27. tbl. 02. árg. 19. - 25. ágúst 2020
SKÓLASETNING MEÐ BREYTTU SNIÐI Nú fer skólahald að hefjast og er skólasetning 25. ágúst nk. Við erum í raun að fara inn í sama landslag og var í vor eftir 4. maí, þ.e. það eru engar takmarkanir á skólahaldi og skólahald verður með sem eðlilegasta hætti. Hvort sem það eru bóklegir tímar, lotur, íþróttir eða frímínútur.
fullan þátt, séuð styðjandi og áhugasöm um nám þeirra, góð samvinna heimilis og skóla skiptir öllu máli.
Það sem skiptir mestu máli núna er að starfsfólkið virði þessa 1m reglu sem er í gildi fyrir leik- og grunnskóla og frístundastarf. Við munum nýta reynslu okkar frá því í vor og nota tæknina meira þá að hafa frekar fjarfundi og draga þannig úr að hópar hittist mikið innan skólans. Sama gildir með kaffitímana þeim hefur verið skipt niður, því þetta er ansi stór vinnustaður og ljóst að það geta ekki allir verið í kaffi á sama tíma með 1m á milli.
Skólasetning 25. ágúst er sem hér segir: 2.- 4. bekkur kl. 9:00 í sal Hamarsskóla. 5. og 6. bekkur kl. 10:00 í sal Barnaskóla. 7. og 8. bekkur kl. 10:30 í sal Barnaskóla. 9. og 10. bekkur kl. 11:00 í sal Barnaskóla. Eftir skólasetningu í sal fara nemendur í stofur og hitta umsjónarkennara.
Við munum haga sóttvörnum eins og við gerðum í vor og ítrekum enn og aftur handþvott og spritt, bæði fyrir nemendur og starfsfólk. Varðandi ávexti þá var búið að taka ákvörðun um að það yrði ekki í boði í vetur en annars verður skólamatur með hefðbundnum hætti. Skólasetning verður með breyttu sniði en því miður getum við ekki boðið foreldrum á skólasetninguna að þessu sinni. Við munum takmarka komur foreldra inn í skólana og foreldrar sem eru að koma með börnin sín í skólann eða sækja, eiga ekki að koma inn í skólann. Annars erum við farin að hlakka til að hefja skólahald á ný og að hitta nemendur. Starfsfólk skólans stóð sig virkilega vel síðasta vor í skrýtnum aðstæðum, við erum viðbúin og reynslunni ríkari og tilbúin í nýtt skólaár með þeim áskorunum sem því fylgja. Í lokin vil ég beina orðum mínum til foreldra, en þar sem við náum ekki að hitta ykkur núna þegar skólinn byrjar, langar mig að biðja ykkur um að fylgjast vel með á heimasíðu skólans, á facebook síðu skólans og þeim fréttum sem við sendum frá okkur. Það er mikilvægt að þið séuð vel upplýst um skólagöngu ykkar barna, takið
TÍGULL
Anna Rós Hallgrímsdóttir skólastjóri GRV.
Nemendur í 1. bekk mæta í einstaklingsviðtöl með forráðamanni til umsjónarkennara. Umsjónarkennari í 1. bekk sendir út fundarboð í vikunni 17. -21. ágúst. Miðvikudagur 26. ágúst: Skóli hefst samkvæmt stundatöflu hjá 2. - 10. bekk. 1. bekkur mætir á eftirfarandi tímum í skólann: 1. ALS kl. 8:30 1. SEÁ kl. 8:40 1. ULI kl. 8:50 Er þetta til að takmarka umferð foreldra sem líklega fylgja börnunum sínum í skólann fyrsta daginn, við mælumst til þess að aðeins eitt foreldri fylgi barni sínu og fylgi því ekki inn í stofur heldur aðeins í andyri. Nemendur í 1. bekk mæta svo á skólasetningu á sal kl. 9:00. Nýir nemendur í 2. -10. bekk geta komið í heimsókn í skólann mánudaginn 24, ágúst, skoðað skólann og hitt umsjónarkennara. Gott að vera í sambandi við skólastjórnendur varðandi tímasetningar.
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir. Forsíðumynd: Bjarni Sigurðsson.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
Tökum við umsóknum í fjarnám til og með 22. ágúst
Kennsla hefst 24. ágúst Innritun er á netinu og skráning er hér: https://umsokn.inna.is/#!/apply Hægt er að velja mjög fjölbreytt nám. Nám í íslensku, ritun og tjáningu, skapandi skrifum, lestri fagurbókmennta, dönsku, ensku, enskum bókmenntum, spænsku, stærðfræði, sögu, sálfræði, þroskasálfræði, náttúruvísindi, líffræði, efnafræði, jarðfræði, félagsvísindi, fjölmiðlafræði og kynjafræði. Við bjóðum upp á áfanga sem eru ætlaðir til að styrkja grunninn fyrir háskólanám þetta eru áfangar í ensku, stæðfræði, verkefnagerð, félagsvísindum og raungreinum.
Stefnir þú á háskólanám en þarft aðeins að rifja upp: Mælum með að þú takir ENSK3UH05 og LOKA3VE03, síðan fer það eftir hvaða háskólanám þú ætlar í hvaða áfangar nýtast best en við erum með áfanga í stærðfræði, félagsvísindum, sálfræði, efnafræði. Hægt er að bæta fáeinum nemendum við í grunndeild rafiðna og vélstjórn. Innritun er hér: https://www.inna.is/framhaldsskolaumsokn/
FÍV í 40 ár
/fiv79
/framhaldsskolinnivestmannaeyjum/
ÞREYT TUR Á ÞVÍ AÐ VERA ÞREYTTUR
Arnar Richardsson greindist með covid19 22. mars síðastliðinn og endaði á að vera fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur 30. mars þar sem hann var lagður inn á deild A7, sem er deild fyrir Covid-19 sjúklinga. “Að liggja inn á Landspítalanum á deild A7 er lífsreynsla sem maður gleymir seint. “ segir Arnar. En Tígull fékk að spyrja hann út í veikindin. Nafn, fjölskylda og aldur: Arnar Richardsson 46 ára, eiginmaður, 4 barna faðir og afi. Hvenær greindist þú? Ég greinist 22. mars. Hvernig grunaði þig að þú værir smitaður? Ég var alveg viss þegar ég missti bragð og lyktarskyn. Hvernig lýstu veikin sér hjá þér? Mjög mikill þurr hósti, hár hiti, verkir og ónot í öndunarvegi, lungnabólga
og mjög mikil þreyta. Til dæmis gat ég varla komið upp orði í viku. Varstu við fulla heilsu þegar þú greindist? Ég var í fínu Metabolic formi og var duglegur að æfa og hlaupa. T.d. hljóp ég 12 km 10 dögum fyrir veikindi og réri 5 km 2 dögum fyrir veikindin. Hvað varstu lengi veikur? Veikindin vöruðu í 5 vikur, þar af 5 dagar á sjúkrahúsi. Hvernig ertu í dag 4 mánuðum eftir útskrift? Ég á ennþá töluvert í land, ég er í raun Þreyttur á því að vera þreyttur og á erfitt með að koma mér í fyrra stand. Ef ég geri of mikið þá kemur bakslag og ég virðist vera lengur að ná fyrri styrk. Hvað viltu ráðleggja fólki sem var að greinast? Farið eftir leiðbeiningum og passið að smita ekki út frá ykkur. Annars er
erfitt að gefa ráðleggingar þar sem veikindin geta verið svo mismunandi á milli einstaklinga. Hvað viltu ráðleggja fólki sem tekur þessu ekki full alvarlega ? Engin veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Þú gerir lítið þegar heilsan er farin, þessi vírus getur dregið þig til dauða. Hvernig leið þér þegar þú fékkst jákvæða niðurstöðu út testinu? Ekki vel enda fárveikur. Vildi helst bara sofa þetta úr mér. Gerðir þú þér grein fyrir alvarleikanum þá ? Já og miðað við fréttaflutninginn af ástandinu á þeim tíma þá var ég í raun mjög hræddur við veikindin.
HVAÐ ER JÖFNUNARSTYRKUR? Jöfnunarstyrkur (áður dreifbýlisstyrkur) er námsstyrkur fyrir nemendur sem stunda nám á framhaldsskólastigi fjarri lögheimili og fjölskyldu. Fjarnám er ekki styrkhæft. Dreifnám er aðeins styrkhæft ef nemendur þurfa að koma í skólann a.m.k. 50% af dagafjölda nemenda sem stunda dagsskóla. Lögheimili má ekki vera í nágrenni við skóla (sjá nánar töflu sem skilgreinir hvaða póstnúmer teljast vera í nágrenni skóla). Námið verður að vera að lágmarki eins árs skipulagt nám við skóla sem falla undir lög um framhaldsskóla/menntaskóla. Styrkurinn skiptist í akstursstyrk og dvalarstyrk. Akstursstyrkur – er ætlaður þeim nemendum sem sækja skólann frá lögheimili þ.e. keyra daglega í skólann frá lögheimili sínu. Einnig er hann fyrir þá sem búa ekki í foreldrahúsum en geta ekki sýnt fram á leigugreiðslur. Dvalarstyrkur – er fyrir þá nemendur sem flytja a.m.k. 30 km frá lögheimili sínu og fjölskyldu til að geta stundað nám þ.e. þeir sem eru á heimavist og/eða greiða leigu.
Umsókn um jöfnunarstyrk á haustönn 2020 opnar frá og með 1. september til og með 15. október 2020 en til 15. febrúar á vorönn. Nemendur geta sótt um jöfnunarstyrk í gegnum island.is, sjá Mitt Lán. Berist umsókn hins vegar eftir að frestur rennur út, þ.e.a.s. eftir 15. október og 15. febrúar skerðist styrkurinn frá og með 1. nóvember og 1. mars um 15%. Ekki er hægt að sækja um námsstyrk eftir að fjórir mánuðir eru liðnir frá umsóknarfresti. Hverjir eiga rétt á jöfnunarstyrk? Nemendur á framhaldsskólastigi sem stunda reglubundið nám fjarri heimahögum og fjölskyldu geta átt rétt á jöfnunarstyrk. Nemandi telst stunda reglubundið nám hafi hann gengið til prófs í a.m.k. 20 FEIN einingum á önn (12 skólaeiningum). Námsmenn í sérnámi/iðnnámi geta átt rétt á bæði námslánum og jöfnunarstyrk. Námsmaður getur þó ekki fengið hvoru tveggja, jöfnunarstyrk og námslán á sömu önn. Nemendur í launuðu starfsnámi eiga ekki rétt á jöfnunarstyrk.
Háskólanemar eiga ekki rétt á jöfnunarstyrk að undanskildum þeim sem stunda nám í frumgreinadeildum. Tengsl við lögheimili Nemendur verða að hafa tengsl við lögheimili sitt. Með tengslum við lögheimili er átt við t.d. að fjölskylda námsmanns búi á staðnum, að námsmaður sé þar með þinglýstan leigusamning eða eigi fasteign þar skv. fasteignavottorði. Með fjölskyldu er átt við foreldra nemanda eða forráðamenn, maka samkvæmt hjúskap eða skráðri sambúð í þjóðskrá og/eða börn nemanda. Réttarstaða allra umsækjanda miðast við lögheimili eins og það er skráð í þjóðskrá þann dag sem auglýstur umsóknarfrestur rennur út. Upphæðir og útborganir Á námsárinu 2018-2019 er upphæð dvalarstyrks 154.000 kr. og akstursstyrks 88.000 kr. á önn. Styrkirnir eru greiddir út eftir hverja önn í janúar og júní þegar skólarnir hafa staðfest námsárangur annarinnar. Styrkurinn er greiddur inn á bankareikning námsmanns sem verður að vera á hans nafni.
MIÐSTÖÐIN
HREINSIEFNI FYRIR HEITA POTTINN
Aqua Finesse Hot Tub hreinsiefni Aqua Finesse hreinsiefnið er milt og einfalt í notkun.
Við fylgjum almannavörnum og minnum viðskiptavini okkar á að fylgja 2JA metra reglunni
Kemur í veg fyrir myndun lífhimnu á skel og í lögnum og búnaði, vatnið verður tærara og mýkra. Sérlega árangursríkt umhverfisvænt efni. Hentar í allar gerðir rafmagnspotta.
- ALLT FYRIR HEITA POTTINN
Strandvegur 30 / 481 1475 / www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is
GRÆNN DRYKKUR & HOLLUSTUBITAR - Uppskrift vikunnar -
Snickers hollustubitar - sykurlausir Hráefni: 150g döðlur 100g Olio Nitti hvítar möndlur og 6-7 stk í viðbót til skreytingar 3 msk hnetusmjör 2 tsk hlynsíróp eða Erythrol 1 msk kókosolía 60g dökkt suðusúkkulaði Til að gera bitana alveg sykurlausa má nota sykurlaust dökkt súkkulaði og setja 5 dropa af stevíu. Aðferð: Setja í blandara döðlur og saxa vel. Bæta við möndlum, hnetusmjöri og sætuefni og blanda vel saman, má vera gróft.
Setja í lítið ferkantað form sem klætt er með smjörpappír í botninn eða plasfilmu. Þjappa vel í botninn svo myndist ca. 1-2 cm lag. (fer eftir stærð formsins) Kæla í ísskáp í 30 mín. Bræða súkkulaði með kókosolíu. Hella yfir og gjarnan hella yfir smá kurli af möndlunum og geyma aftur í kæli þar til súkkulaðið hefur harnað og þá má skera í bita. Grænn hollustudrykkur Næringarríkur og stútfullur af vítamínum: Fyrir 2-3
Hráefni: 2 appelsínur 1/2 dl mangó 1/2 dl krækiber 2 döðlur 1 sellerí stilkur 3 cm engifer smá bútur af turmerik 1 gúrka steinselja grænkál spínat 1 tsk maca duft 1 tsk hveitigras Allt í blandara og hellt í glas með klökum.
VORUM AÐ TAKA UPP GLÆSILEGAR HAUSTVÖRUR
70% AFSLÁTTUR
AF HERRAVÖRUM - ALLT Á AÐ SELJAST
/smarteyjan #smarteyjan smarteyjan
SUDOKU
Frumherji verður í Eyjum vikuna 24. - 27. ágúst. Tímapantarnir í síma 570 9090. Staðsettur við Faxastíg í húsi Björgunarsveitarfélagsins.
Frumherji Faxastígur / 570 9231
ORÐAÞRAUT
JAKKI BUXUR HETTUPEYSA GALLASKYRTA SOKKAR STUTTERMABOLUR SKÓR PILS KJÓLL JAKKAFÖT
/Eyjaþrif
Alþrif / Hraðþrif að utan / djúphreinsun o.fl
Á AÐ SKORA Á FÉLAGANA?
KOMDU OG KÍKTU VIÐ! MÁN - ÞRI - MIÐ OPIÐ FRÁ 17:00 - 23:00 FIM - FÖS - LAU - SUN OPIÐ FRÁ 16:00 - 23:00
Hönnun / umbrot á auglýsingaefni / greinaskrif Bæklingar - vefbanner - fréttabréf - auglýsingasala ljósmyndun - ársreikningar o.fl. leturstofan@leturstofan.is
Viltu auglýsa fyrirtækið þitt eða koma greinum á framfæri? Sendu okkur á netfangið: tigull@tigull.is
/crispus
FIMMTÍU FIMMTÍU ÁR ÁR
Opnum 9, 10 eða 11 fer eftir pöntunum og erum til 18:00 virka daga. Hægt að panta í síma 772-6766 eða senda skilaboð á facebookinu okkar.
FIMMTÍU FIMMTÍU PRÓSENT PRÓSENT 50% 50% afsláttur afsláttur af af öllum öllum flugsætum í allt flugsætum í allt sumar sumar –– bókað bókað áá ernir.is ernir.is
Tannlæknar 1. - 4. september - Hjalti Þórðarson
Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40
Tímapantanir í síma 481-2772
Endurgreiðsla einu sinni á ári Á hverju ári geta tjónlausir viðskiptavinir okkar fengið endurgreiðslu. Útibú Vestmannaeyjum 440 2480 | sudurland@sjova.is