26. tbl. 03. árg. 1. - 7. september 2021
K9 HUNDAVÖRUR - HÁGÆÐA HUNDAFÓÐUR OG FRAMÚRSKARANDI ÞJÓNUSTA Í VESTMANNAEYJUM
Við verðum í Vestmannaeyjum dagana 4. og 5. september að kynna Troll hundafóður. Við bjóðum upp á hágæða hundafóður fyrir hunda á öllum aldri. Fóðrið er þróað í samvinnu við hundaeigendur og dýralækna í fremstu röðum. Við höfum verið með hunda síðan 1998 eða í 23 ár og erum virkilega ánægð með fóðrið og móttökurnar. Það er mjög bragðgott, stuðlar að mjög góðum feldi og styrkir þófa. Við leggjum mikla vinnu í okkar hunda á hverjum degi og vitum að gott hundafóður skiptir miklu máli. Bæði hvað varðar líkamlega og andlega heilsu hundanna sem og fyrir þjálfun. Við notumst við TROLL SPORT og EKSTREM á álagstímum þegar
TÍGULL
hundarnir eru í lengri göngum eða annarri útivist. Síðan þegar rólegra er um að vera, erum við með okkar hunda á TROLL ELITE. Við bjóðum upp á fjórar gerðir af hundafóðri: > TROLL ELITE Fóður fyrir hinn klassíska hund sem er í venjulegri hreyfingu. > TROLL SPORT Fóður fyrir hunda sem eru í mikilli hreyfingu. > TROLL EXTREM Fóður fyrir hunda í mjög mikilli hreyfingu > TROLL HVOLPAFÓÐUR Fóður fyrir hvolpa og unga hunda. Þetta fóður er einnig ætlað fyrir tíkur sem eru og hafa verið hvolpafullar.
Við erum með lágmarks yfirbyggingu og bjóðum upp á netverslun. Þar af leiðandi getum við boðið okkar viðskiptavinum upp á mjög hagstæð verð. Allar pantanir sem berast fyrir kl. 14:00 virka daga eru afgreiddar samdægurs. Einnig er hægt að skrá sig í áskrift af hundafóðri á vefnum: www.K9.is. Í Vestmannaeyjum er umboðsmaður okkar Þórleif Guðmundsdóttir. Hægt er að panta á netinu á www.K9.is eða hafa samband í síma 833-4500.
Við leggjum mikið upp úr því að bjóða upp á gott verð sem að allir okkar viðskiptavinir njóta góðs af.
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir. Forsíðumynd: Halldór B. Halldórsson
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
K9.is
K9.is
K9.is
Laugardagur 4. september Verðum við á hundasvæðinu við Helgafell frá 10 til 13:30 utan Tölvun að Strandvegi TROLLog er fyrir hágæða hundafóður sem 51 frá 14 til 15 Sunnudagur 5. september framleitt er eftir ströngustu kröfum.
Verðum á hundasvæðinu við Helgafell frá 10 til 12
TROLL kemur í 4 tegundum. Fríar prufur af TROLL hundafóðri Hvolpa, ELITE, SPORT og EKSTREM. Happadrætti á staðnum!
TROLL hágæða hundafóður Allir ættu að er finna fóður sem sem er eftir ströngustu kröfum. TROLLframleitt er hágæða hundi. hundafóður sem hentar sínum framleitt er eftir ströngustu kröfum.
TROLL kemur í 4 tegundum.
Sótt eða sent heim að dyrum.
TROLLHvolpa, kemur í 4 tegundum. ELITE, SPORT og EKSTREM. Hvolpa, ELITE, SPORT og EKSTREM.
www.K9.is eða í síma 833-4500. Allir að finna Allir ættu að ættu finna fóður sem fóður sem sínum hundi. hentar hentar sínum hundi.
Sótt eða senteða heimsent að dyrum. Sótt heim að dyrum.
www.K9.is eða í síma 833-4500.
www.K9.is eða í síma 833-4500.
10%
KY N A F S LN I N G A R ÁT 4. - 5 T U R . SEP T.
Tígull heyrði í Ólu Heiðu sem hefur verið með verkefnið Fjölþætt heilsuefling 65+ í Vestmannaeyjum – Leið að farsælum efri árum og fékk að heyra hvernig verkefnið hefur gengið. Nú eru komin 2 ár síðan að verkefnið byrjaði, finnur þú enn fyrir jafn miklum áhuga á verkefninu frá þátttakendum? Áhugi þátttakenda í þessu tveggja ára verkefni hefur allan tímann verið mjög mikill og er enn. Fólk vill hafa áframhaldandi utanumhald við þjálfunina, fá fræðslu og viðtöl við fagfólk, líkamsmælingar, þar sem styrkur, liðleiki og þol er mælt og einnig samvinnu við HSU þar sem teknar eru blóðprufur af hverjum þátttakenda einu sinni á ári. Hafa verið einhverjar breytingar á skipulaginu eða einhverju varðandi Janusverkefnið? Verkefnið er alltaf í þróun og hefur ástandið í Covid orðið til þess að við þurftum á tímabili að vera með fjarþjálfun, t.d. sendum við þeim videó með ýmsum æfingum, sendum þeim fræðslupistla og videó með fræðsluerindum. Hringdum a.m.k. tvisvar í hvern þátttakanda á covid-tímabilinu, vildum heyra hvernig þeim liði og hvöttum þau áfram að hreyfa sig amk 30 mín á dag. Þegar við máttum fara hittast aftur en ekki fara í þreksalinn, þá settum við upp styrkjandi tíma með teygjum í Týsheimilinu, buðum upp á jóganámskeið og fórum í sameiginlegar göngur um eyjuna. Við munum nýta okkur þessa reynslu í framhaldinu. Hvað eru margir þátttakendur? Þátttakendur hafa verið um áttatíu, ekki mikið um að fólk hafi hætt. Nokkrir hafa þurft að draga sig út eða taka hlé t.d. vegna veikinda og
flutninga frá Eyjum. Hefur verið einhver fjölgun milli ára? Síðasta haust bættum við 9 þátttakendum. Munið þið bæta við fleirum núna í haust? Það eru nokkrir á biðlista og við ætlum að reyna að bæta 10 – 12 manna hópi við. Núna erum við að skoða hversu margir ætla að halda áfram þegar tveggja ára verkefninu er formlega lokið. Þegar blaðamaður Tíguls kíkti við í dag þá voru þátttakendur í mælingum, getur þú aðeins útskýrt það nánar fyrir okkur? Við upphafi verkefnis fara fram mælingar og síðan reglulega á 6 mánaða fresti í tvö ár. Með því gefst kostur á að fylgjast með þátttakendum, meta stöðu þeirra og framgang. Helstu mælingar eru: - Blóðþrýstingsmæling og mæling á hvíldarpúlsi - Ummálsmælingar - Mæling á líkamssamsetningu eins og fitumassa, vöðvamassa og fitufríum massa. - Hreyfifærnimæling, jafnvægispróf, styrktarpróf og göngupróf. - Liðleikamæling auk hreyfijafnvægismælingar. - Þolmæling með 6 mínútna gönguprófi. Hvernig nýtist þetta þátttakendum? Þátttakendur geta fylgst með stöðu sinni og framförum. Ávinningurinn er heilsufarslegur, bæði hvað varðar heilsutengd lífsgæði en ekki síður almenna afkastagetu og líðan.
Hjúkrunarfræðingur óskast á Hraunbúðir HSU Vestmannaeyjum Helstu verkefni og ábyrgð • • •
Almenn störf hjúkurunarfræðing s.s. næringar- og lyfjagjafir, sárameðferðir, umönnun osfrv. Hjúkrunarfræðingur er vaktstjóri vaktar og sér um að útdeila verkefnum Hjúkrunarfræðingur kemur að flókinni hjúkrun íbúa og sér um að fylgja henni eftir
Hæfniskröfur • Starfsleyfi frá Embætti Landlæknis • Faglegur metnaður • Áhugi á að vinna með öldruðum • Jákvætt viðhorf • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Við erum að leita að hjúkrunarfræðingi í okkar frábæra hóp. Á Hraunbúðum eru 30 hjúkrunarrými, 4 dvalarrými og 1 hvíldarrými. Starfshlutfall er 70-100% og unnið er á dag- og kvöldvöktum. Í Vestmannaeyjum er ákaflega gott að vera í dásamlegri náttúru með góðu fólki Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert. • •
Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun og fyrri störf. Umsókn skal skilað rafrænt á vef HSU - www.hsu.is undir flipanum laus störf.
Umsóknarfrestur er til og með 25.08.2021 Nánari upplýsingar veitir: Una Sigríður Ásmundsd. una.asmundsdottir@hsu.is S: 432 2650
JANUSARVERKEFNIÐ Vestmannaeyjabær hefur nýverið endurnýjað samstarf um heilsueflingar og rannsóknarverkefnið „Fjölþætt heilsuefling 65+ í Vestmannaeyjum – Leið að farsælum efri árum”. Vestmannaeyjabær fyrsta sveitafélagið sem býður íbúum upp á framhaldsnámskeið. Blaðamaður Tíguls kíkti í tíma hjá þátttakendum og fékk að heyra hvernig þeim hefur gengið.
Nafn: Sævaldur Elíasson Aldur: 73 ára
Nafn: Sigurborg Erna Jónsdóttir Aldur: 78
Hvað ertu búinn að taka þátt lengi í verkefninu?
Hvað ertu búinn að taka þátt lengi í verkefninu?
Ég hef tekið þátt frá upphafi, í um 2 ár. Hvað ertu að mæta oft í viku? 2x
Hvað gerir þetta fyrir þig? Finnur þú mun á þér?
Mér finnst þetta mjög gott, ég er allur miklu styrkari og þetta heldur manni við efnið. Svo fer ég daglega í göngu eða reyni það.
Ef þetta verkefni hefði ekki komið til sögunnar reiknar þú með að þú hefðir farið sjálf/ur í svona hreyfingu? Nei ekki í tækjasalinn en ég hefði
alltaf farið í göngur.
Fyrir þá sem eru enn ekki að mæta og eru að hugsa sig um - ertu með einhver orð fyrir þau?
Ég mæli hiklaust með þessu - það er líka félagsskapurinn í þessu og maður er að hitta annað fólk heldur en maður hittir annars.
Ég hef tekið þátt frá upphafi, í um 2 ár.
Hvað ertu að mæta oft í viku? 3x í viku. Hvað gerir þetta fyrir þig? Finnur þú mikinn mun á þér? Ég finn mikinn mun bæði andlega líkamlega. Svo æðislegt að koma og hitta fólkið. Félagsskapurinn er mjög góður. Hvernig / Hvaða æfingar finnst þér skemmtilegastar að gera? Mér finnst mest gaman í teygunum. Ef þetta verkefni hefði ekki komið til sögunnar reiknar þú með að þú hefðir farið sjálf/ur í svona hreyfingu? Ég hef alltaf verið að ganga en aldrei farið í tækjasalinn. Skiptir fatnaðurinn þig máli / skór o.s.frv? Mæliru með einhverju sérstöku? Best er að eiga góða gönguskó og svo bara nota það sem maður á. Fyrir þá sem eru enn ekki að mæta og eru að hugsa sig um - ertu með einhver orð fyrir þau? Bara taka skrefið og stökkva á þetta. Það þurfti að ýta á mig til að skrá mig í þetta og ég sé sko alls ekki eftir því.
Nafn: Sjöfn K Benonýsdóttir Aldur: 84
Nafn: Áki Heinz Haraldsson Aldur: 74
Hvað ertu búinn að taka þátt lengi í verkefninu?
Hvað ertu búinn að taka þátt lengi í verkefninu?
Hvað ertu að mæta oft í viku? 3x í viku svo labba ég á milli og skelli mér annað slagið í sund. Hvað gerir þetta fyrir þig? Finnur þú mikinn mun á þér? Mjög mikinn mun, meira þol, þrek og styrk. Eftir að ég byrjaði að fara í þreksalinn þá fór ég að fara í sund og pottana og þetta hvatti mig til þess. Hvernig / Hvaða æfingar finnst þér skemmtilegastar að gera? Mér finnst þetta flest allt skemmtilegt. Ef þetta verkefni hefði ekki komið til sögunnar - reiknar þú með að þú hefðir farið sjálf/ur í svona hreyfingu? Nei, ég heyrði af þessu verkefni í Reykjanesbæ og var hvött til þess að skella mér í þetta hér. Sem ég gerði. Skiptir fatnaðurinn þig máli / skór o.s.frv? Best er að eiga góða skó. Fyrir þá sem eru enn ekki að mæta og eru að hugsa sig um - ertu með einhver orð fyrir þau? Hvet þau að skella sér strax meðan að tækifærið gefst. Hægt er að byrja í Janusarverkefninu við 65 ára aldur en þetta mætti vera fyrr, jafnvel um 60. Bæjarstjórnin á heiður skilið fyrir að koma þessa verkefni af stað og halda þessu áfram gangandi.
Hvað ertu að mæta oft í viku? 3x. Fer í göngu
Ég hef tekið þátt frá upphafi, í 2 ár.
frá upphafi frá sept 2019
1x í viku og þrek 2x í viku.
Hvað gerir þetta fyrir þig? Finnur þú mikinn mun á þér?
Stóran mun, styrkari og ekki eins skvabbkenndur. Finn mun á þoli - ég labba eitthvað á hverjum degi. Fer allar mínar ferðir gangandi.
Hvaða æfingar finnst þér skemmtilegastar að gera?
Nei, mér finnst þetta allt saman skemmtilegt. Ef þetta verkefni hefði ekki komið til sögunnar reiknar þú með að þú hefðir farið sjálf/ur í svona hreyfingu? Ég hafði aldrei komið inn í tæk-
jasal þegar ég byrjaði - ég reikna ekki með að ég hefði farið sjálfur. Þetta er algjörlega nýtt.
Skiptir fatnaðurinn þig máli / skór o.s.frv? Mæliru með einhverju sérstöku?
Aðallega léttum bol og góðum skóm.
Fyrir þá sem eru enn ekki að mæta og eru að hugsa sig um - ertu með einhver orð fyrir þau?
Ég hiklaust mæli með þessu eins og þetta hefur verið hjá mér - nú eru komin 2 ár - hefði ekki viljað missa af þessu. Mér finnst þetta vera eins og ein fjölskylda.
SUDOKU
HOLLT KARAMELLUSÚKKULAÐI Karamellusúkkulaði Hráefni: 22-25 stórar döðlur, mjúkar og steinlausar 69 ml kókosolía ( hituð þar til fljótandi ) 2 msk möndlusmjör eða hnetusmjör 2 tsk manilludropar ¼ tsk sjávarsalt 20-50 g kókosmjöl Súkkulaðihjúpur Hráefni: 30 g kakó 60 ml kókosolía 2 msk hlynsýróp Aðferð: Setja döðlur, kókosolíu, möndlusmör/hnetur, vanilludropa og sjávarsalt í matvinnsluvél og maukið vel saman í um það bil 1-2 mínútur eða þar til karamella hefur myndast. Setjið karamelluna í skál og blandið kókosmjöli saman við. Magn eftir smekk.
Mótið karmelluna í litla bita og látið á smjörpappír. Frystið í um 20 mínútúr. Gerið súkkulaðihjúpinn með því að setja kakóduft, kókosolíu og hlynsýróp saman í skál og hræra vel saman. Dýfið því næst karmellubitunum ofan í súkkulaðið og setjið á smjörpappír. Látið í frysti í um 15 mínútur áður en þið gæðið ykkur á þessari dásemd. Geymið bitana í kæli eða fyrsti.
Starf þar sem jafnrétti, virðing, gleði og faglegur metnaður ræður ríkjum. Leikskólinn Sóli auglýsir eftir matráð í 80%-100% starf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Við leitum að jákvæðum og lífsglöðum einstaklingi sem er tilbúinn að tileinka sér starfshætti Hjallastefnunnar af gleði og kærleik. Nánari upplýsingar um helstu verkefni og vinnufyrirkomulag veitir skólastýra.
LAUS STÖRF Í VESTMANNAEYJUM BÍLSTJÓRAR Pósturinn í Vestmannaeyjum leitar að kraftmiklum og ábyrgðarfullum bílstjórum í kvöldkeyrslu. Um er að ræða útkeyrslu á sendingum til einstaklinga. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Vinnutíminn er frá klukkan 16:45 til 22:00. STARFSMAÐUR Á PÓSTHÚSI Pósturinn óskar eftir að ráða einstakling í fullt starf á pósthúsinu í Vestmannaeyjum. Starfið felur m.a. í sér þjónustu við viðskiptavini, almenna afgreiðslu, og önnur tilfallandi verkefni. Vinnutími er á bilinu 09:00 til 17:00, alla virka daga. Umsóknarfrestur er til og með 8. september 2021. Sótt er um starfið á www.posturinn.is/atvinna. Nánari upplýsingar í netfanginu erlingurg@postur.is.
Hæfniskröfur: Þekking á rekstri skólaeldhúss og hagsýni í innkaupum æskileg. Frumkvæði, metnaður, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð. Þekking í næringarfræði. Góð færni í mannlegum samskiptum. Reynsla af starfi í eldhúsi er stór kostur.
Umsókn skal send á Helga Björk Ólafsdóttir skólastýra á netfangið helgabj@hjalli.is
ATVINNA Marhólmar ehf. leitar eftir starfsfólki. Vinnutími 06:50 - 15:00 eftir 15:00 er yfirvinna. Upplýsingar veitir: Ragnhildur Svansdóttir milli kl. 06:50 - 16:00 á staðnum Eiði 14 eða í síma 773 0611.
ÉG SÉ ALLT Í FIMMAUR OG AULAHÚMOR Ef ég sit heima og geri ekkert þá vanalega kemur eitthvað sniðugt upp í kollinn á mér á endanum. Ef ég hins vegar fer út að gera eitthvað…..út í lífið, hvort sem það er að versla eða bara út að labba þá virkilega fer allt á flug. Þá stundum hef ég ekki undan að hripa niður aulahugmyndir. Sem er gaman. Ég get verið frá 5 mín með mynd upp í kannski 30 mín. Ég nota Procreate í iPad og tók meðvitað þá ákvörðun að hafa þetta allt digital í stað þess að nota milljón blöð,blýanta,tússa og pappír sem myndu liggja þá út um allt hús og vera bara pirrandi fyrir svo ekki sé talað um sóunina. Hverjar eru þínar fyrirmyndir í þessum heimi? Ég er mikill Gary Larson maður og Bill Watterson. Þetta eru menn sem ég hef verið að skoða síðan ég var krakki. Ég myndi einnig segja að Douglas Adams væri sterkur áhrifavaldur og ekki má gleyma Hulla.
FUNNYPNSIR er að slá í gegn á samfélagsmiðlum þessa dagana, þetta eru teikningar með fimmaura bröndurum. Tígull verður með teikningu í hverju blaði frá Funnypinsir hér eftir og við vonum að þið getið skemmt ykkur vel yfir þessu. Hér kynnumst við örlítið Sigursteini Ingvari Rúnarssyni sem er höfundur teikninganna og brandaranna. Hvernig kom það til að þú byrjaðir á því að teikna? Ég lofaði sjálfum mér að árið 2021 myndi ég læra á trommur og loksins láta verða að því að prófa að teikna. Ég hef aldrei getað teiknað neitt og var því spenntur að loksins krafla mig fram úr Óla prik. Ég teikna á ipad og hefur þetta heltekið mig frá því ég byrjaði í júní. Ég stofnaði instagram reikninginn FUNNYPUNSIR og henti þangað inn misvitrum teikningum. Einnig er ég með FRASARFRASIR sem eru frasar og er meira alvörugefið….. inn á milli. Hvernig færðu þessar hugmyndir? Ég er mjög mikill dadjoke maður, fjölskyldu minni til mikilla ama og lá því beinast við að teikna eitthvað í þá áttina. Ég sé allt í fimmaur og aulahúmor. Ef ég segði upphátt allt sem mér dettur í hug þá væri ég líklega án vinnu og fráskilinn maður. Ég held gríðarlega aftur af mér og reyni að sigta út bara eitthvað normal dadjoke stöff. Það mætti segja að ég sé svona low class Hugleikur Dagsson. Hann er ótrúlega snjall, sniðugur og svalur. Lætur sér detta ótrúlega sniðuga hluti í hug. Ég er meira í ósvölu, augljósu og pabbabrandara gírnum. Hann sér um hitt og ég sé um þennan markað. Það verður einhver að sjá um pabbana og fimmaurana.
Ég hef verið að berjast við að pósta bara 2-3 myndum inn á FunnypunSIR á dag en á mjög erfitt með það því ég geri svo margar myndir og finnst þær allar hilarious. Og ég er mjög óþolinmóður en mér er sagt að 1-2 á dag sé alveg nóg og eitthvað meira pirri bara fólk. Þetta er mitt aðal ströggl í dag. Að halda aftur af mér. Ég gerði facebook síðu fyrir FunnypunSIR fyrir þá sem ekki eru með insta og markmiðið mitt er að halda ótrauður áfram og skemmta sjálfum mér. Enda er þetta ekkert annað en það, ótrúlega skemmtilegt fyrir sjálfan mig. Dýrka að teikna. Ætli ég fresti ekki bara trommunum til ársins 2022.
A N F E F L GÓ
A L A ÚTS 25%
*AFSLÁTTUR
G FLÍSUM O I, T E K R A P AF HARÐ
TEPPUM
*
Strandvegur 30 / 481 1475 / www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is
VESTMANNAEYJAHLAUPIÐ 2021 Vestmannaeyjahlaupið fer fram í ellefta sinn þann 4.september Vegleg verðlaun verða fyrir fyrstu þrjú sætin í kvenna og karlaflokki í 5 og 10 km. Fyrir fyrsta sæti karla og kvenna í 10 km eru 100.000 kr. í verðlaun Fyrir annað sæti karla og kvenna í 10 km eru 50.000 kr. í verðlaun Fyrir þriðja sæti karla og kvenna í 10 km eru 25.000 kr. í verðlaun Fyrir fyrsta sæti karla og kvenna í 5 km eru 50.000 kr. í verðlaun Fyrir annað sæti karla og kvenna í 5 km eru 25.000 kr. í verðlaun Fyrir þriðja sæti karla og kvenna í 5 km eru 15.000 kr. í verðlaun Sú nýjung verður í ár að keppt er einnig í aldursflokkum. 15 ára og yngri, 16-20 ára á árinu, 21-30 ára, 31-40, 4150, 51-60, 61-70 og 71 ára og eldri. Skráning fer fram á hlaup.is
TAKTU ÞÁTT Á ÞINN HÁTT!
5 eða 10 km Rásmark verður við íþróttamiðstöðina. Upphitun hefst kl. 12.35 og hlaupið ræst kl. 13.00. Þátttökugjald er kr. 3.000. Skráning á hlaup.is. Keppnisnúmer og gögn afhent milli kl. 18 og 20 föstudaginn 3. september í Íþróttamiðstöðinni.
// Nánari upplýsingar á vestmannaeyjahlaup.is // Skráning á hlaup.is
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangaamma
GUÐBJÖRG MARTA HJÖRLEIFSDÓTTIR
Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma
ÁSA SOFFÍA FRIÐRIKSDÓTTIR
Frá Skálholti í Vestmannaeyjum
Ása á Hól
Lést á Hraunbúðum 15. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hraunbúða fyrir hlýja og góða umönnun.
Lést á heimili sínu Hraunbúðum laugardaginn 21.ágúst. Útförin fer fram frá Landakirkju föstudaginn 3.september kl 13:00 Athöfninni verður streymt á heimasíðu Landakirkju www.landakirkja.is
Þóra H Egilsdóttir Kristján Egilsson Guðjón Egilsson Sigurbjörn Egilsson Björg Egilsdóttir
Arngrímur Magnússon Pála B Pálsdóttir Svanfríður Jóhannsdóttir Sæmundur Ingvarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samhug og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa,
BRAGA JÚLÍUSSONAR
Búastaðarbraut 16, Vestmannaeyjum Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja fyrir góða umönnun og Krabbavörn. Sigþóra Björgvinsdóttir Björg Ólöf Bragadóttir Valgeir Sigurjónsson Gylfi Bragason Edda Svandís Einarsdóttir Sigþór Örn, Sandra Dögg, Steina Dís og Bragi Þór.
Friðrik Gíslason Bjarki Friðriksson Sigríður Ása Friðriksdóttir
Ingibjörg Sigurjónsdóttir María Ösp Karlsdóttir Ian Jeffs
Friðrik, Hákon, Birnir, Svandís, Liam og Erik
Dánartilkynningar Þakkartilkynningar eða minningargreinar Þeir sem vilja koma á framfæri dánartilkynningum, þakkartilkynningum eða minningargreinum geta sent okkur á netfangið: tigull@tigull.is Verð á tilkynningum sem birtast í vef og blaði eru eftirfarandi: Tilkynning á vef: 5.000 kr. Tilkynning í Tígul: 7.500 kr. Tilkynning á bæði vef og blað: 10.000 kr. Við tökum á móti minningargreinum sem hægt er að birta viðkomandi að kostnaðarlausu.
Starfsmenn óskast í umönnun á Hraunbúðir Vestmannaeyjum Helstu verkefni og ábyrgð • Umönnun aldraðra • Veita hlýju og gleði • Létt eldhúsverk
Hæfniskröfur • Áhugi á að vinna með öldruðum • Jákvætt viðhorf • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið Hjúkrunar- og dvalarheimilið Hraunbúðir Vestmannaeyjum óska eftir starfsfólki í skemmtilegt og gefandi starf með yndislegu heimilisfólki og frábæru starfsfólki. Á Hraunbúðum eru 30 hjúkrunarrými, 4 dvalarrými og 1 hvíldarrými auk annarrar þjónustu við eldri borgara. Starfshlutfall samkomulagsatriði. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Drífandi, stéttarfélag hafa gert. Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun og fyrri störf. Umsókn skal skilað rafrænt á vef HSU - www.hsu.is undir flipanum laus störf. Umsóknarfrestur er til og með 09.09.2021 Nánari upplýsingar veitir: Una Sigríður Ásmundsd. una.s.asmundsdottir@hsu.is S: 432 2650
TASTE SUPER DAIRY
COMBO TILBOÐ TANDOORI-KJÚKLINGAVEFJA & SAFI AÐ EIGIN VALI
1.995 kr. Vefja & safi
Nýtt á Ísey Skyr Bar* Ljúffeng tandoorikjúklingavefja með bragðgóðri skyr-pestósósu.
Innihald: Tandoori-kjúklingalæri, döðlumix, avókadó, spínat, rauð paprika, salt og skyr-pestósósa.
Næringargildi: Prótein 10 g Kolvetni 33 g Fita 13 g 298 kkal
Stök vefja: 1.295 kr. *Aðeins á Ísey Skyr Bar í Hafnarfirði, Fossvogi og Vestmannaeyjum.