

UPPSKRIFT VIKUNNAR
Mozzarella fiskréttur
Þessi fiskréttur er svo fljótlegur og góður, akkúrat það sem maður þarf í miðri viku. Pestóið og mozzarella osturinn gefa svo gott bragð. Með þessum rétti er gott að hafa hrísgrjón eða bankabygg og uppskriftin er fyrir 4-5 manns. Uppskrift frá gottimatinn.is
Hráefni:
860 g ýsuflök
180 g rautt pestó
1 dós mozzarella kúlur eða perlur
110 g döðlur (10-12 stk.)
• basilíka, handfylli
• salt og pipar
Aðferð:
Byrjið á að skola fiskinn og þerra.
Skerið flökin niður í hæfilega stóra bita og raðið fisknum í botninn á eldföstu móti.
Kryddið fiskinn með salti og pipar.
Setjið rauða pestóið yfir fiskinn og dreifið því vel yfir alla bitana.
Skerið döðlurnar í bita og raðiðyfir fiskinn. Loks eru mozzarella kúlurnar settar yfir fiskinn ásamt niðurskorinni ferskri basilíku.
Hitið í ofni við 180 gráður í 25 mínútur en á meðan er tilvalið að sjóða hrísgrjón, útbúa salat eða hvítlauksbrauð.

TÍGULL
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki.
Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is
Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is
Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


UMÖNNUNARSTARF
Á HRAUNBÚÐUM VESTMANNAEYJUM
VIð leitum að starfsfólki í skemmtilegt, fjölbreytt og gefandi starf
Nánari upplýsingar er að finna á hsu is undir laus störf og hjá Unu Sigríði Ásmundsdóttur una s asmundsdottir@hsu is


Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og væntumþykju við andlát og útför elskulegs unnusta míns og besta vinar, sonar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afa, bróður okkar og vinar
SVEINBJÖRNS GUÐMUNDSSONAR
Sérstaklega viljum við þakka starfsfólki Heilbrigðisstofnunnar Suðurlands í Vestmannaeyjum fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Fyrir hönd aðstandenda Ingunn Lísa Jóhannesdóttir

Yndislega móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma

GUÐRÍÐUR GUÐFINNA JÓNSDÓTTIR Fjólugötu 7
lést í faðmi ástvina á dvalarheimilinu Hraunbúðum þriðjudaginn 28. maí. Útför hennar verður frá Landakirkju í Vestmannaeyjum þriðjudaginn 11. maí klukkan 14. Blóm og kransar afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hennar er bent á Sonju Andrésdóttur, tómstundafulltrúa Hraunbúða. Rknr.: 511-26-029247; Kennitala:100872-4129. Einnig fær starfsfólk Hraunbúða sérstakar þakkir fyrir góða umönnun og hlýju.
Engilbert Sigurðsson
Jón Ragnar Sævarsson
Kolbrún Engilbertsdóttir
Þór Engilbertsson
Helga Magnúsdóttir
Una Þóra Ingimarsdóttir
og börn, barnabörn og barnabarnabarn.

Verkefnastjóri
æskulýðs-
og tómstundarmála

Vestmannaeyjabær leitar að metnaðarfullum leiðtoga í stöðu verkefnastjóra æskulýðs- og tómstundarmála. Við leitum að aðila sem hefur brennandi áhuga á málaflokki æskulýðs- og tómstundamála og hefur bæði menntun og reynslu sem nýtist til þess að skapa framtíðarsýn sem snýr að þessum málaflokki.
Starfið felur í sér yfirumsjón, í samstarfi við framkvæmdastjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs, með málaflokki æskulýðs- og tómstundarmála og fylgir eftir stefnu sveitarstjórnar varðandi þau mál. Verkefnastjóri æskulýðsog tómstundarmála ber ábyrgð á og umsjón með starfsemi félagsmiðstöðvar ungmenna og Vinnuskólanum.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
- Ber ábyrgð á starfsemi og rekstri æskulýðs- og tómstundamála
- Hefur yfirumsjón með daglegri starfsemi og rekstri félagsmiðstöðvar Vestmannaeyjabæjar
- Hefur umsjón með Vinnuskólanum
- Hefur umsjón með frístundastyrk sveitarfélagsins
- Vinnur með Ungmennaráði að málefnum ungs fólks
- Er talsmaður málaflokksins út á við sem felur meðal annars í sér kynningar málaflokknum
- Vinnur að framkvæmd forvarnarmála hjá sveitar félaginu og vinnur að samhæfingu þeirra við alla þá aðila sem vinna að forvörnum í sveitarfélaginu.
- Tekur þátt í þverfaglegu starfi innan fjölskylduog fræðslusviðs að markmiðum samþættrar þjónustu í þágu farsældar barna.
Hæfniskröfur:
- Háskólamenntun á sviði tómstunda- uppeldisog/eða menntunarmála sem nýtist í starfi.
- Reynsla af skipulagningu tómstundaúrræða.
- Reynsla af verkefnastjórnun og teymisvinnu.
- Reynsla af starfi með börnum og ungmennum og fullorðnum.
- Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er æskileg.
- Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Góð íslenskukunnátta og geta til að tjá sig í ræðu og riti.
- Góð kunnátta í ensku.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilsská með nöfnum tveggja umsagnaraðila. Einnig skal fylgja greinargerð með rökstuðningi um hæfni í starfið. Þeir aðilar sem eru ráðnir á fjölskyldu- og fræðslusvið Vestmannaeyjabæjar þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.
Umsóknarfrestur fyrir starfið er til og með 17. júní 2024.
Nánari upplýsingar veita: Jón Pétursson, framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs Vestmannaeyjabæjar, jonp@vestmannaeyjar.is.
Vestmannaeyjabær hvetur öll áhugasöm til að sækja um starfið óháð kyni. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
FJÖR Á SJÓMANNADAGSHELGINNI
Mikil stemning og fjör myndaðist yfir sjómannadagshelgina. Pílumót sjómanna fór fram á fimmtudeginum þar sem að Einar Gíslason bar sigur úr býtum. Sjómannabjórinn tilkynntur og var fullt á The Brothers Brewey en þá var bjórinn Sævald stout kynntur til heiðurs Sævald Pálssyni. Á laugardagsmorgninum var dorgveiðimót SJÓVE þar sem börn mættu á bryggjuna og reyndu fyrir sér með veiðistönginni. Fjör var á Vigtartorgi eftir hádegið á laugardeginum þar sem ýmislegt skemmtileg var í boði fyrir börn og fullorðna. Koddaslagur og róðrakeppnin voru að sjálfsögðu á sínum stað. Hörkuskemmtun á laugardagskvöldinu þar sem að áhafnir komu saman í Höllinni, gæddu sér á góðum mat og hlustuðu á tónlistaratriði kvöldsins. Bjórinn fór á uppboð líkt og undanfarin ár. Sjómannadagurinn sjálfur byrjað á sjómannamessu í Landakirkju, fjör og veittar viðurkenningar á Stakkagerðistúni og kaffi Eykyndils á sínum stað. Virkilega vel heppnuð sjómannadagshelgi þó veðrið hefði mátt vera betra.






ÍBÚAFUNDUR
– Íbúðabyggð við Malarvöll
Vestmannaeyjabær auglýsir á vinnslustigi tilögu að breytingu Aðalskipulags Vestmannaeyja 2015-2035 og nýtt deiliskipulag fyrir íbúðabyggð og leikskóla við Malarvöll.
Íbúafundur verður haldinn þann 11. júní kl. 17:30 í Ráðhúsi Vestmannaeyja við Kirkjuveg 50.
Tillagan gerir ráð fyrir allt að 110 íbúðum í blandaðri byggð einbýlishúsa, raðhúsa, lítilla fjölbýla og stærri fjölbýlishúsa með lyftu. Gert er ráð fyrir bílakjallara fyrir raðhús og fjölbýli. Grænt svæði við Löngulág er varðveitt og hugað er að skjólgóðum og sólríkum dvalarsvæðum í byggðinni. Deiliskipulagið gerir einnig ráð fyrir 6-10 deilda leikskóla sem mögulegt er að byggja upp í áföngum.

Skipulagsgögnin má skoða í afgreiðslu Ráðhúss, á skipulagsvefsjá á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar og á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.
Athugasemir og ábendingar skulu berast á netfangið dagny@vestmannaeyjar.is eða í afgreiðslu ráðhúss til og með 26. júní 2024.
SJÓMANNADAGSHELGIN 2024
LJÓSMYNDIR ADDI Í LONDON
















Það hefur orðið töluverð breyting á bryggjusvæðinu í Eyjum frá því Hörður tók þessa mynd á sjómannadegi.
BÝÐUR UPP Á LJÓSMYNDASÝNINGAR
FYRIR HÓPA OG FÉLÖG
Friðrik Harðarsson er sonur Harðar Sigurgeirssonar ljósmyndara sem starfaði í Vestmannaeyjum um og eftir miðja síðuastu öld. Hann skildi eftir sig merkilegt safn bæði mannamynda og mynda úr daglega lífinu. Sonur hans Friðrik hefur haldið utan um safnið og oft hefur hann farið m.a. á Hraunbúðir og verið með myndasýningu fyrir íbúana. Sjálfur byrjaði Friðrik ungur að taka myndir og grunnurinn er það sem hann lærði af föður sínum.
Hörður Sigurgeirsson, ljósmyndari og píanókennari, fæddist á Akureyri 6. maí 1914 og lést í Reykjavík 2. júní 1978 þá aðeins 64 ára gamall. Hann fluttist til Vestmannaeyja 1949 og rak hér ljósmyndastofu frá 1950 til 1965 auk þess að kenna á píanó.
„Í allt liggja eftir pabba um 170 þúsund myndir sem hann tók í Vestmannaeyjum og aðeins ein mynd af hverju,“ segir Friðrik. „Þetta eru mest myndir af einstak-

Friðrik Harðarson.
lingum en líka myndir af hópum. Þegar kom að því að klára filmuna fór hann út og tók myndir af því sem fyrir augum bar. Myndir af atvinnu- og mannlífi í Vestmannaeyjum. Allar mannamyndirnar eru merktar og ég veit hverjir hóparnir eru,“ segir Friðrik sem nokkrum

Hörður Sigurgeirsson.
sinnum hefur haldið sýningar með myndum föður síns.
Friðrik hefur verið duglegur sjálfur að taka myndir og þá aðallega landslagsmyndir og dýralíf og önnur sjónarhorn en hefur áður sést. Hann býður upp á að halda ljósmyndsýningar fyrir hópa og félög en áhugasamir geta haft samband við Friðrik í síma 698-2452.


KL. 15.00

KL. 20.00


BJÓÐA ÞÉR AÐ BÓKA SÝNINGU?


Ljósmyndasýningar fyrir félagasamtök og hópa. Einstaklings- og hópmyndir ásamt myndir af atvinnu- og mannlífinu í Vestmananeyjum frá árunum 1950 - 1965. Bóka sýningu í síma 698 2452, Friðrik.

SUDOKU




GETUR ÞÚ FUNDIÐ ORÐIN?
Dagdvölin Bjargið leitar af sumarstarfsmanni
Fjölbreytt og skemmtilegt starf í dagdvölinni Bjarginu. Dagdvöl er stuðningsúrræði við þá sem búa í heimahúsum en þurfa að staðaldri eftirlit og umsjá til að geta búið áfram heima. Í dagdvöl er boðið upp á þjálfun, tómstundaiðju og félagslegan stuðning.
Leitað er að sumarstarfsmanni sem getur hafið störf sem fyrst í 80% -100% starf. Vinnan er unninn á dagvinnutíma alla virka daga.
Helstu verkefni:
Félagslegan stuðning
Aðstoð við virkni og önnur verkefni sem starfsmanni er falið af yfirmanni
Hæfniskröfur:
Hafa náð 20 ára aldri og hafa hreint sakavottorð
Hafa áhuga á að vinna með fólki
Vera stundvís og samviskusamur
Góð samskiptahæfni

Leitað er að jákvæðum, duglegum og samviskusömum einstaklingum. Vestmannaeyjabær vill stuðla að jafnrétti kynja og hvetur því alla óháð kyni til að sækja um laus störf.
Laun skv. kjarasamningi Stavey/Drífandi.
Upplýsingar um starfið veitir deildarstjóri á Bjarginu dagdvöl Ragnheiður Geirsdóttir í síma 481-8881 eða á ragnheidurg@vestmannaeyjar.is
Umsóknarfrestur er til og með 12. júní nk.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningar hefur verið tekin.


Jörgen Freyr ásamt Þóru Björgu Stefánsdóttur og Amelíu Dís Einarsdottur sem nýverið gengu til liðs við Rival í Haugesund.
ER AÐ VINNA MEÐ GÓÐU FÓLKI OG ÞJÁLFARATEYMIÐ ER FRÁBÆRT

Eyjapeyjinn og handknattleiksþjálfarinn Jörgen Freyr Ólafsson Naabye var ráðinn þjálfari hjá norska félaginu Rival og Haugesund Toppidrettgymnas síðasta sumar til tveggja ára. Jörgen Freyr hafði þá tvö ár áður verið einn af þjálfurum meistaraflokksliðs FH. Jörgen er í sambúð með Sigrúnu Jóhannsdóttur ásamt tveimur börnum. Þau fluttu til Haugasunds í Noregi í ágúst síðasta sumar og líkar þeim mjög vel og fannst tekið gríðarlega vel á móti þeim. Tígull heyrði í Jörgen.
Hvernig gengur fjölskyldunni að koma sér inn í lífið þar, tungumálið og annað?
Það hefur gengið upp og niður en eftir áramót hefur þetta verið frábært. Krakkarnir voru ekki lengi að ná tökum á tungumálinu og við erum ekki langt á eftir þeim.

Eru komin frekari framtíðarplön hjá ykkur fjölskyldunni?
Við verðum allavega hér eitt ár í viðbót þar sem ég á eitt ár eftir af samningnum en finnst líklegt að við verðum hér eitthvað lengur þar sem við erum búin að kaupa okkur hús hér í Haugesund. Allir velkomnir í kaffi.
Hvernig líkar þér?
Mér líkar alveg ótrúlega vel og er ég að vinna með góðu fólki í kringum klúbbinn og þjálfarateymið frábært. Svo eru leikmennirnir klárir að vinna að markmiðum félagasins þá er gaman að vera þjálfari.
Er þetta ólíkt því sem þú þekkir hér heima á Íslandi?
Já! Hér er ég bara að vinna við þjálfun sem gerir mér kleift að eyða meiri tíma og fókus í skipulag, klippi vinnu, þróun leikmanna o.fl. Fjöldi leikmanna hér er miklu meiri en ég var vanur heima. T.d er ég með yfir 60 leikmenn sem eru 16 ára eða eldri.
Hvernig gengur ykkur í handboltanum?
Það er búið að ganga ótrúlega vel. Var með þrjú lið á síðasta tímabili (meistaraflokks lið 1 og 2 og svo unglingaflokks lið) Meistaraflokksliðin fóru bæði upp um deild og unglingaliðið vann sína deild á sínu svæði.
Miklar framfarir og bætingar á leikmönnum fyrir mér er það stærsti
sigurinn! Okkur hefur líka tekist að taka umgjörðina hjá klúbbnum upp á næsta level.
Í hvaða deild spilið þið? Lið 1 spilar í 3. deild á næsta ári, lið 2 spilar í 4. deild á næsta ári og unglingaliðið spilar í lands-seríunni. Ef fólk vill útskýringar á hvernig þetta kerfi í Noregi virkar má það koma í kaffi til mömmu og pabba 10. júlí í Eyjum þar sem ég get svarað öllum spurningum.
Nú eru tvær Eyjastelpur á leið til ykkar, hvernig lýst þér á það?
Bara hrikalega vel. Þóra og Amelía eru hrikalega öflugir leikmenn og hafa verið undir góðri handleiðslu hjá Sigga Braga og Himma Bjöss. Þær koma til með að styrkja liðið mikið, bæði innan og utan vallar. Þær eru búnar að koma í viku heimsókn til Haugesund til þess að skoða aðstæður og hitta stjórn og liðsfélaga.
Ég hef fulla trú að þær munu passa vel inn í hópinn og það sem við erum að gera hér.
Hvaða fræga einstakling (lífs eða liðinn) í mannkynssögunni myndir þú vilja bjóða í kaffi og afhverju?
Kobe Bryant klárlega. Bara, hvernig býr maður til svona hugarfar?
Hver er mesta áhættan sem þú hefur tekið?
Það er örugglega margt ef þú spyrð foreldra mína en held ég segi að flytja út til Noregs en ég hafði aldrei farið til Noregs áður.
Hvað færðu þér í morgunmat?
Það er Haframjöl- chiafræ mjólk og próteinblanda saman inn í ískap deginum svo hendir maður banana, epli, Jarðaber, bláber fer eftir hvað er til á þetta um morguninn - herregud hvað það er gott .
Hvaða smáforrit er ómissandi? Spotify.
Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri í lokin?
Takk Mamma og Pabbi.
Jörgen ásamt sambæylkiskonu sinni Sigrúnu Jóhannasdóttur og dætrum.PRENTUM Á FÁNA! PRENTUM Á FÁNA!

Nú bjóðum við á Leturstofunni upp á hönnun og prentun á fánum í ýmsum stærðum og gerðum fyrir fyrirtæki eða viðburði.
Hefðbundna fána, ílanga fána, hátíðarfána, borðfána bara allskonar fána.
Heyrðu í okkur og við finnum akkurat fánann sem þér vantar!
