Skip to main content

Tígull 22.tbl 02árg.

Page 1

22. tbl. 02. árg. 17 - 24. júní 2020


FJÖLMENNT Í UFSASKALLAMÓTINU UM SÍÐUSTU HELGI

Ufsaskallamótið var haldið þann 13. júní síðastliðinn. En mótið er haldið árlega og var þetta haldið í 10. sinn í ár. Eins og undanfarin ár þá rennur allur ágóði mótsins til góðgerðarmála. Ekki er komin lokatala á hversu mikið safnaðist en mótshaldarar sögðu vel á aðra milljón hafi komið inn. Mótið gekk vel fyrir sig og voru allir mjög sáttir með það en alls tóku 63 þátt í golfmótinu. En mótið var spilað sem Texas scramble.

TÍGULL

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


Lausar íbúðir hjá Vestmannaeyjabæ fyrir eldri borgara Þjónustuíbúð við Eyjahraun Vestmannaeyjabær auglýsir lausa til umsóknar þjónustuíbúð eldri borgara við Eyjahraun 1. Þjónustuíbúð er ætluð þeim einstaklingum sem þurfa meiri stuðning og aðstoð en hægt er að veita í heimahúsi en heilsufar ekki orðið það slæmt að þörf er fyrir hjúkrunarrými (á stofnun). Grundvallarþættir mats fyrir þörf á þjónustuíbúð eru líkamlegt og andlegt heilsufar umsækjanda. Íbúðin er 43,6 fermetrar. Leiguverð fylgir leiguverði annarra íbúða hjá Vestmannaeyjabæ. Að auki greiða leigjendur fyrir þjónustupakka, sem m.a. innifelur í sér öryggiskerfi, dagþjónustu frá Hraunbúðum á virkum dögum, fæði, aðstoð við heimilishald og innlit kvölds og morgna. Umsóknarfrestur er til 1. júlí nk. Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á Rauðagerði, gengið inn sunnanmegin. Umsóknum og fylgigögnum skal einnig skilað þangað. Ekki er þörf á að staðfesta eldri umsóknir. Nánari upplýsingar veitir Margrét Ingólfsdóttir í síma 488-2000 eða á netfanginu: margret@vestmannaeyjar.is.

Almenn leiguíbúð fyrir eldri borgara í Sólhlíð Vestmannaeyjabær auglýsir lausa til umsóknar íbúð fyrir eldri borgara í Sólhlíð 19. Íbúðin er 49,2 fermetrar. Leiguverð fylgir leiguverði annarra íbúða hjá Vestmannaeyjabæ. Við mat á umsóknum er horft m.a. til tekna, eigna, heilsufars o.fl. Umsóknarfrestur er til 1.júlí nk. Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á Rauðagerði, gengið inn sunnanmegin. Umsóknum og fylgigögnum skal einnig skilað þangað. Eldri umsóknir óskast staðfestar. Nánari upplýsingar veitir Margrét Ingólfsdóttir í síma 488-2000 eða á netfanginu: margret@vestmannaeyjar.is.

www.vestmannaeyjar.is


KVENNAHLAUP ÍSÍ OG SJÓVÁ VAR HALDIÐ UM SÍÐUSTU HELGI

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fór fram um síðustu helgi í 31. sinn. Frábært hlaupaveður var víðast hvar um landið og þátttakendur geisluðu af orku og krafti. Góð þátttaka var í hlaupinu í heildina en gera má ráð fyrir að um 8.000 konur hafi tekið þátt á hátt í 70 stöðum um allt land. Að vanda var boðið upp á mismunandi vegalengdir eða allt frá 900 m upp í 10 km. Mikil og góð stemning var hjá þátttakendum, ungum sem öldnum og gleði og kátína skein úr hverju andliti. Þátttakendur á öllum aldri komu saman og áttu skemmtilega stund þar sem sumir hlupu en aðrir gengu. Alls tókum 50 manns þátt hér í Vestmannaeyjum.


KOKKURINN Á BAKVIÐ MYNDAVÉLINA

Listamaðurinn á bakvið verkefnið 1000 Andlit Heimaeyjar heitir Bjarni Sigurðsson. Bjarni er fæddur og uppalinn í Reykjavík. Hann er giftur Kristjönu Margréti Harðardóttur, einni af blómarósum eyjanna og svo er það hundurinn Moli. Tígull tók létt spjall við Bjarna. Hvenær byrjaði ljósmyndaáhuginn? Ég smitaðist af bróður pabba, honum Garðari og Eysteini afa mínum. Ég eyddi öllum fermingarpeningunum mínum í mína fyrstu Olympus filmuvél (1987) Menntun og atvinna? Ég byrjaði að kokka á Næturgrillinu 1986 þá aðeins 13 ára gamall, lærði svo á Café Óperu, útskrifaðist 1994 og kláraði meistaraskólann 1999. Ég fór í ljósmyndun á upplýsinga- og margmiðlunarbraut IR 2006. Ég vinn upp á spítala, sé um daglegan rekstur á eldhúsinu þar.

Af hverju 1000 Andlit Heimaeyjar? Þetta er gömul pæling, alltaf langað að mynda fjölda fólks og stæla ljósmyndarann Yousuf Karsh, en aldrei gert neitt með það fyrr en núna. Sá svo skemmtilegt verkefni hjá Ljósop, ljósmyndaklúbbur á Reykjanesi sem heitir Andlit Bæjarins og er búinn að pæla vel í þessu í nokkur ár og lét vaða núna fyrst við erum flutt til Eyja. Hvaða græjur notarðu í ljósmyndun? Ég hef notað, prófað og átt alflestar tegundir en núna nota ég Fujifilm. Í verkefnið nota ég Fujifilm XT2 og er með XT1 sem vara vél með 56mm 1.2 apd linsu. Ég hvet áhugafólk um ljósmyndun um að kíkja á setupið hjá mér. Hver eru þín helstu áhugamál fyrir utan ljósmyndun? Crossfit og hlaup. En ég er meiddur í augnablikinu, er að jafna mig eftir vinnuslys.

Ætlar þú að taka þátt í 7 tinda göngunni í sumar? Já það ætla ég sannarlega að gera. Þar sem þú ert menntaður matreiðslumeistari, hvaða matur er þinn uppáhalds? Allur matur sem einhver annar eldar fyrir mig. En að öllu gríni slepptu þá elska ég mest villibráð, fugla. Hefur þú farið upp á Heimaklett? Já ég hef farið tvisvar sinnum sem er alltof sjaldan en ég vil helst hafa einhvern vanann með mér þar sem ég er lofthræddur. Ertu sáttur við viðtökur verkefnisins 1000 Andlit Heimaeyjar? Já mjög ánægður og gaman hvað þetta verkefni er að vaxa. Þakklátur öllum þeim sem hafa tekið þátt í þessu með okkur.


ER KOMINN TÍMI TIL AÐ MÁLA?

STEINVARI

Útimálning fyrir íslenskt veðurfar Steinvari er öflug varnarlína gegn íslensku veðri, afrakstur þrotlausra rannsókna og þróunar í áratugi. Láttu sérfræðinga okkar aðstoða þig við val á útimálningu.

Opið: 08:00 - 18:00 virka daga og 10:00 - 14:00 laugardaga

Steinvari – íslensk varnarlína í útimálningu – Í MEISTARA HÖNDUM

- það segir sig sjálft -


SUDOKU


TIlboð 1 OSTBORGARATILBOÐ, FRANSKAR & GOS

+300 BÆTA VIÐ BEIKON eða BREYTA Í GRÁÐAOSTABORGARA +400 BREYTA Í KJÚKLINGABORGARA eða TVÖFALDANN

STRANDVEGUR 79 OPIÐ ALLA DAGA FRÁ 11:30 – 20:30

2000

tilboð 3 VÆNGJAPLATTI: 12 VÆNGIR LÖÐRAÐIR Í SÓSUNUM OKKAR, HRÁSALAT & GOS

2400

BARNA

HAMBORGARI, FRANSKAR & EPLADJÚS KJÚLLALEGGIR, FRANSKAR & EPLADJÚS

2000

tilboð 2 3 KJÚKLINGABITAR Í KRYDDHJÚP (LÆRI & LEGGIR) FRANSKAR & GOS

2400

tilboð 4 FISKUR Í BJÓRDEIGI, FRANSKAR OG GOS

1500


TM MÓTIÐ HEPPNAÐIST VEL

TM mótið var haldið í Eyjum um síðustu helgi en mótið er ætlað stúlkum í 5. flokki. Tígull heyrði í Sigríði Ingu Kristmannsdóttur mótstjóra TM mótsins.

á öllum vöktum til að geta aukið þrif og sótthreinsun á snertiflötum, hólfa áhorfendasvæði niður, fjölga veitingasölum ofl.

Undirbúningur fyrir mótið byrjaði um miðjan október, en skráning hófst í byrjun nóvember og lauk í byrjun desember. Í janúar gáfum við út liðafjölda sem ræðst af aðsókninni á mótið. Við þurfum að vera snemma í því að skipuleggja mótið þar sem foreldrar vilja tryggja sér far til Eyja og gistingu snemma.

Þrátt fyrir þetta var mótið það stærsta hingað til með 100 liðum frá 31 félagi, tæplega 1000 keppendur, sem er 4 liðum fleiri en í fyrra og 12 liðum fleiri en 2018. Mesta vinnan fer fram fyrir mótið, en þá þarf að setja upp allt skipulag t.d. leikjaplan, bátsferðir, gistiplan, Herjólfsferðir, matarvaktir, dómaravaktir, vaktir í skólum ofl.

Í ár ætluðum við að flýta lokagreiðslum til að geta hafið lokaundirbúninginn fyrr, en vegna covid þá þurftum við að seinka þeim þannig að þær komu mikið seinna en venjulega og mörg félög áttu eðlilega erfitt með að taka ákvörðun um þátttöku sína á mótinu. Lokaundirbúningurinn var því enn styttri en venjulega og mikið meira sem þurfti að skipuleggja þar sem við þurftum að fjölga starfsfólki

Ef að undirbúningurinn er góður og allir vita hvert þeirra hlutverk er þá er hlutverk mótsnefndar á mótinu sjálfu nánast bara að vera til staðar og taka á því sem upp getur komið, ásamt því að hnýta nokkra lausa enda sem ekki er hægt að klára fyrir mót. Mótið í ár gekk ótrúlega vel, gestirnir okkar voru duglegir að taka tillit til þeirra reglna sem við settum í samráði við aðgerðastjórn almannavarna og virtust allir vera

á því að mótið í ár snerist fyrst og fremst um það að gera mótið ógleymanlegt fyrir stelpurnar. Aðgengi fullorðinna var takmarkað í lokuðu rýmin oþl. ákváðum við að sýna hæfileikakeppnina í beinni á ÍBV TV. Hægt að sjá öll úrslit mótsins á tmmotid.is

Sigríður Inga Kristmannsdóttir mótstjóri TM mótsins, Hörður Orri Grettisson framkvæmdastjóri ÍBV og Arnar Gauti Grettisson starfmaður ÍBV.


ATVINNA Í BOÐI Járniðnaðarmaður Vélaverkstæðið Þór óskar eftir að ráða vanan járniðnaðarmann í fullt starf. Starfið felur í sér almenna málmsmíði og þjónustu við iðnaðinn. Hæfniskröfur Menntun/reynsla af málmsmíði og vél­tækni. Nákvæm, sjálfstæð og fagleg vinnubrögð. Góð samskiptahæfni, stundvísi og frumkvæði í starfi. Reynsla af rennismíð kostur. Upplýsingar veita:

Haraldur Guðbrandsson, verkstjóri 868-4550/ halli@velathor.is Sævald Páll Hallgrímsson, framkvæmdarstjóri 898-7567/ saevald@velathor.is Umsóknarfrestur er til 1. júlí 2020


SÁ HEPPNASTI OG FLOTTASTI KOM SÁ OG SIGRAÐI

„Við erum hér komin saman til að samfagna með Ríkharði Zoega Stefánssyni í tilefni þess að hann heldur nú sína fyrstu einkasýningu,“ sagði Jóhann Pétursson, hæstaréttarlögmaður þegar hann ávarpaði yfir 100 manns á opnun sýningar Rikka í Gracious krónni á föstudaginn sem Jóhann á með Helga Braga, Sigurjóni Ingvars og Karli Haraldssyni sem var með hæsta boðið í magnað málverk af Heklu.

um 600.000 til 700.000 krónur sem er klár snilld,“ sagði Sigga Stína.

Verkin 27 heilluðu og seldust grimmt og ekki skemmdi fyrir að hver einasta króna rann til Krabbavarnar í Vestmannaeyjum. Sagði Sigurbjörg Kristín Óskarsdóttir, formaður Krabbavarnar að með þessu væri Rikki í raun að bjarga fjárhag félagsins.

Sjálfur var Rikki, sem er kokkur á Bergey VE, hógværðin ein og sagðist dunda sér við að mála í inniverum og þegar konan hellir sér í læknaþætti í sjónvarpinu. „Þá Skelli ég mér í að mála. Við Matta höfum nóg að bíta og brenna og því ekki nema sjálfsagt að styrkja starf Krabbavarnar með þessu,“ sagði Rikki. „Það var árið 1984 að Rikki og Matthildur Einarsdóttir, eða Matta kynnast og dæturnar eru tvær, Guðbjörg og Fjóla Sif. Rikki er fyrirmyndarborgari og hvers manns hugljúfi. Þá er Rikki jafnframt þremenningur við Guðna Th. forseta. Geri aðrir betur. Mikilvægt að þetta komi fram,“ sagði Jóhann.

„Alls voru 27 myndir á sýningunni, af þeim var ein boðin upp og seldist hún hæstbjóðanda, Kalla Haralds. Ekki eru allir búnir að leggja inn en okkur reiknast til að salan gæti verið

Byrjaði hjá Fúsa Rikki hefur verið á sjó í rétt 42 ár og þar af í 23 ár á einhverri Eyjanna, Vestmannaey og Bergey. „En listagyðjan hefur aldrei verið langt

undan og óhætt er að segja að sá grunnur sem að Sigfús Halldórsson, tónskáld lagði við myndlistarkennslu Rikka í Langholtsskóla í den hafi reynst listamanninum vel. Rikki byrjaði formlega að mála á aldamótaárinu 2000, hefur haldið nokkrar samsýningar og er félagi í Myndlistarfélagi Vestmannaeyja.“ Sýningin hét, Heimsins heppnasti tengdapabbi eða Flottasti tengdapabbi í heimi. „Aðspurður um hvernig það kom til svaraði Rikki því strax að það hefði átt að vera öllum sem til þekkja ljóst, að þarna væri um kaldhæðni að ræða. En þetta hefði nú snúist í höndunum á sér og nú væru tengdasynirnir, Ágúst og Sævald að fá allt hrósið. En svona er þetta bara, maður trúir þeim fyrir dætrunum og verður bara að vona það besta, vera jákvæður og fá sér smá bjór af og til. Svona er bara lífið,“ hafði Jóhann eftir Rikka.“


Hógvær Jóhann sagði listamanninn fyrir löngu orðinn lifandi goðsögn í Eyjum sakir dugnaðar og ósérhlífni. „Hann flakar ofan í hálfa eyjuna og félagasamtök, hefur staðið vaktina í Sjómannadagsráði í 15 ár og allt með sömu hægðinni og hógværðinni sem hann er þekktur fyrir. Auðvitað dettur ykkur strax í hug að svona öðlingur hljóti að vera lögfræðingur en það er miklu betra en það, hann er auðvitað Leedsari og reyndar einstakt eðaleintak af slíkum. Svona erum við Leedsarar, miklar fyrirmyndir og gæðablóð.“ Það var mikið fjör við opnunina, króareigendur lögðu til drykkjarföng og Halli á Canton mat í hæsta gæðaflokki.


GRÍSKAR KJÖTBOLLUR - Uppskrift vikunnar -

Grískar kjötbollur (fyrir 4) Hráefni: 1 kg blandað hakk (naut og svín) 100g hveiti 1 egg 1/2 dl mjólk 100g fetaostur 50g svartar ólífur 50g saxaður laukur 4 geirar hvítlaukur 2 tsk piparmix 1 tsk salt Mynta eftir smekk Aðferð: Hrærið saman hakki, eggi, mjólk og kryddi. Þegar hakkblandan er orðin vel hrærð er hveitinu stráð yfir meðan hrært er. Lauknum, ólífunum og fetaostinum er blandað saman við og hrært.

Köld agúrku sósa Hráefni: 200g grísk jógúrt 200g mæjones 1 msk hunang 1/2 agúrka 1/2 rauðlaukur 2 geirar hvítlaukur 2 msk söxuð steinselja salt og pipar

Volgt kartöflusalat Hráefni: 400g af soðnum kartöflum bolli af skornum blaðlauk 1 dl Relish 3 msk Capers 1/2 rauðlaukur 1 vorlaukur 2 geirar hvítlaukur 1 dl ólífuolía 3 msk eplaedik fersk steinselja dill salt og pipar

Aðferð: Mæjonesinu er hrært og grísku jógúrtinni bætt saman við. Hvítlaukur pressaður og settur út í. Hunanginu bætt við. Agúrkan rifin og rauðlaukur smátt saxaður og öllu hrært saman. Að lokum er steinseljan sett út í og salt og pipar.

Aðgerð: Kartöflurnar soðnar, skrældar og skornar niður í bita. Allt nema kartöflunum skellt á pönnu og hitað upp. Ekki látið sjóða. Þessu er hellt yfir kartöflurnar og blandað varlega saman. Má vera kalt eða borið fram volgt.

Næst er þetta formað í litlar bollur. Má steikja á pönnu eða skellt í bakaraofninn.


/crispus

Opnum 9, 10 eða 11 fer eftir pöntunum og erum til 18:00 virka daga. Hægt að panta í síma 772-6766 eða senda skilaboð á facebookinu okkar.

Á AÐ SKORA Á FÉLAGANA?

KOMDU OG KÍKTU VIÐ! OPIÐ FRÁ 16:00 OG ÞANGAÐ TIL VÍÐIR LEYFIR

Tannlæknar 22. - 25. júní Hjalti Þórðarson

Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40

Tímapantanir í síma 481-2772

FIMMTÍU FIMMTÍU ÁR ÁR

FIMMTÍU FIMMTÍU PRÓSENT PRÓSENT 50% 50% afsláttur afsláttur af af öllum öllum flugsætum flugsætum íí allt allt sumar sumar –– bókað bókað áá ernir.is ernir.is

Við bjóðum upp á trjá og runnaklippingar, almenna umhirðu garða og ráðleggingar með plöntuval. Ráðgjöf. Sælandsgarðar ehf Eiríkur Sæland S: 848-1723


Wizar ...fyrir lífsins ljúfu stundir

Hægindastóllinn sem slegið hefur í gegn og Íslendingar elska! 360° snúningur I innbyggður fótaskemill hallanlegt bak I stillanlegur höfuðpúði Fáanlegir Wizar litir Verð frá

199.900 kr.

VOGUE FYRIR HEIMILIÐ I SÍÐUMÚLI 30 - REYKJAVÍK I HOFSBÓT 4 - AKUREYRI I 533 3500 I VOGUE. IS


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 22.tbl 02árg. by Leturstofan - Issuu