18. tbl. 04. árg. 18. - 24. maí 2022
SKÓLADAGUR GRV
BRÆÐURNIR BENJAMÍN PÉTUR OG HJÖRVAR TRAUSTI
Acai & Prótein heilsuskálar! FÁST HJÁ OKKUR
við Strandveg · Sími 481-1559
SKÓLADAGAR Í GRUNNSKÓLA VESTMANNAEYJA Skóladagar GRV fóru fram nú á dögunum kennurum, foreldrum og ekki síst börnunum til mikillar gleði. En ekki hefur verið unnt að halda þá undanfarin ár sökum samkomutakmarkanna. Á skóladögum sýna nemendur afrakstur skólaannarinnar gestum og gangandi. Bekkirnir skiptast einnig á að selja veitingar til fjáröflunar í skólaferðalög. Á yngra stigi GRV, í Hamarskóla, sýna bekkirnir einnig foreldrum stutt leikrit sem krakkarnir hafa sett á fót. Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá gleðinni.
TÍGULL
Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir, Katrín Laufey Rúnarsdóttir & Sæþór Vídó.
DREIFING:
ÚTGÁFA:
SKIL Á AUGLÝSINGUM:
Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is
Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is
Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.
VORVINDAR TOYOTA
KOMA TIL VESTMANNAEYJA SÝNING 20. MAÍ KL. 16:00 - 18:30 OG 21. MAÍ KL. 11:00 - 17:00 Í NETHAMRI ÞAÐ ALLRA NÝJASTA Í VÖRULÍNU TOYOTA
Nýr Hybrid = 100% afsláttur af lántökugjöldum. Sjá nánar á toyota.is
TOYOTA TRYGGINGAR vátryggt af TM 3+4 ÁBYRGÐ
ÁRA ÞJÓNUSTA
Toyota Kauptúni Kauptúni 6 570 5070
Bílarnir í þessari auglýsingu endurspegla ekki endilega það verð og þann búnað sem tilgreindur er. Fyrirvari við 7 ára ábyrgð: Ökutækinu skal viðhaldið samkvæmt vörulýsingu og leiðbeiningum framleiðandans og ber eigandi kostnaðinn við slíkt viðhald. Sé það ekki gert getur það valdið ógildingu ábyrgðar varðandi hluti sem þarfnast viðhalds. Gildir eingöngu um bíla sem fluttir eru inn af Toyota á Íslandi ehf. *Á ekki við um aðgerðir/aðkeypta hluti frá þriðja aðila. Gildir ekki með öðrum tilboðum eða LX útfærslu Hilux og á eingöngu við um nýja bíla. 3 ára þjónusta fylgir öllum nýjum bílum semfluttir eru inn af Toyota á Íslandi ehf. Birt með fyrirvara um villur.
KOSNINGAVAKA FLOKKANA SÍÐASTLIÐINN LAUGARDAG Þó framboð sveitarstjórnarkosninganna hafi haft mismikið yfir að gleðjast á kosningavökum sínum á laugardaginn virtist þó gleðin svífa yfir vötnum hjá þeim öllum. Eyjalistinn hélt sína vöku á Pítsagerðinni, H-listinn í Kiwanis og D-listinn í Akóges. Tígull lét sig ekki vanta og smellti af nokkrum myndum.
STEINVARI
Útimálning fyrir íslenskt veðurfar Steinvari er öflug varnarlína gegn íslensku veðri, afrakstur þrotlausra rannsókna og þróunar í áratugi. Láttu sérfræðinga okkar aðstoða þig við val á útimálningu.
GERÐU– íslensk FÍNT varnarlína FYRIR SUMARIÐ! Steinvari í útimálningu
30
%
afsláttur af- það segir sig sjálft Kjörvara & Steinvara
– Í MEISTARA HÖNDUM
Viðarvörn
fyrir íslenskar aðstæður Notaðu sumarið til að verja viðinn! Þeir sem til þekkja nota Kjörvara á allt tréverk utanhúss. Reynslan hefur sýnt að Kjörvari er viðarvörn sem er gædd einstökum eiginleikum fyrir íslenskt veðurfar.
Kjörvari – fyrir íslenskar aðstæður – Í MEISTARA HÖNDUM
- það segir sig sjálft -
Strandvegur 30 / 481 1475 / www.mistodin.is / midstodin@midstodin.is
MYNDIR FRÁ PUFFIN RUN The Puffin Run var haldið í fjórða sinn þann 7. maí síðastliðinn. Í ár voru þátttakendur um 1200 manns. Hlaupið var í nokkrum flokkum eins og vanalega er. Brautametin voru slegin í ár en brautarmet karla síðan í fyrra átti Þorsteinn Roy á 1.22.09. Það var Arnar Pétursson sem sló metið og hljóp á 01:17:55. Einnig sló Andrea Kolbeins brautarmet kvenna í brautinni en
hún hljóp á tímanum 1:26:24 og sló því brautarmet Rannveigar Oddsdóttur frá því í fyrra sem var 1:34:30 um rúmar 8 mínútur. Hlaupið tókst vel í alla staði og vilja skipuleggendur hlaupsins þakka öllum sem aðstoðuð við hlaupið. Án ykkar er þetta ekki hægt.
Stjórnendur The Puffin Run veittu nokkra styrki síðastliðinn laugardag, þar á meðal til Gleðigjafanna sem eru einmitt á leiðinni út í keppnisferð til Danmerkur í vikunni.
Skannaðu kóðann til að sjá allar myndir úr Puffin Run
VANTAR ALLAR TEGUNDIR EIGNA Á SKRÁ VEGNA MIKILLAR SÖLU UNDANFARIÐ
“
“
Dóra sá um sölu á húsinu okkar og gætum við ekki verið ánægðari með hvernig allt söluferlið fór fram. Dóra gaf sér góðan tíma til þess að taka ljósmyndir af mikilli kostgæfni sem skilaði sér í mikilli eftirspurn eftir eigninni. Dóra sýndi síðan öllum mögulegum kaupendum húsið okkar - enda seldist það nánast um leið! Við upplifðum eingöngu hlýlegt og vinalegt viðmót og voru öll samskipti okkar á milli til fyrirmyndar. Við fjölskyldan mælum hiklaust með Dóru sem fasteignasala í Vestmannaeyjum.
Mín upplifun þegar ég setti eign mína á sölu er 100%, mjög fagmannleg vinnubrögð, frábær þjónusta og ekki skemmir hversu yndisleg Halldóra Kristín er. Sé ekki eftir ad hafa valið þessa fasteignasölu. - Kristbjörg Jónsdóttir
“
Ég fékk frábæra þjónustu og hlýtt viðmót hjá Halldóru, ég mæli hiklaust með henni við alla sem eru í fasteignahugleiðingum.
- Linda Óskarsdóttir
SE
LD
SE
- Erna Halldórsdóttir
LD
GJALDSKRÁ:
Einkasala 1 % af kaupverði auk vsk. Almenn sala 1,6% af kaupverði auk vsk. SE
LD
SE
LD
Dóra
SE
LD
SE
LD
- viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignaog skipasali
861 1105 dora@husfasteign.is Nánari upplýsingar á www.eyjaeignir.is
„Í RAUN AÐ SELJA EFNIÐ HEIM AÐ DYRUM Á LANDSBYGGÐINNI“ Gólfefnabúðin er lítið fyrirtæki í Ármúla með mikla þekkingu, vandaðar vörur frá metnaðarfullum framleiðendum og stórkostlegt vöruúrval. Þar ættu allir að finna gólfefni sem hentar þeirra þörfum og það er líka boðið upp á efni fyrir veggi. Þau leggja mikla áherslu á að þjónusta landsbyggðina vel. Eigendur Gólfefnabúðarinnar eru Hilmar Hansson og Björgvin Hilmarsson, sem eru báðir dúkalagningameistarar með áratuga reynslu og mikla þekkingu á gólfefnum. Verslunarstjóri er Kristján Kristjánsson, sem hefur selt parket í mörg ár og er með víðtæka þekkingu á þeim vöruflokki. Gólfefnabúðin býður einnig upp á verktakaþjónustu, en starfsmenn þess geta unnið með öll efnin sem eru í boði. „Við leggjum mikið upp úr góðri þjónustu og miklum gæðum í gólfefnum og bjóðum heildarlausnir í gólfefnum fyrir heimilið og vinnustaðinn á góðum verðum,“ segir Kristján. „Við höfum verið að senda prufur út á landsbyggðina og aðstoðað við val á gólfefni, við gerum það að sjálfsögðu án allra kvaða. Viðskiptavinir okkar eru að sjálfsögðu velkomnir í verslun okkar í Ármúla. Þar bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og þjónustu frá faglærðu starfsfólki og þar hafa verið sett upp sýnishorn af öllum efnum, en það er líka hægt að fá prufur til að taka með sér. Ef salan gengur í gegn þá pöntum við efnið og sendum það út á land eftir að hafa fengið tilboð í flutninginn hjá Flytjanda þar sem viðskiptavini njóta okkar afsláttarkjara. Ef við erum að selja niðurlímda efnið sem fer oftast á skrifstofur, verslanir og oft á heimili þá getum við líka séð um að leggja efnið líka og gerum það mjög oft. Smellta efnið er mjög einfallt í lögn og fólk leggur það oftast sjálft. Fólki á landsbyggðinni líkar þetta háa þjónustustig okkar og
„Við bjóðum viðskiptavinum okkar upp á hágæða vínylparket frá OneFlor Europe. Parketið er með náttúrulegt útlit og fyrirtækið býður upp á mjög mikið úrval lita, ásamt því að bjóða upp á efni í öllum þykktum, bæði smellt með áföstu undirlagi og niðurlímt. Parketið er úr endurunnu efni og það er er 100% endurvinnanlegt, viðhaldsfrítt, vatnshelt og laust við þalat eiturefni. Það má líka leggja það beint yfir eldri gólfefni, sem sparar vinnu við að rífa upp og farga eldra efni og vínylparket má líka leggja beint yfir gólfhita,“ útskýrir Kristján.
hefur gefið okkur góð meðmæli,“ sagði Kristján og bætti við í raun væru þau að selja efnið í heim að dyrum á landsbyggðina. Vandað parket frá T&G Wood og fleirum „Við erum meðal annars með parket frá T&G Wood, sem framleiðir eingöngu niðurlímt parket, en kosturinn við parketið frá T&G Wood er að efnið er litað eftir óskum viðskiptavinarins með viðarolíum. Við bjóðum líka upp á fljótandi parket frá ESTA PARKET,“ segir Kristján. „Gólfefnin okkar koma öll úr sjálfbærum skógum og þau eru mjög vinsæl hjá arkitektum um allan heim. Rubio-olían og lökkin sem við notum standast ströngustu umhverfisstaðla, en með þeim er hægt að lakka efnið þannig að það haldi náttúrulegum lit,“ segir Kristján. „Við bjóðum að sjálfsögðu allar stærðir af parketi, bæði planka í öllum breiddum, fiskabeinsmynstur í sex stærðum og parket með chevron-mynstri.“ Fallegt og hljóðlaust vínylparket „Vínylparket er orðið vinsælasta gólfefnið á heimili og vinnustaði. Það er ótrúlega fallegt, frábært í þrifum og algerlega hljóðlaust gólfefni,“ segir Kristján.
Ótrúlegt úrval af hágæða veggfóðri „Veggfóður hefur verið að koma sterkt inn undanfarin ár hjá hönnuðum og arkitektum og verður sífellt vinsælla inn á heimili. Veggfóðursframleiðendur eru farnir að nota önnur efni eins og hersía striga, hamp og bambus, silki, vínyl, og jafnvel tréþynnur og skeljar við framleiðslu á veggfóðri,“ segir Kristján. „Við völdum veggfóðrið frá ÉLITIS inn í búðina okkar, en ÉLITIS er franskt fyrirtæki sem framleiðir hágæða veggfóður þar sem hönnun, litir, form og gæði skapa einstakan heim.“ Bjóða líka harðparket og teppaflísar „Við bjóðum svo líka upp á harðparket frá EGGER og í LONG línunni þeirra má finna breiðasta harðparketið á markaðnum. Þessir stóru og veglegu plankar fást í tíu flottum litum og eru virkilega glæsilegir,“ segir Kristján. „Við erum einnig með teppaflísar, sem er gólfefni sem hefur mjög góða hljóðvist og er því tilvalið á skrifstofur, gistiheimili og hótel. Teppaflísar er líka hentug lausn þar sem hægt er að skipta út flísum ef óhapp á sér stað.“
KARLAKÓR VESTMANNAEYJA ásamt hljómsveit Í HÖLLINNI VESTMANNAEYJUM FIMMTUDAGINN 26. MAÍ
MIÐASALA HAFIN Á TIX.IS VERÐ KR. 3.500,-
MARKAÐURINN AÐ TAKA VIÐ SÉR Halldóra Kristín Ágústsdóttir hefur nú starfrækt fasteignasöluna sína að Strandvegi 43 í rúmlega hálft ár í samstarfi við fasteignasöluna Bæ á Selfossi. Bær hefur nú skipt um nafn og mun framvegis heita Hús fasteignasala. Þetta er tilkomið vegna breytinga á eignarhaldi og verður stofan á Selfossi nú sjálfstætt rekin en var áður í sameiginlegum rekstri með fasteignasölunni Bæ í Kópavogi. Hvernig komu þessar breytingar til? Fasteignasalan mín hér í Eyjum hefur verið í samstarfi við fasteignasöluna Bæ frá því ég opnaði í byrjun Nóvember. Nú breyttist eignarhaldið á Bæ og Snorri sem hefur verið annar eiganda Bæjar frá árinu 2009 ár seldi sinn hlut og stofnaði Hús fasteignasölu á Selfossi. Ég tel það liggja beinna við að vera í samstarfi við þá á Selfossi, verandi sjálf á Suðurlandi.
Það er þó ekki nógu mikið framboð og hreinlega slegist um sumar eignir, sem minnir aðeins á markaðinn í Reykjavík. Það er mikil eftirspurn eftir góðum einbýlishúsum helst á einni hæð, eins er mikil eftirspurn eftir blokkaríbúðum og þær sem ég hef fengið á sölu seljast á 1-2 dögum. Hefur fasteignaverðið hækkað mikið? Já, fasteignaverð hefur verið að hækka hér undanfarin ár, alveg klárlega. Hvernig hefur gengið frá því þú opnaðir? Það hefur gengið mjög vel, sérstaklega undanfarna 2 mánuði. Ég opnaði á rólegasta tímanum en það var svo sem bara fínt að fara rólega af stað. Hvernig er fasteignamarkaður hér í Eyjum? Mér finnst hann vera að lifna við, mikil sala undanfarið.
Ertu með einhver ráð til þeirra sem eru að hugsa um að selja? Ég heyri í mikið af fólki sem er farið að hugsa sér til hreyfings, þá annað hvort að það vilji stækka eða minnka við sig en finnur ekkert sem hentar á sölu. Þá er bara mjög gott að hafa samband og láta vita af sér, því þá er hægt að leiða fólk saman og klára hlutina.
UPPSKRIFT VIKUNNAR Hnetusmjörsstykki Hráefni 7 döðlur 5 tsk heitt vatn 130 g hnetusmjör, ósætt 3 msk sýróp 1 tsk vanilludropar 300 g tröllahafrar 2 tsk chiafræ 2 tsk hörfræ Aðferð Settu döðlurnar í heitt vatnið í um 10 mínútur og settu þær svo í blandara. Þessari blöndu er blandað saman við hnetusmjörið, sýrópið og vanilluna og hitað á pönnu þar til það er vel blandað saman. Því næst er tröllahöfrunum, chiafræjunum og hörfræjunum bætt við hnetusmjörsblönduna í stóra skál.
Breiddu úr blöndunni á plötu með bökunarpappír og þrýstu létt niður. Blandan er því næst látin vera í frysti í a.m.k. 2 klukkkustundir.
Skerðu svo stykki í þær stærðir sem henta þér og geymdu í frysti. Einnig er hægt að bræða sykurlaust súkkulaði og hella yfir með þunnri bunu.
Storm Duo með tónleika í Landakirkju Miðvikudag 25. maí kl 20
miðaverð 3500,- (frítt f. börn)
ORÐARUGL
HLAUP SKÓLI BRAUTARMET SÝNING HLAUPANÚMER KOSNINGAR BÖRN
SUDOKU
HANDAVINNA HRAÐI
PALFINGER Á FERÐ UM LANDIÐ 06.05. - 20.05.2022
Komdu og hittu okkur í hringferð PALFINGER. Komdu sjáðu og prófaðu nýja Palfingerkranann. Sýnum kranann, ábyggingu og ýmsar aðrar lausnir frá PALFINGER.
8
Verðum á eftirtöldum stöðum: 1 06.05.2022 16:00 - 18:00 Atlas hf Hvaleyrarbraut 2 Hafnarfjörður johann@atlas.is +354 511 4400
5
6
7 9
10
4 3 11
2 16
1 17
2 09.05.2022 10:00 - 12:00 Bjarmar Kalmannsvöllum 3 Akranes
3 09.05.2022 14:00 - 16:00 Borgarverk Sólbakki 17-19 Borgarnes
4 10.05.2022 14:00 - 16:00 TS vélaleiga Dalbraut 2 Ólafsvík
5 11.05.2022 10:00 - 12:00 Lífland Efstabraut 1 Blönduós
6 11.05.2022 15:00 - 17:00 Vélaverkstæði KS Hesteyri 2 Sauðárkrókur
7 12.05.2022 10:00 - 12:00 Kraftbílar Lækjavöllum 3-5 Akureyri
8 12.05.2022 15:00 - 17:00 N1 Húsavík
9 13.05.2022 10:00 - 12:00 Verkstæði Svans Egilsstaðir
10 13.05.2022 14:00 - 16:00 Launafl Óseyri 9 Reyðarfjörður
11 16.05.2022 14:00 - 16:00 Vélsmiðjan Foss Ófeigstanga 15 Hornafjörður
12 17.05.2022 10:00 - 12:00 Orkan Vík í Mýrdal
13 17.05.2022 15:00 - 17:00 Vélsmiðjan Magni Hvolsvöllur
14 18.05.2022 14:00 - 16:00 Braggabílar Tangagata 7 Vesmannaeyjar
15 19.05.2022 13:00 - 15:00 JÁ Verk Gagnheiði 28 Selfoss
16 19.05.2022 17:00 - 19:00 N1 Reykjanesbær
17 20.05.2022 17:00 - 19:00 Bifreiðastöðin Þróttur Lokaviðburður Reykjavík
15
13 14
Hvaleyrarbraut 2 220 Hafnarfjordur +354 511 4400 atlas.is
PALFINGER.COM
VIÐBURÐIR FRAMUNDAN MIÐ
18 MAÍ
MIÐ
18 MAÍ
FIM
19 MAÍ
LAU
21 MAÍ
SUN
22 MAÍ
MÁN
Breiðablik - ÍBV Bestadeild kvenna
Kópavogsvöllur kl. 18:00 TÓNLEIKAR KVENNAKÓRS VESTMANNAEYJA
Safnaðarheimili Landakirkju kl. 20:00 VALUR - ÍBV Olísdeild karla
Origo höllin kl. 19:30 ÍBV - ÍA Bestadeild karla
Hásteinsvöllur kl. 16:00 ÍBV - VALUR Olísdeild karla
Íþróttamiðstöðin kl. 16:00
23
ÍBV - ÞÓR/KA Bestadeild kvenna
MIÐ
FYLKIR - ÍBV MJÓLKURBIKAR KARLA
MAÍ
25 MAÍ
MIÐ
25 MAÍ
FIM
26 MAÍ
Hásteinsvöllur kl. 18:00
Würth völlur kl. 18:00 VALUR - ÍBV Olísdeild karla
Origo höllin kl. 19:30 TÓNLEIKAR KARLAKÓRS VESTMANNAEYJA
Er tilefni? Er komið að stórafmæli hjá pabba, ömmu, félaga eða vinkonu? Eða liggur þér eitthvað á hjarta sem þú vilt koma á framfæri? Þú getur sent okkur grein og við birtum.
í Höllinni kl. 20:00 Húsið opnar kl. 19:30
leturstofan@leturstofan.is
tigull@tigull.is
Stendur til að skipta um gólfefni? Hjá okkur finnur þú mikið úrval af gólfefnum, bæði parketi og vínylparketi. Á golfefnabudin.is getur þú valið þér lit og efni og við sendum þér prufuna frítt.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður og ömmu,
KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR
frá Bólstaðarhlíð í Vestmannaeyjum, Sérstakar þakkir fær yndislegt starfsfólk hjúkrunar- og dvalarheimilisins Hraunbúða fyrir hlýhug og góða umönnun.
Hjálmfríður Ingibjörg Hjálmarsdóttir Ólafur Hjálmarsson Þorleifur Dolli Hjálmarsson Soffía Birna Hjálmarsdóttir
Júlíus Valdimar Óskarsson Sigríður Anna Einarsdóttir Sigurdís Harpa Arnarsdóttir Sigurður Steinar Konráðsson
og barnabörn
golfefnabudin.is | hallo@golfefnabudin.is | 416 2300
í Vestmannaeyjum
Börn og umhverfi - Námskeið 2022 Rauði krossinn í Vestsmannaeyjum heldur námskeiðið Börn og umhverfi fyrir 12 ára börn helgina 28. og 29. maí, kl. 9:00-12:00 og 13:00 -15:00 Námskeiðið er ætlað börnum fæddum 2009. Á námskeiðinu er farið í ýmsa þætti er varða umgengni og framkomu við börn. Rætt er um árangursrík samskipti, leiðtogahæfni, agastjórnun, umönnun og hollar lífsvenjur, leiki og leikföng. Lögð er áhersla á umfjöllun um slysavarnir og algengar slysahættur í umhverfinu ásamt ítarlegri kennslu í skyndihjálp. Að auki fá þátttakendur innsýn í sögu og starf Rauða krossins. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Guðrún María Þorsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur og Lóa Baldvinsdóttir leikskólakennari. Allir fá staðfestingarskírteini að námskeiði loknu. Námskeiðið er haldið í húsnæði Rauða krossins, Arnardrangi við Hilmisgötu. Námskeiðsgjald er kr. 6.500,- sem greiðist við fyrstu mætingu. Innifalið er nemendahandbók og hressing (ávextir og safi) Skráning: gudrunmaria83@gmail.com eða loabald@gmail.com
SÝNING Í VESTMANNAEYJUM
TOLUM UM LEXUS ÞRÍR GLÆSILEGIR FULLTRÚAR TIL AÐ UPPLIFA OG REYNSLUAKA
LEXUS RX 450h sportjeppi LEXUS UX 300e
HYBRID
100% RAFMAGN
LEXUS NX 450h+ sportjeppi PLUG-IN HYBRID
Föstudaginn 20. maí kl. 16.00–18.30 Laugardaginn 21. maí kl. 11.00–17.00 Nethamar – Garðavegi 15 – lexus.is