Skip to main content

Tígull 20.tbl 02árg.

Page 1

20. tbl. 02. árg. 3. - 9 .júní 2020

Til hamingju með daginn sjómenn og fjölskyldur


Til hamingju með daginn sjómenn og fjölskyldur

TÍGULL

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir. Forsíðumynd: Myndina tók Sigurgeir Jónason en hún er tekið 30. apríl 1983. Þar má sjá

Róbert Marshall þar sem hann fékk að fara með í róður á Glófaxa VE-300, bakatil sést Jóhann Friðriksson, fósturpabbi Róberts.

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


Wizar ...fyrir lífsins ljúfu stundir

Hægindastóllinn sem slegið hefur í gegn og Íslendingar elska! 360° snúningur I innbyggður fótaskemill hallanlegt bak I stillanlegur höfuðpúði Fáanlegir Wizar litir Verð frá

199.900 kr.

VOGUE FYRIR HEIMILIÐ I SÍÐUMÚLI 30 - REYKJAVÍK I HOFSBÓT 4 - AKUREYRI I 533 3500 I VOGUE. IS


ÞAÐ ER ALLTAF GAMAN AÐ FARA Í VINNUNA

SARA SJÖFN GRETTISDÓTTIR sarasjofng@gmail.com Stýrimaðurinn Ingibjörg Bryngeirsdóttir hitti okkur á dögunum, tilefnið er sjómannadgurinn sem er um næstu helgi en margir kannast við Ingibjörgu sem einn af stýrimönnum Herjólfs. Ingibjörg er ánægð með nýja skipið þrátt fyrir efasemdir í upphafi. Ingibjörg er búin að vinna á Herjólfi síðan árið 2005, fyrst sem þerna svo næst kokkur, stundum var hún í afleysingum sem háseti og síðustu ár hefur hún unni sem stýrimaður. Upphaflega þegar hún fór í Stýrimannaskólann fann hún fyrir skoðunum fólks á valinu en segir að það sé breyttur tíðarandi í dag. „Ég

er búin að vera stýrimaður á Herjólfi síðan 2012 og þessar raddir sem maður heyrði fyrst um hvað ég væri nú að gera þarna eru bara nánast farnar,“ sagði Ingibjörg aðspurð um starfið sem menningin sagði okkur að væri karlastarf í svo mörg ár. Skipið hefur komið okkur ótrúlega á óvart Það eru breyttir tímar hjá starfsfólki Herjólfs á nýja skipinu og berst spjallið að því. En Ingibjörg eins og svo mörgum öðrum leyst ekkert alltof vel á plönin um nýtt skip í byjun. „Ég viðurkenni það bara alveg að mér leyst ekkert á þetta og hafði litla trú á þessu. Mér fannst eins og það ætti að smíða pramma og var ekki hrifin,“ sagði Ingibjörg. Skoðanir hennar á skipinu hafa

heldur betur breyst. „Skipið er æðislegt en það hefur sína galla eins og allt. Skipið hefur komið okkur ótrúlega á óvart í sjó og þá sérstaklega hvernig hann hreyfist og tekst á við öldurnar. Persónulega er bíladekkið uppáhaldið mitt og stjórntökin eru mjög góð. Við erum til dæmis búin að ná að fara á skipinu í Landeyjahöfn í sjólagi og aðstæðum sem gamli Herjólfur hefði aldrei ráðið við,“ sagði Ingibjörg. Endurmenntun Margir starfsmenn Herjólfs þurftu að fara í endurmenntun fyrir komu nýja skipsins til að læra á nýjan stjórnbúnað. „Við fórum út á námskeið og æfðum í hermi sem var mjög eftirminnilegt, því þú þarft


í raun að beygja í öfuga átt við það sem þú ætlar að gera og maður hafði gott á að æfa sig í því,“ sagði Ingibjörg glottandi. Mórallinn góður Vinnustaðurinn Herjólfur færð topp meðmæli frá Ingibjörgu sem segir stemninguna afar góða. „Mórallinn er mjög góður um borð, maður reyndar vinnur ekki með öllum útaf vaktaskipulagi og suma hittir maður aldrei. En það er alltaf gaman að fara í vinnuna og hlakkar mig mikið til að fagna með þeim öllum um sjómannahelgina.“ sagði Ingibjörg. Lætur gamlan draum rætast En vinnan er ekki allt og vinnur Ingibjörg í því um þessar mundir að láta gamlan draum rætast. „Fyrir ekki svo löngu varð algjör lífstílsbreyting hjá mér sem varð til þess að ég skráði mig í nám til að verða einkaþjálfari og er ég að vinna í því núna. Annars er ég svolítið í því að lifa í núinu og gera

það sem ég vil hverju sinni, hvort sem það er að gera upp gömul húsgöng sem ég elska að gera eða skella mér til útlanda, fyrir utan

þennan óvanalega tíma sem við lifum á. Ég er svolítið í þessu, að gera bara það sem ég vil,“ sagði Ingibjörg að lokum.

Raunfærnimat í skipstjórn Hefur þú starfað á sjó í 3 ár eða lengur og hefur áhuga á að ná þér í stýrimanns- og skipstjórnarréttindi? Þá gæti raunfærnimat hentað þér! Raunfærnimat í skipstjórn miðar að því að meta þá færni sem viðkomandi býr yfir inn í skólakerfið óháð því hvernig hennar hefur verið aflað. Þátttakendur geta í kjölfarið fariðí skóla og lokið því námi sem eftir stendur. Inntökuskilyrði: • 3 ára starfsaldur á sjó • 23 ára lífaldur

Náms- og starfsráðgjöf Hefur þú verið að velta fyrir þér námi og störfum? Viska býður upp á margvíslega ráðgjöf fyrir einstaklinga, hópa og fyrirtæki. Ráðgjöfin er ókeypis fyrir einstaklinga.

Nánari upplýsingar: Sólrún Bergþórsdóttir náms- og starfsráðgjafi solrunb@viskave.is eða í síma 488 0116 WWW.VISKAVE.IS


FYRSTI KVENMAÐURINN TIL AÐ ÚTSKRIFAST SEM VÉLSTJÓRI FRÁ FÍV

Nafn: Linda Petrea Georgsdóttir Aldur: Er að verða tvítug Fjölskylda: Pabbi er Georg Ögmundsson, stjúpmamma er Sigurlaug Björk Böðvarsdóttir, systur eru Bryndís og Agla Hrönn, bræður eru Benjamín, Bogi og Úlfur Baui, síðan á ég hund sem heitir Steingerður Bella og svo má ekki gleyma kærastanum mínum, Kristmanni Þór. Þú ert fyrsti kvenmaðurinn til að útskrifast sem vélstjóri frá FÍV, hvað finnst þér um það? Það kom mér á óvart þegar ég heyrði það vegna þess að skólinn er búinn að vera lengi til og ég bjóst við því að það hefðu verið aðrar á undan mér. En ég er mjög stolt af því að eiga þann heiður að vera sú fyrsta. Hver er þá draumavinnustaður? Er ekki alveg viss hver draumavinnu-

staðurinn er en mig langar að vinna á stað þar sem er gaman og ég hef alltaf nóg að gera. Hvað varð til þess að þú ákvaðst að fara í þetta nám? Hinar námsbrautirnar heilluðu mig ekki og pabbi stakk upp á að ég myndi fara í þetta. Ég er alltaf til í að prófa eitthvað nýtt og ákvað að reyna þetta. Vélstjórnarnámið reyndist svo vera rétta námið fyrir mig og ég sá aldrei eftir því. Kostir við FÍV? Skemmtilegir kennarar og nemendur, þægilegt umhverfi og stanslausar bætingar í vélasalnum. Gallar við FÍV? Það eru svo fáir sem velja iðngreinarnar og þá er lítið um að vera í því námi. Það er stundum erfitt að ná í nógu marga nemendur til að geta haft ákveðna áfanga.

Besta minningin frá náminu? Bestu minningarnar eru verklegu tímarnir með samnemendum mínum á vélstjórnarbrautinni og hversu miklir félagar allir urðu í náminu. Hvað tekur nú við? Nú tekur við vinna í sumar og svo flutningur upp á land í haust til að fara í háskóla. Ætlar þú í framhaldsnám? Já, ég ætla í véla- og orkutæknifræði við Háskólann í Reykjavík. Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri að lokum? Ég hvet alla, bæði stelpur og stráka, til að prufa einhvers konar iðnnám. Sama hvort það er ein af iðnbrautunum eða bara einstaka áfangi þá er þetta mjög áhugavert og skemmtilegt.


VIÐ HÖFUM OPNAÐ! OPIÐ FRÁ 11.30-20.30 ALLA DAGA MJÖG EINFALT AÐ PANTA Á NETINU OG SÆKJA ÞEGAR ÞÉR HENTAR TIL OKKAR! WWW.ETAMAT.IS


HVAÐ SEGJA BÖRNIN UM SJÓMENNSKUNA? Nafn & aldur: Gabríel Gauti Guðmundsson, 7 ára Þekkir þú einhverja sjómenn? Já, pabba, afa Huginn, Guðlaug Gísla, Bjössi, Gylfa Viðar og Halldór Inga. Hefur þú farið á sjó? Nei, bara í Herjólf. Borðar þú fisk? Já. Hvað gera sjómenn? Þeir veiða fiska. Hvað langar þig að vera þegar þú verður stór? Fótboltamaður. Þekkir þú einhverja fiska? Já Makríl, Kolkrabba, Smokkfisk, Túnfisk, Síld og Ýsu.

Nafn & aldur: Rósa Kristleifsdóttir 4 ára Þekkir þú einhverja sjómenn? já Inga frænka Hefur þú farið á sjó? já í Herjólfi er ég mikið á sjó Borðar þú fisk? nei ég elska ekki fisk, bara súpu og hamborgara og spaghetti Hvað gera sjómenn? keyra báta og veiða fisk Hvað langar þig að vera þegar þú verður stór? læknir Veistu hvað fiskarnir heita? Hákarl, bleikur fiskur, lax ég þekki lax en vil ekki borða hann.. . og ég veit ekki meir.

Nafn & aldur: Óli Andrason, 6.ára Þekkir þú einhverja sjómenn? Já Andra, Óla Vigni og Afa Sigga Hefur þú farið á sjó? Já oft Borðar þú fisk? Já Hvað gera sjómenn? Þeir toga trollið inn og skera á fiskinn Veistu hvað fiskarnir heita.. nokkur dæmi? Ýsa, Þorskur, Marhnútur, Loðna, Síld, Makríll og Steinbítur og Skötuselur og svo man ég ekki meira núna Hvað langar þig að vera þegar þú verður stór? Ætla að reyna að komast í Liverpool liðið


Til hamingju með daginn sjómenn & fjölskyldur PÓLEY

FRÁR VE 78

CMYK // 100 | 66 | 0 | 2

// 69 | 7 | 0 | 0

Pantone // 286 // 298 Hönnun // Eyjasýn ehf / Sæþór Vídó / sathor@vido.is


Sjómannadagsseðill Pönnusteikt andarbringa með sætum fíkjum, ristuðum kasjúhnetum og salati. Grilluð nautalund með kremuðum sveppum, parmesan, kartöflu terrine og rauðvínssósu. Karamellusúkkulaði kaka með ferskum berjum.

Til hamingju með daginn sjómenn!

6.450 kr.

/ Bárustígur / 11 gott@gott.is / 481 3060

Sendum öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra heillaóskir í tilefni dagsins


ÞÚSUND ANDLIT HEIMAEYJAR Vertu með í menningar- og listaverkefni Þúsund andlit Heimaeyjar.

Við tökum vel á móti þér og þínum yfir sjómannadagshelgina á Leturstofunni, Strandvegi 47 Format myndarinnar er einstakslings portrait eingöngu. (einstaklings myndir sem er tilvalin fyrir instagram og eða facebook)

Föstudaginn 5. júní frá kl 16 og frameftir Laugardaginn 6. júní frá kl 12 - 17 Sunnudaginn 7. Júní frá 12 - 17 Bjarni Sigurðsson og Leturstofan eru að fara af stað með menningar- og listaverkefni sem heitir Þúsund andlit Heimaeyjar. Hugsunin á bakvið verkefnið er þannig að íbúum Vestmannaeyja ásamt þeim sem hafa tengingu þangað gefst kostur á að koma í myndatöku og fá mynd af sér . Myndatakan verður að kostnaðarlausu fyrir þátttakendur og fá allir rétt til að birta sýna mynd á samfélagsmiðlum. Einnig verður boðið upp á mynd í fullri stafrænni upplausn eða prentaðri útgáfu, þá gegn vægu gjaldi. Þegar safnast hafa saman myndir af yfir 1000 ólíkum andlitum Heimaeyjar verður haldin sýning þar sem samansafn af öllum þessum myndum verður til sýnis. Gagnagrunnur verkefnisins verður að lokum gefinn á safn bæjarins. Verkefnið er unnið af Bjarna Sigurðssyni ljósmyndara og verður hann í samstarfi við Leturstofuna. Bjarni lærði ljósmyndun á Upplýsinga- og margmiðlunarbraut Iðnskólans í Reykjavík árið 2005. Bjarni starfar sem yfirmatreiðslumeistari á HSU Vestmannaeyjum.


Vinnslustöðin hf

hafnargata 2

900 Vestmannaeyjar

vsv@vsv.is

www.vsv.is


Hjóna YFIRHEYRSLAN

ÞÓRDÍS GYÐA MAGNÚSDÓT TIR SVARAR:

SPURNINGAR

BALDVIN ÞÓR SIGURBJÖRNSSON SVARAR:

Ég

Hvort ykkar er betri bílstjóri?

Ég

Baldvin

Hvort ykkar mun þéna meiri pening í framtíðinni?

Ég

Ég

Hvort ykkar eyðir meiri pening?

hiiik... Þórdís

Ég

Hvort ykkar eldar betri mat?

Þórdís

Ég

Hvort ykkar er meira utan við sig?

Ég

Baldvin

Hvort ykkar er líklegra til að týna bíllyklunum?

Þórdís

Bæði

Hvort ykkar hefur betri tónlistarsmekk?

Ég

Baldvin

Hvor er meiri djammari?

Þórdís

hiiik... Ég

Hver átti frumkvæðið í sambandinu?

Þórdís

Bæði

Hver sér mest um heimilisverkin?

Ég

Baldvin

Hver sér um að svæfa?

Ég

Bæði

Hvort eyðir meiri tíma fyrir framan spegilinn?

Þórdís

Bæði

Hvort er skemmtilegra?

Þórdís

Ég

Hvort sér um að innrétta heimilið?

Þórdís


Til hamingju með daginn sjómenn!

Sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra bestu kveðjur í tilefni sjómannadagsins.

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN SJÓMENN Starfsfólk Herjólfs óskar sjómönnum öllum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með daginn


Alla sína ævi hefur Sigurgeir verið búsettur í Eyjum og lengst af tvinnað saman atvinnu sína og áhugamál í ljósmyndun. Ungur að árum hóf Sigurgeir að taka ljósmyndir og þá helst af viðburðum er áttu sér stað í Vestmannaeyjum. Fyrstu myndir hans birtust í fjölmiðlum þegar hann var aðeins 13 ára gamall. Margar mynda hans eru mikilvægar heimildir um viðburði í sögu Vestmannaeyja svo og sögu Íslands. Má þar nefna ljósmyndir frá eldgosum, atvinnuháttum sem nú heyra sögunni til, svipmyndir af samtíðarmönnum og þannig mætti lengi telja. Ljósmyndir hans tengdar fiskveiðum og fiskvinnslu á hálfrar aldar tímabili er ómetanlegur fjársjóður horfinna tíma og þá vekja eldri ljósmyndir af íbúum bæjarins ætíð mikla athygli. Með athugulum augum hefur Sigurgeir náð að festa á mynd ótrúlega skúlptúra og form, sem almenningi yfirsést í daglegri umgengni við umhverfi sitt. Tígull fékk að kíkja í ljósmyndasafn Sigurgeirs, þar er mikið að gullmolum, hérna má sjá brot af þeim. Við hvetjum ykkur til að fara inn á sigurgeir.is og skoða. Hægt er að kaupa þar myndir.

Tekin 22. apríl 1982 í Vestmannaeyjum. Símon Þór Eðvarðsson stendur í hausahrúgunni og gellar.

Tekin 29. apríl 1968. Í Vilhjálmsvík vestast á klöppunum í Klaufinni "Höfðavík". Árni Sigfússon, nafn vantar, Þröstur Johnsen, Þorvarður Þorvaldsson og Guðlaugur Sigurgeirsson.

Tekin á sjómannadaginn 1981. F.v. Helgi Bragason, Erlingur Richardsson, Tryggvi Guðmundsson og Arnar Richardsson.

Myndin er tekin 14. apríl 1981. Frændurnir Lúðvík Jóhannesson og Geir Reynisson.


Tekin árið 1963. Friðrik Karlsson, Sigurður Þór Sveinsson, Ólafur Ástþórsson, Árni Finnbogason, Ólafur Friðriksson, Birgir Sveinsson, Ólafur Sigurvinsson í glugganum, Ásgeir Sigurvinsson og Andrés Sigurvinsson, baka til sést í Ágúst á Aðalbóli.

Tekin í Vestmannaeyjum. Einbeittur við að gella! Höldum að þessi strákur sé Viðar Elíasson.

Tekið um borð í Herjólfi 7. júní 1981. Örvar Guðni Arnarson.

Tekin 29. maí 1988 í Frostver í Vestmannaeyjum. Hulda Þorleifsdóttir, María Höbby Sæmundsdóttir og Friðrik Elís Ásmundsson, skólakrakkar í humarvinnu.

Tekin 1986. Sigurjón Óskarsson ásamt börnum sínum að vinna að aflanum. F.v. Gylfi Sigurjónsson, Þóra Hrönn Sigurjónsdóttir, Sigurjón Óskarsson og Viðar Sigurjónsson.

Tekin á Þjóðhátíð Vestmannaeyja 1982. Friða Hrönn Halldórsdóttir.


GRILLAÐAR SVÍNA­L UND­I R FYLLT­A R MEÐ FETA­O STI, DÖÐLUM OG BEI­K ONI - Uppskrift vikunnar -

Grillaðar svína­lund­ir Fyr­ir 4 2 svína­lund­ir 1 krukka Feti í ólíf­um og kryddol­íu, frá Mjólka 2 hvít­lauksrif, pressuð 1 krukka rautt pestó 50 g stein­laus­ar döðlur, saxaðar hand­fylli stein­selja, söxuð salt og pip­ar annað t.d. bei­kon eða parma­skinka Aðferð: Skerið svína­lund­ina þvert í miðju. Blandið sam­an feta­osti, hvít­lauki, pestó, döðlum og saxaðri stein­selju og setjið í lund­irn­ar. Saltið og piprið og lokið með tann­stöngl­um. Brúnið lund­irn­ar á pönnu.

Ef hug­ur­inn girn­ist má vefja lund­ina með bei­koni eða parma­skinku. Gott er að nota tann­stöngla eða álíka til að fyll­ing­in detti ekki úr. Setjið í 180°c heit­an ofn í um það bil 20 mín­út­ur eða grillið á útigrilli. Leyfið lund­un­um að standa í 5-10 mín­út­ur áður en þær eru skorn­ar í sneiðar. Pip­arostasósa 1 stk pip­arost 250 ml rjómi 1 teningur nautakraftur Aðferð: Setjið hrá­efn­in í pott og bræðið við væg­an hita, gott er að bæta nautakrafti við.

Kart­öfl­ubátar 15 kart­öfl­ur 2 msk. hvít­lauk­sol­ía 50 g smjör 50 g ostur, t.d. óðal­sost­ur Aðferð: Skar kart­öfl­urn­ar niður í báta. Smurði eld­fast mót með hvít­lauk­sol­íu og lagði kar­t­ölfurn­ar í fatið. Lagði svo smátt skor­inn ost og smjörklíp­ur ofan á. Bakaði í ofni við 180 gráður í 45 mín.


Sjómannadagshelgi Vestmannaeyja

DAGSKRÁ 2020 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 16:00 Vigtin Bakhús. Óskar Pétur sýnir ljósmyndir í Vigtinni Bakhúsi og verður sýningin opin í nokkra daga og allir velkomnir. FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 16.00 Hvíta húsið. Myndlistarfélag Vestmannaeyja verður með opið hús í Hvíta húsinu. Allar vinnustofur opnar og tekið á móti gestum. Þennan dag verður opið til klukkan 18.00. Um helgina er opið frá kl. 14.00 til 18.00. 18.00 Ölstofa The Brothers Brewery. Sjómannabjórinn 2020 - Óskar (Háeyri) kemur á dælu við hátíðlega athöfn. Opið 16.00 til 23.00.


FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 08:00 Opið Sjómannamót Ísfélags Vestmannaeyja í golfi Skráning í síma 481-2363 og á golf.is Vegleg verðlaun í boði. Mótið stækkar og stækkar á milli ára svo við mælum með að þið skráið ykkur snemma. 10.00 Sjómannadagshelgin í söfnunum. Í Einarsstofu – Málverkasýning - Sjór og sjómennska. Opið í Sagnheimum, byggðasafni og einnig í Sagnheimum, náttúrugripasafni við Heiðarveg. 16.00 Ölstofa The Brothers Brewery Opin frá kl. 16:00 - 23:00. Sjómannalög, létt og þægileg stemning 18.00 Flottir tengdasynir og úteyjar - Málverkasýning Rikka Zoega á Skipasandi opnuð. Opið hina dagana 14:00 - 18:00.

LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 11.00 Dorgveiðikeppni Sjóve og Jötuns á Nausthamarsbryggju. Vegleg verðlaun, stærsti fiskur, flestir fiskar og.fl. Svali og Prins Póló fyrir þáttakendur

13.00 Sjómannafjör á Vigtartorgi Séra Viðar Stefánsson blessar daginn. Kappróður, koddaslagur, tuðrukvartmíla, lokahlaup, sjómannaþraut, foosball völlur á staðnum, þurrkoddaslagur. Risa sundlaug með fjarstýrðum bátum og hoppukastalar fyrir krakkana. Ribsafari býður ódýrar ferðir.

Drullusokkar mótorhjólaklúbbur verða með opið á Skipasandi og sýna fáka sína ef veður leyfir.

16.00 Ölstofa The Brothers Brewery Opin frá kl. 16:00 - 23:00. Sjómannalög, létt og þægileg stemming


SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 10.00 Fánar dregnir að húni 13.00 Sjómannamessa í Landakirkju. Séra Viðar Stefánsson predikar og þjónar fyrir altari. Eftir messu verður minningarathöfn við minnisvarða hrapaðra og drukknaðra. Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur nokkur lög. Blómsveigur lagður að minnisvarðanum. Guðni Hjálmarsson stjórnar athöfninni. 15.00

Hátíðardagskrá á Stakkó Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur undir stjórn Jarls Sigurgeirssonar. Heiðraðir aldnir sægarpar. Guðni Hjálmarsson stjórnar. Karlakór Vestmannaeyja flytur nokkur lög undir stjórn Þórhalls Barðasonar Ræðumaður Sjómannadagsins er Ragnar Óskarsson. Verðlaunaafhending fyrir Kappróður, Koddaslag, Lokahlaup, sjómannaþraut, Dorgveiðimót og Sjómannamótið í Golfi. Leikfélagið, Fimleikafélagið Rán, hoppukastalar, popp og flos.

Sýningar og Söfn Hvíta húsið: Opið frá kl. 14:00 - 18:00 Sæheimar, Opið 10:00 - 17:00 Eldheimar: Opið 11:00 - 18:00 Sagnheimar byggðasafn, Opið kl. 10-17 Einarsstofa, Sagnheimar og Sagnheimar Náttúrugripasafn: Sýningar tengdar sjómönnum og sjómennsku. TILKYNNINGAR FRÁ SJÓMANNADAGSRÁÐI Þeir sem ætla að taka þátt í kappróðrinum og öðrum dagskráratriðum vinsamlegast hafið samband á facebook síðu Sjómannadagsráðs. Ein rúta á lið fyrir þáttöku í kappróðri. Sjómannadagsráð Vestmannaeyja, s: 869-4449, 697-9695 og 898-7567 SJÓMANNADAGSBLAÐ VESTMANNAEYJA Skátarnir dreifa Sjómannadagsblaðinu í hvert hús í Vestmannaeyjum sem er ókeypis þetta árið. Yngri flokkar ÍBV sjá um merkjasölu - Takið vel á móti sölubörnum.


REYNSLUBOLTI Á SJÓNUM

Hrafn Mikael Linden ásamt afa sínum Hrafni Oddsyni.

Nafn: Hrafn Oddsson Menntun: Réttindi á öll fiskiskip frá Stýrimannaskólanum. Aldur: 75 ára Fjölskylda (maki & börn): Konan mín er Friðrikka Svavarsdóttir, Lind Hrafnsdóttir dóttir mín, Hlynur Stefánsson og Björgúlfur Stefánsson fóstursynir mínir. Hversu lengi varstu að sjó? í ca. 50 ár og er enn að taka nokkra túra með barnabarni mínu Birki Hlynssyni á Klaka VE 112 og vini hans Hólmgeiri Austfjörð. Hvaða stöðu gegndir þú? Yfirleitt stýrimaður stundum skipstjóri Hvar og hvenær hófst sjómannsferillinn? Norðfirði 1960 á skakbát sem hét Jón Ben. Skipstjórinn þá var Árni Vilhjálmsson. Á hvaða bátum hefur þú róið? Þeir eru ansi margir en til að nefna nokkra þá byrjaði ég á Jón Ben (1960), fer á Ver VE 200 með Bedda 1969-71 og sumarið 1972 á Blátind. Næst var það Stígandi VE 77 með Bedda um haustið og gosvertíðina. Vorið 1974 kaupi ég Glófaxa VE 300 ásamt Bedda

bróður og Sævaldi Elíassyni mági mínum sem ég var á í 12 ár áður en ég seldi minn hlut. Árið 1986 kaupi ég Stíganda og stofnaði fiskvinnslufyrirtækið Tinnu hf. ásamt Artúri Bogasyni og Inga Steini Ólafssyni. Glófaxi VE 300 var síðan keyptur ca. 1995 og réri ég alla tíð eftir það þaðan. Glófaxi II var svo keyptur árið 2005. Hver er eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með? Palli Gúllu á Stíganda og Glófaxa - árin 1973/74. Flinkur, skemmtilegur kall sem þótti sopinn góður. Eftirminnilegasti túrinn? 1967 þegar ég var á Ver og svo þegar ég var á Glófaxa 1978 þegar við lentum í bruna, kviknaði í vélarhúsinu og ekkert hægt að gera, þá vorum frá í 7-8 mánuði. Hvernig fór heimilislífið og vinnan saman? Það fór ágætlega saman, hjónabandið hefur alla vega gengið í öll þessi ár.


Bestu árnaðaróskir og kveðjur til sjómanna og allra Vestmannaeyinga í tilefni sjómannadagsins


SILJA ELSABET BRYNJARSDÓTTIR BÆJARLISTAMAÐUR VESTMANNAEYJA 2020

SARA SJÖFN GRETTISDÓTTIR sarasjofng@gmail.com Söngkonan Silja Elsabet var á mánudaginn valin bæjarlistamaður Vestmannaeyja. Silja er fædd í Vestmannaeyjum þann 15. ágúst 1991 og hóf söngferil sinn í Söngkeppni barna á Þjóðhátíð árið 1998, þá 6 ára gömul, alveg að verða 7. Síðan söng hún með barnakór Landakirkju og var hún yngsti nemandi kórsins frá upphafi. Hún hóf 11 ára gömul söngnám við Tónlistaskóla Vestmannaeyja auk þess að ljúka 1. stigi í píanónámi. Árið 2011 lá leið Silju til Reykjavíkur þar sem hún lærði við söngskólann í Reykjavík og lauk hún framhaldsprófi þar árið 2013 með hæstu einkunn. Silja hlaut styrk úr minningarsjóði Vilhjálms Vilhjálmssonar fyrir skólagjöldum og í janúar 2015 lauk hún 8. stigi í söng með hæstu einkunn allra.

Haustið 2015 hóf Silja nám við Royal Acadamy of Music í London og lauk því sumarið 2019 með Bachelor of music gráðu. Síðasta haust hóf hún sérnám við sama skóla þar sem hún leggur stund á óperusöng. Það er alls ekki hlaupið að því að komast að í skólanum, en skilyrði fyrir náminu er að hafa mastersgráðu sem Silja hefur ekki. Þrátt fyrir það var veitt undanþága fyrir hana og er það í fyrsta skipti í sögu skólans sem undanþága er veitt frá þessu skilyrði. Hún hefur tekið þátt í fjölda uppfærslna ópera og tónleika sem hluti af námi sínu. Meðal annars hefur hún sungið með Royal Opera House 2. symfóníu Mahlers, tekið þátt í skandinavískum tónleikum, ljóðahringjum og íslenskum tónleikum. Auk þess hefur hún sungið með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Þakklát Aðspurð um tilfinninguna að verða bæjarlistamaður Vestmannaeyja sagði Silja Elsabet að hún væri

óútskýranleg. „Orðið sem er mér efst i huga er þakklæti. Þetta er náttúrulega þvílíkur heiður og eg er ofboðslega þakklát fyrir að hafa verið valin,“ sagði Silja Elsabet. Alltaf von En átti þú von á þessu? Er ekki alltaf einhver von? Auðvitað vonaðist ég til þess að fá þessa viðurkenningu en ég ímyndaði mér ekki að verða fyrir valinu. Geisladiskur með lögum Oddgeirs „Næst á dagskrá eru upptökur fyrir geisladisk með lögum Oddgeirs Kristjánssonar. Við Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari erum búin að vera að vinna í þessum lögum í um ár núna og næsta skref er að taka þau upp í upprunarlegri útsetningu tónskáldsins. Við Helga erum báðar úr eyjum og höfum báðar alist upp við lög Oddgeirs og skiptu þessi lög miklu máli í okkar tónlistaruppeldi. Þessi lög hafa og munu alltaf eiga stærsta hluta hjarta


míns. Við erum þvílíkt spenntar að fara í upptökurnar en þær verða í ágúst í Salnum í Kópavogi,“ sagði Silja Elsabet aðspurð um framhaldið. Hlutverk í London Eftir upptökur fer Silja Elsabet aftur út til London, „þar sem ég mun syngja hlutverk Hippolytu í óperunni Midsummer night’s dream. Sagan er eftir Shakespear en tónlistina semur Britten. Einnig mun eg taka

þátt í minni verkefnum úti. Vonandi náum við að gefa diskinn út fyrir jól en það er allavegana planið. Árið 2021 verður svo fullt af allskonar skemmtilegum verkefnum sem verða auglýst þegar nær dregur,“ sagði Silja Elsabet. Elskar að koma heim og syngja Að lokum vildi Silja Elsabet þakka fyrir sig,„takk kæru Vestmannaeyingar fyrir allan stuðninginn í gegnum árin.

Ég elska að koma hingað heim og halda tónleika því að viðmótið sem ég fæ er svo einstakt. Það myndast svo falleg tenging á milli mín og áhorfendanna, fólk sem kemur jafnvel á alla tónleika og allsstaðar þar sem ég kem fram. Ég er nokkuð viss um að þessi tenging geti ekki myndast neinsstaðar annarsstaðar en í Vestmannaeyjum. Takk enn og aftur fyrir mig, ég hlakka til að syngja fyrir ykkur sem fyrst.“


Til hamingju meรฐ daginn sjรณmenn & fjรถlskyldur

MUGGUR


ÞÚ FÆRÐ FÖTIN FYRIR SJÓMANNADAGINN HJÁ OKKUR TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN, SJÓMENN OG FJÖLSKYLDUR

www.smartey.is | Smart | Vestmannabraut 30 | sími: 481 3340


MÁLVERKASÝNING Í EINARSSTOFU OG OPIÐ Í SAGNHEIMUM OG NÁTTÚRUGRIPASAFNI Sjómannadagshelgin í söfnunum: Vestmannaeyjabær á mikið safn listaverka þar sem málverk okkar helstu meistara skipa veglegan sess. Sýningahald og önnur starfsemi hefur legið niðri vegna Covid19 og samkomubanns en um Sjómannadagshelgina verður blásið til sóknar. Í Einarsstofu í Safnahúsi verður sýning á málverkum úr eigu Vestmannaeyjabæjar er tengjast sjó og sjómennsku. Sýningin opnar á föstudeginum 5. júní. Sjómannadagsblaðið 2020, sem borið er í hvert hús í Vestmannaeyjum, mun einnig liggja frammi meðan á sýningu stendur fyrir þá sem ekki fengu eintak eða þurfa aukaeintak. Í Sagnheimum, byggðasafni og einnig í Sagnheimum, náttúrugripasafni við Heiðarveg verður í tilefni helgarinnar boðið upp á lifandi myndir og ljósmyndir af mannlífi og sjósókn fyrri tíðar. Ókeypis inn alla helgina. Heitt á könnunni, opið 10:00 - 17:00.

Verk Sveins Björnssonar, Ver á sjó.

Heppnasti tengdapabbi í heimi og úteyjarnar Ríkharður Zoega Opnar sýningu á Skipasandi á föstudaginn kl. 18.00. Veitingar í boði og fólk hvatt til að fjölmenna. Sögustund með Jóa P. Opið laugardag frá kl. 14.00 til 18.00 Allar myndir til sölu og rennur andvirðið óskipt til Krabbavarnar.


OPIÐ FRÁ 16:00 OG ÞANGAÐ TIL VÍÐIR LEYFIR

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN KÆRU SJÓMENN OG FJÖLSKYLDUR! VIÐ NÝTTUM COVID19 TÍMANN VEL Í ENDURBÆTUR Á STAÐNUM. KOMDU OG KÍKTU VIÐ!


Til hamingju meรฐ daginn

CMYK 100c 57 Black

PANTONE Black

RGB 0r 103g 0r 0g 0

GRAYSCAL Black


NÝJA TANNLÆKNASTOFAN

sjómenn & fjölskyldur


/crispus

At vinna í boði!

Opnum 9, 10 eða 11 fer eftir pöntunum og erum til 18:00 virka daga. Hægt að panta í síma 772-6766 eða senda skilaboð á facebookinu okkar.

Gröfuþjónustan Brinks ehf. óskar eftir starfsmanni með vinnuvélaréttindi og meirapróf.

Tannlæknar

Nánari upplýsingar um starfið veitir Símon í síma 692-9022.

22. - 25. júní Hjalti Þórðarson

Hlýja Tannlæknastofan Hólagötu 40

Tímapantanir í síma 481-2772

FIMMTÍU FIMMTÍU ÁR ÁR

Kvöldopnun

Fimmtudaginn 4. júní Opið til 22:00

20%

afsláttur af Clarins förðunarvörum Mandala Snyrtistofa / Kirkjuvegur 10a / 481 1022

FIMMTÍU FIMMTÍU PRÓSENT PRÓSENT 50% 50% afsláttur afsláttur af af öllum öllum flugsætum flugsætum íí allt allt sumar sumar –– bókað bókað áá ernir.is ernir.is


Silja Elsabet er bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2020. Vestmannaeyjabær óskar Silju innilega til hamingju

Til hamingju með daginn sjómenn & fjölskyldur

Til hamingju með daginn sjómenn & fjölskyldur


SÝNING RIKKA ZOEGA Í AÐALKRÓNNI Á SKIPASANDI

ÓMAR GARÐARSSON omar49@simnet.is Heppnasti tengdapabbi í heimi og úteyjarnar Ríkharður Stefánsson, kokkur á Bergey VE, er ekki maður einhamur. Hann stundar sjóinn stíft, er maðurinn á bak við tjöldin í Sjómannadagsráði og þegar næði gefst í landi grípur hann pensil og liti og málar á striga eins og enginn sé morgundagurinn. Rikki er félagi í Listvinafélagi Vestmannaeyja sem hefur lagt undir sig Hvíta húsið við Strandveg að stórum hluta. Þar hefur Rikki komið sér upp aðstöðu og er að undirbúa fyrstu einkasýningu sína. Allar eru myndirnar til sölu og rennu andvirðið til góðgerðamála.

„Hugmyndin kviknaði á sýningu sem Viðar Breiðfjörð hélt á Goslokahátíðinni í fyrra í krónni sem Helgi Braga, Jói P, Sigurjón Ingvars og Kalli Haralds eiga á Skipasandi. Byrjaði í léttu spjalli og þá kom Sigurjón með hugmynd um að ég sýndi hjá þeim næsta Sjómannadag. Ég sagði fyrst nei en þá sagðist Sigurjón vera kominn með nafn á sýninguna: Heppnasti tengdapabbi í heimi og úteyjarnar. Og hvað gat ég sagt annað en já, eigandi þessa frábæru tengdasyni, Ágúst Halldórsson og Sævald Hallgrímsson? Og hvað er fallegra en úteyjar Vestmannaeyja?“ Sýningin verður opnuð klukkan fimm föstudaginn fyrir Sjómannadag, fimmta júní.

„Strákarnir sem eiga króna bjóða upp á drykki og Halli á Canton verður með létta rétti. Öll málverkin, sem sýna úteyjarnar í sinni fallegustu mynd, eru til sölu. Söluandvirðið rennur óskert til Krabbavarnar í Vestmannaeyjum. Þetta er mín fyrsta einkasýning og vonast ég til að sjá sem flesta og að einhverjir leggi mér lið við að styrkja gott málefni.“ sagði Rikki að endingu. Rikki bauð nokkrum konum að skoða verkin sem hann ætlar að sýna. Hér er hann með Siggu Stínu sem eins og hinar konurnar dáðist mjög að verkunum. Suðurey þykir sumum fallegust úteyja.


SENT & SÓTT OPIÐ Í HÁDEGINU & FRÁ KL. 17:00 ALLA DAGA

pantaðu í síma

551 0055

1 SENT TILBOÐ G-SPECIAL, PEPPERONÍ PÍTSA OG HVÍTLAUKSBRAUÐ

4.990 kr.

NT TILBOÐ 2 SEPÍTSA MEÐ 3 Áleggstegundum, nutella gott og 2 L gos

3.790 kr.

SENT TILBOÐ 3

Tvær Pítsur með 3 áleggstegundum, Val um hvítlauksbrauð, eða brauðstangir 5.190 kr.

1 ÓTTmeðTILBOÐ SPítsa 3 áleggstegundum, Val um hvítlauksbrauð, margaritu eða brauðstangir & 0,5 L gos

3.790 kr.

TT TILBOÐ 2 SÓTvær Pítsur með 2 áleggstegundum, Val um hvítlauksbrauð, margaritu eða brauðstangir & 2 L gos 5.190 kr.

SÓTT TILBOÐ 3

G-special, Sparibrauðstangir & 2 L gos

4.290 kr.

/PÍTSUGERÐIN

#PITSUGERDIN

1. Margaríta með sósu og mozzarella

1.700 kr.

2. Hvítlauksbrauð með mozzarella, hvítlauk, sjávarsalti, og hvítlauksolía

1.690 kr.

3. Brauðstangir með mozzarella og sérvaldri kryddblöndu

1.690 kr.

4. Sparibrauðstangir - hálfmáni með mozzarella, rifnum osti kryddblöndu, hvítlauksolía og piparostur

1.690 kr.

5. Extra pepp með sósu, extra mozzarella og extra pepperoni

2.290 kr.

6. Hawaii með sósu, mozzarella, skinku og ananas

1.990 kr.

7. Pepp og svepp með sósu, mozzarella, pepperoní og sveppum 1.990 kr. 8. Fiesta með sósu, mozzarella, pepperóní, hakki, skinku, hvítlauksolíu

1.990 kr.

9. Trufflað hvítlauksbrauð, með ferskum hvítlauk, mozzarellaosti, sjávarsalti, rjómaosti og truffluolíu

1.890 kr.

10. Döðlupítsa með sósu, mozzarella, döðlum, beikonbitum og kjúkling

2.390 kr.

11. Ostapítsa með sósu, mozzarella, gráðosti, piparosti, rjómaosti, parmesan og sultu til hliðar

2.250 kr.

12. Calzone með sósu, skinku, mozzarella, sveppum, lauk, osti og kryddblöndu

2.190 kr.

13. Vinsæla með sósu, mozzarella, pepperoni, rjómaosti ólífum, jalapeno, svörtum pipar og ananas

2.550 kr.

14. Spæsí með sósu, mozzarella, pepperoní, pikklaður jalapeno, pipar, hunang og ferkst basil

2.390 kr.

15. Parma rocket með sósu, hráskinku, mozzarella, klettasalati, parmesan 16. G - Special með BBQ, pepperoní, osti, rjómaosti, beikon trufflukremi, döðlum, jalapeno, salti og pipar

2.490 kr.

2.790 kr.


YFIRHEYRSLAN

Nafn: Hólmgeir Austfjörð.

Nafn: Sindri Óskarsson.

Aldur: 45 ára.

Aldur: Fæddur 1972, reiknaðu svo.

Fjölskylda: Jóhanna Inga Jóhannsdóttir, Óli Bjarki, Svala Björk og Jón Ævar.

Fjölskylda: Rangeiður Borgþórssdóttir, Silja Elsabet, Óskar Alex, Guðbjörg Sól, Herborg og Teitur.

Hvar ertu að róa: King Ottó N eða Ottó N Þorlákssyni eins og flestir þekkja hann, líka kallaður kóngsi.

Hvar ertu að róa? Á Frá VE 78.

Hvaða stöðu gegnir þú? Ég er oftast 2. stýrimaður, annað slagið kokkur og háseti þegar enginn er í fríi.

Hvaða stöðu gegnir þú? Skipstjóri.

Hvar og hvenær hófst sjómannsferillinn? Minn ferill hófst á bát sem bróðir mömmu átti og reri hann þá á netum frá Þorlákshöfn. Aron ÞH 105 hét hann og var 76 tonna spítubátur. Hver er eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með? Ætli sá eftirminnilegasti sé ekki Þorgeir Baldursson frá Húsavík, margir þekkja hann sem einn öflugasta skipaljósmyndara landsins. Algjör demantur sá drengur. Hver er mesta fíflið um borð? Mesta fíflið, ef við tölum um fifl í jákvæðum skilningi, er sennilega Sibbi Nínon yngri. Eftirminnilegasti túrinn? Eftirminnilegasti túrinn er sennilega snurvoðartúr sem farinn var frá Húsavík á Aron ÞH 105 árið 1996 minnir mig. Við fylltum bátinn af smákola og sáum ekki til sólar í aðgerð í 18 tíma. Viðbjóðsleg vinna en frábær félagsskapur.

Hvar og hvenær hófst sjómannsferillinn? 1992 á Frá Ve 78. Hver er eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með? Það eru margir efirminnilegir t.d. Tryggvi Beikon, Júlli kokkur, Tói Vídó, Árni Marz og margir fleiri. Hver er mesta fíflið um borð? Ég er fljótur að svara því, það er ég sjálfur. Eftirminnilegasti túrinn? Kannski þegar við pikkuðum Gunna Ella P hérna um árið.. hann var á trillu hér rétt fyrir austan við Bjarnarey sem og kviknaði í. Svo fengum við einu sinni hval í trollið það var var bölvað vesen.


Við óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn!

Um sjómannadagshelgina munum við vera með ljósmyndasýningu í fyrsta sinn hjá okkur en það er hann Óskar Pétur Friðriksson sem að mun sýna ljósmyndir sínar

Stór bjór á krana, pretzel að eigin vali ásamt ídýfu á 1.500 krónur

Við bjóðum upp á fylltar mini pítur um helgar. Tvær tegundir í boði!

Opnunartími: Mánudagur 07:00 - 17:00 Þriðjudagur 07:00 - 17:00 Miðvikudagur 07:00 - 17:00

Strandvegur 30 481 1104

Fimmtudagur 07:00 - 18:00 Föstudagur 07:00 - 18:00 Laugardagur 07:00 - 18:00 Sunnudagur 07:00 - 18:00

/vigtin

/vigtinbakhus

Vigtin Bakhús


KYNNING Á SJÓMÖNNUM

Nafn: Halldór Ingi Guðnasson

Nafn: Siggi búbú

Aldur: 1986 = 34 ára

Aldur: 44 ára

Fjölskylda: Sigrún Arna Gunnarsdóttir, Guðni Þór og Breki Þór.

Fjölskylda: Ragnheiður Sveinþórsdóttir, Ægir Guðni, Ólöf Halla og Sveinþór Atli.

Hvar ertu að róa? Ísleifi VE 63

Hvar ertu að róa? Heimaey VE

Hvaða stöðu gegnir þú? Yfirvélstjóri Hvar og hvenær hófst sjómannsferillinn? Á Gandi VE 171 árið 2001 Hver er eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með? Frændurnir Einar Sigþórs og Skarphéðin Yngvasson. Hver er mesta fíflið um borð? Það mun vera sennilega Björn Stefán Eftirminnilegasti túrinn? Kolmunatúr vorið 2015 á Kap VE, ég hef aldrei lent í eins vondu verðri og þá, við vorum við Færeyjar.

Hvaða stöðu gegnir þú? Háseti Hvar og hvenær hófst sjómannsferillinn? Á Styrmi VE árið 1991, síldarnót. Hver er eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með? Grímur grimmi á Guðmundi VE Hver er mesta fíflið um borð? Hver annar en Sigbjörn Þór Óskarsson. Eftirminnilegasti túrinn? Páskatúrinn mikli árið 2020 þegar ég vann fleiri kana en Sibbi Óskars og heimsmetstúrinn þegar við fengum 2.400 tonn af loðnu í einu kasti í febrúar 2017.


Bílaverkstæði

HARÐAR & MATTA

Til hamingju með daginn sjómenn & fjölskyldur ÞRÍR UNDARLEGIR!

Innilegar hamingjuóskir sjómenn & fjölskyldur!


Ship -O-

Hoj!

Við óskum vinum okkar í Vestmannaeyjum innilega til hamingju með daginn.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook