Skip to main content

Tígull 21.tbl 03 árg.

Page 1

21. tbl. 03. árg. 23. - 29. júní 2021 Strandvegur 47 | 481 1161 | tigull@tigull.is | www.tigull.is

Fyrir veisluna... Óáfengt freyðivín

www.heimadecor.is Strandvegur 39


LOKAHÓF HANDKNAT TLEIKSDEILDAR ÍBV

Ljósmynd: Þóra Sif Kristinsdóttir Lokahóf handknattleiksdeildar ÍBV fór fram í Akóges síðastliðinn laugardag. Veitt voru verðlaun fyrir árangur vetrarins. Fréttabikarinn hlutu þau Elísa Elíasdóttir og Ívar Logi Styrmisson. Þau Marta Wawrzynkowska og Hákon Daði Styrmisson voru valin bestu leikmenn meistaraflokkana. Mfl.karla: Besti leikmaður: Hákon Daði Styrmisson Fréttabikarinn: Ívar Logi Styrmisson ÍBV-ari: Fannar Þór Friðgeirsson Mestu framfarir: Sæþór Páll Jónsson Mfl.kvenna: Besti leikmaður: Marta Wawrzynkowska Fréttabikarinn: Elísa Elíasdóttir ÍBV-ari: Erika Ýr Ómarsdóttir Mestu framfarir: Harpa Valey Gylfadóttir

TÍGULL

3.flokkur kvenna: Besti leikmaður: Þóra Björg Stefánsdóttir Efnilegasti leikmaður: Amelía Einarsdóttir ÍBV-ari: Aníta Björk Valgeirsdóttir Mestu framfarir: Tara Sól Úranusdóttir 3.flokkur karla: Besti leikmaður: Gauti Gunnarsson Efnilegasti leikmaður: Elmar Erlingsson ÍBV-ari: Breki Þór Óðinsson Mestu framfarir: Adam Smári Sigfússon

Tígull óskar öllum til hamingju!

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir. Forsíðumynd: Halldór B. Halldórsson.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


FRAMKVÆMDASTJÓRI Rannsóknaþjónustan Vestmannaeyjum ehf. leitar að öflugum og framsæknum einstaklingi í stöðu framkvæmdastjóra félagsins. Um fullt stöðugildi er að ræða. Viðkomandi mun stýra starfsemi félagsins, sinna þjónustuþáttum og leiða við uppbyggingu félagsins.

UM FYRIRTÆKIÐ Rannsóknaþjónustan Vestmannaeyjum ehf. (RÞV) er með starfsemi í Þekkingarsetri Vestmannaeyja. Núverandi rekstur RÞV hefur að stærstum hluta byggst á þjónustumælingum, rannsóknum og ráðgjöf, mestmegnis fyrir matvælafyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einn starfsmaður hefur starfað hjá félaginu frá stofnun en nú stendur til að efla starfsemi félagsins með ráðningu framkvæmdastjóra. Fyrirtækið var stofnað árið 2004 en byggir á grunni eldri starfsemi sem hófst árið 1971. Helstu viðskiptavinir eru Vinnslustöðin (VSV) og Ísfélag Vestmannaeyja (ÍV), auk félaga tengdum þeim fyrirtækjum. VSV og ÍV eru stærstu eigendur RÞV, auk Sýni ehf.

MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR

HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ

Búseta í Vestmannaeyjum er skilyrði. Umsóknarfrestur er til og með 12. júlí 2020. Umsókn um starfið þarf að fylgja kynningarbréf og starfsferilsskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Áhugasömum aðilum um starfið er heitið fullum trúnaði. Nánari upplýsingar veitir ráðgjafi á vegum RÞV: Hrafn Sævaldsson í síma 8612961. (3h.hrafn@gmail.com)

- Framkvæmdastjórn félagsins og verkstjórn - Áætlanagerð, skráningar og ferlagreiningar - Þjónustumælingar og sýnatökur - Aðstoð við gerð, ritstjórn og notkun gæðahandbóka - Aðstoð við skipulagning, umsjón og ráðgjöf með innri og ytri úttektum, í samráði við viðskiptavini

- Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. líffræði, sjávarútvegsfræði, matvælafræði, næringarfræði, efnafræði, svo fátt eitt sé nefnt. - Starfsreynsla og þekking á starfi á rannsóknastofu er mikill kostur - Þekking á gæðahandbókum og mælingum er mikill kostur - Frumkvæði, ábyrgð og samskiptalipurð. - Reynsla og þekking á fiskvinnslu er kostur - Reynsla af gæðakerfum, umbótastarfi og ferlum er kostur - Reynsla og eða áhugi á rekstri og verkefnisstjórn er kostur - Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

- Aðstoð við eftirfylgni og umbætur gæðaferla - Ráðgjöf tengd menntun og fræðslu fyrir starfsfólk viðskiptavina í gæðamálum - Ráðgjafi viðskiptavina gagnvart kaupendum og opinberum aðilum - Þjónustukaup innanlands og erlendis - Þjálfun starfsfólks viðskiptavina - Gerð kynningarefnis á gæðamálum fyrir viðskiptavini - Þátttaka í rannsóknarverkefnum fyrir viðskiptavini - Öflun nýrra verkefna

Í Vestmannaeyjum er frábært að búa. Íbúar í Vestmannaeyjum eru ánægðastir allra á landinu með sín búsetuskilyrði og eru hamingjusamastir skv. íbúakönnun landshlutanna 2020. Samkvæmt könnun Gallup á þjónustu sveitarfélaga 2020 þá er best þjónusta við barnafjölskyldur og fatlaða í Vestmannaeyjum og sveitarfélagið er annað besta í þjónustu við eldri borgara, þjónustu leikskóla og aðstöðu til íþróttaiðkunar.


FASTUR TANNLÆKNIR KOMINN Á HÓLAGÖTUNA Hlýja tannlæknastofan við Hólagötu er loksins að fá til sín fastan tannlæknir á ný. Það er hún Íris Þórsdóttir tannlæknir sem er að flytja til Vestmannaeyja. Tígull fékk Írisi til að kynna sig fyrir eyjafólki. Ég heiti Íris Þórsdóttir og er fædd árið 1989 í Reykjavík. Ég er elst þriggja systkina og ólumst við upp í Grafarvoginum og gekk ég í Rimaskóla. Eyjamenn þekkja líklega systur mína, Birtu, en hún hefur komið sem “farand”-tannlæknir hingað til Eyja nokkrum sinnum og svo á ég einnig bróður sem heitir Atli en hann hefur ekki þetta sama tanna-áhugamál og við systurnar og fór því aðra leið og lagði stund á flugnám. Ég æfði lengi frjálsíþróttir með Fjölni en ákvað að leggja gaddaskóna á hilluna þegar ég hóf tannlæknanámið. Mamma og pabbi, Agnes Ingadóttir og Þór Sigurðsson, eru miklir golfarar og almennt frábært stuðningslið okkar systkinanna og auðvitað strákanna minna líka en þau eru búsett í Reykjavík, (þótt ég voni nú að þau elti okkur hingað í golfparadísina). Við Halli (Haraldur Pálsson) kynntumst á þjóðhátíð 2010 og hófum okkar sambúð um haustið 2010. Halli er sonur Rutar Haraldsdóttur og Páls Guðmundssonar Eyjamanna með meiru og bróðir hans er Kristinn Pálsson. Við Halli og strákarnir erum mikið þjóðhátíðarfólk og er fjöldi

þjóðhátíða kominn í tveggja stafa tölu hjá mér en ég fór á mína fyrstu 2008. Við eignuðumst flottustu og bestu stráka í heimi í maí 2014, eineggja tvíburana Þórarinn Inga og Aron Gísla. Þeir gera alla daga betri og hafa mótað mig persónulega sem manneskju á fleiri vegu en hægt er að ímynda sér. Hvenær úrskrifaðistu sem tannlæknir? Ég kláraði Tannlæknadeild HÍ haustið 2015 og hef starfað á mörgum tannlæknastofum í Reykjavík síðan þá og fengið víðtæka reynslu, auk þess sem ég vann sumarið 2015 hér í Eyjum. Sumarið 2018 hóf ég störf hjá Hlýju tannlæknastofu í Glæsibæ en meðfram því hef ég sinnt stundakennslu við Tannlæknadeild ásamt því að sinna áhugamáli um fræðslu á tannheilsu í útvarpi og öðrum vettvangi. Hvernig muntu haga vinnunni hér í Vestmannaeyjum? Nú stefnum við á flutninga til Vestmannaeyja í sumar og mun ég praktísera hjá Hlýju tannlæknastofu hér í Eyjum. Tannlækningar eru ekki bara vinna fyrir mér heldur stórt áhugamál og þykir mér ég einstaklega heppin að hafa fundið starf sem ég brenn fyrir. Ég elska líklega mest að móta tannlæknaupplifun barna, gefa þeim jákvæða og skemmtilega reynslu og ef eitthvað kemur

upp sem þarf að laga þá byggir það á fyrra trausti og vinskap. Ég notast mikið við glaðloft í minni vinnu með börn og hjálpar það á marga vegu, meðal annars gefur það ró og minnkar kvíða ef einhver er, börn fá oft bros á vör og “kósý-tilfinningu” í líkamann og erfið upplifun á ýmiss konar tannviðgerðum er satt að segja ansi fátíð þegar við notum glaðloftið. Annað áhugamál mitt innan tannlæknisfræðinnar eru útlitstannlækningar eða á mannamáli að gefa fólki fallegra bros. Hver er þín aðstoðarmanneskja/ tanntæknir á stofunni? Aðstoðarmanneskja mín á stofunni verður Svala Björk Hólmgeirsdóttir en hún var að útskrifast sem tanntæknir frá FÁ núna í vor og hlakka ég mikið til samstarfsins. Ég bind vonir við að fá fleiri tannlækna Hlýju til Eyja, hvort sem er í stuttar ferðir eða lengri tíma en ekkert hefur verið ákveðið í þeim efnum. Hver verður opnunartíminn á stofunni? Nú hafa Vestmannaeyingar búið við það um árabil að hafa ekki næga tannlæknaþjónustu og hugsa ég að það taki smá tíma að vinda ofan af þessu ástandi. Ég vona að Eyjamenn sýni því skilning og þolinmæði. Ballið hefst í rólegheitum seinni part júní í bland við flutninga og sumarfrí og í haust mun ég einnig sinna við-


skiptavinum mínum í Reykjavík eina viku í mánuði. Ég hlakka til að taka á móti Eyjamönnum og mun byrja að taka við tímapöntunum í vikunni 20.-25. júní. Opnunartíminn verður hefðbundinn; 8:00-16:00 mánudaga-fimmtudaga og 8:00-14:00 föstudaga. Fyrst um sinn verð ég í fríi á föstudögum en stofan verður opin svo hægt verður að bóka tíma. Einhver lokaorð? Auk vinnunnar hér hlakka ég til að njóta eyjunnar fögru með fjölskyldu og vinum og njóta útivistar í fallegasta umhverfi í heimi. Ef þið finnið mig ekki á tannlæknastofunni eru líkurnar á að ég sé uppi á Heimakletti ansi miklar og aldrei að vita nema ég hefji tannfræðsluferðir þangað upp með haustinu.

góða SKEMMTUN


SUDOKU

ORÐAÞRAUT

KATLA ASKJA HEKLA EYJAFJALLAJÖKULL ELDFELL KRAFLA FAGRADALSFJALL KVERKFJÖLL PRESTAHNÚKUR ELDEY


Viðarvörn

fyrir íslenskar aðstæður Notaðu sumarið til að verja viðinn! Þeir sem til þekkja nota Kjörvara á allt tréverk utanhúss. Reynslan hefur sýnt að Kjörvari er viðarvörn sem er gædd einstökum eiginleikum fyrir íslenskt veðurfar.

Opið: 08:00 - 18:00 virka daga og 10:00 - 14:00 laugardaga

Kjörvari – fyrir íslenskar aðstæður – Í MEISTARA HÖNDUM

- það segir sig sjálft -


KJÚK­L INGAFAJITAS

Kjúk­ ling­ urinn borinn fram með mangósalsa, guaca­ mole, sýrðum rjóma, salsa, heitri ostasósu, sal­ ati, tortill­um og svörtu do­ritos. Einfaldlega allt sett á borðið síðan setur hver og einn mat­ inn sam­ an eft­ ir smekk. Hráefni: 1 kg kjúk­linga­bring­ur 1,5 msk. or­egano 1,5 msk. kúm­in (ath. ekki kúmen) 1 msk. kóri­and­er 1/​2 msk. túr­merik 3 hvít­lauksrif safi úr 1 lime 1/​3 dl rap­sol­ía

Aðferð: Skerið kjúk­ling­inn í bita og pressið hvít­lauksrif­in. Blandið öllu sam­an og látið mar­in­er­ast í um klukku­stund (ef tími gefst). Dreifið úr kjúk­lingn­um yfir ofnskúffu og setjið í 175° heit­an ofn í um 8 mín­út­ur, eða þar til kjúk­ ling­ur­inn er eldaður í gegn. Það má líka steikja kjúk­ling­inn á pönnu, þá er kjúk­ling­ur­inn sett­ur beint á heita pönn­una og hann steikt­ur upp úr ol­ í­unni í mar­in­er­ing­unni. Mangósalsa: 1 ferskt mangó 1 rauð paprika safi úr 1/​2 lime

ferskt kóri­and­er Skerið mangó og papriku í bita og blandið öllu sam­an. Guaca­mole: 1 avo­ka­dó 1/​2 rautt chili (fjar­lægið fræ­in) 1 hvít­lauksrif cay­anne-pip­ar sítr­ónusafi Stappið avo­ka­dó, fín­hakkið chili og pressið hvít­ lauksrif. Blandið sam­ an og smakkið til með cay­ anne-pip­ ar og sítr­ónusafa.


www.7tindarheimaey.is www.7tindar.is

Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi

BRAGI JÚLÍUSSON

Lést sunnudaginn 20.júní á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Útförin fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum, fimmtudaginn 1.júlí kl.13:00. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja fyrir frábæra umönnun. Sigþóra Björgvinsdóttir Björg Ólöf Bragadóttir - Valgeir Sigurjónsson Gylfi Bragason - Edda Svandís Einarsdóttir Sigþór Örn, Sandra Dögg, Steina Dís og Bragi Þór.

TAKTU DAGINN FRÁ!

17. JÚLÍ

Frekari upplýsingar á facebooksíðunni okkar

/7tindaraheimaey

7 Tindar á Heimaey er viðburður sem er ár hvert í Vestmannaeyjum. Í ár verða 7 Tindar á Heimaey laugardaginn 17.júlí og hefst kl. 12:00.

STÓRHÖFÐI SÆFJALL ELDFELL HELGAFELL HEIMAKLETTUR HÁ HÁ DALFJALL/EGGJAR

Skráðu þig inn á hlaup.is Skráning á leturstofan@leturstofan.is

EM í fótbolta í beinni á 900 6 í fötu á 3.900kr

Starfsmaður óskast til starfa í eldhús HSU Vestmannaeyjum Helstu verkefni og ábyrgð • Ekki eru um að ræða fast starfshlutfall, heldur tímavinnu sem gæti fallið á dagvinnutíma eða um helgar eftir atvikum. • Eldhúsið matreiðir mat fyrir inniliggjandi sjúklinga, íbúa hjúkrunardeildar auk mötuneytis starfsmanna.

HVERNIG GETUM VIÐ AÐSTOÐAÐ? VANTAR ÞIG . . . UMBÚÐIR - FRÉTTABRÉF NAFNSPJÖLD - BOÐSKORT - BÆKLINGA - LÍMMIÐA - ÁRSKÝRSLU - LOGO - AUGLÝSINGASÖLU - TÍMARIT - EÐA EITTHVAÐ ALLT ANNAÐ? SENDU OKKUR LÍNU Á

LETURSTOFAN@LETURSTOFAN.IS

Hæfniskröfur • Þekking og/eða reynsla af matreiðslu í stóreldhúsi kostur. • Góð hæfni í mannlegum samskiptum. • Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf. Frekari upplýsingar um starfið Starsmaður þyrfti að geta hafið störf nú þegar eða eftir nánara samkomulagi við yfirkokk. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Starfsmannafélag Vestmannaeyjabæjar hafa gert. Umsókn skal skilað rafrænt á vef HSU - www.hsu.is undir flipanum laus störf. Umsóknarfrestur er til og með 25.06.2021 Nánari upplýsingar veitir: Bjarni Sigurðsson bjarni.sigurdsson@hsu.is Sími: 432-2500


VIÐBURÐIR UM SÍÐUSTU HELGI

Það var viðburðarríkt hér á Eyjunni um síðustu helgi en The Brothers Brewery hélt sína árlegu bjórhátíð sem var mjög vel sótt enda uppselt á hátíðina. Bjarni Sigurðsson tók myndir af bjórhátíðinni. Einnig fór fram sumarmót Hvítasunnukirkjunnar í Vestmannaeyjum um helgina 18.-20. júní í tilefni af því að 100 ár eru síðan hvítasunnustarf hófst í Vestmannaeyjum. Helgi Tórshamar tók myndir í blíðunni á laugardaginn.


Flug til Reykjavíkur fjórum sinnum í viku

icelandair.is Sumaráætlun er hafin Við fljúgum tvisvar á dag alla mánudaga, miðvikudaga, föstudaga og sunnudaga í júní, júlí og ágúst. Loftbrúin veitir fólki utan höfuðborgarsvæðisins 40% afslátt. Við hlökkum til að fara í loftið með þér í sumar.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 21.tbl 03 árg. by Leturstofan - Issuu