Tígull 23. tbl 05. árg.

Page 1

23. tbl. 05. árg. 12. - 18. júlí 2023

LJÓSMYNDASÝNINGIN „DÚKKA“

Á ljósmyndasýningunni “Dúkka“ gefur að líta 20 ljósmyndir af gömlum dúkkum. Dúkkurnar eru á bilinu 30-100 ára gamlar og eiga það allar sameiginlegt að koma úr nytjamörkuðum víðsvegar um landið.

Hugmyndin á bak við sýninguna er að þetta eru allt dúkkur sem fólk hefur losað sig við. Annað hvort voru þær á leiðinni í ruslið eða settar í nytjagáma. Allar þessar dúkkur eiga sér sögu, en við vitum hana ekki.

Kristbjörg Sigurjónsdóttir ljósmyndari ætlar að vera með ljósmyndasýningu á Veitingastaðnum

GOTT þann 13. júlí til 13. ágúst núkomandi.

Kristbjörg er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum en flutti til Reykjavíkur ásamt foreldrum sínum þegar hún var unglingur. Hún lærði ljósmyndun í Bandaríkjunum og útskrifaðist sem ljósmyndari árið 2009. Síðan þá hefur hún alltaf verið að mynda, hvort sem það hafi verið í fullu starfi eða með öðrum vinnum. Hún hefur mikið verið að mynda fólk, þá aðallega portrait, fermingar, útskriftir og brúðkaup og svo hefur hún líka myndað mikið fyrir veitingastaðinn GOTT, eins og til dæmis GOTT bókina og svo matseðla veitingarstaðarins.

Sýningin er aftur á móti í allt öðruvísi dúr en það sem hún hefur venjulega verið að mynda. Þarna nær hún að tvinna saman áhugamáli sínu á gömlum hlutum og ljósmyndun.

TÍGULL

DREIFING:

Hvað ætli það séu margar mömmur og ömmur búnar að prjóna og sauma á þær föt, hver átti þær, hvar áttu þær heima, voru þær elskaðar eða var farið illa með þær.

Dúkkurnar eru myndaðar eins og þær voru þegar ég fann þær, margar hverjar eru skítugar og það vantar jafnvel á þær hendur og fætur. Fáar fundust í fötum, kannski vegna þess að fólk geymir dúkkufötin en losar sig við dúkkurnar.

En af hverju mynda ég dúkkur?

Ætli það sé ekki vegna þess að þær eru nokkurn vegin eins og við. Við sjáum hvert annað en við vitum ekki alltaf sögu hvers og eins líkt og með þessar dúkkur.

Þannig að það var eiginlega ekki spurning hvar sýningin ætti að vera. Retro myndir í retro rými. Ég er ótrúlega þakklát henni Berglindi vinkonu minni og honum Sigga fyrir að leyfa mér að sýna myndirnar mínar á fallega veitingastaðnum þeirra.

Vonandi mæta sem flestir á opnuninni sem verður núna á fimmtudaginn klukkan 16:00, segir Kristbjörg að lokum.

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

ÚTGÁFA: SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

Auglýsing

á deiliskipulagi Miðbæjar

Strandvegur 51 (Tölvun)

Bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar samþykkti þann 22. júní 2023 að auglýsa tillögu að breytingu á Deiliskipulagi Miðbæjar, 2 áfangi, skv. Skipulagslögum nr. 123/2010.

Helstu breytingar eru að lóðar- og byggingarreitur við Standveg 51 stækkar, og hámarksfjöldi hæða eykst í 4 hæðir.

Heildar byggingarmagn var 514,6 m2 og verður 1.285 m2. Þakform er með breyttum hætti, var mænisþak en verður nú einhalla þak. Skilgreind er hámarks vegghæð 3 hæðar 9,5 m. Fjórða hæð skal vera inndregin um að lágmarki um 1,2 m og verður hámarkshæð 4 hæðar 14,0 m en var 14,5 m.

Krafa um atvinnustarfsemi á jarðhæð helst óbreytt en á hluta hæðarinnar er gert ráð fyrir bílastæðahúsi fyrir 4 bíla. Samkomulag hefur verið gert um almenna notkun af bílastæðum við Strandveg 50 utan dagtíma.

Skipulagsgögn verða til sýnis í Ráðhúsi Vestmannaeyja Kirkjuvegi 50, frá og með 3. júlí til 14. ágúst 2023 og má einnig finna í skipulagsgátt sveitafélagsins (https://www.vestmannaeyjar.is/ thjonusta/skipulag/).

Ábendingum og athugasemdum

við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 14. ágúst 2022 í afgreiðslu Ráðhúss eða á netfangið umhverfissvid@vestmannaeyjar.is

KYNNING Á STARFSFÓLKI SEA LIFE TRUST

Tanya Rós Jósefsdóttir Goremykina er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum. Hún hóf störf hjá griðarstanum í ágúst í fyrra og sér núna um gestamiðstöðina ásamt öryggi á vinnustað.

Hver er eftirminnilegasti starfsfélaginn sem þú hefur haft: Það er ofboðslega erfitt að velja, þetta er mjög fjölbreyttur og skemmtilegur hópur sem starfar hér og alltaf mjög skemmtilegt í vinnu hjá okkur. Það er alltaf áhugavert að kynnast nýju fólki úr ólíkum menningarheimum.

Hvernig er venjulegur dagur hjá þér: Dagurinn hefst vanalega á morgunfundi, svo er mikið um að svara tölvupóstum í fyrri hluta dagsins. Hver dagur er mjög fjölbreyttur en almennt er ég að sinna verkefnum í tengslum við markaðssetningu og samfélagsmiðla, meðal annars að sjá um verslunina og gestamiðstöðina.

Hvað er skemmtilegasti parturinn af starfinu: Mér finnst alltaf skemmtilegast að taka upp efni, ég fæ þá að eyða sem mestum tíma með samstarfsfólki sem er alltaf skemmtilegt, frekar en að hanga í tölvunni.

Eftirlætis dýrið sem þú hefur unnið með: Mér finnst flatfiskarnir alltaf jafn fyndnir og skemmtilegir

Sturluð staðreynd: Lundar geta kafað niður á 60 metra dýpi til að leita sér að fæðu og getur borið allt að 20 fiska í einni ferð.

Jack Willans er frá Huddersfield í Bretlandi en hann er sérfræðingur í sjávarlíffræði.

Hversu lengi hefur þú unnið á Beluga Whale Sanctuary: síðan í byrjun janúar. Ég vinn í hálft ár og þá tekur næsti starfsmaður við næsta hálfa árið.

Hvernig er dæmigerður dagur þinn: Þrif tanka og fóðra dýr ásamt því að hanna nýjar leiðir til að sýna almenningi dýrin okkar.

Hver er uppáhaldsþátturinn þinn í starfinu: Að læra allt um ný dýr sem við sjáum um og hvernig best er að hugsa um þau!

Hvert er uppáhaldsdýrið sem þú hefur unnið með: Kórallar

Kanntu eitthvað íslenskt orð: Ekki ennþá en ég hlakka til að læra.

Einhver skemmtileg staðreynd: Mjaldrar eru sú hvalategund í heiminum sem tjáir sig einna mest, sem leiðir til þess að þeir fá viðurnefnið „sjávarkanarífuglar“

Útimálning fyrir

íslenskt veðurfar

Steinvari er ö ug varnarlína gegn íslensku veðri, afrakstur þrotlausra rannsókna og þróunar í áratugi. Láttu sérfræðinga okkar aðstoða þig við val á útimálningu.

FÍNT FYRIR SUMARIÐ!

Steinvari – íslensk varnarlína í útimálningu

Viðarvörn

fyrir íslenskar aðstæður

Notaðu sumarið til að verja viðinn!

Þeir sem til þekkja nota Kjörvara á allt tréverk utanhúss. Reynslan hefur sýnt að Kjörvari er viðarvörn sem er gædd einstökum eiginleikum fyrir íslenskt veðurfar.

Kjörvari – fyrir íslenskar aðstæður

- það segir sig sjálft - – Í MEISTARA HÖNDUM
Strandvegur 30 / 481 1475 / www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is
- það segir sig sjálft -
STEINVARI
– Í MEISTARA HÖNDUM 30 afsláttur af Kjörvara & Steinvara %
GERÐU

Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma

STEFANÍA GUÐMUNDSDÓTTIR

Illugagötu 35

lést þriðjudaginn 27. júní síðastliðinn. Útför hennar fer fram frá Landakirkju

í Vestmannaeyjum föstudaginn 14. júlí kl. 13.00.

Bergur Elías Ágústsson Sigurbjörg Ágústsdóttir

Ágúst Bergsson barnabörn og barnabarnabörn

Bryndís Sigurðardóttir Hafþór Hafsteinsson

Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma

GUÐRÚN UNNUR GUÐMUNDSDÓTTIR

Lést á heimili sínu sunnudaginn 25. júní. Útför hennar fer fram frá Landakirkju

þriðjudaginn 18. júlí kl. 13.00.

Björg Guðjónsdóttir

Tanja Dögg Guðjónsdóttir

Guðjón Erik Óskarsson

Árni Valur Óskarsson

Unnur Björk Sveinsdóttir

Þórunn Emelía Sveinsdóttir

Hrannar Bent Sveinsson

Óskar Eiríksson

Sveinn Ágúst Kristinsson

VERKEFNASTJÓRI Á FJÁRMÁLASVIÐI

Icelandic Land Farmed Salmon ehf. óskar eftir að ráða öflugan verkefnastjóra á fjármálasvið félagsins. Um framtíðarstarf er að ræða í 100% stöðugildi.

Starfssvið

- Verkefnastjóri mun vinna að fjölmörgum verkefnum á fjármálasviði við uppbyggingu félagsins.

Hæfniskröfur

- Æskilegt er að verkefnisstjóri hafi viðeigandi háskólamenntun tengda fjármálum og viðskiptum.

- Háskólamenntun er þó ekki skilyrði fyrir starfi.

fjármálasviðs í síma 8612961 & hrafn@ilfs.is

Umsóknarfrestur: 16. júlí 2023

Umsóknir með ferliskrá og

kynningarbréfi skulu berast til: hrafn@ilfs.is www.ilfs.is

SUDOKU

GOSLOKAHÁTÍÐIN 2023

FRÉTTATILKYNNING FRÁ ÍBV-B

Á dögunum var haldinn aðalfundir ÍBV-B og var fundurinn vel sóttur. Kosið var um starf formanns og hlaut Stefán Róbertsson yfirburða kosningu í áframhaldandi starf. Sömu sögu er að segja af stöðu varaformanns. Þar fékk Guðmundur Ásgeir Grétarsson, hin bikaróði, öll greidd atkvæði um að gegna áfram því hlutverki. Fleiri fengu úthlutað stöðu hjá félaginu s.s. Vilmar Þór Bjarnason sem framkvæmdastjóri og Ármann Halldór Jensson sem bæjarstjóri.

Félagsfundur verður haldinn 10. október kl. 20.00.

Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför

ÁRNA JOHNSEN

blaðamanns og fv. alþingismanns, Vestmannaeyjum

VIÐ TÖKUM AÐ OKKUR

AÐ SETJA UPP

OG PRENTA SÁLMASKRÁR.

sem lést á Heilbrigðisstofnun Suður

í Vestmannaeyjum, þriðjudaginn 6.júní.s.l.

Sérstakar þakkir færum við starfsfólki HSU

fyrir góða umönnun og hlýtt viðmót.

Halldóra Filippusdótt

Helga Brá, Þórunn Dögg og barnabörn

Hafðu samband við okkur á netfangið: leturstofan@leturstofan.is eða í síma 481-1161.

Auglýsingasími

Tíguls: 481-1161

- Nýskráður 2022

- Svartur með svörtu leðuráklæði

- Fjóhjóladrifinn með öllum útbúnaði.

- Ekinn 15.000 km.

- Al rafmagnaður, 400 km drægni. Hleðslustöð fylgir.

- Felgur með Nokian negldum verardekkjum ónotaðar.

- Felgur eins og eru á myndinni fylgja.

Verð kr. 8,500.000

Upplýsingar í síma: 895 - 4770

Opnunartímar:

Mánudagur 13.00 - 17.30

Þriðjudagur - 13.00 til 17.30

Miðvikudagur - 13.00 til 17.30

Fimmtudagur - 13.00 til 17.30

Föstudagur - 13.00 til 17.30

Laugardagur - 12.00 til 15.00

Sunnudagur - lokað

Fundir eru sem hér segir: Sunnudaga kl. 11.00 Miðvikudaga kl 20.30 AL-ANON Þriðjudaga kl. 20.30 NÝLIÐAR VELKOMNIR HÁLFTÍMA FYRIR FUNDI Bókið tíma á facebook.com/thoreyljosmyndari eða á netfangi thoreyhh19@gmail.com Passamyndir Fasteignaljósmyndun 20 feta gámur til sölu! Áhugasamir hafið samband við Jón Ólaf í síma 895-8354. Til sölu! Glæsilegur Ford Mustang Mach-E SR.

FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ

20.00

LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ

KL. 15.00

LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ

HÆGT ER AÐ KAUPA MIÐA OG VELJA SÆTI Á EYJABIO.IS
KL. KL. 15.00 KL. 20.00

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.