Tígull 27. tbl 05. árg.

Page 1

27. tbl. 05. árg. 30. ágúst - 6. september2023

Vestmannaeyjahlaupið framundan

Hlaupið verður haldið laugardaginn 2. september. Boðið verður upp á 5 km og 10 km. Rásmark verður við Íþróttamiðstöðina og hefjast bæði hlaupin kl. 13.

Íslandsmeistari unglinga í höggleik Embla Bachmann með sína fyrstu bók

Guðjón Frans Halldórsson sem að sigraði Íslandsmót unglinga í höggleik sem fór fram á Vestmannaeyjagolfvelli fyrr í mánuðinum.

Á Leturstofunni bjóðum við upp á hönnun og umbrot á alls konar verkum.

Auglýsingar / logo / sálmaskrár umbúðir / fréttabréf nafnspjöld / boðskort bæklinga / límmiða og allt sem þér dettur í hug.

Vertu í sambandi við okkur og við förum yfir þetta í sameiningu.

Stelpur stranglega bannaðar! er fyrsta bók Emblu. Bækurnar verða vonandi fleiri því Emblu finnst fátt skemmtilegra en að skrifa. Blaðamaður Tíguls heyrði í Emblu.

leturstofan@leturstofan.is /leturstofan /leturstofan

ÍSLANDSMÓT GOLFKLÚBBA 50 ÁRA OG ELDRI

FÓR FRAM UM ÞARSÍÐUSTU HELGI

Íslandsmót golfklúbba 50+ fór fram um helgina. GV átti lið í karla- og kvennaflokki.

Íslandsmót golfklúbba í 2. deild kvenna 2023 í +50 ára og eldri fór fram á Silfurnesvelli á Höfn í Hornafirði dagana 24.-26. ágúst. Alls voru átta klúbbar sem tóku þátt. Í hverri umferð eru leiknir einn fjórmenningar og fjórir tvímenningsleikir. Keppt var í tveimur fjögurra liða riðlum. Þær lentu í 2. sæti í sínum riðli og spiluðu en lútu lægra haldi gegn Golfklúbbu Kiðjabergs og enduðu því í 3. sæti sem er frábær árangur.

Karlarnir gerðu vel eftir erfiðleika í riðlakeppninni og héldu sér uppi í annari deild.

TÍGULL

DREIFING:

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

ÚTGÁFA:

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

Hrönn, Alda, Jóhanna, Freyja, Þóra, Unnur og Katrín. Albert, Helgi, Sigurjón, Jóhann, Huginn, Guðjón, Jónas , Jóhann og Ingi.

2. SEPTEMBER FJÖLSKYLDU HÁTÍÐ Í MÖRKINNI

Frábær skemmtiatriði og leikir ásamt léttum veitingum og svo frábær tilboð

MÁN.-FÖST. 10-18

LAUG.-SUN. 12-17

Glæsileg afmælisveisla í heila

viku fjöldi tilboða og ís í boði

AFMÆLIS OPNUNAR TÍMAR
30. ágúst 2023 • B i r t me ð fyri r v a r a u m br eyti n ga ,r in n slátta r vill u r og m y n da br e ng l
ÞRAUTIR
APPELSÍN BÆKUR LAMPI HUNDUR SÍRÓP VÖRUBÍLL
KOMMÓÐA SKÁL
STYTTUR LJÓSMYNDIR HÁLSMEN
FLASKA

FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER

KL. 20.00

LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER

KL. 15.00

SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER

KL. 15.00

HÆGT ER AÐ KAUPA MIÐA OG VELJA SÆTI Á EYJABIO.IS
KL. 20.00

EMBLA BACHMANN MEÐ SÍNA FYRSTU BÓK

Kemurðu oft til Eyja?

Var duglegri sem barn að kíkja til ömmu, sérstaklega á sumrin. Kem ekki eins oft nú til dags en ef það væru fleiri klukkutímar í sólarhringnum kæmi ég án efa oftar.

Helsta fyrirmyndin?

Lít mikið upp til Vigdísar Finnbogadóttur.

Hver er þín helstu hugamál?

Bækur, tónlist, íþróttir og var ég búin að nefna bækur?

Hvernig kviknaði hugmyndin að bókinni?

Hugmyndin kviknaði þegar mamma var ólétt að litla bróður mínum. Ég elska spurninguna hvað ef? og lék mér mikið með þær hugsanir sem urðu til út frá þeirri spurningu. Ósjálfrátt fór ég að spinna atburðarás í hausnum mínum og tókst svo loksins að koma henni niður á blað.

Bókin heitir Stelpur stranglega bannaðar! en um hvað er bókin?

Embla Bachmann er fædd árið 2006 og er því 17 ára. Hún býr í Grafarholtinu ásamt foreldrum sínum Kristínu og Jóni og bræðrum. Hún er elst systkinanna. Hún á ættir að rekja til Eyja en Amma Emblu er Hrefna Guðjónsdóttir og afi hennar Ólafur Guðmundsson sem búa í Eyjum eins og stór hluti móðurættar hennar.

Haustið 2022 hóf hún nám á nýsköpunar- og listabraut í Verzlunarskóla Íslands. Frá unga aldri hefur Embla verið mikill bókaormur. Hún heillaðist fljótt af ævintýraheimi bókanna og ellefu ára gömul ákvað hún að setja sér það markmið að skrifa sjálf sögur og ljóð.

Árið 2018 skrifaði Embla smásöguna Rófulausi hundurinn og hárlausi kötturinn sem var hluti af rafbókinni RISAstórar smáSÖGUR. Yfir grunnskólagönguna fékk Embla fjórum sinnum verðlaun í ljóða- og smásagnakeppni skólans, ýmist fyrir ljóð eða smásögu. Með ljóðinu Úti er ævintýri sigraði Embla ljóðakeppnina Ljóðaflóð árið 2021.

Stelpur stranglega bannaðar! er fyrsta bók Emblu. Bækurnar verða vonandi miklu fleiri því Emblu finnst fátt skemmtilegra en að skrifa. Blaðamaður Tíguls heyrði í Emblu og forvitnaðist um bókina og líf Emblu.

Bókin fjallar um Þórdísi sem grunar að mamma sín sé ólétt og fer að njósna til að reyna að komast að niðurstöðu. Á sama tíma kemur ný stelpa í bekkinn sem stelur bestu vinkonu Þórdísar. Í kapphlaupi við tímann reynir Þórdís að stoppa allar breytingar og halda öllu eins og það var. Til að vita hvort það takist verður þú einfaldlega að lesa bókina.

Hvenær og hvar og fyrir hverja er útgáfuhófið?

Útgáfuhófið verður haldið laugardaginn 2. september, frá 12 til 14 í Borgarbókasafninu í Spönginni. Öllum sem finnst gaman að vera í kringum bækur, borða köku og hlusta á góða tónlist er velkomið að mæta!

Ertu búin að setja þér ný markmið í dag þar sem þín fyrsta bók er komin út?

Ég er alltaf með nóg af markmiðum sem halda mér á tánum. Mig langar að halda áfram að skrifa bækur og er nú þegar með nokkur handrit í vinnslu. Svo á ég alveg gríðarlega mörg ljóð sem ég hef skrifað í gegnum árin og þætti gaman að gera eitthvað við. Annað markmið er að prófa að skrifa fleira en bækur, til dæmis handrit að leikriti eða stuttmynd.

Fyrir þau sem vilja kaupa bókina hvar er hægt að gera það?

Stelpur stranglega bannaðar! er fáanleg í öllum betri bókabúðum. Með fallegri eintökunum leynast í Pennanum Eymundsson í Eyjum. Annars er líka hægt að panta hana á netinu á bokabeitan.is.

Uppáhalds:

matur: Ekkert toppar gott sushi.

drykkur: Kaffi!!! Hvorki ég né bókin værum eins og við erum ef ekki væri fyrir alla kaffibollana sem ég drekk daglega.

Tónlist: Adele, Harry Styles og SZA eru hin heilaga þrenning fyrir mér. Af íslensku tónlistarfólki finnst mér Aron Can, Una Torfa og Valdimar Guðmundsson bera af.

bók: Bækurnar um Fimmtudagsmorðklúbbinn

eftir Richard Osman eru í miklu uppáhaldi.

Þættir: Jane the Virgin, Big Bang Theory og Gilmore Girls klikka ekki. Elska líka glæpa- og heimildarþætti.

Bíómynd: Hef vandræðalega litla þolinmæði fyrir bíómyndum (hef sofnað oftar en einu sinni í bíósal) en í mörg ár hefur My Best Friend’s Wedding átt sérstakan stað í hjarta mér.

lið í enska: Var byrjuð að tilbiðja Liverpool áður en ég lærði að tala.

lið í handbolta: ÍBV þegar ég er í Eyjum, Fram alla aðra daga.

Hér getur þú fylgst með Emblu á Instagram: Embla Bachmann

/EmblaBackmann

Í ágúst rættist langþráður draumur þegar mín fyrsta bók kom út! Ég er óendanlega þakklát fyrir tækifærið. Ef þig vantar hörkuspennandi og skemmtilegt lesefni veistu hvert þú getur leitað.

UPPSKRIFT VIKUNNAR

Haframjöls- og bjórskonsur

Hráefni:

350 g hveiti

100 g fínt haframjöl

1 msk sykur

2 tsk lyftiduft

1 tsk salt

80 g kalt smjör

lítið búnt graslaukur, klippt (20 g)

100 g rifinn ostur

2 egg

2 tsk djon sinnep

200 ml bjór

Aðferð:

Stillið ofninn í 200°c. Byrjið á að vinna saman þurrefnin og kalt smjörið. Einfaldast er að skera smjörið í litla bita og mylja síðan saman við þurrefnin.

Klippið graslaukinn og setjið rifinn ostinn út í þurrefnaskálina og hrærið saman.

í annarri skál á að slá eggin sundur með gaffli og blanda sinnepi og bjór saman við áður en blöndunni er hellt út í þurrefnin.

Hnoðið deigið í stutta stund, rétt þar til deigið er kekkjallaust. Bætið við hveiti eftir þörfum.

Fletjið deigið út á hveitistráðu borði í 4 cm þykkt og stingið út með hringlara formi. Einnig má skpta deiginu í 9 hluta og mynda einskonar buff úr hverjum deighluta.

Leggið deighlutana á bökunarpappísklædda plötu og penslið með örlítilli mjólk.

Bakið við 200°c í 25-30 mínútur eða þar til skonsurnar hafa tekið fallegan lit.

Viltu minnast látins ættingja eða vinar?

Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi. Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef.

Verð: 12.400 kr.

FÉLÓ

Félagsmiðstöðin í Hvíta Húsinu

auglýsir eftir frístundaleiðbeinenda

Markmið félagsmiðstöðva er að þjálfa félags- og samskiptafærni barna og unglinga í gegnum leik og starf. Markhópur félagsmiðstöðva er börn og unglingar á aldrinum 10-16 ára. Vinnutíminn er 5 - 8 tímar á viku. Stuttar vaktir seinni hluta dags, á kvöldin og takmarkað um helgar. Hentar vel fyrir fólk í skóla.

Helstu verkefni og ábyrgð

Skipuleggja starf í félagsmiðstöð fyrir börn og unglinga á aldrinum 10-16 ára.

Vera leiðbeinandi í leik og starfi

Samráð og samvinna við börn og unglinga.

Vaktaskipulag í samráði við forstöðumann.

Hæfniskröfur

Vera orðin 18 ára.

Hafa hreint sakavottorð.

Vera brosmildir og jákvæðir með eindæmum.

Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.

Góð færni í mannlegum samskiptum.

Hafa áhuga á að starfa með börnum og unglingum

Hafa velferð og þroska barna og unglinga að leiðarljósi

Uppeldismenntun og reynsla af störfum á vettvangi tómstunda eða æskulýðsmála er kostur.

Nánari upplýsingar veitir Heba Rún Þórðardóttir forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar á netfangið: heba@vestmannaeyjar.is eða í síma 488-2361.

Umsókn sendist á heba@vestmannaeyjar.is eða með rafrænum hætti í gegnum heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Umsækjandi þarf að hafa hreint sakavottorð. Umsókn skal fylgja ferilskrá og rökstuðningur af hverju viðkomandi sækist eftir starfinu.

Launakjör eru skv. kjarasamningi Samband íslenskra sveitafélaga, Stavey eða Drífanda stéttafélags.

Umsóknarfrestur er til og með 4. september 2023 Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja
lögum
jafna stöðu og jafnan
kynjanna nr. 15/2020
lögum
nr. 80/2019.
um starfið skv.
um
rétt
og
um kynrænt sjálfræði

ÍSLANDSMEISTARI UNGLINGA Í HÖGGLEIK

Íslandsmót unglinga 15-21 árs fór fram á Vestmannaeyjagolfvelli fyrr í mánuðinum. En það var Guðjón Frans Halldórsson sem að sigraði mótið. Hann er aðeins 16 ára og spilar með Golfklúbbi Kópavogs og Garðarbæjar. Hann á mikla tengingu til Eyja en mamma hans Hrafnhildur Björnsdóttir er fædd og uppalin í Eyjum og eru þau Drífa í Klöpp og Böddi amma hans og afi. „Svo ég á líka fullt af frændfólki í Eyjum“, segir Guðjón sem stundar nám við Flensborgarskóla en vann í sumar á golfnámskeiðum hjá GKG. Blaðamaður Tíguls sló á þráðinn til Guðjóns og fékk að vita aðeins meira um kappann. Tígull óskar Guðjóni til hamingju með sigurinn.

Uppáhalds:

Matur? Sushi

Drykkur? Celcius Mango Passion

Kylfingur? Justin Thomas og Viktor Hovland eru báðir geggjaðir.

Golfvöllur? Uppahslds golfvöllurinn minn erlendis er Hrubá Borsa í Slóvakíu, ég keppti þar á Evróvrópumóti pilta í liða keppni U18. Celebration í Florida er líka geggjaður. Hér heima eru það Vestmannaeyjavöllurinn og Urriðavöllur.

Tónlist? Ég hlusta mest á rapp

Kemuru oft til Eyja?

Ég er ekki nógu duglegur, en eg kom oft þegar eg var aðeins yngri. Núna er eg nanast að keppa allar helgar.

Hvernær bryrjaðir þú í golfi: Ég byrjaði að slá með kylfu um 5 ára, þá var ég oft að leika mér og fara á æfingasvæðið með pabba. Svo fór ég á sumarnámskeið 6 ára og æfði svo eitt sumar í Oddi. Þegar ég var 11 ára var ég kominn á fullt í golfið og byrjaði þá að æfa í GKG.

Erfiðasta holan? 18 holan á Urriðavelli, það er skógur sitthvoru megin við brautina og inn á höggið getur verið snúið. 13 holan getur verið erfið í eyjum þegar það er mikill vindur og 17 holan á hvítum teigur á Akureyri getur verið mjög erfið.

Skemmtilegasti spilafélaginn?

Gunnlaugur Árni og Kristín

Draumahollið: Tiger Woods, Justin Thomas og Viktor Hovland. Því þeir eru þrír uppáhalds golfararnir mínir.

Hvað ertu með í forgjöf? Er er með +1,0 í Forgjöf

Besta skorið er 66 högg eða -5 á Leirdalnum

Helsta fyrirmyndin? Justin Thomas, hann er uppáhalds golfarinn minn og Cristiano Ronaldo því hann er besti fótboltamaður allra tíma.

Auglýsingasími

Tíguls: 481-1161 tigull@tigull.is

Fundir eru sem hér segir: Sunnudaga kl. 11.00

Miðvikudaga kl 20.30

AL-ANON

Þriðjudaga kl. 20.30

NÝLIÐAR VELKOMNIR HÁLFTÍMA FYRIR FUNDI

lést á Hraunbúðum Vestmannaeyjum laugardaginn 26. ágúst. Útförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 2. september kl. 11:00.

Guðjón lék fyrsta hring á 70 höggum og á sama höggafjöldi í hring 2, 70 högg. Þriðja hringinn fór hann á 68 höggum. Ljósmynd/Seth@golf.is

Passamyndir

Fasteignaljósmyndun

Bókið tíma á facebook.com/thoreyljosmyndari eða á netfangi thoreyhh19@gmail.com

til að skrá þig! Skannaðu

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.