Skip to main content

Tígull 26.tbl 04 árg.

Page 1

26. tbl. 04. árg. 10. - 16. ágúst 2022


HÁTÍÐIN FER Á TOPP FIMM Eins og alþjóð veit fór Þjóðhátíð Vestmannaeyja fram dagana 29.31. júlí síðastliðinn. Hörður Orri Grettisson, formaður Þjóðhátíðarnefndar sagði, í samtali við Tígul, hátíðina hafa gengið mjög vel og farið að langmestu leyti vel fram. „Veðrið var okkur hliðhollt og hátíðin var vel sótt. Það sást í andlitum gesta hátíðarinnar að fólk hafði saknað hennar og fólk var mætt til að skemmta sér og öðrum,“ sagi Hörður Orri og bætti við. „Þakklæti og stolt er auðvita ofarlega í huga mínum eftir svo vel heppnaða hátíð. Það er meira en að segja það að halda fjölmennustu útihátíð landsins ár eftir ár og til þess þarf margt að spila saman. Ég vill koma á framfæri kærum þökkum til allra gesta, sjálboðaliða, starfsmanna hátíðarinnar, viðbragðasaðila og ekki síst til Eyjamanna því án framlags frá þessum aðilum væri hátíðin ekki eins glæsileg og raunin er. Takk.“

TÍGULL

Aðspurður um aðsókn sagði hann þetta á pari við fyrri hátíðir. „Þetta var Þjóðhátíð eins og við þekkjum seinustu árin fyrir Covid, bæði hvað varðar fjölda og framkvæmd. Skipulagið er í föstum skorðum og við vitum hvað virkar og hvað ekki. Alltaf er eitthvað í skipulaginu sem má betur fara og verður það lagað og gert betur að ári. Lokatölur um fjölda liggja ekki fyrir en ljóst að hún fer á topp fimm yfir þær fjölmennustu hingað til.“ Á síðasta ári þegar hátíðin mátti ekki fara fram var gripið til þess ráðs að senda lifandi streymi með skemmtun og brekkusöng á sviðinu í Herjólfsdal. Þótti þetta heppnast vel og var því ákveðið að endurtaka leikinn í ár. „Við fórum í samstarfsverkefni við Senu í fyrra með að streyma brekkusöngnum, það gekk mjög vel þá og aftur núna. Þetta er aukaafurð af Þjóðhátíðinni sem þarf ekki mikinn

aukakostnað af hálfu félagsins og er komið til að vera,“ sagði Hörður Orri hýr á brá. Hörður Orri er í þeirri einstöku stöðu að vera einnig framkvæmdarstjóri Herjólfs ohf. Það var því í nógu að snúast hjá honum áfram eftir að hátíðin kláraðist. „Það gekk mjög vel að koma fólki heim, farþegar stóðu þolinmóðir í röð og voru kurteisir í hvívetna. Fullt var í allar ferðir bæði mánudag og þriðjudag, sigld var aukaferð um miðnætti á þriðjudag til að bregðast við eftirspurn,“ sagi Hörður. „Ég vill líka nota tækifærið hér til að hrósa og þakka starfsfólki Herjólfs ohf. sem staðið hefur vaktina.Þau eiga öll sem eitt heiður skilinn fyrir dugnað og ósérhlífni við það að halda uppi þeirri öflugu þjónustu sem við viljum veita,“ sagði Hörður Orri Grettisson að lokum.

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó. Forsíðumynd: Bent Marínóson.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


HÁGÆÐA VINNUFÖT FÁST HJÁ OKKUR HÆGT ER AÐ ÚTVEGA ALLSKONAR KLÆÐNAÐ Í HINUM ÝMSU STÆRÐUM

Strandvegur 30 / 481 1475 www.midstodin.is / midstodin@midstodin.is


ÞJÓÐHÁTÍÐ ER MIKIÐ KONFEKT FYRIR AUGAÐ Ljósmyndarinn Bent Marinósson tók þessar frábæru myndir, hér og á forsíðunni, sem gefa okkur innsýn í líf brennupeyjanna á nýliðinni Þjóðhátíð. Við heyrðum aðeins í kappanum sem reyndist hafa sterk tengsl til Eyja. „Ég á góða vini hér í Eyjum sem mér þykir afar vænt um. Ég hef alltaf haft sterkar taugar til Eyja. Afi minn réri til sjós í Eyjum ásamt ættmönnum hans úr Þykkvabæ. Mér skilst að ég eigi eitthvað af ættingjum hér í Eyjum og væri gaman að kynnast þeim betur.“ Aðspurður um nýliðna hátið fannst honum hún afar vel heppnuð. „Það var greinilegt að fólk var orðið þyrst í Þjóðhátíð eftir tveggja ára hlé. Þjóðhátíðarnefnd á heiður skilið fyrir góðan undirbúning og gott starf. Eyjamenn eru engir líkir, á Þjóðhátíð eru allir vinir,“ sagði Bent í samtali við Tígul. Kominn heim Þetta var þó langt frá því fyrsta hátíð Bents. „Ég fann það strax á minni fyrstu Þjóðhátíð að ég væri kominn „heim“. Ég hætti að telja eftir Þjóðhátíð númer 10 en ég býst við að þessi í ár sé sú fimmtánda hjá mér, ýmist sem gestur eða að vinna. Mér finnst hver Þjóðhátíð ólík annari og alltaf jafn gaman, ég á mikið af góðum minningum af Þjóðhátíð,“ sagði Bent. „Fyrir mig er Þjóðhátíð svo mikið konfekt fyrir augað að það er skemmtilegt myndefni hvert sem maður lítur. Allt hefur sinn sjarma. Mér finnst mannlífið einna skemmtilegast að mynda, það ríkir almennt svo góð stemming í Dalnum og allir glaðir. Fyrir mig persónulega þá lengist Þjóðhátíðin með myndunum sem ég tek, við það að fara í gegnum myndirnar þá hálfpartinn endurupplifir maður stundirnar þegar myndirnar voru teknar. Það er margföld gleði sem fellst í því,“ sagði Bent að lokum.


HVÍTINGAVEGUR

LÓÐIR LAUSAR TIL UMSÓKNAR Vestmannaeyjabær auglýsir lausar til umsóknar lóðir við Hvítingaveg 7-13 og Skólaveg 21c. Um er að ræða 4 lóðir fyrir einbýlishús við Hvítingaveg og eina lóð fyrir einbýli eða tvíbýli á reit bakvið Alþýðuhús. Eftirfarandi verð er sett á lóðirnar: Skólavegur 21c, samtals 2 m.kr. Hvítingavegur 7 og 9, samtals 5 m.kr.. Hvítingavegur 11 og 13, samtals 4 m.kr. Einungis er um að ræða byggingarétt. Önnur gjöld sem almennt falla til við úthlutun lóða og byggingarleyfis, eru ekki innifalin í tillögunum. Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2022. Nánari gögn má finna á vef Vestmannaeyjabæjar. https://www.vestmannaeyjar.is/mannlif/frettir/vestmannaeyjabaer-auglysirlausar-til-umsoknar-lodir-vid-hvitingaveg-7-13-og-skolaveg-21c


HRYGGSKEKKJA

Hryggskekkja er þegar finna má óeðlilega sveigju á hrygg einstaklings frá einni hlið til annarrar. Hryggurinn getur þá verið í laginu eins og C eða jafnvel S. Algengt er að hryggskekkja komi fram snemma hjá einstaklingum en hjá börnum og unglingum er hún oft einkennalaus. Engu að síður er algengt að hún myndist þegar börn vaxa hratt. Hryggskekkja er algengari hjá stelpum en strákum. Mikilvægt er að leita til fagaðila þegar kemur að hryggskekkju. Fólk með væga hryggskekkju gæti aðeins þurft að vera í eftirliti hjá fagaðila með það hvort ferillinn versni en stundum þarf að grípa inn í snemma. Uppgötvun snemma á hryggskekkju er lykillinn að leiðréttingu og á áframhaldandi forvarnarstarfi. Mjög slæm hryggskekkja getur leitt af sér skurðaðgerð. Hryggskekkja getur verið meðfædd, áunnin eða jafnvel stafað af óþekktum orsökum. Áunnin hryggskekkja getur til dæmis myndast við slæma líkamsstöðu, ranga beitingu á líkama við vinnu, við fall eða við slys. Hryggskekkja getur einnig stafað vegna taugavandamála eða hrörnunar.

Einkenni og orsakir hryggskekkju Einkenni hryggskekkju geta bæði verið sýnileg og ekki. Til dæmis getur hryggskekkja verið sjáanleg þegar axlir eru ójafnar og/eða mitti og mjaðmir. Ef hryggskekkja er mjög slæm er stundum hægt að sjá sýnilega sveigju á bakinu. Einnig getur annað herðablaðið staðið meira út eða verið hærra en hitt herðablaðið og rifbein staðið lengra út á annarri hlið líkamans en hinni. Einkenni sem ekki eru sjáanleg á líkama geta til dæmis verið öndunarörðugleikar, bakverkir, stirðleiki og fleira. Hryggskekkja getur leitt af sér mikla verki í líkamanum og þá oft í bakinu. Einnig getur myndast stífleiki í baki sem leiðir af sér verki og/eða dofa niður í fótleggi. Hryggskekkja getur einnig skapað þreytu vegna vöðvaspennu sem myndast í bakinu. Alvarleg tilfelli hryggskekkju geta haft slæm áhrif á öndun og hreyfigetu. Hvernig getur kírópraktík hjálpað Ef grunur er um hryggskekkju er mikilvægt að láta athuga hryggjarsúluna sem fyrst til þess að koma í veg fyrir frekari skaða.

Þegar kemur að hryggskekkju getur kírópraktísk nálgun aðstoðað. Eftir nákvæmar mælingar kírópraktors á hryggnum ákvarðar hann hvaða meðferðaráætlun sé viðeigandi fyrir hvert og eitt tilfelli. Í fyrsta tíma á Kírópraktorstöðinni eru teknar röntgenmyndir af hryggjarsúlunni, ef við á, þar sem hægt er að meta meðal annars hvort finna megi hryggskekkju, hvort annar fótur sé styttri en hinn eða snúning megi finna á mjöðmum og/eða spjaldhrygg. Í fyrsta tíma á Kírópraktorstöðinni eru einnig teknar líkamsstöðu myndir sem vega og meta líkamsstöðuna, meðal annars hvort að finna megi sjáanlega hryggskekkju. Hægt er að panta tíma í fyrstu heimsókn hjá okkur á Kírópraktorstöðinni í síma 588-8085, á netfangið kiro@kiro.is, á Facebook eða á Instagram (@kiropraktorstodin).


v

Framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar v

Vestmannaeyjabær auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs. Framkvæmdastjóri annast stjórnun sviðsins og fer með yfirumsjón með fasteignum í eigu bæjarins og framkvæmdum á vegum Vestmannaeyjabæjar. Framkvæmdastjóri heyrir undir bæjarstjóra í stjórnskipulagi Vestmannaeyjabæjar. Um er að ræða fullt starf á dagvinnutíma. Starfið er laust frá 15. september 2022.

Framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar

Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkoman stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfé

Umsóknarfrestur er til og með 19. ágúst 20

Upplýsingar um starfið veitir Angantýr Einars Vestmannaeyjabær auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasvi Helstu verkefni framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs. í síma 488 2000 eða með tölvupósti, • Stefnumótun og áætlanagerð fyrir og framkvæmdamál angantyr@vestmannaeyjar.is. Jafnframt ve Framkvæmdastjóri annast stjórnun sviðsins og ferumhverfismeð á vegum Vestmannaeyjabæjar, fjárhagsleg Geirlaug Jóhannsdóttir og Þórdís Sif Arnarsd yfirumsjón með fasteignum í eigu bæjarins og þ.m.t. framkvæmdum á áætlanagerð ráðgjafar hjá Hagvangi, upplýsingar um starfi vegum Vestmannaeyjabæjar. Framkvæmdastjóri undir • Stjórnun og rekstur umhverfis- og heyrir framkvæmdasviðs, þ.m.t.Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi símaíslenskra 520 4700. bæjarstjóra í mannaforráð stjórnskipulagi Vestmannaeyjabæjar. Um er að stéttarfélags og Sambands sveitarfélaga. ræða fullt starf á dagvinnutíma. Starfið er laust umsókn skal 2022. fylgja menntunar- og Umsóknarfrestur er tilMeð og með 19. ágúst • Yfirumsjón með fasteignum í eigufrábæjarfélagsins 15. september 2022. starfsferilskrá. • Yfirumsjón með framkvæmdum á vegum bæjarins, þ.m.t útboð á

Framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar

skulu berast rafrænt á vefpóstinn Upplýsingar um starfið Umsóknir veitir Angantýr Einarsson, framkvæmdastjóri stjórnsýsluog fjármálasviðs hagvangur@hagvangur.is og merktar í síma 488 2000 eða með tölvupósti, Framkvæmdastjóri annast stjórnun sviðsins og fer með „framkvæmdastjóri umhverfis- og • Stefnumótun og áætlanagerð fyrir umhverfisog framkvæmdamál • Ábyrgð á skipulagsmálum í samstarfi við skipulagsfulltrúa yfirumsjón með fasteignum í eigu bæjarins og framkvæmdum á angantyr@vestmannaeyjar.is. Jafnframt veita þær framkvæmdasviðs“. vegum Vestmannaeyjabæjar. Framkvæmdastjóri heyrir undir á vegum•Vestmannaeyjabæjar, þ.m.t. fjárhagsleg áætlanagerð Laun Geirlaug eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi Jóhannsdóttir og Þórdís Sif Arnarsdóttir, Ábyrgð á byggingarmálum í samstarfi við byggingarfulltrúa bæjarstjóra í stjórnskipulagi Vestmannaeyjabæjar. Um er að stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Með vísan umí jafna stöðu og jafnan ré ráðgjafar hjá Hagvangi, upplýsingar til umlaga starfið • Stjórnun•ogÚtboð rekstur ogframkvæmdum framkvæmdasviðs, þ.m.t. ræða fullt starf á dagvinnutíma. Starfið er laust frá áumhverfisverklegum Umsóknarfrestur er til og með 19. ágúst 2022. kynjanna nr. 150/2020 og laga um kynrænt sj síma 520 4700. 15. september 2022. mannaforráð

framkvæmdum Vestmannaeyjabær auglýsir laust til umsóknar starf

framkvæmdastjóra umhverfisog framkvæmdasviðs. Helstu verkefni • Umsjón með gatna-, fráveitu og hreinlætismálum

80/2019,og eru allir áhugasamir einstaklingar Með umsókn skal fylgjanr. menntunarUpplýsingar um starfið veitir Angantýr Einarsson, • Yfirumsjón með fasteignum í eigu bæjarfélagsins kyni, hvattir til að sækja um starfið. framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs starfsferilskrá. Helstu verkefni • Yfirumsjón með framkvæmdum á vegum bæjarins, þ.m.t útboð á Menntunarog hæfniskröfur í síma 488 2000 eða með tölvupósti, • Stefnumótun og áætlanagerð fyrir umhverfis- og framkvæmdamál angantyr@vestmannaeyjar.is. Jafnframt veita þær Umsóknir skulu berast rafrænt á vefpóstinn verður svarað þegar ráðnin Öllum umsóknum framkvæmdum á vegum Vestmannaeyjabæjar, þ.m.t. fjárhagsleg áætlanagerð Geirlaug Jóhannsdóttir og Þórdís Sif Arnarsdóttir, • Háskólamenntun eða sambærileg menntun á sviði tæknigreina, hagvangur@hagvangur.is og merktar ráðgjafar hjá Hagvangi, upplýsingar umliggur starfið í fyrir. • Umsjón með gatna-, fráveitu og hreinlætismálum • Stjórnun og rekstur umhverfis- og framkvæmdasviðs, þ.m.t. síma „framkvæmdastjóri 520 4700. umhverfis- og svo sem verkfræði, tæknifræði eða vélfræði mannaforráð • Ábyrgð á skipulagsmálum í samstarfi við skipulagsfulltrúa Með umsókn skal fylgja menntunar- og framkvæmdasviðs“. • Yfirumsjón meðsamskiptahæfni fasteignum í eigu bæjarfélagsins Framúrskarandi er skilyrði starfsferilskrá. • Ábyrgð á•byggingarmálum í samstarfi við byggingarfulltrúa • Yfirumsjón með framkvæmdum á vegum bæjarins, þ.m.t útboð á Meðskulu vísan tilrafrænt laga um jafna stöðu og jafnan rétt berast á vefpóstinn Reynslaframkvæmdum af stjórnun og rekstri fyrirtækja, stofnana og/eðaUmsóknir • Útboð á •verklegum framkvæmdum hagvangur@hagvangur.is og merktar og laga um kynrænt sjálfræði kynjanna nr. 150/2020 • Umsjón með gatna-, fráveitu og hreinlætismálum

verkefnastjórnun „framkvæmdastjóri umhverfis- og nr. 80/2019, eru allir áhugasamir einstaklingar, óháðer um starfið • Ábyrgð á skipulagsmálum í samstarfi við skipulagsfulltrúa Sótt framkvæmdasviðs“. • Ábyrgð á byggingarmálum í samstarfi við byggingarfulltrúa kyni, hvattir til að sækja um starfið. • og Leiðtogahæfni og frumkvæði á hagvangur.is Með vísan til laga um jafna stöðu og jafnan rétt Menntunarhæfniskröfur • Útboð á verklegum framkvæmdum nr. 150/2020 og laga um kynrænt sjálfræði Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning • Skipulagshæfileikar, sveigjanleiki og lausnamiðuð nálgunkynjanna nr. 80/2019, eru allir áhugasamir einstaklingar, óháð • Háskólamenntun eða sambærileg menntun á sviði tæknigreina, liggurtil fyrir. kyni, hvattir að sækja um starfið. verkefna Menntunarog hæfniskröfur svo sem verkfræði, tæknifræði eða vélfræði Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning • Háskólamenntun eða menntun á sviði tæknigreina, • Góð samskiptahæfni tölvukunnátta ogsambærileg færni til að tileinka sér nýja hluti erliggur snerta fyrir. • Framúrskarandi er skilyrði svo sem verkfræði, tæknifræði eða vélfræði upplýsingatækni • Reynsla af stjórnun og rekstri fyrirtækja, stofnana • Framúrskarandi samskiptahæfni er skilyrði og/eða • Reynsla af stjórnun og rekstri fyrirtækja, stofnana og/eða verkefnastjórnun • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti Sótt er um starfið verkefnastjórnun Sótt er um starfið • Leiðtogahæfni og•frumkvæði Leiðtogahæfni og frumkvæði • Þekking á stjórnsýslu og þeim lögum og reglugerðum er varða á hagvangur.is á hagvangur.is • Skipulagshæfileikar, sveigjanleiki og lausnamiðuð nálgun • Skipulagshæfileikar, sveigjanleiki og fasteignalausnamiðuðog nálgun starfssvið umhverfis-, framkvæmdamála er kostur verkefna verkefna • Góð tölvukunnátta og færni til að tileinka sér nýja hluti er snerta upplýsingatækni • Góð tölvukunnátta og færni til að tileinka sér nýja hluti er snerta upplýsingatækni • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti • Þekking á stjórnsýslu og þeim lögum og reglugerðum er varða • Góð íslenskukunnátta í ræðu og ritifasteigna- og framkvæmdamála er kostur starfssvið umhverfis-, • Þekking á stjórnsýslu og þeim lögum og reglugerðum er varða starfssvið umhverfis-, fasteigna- og framkvæmdamála er kostur

hagvangur.is

hagvangur.is


VERKFÆRAKISTA NÁTTÚRULÆKNINGANNA HEFUR REYNST MÉR VEL ayurveda vísindunum þegar ég fæ fólk til mín í heilsuráðgjöf þar sem mér finnst þau fræði áhrifaríkari en ég nota þó hina vestrænu næringarþerapíu inn á milli í bland.“

Heiða Björk, næringarþerapisti og Ayurveda ráðgjafi verður á ferð í Eyjum sunnudaginn 28. ágúst nk. og ætlar að bjóða upp á Ayurveda dekur og fræðslu. Heiða Björk er ekki alveg ókunn Eyjunum enda fædd hér. „Ég flutti með foreldrunum í gosinu og var þá á sjötta ári. Við bjuggum á Suðurvegi sem nú er ca 15 metrum undir. Við snerum því ekki aftur, þar sem foreldrarnir misstu nær allt sitt,“ sagði Heiða í samtali við Tígul. „Við fluttum í viðlagasjóðshús frá Finnum í Mosfellsbæinn og þar ólst ég upp.“ Heiða Björk hefur verið í náttúrulækningum frá því um tvítug þegar hún tók að stúdera íslenskar lækningajurtir og mataræði. „Oft reyndist verkfærakista náttúrulækninganna mér mjög vel svo sem í glímunni við eyrnabólgur sonarins, þegar endalausir sýklalyfjakúrar höfðu ekki skilað neinu og átti að fara að setja rör í hann. Eða þegar ég sjálf fékk kinnholusýkingar trekk í trekk og sama var upp á teningnum með sýklalyfin. Þau virkuðu í skamman tíma og alltaf tók þetta sig upp aftur, þar til ég breytti mataræði og vann með höfuðbeina og spjaldhryggs meðferðaraðila. Þá loksins lagaðist ég,“ sagði Heiða og hélt áfram. „Eða þegar ég og barnsfaðir minn los-

uðum soninn við Tourette´s kippi og kæki með náttúrulækningum á aðeins 2 mánuðum með allsherjar breytingu á mataræði og lífsstíl. Svona gæti ég áfram talið. En, þar sem ég skrifaði greinar í blöðin um stórkostlegan árangur í glímunni við tourette´s fór fólk í sömu sporum að hafa samband við mig og leita eftir aðstoð. Mér leið ekki vel með að vera að stunda ráðgjöf allsendis ólærð í þessum fræðum og þannig æxlaðist það að ég fór að læra næringarþerapíu í 3 ár í skóla á Englandi. Lífið og tilviljanir urðu síðan til þess að ég fór að mennta mig í ayurveda lífsvísindunum sem eru eins og næringarþerapía á sterum. Mun umfangsmeira kerfi og áhrifaríkara þar sem það tekur inn í meðferðina meðfædda líkamsgerð hvers og eins og að auki er nálgunin heildrænni. En í ayurveda er litið á manninn sem líkama, huga og anda og er mikilvægt að hlúa að öllum þremur þáttunum.“ Ayurveda hefur ekki verið í boði á Íslandi fram til þessa. Þessi fræði voru fyrst þýdd á enska tungu fyrir um 30 árum og lítið er til af lesefni á íslensku. „Engir ayurveda læknar starfa á Íslandi og enginn praktiker en það er það nám sem ég er að ljúka núna,“ sagði Heiða. „Ég er farin að vinna meira út frá

Aðspurð segist Heiða lítið sem ekkert farið til Eyja eftir gos, fyrr en síðustu ár þegar stjúpmóðir hennar og bróðir fluttust bæði til Eyja með nokkurra ára millibili. „Því fannst mér það alveg tilvalið að slá tvær flugur í einu höggi, - kynna þessi stórkostlegu vísindi fyrir Eyjamönnum og hvernig hægt er að nota þau til að bæta heilsuna og næra ræturnar í leiðinni. Enda finnst mér alltaf jafn dásamlegt að koma til Eyjanna fögru.“ Þar sem Heiða mun dvelja í nokkra daga í heimsókn hjá bróður sínum segist hún geta tekið nokkra í ayurveda ráðgjöf daginn eftir námskeið ef einhver hefur áhuga. „Fyrsta heimsókn í ayurveda ráðgjöf er lengri og tekur 1,5 klst þar sem farið er yfir heilsufarssögu, tunga, augu og fleira er skoðað og leitað að rót ójafnvægisins ef um vanheilsu er að ræða. Til að ná líkamanum aftur í jafnvægi þarf að vinna á rótinni sem er gert með mataræði sem róar þau öfl sem eru komin úr böndunum, jurtum og lífsstíl s.s. leikfimi eða jóga æfingun, öndunaræfingum, hugleiðslu, hreyfingu úti í náttúrunni svo eitthvað sé nefnt. Fólk kemur síðan í endurkomu einum, tveimur eða þremur mánuðum síðar þar sem farið er yfir árangur og kúrsinn lagfærður ef ástæða er til og næstu skref ákveðin. Ég nota zoom talsvert til að taka fólk í ráðgjöf rafrænt og það hefur reynst vel. Fólk kemur til mín með margbreytileg vandamál eins og kulnun og orkuleysi, IBS meltingarvanda, hægðatregðu, lið- og vöðvaverki, kvíða, þunglyndi og allt mögulegt í rauninni sem getur verið að í andlegri eða líkamlegri heilsu,“ sagði Heiða Björk að lokum.


TILLAGA AÐ BREYT TU DEILISKIPULAGI MIÐBÆJAR VESTMANNAEYJA Reitur sem afmarkast af Miðstræti, Bárustíg, Vestmannabraut og Kirkjuveg. Auglýsing deiliskipulagstillögu fyrir breytingu á Deiliskipulagi miðbæjar Vestmannaeyja, auglýst skv. 1. Mgr. 43. Gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. Meðal annars er gert er ráð fyrir: • nýjum veg frá Vestmannabraut að Miðstræti, • stækkun viðbyggingar hótels við Vestmannabraut 28, • fjórum nýjum byggingum (hæð með risi), • nýjum almennum bílastæðum, ofl. Skipulagsgögn eru til sýnis hjá Umhverfis- og framkvæmdasviði Skildingavegi 5, frá og með 8. ágúst til og með 19. september 2022 og má einnig finna í skipulagsgátt á vefsíðu sveitafélagsins (http:// vestmannaeyjar.is/). Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér gögnin. Ábendingum við tillöguna skal skila skriflega til og með 19. september 2022 í afgreiðslu Umhverfis- og framkvæmdasviðs eða á netfangið dagny@vestmannaeyjar.is


Eldgosið í Meradölum

Sigurlaug Birna Leudóttir eða Silla Berg eins og margir þekkja hana ákvað að kíkja á eldgosið í Mera­ dölum um helgina. Tígull fékk að forvitnast aðeins um ferðalagið.

á óvart hvað erlendir ferðamenn hafa enga hugmynd um hvað þeir eru að koma sér út í, þar sem ég sá marga á jogging gallanum í strigaskóm.

kringum klukkutíma. Þess vegna er mikil vægt að vera í góðum skóm með öklastuðningi. Það er auðvelt að detta og snúa sig á þessum kafla.

„Það að sjá eldgos með berum augum er eitthvað sem gerist yfirleitt bara einu sinni á lífsleiðinni. Nema þú búir á Íslandi og færð að sjá, og upplifa, móður náttúru endurskapa sjálfa sig með eldgosum.

Þetta er ágætis ganga, 6 km aðra leið, og tekur um 2 klukkutíma að labba hvora leið. Þar af leiðandi ertu a.m.k. 4 klukkutíma úti í íslenskri náttúrunni, og við vitum að það má búast við hverju sem er. Það eru tvær góðar brekkur á leiðinni að gosinu ásamt því sem þarf að labba yfir hraunhrygg í

Ég mæli svo eindregið með að vera með vatn, gott nesti, og kakó eða kaffibrúsa meðferðis þar sem það er fátt betra enn að detta í smá „picnic“ fíling á meðan horft er á gosið.“

Ég fór að sjá eldgosið við Fagradalsfjall í mars í fyrra og um helgina fór ég að sjá eldgosið í Meradölum. Þetta er alveg hreint ótrúlegt og nánast ómögulegt að útskýra með orðum hvernig það er að sitja í margra metra fjarlægð en samt finna hitann frá hraunflæðinu. Ég hvet því alla sem því valda að fara að sjá þetta með eigin augum. Þegar þú keyrir inn á gossvæðið færðu sms frá Almannavörnum sem minna þig á vera í hlýjum fötum, að vera í almennilegum gönguskóm, fullhlaðinn síma, vasa- eða höfuðljós, ásamt að hafa mat og drykki meðferðis. Það kemur mér alltaf jafn mikið

Ljósmyndir: Sigurður R. Magnússon


Fjölþætt heilsuefling 65+ í Vestmannaeyjum Leið að farsælum efri árum

Þér er boðið á kynningarfund Efni: Fjölþætt heilsuefling 65+ í Vestmannaeyjum Staður og stund: Týsheimilið - Miðvikudaginn 17. ágúst kl. 16:00 Fjölþætt heilsuefling er verkefni fyrir einstaklinga sem eru 65 ára eða eldri. Verkefnið er samstarfsverkefni Vestmannaeyjabæjar og Janusar heilsueflingar. Lagt er upp með markvissa þol- og styrktarjálfun, reglulegar heilsufarsmælingar, fræðslu og ráðgjöf um holla næringu og aðra heilsueflandi þætti. Markmið með þátttöku í verkefninu er að gera einstaklinginn hæfari til að spyrna fótum gegn öldrunareinkennum og takast betur á við heilsutengdar breytingar sem fylgja hækkandi aldri.

Fjölþætt heilsuefling 65+ í Vestmannaeyjum inniheldur meðal annars: Styrktarþjálfun í Litla-Hressó 2x í viku, 8-12 saman í hóp með þjálfara Þolþjálfun einu sinni í viku í Herjólfshöllinni yfir veturinn en utandyra að vori, sumri og hausti Reglulegir fyrirlestrar frá læknum, næringarfræðingum, sjúkraþjálfurum og öðrum sérfræðingum Ítarleg heilsufarsmæling á sex mánaða fresti hjá Janusi heilsueflingu Blóðmælingar og heilsufarsviðtal á vegum HSU Rafrænir heilsupistlar og annar fróðleikur um hollan lífsstíl Aðgangur að lokuðum Facebook hópi með fróðleik og stuðning Æfingaáætlanir fyrir daglega hreyfingu Heilsu-app Janusar heilsueflingar Aðgangskort í Litla-Hressó

Umsókn um þátttöku Ef þú ert 65 ára eða eldri getur þú nú þegar sótt um þátttöku á slóðinni; - www.janusheilsuefling.is/skraning Þér er annars boðið á kynningarfund 17. ágúst kl 16:00 þar sem þú færð frekari upplýsingar um verkefnið.

Skráning: www.janusheilsuefling.is/skraning


SUDOKU


SENDUMT FRÍrT tölvur Allar fa allt um land

10. ágúst 2022 • Birtmeðfyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og myndabrengl

Þú finnur réttu fartölvuna í skólann á tolvutek.is DE

Verð frá

189.990 MacBook Air M1

Verð frá

49.990 Chromebook

79.990 Lenovo Flex 5

Ð

ALLT A

50.000R

TU AFSIKLJAÁFATRÖLVUM AF LE

49.990

1 Lenovo Ideapad

Verð frá

79.990 Acer Swift 1

169.990

154.990 Lenovo Gaming

Reykjavík • Mörkin 3 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900

3


LEAGUE OF SUPERPETS

BULLET TRAIN

LAUGARDAGUR KL. 14:00

LAUGARDAGUR KL. 14:00

LAUGARDAGUR KL. 20:00

HUNDURINN HANK Í KLÓM KATTARINS

NOPE

LAUGARDAGUR KL. 14:00

SUNNUDAGUR KL. 20:00

SUNNUDAGUR KL. 14:00

ÞÚ GETUR FUNDIÐ NÆSTU BÍÓMYNDIR OG SÝNINGARTÍMA Á

www.eyjabio.is


Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi

GUÐJÓN STEFÁNSSON frá Hólatungu Vestmannaeyjum andaðist á heimili sínu þann 27. júlí sl. Jarðsett verður frá Landakirkju laugardaginn 20. ágúst kl. 13.00

Erna Tómasdóttir Tómas Hrafn Guðjónsson Anna Jóna Guðmundsdóttir Rósa Elísabet Guðjónsdóttir Guðjón Hjörleifsson Guðjón Örn Guðjónsson Jóhanna Kristín Gunnlaugsdóttir Sóley Guðbjörg Guðjónsdóttir Bylgja Dögg Guðjónsdóttir Óskar Þór Kristjánsson Stefán Orri Guðjónsson Bára Ingólfsdóttir barnabörn, barnabarnabörn

Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma

JESSÝ FRIÐRIKSDÓTTIR frá Hól

lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands Vestmannaeyjum þann 27. júlí síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki HSU fyrir hlýja og góða umönnun. Magnea Traustadóttir Friðbjörn Ólafur Valtýsson María Traustadóttir Trausti Friðrik Traustason barnabörn, barnabarnabörn

Viltu minnast látins ættingja eða vinar? Prentum sálmaskrár Hafðu samband við okkur á netfangið leturstofan@leturstofan.is eða í síma 481-1161

Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi. Einnig er hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu og tilkynningu á vef. Það kostar 10.000 kr.


Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum verður settur miðvikudaginn 17. ágúst klukkan 13:00. Vinnustofur nýnema verða í beinu framhaldi klukkan 13:15. Stundatöflur opna í Innu þriðjudaginn 16. ágúst Fyrsti kennsludagur haustannar er fimmtudagurinn 18. ágúst.

Enn er hægt að skrá sig í nám á umsóknarvefnum Nánari upplýsingar eru á vef skólans https://www.fiv.is/ Hægt er að velja fjölbreytt nám: Nám í íslensku, ritun og tjáningu, skapandi skrifum, lestri fagurbókmennta, dönsku, ensku, enskum bókmenntum, spænsku, stærðfræði, sögu, sálfræði, náttúruvísindum, líffræði, efnafræði, félagsvísindum. Við bjóðum upp á áfanga sem ætlað er að styrkja grunn fyrir háskólanám, þetta eru m.a. áfangar í íslensku, ensku, stærðfræði, verkefnagerð, félagsvísindum og raungreinum.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 26.tbl 04 árg. by Leturstofan - Issuu