25. tbl. 04. árg. 1. - 16. ágúst 2023
NÁTTÚRULEGUR RÆÐUSTEINN HERJÓLFSDALS
Þessir leituðu ræðusteinsins góða, fundu hann undir Skiphellum eftir víðtæka leit og komu honum á langþráðan stað á ræðuklettinum. Frá vinstri; Árni
Herjólfsdalur er líklega eins fullkominn staður til að halda hátíð, líkt og þjóðhátíð, og þeir gerast. Og það af náttúrunnar hendi. Sér í lagi kemur hönnun móður náttúru í ljós við setningu hátíðarinnar þar sem náttúrulegt svið ræðumanna trjónir yfir Dalnum. Og til að toppa allt er það búið fullkomnu ræðupúlti af náttúrunnar hendi. Eða hvað?
Ekki er það nú alveg svo, en næstum því. Við undirbúning Þjóðhátíðar 1981 fór Þjóðhátíðarnefnd af stað og fann hinn fullkomna stein til að nota sem púlt.
TÍGULL
DREIFING:
„Þjóðhátíðarnefnd Týs 1981 lagði upp á Benzanum hans Kristmanns eitt fagurt júlíkvöld. Við þræddum leiðina úr Dalnum inn á Eiði, suður í Höfða, út á Hamar, en ekki fundum við rétta steininn.“ Svo segir í grein Árna Johnsen í Þjóðhátíðarblaði Vestmannaeyja 1983.
„Við ákváðum þá að kanna betur brekkurnar undir Klifi og þar sem við erum að dóla undir Skiphellabjarginu sjáum við steinnibbu skjóta kollinum upp úr sandinum. Það var auðséð að þessi steinn hafði fallið úr Skiphellabjarginu. Skóflur voru þrifnar á loft og
mokað frá steininum í hasti, því einhverra hluta vegna vorum við sammála um að þarna væri rétta ræðupúltið þótt við hefðum ekki séð nema efsta hlutann af steininum. Og viti menn, þetta stóð heima, púltið var komið ljóslifandi. Það var náð í krana áður en haninn gól og ræðupúltinu laumað inn í náttúru Herjólfsdals þat sem steinninn var festur með steypu í snyrtilega holu sem nefndin gróf á sína ábyrgð. Þess vegna er Ræðusteinninn kominn í Herjólfsdal.“
inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn/Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó. Forsíða/ljósmyndir/Addi í London. Blaðamaður/Kristjana Ingibergsdóttir.
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is
Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt
Johnsen, Kristmann Kristmannsson, Rafn Pálsson, Sigurður Georgsson, Birgir Guðjónsson og Sigursteinn Óskarsson. Ljósmynd/Torfi Haraldsson.
V estmannaeyjabær óskar hátíðargestum góðrar skemmtunar í Herjólfsdal
Hver er fyrsta minning þín á þjóðhátíð?
Dalurinn í allri sinni dýrð á setningunni.
En besta minningin?
Fólkið sem hefur verið í tjaldinu með okkur í gegnum tíðina.
Tjaldið þið við sömu götu eða flakkið þið á milli? Við tjölduðum alltaf á Týsgötu hér áður en fluttum okkur ofar seinna meir og erum núna í Sjómannasundi.
Hvaða hefðir hafa skapast hjá þinni fjölskyldu á þjóðhátíð?
Áður fyrr var lundi alltaf borðaður í tjaldinu á föstudagskvöldum. Lambalæri á laugardagskvöldi heima. Sú hefði er enn við lýði og að sjálfsögðu samlokurnar sívinsælu ásamt mörgu fleiru.
Uppáhalds þjóðhátíðarlag?
Mörg mjög falleg en ég ætla að nefna þjóðhátíðarlagið frá 1987. Síðasti dansinn.
Manstu eftir skemmtilegra sögu eða uppákomu á þjóðhátíð?
Fyrir margt löngu þá kom mjög reiður ungur maður inn í tjald. Enginn þekkti hann. Hann átti í
Hvíta tjaldið
Við fengum Sömbu í létt spjall um þjóðhátíð, undirbúning og það sem skiptir mestu máli í hvíta tjaldinu.
Svanbjörg (Samba)
Oddsdóttir
orðaskiptum við tjaldbúa. Svo eins og hendi sé veifað henti hann mér út úr tjaldinu. Þögn sló á alla, en vera hans í tjaldinu varð ekki löng. Skondið að hugsa til þessa eftir á.
Stóri eða litli pallurinn? Litli pallurinn.
Hvað er hápunktur þjóðhátíðarinnar? Setningin, flugeldasýningin og brekkusöngurinn.
Hvað er möst í hvíta tjaldið? Söngelskt og skemmtilegt fólk og gítar.
Átti girnilega uppskrift sem þú ert til í að deilda með okkur sem er ómissandi á ÞH? Salat: Rækjur, reyktur silungur, egg, mayonnaise og rjómi. Klikkar aldrei.
Hvert er fallegast? Vitinn/Myllan eða Hofið? Myllan.
Uppskrift að góðri þjóðhátíð? Í tjaldinu: Samhentir tjaldbúar og gleði og ánægja við völd.
Eitthvað að lokum? Gleðilega þjóðhátíð.
Samba í hvíta tjaldinu á þjóðhátíð 1986.
Lind, Rikka, Magnea móðir Sömbu, Samba & Hildur dóttir Sömbu.
Aldís og Samba.
Gleðilega þjóðhátíð
Djákninn, Strandvegi 47 - á móti Krónunni!
Opnunartími 3. ágúst 10:30 - 18:30 & 22:00 - 02:00
4. - 6. ágúst 10:30 - 21:00
Eigum gífurlegt úrval af nikótínpúðum & rafrettum á frábæru verði!
Fylgdu okkur á Snapchat. Aldrei að vita nema við verðum með tilboð í gangi!
aðeins 695 kr. óháð magni
Djákninn // Strandvegur 47 // Djakninn.is
• VAPE SHOP •
MEIRA STUÐ EN MARGIR EIGA KANNSKI VON Á
Söngvaskáldið Una Torfa semur og spilar ljúfsár lög á íslensku um ástina og lífið.Textar hennar eru fjölbreyttir og snerta allan tilfinningaskalan. Hún fangar nákvæmar tilfinningar og kemur þeim í orð, finnur lítil augnablik og hverfular hugmyndir og festir þær í textum. Una Torfa hlaut Kraumsverðlaunin fyrir plötuna sína “Flækt og týnd og einmana” og er einnig tilnefnd sem nýliði ársins á Íslensku Tónlistarverðlaunum 2023.
Una er ekki alveg ókunn Eyjunum en hún hélt hér tónleika á Hljómey hér í Eyjum í lok apríl við góðan orðstír. Þetta verður hins vegar í fyrsta skiptið sem að hún mætir á Þjóðhátíð og er tilhlökkunin svo sannarlega farin að segja til sín. „Heldur betur! Ég mæti með hljómsveit og stútfullt prógram af stuði og stemningu, ég hef aldrei komið á þjóðhátíð en vá hvað ég hlakka til!“ Sagði Una í samtali við Tígul og segist vera með ýmislegt óvænt í pokahorninu. „Ég ætla að koma fólki á óvart, það verður meira stuð en margir eiga kannski von á, fullt af nýjum lögum með geggjuðum útsetningum og svo auðvitað líka lög sem fólk hefur kannski heyrt. Þetta verður algjör veisla!“
Aðspurð um uppáhalds Þjóðhátíðarlag sagði hún Pál Óskar alltaf hressandi. „Held ég verði að segja La dolce vita, það kemur manni alltaf í gírinn.“
Annars er nóg framundan hjá Unu í tónlistinni. „Meiri músík, fleiri tónleikar, ný plata í vetur og gleði,“ sagði Una að lokum og bætti við full tilhlökkunar til komandi helgi. „Bara takk fyrir að
Eigðu stund með Ása í Bæ
„Hér gleðjast allir, takast hönd í hönd með hýrri brá því það er gamall siður að láta dægurþrasið lönd og strönd, við leggjumst bara í grasið mjúka niður
og njótum þess að vaka og vera til, í vina hópi, gista klettasalinn, á meðan sólin gyllir þessi þil og þjóðhátíðarstemning fyllir Dalinn.“
Herjólfsdalur 77 - Lag og ljóð: Ási í Bæ
ISFELAG.IS
Gleðilega þjóðhátíð!
Miðstöðin óskar Vestmannaeyingum og gestum gleðilegrar þjóðhátíðar.
Opnun yfir þjóðhátíðina: Föstudagur 10:00 - 12:00. Laugardag, sunnudag og mánudag er lokað. Opnum aftur kl 08:00 á þriðjudag.
Strandvegur 30 // s: 481 1475
Hvað segir fólkið um þjóðhátíðina?
Nafn: Andri Hugo Runólfsson
Aldur: 44
Fjölskylda: Einstæður og barnlaus, sonur Runa á Hvanneyri og Margo Renner.
Hversu oft hefuru verið á þjóðhátíð?
38 sinnum. Missti síðast af Þjóhátíð árið 1995.
Hver er hápunktur þjóðhátíðarinnar?
Vitavígslan, auðvitað.
Hvaða þjóðhátíðalag er uppáhalds?
Þú veist hvað ég meina mær, Skímó, 1997.
Hvað finnst þér mikilvægt að hafa í hvíta tjaldinu?
Skemmtilegt fólk
Hvað er ómissandi á þjóðhátíð?
Bekkjabílar, mikill missir af þeim.
Hvaða tónlistardagskrá ertu spenntastur fyrir?
Frumflutningi Þjóðhátíðarlagsins, þar sem Karla- og
Kvennakór Vestmannaeyja munu stíga á svið með Emmsjé Gauta. Og auðvitað Stjórninni.
Nafn: Alma Ingólfsdóttir
Aldur : Ég er 35 ára.
Fjölskylda: Foreldrar mínir eru Ingólfur Ingólfsson og Júlíanna Theodórsdóttir. Svo er Margrét Rós systir mín.
Hversu oft hef ég verið á þjóðhátíð: Ég er ekki með tölu á því, en ætli þær séu ekki á bilinu 20-25.
Hver er hápunktur þjóðhátíðarinnar: Bessó fjölskyldan og samvera með vinahópnum mínum.
Hvaða þjóðhátíðarlag er uppáhalds: Ég á ekkert eitt uppáhalds þjóðhátíðarlag, þau eru misjöfn eins og þau eru mörg, en texti og innihald gott í flestum þeirra.
Hvað finnst þér mikilvægast að hafa í hvíta tjaldinu? Mér finnst mikilvægast að hafa spegil og einhverskonar kyndingu.
Hvað er ómissandi á þjóðhátíð: Góður félagsskapur og góða skapið. Svo er mikilvægt að við sýnum öll skynsemi, verum vakandi og skemmtum okkur vel saman.
Hvaða tónlistadagskrá ertu spenntust fyrir? Ég er spennt fyrir prettyboychocco. Eðlilega fyrir konu á fertugsaldri.
LIFANDI TÓNLIST Í TJALDINU OKKAR OPIÐ 12-04 á fimmtudag 10:30-20 fös-sun 10:30-22 mánudag ERUM AÐ HEIÐARVEGI 5 /PIZZA67 /PIZZA67EYJAR Þjóðhátíð á BÓAS GUNNARS LILJA BJÖRK ELLERT BREIÐFJÖRÐ NÆTURSALA TIL KL.04.00 Á FIMMTUDAG Þjóðhátíð á ATH! tilboð ekki í gildi fimmtudag - mánudags 481-1567 ( Sendumheim ...líka í tjaldid! -
Tvíburarnir Ólíver Elí og Ísak Leví Gíslasynir komu, sáu og sigruðu í eldri flokki söngkeppni barna á Þjóðhátíð síðasta ár. Þar trylltu þeir lýðinn með flutningi sínum á lagi Metallica, Nothing else matters. Þar lék Ólíver á gítar og söng og Ísak lék á bassa. Þeir bræður kíktu við á Tígli í létt spjall, daginn eftir 10 ára afmælið sitt. „Við fórum á Tangann á afmælisdaginn og fengum okkur að borða. Köku í eftirrétt og svona.“
Ólíver þótti mjög gaman að taka þátt í söngkeppninni í fyrra og sérstaklega að vinna og fá að syngja fyrir fulla brekku. „Ég veit ekki alveg hvernig á að útskýra það,“ sagði Ísak hinsvegar. „Mér fannst það gaman en var á sama tíma mjög feiminn og stressaður.“ Kannski ekki furða með fimmtán þúsund manns í brekkunni að hlusta. „Já, það var smá stress,“ bætti Ólíver við „svona í fyrsta skiptið.” Bræðurnir sögðu stressið nú að mestu horfið enda komið nokkru sinnum fram í kjölfar sigursins. „Við spiluðum á Lundaballinu og svo hituðum við upp fyrir tónleika á Háaloftinu.“ Aðspurðir sögðust þeir mest spila lög með Metallica enda í miklu uppáhaldi hjá þeim báðum. En þeir hljóta að hafa æft mjög mikið fyrir keppnina. „Bara svona passlega mikið. Þetta kom mjög hratt þegar við byrjuðum, Pabbi er alltaf búinn að vera kenna okkur eitthvað.“ sagði Ísak. En foreldrar þeirra eru Kristín Sjöfn Ómarsdóttir og Gísli Stefánsson, sem leikur meðal annars í hljómsveitinni Foreign Monkeys. „Þegar við vorum litlir kenndi hann okkur Bohemian Rhapsody á Ukulele,“ bætti Ísak við og hló.
Ólíver Elí byrjaði að læra á gítar í Tónlistarskólanum í öðrum bekk en Ísak byrjaði þar í trommunámi í fyrsta bekk. Bassakunnáttan var hins vegar að mestu
leyti sjálflærð en hann hóf svo nám á bassa eftir Þjóðhátíð. Þeir segjast þó hafa lagt tónlistinni aðeins núna í sumar og einbeitt sér að fótboltanum. Segjast þeir báðir stefna á að verða annað hvort tónlistarmenn eða íþróttamenn í framtíðinni. Ef ekki bæði. „Helst í fótbolta en ég er tilbúinn í handboltann ef að það klikkar,“ sagði Ólíver.
Þeim finnst einfaldlega að vera í Dalnum það langskemmtilegasta við Þjóðhátíð án þess þó að vera að gera eitthvað sérstakt. „Á síðustu Þjóðhátíð var bróðir minn bara úti að sníkja pening og spila á gítar,“ sagði Ólíver. „Ég græddi 1.500 krónur,“ bætti Ísak við. Móðir drengjanna leiðrétti það þó og sagði það hafa verið hátt í 5.000 kr. „ Ha, í alvöru?“ sagði Ísak þá, steinhissa.
Aðspurðir um uppáhalds þjóðhátíðarlag voru þeir bræður sammála um að það væri lag FM95blö Ég fer á Þjóðhátíð frá 2016.
Þegar innt var eftir uppáhalds tónlistarmanninum stóð ekki á svörunum. „James Hetfield,“ sagði Ólíver, „minn er Cliff Burton,“ bætti Ísak við. Til mikillar furðu báðir meðlimir úr Metallica, Hetfield söngvari og Burton fyrrum bassaleikar. „Hva, ekki pabbi ykkar?“ Henti móðir þeirra inn í umræðuna og drengirnir glottu.
En ætla þið þá að reyna að sjá Metallica á tónleikum? „Já, ef þeir verða ekki hættir þegar við erum komnir með pening fyrir því.“
Þeir félagar segjast alveg vera klárir í að spila Í Dalnum ef eftirspurnin er til staðar hvort sem er á dagskránni eða í tjöldum. „Ef við verðum spurðir, þá byrjum við bara að æfa okkur,“ sagði Ólíver og Ísak bætti við „Ef ég fæ minna en 5.000 kall þá er ég ekki að fara að gera það.“
Þar með lauk spjallinu við þessa flottu drengi sem við eflaust höfum ekki heyrt það síðasta frá.
SIGURINN
FULLT AF GIGGUM EFTIR
Vinir fá sérkjör
Skráning á icewear.is
Hvað segir fólkið um þjóðhátíðina?
Nafn: Felix Örn
Aldur: 24 ára
Friðriksson
Fjölskylda: Foreldrar Friðrik Örn Sæbjörnsson og Þórey Svava Ævarsdóttir, svo er kærasta mín Petrúnella og litli snillinga sonur minn Kristian Örn Felixson.
Hversu oft hefuru verið á þjóðhátíð?
Hef misst af tveim þjóðhátíðum af 24.
Hver er hápunktur þjóðhátíðarinnar?
Það er að hitta fólkið sitt og skemmta sér með því.
Hvaða þjóðhátíðalag er uppáhalds?
Draumur um þjóðhátíð er gott.
Hvað finnst þér mikilvægt að hafa í hvíta tjaldinu?
Það er allskonar, nóg af kræsingum og köldum drykkjum.
Hvað er ómissandi á þjóðhátíð?
Það er brekkusöngurinn og blysin.
Hvaða tónlistardagskrá ertu spenntastur fyrir?
Laugardagurinn lýtur vel út.
Nafn: Bryndís Jónsdóttir
Aldur: 28 ára
Fjölskylda: Mamma mín heitir Sigga Ragnars og pabbi minn Jón Oddson heitin. Fyrir þá sem eldri eru þá er ég barnabarn Pöllu á Strönd. Ég á tvö systkini Rögnu Kristínu og Hafþór. Kærastinn minn heitir Sindri Valtýsson og saman eigum við Sunnu Móey.
Hversu oft hefuru verið á þjóðhátíð? Ég hef farið alltaf nema 3x sem gerir 25 skipti.
Hver er hápunktur þjóðhátíðarinnar? Maður fær alltaf jafn mikla gæsahúð þegar kveikt er á blysunum og allir syngja lagið þar sem hjartað slær.
Hvaða þjóðhátíðalag er uppáhalds?
Vá er hægt að spyrja um þetta þau eru svo ótal mörg í uppáhaldi. Topp þrjú lögin eru: Í Vestmannaeyjum þjóðhátíðarlag 2000.
Hátíð í Herjólfsdal þjóðhátíðarlag 1982.
Ástin á sér stað þjóðhátíðarlag 2016.
Hvað finnst þér mikilvægt að hafa í hvíta tjaldinu? Það er ekki þjóðhátíð án Siggusamlokana ásamt góðu fólki í góðu skapi.
Hvað er ómissandi á þjóðhátíð? Fjölskyldan, vinir, hvíta tjaldið, góð tónlist, neon ljós, góða skapið, gítarpartý, kjötsúpa og þeir sem þekkja mig, Tuma tígur á dansgólfinu.
Hvaða tónlistardagskrá ertu spenntust fyrir? Dagskráin er virkilega flott í ár. Ég er þó spenntust fyrir að sjá FM95blö og Stuðlabandið.
Fimmtudagur 03.08. kl.9 –18
Föstudagur 04.08. kl.9 –18
Laugardagur 05.08 kl.12–17
Sunnudagur 06.08. kl.12 –16
Mánudagur 07.08 LOKAÐ
GLEÐIAUKANDI RÁÐ
SYNGJUM, DÖNSUM OG GLEÐJUMST Í GÓÐRA
UM VERSLÓ Vestmannaeyjum Vesturvegi 5 481 3900 www.apotekarinn.is
VINA HÓPI UM HELGINA. GÓÐA SKEMMTUN Í DALNUM! OPNUNARTÍMI
Í SAMSTARFI VIÐ
DAGSKRÁ AUGLÝST NÁNAR Á FACEBOOK OG INSTAGRAM
FLEIRA
Á LUNDANUM
LUNDA ALLA ÞJÓÐHÁTÍÐARVIKUNA
ÁSAMT
LISTAFÓLKI
LYFTU ÞÉR HÆRRA. RED
BULL VEITIR VÆÆÆNGI
PARTÝ
lundinnpub lundinn
Hver er fyrsta minning þín á þjóðhátíð?
Mínar fyrstu minningar eru úr Hjólhýsinu við Golfgötu á föstudeginum, þar sem öll fjölskyldan er saman komin. Allar mínar æskuminningar frá hátíðinni tengjast hjólhýsinu sem okkur fjölskyldunni þykir afar vænt um og er það kannksi ástæðan fyrir því að því er ennþá skröllt niður í dal ár hvert.
Tjaldið þið við sömu götu eða flakkið þið á milli? Eftir að ég fór sjálf að vera með hvítt tjald höfum við verið alltaf við sömu götu og stefnum á að vera þar áfram.
Hvaða hefðir hafa skapast hjá þinni fjölskyldu á þjóðhátíð?
Þær eru alveg talsvert margar, undirbúningurinn er alltaf frekar svipaður en ætli hefðirnar liggji ekki í bakkelsinu og matnum, það er sumt sem maður verður bara að hafa í tjaldinu sem var alltaf í boði þegar maður var yngri. Við erum svo alltaf með svipaða dagskrá, setningin og kaffið á föstudeginum er frekar heilagt. Það eru alltaf pulsur á miðnætti á föstudeginum og hefur verið síðan ég var barn og svo mætti lengi telja.
Hvíta tjaldið
Við fengum Söru í létt spjall um þjóðhátíð, undirbúning og það sem skiptir mestu máli í hvíta tjaldinu.
Sara Sjöfn
Grettisdóttir
Uppáhalds þjóðhátíðarlag?
Í undirbúningum hlusta ég alltaf á gömlu þjóðhátíðrlögin, það er einhver nostalgía og stemmning í þeim sem fær mann til að hlakka til. Að velja eitthvað eitt er bara ekki hægt að mínu mati, mörg mjög góð.
Manstu eftir skemmtilegra sögu eða uppákomu á þjóðhátíð?
Þær eru nú flestar mjög skemtilegar. Ein sem kemur upp, það var á þjóðhátíð 2016, ég var ólett af mínu öðru barni og var því farin snemma heim. Eftir miðnætti kom nánast allur vinahópurinn okkar saman í einu hvítu tjaldi og allir að syngja og tralla í mega stuði og af því sem ég heyrði eitt skemmtilegasta partý sem fólk hafði mætt í í dalnum. Í miðju partýi fer einn ákveðinn vinur okkar heim til að sækja trúlofunarhring sem hann hafði setið á í talsverðan tíma, kom svo aftur niður í dal og bað sinnar heittelskuðu í miðri gleðinni og það má segja að partýið hafi ekkert orðið leiðilegra hjá þeim við þetta. Ég var hinsvegar heima sofandi í draumaheimi og missti því af þessu og sá þetta svo bara á snapchat yfir kaffibollanum morgunin eftir.
Stóri eða litli pallurinn?
Það fer erftir því hver er að spila.
Hvað er hápunktur þjóðhátíðarinnar?
Hápunkturinn á hverri hátíð er yfirleitt bara með fjölskyldu og vinum í hvítu tjöldunum. En brennan, brekkusöngurinn og blysin standa samt líka alltaf upp úr.
Hvað er möst í hvíta tjaldið? Nóg af sætum fyrir alla og nóg af bakkelsi.
Átti girnilega uppskrift sem þú ert til í að deilda með okkur sem er ómissandi á ÞH? Ég mæli með að þið heyrið bara í mömmu minni Hrönn Harðar, hún bakar besta bakkelsið ég er svona reyna ná í hælana á henni hvað það varðar.
Hvert er fallegast? Vitinn/Myllan eða Hofið? Myllan
Uppskrift að góðri þjóðhátíð? Fullorðnir og börn komnir saman að skemmta sér fallega. Gott veður hefur líka aldrei skemmt neitt.
Hjónin Bergur og Sara Sjöfn.
Systkinin Sara Sjöfn og Hörður Orri á þjóðhátíð 1992.
Setningakaffið á þjóðhátíð.
Fjölskyldan í brekkunni.
Á þjóðhátíð 1992.
Grettir, Gylfi, Hrönn og Erna .
Fjölskyldan á leið á þjóðhátíð. Nýbúin að uppgötva bumbubúann.
Emmsjé Gauti og Emil.
Sara Sjöfn ásamt móður sinni Hrönn Harðar.
Myndir frá Adda í London
Addi hefur verið duglegur með myndavélina á þjóðhátíðum síðastliðna áratugi og hann orðið gríðarlegt magn af myndum. Hér má sjá nokkrar skemmtilegar úr ljósmyndasafninu hans frá síðustu þjóðhátíðum.
DAGSKRÁ
FRAM AÐ HÁTÍÐ
Miðvikudagur 2. ágúst
HVÍTU TJÖLDIN:SÚLURNAR
Hvítatjaldssúlur fara upp á eftirfarandi tímum:
17.00 Reimslóð, Þórsgata, Týsgata og Efri byggð
17.45 Ástarbraut, Veltusund og Klettar
18.30 Skvísusund og Lundaholur
19.15 Sigurbraut, Sjómannasund og Golfgata
20.00 Þeir sem tóku ekki frá lóð
Aðeins þeir sem eiga frátekin svæði á tilteknum tíma mega koma í Dalinn, þeir sem ekki mæta á réttum tímaverða færðir aftast í götuna Á öðrum tímum er Dalurinn lokaður.
Fimmtudagur 3. ágúst
HVÍTU TJÖLDIN:BÚSLÓÐIN
Búslóðaflutningar verða á eftirfarandi tímum:
28. júlí kl. 11.30 til 15:00 og kl. 17.30 til 20:00
29. júlí kl. 9.00 til 11:30
Á öðrum tímum verður Dalurinn lokaður fyrir umferð.
FERMINGARBÖRN 2009
Sem fengu aðgangsmiða að gjöf frá ÍBV þurfa að sækja armband milli kl. 12 og 16 fimmtudag á Básaskersbryggju. Hafið meðferðis gjafabréf og skilríki.
ATHUGIÐ aðeins fermingarbarnið sem gjafabréfið er stílað á getur nýtt það.
FORÐUMST BIÐRAÐIR!
Við hvetjum Eyjamenn til þess að nálgast Þjóðhátíðararmbönd sín á Básaskersbryggju fimmtudaginn 28. júlí frá kl. 12 til 22.
ATHUGIÐ armböndin eru sett á á staðnum.
Innrukkun í Herjólfsdal hefst kl. 10.00 föstudaginn 4. ágúst
HERJÓLFSDALUR LOKAÐUR MILLI KL. 15 OG 17.30
HÚKKARABALL
Portið bakvið Strandveg 50
/ Sprite zero klan / Gusgusar / Patrik aka Prettyboitjokko
/ Diljá / Daniil / Jói P X Króli / Snorri Ástráðsson
12:00 11:30 17:00 23:00 15:00
9:00 - 11:30
/ Hátíðarræða: Ólafur Jóhann
Borgþórsson
/ Hugvekja / Kór Landakirkju
/ Lúðrasveit Vestmannaeyja
/ Bjargsig: Helgi Birkis Huginsson
/ Kaffihlé
/ Emmsjé Gauti
/ Leikfélag Vestmannaeyja
/ JóiP x Króli
/ Una Torfa
/ Una og Sara Renee / Diljá
/ Emmsjé Gauti
- frumflutningur / Stjórnin Herra Hnetusmjör
LÉTT
/ Friðrik Dór
/ Leikfélag Vestm.eyja
/ Söngkeppni barna
LÉTT LÖG Í
/ Sylvía - bestu lög barnanna
/ Páll Óskar
/ Söngkeppni barna
HAMINGJUSTUND Í ÖLGARÐINUM KL. 19-21 HAMINGJUSTUND Í
Klara Elías Jóhanna Guðrún, og Elísabet Ormslev
/ Vinir vors og blóma
/ Friðrik Dór / FM95BLÖ
KL. 19-21
/ Sigurv. Söngvakeppni / Bríet
/ Jón Ólafs og vinir
Eyfi, Björn Jörundur, Daníel Ágúst, Hildur
Kynnir hátíðarinnar: Bjarni Ólafur Guðmundsson / Dagskrá Þjóðhátíðar 2023 er birt
BARNASKEMMTUN KVÖLDVAKA Föstudagur 4. ágúst laugardagur 5. ágúst Sunnudagur 6. ágúst 14:30 9:00 10:30 10:30 16:00 16:00 14:00 21:00 19:00 19:00 21:00 SETNING ÞJÓÐHÁTÍÐAR
/ Þjóðhátíð sett - Sæunn Magnúsdóttir formaður ÍBV
BÚSLÓÐIN Í TJALDIÐ Búslóða-
flutningar leyfðir
LÖG Í DALNUM
DALNUM
ÖLGARÐINUM
DAGSKRÁ
FLUGELDA-
DANSLEIKUR /
DANSLEIKUR /
KVÖLDVAKA MIÐNÓTT TÓNLEIKAR / DANSLEIKUR 23:00 00:00 00:00 00:00 00:15 00:15 00:15 01:00 01:00 01:40 Renee á Þjóðhátíðarlaginu 2023 Hnetusmjör
Stefanía Svavars Ormslev blóma
vinir Jörundur, Hildur Vala
Guðrún,
Söngvakeppni
XXX Rotweiler hundar
Sprite Zero klan / Jói P x Króli
Húgó / Big sexý / Háski / Lil Curly
DANSLEIKUR /
/
/
Vinir vors og blóma
Bandmenn
/
Stuðlabandið
Kjartan
Magnús
FJÓSAKLETTI
BRENNA Á
SÝNING
BREKKUSÖNGUR Á TJARNARSVIÐI / Brimnes / Memm Á TJARNARSVIÐI / Bandmenn / Brimnes MIÐNÆTUR TÓNLEIKAR / Emmsjé Gauti MIÐNÆTUR TÓNLEIKAR / Dj Muscleboy + Doctor Victor + Manswess + Yohanna MIÐNÆTUR TÓNLEIKAR / Birnir / Páll Óskar birt með fyrirvara um breytingar / /thjodhatid /dalurinnokkar / www.dalurinn.is
BLYS
DRÓNAR OG HÁTALARAR
Óheimilt er að fljúga dróna (fjarstýrðu loftfari)
á hátíðarsvæði án sérstaks leyfis yfirvalda.
DÓSIR OG FLÖSKUR
Þjóðhátíðarnefnd vill benda gestum á, að á nokkrum stöðum á hátíðarsvæðinu eru sérstakir gámar fyrir flöskur og dósir, hagnaður af þeim rennur í yngri flokkastarf ÍBV.
Ennfremur vill nefndin benda á, að foreldrar yngri iðkenda sjá um hreinsun í Herjólfsdal alla dagana. Stór hluti af söfnunarfé hreinsunarhópsins er dósa- og flöskuhreinsun, við viljum eindregið benda öðr-
Þjóðhátíðarvakt HSU
Sjúkraskýli er opið í Herjólfsdal frá kl. 20:00 - 08:00
Vaktsími HSU er 1700
NEYÐARTILFELLI
Hringið í síma 112
GÖNGUM VEL UM
GOTT AÐ VITA
Veitingatjaldið
Tjarnarsvið
Aðgangsmiðar
Sjúkraskýlið
WC
Rent a tent
Brekkusvið
Tuborg tjaldið
Litla bjórtjald
Munavarsla
Gæslan
FLeiri myndir frá Adda í London
Addi hefur verið duglegur með myndavélina á þjóðhátíðum síðastliðna áratugi og hann orðið gríðarlegt magn af myndum. Hér má sjá nokkrar skemmtilegar úr ljósmyndasafninu hans frá síðustu þjóðhátíðum.
Hvíta tjaldið
Við fengum Svövu í létt spjall um þjóðhátíð, undirbúning og það sem skiptir mestu máli í hvíta tjaldinu.
Guðný Svava
Gísladóttir
GÓÐA SKEMMTUN ELSKURNAR MÍNAR ALLAR
Fjölskylda: Guðný Svava Gísladóttir, gift Sigga mínum í F.E.S. Börnin mín heita: Gísli Birgir Sigurðarson, Kristín Sjöfn Sigurðardóttir, Sigrún Ella Sigurðardóttir, Dagbjört Lena Sigurðardóttir, og Trausti Mar Sigurðarson. Við Siggi eigum síðan 8 barnabörn og 3 tengdabörn.
Hver er þín fyrsta minning frá þjóðhátíð?
Fyrsta minning mín er síðan 1967. Stymmi bróðir í kerru og við Sigrún systir fengum svo flotta hatta og veski til að vera fínar á hátíðinni.
Hver er hápunktur hátíðarinnar að þínu mati og af hverju?
Setningin engin spurning, loksins allt tilbúið allir svo glaðir og kátir.
Hvernig hefðir hafa skapast í kringum þig og þitt fólk þessa helgina?
Í gegnum tíðina hafa ansi margir komið við í Stakkholtinu þessa helgi. En undanfarin ár hefur nú aðeins róast en við fáum alltaf okkar besta fólk þessa helgi, við
sem að eigum tjaldið hjálpumst öll að í öllu alltaf. Það er alltaf vandað til verksins í tjaldið, ekkert dass í því sko, svo er alltaf elduð kjötsúpa hérna á sunnudeginum og þá borðum við öll saman og algjört stuð og partý áður en við förum saman í dalinn.
Uppáhalds þjóðhátíðarlag?
Elska Sextett Óla Gauks plötuna mikið, en mesti þjóðhátíðar fiðringurinn kemur með laginu Stund með þér með Dans á Rósum.
Hvað er mikilvægast í undirbúningnum? Eitthvað sem er alveg ómissandi?
Já smá fastheldin á sumt en óhrædd við að prófa eitthvað nýtt. Ég baka alltaf brúna lagköku, sírópsbrauð til að eiga heima fyrir okkur því það ekkert betra en að fá sér köku og mjólk áður en við förum að sofa, og svo smá hlátursköst með Sigrúnu Maríu vinkonu minni (því við erum nefnilega svo ofboðslega fyndnar). Já og heita súkkulaðið um miðnætti er ómissandi.
Er fjölskyldan þín alltaf með hvítt tjald? Hverjir eru saman í því tjaldi?
Tjaldi þið við sömu götu eða flakkið þið á milli? Við erum nokkuð mörg sem að eigum tjaldið saman. Við tjöldum alltaf og erum alltaf svo ánægð þegar að við fáum okkar 15 ára pláss, bara betra fyrir fastagestina að vera á sama stað ár eftir ár.
Litli eða stóri pallurinn?
Litli pallurinn svona yfirleitt en kíki samt alltaf á stóra líka.
Hvort er fallegra Vitinn eða Myllan? Þori ekki að segja það svona opinberlega, sorrý.
Fyrir hvað stendur hátíðin í þínum huga?
Að fá öll börnin okkar saman, barnabörnin, fjölskylduna, og yndislega vini. Það er ekki hægt að lýsa því, það er bara eitthvað svo gott fyrir hjartað.
Hvaða þjóðhátíð stendur upp úr hjá þér og af hverju? Get bara ekki
Svava.
svarað því hvaða hátíð stendur upp úr. Þegar að maður var ungur var nú alltaf gaman. Líka þegar að maður er orðin miðaldra. Ætla að verða svona eins og nafna mín hún Amma Svava í Stakkholti, fór 91 árs á þjóðhátíð.
Eitthvað skemmtilegt eða eftirminnilegt atvik sem þú vilt deila með okkur?
Guð minn góður það er svo margt sem að hefur gerst sem að er fyndið og skemmtilegt í gegnum árin en bara best að halda því hérna heima.
Eitthvað að lokum?
Segi bara við alla góða skemmtun elskurnar mínar allar, njótið þessarar einstöku helgar sem að við Eyjamenn eigum. P.S já og að veðurguðirnir (allir nema veðurguðinn Siggi Braga) haldi áfram í svona góðu skapi. Gleðilega Þjóðhátíð!
Guðný Rún með bræður sína Ísak Leví & Óliver Leví.
Stefán Gauti, Kristín Sjöfn, Afi plebbi og Svava.
Hanna frænka, Fanney, Aron Hugi & sonur.
Halli og Kjartan Mar.
Svava með barnabörnunum.
Hanna frænka, Pálmey og Amma Stína. Víðir, Björgvin og Haraldur.
Undirbúningur.
ÞEGAR ÞÚSUND HJÖRTU SLÁ Í TAKT
EMMSJÉ GAUTI HÖFUNDUR ÞJÓÐHÁTÍÐARLAGSINS Í ÁR Í SPJALLI
ég algerlega klár í slaginn í þetta skiptið,“ sagði Gauti sem virðist hreinlega vera að springa úr spenningi fyrir helginni.
„Það er kominn asnalega mikill spenningur fyrir hátíðinni. Ég er löngu farinn að telja niður að fá að flytja lagið fyrir fólk. Það er mjög skrítið að eiga svona slagara og geta ekki spilað hann fyrir neinn. Mér hefur meira að segja verið boðinn góður peningur á giggum undanfarið fyrir að spila það en hef ekki enn látið undan. En það er greinilegt að fólk kann lagið og hefur bara sungið það fyrir mig í staðinn.
Ég eiginlega get ekki beðið fá loks að flytja lagið í Dalnum. Ég verð með sex manna crew með mér og svo náttúrulega kórarnir tveir. Þetta verður alveg móment.“ Þar á Gauti við Karla- og Kvennakór Vestmannaeyja en hann gerði sér ferð til Eyja og tók kórana upp til að hafa með í laginu.
Flytjandi Þjóðhátíðarlagsins er enginn annar en Emmsjé Gauti sem hefur um margra ára skeið verið einn allra vinsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar. Lagið, sem ber nafnið, Þúsund hjörtu, samdi hann sjálfur ásamt Þormóði Eiríkssyni. Með smá aðstoð frá Jóni Jónssyni. „Þegar við vorum búnir að semja lagið fengum við Jón Jónsson í heimsókn og hann bætti aðeins í Þjóðhátíðarfílið í því. :Þannig að hann er eiginlega meðhöfundur af laginu.“ sagði Gauti Þeyr Másson, eða Emmsjé Gauti, í samtali við Tígul í vikunni.
Gauti sagði ferlið hafa verið krefjandi en gengið ágætlega. „Þetta gekk vel, en var samt mjög erfitt í fæðingu. Við vorum ákveðnir strax í upphafi að gera þetta algjörlega á okkar hátt og alls ekki að fara í klisjurnar og reyna hafa þetta svalasta þjóðhátíðarlagið. Ég ætlaði ekki að segja neitt um Vestmannaeyjar og það átti enginn gítar að vera í þessu lagi! En það var bara ekki hægt að flýja klisjurnar þegar á reyndi. Svo það er að sjálfsögðu gítar í laginu og ég öskra Heimaey, þannig að ef það virkar, af hverju að breyta því? Við reyndum samt að láta lagið endurspegla okkar upplifun af hátíðinni. Ég held að það hafi bara tekist mjög vel,“ sagði hann um tilurð lagsins.
Gauti sagðist strax hafa stokkið á tækifærið þegar það bauðst að semja Þjóðhátíðarlagið í ár.
„Ég þurfti ekki að hugsa mig tvisar um þegar kallið kom. Fyrir einhverjum árum var eitthvað spjall um að ég myndi semja lag og var þá hikandi en eftir að hafa upplifað að spila á hátíðinni undanfarin ár var
Aðspurður segist Gauti hafa spilað fimm sinnum áður á hátíðinni, fyrst árið 2014. „Þetta er allta jafn gaman. Ég upplifið hátíðina hins vegar aldrei sem gestur. Ég verð að viðurkenna að ég var einn af þessum týpísku sem var með þjóðhátíðarfordóma þegar ég var yngri, síðan mætti ég að skemmta og það var töluvert meiri fjölskyldustemning á hátíðinni en ég hélt áður en ég kom og skemmti þar,“ sagði Gauti, sem ætlar einmitt að hafa konuna og börnin með í ár en bætti svo við. „Ég hef hins vegar komið á Goslokahátíð sem var algjör snilld.“
Þegar hann er inntur eftir uppáhalds Þjóðhátíðarlaginu segir hann nokkur koma til greina. „En ætli ég verði ekki að segja Ég veit þú kemur og kannski Lífið er yndislegt. Þau lög finnst mér einhvern veginn fanga þetta. Ég vona bara að okkar lag nái að komast á einhverja þjóðhátíðar playlista með þeim. Þá er ég sáttur.“
Það verður nóg að gera hjá Gauta á hatíðinni í ár en hann kemur þrisvar fram á föstudeginum. „Fyrst á barnaskemmtuninni yfir daginn, þar má ég ekki spila lagið. En svo loks frumflyt ég það ásamt kórunum og svo er ég með miðnæturtónleika eftir brennu. Það verður æði. Hlakka mikið til.“
„Á laugardaginn er svo gigg fyrir norðan, en þetta er nú kannski ekki alveg blaðið til að plögga það,“ sagði Gauti og hló. „Framundan er svo bara undirbúningur jólatónleikanna minna, sem ég er byrjaður að plana á fullu. Þetta er alltaf toppurinn á árinu hjá mér. Þannig að þegar fólk er búið að ná sér niður eftir Versló er bara að kíkja á það.“
Þjóðhátíðarlagið 2023
ÞÚSUND HJÖRTU
Lag og texti: Gauti Þeyr Másson og Þormóður Eiríksson
( Capó á 1. bandi fyrir upprunalega tóntegund )
F C Dm Bb F
F
Ég er með vorboða í vasanum
C Dm
Þegar ég rölti af stað með þér
Ég elsk’að hlað’í minningar
Bb F
Með því að gleyma mér með þér
F
Hvað er betra en kvöldin C
Þegar kæruleysið tók völdin
Dm C Bb
Það er stundin sem ég fæ aðeins með þér
Bb C F
Þegar þúsund hjörtu slá í takt
Bb C F
Að þú sért hjá mér, það er allt
Bb C F C/E Dm
Þó að nóttin mæti verður aftur bjart
Bb C F
Þegar þúsund hjörtu slá í takt
F C
Ég finn orkuna magnast, margfaldast
Dm
dagur kveður sólin sest
Bb
Þúsund andlit allt í kringum mig F
En þitt bros gerir mest
Hvað er betra en höndin C
Þegar nóttin, kemur köld-in
Dm C Bb
Ég er þú og ég get svarið að þú ert ég
Þegar þúsund hjörtu slá í takt ...
[ Millispil: F C Dm Bb ]
Gm C
Ég er bergið, þú ert mosinn Dm F
Þú ert eldfim, ég er blossinn
Bb C F
Þarf að segja meir?
Gm C
Þegar við hverfum, inn í hópinn
Am Dm
Þá gleypir okkur nóttin Bb C F
annað kvöld á Heimaey
....
Þegar þúsund hjörtu slá í takt
Skannaðu til að sjá myndbandið Emmsjé Gauti flytjandi lagsins.
Hvíta tjaldið
Við fengum Ásu í létt spjall um þjóðhátíð, undirbúning og það sem skiptir mestu máli í hvíta tjaldinu.
Ása Ingibergsdóttir
VIÐ ERUM HEPPIN AÐ VERA UMKRINGD SKEMMTILEGU OG HRESSU FÓLKI SEM KANN AÐ HAFA GAMAN
Fjölskylda: Ég er gift Simma og við eigum Kristínu Rós, Sigurlaugu og Ingiberg og Bjartey ömmustelpuna okkar.
Hver er þín fyrsta minning frá þjóðhátíð? Í minningunni var aðallega fjörið í kringum sjoppurnar og kaupa skran og nammi. Hver er hápunktur hátíðarinnar að þínu mati og af hverju? Brekkusöngurinn, þjóðsöngurinn og blysin eru alltaf gæsahúðarmóment.
Hvernig hefðir hafa skapast í kringum þig og þitt fólk þessa helgina? Reynum að hafa lundaveislu vikuna fyrir þjóðhátíð þegar allir eru komnir í fjölskyldunni af fastalandinu. Mikilvægt að hafa kjötsúpu á föstudeginum og að sjálfsögðu hátíðarkaffi með brauðtertum og öðru góðgæti.
Hvað er mikilvægast í undirbúningnum? Eitthvað sem er alveg ómissandi? Áttu girnilega uppskrift sem þú ert til í að deila með okkur? Það hentar mér best að vera búin að baka og smyrja tímalega og setja í box fyrir hvern
dag svo helgin sé sem þægilegust. Kanilsnúðauppskriftin hennar ömmu Kiddý er algerlega ómissandi, sírópskökur sem amma Ása bakar og gefur okkur í tjaldið, og Draumarúllan frá mömmu. Læt fylgja með uppskriftina af snúðunum hennar ömmu.
Snúðar amma Kiddý
150 gr smjörlíki
150 gr sykur
2 egg
500 gr hveiti
3 tsk ger
1 dl mjólk
Bakað við 200° í 7 mín
Glassúr í stíl við skreytingar ár hvert – mikilvægt að setja smá appelsínusafa í glassúrinn.
Er fjölskyldan þín alltaf með hvítt tjald? Hverjir eru saman í því tjaldi? Tjaldi þið við sömu götu eða flakkið þið á milli? Við fjölskyldan eigum tjald með mömmu og pabba, við tjöldum bara þar sem við fáum stæði ekkert heilagt í því en viljum frekar vera á
efri hlutanum. Höfum oft verið með vinum okkar eða gestum sem við höfum fengið til okkar. Alltaf skemmtilegast að vera fleiri en færri í tjaldinu.
Litli eða stóri pallurinn? Bæði betra, félagsskapurinn mikilvægastur hverju sinni.
Hvort er fallegra Vitinn eða Myllan? Myllan
Fyrir hvað stendur hátíðin í þínum huga? Samveru með fjölskyldu og vinum. Við erum heppin að vera umkringd skemmtilegu og hressu fólki sem kann að hafa gaman.
Hvaða þjóðhátíð stendur upp úr hjá þér og af hverju? Hver þjóðhátíð hefur sinn sjarma, engin sérstök sem stendur upp úr. Eftirminnilegt var samt að dröslast aftur til eyja 2014 með slitna hásin í spelku eftir að hafa ákveðið að sleppa þjóðhátíð það árið þar sem ég var fótafúin. Húsið okkar í útleigu og við fengum gistingu hjá ömmu og afa á Illugagötunni með örþunnar
Vinkonurnar Brynhildur og Ása.
dýnur þar sem ég var búin að fá allar dýnurnar þeirra lánaðar til að hafa heima hjá mér.
Eitthvað skemmtilegt eða eftirminnilegt atvik sem þú vilt deila með okkur?
Árið 2019 ákváðum við Minna ásamt Sædísi og Gumma að við ætluðum aldeilis að græja geggjaðar brauðtertur í tjaldið það árið. Mikill undirbúningur búinn að eiga sér stað, fá hugmyndir af uppskriftum hér og þar, ganga í brauðtertufélagið á facebook og allt klárt. Ég fór og keypti 2 brauðtertubrauð og geymdi þau í frystinum hjá Minnu af því að við ætluðum að græja brauðterturnar á Blátindi. Þegar ég svo heyrði í Minnu með lokaskipulagið og fyrirhuguð innkaup hafði hvatvísin tekið völdin hjá sumum og 2 brauðtertur klárar á Blátindi. Ég slapp því vel það árið og fékk 2 hálfar brauðtertur í mitt tjald. Geggjað flottar og bragðgóðar þrátt fyrir að það vantaði í þær apríkósurnar eins og mamma gerir sem var talsverður skellur. Lagði það svo til að þetta væri tilefni í geggjaða hefð og brauðtertur frá þeim væru ávalt velkomnar í tjaldið hjá okkur.
Eitthvað að lokum?
Góða skemmtun á þjóðhátíð!
Ása, Brynhildur, Simmi og Obbi.
Ingibergur. Nöfnurnar, amma Ása & Ása.
Ásdís, Sölvi, Simmi og Ása.
Simmi og Ingibergur.
Kristín Rós og Simmi.
Systurnar: Bjartey, Kiddý & Ása.
Systurnar Kristrín og Sigurlaug
VIP TJALDSVÆÐI 11
leið 1/ Bærinn
Dalurinn / Miðbær / Dalurinn
Gengur milli kl. 12 og 18
leið 2/ Hamarinn
Dalurinn / Miðbær / Kirkjuvegur / Foldahraun / Áshamar / Dalurinn
Gengur milli kl. 20 og 06
leið 3/ Helgafell
Dalurinn / Miðbær / Helgafellsbraut / Illugagata / Dalurinn
Gengur milli kl. 20 og 06
66°N Apótekarinn Djákninn Gott Heima decor Icewear Kráin Litla skvísubúðin Lundinn Miðstöðin Nýja tannlæknastofan Saga minjagripaverslun Pizza 67 Pítsagerðin TM 01 01 01 02 02 03 03 04 04 05 05 06 06 07 07 08 08 09 09 10 10 11 12 12 13 13 14 14 15 15
Hér er ég góðan daginn daginn, daginn! Strætó í Dalinn
Á leiðinni í Dalinn eða heim?
Fullorðnir kr. 1000
Börn (6 til 13 ára) kr. 500
Frítt fyrir eldri borgara og 5 ára og yngri
Gleðilega Þjóðhátíð!
Leturstofan og Tígull
óska Vestmannaeyingum og gestum gleðilegrar hátíðar!
Þú finnur réttu fartölvuna í skólann á tolvutek.is
Skólafartölvur Verð frá
Allar fartölvur um land allt ALLT AÐ 50% AFSLÁTTUR AFFARTÖLVUTÖSKUM 2. ágúst 2023 • B i r t me ð fyri r v a r a u m br eyti n ga ,r in n slátta r vill u r og m y n da br e ng l
39.990
SENDUM FRÍTT
VIÐ ÓSKUM EYJAMÖNNUM OG GESTUM GLEÐILEGRAR ÞJÓÐHÁTÍÐAR
Bílaverkstæði HARÐAR & MATTA
OPNUNARTÍMI
Sundlaug Vestmannaeyja // Brimhólabraut //
488-2400 // sundlaugve
ELDABAKAÐAR PÍTSUR!
OPNUNARTÍMI:
TAKE AWAY: 551 - 0055
TAKE AWAY: 551 - 0055
GLEÐILEGA ÞJÓÐHÁTÍÐ! föstudag laugardag sunnudag mánudag 11:00 - 20:00 11:00 - 20:00 11:00 - 20:00 11:00 - 21:00
#PITSUGERDIN /PÍTSUGERÐIN
PITSUGERDIN.IS
föstudag laugardag sunnudag mánudag 11:00 - 20:00 11:00 - 20:00 11:00 - 20:00 11:00 - 21:00 OPNUNARTÍMI: @ GOTTRESTAURANT / GOTTRESTAURANT WWW.GOTT.IS
VESTMANNAEYJA UM ÞJÓÐHÁTÍÐINA
SUNDLAUGAR
miðvikudagur fimmtudagur föstudagur laugardagur sunnudagur mánudagur 2. ágúst 3. ágúst 4. ágúst 5. ágúst 6. ágúst 7. ágúst 06:15 - 21:00 06:15 - 21:00 10:00 - 17:00 10:00 - 17:00 10:00 - 17:00 10:00 - 17:00
sími:
Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
GUÐMUNDUR H. LOFTSSON
Sigöldu 3
850 Hellu
var bráðkvaddur á heimili sínu þann 20. júlí síðastliðinn.
Útför hans verður gerð frá Oddakirkju á Rangárvöllum, laugardaginn
12. ágúst næstkomandi, kl. 14.00.
Gréta María Dagbjartsdóttir
Ásþór Guðmundsson
Loftur Guðmundsson
Kristín M. Guðmundsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur
Helgi R. Tórshamar
Fundir eru sem hér segir: Sunnudaga kl. 11.00
Miðvikudaga kl 20.30
AL-ANON
Þriðjudaga kl. 20.30
NÝLIÐAR VELKOMNIR
HÁLFTÍMA FYRIR FUNDI
Bókið tíma á facebook.com/thoreyljosmyndari eða á netfangi thoreyhh19@gmail.com
Passamyndir Fasteignaljósmyndun Flötum 29 Tímapantanir í síma:
Neyðarsíminn:
tannsi@eyjar.is NÝJA TANNLÆKNASTOFAN /skvisubudin Litla Skvísubúðin Fallegur fatnaður á konur í öllum stærðum á sanngjörnu verði. Við tökum upp nýjar vörur vikulega. www.skvisubudin.is /skvisubudin www.obba.is Vandaðar heimilis- og gjafavörur obba.is obba.is tigull.is tigull@tigull.is
481-1012
844-5012
Þjónusta TM er hugsuð fyrir þig
Með TM appinu getur þú tilkynnt tjón, fengið bætur greiddar og lokið kaskóskoðun á bíl eða hjóli þegar þér hentar.
Sækja TM appið
Gleðilega þjóðhátíð! Gleðilega Þjóðhatíð Bárustíg 1 | s. 481-3939 OPNUNARTÍMI Fimmtudagur kl 10 til 22 Föstudagur kl 10 til 20 Laugardagur kl 11 til 20 Sunnudagur kl 11 til 20 Mánudagur kl 11 til 22 Þú færð allskonar hjá okkur. Tannburstann, lopapeysuna, og partýstöffið. Minjagripaverslun rétt hjá Herjólfi
Löng helgi framundan
66north.is @66north Allt að 50% afsláttur í tilefni þjóðhátíðar í skyndiverslun okkar og 66°Norður bílnum.
með á Facebook síðu okkar fyrir nánari upplýsingar um staðsetningu bílsins. Opnunartímar Skyndiverslun á Bárustíg 9: 15. júlí - 6. ágúst 11:00 - 18:00 66°Norður bíllinn: 3. ágúst - 6. ágúst 11:00-18:00 Endursöluaðili 66°Norður í Vestmannaeyjum Salka verslun: 11:00-18:00 virka daga, 5.-6. ágúst 13:00-17:00
Fylgstu