Tígull 26. tbl 05. árg.

Page 1

26. tbl. 05. árg. 23. - 29. ágúst 2023

VESTMANNAEYJABÆR HEIÐURSGESTUR Á MENNINGARNÓTT SÍÐASTLIÐNA HELGI

Báðar tengjast sýningarnar eldgosinu á Heimaey árið 1973.

Stærsta afmælis- og borgarhátíð Reykjavíkur Menningarnótt var haldin síðastliðinn laugardag. Segja má að hátíðin sé hápunktur sumarsins þar sem skemmtilegir viðburðir lita mannlífið í miðborginni frá morgni til kvölds. Hátíðin er fyrir alla borgarbúa og gesti sem vilja taka þátt í hátíðinni og skemmta sér.

Á Menningarnótt Reykjavíkur var Vestmannaeyjabær heiðursgestur. Vestmannaeyjabær var valinn af borgarráði Reykjavíkur sem heiðursgestur að þessu sinni í tilefni af 50 ára goslokaafmæli á árinu 2023 og langvarandi vinatengslum milli bæjarfélaganna.

Það er mikill heiður og sönn ánægja fyrir Vestmannaeyjabæ að vera heiðursgestur hátíðarinnar.

Menningarnótt var haldin í fyrsta sinn árið 1996 og hefur frá upphafi skipað mikilvægan sess í viðburðahaldi í borginni þar sem listafólk, íbúar og rekstraraðilar fá tækifæri til að bjóða til veislu í miðborginni. Vestmannaeyjabær hafði í samstarfi

TÍGULL

DREIFING:

við Reykjavíkurborg og fleiri aðila, undirbúið glæsilega dagskrá, um viðburði sem tengjast bæði gosinu á Heimaey árið 1973 og hinni alkunnu Þjóðhátíð sem haldin er ár hvert í Eyjum.

Í Tjarnarsal Ráðhússins var komið fyrir hvítu þjóðhátíðartjaldi og boðið upp á ekta Eyjastemningu á vegum ÁtVR (Átthagafélags Vestmannaeyinga á Reykjavíkursvæðinu) ásamt léttum veitingum. Auk þess var fjöldahjálparmiðstöð Rauða krossins á staðnum, en Rauði krossinn skipaði stórt hlutverk í björgunarferlinu meðan á Heimaeyjargosinu stóð. Þá voru ljósmyndir af liðnum Þjóðhátíðum og lifandi myndir úr Heimaeyjargosinu rúllað á stórum skjám ásamt því sem tveimur stórum vikursúlum voru stillt upp á staðnum til að sýna á lifandi hátt hversu gríðarlegt öskumagn settist yfir Vestmannaeyjabæ.

Tvær sýningar voru í Hafnartorgi Gallery: Til hafnar og Við gosið.

Til Hafnar, þar sem minnst er siglingar bátanna frá Vestmannaeyjum hina örlagaríku nótt er eldgosið á Heimaey hófst. Hvorki fyrr né síðar hafa Vestmannaeyingar verið fluttir yfir hafið líkt og gert var aðfararnótt 23. janúar 1973. Allt að 80 skip og áhafnir sigldu með tæplega fimm þúsund íbúa til hafnar í Þorlákshöfn undir drunum og birtu frá eldgosinu á Heimaey. Þessa nótt urðu bátarnir líflína bæjarbúa. Á sýningunni hverfist sjóndeildarhringurinn um bátana og endurskapar þá sýn sem við höfum af hafinu og siglingum.

Sýningarstjórar: Joe Keys og Vala Pálsdóttir

Ávörp héldu Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja.

Við gosið, ljósmyndasýning Sigurgeirs Jónassonar, verður í Hafnartorg Gallery. Sigurgeir myndaði gosið frá upphafi þess og þar til því lauk í júlí 1973. Um er að ræða valdar ljósmyndir Sigurgeirs af gosinu, þ.á.m. hina þekktu mynd af Landakirkju með eldhafið í baksýn. Það er vandasamt verk að velja úr safni Sigurgeirs, en eldgosamyndir hans hlaupa á þúsundum. Sýningin verður aðgengileg á opnunartímum Hafnartorgs Gallery fram til 3. september n.k.

Sýningarstjóri: Vala Pálsdóttir

Ljósmyndir frá hátíðinni eftir Adda í London má sjá í blaðinu.

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

Forsíðumynd: Addi í London

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

ÚTGÁFA:

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

Þú finnur réttu fartölvuna í skólann á tolvutek.is
Skólafartölvur Verð frá
Allar fartölvur um land allt ALLT AÐ 50% AFSLÁTTUR AFFARTÖLVUTÖSKUM 23. ágúst 2023 • B i r t me ð fyri r v a r a u m br eyti n ga ,r in n slátta r vill u r og m y n da br e ng l
39.990
SENDUM FRÍTT

LJÓSMYNDIR EFTIR ADDA Í LONDON FRÁ MENNINGARNÓTT REYKJAVÍKUR

Vel var mætt á hátíðina. Íris Róbertsdóttir og Erna Georgsdóttir. Laufey Jörgensdóttir kynnti Þjóðhátíðarbókina sína. Elva Ólafdóttir las uppúr dagbók móður sinnar. Kristín Halldórsdóttir og Sæþór Vídó fluttu eyjalög. Ragga, Sigrún, Villi og Siggi. Kári Bjarnason. Gunnar Júlíusson og Guðrún Kristín Sigurgeirsdóttir. Júníus Meyvant ásamt sínum mönnum. Magnús, Nonni og Kata Laufey létu sig ekki vanta. Magga Run, Stína Run, María Guðmunds, Rúnar Ingi og Stefán. Góð stemning í hvíta tjaldinu. Guðrún og Óla Heiða. Jóhanna Hermansen og Margrét Klara Jóhannsdóttir. Dagur B. Eggertsson flutti ávarp. Íris Róbertsdóttir.
ÞRAUTIR POPP BÍÓ KVIKMYND SKEMMTUN AFÞREYING GAMAN SAMVERA KÓK NAMMI KÓSÝ

Járniðnaðarmaður

Vélaverkstæðið Þór óskar eftir að ráða vanan járniðnaðarmann í fullt starf.

Starfið felur í sér almenna málmsmíði og þjónustu við iðnaðinn.

Hæfniskröfur:

- Menntun/reynsla af málmsmíði og véltækni

- Nákvæm, sjálfstæð og fagleg vinnubrögð

- Góð samskiptahæfni, stundvísi og frumkvæði í starfi.

- Reynsla af rennismíð kostur

Upplýsingar veita:

Haraldur Guðbrandsson, verkstjóri 868-4550 halli@velathor.is

Sævald Páll Hallgrímsson, framkvæmdarstjóri 898-7567 saevald@velathor.is

Umsóknarfrestur til og með 31. ágúst 2023

UPPSKRIFT VIKUNNAR

Hnetusteik

Hráefni:

Góð olía til steikingar

1 laukur

100 g sæt kartafla, skræld

100 g sellerírót, skræld

2 msk tómatmauk

1 msk timjan

1 msk karrý

chilli af hnífsoddi hálf msk sjávarsalt eða Herbamare

100 g soðnar og skrældar kartöflur

150 g soðin hýðisgrjón

100 g kasjúhnetur

100 g heslihnetur

Raspur: 50 g sesamfræ

Aðferð:

Saxið laukinn og rífa niður sætu kartöfluna og sellerírótina. Steikið á pönnu ásamt tómatmauki og kryddi, látið malla í 20 mín. Leyfið að kólna. Ristið og malið hneturnar. Stappið kartöflurnar saman við hýðisgrjónin, bætið síðan við tómatblöndunni af pönnunni og hnetunum. Hrærið vel saman. Hægt er að nota hrærivél eða handaflið og nota víða og góða skál.

Því næst þarf að móta hleif úr deiginu. Sturta deiginu í form og nota það til að hjálpa við að forma hleifinn, en síðan kippa hleifinum upp úr forminu og baka á bökunarpappír.

Veltið hleifinum upp úr sesamfræjum til að mynda rasp. Bakið við 200°C í 30-40 mínútur, passið að hafa hleifinn ekki of lengi í ofninum svo hann þorni ekki.

Það sem er gott við hnetusteikina er að hægt er að útbúa hana tímanlega og frysta.

Hugmynd að meðlæti með hnetusteikinni: Brúnaðar kartöflur, sveppasósa, rauðkál og grænum baunum. Einnig er gott að hafa Waldorf salat, sætkartöflumús eða ferskt gulrótasalat.

STARFSFÓLK ÓSKAST Í FRÍSTUND HAMARSSKÓLA

NÆSTA VETUR

Frístundaverið óskar eftir að ráða frístundaleiðbeinanda fyrir veturinn 2023-2024

Helstu verkefni:

Vinna með börnum

Almenn umönnun barna

Fylgd á íþróttaæfingar

Hjálpar til að móta og framvæma dagskrá

Aðstoð við síðdegishressing

Frístundaleiðbeinandi Frístundaverið í Hamarsskóla óskar eftir því að ráða frístundaleiðbeinanda í 37,5 – 50% stöðu. Vinnutími er að jafnaði eftir hádegi á virkum dögum. Frá 13:0016:00/16:30. Á sumrin vinnur starfsmaður í sumarfjörinu frá 09:00-16:00 á daginn og hækkar starfshlutfall eftir því.

Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, ábyrgur, áhugasamur, lipur í samskiptum og tilbúin í samstarf með velferð og þroska nemenda að leiðarljósi. Reynsla af vinnu með börnum er æskileg.

Starfsmenn þurfa að geta hafið störf 15.ágúst. Frístundarverið er staðsett í Hamarsskóla og er starfrækt eftir hádegi

alla virka skóladaga frá því að skóla lýkur og til 16:30. Einnig er opið á Frístund flesta daga þegar skólinn er lokaður frá 07:45-16:30. Starfsmenn koma til með að vinna í sumarfjörinu á sumrin.

Um er að ræða tvær stöður frístundaleiðbeinanda. Umsóknarfrestur er til 25.

Nánari upplýsingar um starfið má nálgast hjá Önnu Rós Hallgrímsdóttur skólastjóra GRV á netfangið: annaros@grv.is eða Sigþóri Erni Valgeirssyni núverandi forstöðumanni frístundar á netfangið: sigthor@vestmannaeyjar.is.

Umsókn sendist á annaros@grv.is eða með rafrænum hætti í gegnum heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri og að hafa hreint sakavottorð. Umsókn skal fylgja ferilskrá og rökstuðningur af hverju viðkomandi sækist eftir starfinu.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stavey/Drífanda.

ágúst 2023
Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.

Auglýsingasími

Tíguls: 481-1161

tigull@tigull.is

Aðalfundur

Aðalfundur Verkstjóra og stjórnendafélags

Vestmannaeyja verður haldinn föstudaginn

8. september kl. 19:00

í Leo Seafood.

Almenn fundarstörf

Kosning nýrrar stjórnar

Léttar veitingar

Stjórn Verkstjóra- og stjórnendafélags

Vestmannaeyja

Opnunartímar:

Mánudagur 13.00 - 17.30

Þriðjudagur - 13.00 til 17.30

Miðvikudagur - 13.00 til 17.30

Fimmtudagur - 13.00 til 17.30

Föstudagur - 13.00 til 17.30

Laugardagur - 12.00 til 15.00

Sunnudagur - lokað

Fundir eru sem hér segir: Sunnudaga kl. 11.00

Miðvikudaga kl 20.30

AL-ANON

Þriðjudaga kl. 20.30

NÝLIÐAR VELKOMNIR HÁLFTÍMA FYRIR FUNDI

NÝJA

TANNLÆKNASTOFAN

Flötum 29

Tímapantanir í síma: 481-1012

Passamyndir

Fasteignaljósmyndun

Bókið tíma á facebook.com/thoreyljosmyndari eða á netfangi thoreyhh19@gmail.com

Neyðarsíminn: 844-5012

tannsi@eyjar.is

HÁGÆÐA VINNUFÖT FÁST HJÁ OKKUR HÆGT ER AÐ ÚTVEGA ALLSKONAR KLÆÐNAÐ Í HINUM ÝMSU STÆRÐUM Strandvegur 30 / 481 1475 www.midstodin.is / midstodin@midstodin.is

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Tígull 26. tbl 05. árg. by Leturstofan - Issuu