Tígull 19. tbl 05. árg.

Page 1

19. tbl. 05. árg. 7. - 13. júní 2023

TIL HAMINGJU VESTMANNAEYJAR

Erlingur Birgir Richardsson nýkringdur Íslandsmeistari lætur nú af störfum sem aðalþjálfari karlaliðs ÍBV í handbolta. Hann tók við liðinu í þriðja sinn árið 2018. Það er óhætt að segja að Erlingur skilji við lið sitt í ansi góðum málum, en ásamt því að landa Íslandsmeistaratitlinum á dögunum endaði ÍBV í þriðja sæti í deildinni, aðeins þremur stigum á eftir deildarmeisturum Vals. Ekki má heldur gleyma Ragnarsmótinu sem strákarnir unnu í byrjun tímabils. Tígull fékk Erling í smá spjall um tímabilið sem var að klárast, árangurinn og framhaldið.

Nú var árangurinn ykkar á tímabilinu frábær og eflaust margt eftirminnilegt. En hvað fannst þér svona eftirminnilegast innan vallar?

,,Það sem mér fannst eftirminnilegast og þótti kannski kærast um, er að sjá leikmenn dafna inn á vellinum, sjá framfarir og afrakstur þeirra vinnu af æfingum“. Leikmannahópur ÍBV er þekktur fyrir að vera stór og góður og segir Erlingur að það hafi sést greinilega í úrslitakeppninni hvað hópurinn hefur stækkað og stækkað og breiddin mikil. Hann sagði að stundum

TÍGULL

DREIFING:

hafi það jafnvel verið erfitt fyrir þá þjálfarana að velja hóp og gefa mönnum þær mínútur í leik til að halda áfram að þróast sem leikmenn. Hann segir einnig að það hafi verið ótrúlega gaman að sjá unga leikmenn fá mikilvæg hlutverk í liðinu og þroskast sem stórkostlegir keppnismenn.

Ótrúlegur stuðningur

Eyjamenn eru þekktir fyrir að fara alla leið þegar kemur að því að styðja sitt lið og hefur þessi stuðningur verið mjög áberandi í fjölmiðlum landsins. Erlingur sagði að stuðningurinn sem íþróttin hafi fengið í vetur sé einstakur og þessi góða mæting hafi gert það að verkum að ósjaldan gat ÍBV breytt útileik í heimaleik þar sem Eyjamenn voru í miklum meirihluta í stúkunni. ,,Það er ósjaldan sem leikmenn hafa farið í leiki sem fulltrúar Vestmanneyinga og þurfi að gefa til baka með þeim hætti að leggja sig 100% fram“. Hann nefnir í því samhengi að það sé því mikilvægt að fólk mæti vel á leiki svo leikmenn upplifi sig sem fulltrúi þeirra.

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn/ Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó. Forsíðumynd/Tígull. Blaðamaður/ Kristjana Ingibergsdóttir

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

ÚTGÁFA:

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is

Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.

ERLINGUR BIRGIR RICHARDSSON:

Að loknu tímabili er gott að líta um öxl og fara yfir veturinn, skoða hvort eitthvað hefði mátt gera öðruvísi. Erlingur sagði að það sé ekkert sem hann geti bent á þannig séð sem hann hefði viljað gera öðruvísi. Leikmenn liðsins hafi unnið vel í vetur í að bæta sig sem leikmenn og með því eflt og bætt liðið. Hann sé því mjög sáttur. Það sé margt í huga hans þegar kemur að liðinu en nefnir samkenndina sem einkennir hópinn. Hvernig eldri leikmenn hafi dregið vagninn, axlað mikla ábyrgð og hvatt þá yngri endalaust til dáða og líka kennt þeim ungu að axsla ábyrgð strax.

Virkilega góð tilfinning að sjá bikarinn fara á loft á heimavelli

Karlalið ÍBV hefur þrisvar sinnum orðið Íslandsmeistari í handbolta en aldrei á heimavelli. Nýjustu tölur sýndu að áhorfendamet hafi einnig fallið, eða um 1800 miðar hafi verið seldir. Erlingur sagði að tilfinningin að lyfta bikarnum fyrir framan allt fólkið þeirra á heimavelli hafi verið virkilega góð og sérstaklega hafi verið gaman að sjá leikmenn uppskera og fagna eftir alla þá vinnu sem þeir hafa lagt á sig. Það hafi verið frábært að geta sýnt sínu fólki að leikmenn ÍBV geri allt til að borga til baka fyrir ódrepandi stuðning.

Mikil íþróttafjölskylda

Það er óhætt að segja að fjölskylda Erlings hafi sterka tengingu við handboltann og greinilegt að handboltinn er í genunum. Þau hjónin Erlingur og Vigdís eiga bæði langan og flottan feril að baki í

Þýskalandi, Elmar með U-liði ÍBV og meistaraflokki og Andri er í fjórða flokki. Ásamt þeim sagði Erlingur að ansi mörg frændsystkinin væru í ÍBV eða hafa leikið með ÍBV í gegnum tíðina.

Mikilvægt að halda í alla þessa framúrskarandi yngri flokka þjálfara hjá félaginu

En hvað ætli það sé sem er svona sérstakt við handboltaumhverfið í Vestmannaeyjum. Hingað hafa komið fjölmargir leikmenn bæði í karla og kvennaliðið og virðist sem allir leggi mikið ástfóstur á Eyjuna og fólkið sem hér býr. Erlingur sagði að samkenndin og stuðningurinn í samfélaginu er það sem drífur leikmenn áfram til að standa sig. Það samspil verðum að reyna að viðhalda. ,,Einnig vil ég taka það fram að við höfum verið með framúrskarandi yngri flokka þjálfara hjá félaginu sem eru alltaf að skila frá sér góðum íþróttamönnum. Það er tekið eftir því hversu gott og markvisst starf er unnið hér, þessari þekkingu þurfum við að halda í“. Erlingur leggur mikla áherslu á að svona frábær árangur sem liðin okkar hafa sýnt í gegnum tíðina, karla og kvenna, er ekki sjálfgefinn. Við þurfum á öllu okkar fagfólki að halda og félagið þarf að gera allt til að búa til þannig umhverfi að hér starfa aðeins frammúrskarandi þjálfarar með metnað fyrir því að skila af sér góðu íþróttafólki.

Eins og fyrr segir var þetta síðasta tímabilið hjá Erlingi og stefnir hann á að taka sér smá frí eftir veturinn og fara síðan að kenna næsta haust. Við óskum honum innilega til hamingju með frábæran árangur, þökkum honum kærlega fyrir spjallið og óskum honum góðs

TIL HAMINGJU

TIL HAMINGJU

MEÐ FRÁBÆRAN ÁRANGUR ÍBV!

MEÐ FRÁBÆRAN ÁRANGUR ÍBV!

HARPA VALEY GYLFADÓTTIR:

LOVE YOU ÍBV

Eftir frábæran árangur á tímabilinu, hvað er það sem þér þótti eftirminnilegast innan vallar?

,,Það sem að mér fannst eftirminnilegast við þetta tímabilið var að vinna deildar- og bikarmeistaratitilinn“.

Hvort var erfiðara að sækja Bikareða deildarmeistaratitilinn?

Og hvor titillinn var sætari?

,,Báðir titlarnir voru mjög krefjandi, en ég myndi segja að bikarmeistaratitilinn hafi verið aðeins sætari, samt sem áður var leikurinn sem við unnum með flautu marki hérna heima á móti Val mjög sætur, sem kom okkur góða leið í að vinna deildarmeistaratitilinn. En bikarmeistaratitilinn var eitthvað annað, þetta er leikur sem okkur var búið að dreyma um að spila og hvað þá vinna, fæ gæsahúð að hugsa um hann það var svo geggjað að spila þennan leik og með þennan stuðning sem við fengum, þetta var einn

skemmtilegasti leikur sem ég hef spilað“.

Hvernig var upplifunin að sigla heim með bikarinn?

,,Upplifunin að sigla heim með bikarinn var ólýsanleg, það var svo geggjað, að vera með fólkinu okkar að fagna og að sjá alla á bryggjunni taka á móti okkur, þetta er móment sem maður mun aldrei gleyma“.

Settir þú þér einhver persónuleg markmið fyrir á nýafstöðnu tímabili?

,,Markmiðin mín voru bara að gera mitt besta innan sem utan vallar, hafa gaman, njóta og vera jákvæð“.

Er stemmingin í liðinu betri á þessu tímabili heldur en á undanförnum tímabilum?

,,Já mér finnst stemmingin í hópnum rosalega góð á þessu tímabili, erum mjög þéttur og náin hópur. Hópurinn hefur samt verið góður og mikil stemming undanfarin tímabil en ég myndi

segja að við værum extra góðar vinkonur núna, enda búnar að eyða miklum tíma saman“. Nú skrifaðir þú undir samning við Selfoss á dögunum, til hamingju með það.

Hvað varð til þess að þú valdir að breyta til og flytja frá Eyjum?

,,Já takk kærlega fyrir, en ég var að íhuga það að fara í háskóla en annars líka bara að prufa eitthvað nýtt og fá smá tilbreytingu (einnig hef ég tengingu á Selfoss núna)“.

Hver er þín helsta fyrirmynd í handboltanum og af hverju?

,,Ég er eiginlega ekki með einhverja eina eða sérstaka fyrirmynd í handboltanum, kannski bara “gömlurnar” í liðinu mínu, lít upp til þeirra finnst þær geggjaðar og frábærar fyrirmyndir“.

Eitthvað að lokum? ,,Takk kærlega fyrir mig ÍBV og allan stuðninginn sem við fengum, þetta var geggjað tímabil með besta fólkinu. Love you ÍBV“.

Sara Dröfn Ríkharðsdóttir og Harpa Valey Gylfadóttir

STARFSMAÐUR Á LEIKJANÁMSKEIÐ

Vestmannaeyjabær óskar eftir að

ráða starfsmann á leikjanámskeið.

Sumarfjör Vestmannaeyjabæjar er leikjanámskeið fyrir börn í 1.-4. bekk.

Í starfinu er lögð rík áhersla á gleði, skemmtun, samveru, leiki og hreyfingu.

Nánari upplýsingar

á vef Vestmannaeyjabæjar

TAKK FYRIR MIG ÖLL SEM EITT, ÉG ELSKA YKKUR!

Nú á dögunum hætti Vilmar Þór Bjarnason sem framkvæmdarstjóri handknattleiksdeildar ÍBV. Vilmar þekkja flestir ef ekki allir Eyjamenn sem fylgjast með íþróttum enda hefur hann verið mjög virkur í kringum allt starf deildarinnar, bæði sem kynnir á leikjum, verið í handknattleiksráði og nú eins og fyrr segir fráfarandi framkvæmdarstjóri deildarinnar.

Vilmar Þór er einstaklega góður drengur með góða nærveru og mikill happafengur fyrir ÍBV að hafa slíkan einstakling í sínu horni. Þrátt fyrir að eflaust allir og hann sjálfur líti á sig sem Eyjamann þá er hann fæddur og uppalinn í Reykjavík en flytur til Vestmannaeyja haustið 2015, en það sama ár giftist hann Þóru Sif sinni í Eyjum. Vilmar og eiginkona hans Þóra Sif Kristinsdóttir eiga tvö börn sem heita Theresa Lilja (12 ára) og Óliver Atlas (10 ára). Einnig eru þau með dásamlegan 6 ára dreng í skammtímafóstri. Fjölskyldan hafði hugsað það í einhvern tíma að flytja til Eyja þar sem Þóra Sif er fædd og uppalin og Vilmar sagði að eftir að hafa kynnst samfélaginu í Eyjum á þeim 6 árum sem þau hjónin hefðu verið saman hefði hann verið alveg heillaður og sagði að í raun og veru hafi hann dregið hana aftur heim. Hvorugt þeirra sér eftir því í dag.

Upphafið af starfinu hjá bandalaginu

Aðspurður að því hvernig það hafi komið til að hann hafi farið að vinna fyrir bandalagið sagði Vilmar að það hafi byrjað með því að hann var beðinn um að

leysa Gauja Sidda af sem kynnir á handboltaleikjum meistaraflokkanna, af og til. Gaui var búinn að sinna því starfi lengi og varð frelsinu feginn. Það var síðan um vorið 2016 að Arnar Pétursson, þáverandi þjálfari karlaliðsins spurði hann hvort hann vildi ekki koma með í starfið á fullu og úr varð að Vilmar tók sæti í handknattleiksráði haustið sama ár. Þar sat hann fram á sumarið 2019 þegar hann var síðan ráðinn sem framkvæmdarstjóri handknattleiksdeildarinnar. ,, Á þessum tíma hafði hinn dásamlegi vinur minn Viktor Hólm Jónmundsson verið í starfinu, hann hafði verið í 50% stöðu. Hann hafði ákveðið að hætta og spurði mig hvort ég vildi ekki skoða að taka við. Á þessum tíma var starfinu breytt og fleiri verkefni færð á framkvæmdastjóra og því breytt í 100% starf. Ég var ekki lengi að hugsa mig um og sló til. Það að fá boð um að starfa fyrir félag eins og ÍBV og að vinna fulla vinnu við sitt helsta áhugamál eru forréttindi og eitthvað sem ég mæli með!“.

Alltaf elskað íþróttir

Vilmar segist alltaf hafa verið mikill íþróttaáhugamaður, allt frá blautu barnsbeini. Handbolti hefur alltaf átt sérstakan sess hjá honum , en hann hefur mikinn áhuga á öllu sem heita íþróttir. Hann hafi farið snemma í að sinna sínu uppeldisfélagi og var duglegur að dæma og hjálpa til við hin ýmsu verkefni. Móðir hans hafi verið í unglingaráði hjá ÍR síðan hann man eftir sér og þannig hafi hann lært og séð hvað sjálfboðaliðar/félagsmenn skipta miklu

Vilmar fagnar með Íslandsmeisturunum

máli fyrir íþróttafélög. Hann segist líka styðja börnin sín mikið í þeirri íþrótt sem þau stundi og reyni að sýna þeim með góðu fordæmi og leggja inn mikilvægi þess að vera góðir félagsmenn. Vilmar æfði sjálfur handbolta þegar hann var yngri, en spilaði einnig fótbolta og um stund badminton en segir að boltaíþróttirnar hafi höfðað best til hans. ,,Ég bjó í nokkrum hverfum á grunnskólaárunum og æfði því hjá nokkrum félögum. Ég hóf ferilinn hjá Fram í fótbolta 5 ára gamall. Þegar sameinað félag Ármann/ Þróttur (hið stórmerka félag) tók aftur upp handbolta þegar ég var um 9-10 ára hóf ég að æfa handbolta en færði mig svo í Fram fljótlega í handboltanum. Ég flutti svo í Breiðholtið og æfði báðar íþróttir með ÍR frá 13-14 ára aldri og þar til ég hætti eftir 2./3.flokk“. Þrátt fyrir að hafa spilað boltaíþróttir í öll þessi ár sagði Vilmar að hann hafi hins vegar ekki verið talinn líklegur til afreka á vellinum, en segir í gríni, en samt ekki gríni að hans styrkleiki liggi frekar í því að hann hafi verið sterkur í klefanum, hvetjandi og góður leiðtogi og liðsmaður.

Eyjar er ,,mitt heima“

Eins og fyrr segir heillaðist Vilmar fljótt af Eyjum og segir því að ekki hafi komið sér margt á óvart þegar hann flutti hingað, heldur hafi hann frekar fengið grun sinn staðfestan, sem var að samfélagið í Eyjum er væri frábært. Þegar þau hjónin kynntust aðeins 19 ára gömul árið 2009 byrjuðu þau að búa í Vestmannaeyjum og sagði Vilmar að hann ætti mjög margar skemmtilegar minningar frá því sumri. Hann sagði að strax hafi hann fundið að hér byggi skemmtilegt og gott fólk, mikill samhugur og honum hafi verið mætt með mikilli vinsemd strax frá upphafi. ,,Það mætti kannski segja að það komi mér mest á óvart að ég hafi ekki fæðst hérna, því mér líður þannig að þetta sé minn staður í heiminum, mitt heima!“.

Blendnar tilfinningar að hætta

Vilmar lætur nú af störfum sem framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar eftir fjögur ár og sagði Vilmar að það væri óhætt að segja að væru mjög blendnar tilfinningar að hugsa til þess að vera hættur. Í starfinu hafi hann myndað mjög náin og góð tengsl við stórkostlegan hóp af fólki og sagði að þetta sé allt fólk sem hann muni eiga sem vini fyrir lífstíð. Þetta starf sé hins vegar ekki hin hefðbundna 8-16 vinna, heldur er oft á tíðum mikið jask og mjög mikil vinna. Þrátt fyrir allt áreitið sem fylgir starfinu sagði Vilmar að þetta væri allt þess virði og gæfi svo mikið til baka. ,,þegar maður sér liðin sín uppskera vel eftir mikla vinnu og erfiði. Það er hreinlega eins og í einhverri lygasögu að félagið sé handhafi 3 af 6 titlum sem eru í boði í íslenskum handbolta, það eru hrein forréttindi að fá að taka á svona ævintýri! Stelpurnar mínar bikar- og deildarmeistarar og peyjarnir mínir Íslandsmeistarar!“ sagði Vilmar stoltur. Vilmar sagði að þrátt fyrir krefjandi og skemmtilega

vinnu hafi hann fundið það í byrjun vors að það væri kominn tími fyrir hann til að stíga til hliðar. Ástæðuna segir hann ekki vera vegna þess að honum hafi ekki líkað vinnan eða verið orðinn leiður á henni, frekar að þetta væri farið að taka meiri toll en áður. ,,Ég vildi hætta núna, áður en ég t.d. brenn út eða „crash-a“. Ég vildi geta gengið beinn í baki og stoltur frá borði, og það er óhætt að segja að ég geri það í dag. Það að sjá karlaliðið verða Íslandsmeistari, í oddaleik á heimavelli, á mínum síðasta formlega degi í starfi er handrit sem ég held að enginn hefði getað skrifað“. Hann segist hins vegar alls ekki vera farinn frá ÍBV heldur hlakki hann til að vera aftur sjálfboðaliði, kynnir og dyggur stuðningsmaður.

Einstaklega vel giftur

Það er ekki hægt að segja annað en að öll fjölskyldan gefi bandalaginu 100% og hefur það verið aðdáunarvert að fylgjast með þeim hjónum Vilmari og Þóru Sif leggja allt sitt í að aðstoða við allt sem tengist ÍBV. Vilmar segir að þetta sé fjölskyldu-áhugamál. Þóra Sif er í stjórn handknattleiksdeildarinnar af fullum krafti. Börnin þeirra taka virkan þátt í þessu öllu og þau hafi öll jafn gaman af þessu. Hann segir að þetta sé svo gefandi og skemmtilegt umhverfi og frábært fyrir börn að alast upp í og bara fyrir alla að vaxa og

Vilmar ásamt eiginkonu sinni, Þóru Sif.

stækka sem einstaklingar. Hann leggur mikla áherslu á að til þess að geta unnið í svona starfi eins og hann hafi gert undanfarin ár er nauðsynlegt að vera vel giftur eins og hann er svo sannarlega. Hann segir ,,Þóra Sif, konan mín, á svo ótrúlega stóran þátt í því sem ég hef afrekað og komið í verk í mínu starfi hjá ÍBV. Hún hefur alltaf staðið eins og klettur við bakið á mér, sýndi því alltaf skilning þegar ég þurfti að vinna fram eftir, símtöl á matmálstímum, og nánast hvaða dag ársins sem var. Hún hefur gripið mig þegar ég er við það að fara yfir um, þegar álagið er sem mest, en jafnframt alltaf hvatt mig áfram og sinnt börnum og búi eins og herforingi á þessum sömu umræddu álagstímum. Við erum búin að vera í þessu saman og það er svo einstaklega dýrmætt!“.

Næstu skref

Vilmar hefur verið ráðinn til starfa sem sölufulltrúi á viðskiptasviði Arion banka og byrjaði hjá þeim núna á mánudaginn. Hann segist koma til með að vinna starfið frá Vestmannaeyjum enda myndi það aldrei koma til greina að fjölskyldan myndi yfirgefa Eyjuna okkar fögru og ÍBV.

Takk fyrir mig

Að lokum segir Vilmar ,Ég vil koma á framfæri þökkum til alls míns fólks hjá ÍBV, fyrir traustið, trúna og frábæran tíma saman. Leikmenn, þjálfarar, starfsfólk, stjórnarfólk, sjálfboðaliðar og stuðningsmenn sem allt eru ótrúlega mikilvægir hlekkir í starfi handknattleiksdeildar ÍBV. Sömuleiðis vil ég ítreka hversu mikilvæg konan mín og börnin hafa verið á þessum tíma, án þeirra aðkomu og skilnings hefði þetta aldrei verið hægt. Takk fyrir mig öll sem eitt, ég elska ykkur! „.

Við þökkum Eyjapeyjanum Vilmari kærlega fyrir skemmtilegt spjall og óskum honum góðs gengis í öllu því sem hann tekur sér fyrir hendur. Held að það sé líka óhætt að segja að fyrir hönd okkar Eyjamanna segjum við ,,Takk Vilmar fyrr allt og við elskum þig líka“.

Starfsmannafélag

Vestmannaeyjabæjar

Við óskum meistaraflokkum ÍBV í handknattleik til hamingju með frábæran árangur
Við óskum meistaraflokkum ÍBV í handknattleik til hamingju með frábæran árangur!
Við óskum meistaraflokkum ÍBV í handknattleik til hamingju með frábæran árangur!

KÁRI KRISTJÁN KRISTJÁNSSON:

ELSKA ÞESSA PEYJA

Eftir frábæran árangur á tímabilinu, hvað er það sem þér þótti eftirminnilegast innan vallar?

Það er að sjálfsögðu Íslandsmeistaratitillinn sem við unnum nú á dögunum. Þetta er búið að vera ótrúlega mikið ferðalag þetta tímabil. Og hefur verið vægast sagt kaflaskipt. Það hefur gengið á ýmsu og á tímabili var eins og maður væri að missa trúnna. En þessi hópur er einstakur og hann þéttist og þéttist eftir því sem leið á tímabilið, samheldnin varð engu lík og ég held að allir hafi séð það að þarna var ekki bara besta lið landsins að spila heldur besta liðsheild landsins.

Settir þú þér einhver persónuleg markmið fyrir þetta tímabil?

Já mig langaði að vinna mestu framfarir á lokahófinu en það gekk því miður ekki eftir, en það er alltaf næsta ár. En að öllu gamni slepptu þá er maður kominn á þann stað á ferlinum að maður vill deila ábyrgðinni og gefa af sér á þann hátt að láta hjálpa liðsfélögum sínum til þess að ná markmiðum sínum og liðsins. Mitt markmið var því að vera betri í því að hjálpa og leiðbeina og vonandi mun tíminn

leiða það í ljós að það hafi borið sýnilegan ávöxt.

Nú ert þú búinn að vera í yfir tuttugu ár í meistaraflokki, hvar setur þú þetta tímabil í goggunarröðinni í eftirminnilegustu tímabilunum þínum?

Það er alltaf erfitt að gera upp á milli enda eru tímabilin orðin æði mörg. Engu að síður er þetta tímabil klárlega eitt það eftirminnilegasta og skemmtilegasta sem ég hef spilað á mínum ferli, ef ekki það besta.

Sem fyrirliði liðsins, eru aðrar skyldur og önnur hlutverk sem þú þarft að uppfylla?

Eins og kemur fram að ofan þá er hlutverk fyrirliða að vera liðsfélögum sínum innan handar, jafnt innan vallar sem utan. Við gætum kannski sagt að maður sé í ákveðnu pabba hlutverki enda gæti ég átt marga þeirra.

Hvernig var tilfinningin að lyfta bikarnum á heimavelli?

Algjörlega ólýsanleg! Eftir svona langan tíma í handboltanum. Í sögulegu samhengi frá því að ég byrjaði í meistaraflokki þegar við

gátum nánast ekki neitt í það að lyfta Íslandsmeistaratitlinum á heimavelli þá hefði ég alltaf nennt að æfa í rúm tuttugu ár á hverjum degi bara til þess að upplifa þetta augnablik.

Hver er þín helsta fyrirmynd í handboltanum og af hverju?

Þegar ég var að alast upp þá var Nenad Perunicic og Christian Schwarzer mínar helstu fyrirmyndir enn eins og gefur að skilja eru þeir þúsund ára gamlir í dag og enginn veit hverjir þeir eru. Þeir voru bestu leikmenn í heiminum á sínum tíma og spilaði Schwarzer til að mynda tuttugu tímabil í efstu bundisligu í Þýskalandi.

Hvernig var fyrir þig sem leikmann að spila stærsta handboltaleik sem leikinn hefur verið í Vestmannaeyjum? Fannstu fyrir mikilli pressu? Það voru náttúrulega algjör forréttindi að fá að deila þessu augnabliki með bæjarbúum. Ég fann fyrir því að allt samfélagið var að leggjast á eitt. Alveg sama við hvern maður talaði þá voru allir með sama markmið og það var að vinna þennan leik. Að því sögðu fann ég fyrir stressi í aðdraganda

Íslandsmeistarar

leiksins því ég gat ekki hugsað mér að bregðast öllu fólkinu.

Var þetta síðasta tímabilið þitt fyrir ÍBV? Eru skórnir komnir á hilluna?

Það hefði kannski verið skynsamlegast að leggja skóna á hilluna eftir svona stórkostlegan endi en þar sem ég er nýbúinn að fá nýja handboltaskó þá tími ég ekki að hafa þá á hillunni og ætla ég að nota þá a.m.k. eitt ár í viðbót.

Eitthvað sem þú vilt segja að lokum? Ég vill nota tækifærið og þakka fjölskyldunni minni sem hefur þurft að tipla á tánum í gegnum súrt og sætt á meðan á svona úrslitakeppni stendur yfir, þakka liðinu mínu öllum sem einum, elska þessa peyja. Þakka þjálfurum, liðstjórum, sjúkraþjálfurum og að ógleymdum áhorfendum fyrir algjörlega ógleymanlegt augnablik sem mun varðveitast í minningunni um ókomna tíð í íþróttasögu Vestmannaeyja.

Innilegar hamingjuóskir ÍBV!

Íbúð aldraðra

Vestmannaeyjabær auglýsir lausa til umsóknar íbúð eldri borgara Sólhlíð. Íbúðin er 53,2 fermetrar. Leiguverð fylgir leiguverði annarra íbúða hjá Vestmannaeyjabæ.

Umsóknarfrestur er til 30. júní nk.

Sótt er um í gegnum íbúagátt á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð á skrifstofu Fjölskyldu og fræðslusviðs að Kirkjuvegi 23 (gamla Íslandsbanka) og skal þá fylgigögnum einnig

skilað þangað. Mikilvægt er að skila inn öllum gögnum sem óskað er eftir eða nýjum gögnum hafi aðstæður breyst.

Fjölskyldan fagnar saman. Klara, Kári, Kiddi og Kiddý.
Við óskum ÍBV til hamingju með frábæran árangur á tímabilinu!

ARNÓR VIÐARSSON:

MARKMIÐIÐ ER AÐ NÁ

LENGRA EN ELLIÐI BRÓÐIR

Flötum 29

Tímapantanir í síma: 481-1012

Neyðarsíminn: 844-5012

tannsi@eyjar.is

Eftir frábæran árangur á tímabilinu, hvað er það sem þér þótti eftirminnilegast innan vallar?

,,Það sem stendur upp úr er klárlega leikur 5 á móti Haukum“.

Nú hefur hlutverk þitt alltaf verið að stækka innan liðsins, hvernig hefur þér líkað sú þróun?

,, Mér hefur líkað það mjög vel og þegar maður fær stærra hlutverk verður sjálfstraustið meira“.

Settir þú þér einhver persónuleg markmið fyrir þetta tímabil?

,,Markmiðið mitt er búið að vera að verða Íslandsmeistari síðan 2014 og ég var ekki með neitt öðruvísi markmið fyrir þetta tímabil“.

Hvernig var tilfinningin að lyfta bikarnum á heimavelli? ,,Það var sturlað að gera þetta með öllu fólkinu, það er nánast ólýsanlegt“.

Hvert stefnir þú í handboltanum? Er atvinnumennskan draumur-inn?

,,Já klárlega er markmiðið að fara lengra en Elliði og spila fyrir landsliðið“.

Hver er þín helsta fyrirmynd í handboltanum og af hverju?

,, Það eru þeir Sagosen og Aron Pálma þeir eru báðir frábærir leikmenn sem eru góðir á báðum endum vallarins“.

Hvernig var fyrir þig sem leikmann að spila stærsta handboltaleik sem leikinn hefur verið í Vestmannaeyjum? Fannstu fyrir mikilli pressu? ,,

Það var geggjað og ég reyndi bara að njóta“. Eitthvað sem þú vilt segja að lokum? ,,Já vill bara þakka Eyjamönnum fyrir frábæran stuðning“.

Fundir eru sem hér segir: Sunnudaga kl. 11.00 Mánudaga kl. 20.30 PPG bókarfundur Miðvikudaga kl 20.30 AL-ANON Þriðjudaga kl. 20.30 NÝLIÐAR VELKOMNIR HÁLFTÍMA FYRIR FUNDI Bókið tíma á facebook.com/thoreyljosmyndari eða á netfangi thoreyhh19@gmail.com Fermingarmyndir /skvisubudin
www.skvisubudin.is /skvisubudin
Litla
Skvísubúðin Fallegur
fatnaður á konur í öllum stærðum á sanngjörnu verði. Við tökum upp nýjar vörur vikulega.
NÝJA TANNLÆKNASTOFAN

ELÍSA ELÍASDÓTTIR:

SUNNA JÓNS MÍN HELSTA FYRIRMYND Í HANDBOLTANUM

Eftir frábæran árangur á tímabilinu, hvað er það sem þér þótti eftirminnilegast innan vallar?

,,Líklega þegar Marta fær rautt spjald í bikarúrslitarleiknum, og stúkan öll tryllist. En við unnum samt leikinn, sem var extra sætt“.

Hvort var erfiðara að sækja Bikareða deildarmeistaratitilinn? Og hvor titillinn var sætari? ,,Það má segja að deildarmeistaratitillinn hafi verið erfiðari því við þurftum að vinna svo marga leiki en bikarmeistaratitillinn var sætari“.

Hvernig var upplifunin að sigla heim með bikarinn? ,,Hún var alveg klikkuð, hef aldrei upplifað annað eins“.

Settir þú þér einhver persónuleg markmið fyrir á nýafstöðnu tímabili?

,,Mig langaði rosa mikið að fá tækifærið að spila sem þristur í vörn fyrir þetta tímabil, og fékk svo traustið þegar leið á tímabilið“.

Er stemmingin í liðinu betri á þessu tímabili heldur en á undanförnum tímabilum?

,,Kannski ekki betri en öðruvísi, erfitt að lýsa henni“.

Nú varst þú að útskrifast úr FíV, til hamingju með það. Hvað tekur svo við hjá þér? Verður þú áfram leikmaður ÍBV á næsta ári?

,,Ég verð allavega eitt ár í viðbót í Eyjum og svo sé ég til hvað ég geri næst“.

Hver er þín helsta fyrirmynd í handboltanum og af hverju?

,,Úff góð spurning, ætli það sé ekki bara Sunna Jóns, hún gefst aldrei upp og það er frábær eiginleiki til þess að hafa inni á vellinum“.

Eitthvað sem þú vilt segja að lokum?

,,Bara áfram ÍBV alltaf, alls staðar“.

Elísa og Amelía Dís með Deildarbikarinn Bikarmeistarar! Elísa, Harpa Valey, Sara Dröfn - siglt heim með bikarinn.

Bjarnheiður Hauksdóttir

Jóna Lára, Perla Dís og Eydís Björk

Sigurleif Guðfinnsdóttir og fjölskyldur.

Jarðarförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.

Kristjana Ingólfsdóttir

Kolbrún Sól Ingólfsdóttir

Júlíus Hallgrímsson

Óskar Haraldsson

Hallgrímur Júlíusson

Ásta Björt Júlíusdóttir

Sóley Óskarsdóttir

Ari Óskarsson

Kristjana Þorfinnsdóttir

Eyjólfur Pétursson

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.