Skip to main content

Tígull 20.tbl 04 árg

Page 1

20. tbl. 04. árg. 2 - 8. júní 2022

TÍU SJÚKRALIÐAR ÚTSKRIFUÐUST UM SÍÐUSTU HELGI Frá vinstri: Harpa Kristjánsdóttir, Patrycja Bruszkiewicz, Ragnheiður Vala Arnardóttir, Bjarney Lára Ragnarsdóttir, Sigurlína Guðjónsdóttir, Erna Sif Sveinsdóttir, Sólveig Adólfsdóttir, Rakel Ýr Ívarsdóttir og Erna Sævarsdóttir. Á myndina vantar Sigurlaugu Margréti Sigmarsdóttur.


KAREN EIR OG ARÍNA BÁRA HLUTU VERÐLAUN FYRIR GÓÐAN ÁRANGUR

Karen hlaut verðlaun fyrir mjög góðan árangur í íslensku á stúdentsprófi. Arína Bára hlaut eftirfarandi verðlaun; fyrir mjög góðan árangur í efnafræði á stúdentsprófi, Raungreinaverðlaun HR sem eru veitt fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum á stúdentsprófi og fyrir frábæran heildarárangur á stúdentsprófi en Arína var með 9,3 í meðaleinkunn. Fullt nafn: Karen Eir Magnúsdóttir. Foreldrar: Bergey Edda Eiríksdóttir & Magnús Steindórsson. Systkini: Guðrún Bára og Aron Smári Ertu búin að ákveða hvað þú stefnir á að verða þegar þú verður stór? Já ég ætla mér að verða leiksskólakennari. Ætlar þú strax í áframhaldandi nàm? Já, en ég ætla að taka mér árs pásu og vinna Í hvað skóla stefnir þú? Staðarnám eða fjarnám? Ég stefni á að fara í Háskóla Íslands í leikskólakennarafræði og ég ætla mér að taka það í fjarnámi. Hvernig er þín upplifun af FÍV? Góður skóli, gott starfsfólk og mér fannst sérstaklega gaman að fara í skólann og hitta vinina Uppáhalds kennari í FÍV? Úff, þetta er mjög erfið spurning. Held ég verði samt að segja Auðbjörg og Margrét Uppáhalds kennari í GRV? Evelyn og Hildur voru uppáhalds þar. Hvað var skemmtilegasta námsfagið þitt? Það var uppeldisfræði, kynjafræði og þroskasálfræði Eitthvað að lokum? Takk fyrir mig FÍV, þetta eru 3 ár sem ég mun seint gleyma

TÍGULL

Fullt nafn: Arína Bára Angantýsdóttir. Foreldrar: Þórunn Ragnarsdóttir og Angantýr Einarsson. Systkini: Lísa Margrét Rúnarsdóttir, Einar Örn Angantýsson og Andri Þór Angantýsson Ertu búin að ákveða hvað þú stefnir á að verða þegar þú verður stór? Ég væri til í að vinna hjá Össuri eða vinna við eitthvað sem tengist því að hjálpa dýrum. Ætlar þú strax í áframhaldandi nàm? Já. Í hvað skóla stefnir þú á að fara? HR (Háskólinn í Reykjavík) Hvaða nám ætlarðu? Heilbrigðisverkfræði. Hvernig er þín upplifun af FÍV? Það var yndislegt að vera í FÍV. Kennararnir eru mjög hjálpsamir og andinn er almennt mjög góður. Boðið er upp á fjölbreytt nám og það er vel skipulagt. Uppáhalds kennari í FÍV? Verð nú að velja Gunnar Friðfinnsson tengdapabba minn þar. Uppáhalds kennari í GRV? Ég var aðeins í GRV í 9. bekk en ég elskaði hana Láru. Hvað var skemmtilegasta námsfagið þitt? Stærðfræði og tölfræði. Eitthvað að lokum? Reynið ykkar besta þvi það mun skila sér.

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


Þú færð okkar besta verð á tm.is

Hugsum í framtíð


BÚNINGSKLEFARNIR Á HÁSTEINSVELLI - Rikki Stefáns hjá TPZ sá um útlitshönnun Hönnunarsaga verksins er frekar stutt en að beiðni verktaka var óskað eftir að setja saman mögulegt útlit klefa, ásamt lita og efnisvali. Einnig fylgdu nokkrir punktar um kröfur á uppsetningu verksins. Ákveðið var að nota svarta mattaða viðaráferð með grófu yfirborði sem gæfi i líf í innréttinguna og á móti kæmi svo hlýlegur litur með svipaðar áherslur sem einnig þyrfti að vera tímalaus og með tengingu í nátturuna. Efnin eru slitsterk og áhersla lögð á þægindi og langan líftíma og vonast hönnuður að lokaniðurstaða endurspegli bæði styrk og gæði félagsins.


30% AFSLÁTTUR

af allri málningu & málningarvörum 2. til 18. júní

Sérfræðingur verður í Skipalyftunni fimmtudaginn 2. júní.

gæðamálning úti og inni fást hjá www. skip alyftan.is // 488 3550


ALDREI OF SEINT AÐ LÆRA Ragnheiður Vala Arnardóttir er 48 ára ung kona sem útskrifaðist síðastliðinn laugardag frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum sem Sjúkraliði og stúdent af almennri námsbraut. Eiginmaður Völu, eins og við köllum hana flest, er Friðrik Páll Arnfinnsson, slökkvistjóri. Þau eiga þrjú börn. Lísu Maríu sem er 23 ára, hún starfar sem sjúkraflutninga og slökkviliðsmaður og er á öðru ári í hjúkrun. Rósu Kristínu 18 ára, sem útskrifaðist einnig síðustu helgi sem stúdent af Félagsvísindabraut og yngstur er Friðrik Valur Friðriksson 5 ára, sem er að útskrifast af Víkinni, 5 ára deild. Vala starfar sem sjúkraliði á sjúkradeild HSU hér í Vestmannaeyjum. Tígull hitti á Völu og spurði hana örlítið út í námið og aðdragandann. Varstu lengi búin að velta þessu fyrir þér að fara í nám eða kom þetta brátt að? „Árið 2017 bauðst mér vinna á sjúkradeildinni í svokallaðri búrvinnu. Var þá búin að vera tæpt ár í fæðingarorlofi. Þetta var 30% starf nokkra daga í viku og fannst mér æðislegt að komast aðeins út. Ég fann fljótt, þegar ég byrja á spítalanum, hvað þetta átti vel við mig. Fljótlega kemst svo litli drengurinn okkar á leikskóla og ég fer að að vinna við ræstingar á sjúkradeildinni. Á þessum mánuðum fann ég alltaf betur og betur hvað þetta átti vel við mig og langaði mig að vinna meira með fólkinu og vera í meiri nánd við það. Stelpurnar á sjúkradeildinni bentu mér svo á að fara að læra sjúkraliðann. Ég er þeim endalaust þakklát fyrir það. Sú hugsun kom þá upp hvort ég væri orðin of gömul til að fara í skóla. Það leið ekki á löngu þar til ég hafði skráð mig í skólann og hef ég mína fyrstu önn veturinn 2019.“ „Námið er búið að taka þrjú og hálft ár eða sjö annir. Allt í okkar frábæra framhaldsskóla þar sem við eigum með eindæmum frábæra kennara.“ segir Vala. Aðspurð hvort það sé ekki erfitt að hefja nám á ný eftir langa pásu segir Vala að þetta hafi verið ótrúlega skemmtilegt en á sama tíma erfitt.

„Metnaður og viðhorf til náms er bara öðruvísi þegar maður er kominn á vissan aldur og þú ert bara að gera þetta við sjálfan þig. Ég er svo heppin hversu fjölskyldan studdi mig vel allan tímann og hvatti mig áfram, svo þakklát fyrir þau. Ég hafði ekki verið í skóla síðan ég kláraði 10. bekk, hvenær svo sem það var nú. Það tók smátíma að læra að læra aftur. Þó svo maður sé að útskrifast þá er maður enn að læra. Það er það sem er svo skemmtilegt við þetta, við erum alltaf að læra eitthvað nýtt.“ Erfiðast að vera lengi í burtu frá fjölskyldunni „Það erfiðasta en jafnframt skemmtilegasta voru verknámið sem við þurftum að fara í. Það var farið inn á aðra spítala og verknám tekið í þrjár vikur. Það erfiðasta við það var að fara frá fjölskyldunni sérstaklega með einn svona lítinn gaur heima. En það bætti það upp hversu frábærar stelpurnar eru sem eru í sjúkraliðanáminu með mér. Ég eignaðist dásamlegar vinkonur á þessum tíma og studdum við hvor aðra eins og við gátum í öllu. Unnum svo vel saman. Ég er ótrúlega þakklát fyrir þær.“ Það var ekki eins erfitt og ég hélt „Það sem kom mér einna helst á óvart var það að þetta var ekki eins erfitt og ég hélt. Auðvitað var erfitt að stíga þetta skref og drífa mig af stað. Í dag er ég svo þakklát að hafa

gert það, en það sem kemur manni mest á óvart við sjúkraliðanámið er hversu mikilvægur sjúkraliðinn er innan heilbrigðiskerfisins. Það að fá að vera þátttakandi í að hjálpa öðrum er svo gefandi, eins og starfið sjálft er. Ef þú hefur ánægju af umönnun þá er sjúkraliðanám eitthvað fyrir þig, svo rosalega gefandi starf.“ Eftirminnilegast var verknámið í SAK „Eftirminnilegast í náminu var verknám sem ég fór í á bráðageðdeildina á SAK. Það að huga vel að andlegri heilsu er ekki minna virði en að huga vel að líkamlegri heilsu. Þarna voru móttökurnar svo einstakar og starfsfólkið þarna frábært og vil ég bara nota tækifæri og benda nemum á það að fara þangað í verknám ef tækifæri gefst til.“ Vala var í fjarnámi allan tímann og vann 60% starf með. „Það gekk bara vel og að vera að vinna við það sem maður er að læra hjálpaði mjög mikið, enda einstakur hópur sem ég vinn með á sjúkradeildinni,“ segir Vala. Stefnir þú á áframhaldandi nám? „Ég mun klárlega halda áfram að notfæra mér þau námstækifæri sem í boði eru fyrir sjúkraliða. Sjúkraliðafélag Íslands og Framvegis bjóða upp á símenntun og endurmenntun sjúkraliða og eru mörg námskeið þar sem hafa vakið áhuga minn og kem ég til með að nýta mér það. Þetta er svo skemmtilegt.“


Hvaða skilaboð ertu með til þeirra sem eru að hugsa og langar í nám aftur? „Vertu óhrædd/ur að prófa eitthvað nýtt, ekki hika, drífðu þig af stað. Þetta er svo skemmtilegt en auðvitað erfitt líka, en allt þess virði.“ Þær mæðgur fögnuðu þessum áföngum með vinum og ættingjum í lok útskriftar á laugardaginn. Eitthvað að lokum ? „Aldur er bara tala. Láttu drauma þína rætast og gerðu það sem þig langar að gera.“ Tígull óskar Völu og dóttur hennar innilega til hamingju með útskriftirnar. Gaman er að segja frá því að alls voru tíu konur/stelpur sem útskrifuðust sem sjúkraliðar frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum, síðastliðinn laugardag.


35 NEMENDUR ÚTSKRIFUÐUST FRÁ FRAMHALDSSKÓLANUM Í VESTMANNAEYJUM Um síðustu helgi útskrifuðust 35 nemendur af sex mismunandi brautum frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum við hátíðlega athöfn á laugardaginn síðastliðinn. Tígull óskar þeim öllum innilega til hamingju með áfangann. Stúdentsbraut-náttúruvísindalína Arína Bára Angantýsdóttir Gunnar Hrafn Gíslason Ragna Sara Magnúsdóttir Selma Björt Sigursveinsdóttir Stúdentsbraut-félagsvísindalína Birta Líf Agnarsdóttir Elísa Hallgrímsdóttir Fjóla Kristný Andersen Karen Eir Magnúsdóttir Magnús Sigurnýjas Magnússon Rósa Kristín Friðriksdóttir Sara Sif Jónsdóttir Sigurbjörg Sigurfinnsdóttir Svala Guðný Hauksdóttir Valgerður Elín Sigmarsdóttir Þorbjörg Lind Óttarsdóttir Stúdentsprófsbraut, opin lína Bryndís Guðjónsdóttir Sigurlás Máni Hafsteinsson Sjúkraliðabraut Bjarney Lára Ragnarsdóttir Harpa Kristjánsdóttir Rakel Ýr Eydal Ívarsdóttir Sigurlaug Margrét Sigmarsdóttir Sigurlína Guðjónsdóttir Sjúkraliðabraut og Viðbótarnám til stúdentsprófs Erna Sif Sveinsdóttir Erna Sævarsdóttir Patrycja Bruszkiewicz Ragnheiður Vala Arnardóttir Sólveig Adolfsdóttir Starfsbraut Guðbrandur Martin Haraldssona Vélstjórn B-stig Hafþór Logi Sigurðsson Snorri Rúnarsson

Á útskriftinni þann 28. maí síðastliðinn.

Viðbótarnám til stúdentsprófs Sæbjörg Snædal Logadóttir Húsasmiðanám – samtarfsverkefni FÍV og FNV Davide Agostinacchio Lukasz Pawel Lis Matthew Anthony Parsons Rafal Matuszczyk Viðurkenningar Akademía ÍBV og FÍV: Birta Líf Agnarsdóttir Magnús Sigurnýjas Magnússon Ragna Sara Magnúsdóttir Sara Sif Jónsdóttir Selma Björt Sigursveinsdóttir Sigurlás Máni Hafsteinsson 6 annir Verðlaun fyrir góðan árangur í dönsku Birta Líf Agnarsdóttir Viðurkenningu fyrir mjög góðan heildarárangur í félagsvísindagreinum á stúdentsprófi Valgerður Elín Sigmarsdóttir Verðlaun fyrir mjög góðan árangur í efnafræði á stúdentsprófi. Arína Bára Angantýsdóttir

Verðlaun fyrir félagsstörf á vegum skólans Hafþór Logi Sigurðsson Selma Björt Sigursveinsdóttir Magnús Sigurnýjas Magnússon Verðlaun fyrir mjög góðan árangur í íslensku á stúdentsprófi Karen Eir Magnúsdóttir Menntaverðlaun Háskóla Íslands fyrir mjög góðan árangur á stúdentsprófi hlýtur Birta Líf Agnarsdóttir Raungreinaverðlaun Háskólans í Reykjavík eru veitt fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum á stúdentsprófi Arína Bára Angantýsdóttir Viðurkenning fyrir mjög góðan heildarárangur á stúdentsprófi Ragna Sara Magnúsdóttir með 8,9 í meðaleinkunn Viðurkenning fyrir frábæran heildarárangur á stúdentsprófi Arína Bára Angantýsdóttir með 9,3 í meðaleinkunn


UPPSKRIFT VIKUNNAR Mexíkó kjötbollur með pico de gallo

Mexíkó kjötbollur Hráefni: Kjötbollur 500 g nautahakk 100 g mexíkósk ostablanda frá Gott í matinn 1⁄2 stk. laukur 4 stk. hvítlauksgeirar 1 msk. chillikrydd 1 tsk. cumin 1 tsk. paprikukrydd 1 tsk. salt 1⁄2 tsk. pipar Aðferð: Hitið ofninn í 180°C og setjið smjörpappír á bökunarplötu. Setjið öll innihaldsefni saman í matvinnsluvél og hakkið þar til allt hefur blandast vel saman. Gott er að skera hvítlaukinn gróflega niður ásamt lauknum. Myndið litlar kjötbollur og raðið þeim á bökunarpappírinn. Einföld uppskrift dugar í um 40 bollur. Eldið bollurnar í 12-15 mínútur. Bollurnar eru bestar heitar og gott er að bera fram með þeim með hrísgrjón, quacamole eða pico de gallo Pico de gallo Hráefni: 2 stk. þroskaðir tómatar 1⁄2 stk. laukur handfylli af kóríander safi úr hálfri límónu salt og pipar Aðferð: Skerið tómatana og laukinn smátt niður og blandið saman. Saxið kóríander og setjið saman við ásamt safa úr límónu og salti og pipar. Gott að bera fram með nachos og hrísgrjónum.


„I want someone to look at me the way I look at pizza”

PIZZUTILBOÐ

sent sótt

12” PIZZA með 3 áleggjum + 9” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + gosdós [ 3.990 kr. ]

9” PIZZA

með 3 áleggjum [ 1.990 kr. ]

12” PIZZA

með 3 áleggjum + 9” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + gosdós [ 3.590 kr. ]

Sjáumst á OPIÐ

Mán-fim 17-21 Fös og lau 12-22 Sun 12-21

16” PIZZA með 3 áleggjum + 16” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + 2L gos [ 5.490 kr. ]

12” PIZZA

með 3 áleggjum [ 2.390 kr. ]

16” PIZZA

með 3 áleggjum + 16” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + 2L gos [ 5.090 kr. ]

16” PIZZA

með 3 áleggjum [ 2.890 kr. ]

TVENNUTILBOÐ

Tvær 16” pizzur + stórar brauðstangir

[ Greitt er fyrir dýrari pizzuna og brauðstangir ]

Sendum heim alla daga ( 481-1567


ORÐARUGL

API KÓNGULÓ LJÓSAPERA STIGI GARDÍNUR LJÓN TÝR TJALD VEITINGASTAÐUR GAMALL OFURMENNI STUNDARBRJÁLÆÐI TÓNLEIKAR KARLAKÓR

SUDOKU


Stendur til að skipta um gólfefni? Hjá okkur finnur þú mikið úrval af gólfefnum, bæði parketi og vínylparketi. Á golfefnabudin.is getur þú valið þér lit og efni og við sendum þér prufuna frítt.

KUBUNEH Fatasöfnun Kubuneh. Kubuneh tekur á móti heilum og hreinum fatnaði. Vinsamlegast farið með föt sem uppfylla þetta ekki í Rauða Krossinn. Það sparar okkur mikla vinnu. Opnunartími. Mánudaga til föstudaga 13-17:30 Laugardagar 12:00 - 15:00

golfefnabudin.is | hallo@golfefnabudin.is | 416 2300

GLEÐILEGT SUMAR 900 ætlar að hefja nætursölu um helgar og ætlum við að prufa þetta fram að Þjóðhátíð. Því ætlum við að hafa barinn opinn til kl. 02:00 um helgar. Við óskum því eftir fleira starfsfólki, dyraverðum, sendlum, barþjónum, starfsfólki í sal og pizzabökurum. Nánari uppl. í netfangið 900grillhus@gmail.com og í síma 895 8582. Svo má líka alltaf kíkja við á 900 og spjalla við Begga undir fjögur augu. Höfum gaman að þessu í sumar.

OPNUNARTÍMI YFIR HVÍTASUNNUHELGINA 5. júní Hvítasunnudagur 09:00 - 18:00 6. júní Annar í Hvítasunnu 09:00 - 18:00


VIÐBURÐIR FRAMUNDAN FIM

02 JÚNÍ

ÞRI

07 JÚNÍ

FÖS

10 JÚNÍ

FÖS

10 JÚNÍ

VALUR - ÍBV BESTA DEILDIN KVENNA

Origo völlurinn kl. 17:00 ÍBV - KEFLAVÍK BESTA DEILDIN KVENNA

Hásteinsvöllur kl. 18:00

ÞÚ GETUR FUNDIÐ NÆSTU BÍÓMYNDIR OG SÝNINGARTÍMA Á

www.eyjabio.is

FIM KL. 20:00 LOKASÝNING

LAU KL. 14:00 SUN KL. 14:00

ÍBV - STJARNAN MJÓLKURBIKAR KVENNA

Hásteinsvöllur kl. 17:30 CLASSIC ROCK MEÐ MATTA & MAGNA HÚSIÐ OPNAR KL. 20:00 & BYRJAR KL. 21:00

SUN KL. 20:00

LAU KL. 20:00 SUN KL. 17:00

Er tilefni? Er komið að stórafmæli hjá pabba, ömmu, félaga eða vinkonu? Eða liggur þér eitthvað á hjarta sem þú vilt koma á framfæri? Þú getur sent okkur grein og við birtum.

MIÐ 8. JÚNÍ KL. 20:00

Fylgist með á www.eyjabíó.is & facebook!

tigull@tigull.is leturstofan@leturstofan.is


Prentum sálmaskrár

Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma

Hafðu samband við okkur á netfangið leturstofan@leturstofan.is eða í síma 481-1161

LILJA INGRID ALEXANDERSDÓTTIR DÚFA Lést á dvalar- og hjúkrunarheimili Hraunbúðum mánudaginn 23. maí. Hún verður jarðsungin frá Landakirkju Vestmannaeyjum föstudaginn 3. júní kl. 14:00. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hraunbúða fyrir hlýja og góða umönnun. Streymt verður frá athöfninni á landakirkja.is Alexander Matthíasson Þuríður Ósk Matthíasdóttir Lilja Matthíasdóttir

Guðný Guðmundsdóttir Benedikt Þór Guðnason

Barnabörn og barnabarnabörn

Ástkæri bróðir okkar SKÚLI ÚRANUSSON Boðaslóð 6 bróðir okkar Ástkæri Vestmannaeyjar

Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma

FRÍÐA DÓRA JÓHANNSDÓTTIR

SKÚLI ÚRANUSSON lést þriðjudaginn 10.maí síðastliðinn á Landspítalanum.

Lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja laugardaginn Útförin hefur farið fram í kyrrþey að Boðaslóð ósk hins 6látna. Vestmanneyjar 28. maí. Hún verður jarðsungin frá Landakirkju Þeir sem vilja minnast hans er bent á Krabbavörn í Vm. í Vestmannaeyjum þriðjudaginn 7. júní kl. 13:00. lést þriðjudaginn 10. maí síðastliðinn á Landsspítalanum. Pálína Úranusdóttir Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sjúkrahús VestÚtförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Oddgeir Magnús Úranusson mannaeyja fyrir hlýja og góða umönnun. Þeir sem vilja minnast hans er bent á Krabbavörn í Vm. Streymt verður frá athöfninni á landakirkja.is Axel Valdemar Gunnlaugsson Jóhanna Kristín Gunnlaugsdóttir Halldór Gunnlaugsson

Fríða Sigurðardóttir Guðjón Örn Guðjónsson Lovísa Guðbjörg Ásgeirsdóttir

Barnabörn og barnabarnabörn

Pálína Úranusdóttir Oddgeir Magnús Úranusson


Strandvegi 30

481-1475

Strandvegi 30

481-1475


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 20.tbl 04 árg by Leturstofan - Issuu