Tígull 20. tbl 06. árg.

Page 1

Í
30.MAÍ-2.
2024 SJÓMANNA DAGSHELGIN DAGSKRÁIN ER Í BLAÐINU
VESTMANNAEYJUM
JÚNÍ

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki.

Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó. Forsíða: Sóldís Sif sjómannsdóttir, dóttir Kjartans Sölva, horfðir á pabba sinn sigla út.

DREIFING:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

ÚTGÁFA: SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

TÍGULL
óskar sjómönnum & fjölskyldum til hamingju með daginn! Ljósmynd/Tói Vídó TÍGULL

AUGLÝSING UM KJÖRSTAÐ Í VESTMANNAEYJUM

Kjörstaður í Vestmannaeyjum við forsetakosningar 1. júní 2024 verður í Barnaskólanum,inngangar eru um norður- og suðurdyr. Aðgengi fyrir fatlaða er um norðurdyr.

Kjörfundur hefst kl. 9:00 árdegis og lýkur kl. 22:00 að kveldi sama dags.

Bænum verður skipt þannig í tvær kjördeildir: Í 1. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 24. apríl 2024 við Austurveg til og með Hásteinsvegi, auk þeirra sem eru óstaðsettir í hús og þeirra sem búa erlendis og njóta kosningaréttar á Íslandi.

Í 2. kjördeild kjósa þeir, sem skráðir voru með lögheimili 24. apríl 2024 við Hátún til og með Ægisgötu, auk þeirra sem búa að Hraunbúðum og húsum er bera bæjarnöfn.

Kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á því að fá ekki að greiða atkvæði.

Aðsetur Yfirkjörstjórnar á kjördag verður á kjörstað í Barnaskólanum.

Vestmannaeyjum, 23. maí 2024

Yfirkjörstjórn Vestmannaeyjabæjar Jóhann Pétursson, formaður Ólafur Elísson Þór Ísfeld Vilhjálmsson

Myndin er tekin á sjómannadaginn 1981 af Sigurgeiri Jónasyni. Þekkir þú einhvern á myndinni?

ORÐAÞRAUTIN SUDOKU

SJÓMAÐUR FISKUR VEIÐI

BÁTUR LOGN FORSETI

KOSNINGAR FRÉTTIR NÁMSRÁÐGJAFI

BLAÐAMAÐUR AUGLÝSINGAR BLÍÐA

2.990 Energiser í ferðalagið 9.990 GPS Krakkaúr 54.990 Switch sportpakki 59.990 SUMARTILBOÐ Á FARTÖLVUM 16.990 Frábær krakkapakki 19.990 Þráðlaus BuddyPhone Trevi krakkaspjaldtölva Fartölvuveisla Verð frá 84.990 PS5 Slim Console CD 99.990 FYRIR AI VINNSLU NPU BOOST FYRSTU 20 FÁ EA FC24 KAUPAUKA Slim útgáfa með geisladri og 1TB SSD 189.990 Apple Air M2 fartölvur Verð frá ALLT AÐ 60.000 AFSLÁTTUR Verð frá ALLT AÐ 50.000 AFSLÁTTUR GRÆJU SUMAR Græjusumar í Tölvutek. Nýjar vörur og tilboð. Sumartilboð á fartölvum til 9. júní. 29. maí 2024 • B i r t me ð fyri r v a r a u m br eyti n ga ,r in n slátta r vill u r og m y n da br e ng l

YFIRHEYRSLA SJÓMANNA

Feðgar saman á sjó

Emil Marteinn Andersen

Aldur: 48 ára.

Fjölskylda: Foreldrar eru Þuríður Jónsdóttir og Jóel Þór Andersen. Á 5 börn Alexander Andersen, Andri Snær Andersen, Jóel Þór Andersen, Elísabet Þurý Andersen og Sebastían Elí Andersen. Á hvaða bát ertu? Er netamaður á Drangavík.

Hver er fyndnastur um borð?

Fyndnastur um borð er Egill Þór Valgarðsson. Hvenær byrjaðir þú á sjó og hvar: Byrjaði á sjó með Pabba á Danska Pétri þegar ég var 15 ára í sumarafleysingum. Fór svo í fullt starf á Glófaxa um 23 ára aldur. Hvað heillaði við sjómennskuna? Hef alltaf kunnað vel við sjómennsku sennilega því ég kem af sjómanns fjölskyldum.

Eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með: Eftirminnilegasti sjómaður sem ég hef róið með er Gunni vélstjóri (Gunnar Jónsson) mikill snillingur.

Eftirminnilegasti túrinn? Eftirminnilegasti túrinn er sennilega þegar við fengum hvalshræ í trollið, það var svo illa lyktandi að ég finn enn lyktina af því við að hugsa um það. Þín helsta fyrirmynd? Mín helsta fyrirmynd er Pabbi. Hann hefur verið sjómaður síðan hann var unglingur og er hrikalega klár í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur.

Hvernig er að vera með syninum á sjó? Það er mjög gaman að vera með Alexander syni mínum á sjó, við náum vel saman og þekkjum vel á hvorn annan. Eitthvað að lokum?

Til hamingju með sjómannadaginn sjómenn og munið work hard and play hard hehe.

Alexander Andersen

Aldur: 24 ára.

Fjölskylda: Foreldrar: Emil Marteinn Andersen ogIngveldur Magnúsdóttir (Inga Magg) og sonur minn Líam Bjarni Andersen. Á hvaða bát ertu? Drangavík.

Hver er fyndnastur um borð? Egill Þór Valgarðsson Hvenær byrjaðir þú á sjó og hvar: Byrjaði á sjó ný orðinn 17 ára þá náði pabbi að draga mig í humartúr á drangavíkinni.

Hvað heillaði við sjómennskuna: Það heillaði mig ekkert ég bara einhverneiginn endaði á sjó.

Eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með: það verður að vera svenni útlendingur algjör meistari.

Eftirminnilegasti túrinn?

Örugglega þegar ég skar mig illa og Rúnar sem var skipstjóri þann túr þurfti að sauma mig um borð.

Þín helsta fyrirmynd? Það er ekki gott að segja held ég hafi enga sérstaka fyrirmynd.

Hvernig er að vera með pabba á sjó?

Það er bara mjög fínt, þekkjum hvorn annan mjög vel og hofum gaman að hvor öðrum.

Eitthvað að lokum?

Ég óska öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sjómannadags og góða skemmtun.

SJÓMAÐUR ÁRSINS: KJARTAN SÖLVI

Kjartan ásamt fjölskyldunni. Anna Lilja, Eyþór Daði, Kristján Ingi, Tómas, Kjartan og Sóldís.

Í ár auglýstum við eftir tilnefningum og viljum við þakka öllum þeim sem að sendu á okkur. Í ár er sjómaður ársins Kjartan Sölvi Guðmundsson. Tígull tók Kjartan léttu spjalli.

Fæddur og uppalinn?

Ég er fæddur árið 1969 í Reykjavík

Hvenær fórstu fyrst á sjó? 1989 á trillu á Seyðisfirði.

Hvað heillaði við sjómennskuna?

Þetta hentað mér ágætlega í vinnu, þar sem er action og þá er ég bara fínn.

Hver er þín helsta fyrirmynd? Ég hef verið heppinn með skipstjóra, ég byrjaði á Grindvíking GK og þar var Willard Fiske, frábær skipstjóri. Svo var ég með Simma á Guðrúnu í Vestmannaeyjum sem reyndist mér afskaplega vel. Óli á Heimaey og að ógleymdum

Sverri Gunnlaugssyni sem var með mér á Gullberginu sem reyndist mér ótrúlega vel.

Eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með og hvers vegna?

Þeir eru margir flottir. Jörgen er frábær á netunum og stemningmaður. Sigurbjörn Egilson á Drangavík

- flottur sjómaður. Esra er alltaf í minningunni fínn kokkur og á línunni, spjölluðum mikið saman en við vorum saman á Guðrúnu.

Eftirminnilegasti túrinn?

Þegar við fórum með Huginn til Newmans og lentum þar vegabréfslausir til Rússlands og vorum þar lokaðir um borð í nokkra daga.

Hefur þú lent í sjóslysi í sjómennskunni? Nei alveg sloppið við það sem betur fer.

Besti og versti matur?

Humar er alltaf geggjaður en kjöt í karrý er eitthvað sem ég get seint lært að borða.

Fallegasti staður sem þú hefur komið á?

Ég er hrifinn af Hallormstaðarskógi, Atlavíkin og Eyjar eru alltaf geggjaður staður.

Hvað var draumastarfið þitt sem lítill strákur? Ég ætlaði alltaf að verða fótboltamaður, löggan kom þar á eftir og sjómaður til vara.

Skemmtilegasti árstíminn á sjó?

Mars hefur alltaf verið langskemmtilegastur, á loðn-

inu og farið að birta vel á degi. Netið var aðalfjörið þá svo er trollið feb-mars. skemmtilegasti action tíminn.

Hver er mesta breyting siglingatækja sem þú hefur upplifað? Allt ótrúlega breytt. Siglingatölvurnar í staðinn fyrir gömlu plotterana. Líka með veðrið betri upplýsingar. - bylting með veðurfréttir.

Hvað finnst þér erfiðast við sjómennskuna?

Að missa af uppeldi barnanna minna af stórum parti en sem betur fer er ég með toppmanneskju í því. það er það stærsta.

Eftirminnilegasta atvikið á sjónum? Þegar við vorum á útleið á Guðrúnu einn sunnudagsmorgun, margir mjög þreyttir, á leiðinni á Víkina. Komum við að búrhval sem var nýdauður - brösuðum lengi í að koma honum á síðuna og koma svo til Víkverja sem komu á bátnum og koma honum í tog. Held þeir hafi lent í brasi með að urða hræið. En þetta var fínn dagur.

Eitthvað að lokum? Ég vil óska sjómönnum gleðilega sjómannadagshelgi.

STYTTING HÖRGEYRARGARÐS UM 40 METRA

TILLAGA AÐ DEILSKIPULAGI

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti þann 7. maí 2024 að auglýsa, skv. Skipulagslögum nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagi fyrir Hörgeyrargarð og umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir allt að 40 m styttingu garðsins.

Hörgeyrargarður er grjótgarður sem teygir sig þvert á innsiglingu Vestmannaeyjahafnar. Garðurinn þrengir að siglingu skipa um höfnina og hafa myndast aðstæður þar sem tæpt hefur staðið á að skip rekist saman. Sem stendur á sér stað vinna að breytingum á Aðalskipulagi Vestmannaeyja. Þar sem stytting Hörgeyrargarðs er metið brýnt verkefni af öryggisástæðum er gerð tillaga að deiliskipulagi samhliða vinnu við aðalskipulag.

Umsókn um framkvæmdaleyfi gerir ráð fyrir að efni úr garðinum verði fjarlægt með gröfu á pramma utan varptíma æðarfugls. Nýtanlegt efni verður haugsett á efnistökusvæði við Skansinn. Skipulagsgögn eru aðgengileg á skipulagsvefsjá á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar, í afgreiðslu í Ráðhúsi Vestmannaeyja og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.

Tillaga að deiliskipulagi er auglýst á tímabilinu 21. maí 2024 til 2. júlí 2024.

Framkvæmdaleyfi er auglýst á tímabilinu 21. maí 2024 til 18. júní 2024.

Ábendingum og athugasemdum við deiliskipulagstillögu og/eða framkvæmdaleyfi þarf að skila skriflega á netfangið dagny@ vestmannaeyjar.is, í afgreiðslu Ráðhúss Vestmannaeyja eða í gegnum skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.

OG UMSÓKN UM FRAMKVÆMDALEYFI

Skannaðu kóðann og skoðaðu starfið

VILT ÞÚ VERA MEÐ OKKUR Í LIÐI Í VESTMANNAEYJUM?

HEFUR ÞÚ RÍKA ÞJÓNUSTULUND, ERT GÓÐUR SÖLUMAÐUR OG HEFUR GAMAN AF MANNLEGUM SAMSKIPTUM? ÞÁ GÆTUM VIÐ VERIÐ MEÐ STÖRFIN FYRIR ÞIG

Við leitum er að kraftmiklum einstaklingi í starf sölufulltrúa í blómaafgreiðslu. Um er að ræða spennandi starf í lifandi og litríku umhverfi þar sem helstu verkefni eru sala, ráðgjöf og þjónusta við viðskiptavini Blómavals, umhirða vinnusvæðis ásamt öðrum almennum verslunarstörfum.

Starfshlutfall er frá 50-100% eða umsemjanlegt og um er að ræða tímabundna ráðningu út maí 2025 en með möguleika á framtíðarráðningu.

Helstu verkefni:

• Sala, afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini

• Móttaka vöru, tiltekt og afgreiðsla pantana

• Önnur tilfallandi verslunarstörf

Hæfniskröfur

• Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum

• Sjálfstæð, skipulög og vönduð vinnubrögð

• Stundvísi, reglusemi og snyrtimennska

• Sterk öryggisvitund

• Almenn tölvukunnátta

• Góð íslenskukunnátta

Nánari upplýsingar um starfið gefur rekstrarstjóri Húsasmiðjunnar á Ólafur Björgvin Jóhannesson á olafurb@husa.is.

Sótt er um starfið á https://www.husa.is/laus-storf/ Umsóknarfrestur er til 7. júní.

Öll áhugasöm hvött til að sækja um.

Gildin okkar eru: Áreiðanleiki Þjónustulund- Þekking

Í Blómavali og Húsasmiðjunni höfum við það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu og að aðstoða viðskiptavini okkar að fegra heimili sitt og umhverfi. Við bjóðum upp á líflegan vinnustað með góðan starfsanda og sterka liðsheild. Við leggjum áherslu á að nýta til hins ýtrasta hæfni, frumkvæði og þekkingu samhents hóps rúmlega 500 starfmanna um land allt.

Framúrskarandi fyrirtæki 2017-2023

14 ÁRA Í RALLYCROSS

Björk Guðnadóttir ásamt fjölskyldu sinni, Guðna

Þrátt fyrir að Edda Björk Guðnadóttir verði ekki 15 ára fyrr en í október gerði hún sér lítið fyrir og keppti í sína fyrsta Rallycross móti í Hafnarfirði síðastliðinn laugardag. Það þarf ákveðni og kjark til þess að keppa í íþrótt sem þessari, það er ekkert hik í boði hér. Alls voru tuttugu og einn þátttakandi í unglingaflokki og þar af fimm stúlkur sem keppa og endaði Edda Björk í 17. sæti að þessu sinni og verður gaman að fylgjast með þessari ungu dömu í framtíðinni. Blaðamaður Tíguls hitti á Eddu Björk og fjölskyldu hennar í síðustu viku þegar þau voru að leggja lokahönd á keppnisbílinn. Bíllinn sem Edda keppi á er óbreyttur, vélin er 1000 kúbik og skilar 75 hestöflum. Það er búið að setja búr í hann og ökustól. Edda er í sérstökum keppnisgalla sem eru eldvarin sem sé sér undirgalli og yfir galli og að sjálfsögðu með hjálm og hálskraga. Þegar blaðamaður Tíguls spurði mömmuna, Kristínu Hartmannsdóttir hvernig henni líði með þetta þá var hún fljót að svara að hún hefði helst vilja vera sjálf að keppa.

Pabbi Eddu Bjarkar er Guðni Grímsson, torfærukappi og er því þaulvanur rallkeppnum en hann keppti fyrst 2014 í torfærunni. Þá kepptu þau hjónin Kristín og Guðni einnig í Rally í Can-am Hill Valley. Svo kappaksturs áhuginn virðist vera í blóðinu.

Edda Björk vildi nota tækifærið hér og koma á framfæri þakklæti til styrktaraðila sinna sem eru AB Varahlutir, HS vélaverk, Gúmmíbátaþjónusta Vestmannaeyja, Bragginn og VM merking.

Edda Grímssyni, Kristínu Hartmannsdóttur og Hólmfríði Eldey litlu systur sinni.

SJÓMANNA DAGSHELGIN Í HÖLLINNI

FÖSTUDAGUR 31. MAÍ

NÝDÖNSK

Hvað er betra en að byrja sjómannadagshelgina á tónleikum með einhverri alvinsælustu hljómsveit Íslandssögunnar?

Þeir Björn Jörundur, Daníel Ágúst, Jón Ólafs, Stefán Hjörleifs og Óli Hólm hafa sannarlega engu gleymt og flytja sitt besta efni frá ferlinum og er aldrei að vita nema ein og ein saga læðist með.

Húsið opnar 20.00 og tónleikar hefjast 21.00. Verði ekki uppselt er miðaverð 8.900 kr við hurð.

Sjómannadagsball

Vestmannaeyja 1. júní í Höllinni!

2024 2024

LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ

Sjómannadagsball Vestmannaeyja verður í Höllinni og verður öllu tjaldað til!

Um er að ræða glæsilega dagskrá og frábæran mat frá Einsa kalda. Veislustjórar kvöldsins verða Auddi og Steindi, en þá þarf vart að kynna og ljóst að stemningin verður mikil. Sverrir Bergmann og Halldór Gunnar verða með frábært tónlistaratriði eins og þeim einum er lagið. Eyjahjónin Kristín og Sæþór Vídó mæta með hressandi lög sem fólk þekkir vel. Kristó mætir og tekur nokkur lög en hann hefur slegið í gegn með tónleikum sínum og frábærum ábreiðum af þekktum lögum.Þá mun ballband kvöldsins, Bandmenn, líta við á borðhaldið. Húsið opnar kl. 19.00 og borðhald hefst kl. 20.00.

Í boði verða tvenns konar miðar:

A miði: Gildir á dagskrá kvöldsins, matarveislu Einsa kalda og á ballið á eftir. Verð er 15.900.

B miði: Gildir á Sjómannaballið með Bandmönnum, Audda, Steinda og Sverri Bergmann en húsið opnar á það kl. 23.30. Verð er 4.900. Sala B-miða lýkur kl. 18.00 þann 1. júní en miðar við hurð eru á 5.500 kr.

GOSLOKA HELGIN Í HÖLLINNI

FIMMTUDAGUR 4.JÚLÍ

Alþýðutónlistarhópurinn Vinir og vandamenn, sem að megninu til samanstendur af afkomendum og vinum Oddgeirs Kristjánssonar og Ása í Bæ, býður ykkur til notalegrar og hressilegrar samveru- og söngstundar þann 4. júlí kl. 20:00 í Höllinni í Eyjum. Húsið opnar kl. 19.00.

FÖSTUDAGUR 5.JÚLÍ

Bjartmar og Bergrisarnir

Það gleður okkur að kynna Goslokatónleika með Bjartmari og Bergrisunum sem fer fram 5. júlí í Höllinni Vestmannaeyjum. Á tónleikunum munu

þeir félagar flytja bestu lög Bjartmars og er þetta eitthvað sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

Húsið opnar 20.00 og tónleikar hefjast 21.00.

Miðaverð er 6.900 kr í forsölu og 7.900 kr við hurð.

Síðast þegar Bjartmar kom til okkar seldist upp í forsölu og komust talsvert færri að en vildu.

Kristó Auddi Sverrir Bergmann HalldórGunnar Kristín& SæpórVídó Bandmenn Steindi
Sjómannadagsball
MIÐASALA Á TIX.IS/HOLLIN

ERUM Í SKÝJUNUM YFIR MÓTTÖKUNUM

Á dögunum opnaði nýr veitingastaður í Vestmannaeyjum, Vöruhúsið. En staðurinn sækir nafn sitt í nafn hússins. „Við vildum halda í nafnið Vöruhúsið þar sem við fundum í framkvæmdunum þegar fólk kíkti við að margir nota þetta enn um húsið. Vöruhúsið hefur hýst mörg fyrirtæki, lengi vel verslanir en einnig veitingastaði, bókabúð og fleira. Okkur fannst það því eiga vel við að heiðra sögu hússins og halda í nafnið sem margir þekkja,“ sagði Hildur Rún Róbertsdóttir einn eigenda veitingastaðarins þegar Tígull settist niður með eigendahópnum. „Móttökurnar hafa verið stórkostlegar og erum við í skýjunum og meyr yfir viðtökunum. Við finnum fyrir miklum meðbyr og verðum ævinlega þakklát öllum sem koma til okkar og vonumst til að fólk komi aftur!“

Ásamt Hildi eiga staðinn unnusti hennar, Anton Örn Eggertsson og foreldrar hennar Róbert Agnarsson og Sigrún Ósk Ómarsdóttir en

þeim langaði mikið að stofna fyrirtæki þar sem öll fjölskyldan hefur hlutverk „Það sem fékk okkur til að fara út í reksturinn er brennandi áhugi á að stofna fjölskyldufyrirtæki þar sem öll fjölskyldan er með hlutverk. Við sjáum Vöruhúsið fyrir okkur sem stað þar sem gestum líður vel, í notalegu umhverfi að borða ferskan og ljúffengan mat með fjölskyldu og vinum.“

Útisvæði í bígerð

Vöruhúsið tekur um 50 manns í sæti og stendur svo til að bæta við útisvæði sunnan við húsið. „Við erum að hefja framkvæmdir á útisvæði sunnan megin við húsið sem verður skemmtileg viðbót við salinn okkar. Eldhúsið er opið frá kl. 11-21:30 en barinn verður opinn lengur ef stemningin er þannig.“

Matseðillinn í Vöruhúsinu er fjölbreyttur og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Aðspurð sagði Hildur hann hinsvegar koma til

með að verða lifandi „Matseðillinn verður breytilegur með nýjum og spennandi réttum í bland við vinsælustu réttina okkar sem halda sínu plássi.“

Matarlyst og myndlist

En matarlystin er ekki eina listin sem sinnt er í Vöruhúsinu, myndlistin er einnig í hávegum höfð. Þau fengu t.a.m. Unu Þorvaldsdóttur til þess að mála listaverk á veggi baðherbergjanna hjá sér ásamt því að vera með eitt verk á veggjum veitingarstaðarins. Vilhjálmur Ísfeld Vilhjálmsson er sýnir einnig nokkur verka sinna á veggjum Vöruhússins sem og Bjartey Gylfadóttir og stendur til að gera vestmanneysku listafólki hátt undir höfði. „Já, listafólk Eyjanna verður áfram áberandi hjá okkur. Við höfum verið að auglýsa listasýninguna reglulega á okkar miðlum og höfum fengið skilaboð frá listafólki um að taka þátt. Við hvetjum upprennandi listafólk á

öllum aldri að hafa samband ef þau hafa áhuga að sýna hjá okkur.“

Mikið um mat í Vöruhúsinu

Húsið Vöruhúsið við Skólaveg 1 og var byggt fyrir Einar Ríka árið 1926. Lengst af hefur verið verslað með matvöru í Vöruhúsinu; Bæjarbúðin, Verslun Guðjóns Scheving og Eyjakjör voru slíkar verslanir en einnig var raftækjaverslunin Kjarni þar til húsa. Einnig var Bókabúðin Helgafell þarna til húsa auk Ragga rakara, ljósmyndastofu og Athafnaverinu. Verbúðir voru líka í húsinu í fyrri tíð. Fleiri veitingastaðir hafa verið til húsa þar t.a.m. Café María/Hrói Höttur og Fiskibarinn. Það er því vel til fundið að enn á ný séu salir Vöruhússins fylltir matarilm.

Að lokum vildu eigendur Vöruhússins koma á framfæri þökkum til allra sem hafa stutt þau. „Við viljum enn og aftur þakka fyrir viðtökur Vestmannaeyinga á Vöruhúsinu. Þessir fyrstu dagar hafa verið stórkostlegir. Við viljum einnig þakka okkar góðu samstarfsaðilum fyrir gott samstarf, Miðstöðin, Heildverslun Karls Kristmanns, Bragginn, Eyjablikk, Vélaverkstæðið Þór og fleiri, án ykkar væri þetta ekki hægt.“

Opnunartímar: Mánudagur - lokað

Þriðjudagur - 13.00 til 17.30

Miðvikudagur - 13.00 til 17.30

Fimmtudagur - 13.00 til 17.30

Föstudagur - 13.00 til 17.30

Laugardagur - 12.00 til 15.00

Sunnudagur - lokað

Flötum 29 Tímapantanir í síma: 481-1012 Neyðarsíminn: 844-5012 tannsi@eyjar.is NÝJA TANNLÆKNASTOFAN

SJÓMANNA DAGSHELGIN

Í VESTMANNAEYJUM 30.MAÍ-2.JÚNÍ 2024

FIMMTUDAGUR 30.MAÍ 2024

11:00 Sjómannadagsmeistarinn

í pílu

Mótið verður haldið í sal

Snóker- og Pílufélags Vestmannaeyja (í kjallara Betel/ gengið inn sunnan megin).

Þátttökugjald er 3.000kr og fer skráning fram á facebooksíðu Pílufélags Vest

16:00

18:00

FÖSTUDAGUR 31.MAÍ 2024

08.00 Opið ÍsfélagsSjómannagolfmót Vestmannaeyja

VINSÆLT

Skráning í síma 481-2363 og golf.is. Vegleg verðlaun í boði.

12-14 Eldri borgarar í kúluhúsinu

Sjómannadagsráð og Súlnasalur bjóða eldri borgurum til matar í Súlnasal (Kúluhúsinu).

17.00 Lífið á sjónum Ljósmyndasýning Hlyns Ágústssonar opnar í Einarsstofu, Safnahúsi

Nýdönsk alelda í Eyjum

Þeir sem ætla að taka þátt í kappróðrinum og öðrum dagskráratriðum vinsamlegast hafið samband
TÖKUM ÞÁTT

LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 2024

11.00 Dorgveiðikeppni SJÓVE

og Jötuns á Nausthamarsbryggju.

Vegleg verðlaun, stærsti fiskur, flestir fiskar og fleira.

13.00 Sjómannafjör á Vigtartorgi

Séra Viðar blessar daginn. Kappróður, koddaslagur, tuðrukvartmíla, lokahlaup, sjómannaþraut, foosball völlur á staðnum, þurrkoddaslagur. Blaðrarinn mætir á svæðið. Hoppukastalar. ÍBV verður með poppkorn, Kjörís

gefur ís og Bylgjuhraðlestin verður á svæðinu ásamt matarvögnum.

14-18 Myndlistasýning í Akóges

Viðar Breiðfjörð og Andrea Fáfnis Ólafs sína málverk sín í Akóges.

16.00 ÍBV-Fjölnir / Lengjudeild karla

Upphitun kl 15:00 grill og léttar veitingar. Glæsilega dagskrá og frábær

SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 2024

10.00 Fánar dregnir að húni

13.00 Sjómannamessa í Landakirkju.

Séra Guðmundur Örn predikar og þjónar fyrir altari. Eftir messu verður minningarathöfn við minnisvarða hrapaðra og drukknaðra. Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur nokkur lög og Drengjakór Reykjavíkur syngur. Blómsveigur lagður að minnisvarðanum. Guðni Hjálmarsson stjórnar athöfninni. Að lokinni athöfn býður Drengjakór Reykjavíkur uppá fría 30 mín. tónleika í Landakirkju.

14-17 Eykyndilskaffi í Akóges

14-18 Myndlistasýning í Akóges

Viðar Breiðfjörð og Andrea Fáfnis Ólafs sína málverk sín í Akóges.

Veislustjórar kvöldsins verða

Sverrir Bergmann og Halldór Gunnar

tónlistaratriði. Eyjahjónin Kristín og Sæþór Vídó mæta. Kristó tekur nokkur lög. Þá mun ballband kvöldsins, Bandmenn, líta við á borðhaldið.

15.00 Hátíðardagskrá á Stakkó Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur undir stjórn Jarls Sigurgeirssonar. Heiðraðir aldnir sægarpar. Valmundur Valmundsson stjórnar. Karlakór Vestmannaeyja flytur nokkur lög undir stjórn Matthíasar Harðarsonar. Ræðumaður Sjómannadagsins er Gísli Matthías Sigmarsson. Verðlaunaafhending fyrir keppnir helgarinnar, Fimleikafélagið Rán, hoppukastalar og popp.

TÖKUM ÞÁTT samband á Facebook síðu Sjómannadagsráðs eða í síma ráðsins: 869-4449, 697-9695 eða 898-7567

FIMMTUDAGUR 30. MAÍ

SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ

Við
til
óskum sjómönnum og fjölskyldum
hamingju með daginn!
KL. 20.00 KL. 15.00 KL. 20.00

VÍNBÚÐIN

VESTMANNAEYJUM

VILTU VINNA MEÐ OKKUR Í SUMAR?

Lífleg sumarvinna fyrir tvítuga og eldri

Vínbúðin Vestmannaeyjum leitar að glaðlyndum og röskum einstaklingum í sumarafleysingar sem eru tilbúnir að veita framúrskarandi og ábyrga þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

• Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini

• Framstilling á vöru og vörumeðhöndlun

• Umhirða búðar

Hæfniskröfur

• Jákvæðni og góð þjónustulund

• Hæfni í mannlegum samskiptum

• Reynsla af verslunarstörfum er kostur

Starfshlutfall er breytilegt eftir þörfum. Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.

Umsóknarfrestur er til og með 7. júní nk.

Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um á vinbudin.is

Nánari upplýsingar: Erna Halldórsdóttir, vestmannaeyjar@vinbudin.is – 560 7891.

ÁTVR rekur 51 Vínbúð um allt land. Stefna fyrirtækisins er að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar. Við viljum að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur og vinnum markvisst að því að auka ánægju starfsfólks.

Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þroskast og læra nýja hluti. Þannig eflum við þekkingu og kraft fyrirtækisins.

Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ. Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af þessum gildum.

2021 - 2024

ANDREA OG VIÐAR MEÐ SAMSÝNINGU UM SJÓMANNADAGSHELGINA

Viðar Breiðfjörð og Andrea Fáfnis Ólafs verða með samsýningu í Akóges um sjómannadagshelgina. Þau bjóða öllum bæjarbúum og gestum velkomna á sölusýningu sem verður formlega opnuð kl. 14 á laugardaginn með léttum veitingum. Sýningin stendur einungis yfir helgina, frá kl. 14-18 á laugardag og sunnudag.

Sýning Andreu og Viðars Breiðfjörðs heitir Öldurót. En Viðar er með seríu á sýningunni sem kallast Af jörðu ertu. Viðar segir að mikið öldurót hafi verið í hans lífi og er nafnið eftir því. Mikið af fólki sem hann þekkti vel og féll frá á stuttum tíma þá vaknaði hugmyndin að nafninu. Hann hefur hugsað mikið um lífið og er hann þakklátur fyrir að búa á stað eins og Vestmannaeyjar eru þar sem honum finnst að fólkið sé eins og fjölskyldan sín. Hann er núna á góðum stað í lífnu og hefur aldrei liðið betur með lífið, gleðina og þakklætið. Listanafn Viðars er Woody Widebay.

Listrænu hæfileikar Andreu virðast renna í blóðinu eða vera skráðir

inn í DNA mengið með einhverjum hætti. Hún hefur verið að sinna listinni í nokkur ár en hún hélt sína fyrstu einkasýningu í kjölfar fimmtugsafmælisins hennar árið 2022 og seldist næstum allt upp. Síðan þá hefur hún haldið nokkrar sýningar. „Ég er svo heppin að verkin hafa selst vel, bæði til samlanda minna og til útlanda. Svo virðist sem listsköpun mín falli í kramið hjá mörgum og er ég óendanlega þakklát fyrir það því það gerir mér kleift að starfa við hana.

Listsköpunin kom til mín í kjölfarið á miklu ölduróti í mínu lífi. Þau ýttu við mér, nýja ástin mín og listagyðjan sjálf. Þau hvöttu mig til að leika mér að litum þar til ég tók ákvörðun um að verða við ósk þeirra um að prófa, bara prófa, að mála eina litla mynd. Listagyðjan birtist mér margoft í draumum og virtist vilja fá mig til liðs við sig. Ég skildi ekkert í því og ef ég á að vera alveg hreinskilin þá gerði ég það kannski svolítið til að friða þau og sýna þeim að ég kynni ekkert að mála. En ég kom okkur öllum á óvart, kannski einna helst sjálfri mér, því nákvæmlega svona vaknaði skaparinn í mér aftur eftir

langan og djúpan svefn. Barnæskan var full af teikningum. Ég kalla þetta stundum endurfæðingu mina. Ég fékk að kynnast alveg nýjum heimi listsköpunar núna á miðju æviskeiði og það gerðist á mjög hamingjuríku tímabili sem kom eftir langt og erfitt lífsskeið. Þakklætið sem því fylgir hríslast reglulega um mig alla“.

Hver er þinn helsti innblástur?

Ég sæki mér þekkingu og innblástur frá ýmsum listamönnum, viðfangsefnum, eigin hugarheimi og umhverfi. Ég er einstaklega heilluð af ýmsum listamönnum frá Bauhaus tímabilinu á fyrri part síðustu aldar. Frumkvæðið og krafturinn sem einkenndi Bauhaus hreyfinguna breytti því hvernig fólk leit á listsköpun. Á þeim tíma urðu frumkvöðlar í bæði geometríunni og abstraktlistinni til.

Hvaða staður þykir þér fallegastur?

Ég hef ferðast víða um heiminn og séð svo svakalega marga fallega staði, bæði sköpunarflæðið í náttúrunni sjálfri sem og heillandi arkitektúr. Ég finn þó hvar sem ég

kem að mér finnst náttúran hvað fallegust þegar ég sé fjölbreytnina í henni, eins og þar sem ég sé fallegt sambland af hafi eða vötnum og himni með fallegum fjöllum og klettabeltum og helst töluverðan gróður líka.

Uppáhalds staður sem þú hefur komið á og værir til í að fara á aftur?

Ég hef ferðast svo víða að það er virkilega erfitt að gera upp á milli. Ef ég ætti að hugsa út fyrir landið okkar Ísland, þá eru nokkrir staðir sem hafa heillað mig verulega mikið sem hafa það sammerkt að búa yfir þessum eiginleikum sem ég nefndi. Það eru t.d. sum svæði í Ölpunum og við Alpana, Costa Rica, Tæland, Bali. Kóralrifin við Ástralíu eru síðan eins og annar heimur út af fyrir sig.

Hvernig myndir þú lýsa verkum þínum?

Ég myndi kalla þau tímalausa geómetríu og stundum eru þau abstrakt. Stærsta verkið mitt er t.d. með súmerskum fleygrúnum sem stafa Friðarljós. Það var unnið til styrktar byggingu nýs Kvennaathvarfs og er selt - en ég næ vonandi að hafa með mér nokkur eftirprent til Eyja. Það er einstaklega fallegt verk. Stundum eru verkin mín eins og einhvers konar kosmísk ferðalög eða leikur að hreyfingu, litum og bylgjum.

Ég leitast við að láta þau leika við augu áhorfandans þannig að ímyndunaraflið fari á flug og veki spurningar.

Hvenær komstu síðast til Eyja?

Það eru mörg ár síðan – það er orðið tímabært að kíkja til Eyja aftur. Þar er virkilega fallegt landslag og fallegur bær. Ég vona að sýningunni okkar Viðars verði vel tekið og fólkið í bænum kíki á verkin okkar í Akoges salnum um sjómannadagshelgina. Ekki væri nú verra að selja þau líka og skilja eftir smá hluta af sjálfri mér hjá Eyjamönnum.

Ertu með einhverja tengingu til Eyja?

Ég er Íslendingur, fædd og uppalin á Húsavík og kynntist sjómennskunni ung að aldri. Mín fyrsta minning í lífinu er úti á sjó með föður mínum. Ég hef ekki beina tengingu við mikið af fólki í Eyjum, þótt ég þekki til nokkurra þar. Ætli tengingin sem ég finn sé ekki hvað síst vegna þessa. Ég fór til Eyja í skólaferðalag ung að aldri og heillaðist af náttúrufegurðinni. En tenging okkar Viðars kemur í gegnum rætur okkar til Húsavíkur.

Hver er þín helstu áhugamál fyrir utan listina?

Ég er gjörn á að spá og spekúlera töluvert í hinn stóra sannleika, samhengi hlutanna í alheiminum öllum og hvernig mannskepnan spilar þar inn í. Ég nýt þess að ferðast um landið og um heiminn og mína eigin margvíslegu hugarheima og upplifa tengingu við alheimsorkuna. Eins nýt ég þess að hlusta á tónlist og hef leikið mér að því að semja texta við lög mannsins míns. Annars finnst mér bara allra best og yndislegast að upplifa ást og kærleika, að vera í flæði á þeirri bylgjulengd og fá að njóta þess að sjá börnin mín vaxa úr grasi og verða að fallegum, skapandi og hæfileikaríkum mannverum.

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN

SJÓMENN & FJÖLSKYLDUR!

HARÐAR MATTA &
VE
Bílaverkstæði
Bylgjan

Við sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra heillaóskir í tilefni dagsins.

MYND: FANNAR FREYR BJARNASON ISFELAG.IS

STÚDENTAR

Síðastliðinn laugardag útskrifuðust 27 nemendur frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum. Tígull tók spjall við Þau Andrés Marel Sigurðsson og Önnu Maríu Lúðvíksdóttur. Ellert Scheving veitti Andrési viðurkenningu fyrir hönd ÍBV íþróttafélags og veitti honum barmmerki félagsins þeim sem klárað hafa fjórar annir eða fleiri í akademíunni. Anna María fékk viðurkenningu fyrir mjög góðan árangur í dönsku, spænsku, íslensku, raungreinum, heildarárangur á stúdentsprófi og svo Menntaverðlaun Háskóla Íslands sem veitt eru framhaldsskólanemum sem sýnt hafa framúrskarandi árangur á stúdentsprófi, með meðaleinkunn 8,75 eða hærra.

Fullt nafn: Anna María Lúðvíksdóttir.

Foreldrar: Ingibjörg Þorsteinsdóttir og Lúðvík Jóhannesson.

Systkini: Þau eru þrjú, Þórey, Arnar Þór og Ingi Þór.

Ert þú búin að ákveða hvað þú stefnir á að verða þegar þú verður stór? Ég er ekki alveg búin að negla það niður en ég veit að mig langar að vera í heilbrigðisgeiranum.

Ætlar þú strax í framhaldsnám? Nei, ég ætla að taka mér árs pásu og vinna.

Í hvaða skóla þá stefnir þú ? Ég stefni líklegast á að fara í Háskóla Íslands.

Staðarnám eða fjarnám? Vonast eftir að geta verið í staðnámi.

Hvernig er þín upplifun af FÍV? Þessi 3 ár í FÍV voru æðisleg, fjölbreytt og ég kynntist fullt af nýjum krökkum.

Uppáhalds kennari í FÍV? Allir kennararnir mínir í FÍV voru yndislegir en auðvitað standa einhverjir upp úr, samt er bara einhvern veginn ekki hægt að velja á milli þeirra, þeir hugsuðu allir svo vel um okkur og þau sáu til þess að okkur líði vel og værum að gera okkar besta.

Hver var skemmtilegasti áfanginn sem þú tókst? Mér fannst mjög skemmtilegt i spænsku, líffræði og að fara í dönsku ferða áfangann.

Eitthvað að lokum?

Bara takk fyrir mig FÍV, mun sakna þín.

Fullt nafn: Andrés Marel Sigurðsson

Foreldrar: Sigurður Smári Benónýsson og Sigríður Lára Andrésdóttir

Systkini: Frans Sigurðsson og Birna Dís Sigurðsdóttir

Ert þú búin að ákveða hvað þú stefnir á að verða þegar þú verður stór?

Er að stefna að fara í smiðinn eftir sumarið. Í hvaða skóla þá stefnir þú? Ekki ákveðið Hvernig er þín upplifun af FÍV?

Frábær skóli með frábærum vinum.

Uppáhalds kennari í FÍV? Tinna Hauks.

Hver var skemmtilegasti áfanginn sem þú tókst?

Þegar Einar Fidda var með Enska boltann áfangann.

Eitthvað að lokum?

Bara frábær ár að baki í skólanum.

OPIÐ ALLA VIRKA DAGA TIL 02:00 FÖS OG LAU TIL 04:00

KÆRUSJÓMENNOGFJÖLSKYLDUR! KOMDU OG KÍKTU VIÐ!

TILHAMINGJUMEÐDAGINN

STÚDENTAR

Síðastliðinn laugardag útskrifuðust 27 nemendur frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum. Tígull tók spjall við Þau Jón Grétar Jónasson og Sigrúnu Gígju Sigurjónsdóttur. En Jón Grétar stefnir á nám í Tækniskólanum í píparann en Sigrún Gígja er að fara að flytja til Kaupmannahafnar eftir sumarið. Sigrún Gígja hlaut eftirfarandi viðurkenningar: Fyrir mjög góðan árangur í dönsku, félagsstörf, heildarárangur í félagsvísindagreinum og mjög góðan heildarárangur á stúdentsprófi.

Fullt nafn: Sigrún Gígja Sigurjónsdóttir.

Foreldrar: Elísa Kristmannsdóttir og Sigurjón Eðvarðsson.

Systkini: Kristmann Þór og Jón Erling.

Ert þú búin að ákveða hvað þú stefnir á að verða þegar þú verður stór? Nei er ekki búin að skoða mikið af valmöguleikum. Finnst þó líklegt að ég fari í einhverja hönnum, grafíska, arkítektúr o.s.frv. Ætlar þú strax í framhaldsnám?

Nei, eftir sumarið ætla ég að flytja til Kaupmannahafnar og njóta lífsins.

Hvernig er þín upplifun af FÍV? Mjög góð. Finnst kennarar og stjórnendur sýna manni mikinn stuðning og heilt á litið fannst mér þessi 3 ár mjög skemmtileg.

Uppáhalds kennarí í FÍV?

Get ekki valið, of margir góðir. Hver var skemmtilegasti áfanginn sem þú tókst? Myndlist.

Eitthvað að lokum?

Mæli mjög með FÍV fyrir alla. Námið er fjölbreytt en krefjandi. Kennararnir eru flestir frábærir og mun ég sakna þeirra núna þegar ég er búin með skólann.

Fullt nafn: Jón Grétar Jónasson.

Foreldrar: Jónas Guðbjörn Friðhólm Jónsson og Helga Sigrún Ísfeld Þórsdóttir.

Systkini: María Sigrún Jónasdóttir.

Ert þú búin að ákveða hvað þú stefnir á að verða þegar þú verður stór? Já, pípari.

Ætlar þú strax í framhaldsnám? Nei.

Í hvaða skóla stefnir þú á að fara?

Tækniskóla Íslands.

Ætlar þú í fjarnám eða staðarnám? Staðarnám. Hvernig er þín upplifun af FÍV? Mjög góð.

Uppáhalds kennari í FÍV?

Margrét Rut eða Tinna Hauks.

Hver var skemmtilegasti áfanginn sem þú tókst?

Fjármálalæsi.

Eitthvað að lokum? Takk fyrir allir í FÍV!

Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. Úrval getur verið misjafnt milli verslana. Afsláttur gildir ekki af tilboðsvörum og „Lægsta lága verði Húsasmiðjunnar“.

HÚSASMIÐJU HÁTÍÐ

Gildir einnig í vefverslun

Grillum pylsur

á laugardag kl. 12-14

25% afsláttur

Miðvikudag til laugardags í Vestmannaeyjum

Garðverkfæri (Gildir ekki af Ikra) 25% • Sláttuvélar og orf 25% • Mosatætarar og hekkklippur 25%

Rafmagnsverkfæri (Black+Decker, Worx) 25% • Háþrýstidælur (Nilfisk) 25% • Stigar og tröppur (Elkjop/Jumbo) 25%

Allar vörur í Blómaval 25% • Sumarblóm, garðplöntur og trjáplöntur 25% • Blómapottar 25%

Vasar og gjafavara 25% • Grill (Gildir ekki á Weber) 25% • Innimálning 25% Útimálning 25% • Pallaolía og viðarvörn 25%

Garðhúsgögn 25% • Pallahitari 25% • Reiðhjól og fylgihlutir 25% • Búsáhöld 25% Vinnuhanskar 25%

Pottar og pönnur 25% • Diskar og glös 25% • Ruslapokar 25% • Flísar 25-40% • Parket 25-40% Blöndunartæki eldhús og bað (Grohe og Damixa) 25% • Vaskar, handlaugar og salerni 25% Uppblásnir rafmagnspottar 25% ... og margt fleira

KRAFTMIKIL FORYSTUKONA

Forsetinn er fulltrúi þjóðarinnar allrar og þarf sem slíkur að vera sameinandi afl sem treystir sér til að tala til allrar þjóðarinnar og fyrir hönd hennar.

Forseti þarf að geta sýnt forystu og auðmýkt í senn til þess að sameina þjóðina og þannig styrkja grundvöll lýðræðis og mannúðar. Það eru tímar mikilla breytinga og við stöndum frammi fyrir nýjum áskorunum sem geta reynt á samheldni okkar. Í þessum aðstæðum er hlutverk forseta að byggja brýr á milli ólíkra skoðana og vinna gegn skautun til að verja þau grunngildi sem við byggjum íslenskt samfélag á; lýðræði, mannréttindi og réttarríkið.

Forseti þarf að beita sér fyrir því að áhrifa Íslands gæti sem víðast,

með því að ná eyrum jafnt þjóðarleiðtoga sem annarra þegar þess þarf. Forseti framfylgir utanríkisstefnu Íslands og sýnir frumkvæði við að gæta að hagsmunum lands og þjóðar. Þannig getum við best nýtt þau tækifæri sem við eigum á ólíkum sviðum. Íslenskt hugvit hefur skilað framförum um allan heim og þar hefur forsetinn hlutverki að gegna.

Forseti Íslands á að vera fulltrúi hins besta í menningu þjóðarinnar. Hann þarf að standa styrkum fótum í íslenskri sögu, menningu og tungu, þekkja í senn arfleifð þjóðarinnar og það nýstárlegasta í menningunni og geta þannig verið öflugur boðberi íslenskrar menningar um heim allan og talað máli menningar, íþrótta,

tungu og vísinda heima og erlendis. Forsetaembættið er mikilvægt fyrir þjóðina og forsetinn þarf að skilja gangverk samfélags og stjórnmála.

Forsetinn þarf að geta tekið erfiðar ákvarðanir með óhlutdrægum hætti, hafa góða dómgreind og hafa kjark til þess að gæta hagsmuna þjóðarinnar.

Katrín Jakobsdóttir hefur sýnt að hún hefur þessa eiginleika. Hún hefur leitt þjóðina í gegnum erfiðar áskoranir og áföll, leitt saman ólíka hópa með ólík sjónarmið að sameiginlegum markmiðum.

Katrín er með ómetanlega reynslu og þekkingu í farteskinu til þess að takast á við krefjandi áskoranir nútímans og leiða þjóðina með sér.

Stuðningsfólk.

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN

SJÓMENN & FJÖLSKYLDUR!

Sjómannadagsráð Vestmannaeyja

VE
Frár

FLUTTI ÓVÆNT TIL EYJA EFTIR STUTTAN TÖLVUFUND

Daníel Viðar Guðmundsson er ný tekinn við sem verslunarstjóri Krónunnar í Eyjum. Við fengum hann í létt spjall í Tígul:

Aldur: 26

Menntun: Stúdentspróf Fjölskylda: Ógiftur og barnlaus (svo ég viti til)

Hvernig kom það til að þú fluttir til Eyja?

Flutningurinn til Eyja var sannarlega óvæntur, en það var ekki nema stuttur tölvufundur þar sem yfirmaðurinn minn tilkynnir mér að Óli er að hætta og staðgengil þarfnast sem allra fyrst. Þá hafði ég rekið Krónuna í Þorlákshöfn í um hálft ár. Ég stökk spenntur á það tækifæri!

Áttu einhverja tengingu til Eyja?

Nei, ég á enga tengingu til Eyja, nema bara nokkrar heimsóknir á ævinni þar sem ótrúlega náttúrufegurð Vestmannaeyja hefur setið eftir í minningunum.

Hvernig líst þér á að búa í Eyjum svona það sem af er komið? Ég hef plummað mig ótrúlega vel

í Eyjum. Ég er Vestfirðingur og hef búið í Súgandafirði bróðurhluta ævinnar og þekki því vel að veður og vindar liti samfélagið á mikilfenglegan hátt - það má koma því þannig að orði að hlýji andinn sem liggur yfir eyjunni er keimlíkur þeim sem ég kynntist heima fyrir vestan.

Varstu að sjá um Krónuverslun á höfuðborgarsvæðinu? Ef já, finnst þér einhver munur á að sjá um verslun í Eyjum og þar?

Fyrsta Krónuverslunin sem ég rak var í Árbænum í Reykjavík, svo Þorlákshöfn, svo Eyjar. Það er fyrst og fremst tvennt sem einkennir verslanir á landsbyggðinni frá þeim á höfuðborgarsvæðinu. Annars vegar er það fólkið - Viðskiptavinir verslana á landsbyggðinni eru mun meira mótandi en í bænum. Hér er ekki auðvelt að skjótast og sækja t.d. sérvöru, eins og er á höfuðborgarsvæðinu og

þ.a.l. vill maður geta veitt þá þjónustu sem óskað er eftir og mótar það að mjög miklu leiti úrval og upplifun verslunarinnar. Svo má ekki gleyma að minnast á hve sterkar tengingar og vinasambönd maður myndar - verslunarrekstur í

bænum er ekki eins persónulegur. Hins vegar er það fjarlægðin frá öðrum verslunum Krónunnar. Í bænum er leikandi gert að „græja“ það sem vantar, þar af sérstaklega þar sem maður getur sótt í það í öðrum verslunum. T.d. ef vanta skyldi rjóma, þá gæti ég sent línu á einhverja stærri verslunina og sótt þangað það sem vantar til að brúa bilið fram að næstu vöruafhendingu. Hér (og víða á landsbyggðinni) er það ekki möguleiki og þarf maður að vanda pantanir sérstaklega vel.

Hver eru þín helstu áhugamál?

Mín helstu áhugamál eru annars vegar flest er kemur að túrisma á Íslandi, enda er ég vanur leiðsögumaður. Hins vegar eru það bílar og allt sem þeim tengist, enda áður bílasali fyrir minn tíma í Krónunni.

Eitthvað að lokum?

Að lokum þá hvet ég viðskiptavini Krónunnar að vera dugleg að benda á það sem betur má fara til þess að þjónustan í versluninni samræmist þörfum ykkar eins vel og mögulegt er - og ekki hika við að koma og segja „hæ“, þið eruð alltaf hjartanlega velkomin!

Ólafur Jóhannesson afhendir Daníel Viðari Guðmundssyni lyklana að Krónunni.

ÞAÐ ERU FLOTTIR KARAKTERAR HJÁ OKKUR SEM GERA LÍFIÐ SKEMMTILEGT

Davíð Þór Óskarsson starfar sem verkstjóri hjá Ísfélaginu og hefur gert síðan um mitt ár 2017. „Ég byrjaði nú fyrst að vinna sem unglingur með skóla hjá Ísfélaginu. Svo kom ég aftur í ágúst 2017. Þar

áður var ég hjá Lögreglunni í Vestmannaeyjum í 12 ár.“

Davíð Þór er fertugur og fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum. Giftur Birnu Vidó Þórsdóttur og eigum þau börnin Hreggvið Jens og Baltasar Þór.

„Starf mitt sem verkstjóri er nokkuð margþætt. Meginhlutverkið er að sjá um útskipanir fyrir frystihúsið. Þær geta verið frá einum kassa og allt að þúsund brettum. Svo er ég í miklum samskiptum við starfsfólk frystihússins, sem felst í að skrá nýtt fólk inn í kerfið og skrá vinnutíma þess. Svo þarf að taka á þeim verkefnum sem koma upp hverju sinni,“ sagði Davíð aðspurður um hvað felst í starfinu. „Hjá okkur er unnið frá klukkan 7-15, þegar við erum í bolfiskvinnslu og við uppsjávarvinnsluna

Tranberg

Starfsfólk óskast

í nýtt bakarí, Tranbergsbakarí.

Áhugasamir hafi samband við

Garðar Svein Tranberg, bakarameistara í síma 896-6276. gardarsveinntranberg@gmail.com

er unnið á 12 tíma vöktum. Hjá mér byrjar dagurinn yfirleitt á að fara yfir skráningu starfsmanna frá því deginum áður og finna út bónus. Svo þarf að finna til vörur sem hafa verið pantaðar hjá okkur og passa upp á skráningu þannig að allt fari á réttann stað. Svo enda dagurinn yfirleitt á að skrá framleiðslu dagsins í kerfið okkar.“*

Davíð segir samt enga tvo daga vera eins sem er eitt það skemmtilegasta við starfið. „Fjölbreytileikinn við starfið er það sem gerir það skemmtilegt. Það og þeir fjölmörku flottu karakterar sem starfa hjá okkur.“

Um sextíu manns starfa í frystihúsi Ísfélagsins í Eyjum en þar að auki hefur félagið verið með starfsemi á Siglufirði, í Þorlákshöfn og á Þórshöfn.

Við óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með daginn!

EKKI SJÁLFGEFIÐ AÐ SJÓMENN SKILI SÉR HEIM

Díana Íva Gunnarsdóttir var ung að árum þegar hún uppgötvaði hætturnar sem steðja að sjómönnum. Faðir hennar, Gunnar Kristján Oddsteinsson vélstjóri, upplifði sinn skerf af hættum hafsins og komst oftar en einu sinni í hann krappann er hann var til sjós.

Að sögn Díönu Ívu óttaðist hún oft um líf föður síns og átti það til að leiða hugsanir sínar til hins versta þegar faðir hennar var á sjó. Hann sagði skilið við sjómennskuna árið 2009 eftir að hafa orðið fyrir slysi sem olli honum miklu heilsutjóni.

„Það er ekki sjálfgefið að sjómenn skili sér heim eftir sjóferð. Það versta sem ég upplifði þegar pabbi var á sjó var hræðslan við að hann kæmi ekki aftur,“ segir Díana og rifjar upp sjávarháska sem faðir hennar upplifði á sjómannsferli sínum.

Atvikin, sem eru fleiri en eitt, segir hún aldrei koma til með að víkja sér úr minni. Þau séu í eðli sínu ólík en höfðu víðtæk áhrif á föður hennar og fjölskyldu, en ekki síður þá skipsfélaga sem réru með honum á þeim tíma þegar slysin áttu sér stað.

Sendur í Vélskólann eftir að vélin gaf sig Gunnar faðir Díönu hóf feril sinn á sjó sem háseti á Kristbjörgu VE 70 í byrjun árs 1991. Þar réri hann fram á haustið eða allt þar til vélin um borð í bátnum varð að bráð. Í kjölfarið réðust örlög Gunnars sem ákvað að feta menntaveginn á þeim tíma og lauk námi við vélstjórn.

„Pabbi var þá í raun sendur í Vélskólann og vann hjá sömu útgerð næstu sjö ár á eftir sem vélavörður og vélstjóri en fór svo í eigin rekstur ásamt nokkrum félögum,“ segir hún frá upphafi sjómannsferils föður síns.

„Svo stofnuðu þeir félagar útgerðarfélag og keyptu saman bát sem hét Vigdís Helga VE 700. Þeir gerðu þann bát upp og pabbi var vélstjóri á honum í þrjú ár. Árið 2000 seldu þeir bátinn og pabbi réði sig sem vélavörð á Ófeig II VE 325.“

Horfði á bátinn fara niður Díana kallar fram í hugann söguna af harmafullu sjóslysi sem átti sér

stað um borð í botnvörpuskipinu Ófeigi í desembermánuði árið 2001. Skipið hafði lagt af stað í túr og var á veiðum í um það bil 40 sjómílum suðaustan við Vestmannaeyjar þegar veður versnaði og aftakarok skall á.

„Þetta situr alveg á sálinni,“ segir Díana Íva um leið og hún reynir að lýsa aðstæðum og tildrögum slyssins.

„Pabbi hafði verið á Ófeigi á annað ár þegar lagt var í þennan túr. Þetta var í byrjun desember og veðrið vont. Pabbi hefði vel geta dregist niður með bátnum en báturinn sneri skutinn niður og stefnið upp í loftið,“ lýsir hún.

„Með ótrúlegum hætti náði pabbi að synda undan brúnni, spyrna sér frá bátnum og synda frá honum. Hann horfði á bátinn fara niður og sá neyðarljósin á honum þegar hann var að sökkva.“

Díana Íva ásamt foreldrum sínum Sigurbjörgu Kristínu Óskarsdóttur og Gunnari Kristjáni Oddgeirssyni. Ljósmynd/Aðsend Gunnar Kristján Oddgeirsson neyddist til að hætta á sjó þegar hann lenti í slysi um borð í Stíganda árið 2009. Ljósmynd/Sigurgeir Jónasson

Eins manns saknað

Díana segir skipið hafa sokkið á fáeinum mínútum. Miðað við lýsingar hennar átti faðir hennar líf sitt að leysa en tókst að berjast hetjulega við sjóinn og erfiðar aðstæður. Þarna hefði til beggja landa geta brugðið.

Það var lán í óláni að skipið Danski Pétur VE 423 var á veiðum skammt frá slysstað. Varð áhöfnin vör við neyðarkall frá Ófeigi rétt áður en skipið sökk og hvarf af ratsjá. Átta skipverjum tókst að bjarga en eins manns var saknað.

„Ég man að við fórum til fjölskyldu mannsins til að votta þeim samúð okkar. Þetta var virkilega átakanlegur og erfiður tími fyrir ástvini mannsins. Hann átti son sem var nokkrum árum yngri en ég. Honum kynntist ég svo aftur á fullorðinsárum og höfðum við verið vinir í nokkur ár þegar við komumst að því hversu tengd við vorum,“ segir Díana og þykir ótrúlegt hvernig lífið á það til að leiða fólk saman á mismunandi tímum æviskeiðsins. Allar götur síðan hefur henni þótt sérlega vænt um þessa tengingu og þann vinskap sem hún öðlaðist við son mannsins sem fórst um borð í Ófeigi.

Greypt í minnið

Slysið segir hún oft koma til tals á milli fjölskyldumeðlima sinna sem oftar en ekki endurupplifa erfiðar tilfinningar sem fylgdu í kjölfarið. Frásögn föður hennar af því sem hann upplifði þetta örlagaríka augnablik er óhugnalegt og lýsir hættulegu starfsumhverfi sjómanna í þaula.

„Ég mun aldrei gleyma mynd sem ég sá í Morgunblaðinu af mömmu og pabba þar sem mamma var grátandi að taka á móti pabba niður á bryggju. Þessi mynd er gróin í minnið á mér og ég er gráti næst að hugsa um hana.“

Stuttu eftir slysið fór faðir hennar aftur á sjóinn þrátt fyrir að áfallið hafi verið mikið og margt óuppgert.

„Pabbi skellti sér á sjóinn strax aftur eftir áramót og var á sjó í níu

Feðginin í góðum félagsskap hvors annars. Ljósmynd/Aðsend

ár eftir að Ófeigur sökk. Hann var á nokkrum bátum á þessu níu ára tímabili; Gissuri hvíta SF 55, Alfa HM, Huginn VE 55 og endaði svo sem yfirvélstjóri á Stíganda VE 77.“

Aldrei náð sér eftir að hafa dregist inn í togspilin Í september árið 2009 lauk sjómannsferli Gunnars Kristjáns eftir að hann varð fyrir slysi um borð í Stíganda. Það varð til þess að hann átti ekki annarra kosta völ en að hætta til sjós vegna líkamlegra meiðsla.

„Togspilin voru sett af stað þegar hann var að vinna við þau. Hann dróst inn í spilin, inn fyrir öryggisslá og slitnaði af við fundamentið,“ lýsir Díana og segir föður sinn aldrei hafa náð sér að fullu eftir áverkana sem hann hlaut.

„Upp frá þessu hefur hann aldrei verið sá sami og hann var áður. Fjórar vöðvafestingar slitnuðu í bakinu á honum og sinar tognuðu. Mátturinn í fótum hans dettur út í tíma og ótíma og hann er sífellt verkjaður líkamlega, með tilheyrandi vanlíðan sem því fylgir,“ segir hún.

Hlaut heiðrun fyrir frækilega björgun

Tveimur árum áður en að umrætt slys átti sér stað hafði faðir hennar unnið hetjulegt björgunarafrek við höfnina á Reyðarfirði þegar hann bjargaði skipsfélaga sínum sem hafði fallið á milli báts og bryggju. Mikil mildi þótti að ekki hafi farið

verr og var það Gunnari að þakka.

„Pabbi var heiðraður á Sjómannadeginum 1. júní 2008 fyrir þessa frækilegu björgun. Hann hélt manninum við bryggjuna og upp úr sjónum þar til hjálp barst,“ segir Díana stolt af sínum manni sem óhætt er að segja að hafi unnið margar þrekraunir í gegnum tíðina.

„Ég man eftir því að hafa montað mig rækilega yfir þessu og leit svo stórt á pabba minn. Enda er hann mikil hetja í mínum augum. Pabbi minn er sterkari en pabbi þinn,“ segir hún kímin en minnir um leið á mikilvægi þakklætisins því lífið geti breyst á örskotsstundu.

„Við eigum að halda fast um fólkið í kringum okkur því við vitum ekki hversu langan tíma við höfum með því. Ég hef verið nálægt því að missa pabba minn oftar en ég kæri mig um. Ég er svo þakklát fyrir hann og mömmu. Þau eru klárlega hetjur í mínum augum,“ segir Díana full þakklætiskenndar í garð foreldra sinna sem hafa báðir fært fórnir til að eiga farsælt fjölskyldulíf samhliða sjómannsferli föður hennar.

„Það er mjög mikilvægt að fagna sjómönnum og fjölskyldum þeirra, heiðra og minnast hetja hafsins. Sjómannadagurinn gefur okkur aukið tækifæri til þess og því lít ég þennan dag mikilvægum augum þar sem við klæðum okkur upp og fögnum honum hátíðlega með pabba.“

Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns

HARALDAR JÚLÍUSSONAR

NETAGERÐARMEISTARA

BESSAHRAUNI 20

f.h. fjölskyldunnar

Valgerður Magnúsdóttir

Ástkær eiginkona mín, mamma okkar, tengdamamma, amma, langamma, systir og vinkona

SVAVA SVAVARSDÓTTIR

Lést fimmtudaginn 23. maí í Reykjavík. Jarðarför verður auglýst síðar.

Egill Ásgrímsson

Þórunn Elsa Bjarnadóttir

Heiða Björk Egilsdóttir

Guðmundur Ingi Bjarnason

Ebba Egilsdóttir

Agla Egilsdóttir

Dóra Sif Egilsdóttir Ásgrímur Gunnar Egilsson

Egill Gómez Magnús Skjöld

Rasmus Kristenson Þorlákur S. Sigurjónsson

Barnabörn og barnabarnabarn

Hjartans þakkir sendum við öllum sem sýndu okkur samúð, vinarhug og væntumþykju við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu

BJARNEYJAR S. ERLENDSDÓTTUR

BADDÝ FRÁ ÓLAFSHÚSUM

Sérstakar þakkir fær starfsfólk heimahjúkrunar í Eyjum og starfsfólk hjúkrunarheimilisins

Hraunbúða fyrir einstaklega góða, nærgætna og hlýja umönnun.

Erla Ó. Gísladóttir

Grímur Gíslason

Kristinn Ó. Grímsson Guðrún Hjörleifsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

Elskulegur unnusti minn og besti vinur, sonur, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi, bróðir okkar og vinur

SVEINBJÖRN GUÐMUNDSSON

lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Vestmannaeyjum, laugardaginn 25. maí í faðmi fjölskyldunnar. Útför verður gerð frá Landakirkju í Vestmannaeyjum föstudaginn 31. maí nk. kl. 13.00 og verður athöfninni streymt á vef Landakirkju, landakirkja.is.

Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbavörn í Vestmannaeyjum.

Fyrir hönd aðstandenda

Ingunn Lísa Jóhannesdóttir

Við
óskum sjómönnum & fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn!
www.midstodin.is / midstodin@midstodin.is
/midstodin Strandvegur 30 / 481 1475

Við óskum sjómönnum og fjölskyldum til hamingju með daginn!

Sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra bestu kveðjur í tilefni dagsins.

Sumarstarfsmenn óskast

Hlýja tannlæknastofa leitar að tveimur sumarstarfsmönnum fyrir tímabilið júní til ágúst.

Starfið felst í að aðstoða tannlækni á stól, móttaka og símsvörun, sótthreinsun og önnur tilfallandi störf.

Ef þú hefur áhuga á því að bætast í okkar hóp hlökkum við til að fá ferlisskrá frá þér á netfangið gudrun@hlyja.is.

Nánari upplýsingar gefur Guðrún í síma 897 0078.

Umsóknarfrestur er til og með 7. júní 2024

BÁRUSTIG 1 | S. 481 3939

Við óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn!

PIZZUTILBOÐ

12” PIZZA með 3 áleggjum

+ 9” hvítlaksbrauð eða brauðstangir

+ gosdós

9” PIZZA

með 3 áleggjum

[ 2.490 kr. ]

12” PIZZA

með 3 áleggjum

+ 9” hvítlaksbrauð

eða brauðstangir

+ gosdós

[ 4.390 kr. ]

[ 4.990 kr. ]

16” PIZZA með 3 áleggjum + 16” hvítlaksbrauð eða brauðstangir

+ 2L gos

OPIÐ Sun-fim 12-21

Fös og lau 12-22

12” PIZZA

með 3 áleggjum [ 2.990 kr. ]

16” PIZZA

með 3 áleggjum + 16” hvítlaksbrauð eða brauðstangir + 2L gos

[ 6.190 kr. ]

16” PIZZA

[ 6.790 kr. ]

með 3 áleggjum [ 3.690 kr. ]

TVENNUTILBOÐ

Tvær 16” pizzur

+ stórar brauðstangir

[ Greitt er fyrir dýrari pizzuna og brauðstangir ]

481-1567 ( Sendum heim alla daga frá kl. 17.00

sent sótt
Sjáumst
á

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.