

GOSLOKAHÁTÍÐIN UM SÍÐUSTU HELGI


Goslokahátíðin var haldin í blíðskapar veðri í síðustu viku og helgi. Mikið var í boði og gátu allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Það er greinilegt að við eigum mikið af hæfaleikaríku listafólki miðað við allt það sem var í boði hátíðardagana. Útispil, andlitsmálning, goslokahlaup, tónlistaratriði, listasýningar og svo margt fleira. Við leyfum hér myndum Adda í London, ljósmyndara Tíguls, tala og gera hátíðinni skil. Fleiri myndir má finna á vefnum okkar tigull.is.
TÍGULL
DREIFING:




Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
SKIL Á AUGLÝSINGUM: Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

























































LÆRIR BYGGINGARVERKFRÆÐI Í INDIANA

Eyjamenn má finna víða um heim hvort sem þeir hafa flutt úr landi alfarið, tímabundið eða til náms. Tígull ætlar á næstunni að hafa samband við nokkra þeirra í smá spjall um lífið og tilveruna fjarri heimahögum. Við ríðum á vaðið með spjalli við Hafdísi Magnúsdóttur, 24 ára Eyjamær, sem lauk nýverið fjögurra ára námi í byggingaverkfræði með áherslu á burðarvirki í Indiana í Bandaríkjunum.
„Skólinn heitir Purdue University og er staðsettur í West Lafayette í Indiana í Bandaríkjunum. West Lafayette er u.þ.b. klukkutíma norðvestur af Indianapolis og u.þ.b. 2 klukkutímum suðaustur af Chicago. Þetta er mjög stór og vel þekktur verkfræðiskóli en hann er talinn vera sjötti besti verkfræðiskólinn í Bandaríkjunum í dag. Ég var að læra byggingarverkfræði en prógrammið þeirra er fimmta besta byggingarverkfræðiprógrammið í Bandaríkjunum í dag. Námið er mjög fjölbreytt og krefjandi og það nær yfir breitt svið innan byggingarverkfræðinnar. Skólinn leggur mikla áherslu á rannsóknir og eru allir kennarar að vinna að eigin rannsóknum með kennslu og oft er nemendum boðið að aðstoða við það. Einn af mínum kennurum, Dr. Shirley Dyke, bauð mér að aðstoða við rannsókn fyrir NASA sem heitir RETHi (Resilient
Extra Terrestrial Habitats Institute),“ sagði Hafdís um skólann. En hún lætur ekki staðar numið þar heldur hyggst á frekara nám. „Mér stóð til boða að skrá mig í svokallað 4+1 nám (eða blandaða BS/MS gráðu) í skólanum sem ég er í. Þeir sem komast inn í það þurfa að hafa góðar einkunnir og vera með meðmælabréf frá kennurum. Þá útskrifast maður eftir fjögur ár með BS gráðu og klárar svo MS á einu ári, annars er MS vanalega alltaf 2 ár í Bandaríkjunum. Ég komst inn í það stuttu fyrir jól og byrjaði því að taka mastersáfanga í viðbót við það sem ég átti eftir að klára fyrir BS síðastliðið vor. Ég mun svo klára MS næsta vor.“
Stefndi á geimverkfræði Hafdís segir stefnuna ekkert endilega hafa verið á byggingarverkfræðina í upphafi. „Já og nei. Upphaflega fer ég í þennan skóla með það að markmiði að læra geimverkfræði. Allir verkfræðinemar í Purdue byrja fyrsta árið sitt saman í því sem kallast fyrsta árs verkfræði (First-Year Engineering). Hluti af þeirri vorönn fer svo í að kynna fyrir nemendum allar verkfræðigreinarnar sem að skólinn býður upp á. Þar komst ég að því að atvinnutækifæri fyrir fólk sem er ekki með bandarískan ríkisborgararétt eru af skornum skammti og samkeppnin einnig mikil í þessum geira. Flestir af alþjóðlegum nemendunum sem fara í geimverkfræði í skólanum fá vinnu tengda því í sínu heimalandi en ég sá ekki fram á að það væri möguleiki

fyrir mig. Það er því upp frá því að ég ákveð að fara í byggingarverkfræðina þar sem ég var viss um að ég gæti alltaf fengið vinnu við það, bæði í Bandaríkjunum og heima á Íslandi. Einnig vantaði ekki áhugann á því þar sem ég hafði nú þegar tekið eina önn í byggingarverkfræði í HÍ haustið 2019,“ sagði Hafdís. Eftir önnina við Háskóla Íslands langaði Hafdísi að prófa eitthvað nýtt og ákvað því að skella í nám erlendis og sér svo sannarlega ekki eftir því, enda mikill skóli. Aðspurð um hvað hún hafi lært mest af námi í ókunnu landi sagði hún það vera að læra að standa á eigin fótum og finna út úr hlutunum sjálf. „Það gekk smá brösuglega fyrst, en ég fór til Bandaríkjanna í janúar 2021 þegar Covid var ennþá sem verst. Það var því ekki mikið um að vera og erfitt að kynnast fólki. Það var ekki fyrr en ég fór aftur út eftir sumarið 2021 sem mér fannst ég ná tökum á umhverfinu.“ Aðspurð hvort eitthvað hafi komið á óvart á meðan á náminu stóð sagði hún það vera hversu vel undirbúin hún var „sérstaklega í stærðfræði en ég var með mjög góðan stærðfræðigrunn úr Versló.“
Gott og virkt félagslíf
Aðspurð sagði Hafdís félagslífið mjög gott og virkt við skólann. „Hver og ein deild er með sitt eigið félagslíf en svo er skólinn einnig með fullt. Byggingarverkfræðin ein og sér er t.d. með þrjú mismunandi félög sem maður getur verið hluti af. Ég var "officer" í félagi sem heitir Chi Epsilon en það er heiðursfélag fyrir nemendur í byggingarverkfræði. Allir sem eru með yfir 3.5 GPA (af 4 GPA) á þriðja árinu sínu fá boð um að ganga í félagið. Inngangan tekur heila önn og maður þarf að búa til Chi Epsilon "board" áður en maður verður meðlimur. Sem "officer" gegndi ég hlutverki sem kallast "Marshall", t.d. sá ég um að bóka alla fundi og skipuleggja alla viðburði innan félagsins.“
Hafdís hefur líka reynt að vera dugleg að ferðast um landið og skoða. „Ég er búin að ferðast aðeins með kærastanum mínum, Matthew Siebe, og fjölskyldunni hans. Við fórum til Tennessee að veiða, til Colorado á skíði og svo til Bonaire í Karabíska hafinu til þess að kafa. Bonaire kom mér mest á óvart, ég vissi ekki að þetta væri hollensk nýlenda fyrr en ég var komin þangað og þar er bara töluð hollenska, sem kom mér mikið á óvart.“
Aðspurð um draumastarfið að loknu námi sagði Hafdís hana ekki alveg hafa gert upp hug sinn. „Ég veit ekki alveg hvar áhuginn liggur enn þá en ég vil klárlega vinna sem byggingarverkfræðingur. Hvort ég endi á því að hanna brýr, hús eða háhýsi verður bara að koma í ljós.
Opnar margar dyr Þrátt fyrir að erfitt sé að vera svona langt í burtu frá fjölskyldu og vinum þá er nám erlendis klárlega eitthvað sem hún mælir með. „Já klárlega. Nám erlendis opnar margar dyr með fjölbreyttum tækifærum, það eflir sjálfstæði og sjálfstraust og svo eignastu vini til

framtíðar. Ég hvet þá sem hafa áhuga og tök á að fara út fyrir þægindarammann og skella sér út í háskólanám, ég sé svo sannarlega ekki eftir því!“
En skyldi hún hafa einhver sparnaðarráð fyrir fólk í námi erlendis? „Oft bjóða skólar upp á vinnu fyrir skólann gegn niðurgreiðslu á skólagjöldum, húsnæði og mat. Minn skóli býður einmitt upp á starf sem Resident Assistant (eða RA) sem ég hef unnið við síðustu 2 árin. Í gegnum það hef ég fengið niðurgreitt meira en helminginn af skólagjöldunum mínum og þar að auki frítt fæði og húsnæði. Sem RA starfa ég í heimavistarkerfi skólans og er ábyrg fyrir því að aðstoða og styðja við aðra nemendur sem búa á heimavistinni. Ég fæ ákveðið marga nemendur á hverju ári sem ég "sé um", held fyrir þau alls konar félagslega viðburði í hverri viku og aðstoða með félags- og námsvandræði sem kunna að koma upp. Einnig aðstoða ég aðra nemendur á heimavistinni og við erum með vaktsíma sem nemendur geta hringt í ef þau læsast úti eða ef annars konar vandamál koma upp.“


Hafdís er fædd og uppalinn í Vestmannaeyjum og er dóttir Aðalbjargar Skarphéðinsdóttur og Magnúsar Inga Eggertssonar. Hún á tvö yngri systkini í Eyjum þau Aðalheiði Svanhvíti og Patrek Þór og svo hundinn Max. Þrátt fyrir að oft sé erfitt að vera fjarri fjölskyldunni sér hún sig ekki flytja aftur til Eyja á næstunni. „Ég hugsa ekki en maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér. Mér finnst líklegt að ég verði einhvers staðar í Bandaríkjunum, líklega Indiana, næstu 10 til 15 árin.“




NÝJIR BÆTAST VIÐ ÍBV B HÓPINN

Guðmundur Ásgeir Grétarsson varaformaður ÍBV B kíkti við hjá okkur á Leturstofunni og fór yfir stöðu mála í liði ÍBV B. Þar er heilmikið í gangi og mikið að gera í samningamálum að sögn Gumma. En þeir KK, Hreimur og Friðrik Dór gefa út lag fyrir ÍBV B.
Þetta eru helstu leikmannasamningar sem að búið er að ganga frá en það á eftir að koma betur í ljós fyrir tímabilið hvernig leikmannalistinn verður.
Rúnar Kárason frá Fram til ÍBV B Össur Haraldsson frá Haukum Dagur Arnarsson frá ÍBV
Agnar Smári Jónsson frá Val
Halldór Kristinn Harðarson frá Þór Akureyri
Alexander Persson frá Val Arnar Þór Fylkirsson frá Val
NÝFÆDDIR VESTMANNAEYINGAR

Drengur
Fæðingardagur: 20.júní 2024
Foreldrar: Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir
Systir: Jóhanna Björk Logadóttir
Fæðingarþyngd: 3966g g
Lengd: 51 cm
Hákon Birtir Joensen Creed
Fæðingardagur: 27.maí 2024
Foreldrar: Alexandra Joensen Creed og Eydís Ösp Karlsdóttir
Fæðingarþyngd: 3304 g
Lengd: 52cm



Stúlka
Fæðingardagur: 28.júní 2024
Foreldrar: Gísli Ingi Gunnarsson og Helen Dögg Karlsdóttir
Systkyni: Úlfur Ingi Gíslason Baltasar Flóki Gíslason
Fæðingarþyngd: 3780 g Lengd: 50 cm
SUDOKU



GETUR ÞÚ FUNDIÐ ORÐIN?

JÖKULL VÍK FJALL
ÁST HEIMAEY TAKK VATN EYJA HÚS
BÍLL HÚFA RIGNING



Andlátstilkynning
Minningargrein
Sálmaskrá
Hægt er að senda okkur minningargrein á netfangið tigull@tigull.is og við birtum fyrir þig greinina á útfarardegi.
Hægt að panta hjá okkur andlátstilkynningu bæði í blaðið og á vefinn okkar.
Bjóðum einnig upp á uppsetningu og prentun á sálmaskrám.

Vestmannaeyjar // Vestmannabraut 38
// s. 481 1161


FIMMTUDAGUR 11. JÚLÍ

HÆGT ER AÐ KAUPA MIÐA & VELJA SÆTI Á EYJABIO.IS

LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ

KL. 13.30
Pólskt tal Íslenskt tal
KL. 17.00
SUNNUDAGUR 14. JÚLÍ

Íslenskt tal
KL. 15.00



KL. 20.00