð og annar vínill hreinsaður að innan, bíllinn er ryksugaður, gljái borinn á vínil að utan og sérstakt vatnshrindandi efni borið á dekk. Hægt er að panta tíma í þrif á bílnum í síma 8683365 eða nálgast allar frekari upplýsingar inn á facebooksíðu Eyjaþrifs. Eyjaþrif er staðsett á Garðavegi 15. (Keyrt inn á Nethamarsplanið)
/Eyjaþrif
Alþrif / Hraðþrif að utan / djúphreinsun o.fl
TAKTU ÞÁTT Á ÞINN HÁTT!
5 eða 10 km Rásmark verður við íþróttamiðstöðina. Upphitun hefst kl. 12.35 og hlaupið ræst kl. 13.00. Þátttökugjald er kr. 3.000. Skráning á hlaup.is. Keppnisnúmer og gögn afhent milli kl. 18 og 20 föstudaginn 4. september í Íþróttamiðstöðinni.
// Nánari upplýsingar á vestmannaeyjahlaup.is // Skráning á hlaup.is
GRATINERAÐUR FISKUR Á HRÍSGRJÓNABEÐI - Uppskrift vikunnar -
Ofnbakaður fiskur Hráefni: hrísgrjón 1,5 bolli soðinn hrísgrjón Þorskur eða ýsa (ca. 1 kg) Krydd að eigin vali 2,5 dl rjómi 3 msk majónes 2 tsk dijon sinnep 2 tsk karrý 50-100g ferskrifinn parmesan rauð paprika 1/2 blaðlaukur 200g rifinn ostur Aðferð: Hitið ofninn í 180°. Sjóðið hrísgrjón og leggið í botninn á eldföstu móti. Skerið fiskinn í sneiðar, leggið yfir hrísgrjónin og kryddið með salti, pipar og því sem þykir gott, Hrærið saman rjóma, majónesi, sinnepi,
karrý og parmesan. Saltið og piprið. Hellið sósunni yfir fiskinn og stráið fínskorinni papriku og blaðlauk yfir. Setjið að lokum rifinn ost yfir og bakið í ofni í ca. 30 mínútur. Gott er að hafa rúgbrauð og salat með. Skyr-eftirréttur Hráefni: 1-2 sneiðar rúgbrauð 4 hafrakex 1 msk smjör Blandið þessu saman í matvinnsluvél og ristið í ofni þar til þetta er orðið að stökkri mylsnu. 100g mascarpone 150g skyr 1 tsk vanilluduft 1-2 msk flórsykur 60g 65% dökkt súkkulaði
60-70g þeyttur rjómi sulta að eigin vali eða fersk ber Aðferð: Blandið saman helmingi af mascarpo ne og helmingi af skyrinu. Setjið út í smá af vanilludufti og helming af flór sykri. Bræðið súkkulaði og blandið sam an við. Takið rest ina af skyri, mascarpone, vanilludufti og flórsykri og blandið við þeyttan rjóma. Leggið í skálar í lögum; neðst er rúg brauðsmylsna, þá súkkulaðiskyrið, sulta, hvítt skyr, sulta (eða fersk ber) og toppið að lokum með meiri mylsnu.
FARTÖLVA FYRIR SKÓLANN Verð frá 119.900 - 139.900 kr.
Lenovo IdeaPad Flex 5 er flott tölva á hagstæðu verði. Flex 5 er með snertiskjá sem hægt er að snúa í 360 gráður, hún fæst bæði með 14“ og 15,6“ skjá. Hægt er að kaupa penna til að nota með tölvunni. Hún er með Dolby Atmos hljóðkerfi og baklýstu lyklaborði. Rafhlaðan endist í allt að 12 klst. Lenovo IdeaPad Flex hentar vel fyrir þig ef þú vilt skemmtilega tölvu sem skilar vel sínu og rúmlega það og er þar að auki á hagstæðu verði.
Tækniupplýsingar Örgjörvi: AMD Ryzen 5 4500U 2,3-4,0GHz, 6 kjarna 11MB Minni: 8GB 3200MHz DDR4 (á móðurborð, ekki stækkanlegt) Skjár: 14" FHD IPS Snertiskjár m. 720p myndavél með loku Upplausn: 1920x1080 punkta, 250 nits Diskur: 512GB M.2 2242 NVMe SSD Geisladrif: nei, möguleiki á USB drifi Rafhlaða: Innb. LiIon 52Wh, allt að 12 klst hleðsla Þráðlaust kort: WIFI 5 AC og Bluetooth 4.2 Tengi: 2 x USB 3.1, 1 x USB-C (hleðsla), hljóð, HDMI Kortalesari: 4-1 Fingrafaralesari: já Ábyrgð: 2 ár, 1 ár á rafhlöðu Stærð: 322x218x20,9mm, þyngd 1,5kg Stýrikerfi: Windows 10 64bita (home)
Lenovo IdeaPad Flex 5 fartölva. Mögnuð vél með 360°snúningi á skjá breytir henni í spjaldtölvu á augabragði.
139.900 kr. Hilmisgata 4 | 481 3333
AÐALFUNDUR
BEGGI SURPRISE ALLA VIKUNA Á 900 STÓR PIZZA M/3 ÁLEGGJUM AÐ EIGIN VALI Á 1.900KR TAKTU STÓRAR BRAUÐSTANGIR AÐ EIGIN VALI OG BORGAÐU FYRIR LITLAR BEGGI SURPRISE GILDIR ÚT ÁGÚST OG GILDIR EKKI Í HEIMSENDINGU.
Vestmannabraut 23 | 482 1000
Aðalfundur Björgunarfélags Vestmannaeyja og Björgunarbátasjóðs Vestmannaeyja verður haldin fimmtudaginn 3. september í björgunarmiðstöðinni að Faxastíg 38. Fundurinn hefst kl 20.00.
1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Lagabreytingar 3. Önnur mál
Stjórn Björgunarfélags Vestmannaeyja
SUDOKU
ORÐAÞRAUT
BÍLL VESPA
FLUGVÉL BÁTUR ÞYRLA VÖRUBÍLL
SKÚTA MÓTORHJÓL LYFTARI LOFTBELGUR
ÖKUKENNSLA
SNORRA RÚTS Kennslubifreið: Mercedes Benz C200-C01
• Akstursmat • Endurtökupróf • Ökuskóli
20 ára reynsla! Sími 692-3131
Á AÐ SKORA Á FÉLAGANA?
KOMDU OG KÍKTU VIÐ! MÁN - ÞRI - MIÐ OPIÐ FRÁ 17:00 - 23:00 FIM - FÖS - LAU - SUN OPIÐ FRÁ 16:00 - 23:00
Hönnun / umbrot á auglýsingaefni / greinaskrif Bæklingar - vefbanner - fréttabréf - auglýsingasala ljósmyndun - ársreikningar o.fl. leturstofan@leturstofan.is
Viltu auglýsa fyrirtækið þitt eða koma greinum á framfæri? Sendu okkur á netfangið: tigull@tigull.is
/crispus
FIMMTÍU FIMMTÍU ÁR ÁR
Við munum halda áfram að hafa opið en með breyttu sniði. Stofan verður opin eftir tímapöntunum en síminn verður alltaf opin fyrir pantanir Sími 772-6766 Hrönn: 694-2655 /Svanhvít : 772-3332 Hlökkum til að sjá ykkur!
FIMMTÍU FIMMTÍU PRÓSENT PRÓSENT 50% 50% afsláttur afsláttur af af öllum öllum flugsætum í allt flugsætum í allt sumar sumar –– bókað bókað áá ernir.is ernir.is
Tannlæknar 1. - 4. september - Hjalti Þórðarson
Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40
Tímapantanir í síma 481-2772
VIÐ ERUM AÐ KOMA TIL EYJA!
HJÁ LINDU Í SMART VESTMANNABRAUT 30 FÖSTUDAGINN 4. SEPT. KLUKKAN 11:00-18:00
• 2 FYRIR 1 TILBOÐ • 35% AFSLÁTTUR FYRIR ALDRAÐA OG ÖRYRKJA • FRÁBÆR SKÓLATILBOÐ • SÓLGLERAUGU (MEÐ STYRK FRÁ 19.900) • SJÓNMÆLINGAR Á STAÐNUM
PANTIÐ TÍMA Í SÍMA 511-6699 EÐA 899-8801