Skip to main content

Tígull 27.tbl 03 árg.

Page 1

27. tbl. 03. árg. 8. - 14. september 2021


HLJÓP 5 KM Í HLAUPINU - AÐEINS 6 ÁRA

Úlfur Ingi Gíslason var allra yngsti keppandinn í 5 km hlaupinu, en hann er aðeins sex ára gamall. Úlfur bað mömmu sína að skrá sig til leiks sem og hún gerði. Hann hljóp sem vindurinn alla leiðina einn en mamma hans keyrði á undan og tók stöðuna á honum reglulega og gaf

honum að drekka. Úlfur Ingi hljóp 5 km á 29:57 mín og var í 6. sæti í sínum aldursflokki, það munaði ekki nema 27 sek á 3. sætinu og 6.sætinu.

demantssafnari. Við spurðum hann einnig af hverju hann vildi taka þátt í hlaupinu. Hann svaraði einfaldega: Nú mér fannst ég bara vera tilbúinn.

Tígull spurði hann hvort hann ætlaði að verða hlaupari þegar hann yrði stór, hann sagðist nú bara ætla verða

Það verður gaman að fylgjast með þessum orkubolta í framtíðinni.

FLATIR 31 / 481 1216 /nethamarehf

TÍGULL

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


DAGSKRÁ Í TALI OG MYNDUM HEIÐRUÐ HILMARI OG TEDDA

„Ég hef grúskað talsvert i safni RÚV og leitað sérstaklega að gömlum sjónvarpsfréttum tengdum útgerð og fiskvinnslu í Vestmannaeyjum. Afraksturinn sýndum við að hluta á Bryggjunni um sjómannadagshelgina og goslokahelgina í ár og fleira kom í leitirnar sem varð hluti af myndinni sem sýnd verður 11. september,“ segir Atli Rúnar Halldórsson um dagskrána, Heiður sé sjógörpum sem verður í Safnahúsi á laugardaginn kl. 13.00. „Margt forvitnileg fannst þarna eins og við mátti búast en ég er líka hugsi yfir því sem EKKI er að finna í þessu annars merkilega safni. Til dæmis fann ég einungis eitt einasta viðtal við Tedda og það tók Sigrún Stefánsdóttir fréttamaður á Höfn eftir að Sæbjörg strandaði í desember 1984. Teddi er annars hvergi

finnanlegur í spjaldskrá safnsins, maður sem bjargaðist fjórum sinnum úr sjávarháska! Engin önnur dæmi eru um slíkt, fullyrðir Óttar Sveinsson, rithöfundurinn sem hefur sérhæft sig í að fjalla um slys, hamfarir og björgunarafrek til sjós og lands. Ríkisútvarpið hefur nú tekið fólk í lengri viðtöl af minna tilefni. Það vill því miður verða svo að hvunndagshetjurnar fá ekki þann sess í fjölmiðlum sem þeim ber. Ég er viss um að gömlu fréttamyndirnar í RÚV-safninu munu vekja athygli nú sem fyrr, þarna eru gullmolar og dramatískar myndir líka. Ég nefni sömuleiðis stórmerkilegar myndbandsupptökur Stefáns Friðrikssonar um borð í Sæbjörgu nr. 2. Við erum með búta af veiðum og aðgerð á dekki, fínustu myndir sem eru verðmæt heimild um horfinn tíma til sjós.“

„Dagskráin, Heiður sé sjógörpum er unnin í samvinnu við Sjómanndagsráð og Safnahús. Um goslok var dagskrá helguð Óskari Matthíassyni á Leó VE og Þóru Sigurjónsdóttur konu hans. Núna eru það Hilmar og Teddi og ætlunin að gera dagskrána að árlegum viðburði í tengslum við sjómannadag þar sem farið er yfir sögu sjógarpa og aflaskipstjóra og áhafna þeirra,“ sagði Atli Rúnar að endingu. Tónninn var gefinn í Sjómannadagsblaðinu 2020 þar sem fjallað er um Hilmar og Theódór og rætt við fjölskyldur þeirra og menn sem með þeim reru. Það sama var gert með Óskar og Þóru í Sjómannadagsblaðinu í ár.


KÓFIÐ KVATT STÓR HELGI Í SAFNAHÚSI

Á BRYGGJUNNI Í SAGNHEIMUM VERÐUR BOÐIÐ UPP Á TVÆR SPENNANDI DAGSKRÁR. Á FÖSTUDEGINUM 10. SEPTEMBER KL. 16:00 VERÐUR MINNST 100 ÁRA AFMÆLIS ÚTVEGSBÆNDAFÉLAGS VESTMANNAEYJA. Á LAUGARDEGINUM 11. SEPTEMBER KL. 13:00 VERÐUR DAGSKRÁIN HEIÐUR SÉ SJÓGÖRPUM, HELGUÐ HILMARI RÓSMUNDSSYNI OG THEÓDÓR ÓLAFSSYNI, ÚTGERÐARMÖNNUM SÆBJARGAR VE 56. ALLIR HJARTANLEGA VELKOMNIR


VESTMANNAEYJAHLAUPIÐ Vestmannaeyjahlaupið var haldið í ellefta sinn síðustu helgi, alls tóku 114 manns þátt í ár, 71 í 5 km og 43 í 10 km Hlynur Andrésson ofurhlaupari og Vestmannaeyingur sigraði í 10 km í karlaflokki. Hann hljóp á tímanum 32:18. Verena Karlsdóttir kom fyrst í mark af konunum á tímanum 41:33. Myndirnar úr hlaupinu tók Tói Vídó.


SMÖLUN Í SUÐUREY

KATRÍN LAUFEY RÚNARSDÓTTIR katalaufey@tigull.is Haldið var í ævintýraferð út í Suðurey fimmtudaginn síðastliðinn í smölun. Óli Týr, Davíð og Björgvin voru fyrirliðar ferðarinnar en það var hann Þorsteinn sem skutlaði hópnum út í eyju. Tígull fékk að fljóta með ásamt Tígulgosanum, Pétri Steingríms, Gauja á Látrum, Tinnu Hauksdóttur og eldhressum framhaldskólakökkum sem Óli Týr fékk til að koma með og aðstoða. Það er ævintýri líkast að fá að príla upp eyjuna og svo niður hinu megin að húsi Suðureyjafélaganna. Smölunin gekk vel þrátt fyrir að eiga við mjög svo þvera forystu rollu sem hefur greinilega fengið að ráða hópnum of lengi. Fénu var smalað í réttina, og þar tók við að ría rollurnar ásamt því að gefa þeim lyf. Krakkarnir tóku fullan þátt í öllum verkum og stóðu sig þrusu vel. Davíð (í Tölvun) skellti í pylsur handa hópnum. Svo tók við að flokka hópinn, en 23 rollur fengu frelsið á ný en

11 rollum var sigið niður í bát sem flutti þær upp á Heimaey í slátrun. Svo tók við gangan tilbaka niður í bátinn til Þorsteins, sem flutti okkur heim á leið. Það var ekki leiðinlegt að skoppast um í tuðrunni með Gauja sem þekkir hvert einasta örnefni á leiðinni. Og sögur í kringum þau einnig. Tígull þakkar fyrir frábæra ferð með Suðureygenginu og hlakkar til næstu ferðar en þá er Óli Týr búin að lofa því að ég megi fara niður himnastigann fræga.


SUDOKU

Elskuleg móðir okkar tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma.

BIRNA RUT GUÐJÓNSDÓTTIR Kirkjuvegi 31, Vestmannaeyjum

Lést á heimili sínu Hraunbúðum miðvikudaginn 1. september. Útförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 11. september kl:13:00. Athöfninni verður streymt á heimasíðu Landakirkju www.landakirkja.is. Aðalheiður Svanhvít Magnúsdóttir Eggert Sveinsson Gíslína Magnúsdóttir Gísli J. Óskarsson Magnea Ósk Magnúsdóttir Daði Garðarsson Barnabörn og langömmubörn

Dánartilkynningar Þakkartilkynningar eða minningargreinar Þeir sem vilja koma á framfæri dánartilkynningum, þakkartilkynningum eða minningargreinum geta sent okkur á netfangið: tigull@tigull.is Verð á tilkynningum sem birtast í vef og blaði eru eftirfarandi: Tilkynning á vef: 5.000 kr. Tilkynning í Tígul: 7.500 kr. Tilkynning á bæði vef og blað: 10.000 kr. Við tökum á móti minningargreinum sem hægt er að birta viðkomandi að kostnaðarlausu.


TASTE SUPER DAIRY

OPIÐ Í VESTMANNA EYJUM

PRÓTEIN BOOZT MÁN-FÖS EYDÍS

09:00 -16:00 LAU-SUN

11:00 -16:00

VETRAROPNUN 17:00 - 22:00 virka daga 12:00 - 22:00 um helgar /eydisisbud eydisisbud

Vesturvegur 5 / 481 1004

STARFSFÓLK ÓSKAST Vegna mikilla anna óskum við eftir pizzasendlum, bökurum og starfsfólki í sal. Hlutastarf í boði. Áhugasamir hafi samband við okkur á netfangið: pizza67eyjar@gmail.com eða á staðnum.

Boðskort til allra sem komu að björgunarstörfum og aðhlynningu skipsbrotsmanna þegar togarinn Pelagus O 202 fórst þann 21.janúar 1982. Sunnudaginn 12. September 2021 verður minningarstund sem hefst með guðsþjónustu í Landakirkju kl. 14:00. Að henni lokinni verður farið að minnisvarðanum sem reistur var austur á hrauni og verða kransar lagðir að, ávarp, bæn og tendrað kertaljós. Að því loknu bíður Belgíski sendiherrann Frank Arnauts til móttöku og veitinga í Skátaheimilinu að Faxastíg. Vonumst til að sjá ykkur sem flest.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á netfang: guðnig@simnet.is eða í síma 844 3016


UPPSKRIFT VIKUNNAR Súkkulaði Smoothie Tíguls Hráefni: 200 ml möndlumjólk (sjá uppskrift af möndlumjólk neðar) 2 frostnir bananar 2 msk hrátt kakóduft 1 msk hörfræolía smá gróft salt (himalaya eða norðursalt ) Nokkrir dropar sítróna Allt sett í blandara. Sett í hátt glas með klökum. Möndlumjólk Hráefni: 3 dl möndlur með hýði 1-2 tsk vanillu duft ( þetta svarta ) 5 stk döðlur ( steinlausar) 1 - 1,5 L vatn Allt sett í blandara. Svo sett í fínt sigti og hratið sigtað frá.


DAGSKRÁIN HEFST 15. SEPTEMBER 2021

MORGUNJÓGA ÞRIÐJUDAGA KL. 09:00 - 10:00 FÖSTUDAGA KL. 08:30 - 09:30

FRIÐARBÓL

Í boði er að greiða fyrir alla önnina 35.000 kr. (27 skipti) eða greiða mánuð í senn 15.000 kr. (8 skipti)

JÓGA NIDRA FÖSTUDAGA KL. 12:05 - 12:55 EÐA 16:30 - 17:45

FRIÐARBÓL

6 vikna námskeið í hádeginu verð 12.000 kr. & seinnipartinn verð 16.000 kr. Jóga Nidra losar um streitu, bætir svefn, eykur orku og gefur styrk í lífsins ólgusjó.

VATNSLEIKFIMI MÁNUDAGA & MIÐVIKUDAGA KL. 17:30 - 18:15 - UPPSELT 18:30 - 19:15 - LAUS PLÁSS

Fyr konuir r

SUNDLAUG

Ý

N

TT

VATNSLEIKFIMI MÁNUDAGA & MIÐVIKUDAGA KL. 19:30 - 20:15

Fyr karlair

SUNDLAUG

Skráning & nánari upplýsingar í síma 868-4613 Öll þjálfun er greidd fyrirfram. Viðskiptavinir í einkaþjálfun þurfa einnig að eiga kort í Hressó.

KATRÍN HARÐARDÓTTIR BSc Íþróttafræðingur, ÍAK einkaþjálfari & jógakennari

Vatnsleikfimi er kröftug leikfimi í vatni sem hentar hressum konum og körlum á öllum aldri. Æfingarnar auka styrk, úthald og liðleika. Í boði er að greiða fyrir alla önnina 30.000 kr. (27 skipti) eða mánuð í senn 12.000 kr. (8 skipti). Auk þess þarf að greiða aðgangseyri að laug.

EINKAÞJÁLFUN 12 SKIPTI // 30 MÍNUTUR // SÉRSNIÐIN ÆFINGARÁÆTLUN

LITLA HRESSÓ Einn einstaklingur 30.000.- // Tveir einstaklingar saman 20.000.- pr. mann 3 saman 15.000.- pr. mann


heimadecor.is


DAGSKRÁIN HEFST 15. SEPTEMBER 2021 FRÍ PRUFUVIKA FYRSTU VIKUNA

ÝT N

T

VATNSLEIKFIMI

MÁNUDAGA & MIÐVIKUDAGA KL. 19:30 - 20:15

Fyrir karla

SUNDLAUG Vatnsleikfimi er kröftug leikfimi í vatni sem hentar hressum körlum á öllum aldri. Æfingarnar auka styrk, úthald og liðleika. Í boði er að greiða fyrir alla önnina 30.000 kr. (27 skipti) eða mánuð í senn 12.000 kr. (8 skipti). Auk þess þarf að greiða aðgangseyri að laug.

Skráning & nánari upplýsingar í síma 868-4613 KATRÍN HARÐARDÓTTIR BSc Íþróttafræðingur, ÍAK einkaþjálfari & jógakennari


solrunb@viskave.is eða í síma 488 0116

Íslenska fyrir útlendinga

Tálgunarnámskeið fyrir áhugasama

Viska býður upp á námskeið í íslensku 1 - 3. Á námskeiðunum er lögð áhersla á talað mál, skrifa íslensku í gegnum hlustun, samræður, ritun og málfræði fléttast inn í námsefnið á námskeiðunum. Lögð er áhersla á íslensku sem nýtist til daglegrar notkunar og að efla nemendur áfram í íslenskunámi. *Farið er af stað með námskeið þegar næg þátttaka hefur náðst í hóp. Verð: 45.000 kr. Viska offers courses in Icelandic on levels 1-3. The main focus in the courses are on the spoken language, reading and writing Icelandic, active listening, conversations and grammar intertwine with the course material. The main focus is on Icelandic, which is used for daily use and we aim to further the students in Icelandic language. *The courses will start when we have enough participans for each course. Verð: 45.000 kr. Viska oferuje kursy języka islandzkiego na poziomach od 1 do 3. Podczas kursu koncentrujemy się na języku mówionym, czytaniu i pisaniu po islandzku, aktywnym słuchaniu, rozmowach i gramatyce, te wszystkie elementy przeplatają się w materiałach podczas kursu. Główny nacisk położony jest na umiejętności językowe użyteczne w codziennym życiu, a naszym celem jest wzmocnienie uczniów w posługiwaniu się językiem islandzkim. * Kursy rozpoczną się, gdy zbierze się odpowiednia liczba uczestników w poszczególnych grupach. Verð 45.000 kr. Skráning og nánari upplýsingar Valgerður Guðjónsdóttir, 488 0115, viska@viskave.is

Þátttakendur verða að vera með tálguhnífa, ef ekki, þarf að lát vita svo leiðbeinandi geti tekið með sér auka hnífa. Engrar reynslu er þörf, allir geta lært að tálga, það eina sem þarf er að hafa áhuga á fuglum, sæmilega sjón og áhuga á handverki. Við tálgum fyrst mófugla Auðnutittling og Maríuerlu, þeir sem eru duglegir geta fengið fleiri fugla. Þessir fuglar eru innifaldir í þátttökugjaldinu. Námskeiðið hefst á föstudaginn 17. september kl. 15.00. Laugadagur kl. 10– 17. Sunnudagur kl.10-17. Námskeiðið er haldið í hvíta húsinu við Strandveg 50 Kennari: Valdór Bóasson Skráning í síma: 4880100 og 4880115 eða á netfangið viska@viskave.is Þátttökugjald er 25.000. kr. Nánari upplýsingar um námskeiðin inn á www.viskave.is Ægisgötu 2 / viska@viskave.is / 488 0100 Opnunartími: Mán - fim 08:00 - 16:00 Fös 08:00 - 15:00

/ viskave


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 27.tbl 03 árg. by Leturstofan - Issuu