Skip to main content

Tígull 21.tbl 02árg.

Page 1

21. tbl. 02. árg. 10 - 17.júní 2020

ÞÚSUND ANDLIT HEIMAEYJAR


KVENNAHLAUP SJÓVÁ OG ÍSÍ LAUGARDAGINN 13. JÚNÍ

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ 2020 fer fram laugardaginn 13. júní. Hlaupið verður frá íþróttamiðstöðinni líkt og undanfarin ár. Það verða tvær leiðir í boði, 5 km og 2,5 km. Boðið verður upp á kirstal og gjöf frá Nivea líkt og áður. Í ár kostar ekkert í hlaupið og þú mætir í þínum bol eða fjárfestir í nýja bolnum. Hægt er að kaupa nýja kvennahlaupsbolinn inn á trix.is en takmarkað magn er í boði. 30 ár er síðan fyrsta kvennahlaupið

TÍGULL

var haldið. Í ár er markmið hlaupsins að hvetja konur til þess að gera hlutina á eigin forsendum og nær sú hugsun langt út fyrir hlaupið og líkamsrækt. Kvennahlaup nútímans snýst um hreyfingu sem hentar hverjum og einum, samveru kynslóðanna, líkamsvirðingu, sanngirni, umhverfismeðvitund og valdeflingu. Einkunnarorð Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ 2020 eru „Hlaupum saman“. Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer sem fyrr segir fram þann 13. júní á yfir

80 stöðum á landinu og allir geta tekið þátt óháð aldri, þjóðerni eða kyni. Fjölmennustu hlaupin fara fram í Garðabæ og Mosfellsbæ kl. 11 laugardaginn 13. júní. Nánari upplýsingar um alla hlaupastaði og tímasetningar birtast á www. kvennahlaup.is. Í ljósi Covid–19 verða gerðar ráðstafanir um fjölda þar sem það á við og allar reglur virtar skilyrðislaust. Þátttakendur eru hvattir til að gera sínar eigin ráðstafanir og virða þessar aðstæður.

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir. Forsíðumynd: Addi í London. Einnig tók hann útskriftarmyndirnar.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


900 grillhús hefur breytt áherslum sínum og breytt salnum og mun framvegis heita 900 Bar. Búið er að útbúa kósý horn í veitingasalnum og koma upp gæða píluspjaldi sem gestum býðst að nota án endurgjalds. Einnig er í boði skemmtilegur kokteilaseðill og nýr snackseðill, t.d. ostaplatti, eðla og Doritos, beikonvafðar döðlur og super nachos. Komdu með auglýsinguna og fáðu 2fyrir1 af þínum drykk gegn framvísun hennar. Frá Júní verður alltaf í boði Bjór mánaðarins á 900 kr og kokteill mánaðarins á 1.900kr. Framvegis verður einnig ein 16" pizza af matseðli valin sem pizza mánaðarins og mun hún kosta aðeins 1.900kr í take away. Fylgstu með okkur á Facebook og þá missir þú ekki af bestu tilboðunum okkar og pílumótunum.

Við vonumst til að sjá þig fljótlega á 900! Ó, og ekki gleyma því að koma með þessa auglýsingu til að fá 2 drykki á verði eins! Opið alla daga! frá Sun-Fim 18:00-23:00 og Fös-Lau 12:00-2:00 Happy hour alla daga frá 21:00 til 22:30 Eldhús opið til 22:00 og heimsending sömuleiðis

Samhliða venjulegum matseðli okkar höfum við einnig SÉRSTÖK TILBOÐ fyrir TAKEAWAY eða heimsendingu: 12" Pizza með 3 áleggjum + 12" Hvítlauksbrauð eða ostabrauðstangir 2900kr 16" Pizza með 3 áleggjum + 16" Hvítlauksbrauð eða ostabrauðstangir + 2L gos 3900kr 2x 16" Pizza með 3 áleggjum + 1x Brauðstangir að eigin vali + 2L gos 5300kr Pizzadeig til heimabökunar 500kr Heimsending á tilboðum 600kr

482 1000


SJÓMANNADAGSHELGIN HALDIN HÁTÍÐLEG


1000 ANDLIT HEIMAEYJAR FER VEL AF STAÐ

Við erum hæst ánægð með þátttökuna í þessu skemmtilega verkefni og eru um 240 myndir sem hafa verið teknar. Markmið okkar er að ná yfir 1000 andlitum. Næstu myndatökur verða næstkomandi fimmtudag og föstudag frá kl. 16:00 til 20:00.

Laugardag og sunnudag frá kl. 12:00 til 17:00. Viljum hvetja hópa og vinnustaði til að koma saman til okkar. Hægt er að senda okkur skilaboð í gegnum facebooksíðuna 1000 andlit Heimaeyjar og við finnum tíma sem hentar ykkur. Hægt er að finna myndirnar á facebooksíðu verkefnisins.

Það væri frábært ef þið mynduð merkja ykkur á myndirnar eða setja #1000andlitheimaey. Hérna eru nokkur sýnishorn af myndum frá tökum í síðustu viku.


Viðarvörn

fyrir íslenskar aðstæður Notaðu sumarið til að verja viðinn! Þeir sem til þekkja nota Kjörvara á allt tréverk utanhúss. Reynslan hefur sýnt að Kjörvari er viðarvörn sem er gædd einstökum eiginleikum fyrir íslenskt veðurfar.

Opið: 08:00 - 18:00 virka daga og 10:00 - 14:00 laugardaga

Kjörvari – fyrir íslenskar aðstæður – Í MEISTARA HÖNDUM

- það segir sig sjálft -


EIRÍKUR SÆLAND MÆTTUR Í SLAGINN

Eiríkur Sæland, sem hér rak blómabúð í mörg ár hefur snúið aftur og býður Eyjafólki þjónustu sína. Hann hefur verið að vinna fyrir Vestmannaeyjabæ en segist líka hafa tíma fyrir einstaklinga. „Nú á öllum vorverkum að vera lokið, eins og að klippa tré og runna og fella tré sem skyggja á sólu. Líka beðahreinsun og hirðingu. Ég hef mikla reynslu í umhirðu garða, klippingum og trjáfellingum. „Ég get líka veitt ráðgjöf, gert

kostnaðaráætlanir og komið með bæði glæsilegar og hagkvæmar lausnir,“ segir Eiríkur. Hann segir nauðsynlegt að klippa limgerði reglulega til að viðhalda því og þétta og koma í veg fyrir að það gangi úr sér. „Ég get unnið öll þessi verk og séð um garðslátt, beðahreinsun og alla umhirðu garða fyrir húsfélög, fjölbýlishús, stór og lítil fyrirtæki og stofnanir.“ Eiríkur mætir á svæðið, skoðar

Við bjóðum upp á trjá og runnaklippingar, almenna umhirðu garða og ráðleggingar með plöntuval. Ráðgjöf. Sælandsgarðar ehf Eiríkur Sæland S: 848-1723

umfang verksins, gerir áætlanir með húseigendum og leysir í kjölfarið verkið af fagmennsku, fljótt og örugglega, á hagkvæman hátt. „Það er gaman að rifja upp kynnin við ykkur Eyjafólk sem ég þjónaði í mörg ár. Ég hef bætt við mig reynslu og þekkingu þessi ár á fastalandinu og legg áherslu á persónulega þjónustu og vandaða vinnu. Að gera góða garða enn betri“ sagði Eiríkur að endingu.


TIlboð 1 OSTBORGARATILBOÐ, FRANSKAR & GOS

+300 BÆTA VIÐ BEIKON eða BREYTA Í GRÁÐAOSTABORGARA +400 BREYTA Í KJÚKLINGABORGARA eða TVÖFALDANN

STRANDVEGUR 79 OPIÐ ALLA DAGA FRÁ 11:30 – 20:30

2000

tilboð 3 VÆNGJAPLATTI: 12 VÆNGIR LÖÐRAÐIR Í SÓSUNUM OKKAR, HRÁSALAT & GOS

2400

BARNA

HAMBORGARI, FRANSKAR & EPLADJÚS KJÚLLALEGGIR, FRANSKAR & EPLADJÚS

2000

tilboð 2 3 KJÚKLINGABITAR Í KRYDDHJÚP (LÆRI & LEGGIR) FRANSKAR & GOS

2400

tilboð 4 FISKUR Í BJÓRDEIGI, FRANSKAR OG GOS

1500


BÆTT ÞJÓNUSTA FYRIR EYJAMENN

Blaðamaður Tíguls heyrði í Ingimari Andréssyni stöðvarstóra Íslandspósts í Vestmannaeyjum. En miklar breytingar hafa átt sér stað þar nýverið með aukinni áherslu á gæði og hraða í þjónustu póstsins. Þessi breyting verður til vegna stefnu Íslandspósts í bættri þjónustu til viðskiptavina og í raun stærsta þjónustubreyting hjá Íslandspósti í Vestmannaeyjum frá upphafi eða síðan póstsendingum með flugi var hætt til Eyja.

Sendingarnar koma í hús kl. 11:30 alla virka daga sem gerir okkur kleift að afhenda þær samdægurs. Með því að fylgja sendingunni sjálf alla leið, bæði yfir á eyjuna og heim að dyrum fyrir þá sem panta heimsendingu, náum við að tryggja gæði þjónustunnar alla leið. Þetta flýtir fyrir allri afgreiðslu og getum við því boðið betri þjónustu og allt tilbúið til afhendingar um hádegi.

Breytingin er sú að allt sem er póstlagt í Reykjavík í dag getum við ábyrgst að verið komið til þín í Eyjum daginn eftir.

Áður vorum við að fá vörurnar seinna og vörur að koma inn seinnipart dags og gátum við því ekki alltaf afhent þær samdægurs.

Það er okkur mjög mikilvægt að geta þjónustað Eyjamenn sem allra best og við fögnum því að geta nú afgreitt íbúa eyjunnar hraðar og betur en áður.

Eins er nú í boði viðbótarþjónusta, sem felur í sér að þú getur skilað af þér sendingum til kl. 16:30 þegar við lokum móttöku og það er komið til Reykjavíkur daginn eftir.

Ég verð líka að fá að koma því á framfæri hvað ég er stoltur af starfsfólkinu mínu sem stóð sig frábærlega í covid ástandinu, og gerir auðvitað alltaf, en á þessum tíma var gífurlegt álag eða á við jólatörn. Á vinnustaðnum er frábær stemning og starfsfólkið vinnur vel saman. Við erum í góðu samstarfi við Herjólf en það ásamt betri samgöngum er að sjálfsögðu grunnurinn að þessari auknu þjónustu okkar.


30%

AFSLÁTTUR

AF ÖLLUM HERRAFATNAÐI

SÍÐASTI SÉNS AÐ NÆLA SÉR Í HERRAFÖT Í SMART!

/smarteyjan #smarteyjan smarteyjan www.smartey.is | Smart | Vestmannabraut 30 | sími: 481 3340


K

YN

N

IN

G

Hjónin Bergvin Oddsson og Fanný Rósa Bjarnadóttir reka 900 Bar. Blaðamaður Tíguls kíkti á þau í vikunni og fékk að skoða og heyra hvað þau hafa upp á að bjóða. 900 Grillhús hefur breytt áherslum sínum og breytt salnum og mun framvegis heita 900 Bar. Búið er að útbúa kósý horn í veitingasalnum og koma upp gæða píluspjaldi sem gestum býðst að nota. Pílan er mjög vinsæl og planið er að halda pílumót sem munu verða auglýst þá sérstaklega.

þar sem við erum að reka Aska hostel og getum þá boðið gestum okkar upp á morgunmat sem dæmi. En auðvitað er þetta mikil viðbrigði fyrir hjúkrunarfræðing og stjórnmálafræðing að fara út í svona rekstur og við vorum nú ekki alveg viss út í hvað við værum að fara en ákváðum að stökkva í djúpu laugina. Þetta er búið að vera mjög krefjandi en skemmtilegur tími og hlökkum við til framhaldsins og vonum að það muni rætast aðeins úr sumrinu þrátt fyrir covid-19,“ segir Bergvin.

Við ákváðum að færa staðinn meira út í barstemningu, þar sem hægt er koma í drykk, pizzu eða snakkseðil.

Hvað eru margir að vinna á 900 bar? Við erum með 8 manns sem starfa hjá okkur en erum að leita eftir sumarstarfsfólki.

Hvernig var að fara í þessi verkefni saman að reka heimili og tvö fyrirtæki? „Þetta er heilmikið púsluspil en þetta tekst með því að fá fólk til að vinna með sér en ekki fyrir sig. Við hjónin stukkum á þetta tækifæri

Hvaða nýung eruð þið að bjóða upp á? Við tókum matseðilinn í gegn og erum núna eingöngu að bjóða upp á pítsur og snakkseðil sem inniheldur t.d ostaplatta, eðlu og Doritos, beikonvafðar döðlur og super

nachos. Einngi erum við með nýjan kokteilaseðil. Frá Júní verður alltaf í boði bjór mánaðarins á 900kr og kokteill mánaðarins á 1.900kr. Framvegis verður einnig ein 16” pizza af matseðli valin sem pizza mánaðarins og mun hún kosta aðeins 1.900kr í take away. Við erum líka með Happy Hour millli 21:00 - 22:30 alla daga vikunnar. Við ætlum einnig að vera með pop up helgar þar sem verða sérstakir réttir stakar helgar bæði í sumar og í vetur. Hvernig er opnunartíminn á 900 Bar? Við erum með opið sunnudaga til fimmtudaga 10:00 - 23:00 og svo föstudaga og laugardaga 12:00 til 23:00. Pizzaofninn alltaf opinn til 22:00. Hægt er að hafa samband við okkur - ef áhugi er fyrir hópapantir og fá tilboð.


Dagskrá

17. júní

9:00

Fánar dregnir að húni í bænum.

10:30 Hraunbúðir

Fjallkonan –Viktoría Dís Viktorsdóttir flytur hátíðarljóð Tónlistaratriði – Skólalúðrasveitin flytur nokkur lög.

11:30 HSU Vestmannaeyjum

Skólalúðrasveitin flytur nokkur lög

15:00

Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur fyrir heimilisfólk og aðra hátíðargesti á Hraunbúðum.

13:30 Íþróttamiðstöð

Bæjarbúar og aðrir gestir safnast saman fyrir skrúðgöngu. Lagt af stað kl. 13:45. Gengið verður í lögreglufylgd frá Íþróttamiðstöðinni niður Illugagötu, inn Faxastíg og áfram Vestmannabraut að Stakkagerðistúni. Fánaberar úr Skátafélaginu Faxa leiða gönguna og félagar úr Lúðrasveit Vestmannaeyja leika undir.

14:00 Stakkagerðistún

Helga Jóhanna Harðardóttir, formaður fjölskyldu- og tómstundaráðs, setur hátíðina. Lúðrasveit Vestmannaeyja flytur nokkur lög. Börn af Víkinni, 5 ára deild, syngja nokkur lög. Hátíðarræða – Lóa Baldvinsdóttir Andersen. Fjallkonan – Viktoría Dís Viktorsdóttir flytur hátíðarljóð. Fimleikasýning fimleikafélagsins Ránar. Ávarp nýstúdents – Daníel Scheving Pálsson. Tónlistaratriði – Sara Renee Griffin. Hoppukastalar og fjör. Frítt inn á Sagnheima í tilefni dagsins. Leikfélag Vestmannaeyja


SUDOKU

ÞÚSUND ANDLIT HEIMAEYJAR

VERTU MEÐ! Mættu á Leturstofuna Strandvegi 47 og láttu smella af þér!

Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi

GRÉTAR ÞORGILSSON

skipstjóri og útgerðarmaður frá Vestmannaeyjum

lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands Vestmannaeyjum, sunnudaginn 31. maí sl. Útförin fer fram frá Landakirkju Vestmannaeyjum föstudaginn 12. júní kl. 14.00. Þórunn Pálsdóttir Ómar Garðarsson Þorsteina Grétarsdóttir Herdís Kristmannsdóttir Páll Sigurgeir Grétarsson Jósebína Ósk Fannarsdóttir Gunnar Grétarsson Einar Hallgrímsson Margrét Íris Grétarsdóttir Ari Steindórsson Lára Huld Grétarsdóttir Sæfinna Ásbjörnsdóttir Sindri Þór Grétarsson Örn Thorstensen Guðbjörg Grétarsdóttir Barnabörn og barnabarnabörn.


/crispus

Opnum 9, 10 eða 11 fer eftir pöntunum og erum til 18:00 virka daga. Hægt að panta í síma 772-6766 eða senda skilaboð á facebookinu okkar.

Tannlæknar OPIÐ FRÁ 16:00 OG ÞANGAÐ TIL VÍÐIR LEYFIR

KOMDU OG KÍKTU VIÐ!

22. - 25. júní Hjalti Þórðarson

Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40

Tímapantanir í síma 481-2772

ÖKUKENNSLA

SNORRA RÚTS

FIMMTÍU FIMMTÍU ÁR ÁR

Kennslubifreið: Mercedes Benz C200-C01

• Akstursmat • Endurtökupróf • Ökuskóli

20 ára reynsla! Sími 692-3131

FIMMTÍU FIMMTÍU PRÓSENT PRÓSENT 50% 50% afsláttur afsláttur af af öllum öllum flugsætum flugsætum íí allt allt sumar sumar –– bókað bókað áá ernir.is ernir.is

Hönnun / umbrot á auglýsingaefni / greinaskrif Bæklingar - vefbanner - fréttabréf - auglýsingasala o.fl. leturstofan@leturstofan.is

Viltu auglýsa fyrirtækið þitt eða koma greinum á framfæri? Sendu okkur á netfangið: tigull@tigull.is


20 20 Andrea Jónsdóttir klæðist bol í stærð XL

Hallveig Jónsdóttir klæðist bol í stærð XS

Margrét Erla Maack klæðist bol í stærð xxL

Elín Metta Jensen klæðist bol í stærð XS

Elíza Reid klæðist bol í stærð M

Emma og Írena klæðast bolum í stærð XS, Arney í 11–12 ára, Viktoría í 4–6 ára

Silja Úlfarsdóttir klæðist bol í stærð M

Donna Cruz klæðist bol í stærð S

Martha Ernstdóttir klæðist bol í stærð XS


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 21.tbl 02árg. by Leturstofan - Issuu