Skip to main content

Tígull 24.tbl 03 árg.

Page 1

25. tbl. 03. árg. 27. júlí 2021

Þjóðhátíð

í garðinum heima


TÍGULL FER Í FRÍ Tígull fer í fríið... Ekkert blað mun koma út í ágúst. Við komum sterkar tilbaka í september. Vefurinn mun að sjálfsögðu verða virkur áfram. Endilega verið dugleg að senda á okkur tilkynningar, viðburði eða fréttir á tigull@tigull.is og við komum því áleiðis á vefnum okkar. Næsta blað kemur út 1. september.

MERKIKERTI Lucy er eigandi fyrirtækisins Merkikerti en hún keypti fyrirtækið 2014. En þá voru eingöngu verið að framleiða kerti. Lucy framleiðir kertin sjálf og býður einnig upp á aðrar vörur sem hún einnig framleiðir. Hún sérhæfir sig í handunnum vörum úr hægða íslenskri ull, felgi og leðri. Vöruúrvalið fer stækkandi en hún er í stanslausri vöruþróun og nýsköpun. Í augnablikinu eru 11 vörur í boði. Ég endurnýt afganga frá t.d leður fyrirtækjum, segir Lucy. Heimasíðan hennar er merkikerti.is einnig er hægt að finna merkikerti á facebook og instagram.

TÍGULL

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


ÞJÓÐHÁTÍÐ Í GARÐINUM HEIMA

Lilja Ólafsdóttir og Halldór ætlar að setja upp míní Herjólfsdal í garðinum Þau Lilja og Halldór héldu heima þjóðhátíð í fyrra og ætla að gera það aftur í ár, nema í ár ætla þau að gera enn betur og fara alla leið í skreytingunum. Skilti með Reimslóð verður sett upp, blásin verður upp sundlaug sem er þá tjörn og brú yfir hana. Kúlutjaldið verður dauði gámurinn, tréin verða merkt wc fyrir karlana, þau setja upp hvíta tjaldið og í ár er Mexíkó þema eða day of the death. Brekkusöngurinn verður á sínum stað að sjálfsögðu. Og sjálf setningin verður gerð hátíðleg á föstudaginn. Þau eru að fá nokkra gesti ofan af landi svo er þetta vinkonuhópurinn sem kemur sem hefur verið saman meira og minna í covid. Lilja hefur farið á þjóðhátíð síðan hún var núll ára eins og hún segir sjálf frá, aðeins sleppt tveimur hátíðum 1999 og 2000. Halldór og Lilja giftu sig á föstudeginum á þjóðhátíð árið 1995 þannig þau eiga í ár 26 ára brúðkaupsafmæli á setningunni. Og hefðin er svo að fara út að borða á Slippnum eftir setninguna sem þau og gera einnig í ár. Við setjum svo skemmtilegar myndir frá helginni af hátíðinni á Reimslóð eftir helgina á tigull.is


Átt þú rétt á 40% afslætti af flugi?

Þau sem búsett eru fjarri höfuðborginni fá 40% afslátt af innanlandsflugi með Loftbrú. Kynntu þér málið á loftbru.is og sæktu þinn afsláttarkóða áður en þú bókar. loftbru.is


OPNAÐI VEISLUSALINN CAVA CLUB Svava Kristín Grétarsdóttir opnaði nýverið veislusal í Ártúnsbrekkunni við Elliðaárdalinn. Hugmyndin kom hjá Svövu þegar hún var að hugleiða að halda upp á afmælið sitt og fór að leita að sal undir veisluna, þá komst hún að því að ekki var um margt að velja, ekki svona eins og hér heima í Vestmannaeyjum. Það vantaði alveg að geta leigt sal sem þú færð að ráða öllu sjálfur, sem sé ekki með starfsfólki, ekki með bar og þess háttar. Þannig hún fór í málið og fann sal sem hún á í dag og leigir út fyrir, afmælið, brúðkaup já og bara til að halda partý í friði. Nafnið Cava club kom út frá miklum vangaveltum, en Svava segir að það hafi verið erfitt að finna nafn á "litla barnið sitt" en svo hafi nafnið komið til hennar og á mjög vel við, Cava er gott freyðivín, fullt af bublum sem við elskum. Viðtökurnar eru vonum framan, hægt er að finna frekari upplýsingum inn á cavaclub.is


Við hjá Viking Tours erum snillingar að setja saman geggjaðar ferðir, vítt og breytt um Suðurland. Dagsferðir eða gistiferðir fyrir allar stærðir af hópum.

Við bjóðum sem dæmi uppá ferðir fyrir: - Starfsmannafélög - Vinahópa - Saumaklúbba - Fyrirtæki - o.s.frv. www.vikingferdir.is

VIKINGFERDIR.IS / INFO@VIKINGTOUR.IS / BÓKAÐU FERÐ Í SÍMA 488 4800


GUFAN ER ORÐIN RÓTGRÓIN HLUTI Í UNDIRBÚNINGI ÞJÓÐHÁTÍÐARINNAR

Gufan er orðin rótgróin hluti í undirbúningi þjóðhátíðarinnar. Í fyrra var ekki útsending út af dálitlu. En í ár voru þau búinn að gera allt klárt fyrir útsendingu, þegar reiðarslagið kom yfir að þjóðhátíðinni yfir frestað. Þau ákváðum samt sem áður að halda sér við planið, og hefja útsendingu mánudaginn 25. júlí. Við ákváðum að skjóta nokkrum spurningum á þau. Hverjir standa á bak við EyjaVarp? Á bak við EyjaVarp standa Alma Eðvaldsdóttir, Heba Rún Þórðardóttir, Hinrik Ingi Ásgrímsson og Snorri Rúnarsson. Hvað er EyjaVarp? EyjaVarp heldur utan um alla útvarpsstarfsemi í Vestmannaeyjum. Í raun er EyjaVarp yfirheiti til að einfalda út á við.

Hvaða útvarpsstöðvar heldur EyjaVarp utan um? EyjaVarp heldur utan um Gufuna – Þjóðhátíðarútvarp, Jólarásina, Hljóðneminn – grunnskólaútvarp og Goslokaútvarp. Síðan er spurning hvað framtíðin ber í skauti sér. Hvar eru þið staðsett? „Höfuðstöðvarnar“ okkar eru í félagsmiðstöðinni við Strandveg. En í þetta sinn verðum við staðsett á Bárustíg. Leitið og þér munuð finna. Hvar er hægt að hlusta? Hægt er að hlusta á okkur á tíðninni FM 104,7 í Vestmannaeyjum og síðan á www.eyjavarp.is um allan heim. Er hægt að biðja um óskalag? Hægt er að biðja um óskalag í gegnum síma 488-2552 eða á netspjallinu okkar á www.eyjavarp.is.

Hvað verið þið lengi í loftinu? Við verðum allavega fram yfir helgi. Við erum búinn að fá skemmtilegt fólk til að vera með þætti. Meðal annars er á dagskrá á föstudagskvöldið að vera með „brekkusöng“ þar sem nokkrir þáttastjórnendur ætla að syngja og spila. Ef mig langar að vera með þátt eða koma einhverju á framfæri, hvar hef ég samband? Best er að hafa samband við okkar á facebooksíðunni okkar, EyjaVarp – Vestmannaeyjar, eða í tölvupósti á netfangið utvarp@vestmannaeyjar. is Eitthvað að lokum? Hvetjum alla til að hlusta ásamt því að við viljum minna á að þetta er allt unnið í sjálfboðavinnu. Viljum einnig minna á að við erum á öllum helstu samfélagsmiðlum.


Góða skemmtun um helgina Opnunartími yfir verslunarmannahelgina: 29. júlí - 1. ágúst 11:00 - 21:00 2. ágúst LOKAÐ

Eigum gífurlegt magn af nikótínpúðum og rafrettum á frábæru verði Allir sem versla 000 kr. hjá okkur fyrir 4. fá eða meira sdrykk frían ískaldan go

Mikið úrval af frábæru einnota frá dinnerlady

Allir nikótínpúðar á 490-890 kr. 5% afsláttur af 5 10% afsláttur af 10

Við verðum með ýmis tilboð! fylgstu með okkur á Snapchat.

Djákninn // Strandvegur 47 // djakninn.is

VA PE

SHO

P


ICEWEAR OPNAR Í BALDURSHAGA Á MIÐVIKUDAG eru alltaf sanngjörn og salan hefur margfaldast á þessum tíma. “Vinir Icewear” telja núna tugi þúsunda og fjölgar á hverjum degi. Við trúum að það sama muni gerast í eyjum enda erum við að senda mikið af vöru til eyjamanna í gegnum vefverslun Icewear. Verður nýja verslunin svipuð eða verðu hún með breyttu sniði? Nýja versunin í eyjum verður allt öðruvísi en sú gamla, hún verður fyrir það fyrsta mkilu stærri og meira í anda versluna Icewear í Smáralind og Kringlu, bæði hvað varðar vöruval og útlit.

Icewear er að opna núna í vikunni í Baldurshaga. Tígull heyrði í Aðalsteini Pálssyni framkvæmdarstjóra Icewear og fékk að vita nánar um nýju verslunina. Nú voruð þið nýbúin að loka verslun ykkar á Herjólfsbryggju, stóð alltaf til að færa hana í miðbæinn eða var þetta hugmynd sem kom eftir á og hvað varð til þess? Við höfum verið að velta því lengi fyrir okkur hvort að við ættum að stækka Icewear verslunina í eyjum og fókusera meira á heimamarkað og það var bara móment núna sem við stukkum á þegar við sáum að þetta flotta verslunarpláss stóð til boða. Fatalínan er orðin það stór að við þurfum stóra verslun til að sýna almennilega það sem við erum að bjóða og svo nýja barnalínan þar að auki. Icewear hefur bara verið að slá í geng hjá Íslendingum. Það sem gerðist undanfarið árið er að Íslendingar föttuðu hvað Icewear býður flottar vörur og hvað verðin

Hver mun sjá um að reka verslunina hér í Eyjum? Verslunarstjóri í nýju versluninni verður Elín sem var áður í verslunarstjóri Icewear og Magnea mun einnig vera með okkur áfram. Svo er að sjálfsögðu alltaf pláss fyrir skemmtilegt og duglegt fólk sem vill vinna hjá flottu og framsæknu fyrirtæki. Vantar ykkur starfsfólk? Við munum alveg örugglega bæta við starfsmannateymið í eyjum á næstunni og þá bæði hluta- og helgarstörf. Hvernig verður opnunar tíminn hjá ykkur ? Við munum spila það svolítið eftir eyranu en ég geri ráð fyrir að við höfum verslunina opna flesta daga vikunnar á almennum verslunartíma en högum seglum eftir vindi og veðrum. Hver er vinsælasta varan ykkar? Vinsælustu vörur Icewear hafa verið dúnúlpur, bæði léttur dúnn en enni “puffy” þykkar dúnúlpur sem unga fólkið elskar en allar geta verið. Við höfum lagt áherslu á að hanna nýja “street” línu sem hefur slegið í gegn og erum t.d. með sportgalla sem

hafa slegið í gegn og svo eru hettupeysurnar alltaf vinsælar. Barnalínan er mjög sterk og auðvitað er allt sem tengist útivist mjög vinsælt hvort sem það eru göngubuxur, millilag eða ullarundirföt en við erum með allt á milli himins og jarðar sem tegnist útivistinni. Svo verðum við með góða útivistar- og gönguskó frá ítölsku merkjunum Salewa og Asolo og getum að sjálfsögðu alltaf sent vörur á milli verslana ef að vantar stærðir eða stíla sem ekki fást í eyjum. Hvernig virkar vinaklúbburinn ykkar? Þeir sem vilja vera “Vinir Icewear” geta skráð sig sem vinir á www. icewear.is/vinir og við erum góð við vini okkar og erum alltaf að bjóða þeim reglulega sérkjör sem munar um og þar að auki fá þeir alltaf 20% afslátt af öllum Icewear vörum og 10% af öðrum vörumerkjum. Til dæmis bjóðum við 2fyrir1 af Icewear Brim regnkápum og 4fyrir3 af sokkum og stuttermabolum þessa dagana en það er alltaf eitthvað nýtt og mjög spennandi í boði fyrir Vini Icewear. Mér finnst líklegt að Icewear gefi gestum og gangandi glaðning fyrstu dagana eftir opnun nýju verslunina, við opnum á miðvikudaginn. Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri til Eyjafólksins? Ég bara hlakka til að sýna eyjafólki betur hvað Icewear stendur fyrir í dag og allt það flotta og nýja vöruúrval sem við höfum upp á að bjóða á verðum fyrir alla - enda er útivist fyrir alla. Icewear er íslenks Hönnun fyrir íslenskra veðráttu og kjörorð Icewear eru Þín útivist – þín ánægja. Við tökum vel á móti þér segir Aðalsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Icewear að lokum.


NÝ VERSLUN

í Baldurshaga

Opnunartilboð fyrir vini

í eyjum

25% af öllum vörum Svo fá vinir Icewear alltaf sérkjör skráning á www.icewear.is/vinir - þín útivist þín ánægja


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 24.tbl 03 árg. by Leturstofan - Issuu