Skip to main content

Tígull 18.tbl 03 árg.

Page 1

18. tbl. 03. árg. 2.júní - 8.júní 2021

Til hamingju með daginn sjómenn og fjölskyldur


Til hamingju með daginn sjómenn og fjölskyldur

Við óskum sjómönnum & fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn! Nethamar ehf / Garðavegi 15 / 481 1216

TÍGULL

Tígull kemur út vikulega í Vestmannaeyjum og er dreift frítt inn á öll heimili og fyrirtæki. Ritstjórar & ábyrgðarmenn: Lind Hrafnsdóttir & Katrín Laufey Rúnarsdóttir. Forsíðumyndina tók Hlynur Ágústsson

DREIFING:

ÚTGÁFA:

SKIL Á AUGLÝSINGUM:

Dreifing fer fram á miðviku- og fimmtudögum og er dreift inn á öll heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Einnig er hægt að skoða blaðið á vefsíðunni okkar: www.tigull.is

Hönnun: Lind Hrafnsdóttir lind@leturstofan.is Auglýsingar: Katrín Laufey katalaufey@tigull.is Prentun: Prentun.is

Auglýsingar sendist á: tigull@tigull.is Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum. Vinsamlegast bókið tímalega.


B

estu árnaðaróskir og kveðjur til sjómanna og allra Vestmannaeyinga á sjómannadaginn!


UNNAR GÍSLI OG SIGRÍÐUR UNNUR SÝNA Á SKIPASANDI

ÓMAR GARÐARSSON omar49@simnet.is Hjónin Unnar Gísli og Sigríður Unnur verða með sýningu á verkum sínum í Listakrónni á Skipasandi sem er í eigu Sigurjóns Ingvarssonar, Helga Bragasonar, Jóhanns Péturssonar og Karls Haraldssonar, mikilla listunnenda. Sigríður Unnur sýnir textílverk og ljósmyndir og Unnar Gísli málverk. „Ég fór í textílnám í Myndlistarskólanum í Reykjavík og ég vinn með silkiprent. Vinn út frá ljósmyndum og formin eru klettarnir hér í kring. Ótrúlega fjölbreytt sem ég sameina í nokkrar myndir. Hvað margar er ekki alveg komið á hreint. Fimm ljós-

myndir og fimm til átta verk,“ segir Sigríður Unnur. „Ég verð með átta verk,“ segir Unnar Gísli sem hefur sýnt verk sín áður. „Það var á goslokahátíð fyrir nokkrum árum og notaði ég tækifærið til að spila og syngja fyrir gesti. „Þemað hjá mér átti að vera andlit en svo fór þetta yfir í form, fugla og andlit.“ „Sigurjón spjallaði við okkur í febrúar eða mars og hvatti okkur til að halda sýningu. Vissi að við vorum að gera eitthvað og ýtti á okkur að sýna,“ segir Sigríður Unnur.“ Unnar Gísli/Júníus Meyvant sem er eitt okkar stærsta nafn í tónlistinni hefur ekki setið auðum höndum og er að leggja lokahönd á þriðju plötu

sína. „Fer síðan strax í næstu plötu. Platan kemur út seinna á árinu og er sérstök að því leyti að hún er að öllu leyti tekin upp í Vestmannaeyjum, í bílskúrnum. Fyrsta fullgerða Eyjaplatan mín,“ og nú er það Júníus Meyvant sem talar. Sýningin hefst á föstudaginn og verður þá opin frá sex til níu og eitt til sex laugardag og sunnudag og vonast þau til að sjá sem flesta.


Til hamingju með daginn sjómenn!


ÞÁ HAFA KOMIÐ Í GEGNUM TÍÐINA NOKKRIR HRESSIR OG UPPÁTEKTASAMIR NEMENDUR SEM HAFA LÍFGAÐ UPP Á TILVERUNA

Gísli hefur kennt við FÍV í nítján ár og einnig prófdómari við Vélskólann í þó nokkur ár þar áður. Við tókum létt spjall við Gísla. Gísli Sigurður Eiríksson er giftur Sigþóru Jónatansdóttur og eiga þrjú börn, Önnu Sigríði, Jónatan og Bryndísi Ýr. Gísli er vélfræðingur að mennt og hefur starfað sem kennari á Vélstjórnar- og málmiðnaðarsviði við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum nú í nítján ár. En hafði verið prófdómari við Vélskólann og síðar Framhaldsskólann í þó nokkur ár áður en hann fór að kenna. Gísli er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum og hefur búið hér alla tíð utan tveggja ára þegar hann var við nám í Vélskóla Íslands í Reykjavík þaðan sem hann útskrifaðist úr vélstjórn gosárið 1973. Áhugamál Gísla hafa fyrst og fremst tengst starfinu og öllu sem því við kemur þó finnst mér oft gaman að taka létta skák og/eða brasa eitthvað með góðum vinum segir Gísli. Við spurðum Gísla hvar að hans mati væri fallegasti staðurinn á Íslandi? Þessa spurningu er óþarfi að spyrja mann sem fæddur er og uppalinn í

Vestmannaeyjum, en fyrir utan eyjar þá er bæjarstæðið á Djúpavogi fallegt og Lónsöræfin alveg sérstök. Best líður Gísla hér heima með fjölskyldunni, góðum félögum og hafa nóg að gera. Gísli var áður til sjós á ýmsum bátum hér í eyjum. Meðal annars á Herjólfi II frá því hann var smíðaður 1976. Lærði hann vélvirkjun í vélsmiðjunni Magna. Rak verslunina Eyjakjör um tíma með systur sinni og mági. Einnig starfað hann á sumrin við afleysingar sem vélstjóri á sjó og á Lóðsinum. Finnst þér mikil breyting/þróunn á þessum árum frá því þú byrjarði? Já það hafa orðið töluvert miklar framfarir og breytingar sem eru sjáanlegar. Sérstaklega hvað varðar stýringar og sjálfvirkni á vélbúnaði og reyndar, breytingar sem ekki eru eins sýnilegar eins og t.d. þróun skipsskrúfunnar. Hvað varðar vélstjórnarnámið þá hafa líka orðið talsverðar breytingar þar, t.d. voru nemendur töluvert eldri og reyndari heldur en núna. Hefur þú tölu á því hvað þú hefur útskrifað marga nemendur?

Nei hef ekki hugmynd um það en þeir eru orðnir þó nokkuð margir. Ég tel að meirihluti þeirra vélstjóra sem eru á eyjaskipunum eru úr nemendahópnum sem hófu sitt nám hér í eyjum. Eru það margar konur sem hafa lokið þessu námi hér í Eyjum? Nei því miður eru þær ekki margar og í augnablikinu man ég bara eftir tveim stelpum, önnur þeirra kláraði hér í eyjum og tók stúdentinn í leiðinni en er núna í verkfræði í HR. Er eitthvað sem stendur upp úr eftir öll þessi ár? Frábærir samstarfsfélagar og góðir vinir. Eftir að ég byrjaði í kennslunni þá hafa komið í gegnum tíðina nokkrir hressir og uppátektasamir nemendur sem hafa lífgað upp á tilveruna. Þeir hafa verið lifandi og brotið upp grámygluna, hafa ekki alltaf farið troðnar slóðir við lærdóminn eða verið sammála kennaranum. Það er alltaf gaman og lifandi að taka þátt í því með þeim, sjá breytingarnar þegar þeir róast aðeins og þroskast. Það gefur lífinu tilgang sérstaklega þegar þokkalega tekst til hjá báðum.


SJÓMENN - YFIRHEYRSLA

Nafn: Guðni Freyr Sigurðsson Aldur: 27 ára Hvenær byrjaðir þú á sjó og hvar: Eyddi ófáum dögum á ættaróðalinu Hlödda Ve, áður en ég fór fyrsta túrinn minn á Berg Ve sumarið 2013. Hvað heillaði við sjómennskuna: Peningarnir, ekki nokkur spurning. Eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með: Að öllum öðrum ólöstuðum, þá held ég að áhöfnin á Berg Ve hafi vinningin. Haustin ´14 & ´15 voru geðveik. Eftirminnilegasti túrinn: Ætli það hafi ekki verið þegar við sigldum Qavak í grænlensku lögsöguna í leit að makríl sem aldrei fannst. Eftir einhverja fjögura daga leit bilaði hjá okkur og dóluðum okkur aftur til Íslands. Þetta tók 8-9 daga fyrir ekki neitt.

Nafn: Hákon U. Selja Jóhannsson Aldur: 34 ára gamall Fjölskylda: Þórdís Jóna Guðmundsdóttir konan mín og Sonur Hákonarsson fæddur 19. mars á þessu ári. Hvar ertu að róa: Bergey VE Hvaða stöðu gegnir þú: Yfirvélstjóri Hvar og hvenær hófst sjómannsferillinn: 2006 á Guðrúnu Þorkelsdóttur SU sem háseti og fór fyrst sem vélstjóri á Eyborg EA 2010. Hver er eftirminnlegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með: Páll Heiðar Högnason vélstjóri, besti samstarfsmaður sem ég hef unnið með. Hver er mesta fíflið um borð: Jón Valgeirsson skipstjóri, nei annars þá eru engin fífl um borð í Bergey bara flottir peyjar. Eftirminnilegasti túrinn: Ætli það séu ekki fyrstu túrarnir á nýju Bergeynni. Það gekk á ýmsu, leiðinda veður og bilerí. Virkilega lærdómsríkir dagar og krefjandi.


HVAÐ SEGJA BÖRNIN UM SJÓMENNSKUNA? Nafn: Hákon Þór Tómasson Foreldrar: Brynja Rut Halldórsdóttir og Tómas Ísleifsson Þekkir þú einhverja sjómenn? Umm Magga afa, Rikka pabba og pabba hans Fannars Inga. Hefur þú farið á sjó? Já ég hef tvisvar farið á sjó með Rikka Borðar þú fisk? Já Hvað gera sjómenn? Veiða fisk og borða fisk og sum kex Veistu hvað fiskarnir heita? Ýsa Nafn: Sunna Karen Birkisdóttir Aldur: 5 ára Foreldrar: Lísa Margrét Þorvaldsdóttir og Birkir Ingason Þekkir þú einhverja sjómenn? Já ég þekki pabba og Baldvin og afa Inga. Hefur þú farið á sjó? Já, í veislunni í bátnum hans pabba. Borðar þú fisk? Já, mér finnst hann pínu góður. Hvað gera sjómenn? Veiða fisk og síld. Þeir stýra og finna nokkra fiska. Veistu hvað fiskarnir heita? Já, einn heitir Ýsa, einn heitir Þorskur og Síld og Loðnur. Svo heitir einn Steinbítur.

Nafn & aldur: Sigurður Andrason, 5.ára Foreldrar: Thelma Sigurðardóttir og Andri Ólafsson Þekkir þú einhverja sjómenn? Já Sigga afa Hefur þú farið á sjó? Já á Dísu og Bjartmar Borðar þú fisk ? Já alla fiska Hvað gera sjómenn? Veiða fisk Veistu hvað fiskarnir heita ? Já Lax, Humar og Rækja… nei annars Rækja er ekki fiskur.


Þjónustuíbúð við Eyjahraun Vestmannaeyjabær auglýsir lausa til umsóknir þjónustuíbúð fyrir eldri borgara við Eyjahraun 1. Íbúðin er ætluð einstakling eða hjónum sem þurfa meiri stuðning og aðstoð en hægt er að veita í heimahúsi en heilsufar ekki orðið það slæmt að þörf er fyrir hjúkrunarrými. Grundvallarþættir mats fyrir þörf á þjónustuíbúð eru líkamlegt og andlegt heilsufar umsækjanda. Íbúðin er 57,7 fermetri. Leiguverð fylgir leiguverði annarra íbúða hjá Vestmannaeyjabæ. Að auki greiða leigjendur þjónustugjald sem m.a. innifelur öryggiskerfi, þjónustu yfir daginn virka daga, kvöld-og helgarinnlit, mat og aðstoð við þvotta og þrif.

Umsóknarfrestur er til 31. maí nk. Hægt er að sækja um í íbúagátt Vestmannaeyjabæjar á www.vestmanneyjar.is Þar er farið inn á umsóknir og valið umsókn um félagslegt leiguhúsnæði almennt. Inni á eyðublaðinu er valið þjónustuíbúðir fyrir eldri borgara. Einnig er hægt að koma til okkar upp á Rauðagerði, gengið inn sunnanmegin. Umsóknum þarf að fylgja læknisvottorð. Nánari upplýsingar veitir: Kolbrún Anna Rúnarsdóttir í síma 488-2607 eða á netfanginu: kolla@vestmannaeyjar.is.

Við Grunnskóla Vestmannaeyja er laus eftirfarandi staða skólaárið 2021-2022: Smíðakennari í Barnaskóla (5.-10. bekkur), 90-100% starfshlutfall Viðkomandi þarf að hafa leyfisbréf til kennslu, vera metnaðarfullur, ábyrgur, áhugasamur, lipur í samskiptum og tilbúinn í öflugt samstarf og með áhuga á teymiskennslu. Hafa velferð og þroska nemenda að leiðarljósi. Viðkomandi þarf að hafa hreint sakavottorð. Starfsmaður þarf að geta hafið störf 16. ágúst n.k. Umsóknarfrestur er til 8. júní nk. Umsóknir skulu berast með rafrænum hætti í gegnum heimasíðu Vestmannaeyjabæjar: https://www.vestmannaeyjar.is/thatttaka/ umsoknir/ Eða með tölvupósti á annaros@grv.is.

Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og leyfisbréf auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni í starfið. Launakjör eru greidd samkvæmt kjarasamningi KÍ og SÍS. Vestmannaeyjabær hvetur konur jafnt sem karlmenn að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu. Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Rós Hallgrímsdóttir skólastjóri í síma 488-2202, annaros@grv.is.


ÓSKUM SJÓMÖNNUM & FJÖLSKYLDUM ÞEIRRA TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!

Bílaverkstæði Til hamingju HARÐAR sjómenn & MATTA Við óskum ykkur og fjölskyldum ykkar til hamingju með Sjómannadaginn

Óskar Haraldsson

er alltaf á vaktinni, þú nærð honum í síma 698 3701

V E S T M A N NA E Y J U M

Garðavegi 14 • oskar@kaelifelagid.is kaelifelagid@kaelifelagid.is • www.kaelifelagid.is

MUGGUR FRÁR VE 78


Making our world more productive

GAS

Smellt eða skrúfað?

Það skiptir ekki máli, við eigum bæði!

ÞÚ FINNUR SÖLUSTAÐI FYRIR AGA GAS Á GAS.IS Linde Gas | Breiðhöfða 11 | Reykjavík | 577 3000

Ráðandi - auglýsingastofa ehf

ALLS STAÐAR


15 ára afmæli 900! Á sunnudag 6.júní verður afmæliskaka í tilefni af 15 ára afmæli 900 í boði frá 14-16.

Trúbadorar föstudag og laugardag frá kl. 21 FRÍTT INN!

6 í fötu á aðeins 3.900 kr. alla helgina

Á sunnudag: Pantaðu stórar brauðstangir en greiðir fyrir litlar því brauðstangir eru bestar á sunnudögum!

ORÐAÞRAUT

HÁSETI

SJÓMENN BÁTUR NET SKIPSTJÓRI KOKKUR

TROLL SKIP

VÉLSTJÓRI SJÓMANNADAGSHELGI


OPIÐ FRÁ 16:00 TIL MIÐNÆTTIS TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN KÆRU SJÓMENN OG FJÖLSKYLDUR! MINNUM Á PÍLUSPJÖLDIN OG BILLIARD BORÐIN ! KOMDU OG KÍKTU VIÐ!


MINNISVARÐI UM ÞÁ SEM FÓRUST Í PELAGUS SLYSINU Fimmtudaginn 21. janúar 1982 strandaði Belgíski togarinn Pelagus O 202 austur á nýja hrauni, nánar tiltekið við Prestavík. Það tókst að bjarga 6 skipverjum en 2 fórust. Við björgunaraðgerðina varð það skelfilega slys að björgunarmaður og læknir fórust. Þetta hörmulega slys skildi eftir djúp sár í samfélaginu hér í Eyjum bæði hjá ættingjum og vinum, sama er að segja um vini og ættingja í Ostende í Belgíu. Stjórn Björgunarfélags Vestmannaeyja ákvað á síðasta ári að gangast fyrir því að reisa minnisvarða um þá sem fórust í þessu hörmulega slysi. Hlynur Ólafsson hannaði minningaskjöldinn, en Málmsteypa Hellu steypti hann. Hleðsluna í hring um

minnisvarðann gerðu hleðslumenn sem hafa verið að vinna við hleðslur hér í bæ. Starfsmenn Áhaldahússins gengu frá undirlagi undir steininn.

Braggabílar, 2Þ ehf., Marinó Sigursteinsson og meðlimir Björgunarfélagsins komu öll myndarlega að verkinu.

SPJALLIÐ VIÐ BRAGA Nafn: Bragi Steingrímsson Menntun: Pungapróf, járnsmiður/ plötusmiður Aldur: 77 ára, fæddur 1. janúar 1944 og því fæddur Dani. Fjölskylda: Sigríður Magnúsdóttir, þrír synir þeir Magnús, Helgi og Sigurður. Hve lengi hefur þú stundað sjóinn? Alltaf af og til í gegnum árin en mest nú í seinni tíð eftir að ég “hætti” að vinna, en sjómennskan var alltaf áhugamál þar til ég hætti að vinna þá varð sjómennskan að vinnu. Er enn á fullu að veiða. Bragi rak dekkjaverksæðið á Hásteinsveginum í 30 ár. Bragi hefur veitt 48 tonn síðan í febrúar og er nú komin í strandveiðina. Bragi er mikil veiðimaður, elskar að veiða Lunda út í Hellisey, en bara þegar það má en hann er mjög hlynntur því að lofa Lundanum að njóta vafans. Við fengum að fylgjast með því þegar Bragi bjó til sökku sem er notuð til að þyngja veiðarfærin. Við látum myndband fylgja með þegar þetta spjall fer inn á tigull.is


Áttatíu bátar úr Eyjavör, áttahundruð kempur í hverri för, stundum í roki og stórum sjó, stundum í logni og sléttum sjó. Sjómenn, sjómenn glaðir, súpum nú heillaskál. Þannig hefjast Formannavísur Ása í Bæ. Á sjómannadaginn árið 1957 kom Siggi Vídó til Ása og bað hann um vísur fyrir ballið eða „heimtaði“, að sögn Ása. Ekki þorði Ási að neita þessum 300 kílóa skrokki þegar hann reyndi að koma koníaki ofan í hann fyrir hádegi til að fá sitt fram, eins og Ási gantaðist með. Því hélt hann upp í hraun með koníakið og samdi vísurnar þar. Ljósmyndina tók Jói Myndó af styttu Ása í Bæ sem gerð var af Áka Gränz að beiðni Árna Johnsen. Ísfélag Vestmannaeyja annaðist uppsteypu verksins í kopar og frágang með dyggri aðstoð starfsmanna fiskimjölsverksmiðju félagsins. Þannig höldum við minningu þessara kappa lifandi.

Við sendum sjómönnum og fjölskyldum þeirra heillaóskir í tilefni dagsins.


Heimaey vinnu- og hæfingarstöð auglýsir starf yfirþroskaþjálfa Auglýst er eftir yfirþroskaþjálfa í málefnum fatlaðs fólks til starfa í Heimaey. Um er að ræða 75% starfshlutfall. Yfirþroskaþjálfi hefur umsjón með verkefnum og samhæfingu faglegs starfs innan hæfingar, s.s. skipulagningu og verkefnastjórnun í samráði við forstöðumann. Helstu verkefni og ábyrgð · Starfið felur í sér stjórnun og umsjón verkefna og/eða samræmingu faglegs starfs á þjónustu- einingunni. · Veitir leiðbeinendum leiðsögn og ráðgjöf í starfi. · Veitir leiðsögn með því markmiði að auka færni einstaklinga í þátttöku í daglegu lífi. · Verkefnaval miðar að verkþjálfun, persónulegri umhirðu, heimilishaldi, félagslegum þáttum, hreyfingu og afþreyingu.

· Vinnur í samræmi við stefnumörkun hæfingar og lög um málefni fatlaðs fólks. · Ber ábyrgð á starfsþjálfun og starfsmati í sam- ráði við forstöðumann. · Sinnir öðrum þeim störfum sem honum er falið af forstöðumanni.

· Umfangsmikil þekking og reynsla af ráðgjöf og þjónustu við fatlað fólk. · Hæfni í mannlegum samskiptum. · Jákvæðni, ábyrgðarkennd og skipulagshæfileikar. · Hreint sakavottorð. Frekari upplýsingar um starfið Kostur er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 15.06.2021. Laun og kjör skv. kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og stéttarfélags viðkomandi. Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað á netfangið thoranna@vestmannaeyjar.is merkt ,,Þroskaþjálfi, Heimaey vinnu- og hæfingarstöð“. Nánari upplýsingar um starfið veitir Þóranna Halldórsdóttir forstöðumaður Heimaeyjar vinnu- og hæfingarstöðvar í tölvupósti thoranna@vestmannaeyjar.is eða í síma 4882620 Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 15/2020 og lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019.

Hæfniskröfur · Háskólamenntun – í þroskaþjálfafræðum og starfsleyfi sem þroskaþjálfi.

Umsóknarfrestur er til 15.06.2021


við Strandveg · Sími 481-1559

uís - Kúl l vé - ís í efur gðar - bra

Til hamingju með daginn sjómenn & fjölskyldur ACAI HEILSUSKÁLAR FÁST NÚ HJÁ OKKUR! - Sykurlaust granóla - ACAI GRUNNUR - GRÍSK JÓGÚRT - JARÐARBER - BLÁBER - BANANI


SJÓM

1 ANNADAGSHELGIN 202

SJÓMANNADAGSHELGI VESTMANNAEYJA 2021

DAGSKRÁ FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ Kl. 16.00 Hvítahúsið Myndlistarfélag Vestmannaeyja verður með opið hús í Hvítahúsinu. Allar vinnustofur opnar og tekið á móti gestum. Þennan dag verður opið til klukkan 18.00. Um helgina er opið frá kl. 14.00 til 18.00. Kl. 10.00 Sjómannadagshelgin í söfnunum: - 17:00 Í Einarsstofu – Ljósmyndasýning Bjarna Sigurðssonar: 1000 andlit Heimaeyjar. Opið í Sagnheimum, byggðasafni í Safnahúsinu og Sagnheimum, náttúrugripasafni við Heiðarveg. Einnig er opið í Landlyst og Stafkirkjunni á sama tíma. Kl. 18.00 Ölstofa The Brothers Brewery Sjómannabjórinn 2021 – Sibbi Tedda kemur á dælu við hátíðlega athöfn. Opið 12.00 til 23.00.

FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ Kl. 08.00 Golfskálinn Opið Sjómannamót Ísfélags Vestmannaeyja í golfi. Skráning í síma 481-2363 og á golf.is. Vegleg verðlaun í boði. Mótið stækkar og stækkar á hverju ári og við mælum með að þið skráið ykkur snemma. Kl. 13.00 Sjóminjasafn Þórðar Rafns - 16:00 Flötum 23. Opið alla helgina 13.00 til 16.00. Kl. 13.00 Málverkasýning á Skipasandi - 17:00 Unnar Gísli og Sigríður Unnur - Sýning opnuð kl. 18: 00 - 21:00. Laugardag og sunnudag opið 13:00 - 18:00. (Sölusýning). Kl. 12.00 Ölstofa The Brothers Brewery - 24:00 Sjómannalög, létt og þægileg stemning.


LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ Kl. 11.00 Dorgveiðikeppni SJÓVE og Jötuns á Nausthamarsbryggju Vegleg verðlaun, stærsti fiskur, flestir fiskar og fleira. Svali og prins póló fyrir þátttaendur. Kl. 13.00 Sjómannafjör á Vigtartorgi: Séra Guðmundur Örn blessar daginn. Kappróður, koddaslagur, tuðrukvartmíla, lokahlaup, sjómannaþraut, foosball völlur á staðnum, þurrkoddaslagur. Blöðrudýr fyrir krakkana. Risa sundlaug með fjarstýrðum bátum og hoppukastalar. Ribsafari býður ódýrar ferðir. Grímur kokkur býður upp á humarsúpu, ÍBV verður með poppkorn, Canton býður veitingar og Kjörís í fjölbreyttu úrvali. Icelandair gefur blöðrur. Kl. 12.00 Ölstofa The Brothers Brewery - 24.00 Sjómannalög, létt og þægileg stemming

SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ Kl. 10.00 Fánar dregnir að húni Kl. 11.00 Afhjúpun minnisvarða um þá sem fórust í Pelagusslysinu. Við útsýnipallinn á móts við Bjarnarey & Elliðaey Kl. 13.00 Sjómannamessa í Landakirkju Séra Guðmundur Örn predikar og þjónar fyrir altari. Eftir messu verður minningarathöfn við minnisvarða hrapaðra og drukknaðra. Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur nokkur lög. Blómsveigur lagður að minnisvarðanum. Guðni Hjálmarsson stjórnar athöfninni. Kl. 15.00 Hátíðardagskrá á Stakkó Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur undir stjórn Jarls Sigurgeirssonar. Heiðraðir aldnir sægarpar. Guðni Hjálmarsson stjórnar. Karlakór Vestmannaeyja flytur nokkur lög undir stjórn Þórhalls Barðasonar Ræðumaður sjómannadagsins er Eliza Reed forsetafrú. Verðlaunaafhending fyrir kappróður, koddaslag, lokahlaup, sjómannaþraut, dorgveiðimót og sjómannamótið í golfi. Leikfélagið, hoppukastalar og popp. Ath: Sjómannadagskaffi Eykyndils fellur niður þetta árið. Kl. 12.00 Ölstofa The Brothers Brewery - 23:00 Sjómannalög, létt og þægileg stemming.

SÝNINGAR & SÖFN

ELDHEIMAR 11:00 - 18:00 || EINARSSTOFA 10:00 - 17:00 || HVÍTA HÚSIÐ 14:00 - 18:00 LANDLYST, STAFKIRKJAN 10:00 - 17:00 || SAGNHEIMAR, BYGGÐASAFN 10:00 - 17:00 SAGNHEIMAR, NÁTTÚRUGRIPASAFN 10:00 - 17:00 || SJÓMINJASAFN ÞÓRÐAR RAFNS FLÖTUM 23 - OPIÐ ALLA HELGINA 13.00 TIL 16.00.

TILKYNNING FRÁ SJÓMANNADAGSRÁÐI

Þeir sem ætla að taka þátt í kappróðrinum og öðrum dagskráratriðum vinsamlegast hafið samband á facebook síðu Sjómannadagsráðs eða í neðangreinda síma ráðsins: 869-4449, 697-9695 eða 898-7567.

SJÓMANNADAGSBLAÐ VESTMANNAEYJA

Skátarnir dreifa Sjómannadagsblaðinu, sem er ókeypis, í hvert hús í Vestmannaeyjum. Yngri flokkar ÍBV sjá um merkjasölu. Takið vel á móti sölubörnum.


SJÓMENN - YFIRHEYRSLA Nafn: Ellert Scheving Pálsson Aldur: 33 ára Fjölskylda: Ég er giftur Sólveigu Rut Magnúsdóttur við eigum átta ára dreng, Daníel Gauta Scheving. Hvar ertu að róa: Vestmannaey VE 54 Hvaða stöðu gegnir þú: Ég er háseti Hvar og hvenær hófst sjómannsferillinn: Ég fór fyrsta túrinn 15 ára á gömlu Heimaey með sögulegri áhöfn, allir Nínon bræðurnir og Siggi Frikka kokkur. Ferillinn hófst þó fyrir alvöru á Suðurey árið 2014. Eftirminnilegasti sjómaður: Ég hef nú verið ósköp heppinn og fengið að róa með mörgum eftirminnilegum. Á Suðurey voru Bjöggi Perla sem var afar skemmtilegur, bæði um borð og annarsstaðar, og Siggi Konn sem er harður að utan en ósköp ljúfur að innan. Síðustu ár hef ég fengið að róa með afleysingaþernunni Valtý Auðbergssyni sem er reglusmiður og sælkeri. Það er einstakt að róa með honum. Vægast sagt. Mesta fíflið: Á Vestmannaey eru engin fífl, menn eru bara mismunandi eins og þeir eru margir. Hvað varðar fíflagang þá getur Valtýr Auðbergsson dottið í Tomma Kung Fu og allskonar vitleysu sem verður ekki talin upp hér. Nafn, aldur og fjölskylda: Þorbjörn Víglundsson 46 ára, giftur, fjögurra barna faðir. Hvar ertu að róa og í hvaða stöðu: Er að róa á Brynjólfi VE sem stýrimaður. Hvar og hvenær hófst sjómannsferillinn: Ég fór fyrst á sjó sumarið 1990 á Ófeigi VE 325. Eftirminnilegasti sjómaður: Eftirminnilegasti sjómaðurinn sem ég hef róið með er Beddi á Glófaxa. Mesta fíflið: Ég tek þann vafasama heiður að vera mesta fíflið um borð. Fýlupúkar eiga ekki að vera á sjó, þetta er nógu leiðinlegt án þeirra. Eftirminnilegasti túrinn: Það er sennilega þegar ég var um borð í Guðmundi VE 29 að frysta kolmuna 480 sml suður af Eyjum. Lenti í því óhappi að reka hníf á kaf í fótinn á mér. Fékk svo flugferð með gæslunni í bæinn. Voða næs.


EINSI KALDI OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KLUKKAN 17:00

ALLT UNNIÐ FRÁ GRUNNI ÚR HÁGÆÐA HRÁEFNI VIÐ TÖKUM VEL Á MÓTI ÞÉR & ÞÍNUM

BORÐPANTANIR Á EINSIKALDI.IS


Bjarni Sigurðsson sýnir í Einarsstofu:

ÞÚSUND ANDLIT HEIMAEYJAR - LOKAUPPGJÖR

ÓMAR GARÐARSSON omar49@simnet.is „Gjörningurinn klárast með því að ég gef verkið frá mér til bæjarins. Þetta eru fimm stórar myndir. Þar af fjórar ýmist með 370 og 371 andlit sem gera 1483 andlit. Svo er eitt mósaíklistaverk sem fólk verður að koma að sjá til að upplifa. Þar sést Heimaklettur í fjarlægð en þegar komið er nær sjást öll andlitin 1483 sem ég tók myndir af í verkefninu 1000 andlit Heimaeyjar,“ segir Bjarni Sigurðsson, ljósmyndari og matreiðslumeistari um sýningu sem hann opnar í Einarsstofu á föstudaginn, kl.16-18. En sagan er ekki öll. „Ljósmyndasafn bæjarins fær gagnagrunn að þessu öllu til vörslu og erfir hann þegar ég hrekk upp af. Einnig undirskrifað samþykki allra sem eru á myndunum. Myndirnar verða aðgengilegar á netinu þar sem fólk getur skoðað þær og nælt í þær í stafrænu formi. Prentaðar hágæðamyndir er svo hægt að panta hjá mér. Líka verð ég með myndir til að sýna það sem ég hef verið að gera í gegnum tíðina og nokkrar andlitsmyndir úr stóra verkefninu. Svarthvítar og valdar af handahófi.“

Íris tekur á móti Áður en sýningin hefst afhendir Bjarni Vestmannaeyjabæ verkið í heild sinni. „Þetta er algjört lokauppgjör á Þúsund andlitum Heimaeyjar. Heimasíðu verkefnisins verður lokað en það verður áfram á Facebook. Þetta byrjaði á sjómannadagshelginni í fyrra, að ég bauð fólki í myndatöku og hátt í 1500 svöruðu kallinu. Var hugsað sem goslokaverkefni og fékk ég styrk frá goslokanefnd. Var of seinn að fá inni fyrir sýninguna í fyrra en fæ í staðinn að vera með hana í mánuð í Safnahúsinu hjá Kára. Frá sjómannadegi til gosloka og er sýningin opin á opnunartíma Safnahúss, kl. 10-17 alla daga.“ Innblásturinn sækir Bjarni til ekki ómerkari manna en Rembrants og annarra listmálara og þekktra portrait ljósmyndara. „Allar prentaðar á striga, límdar á álplötur og innrammaðar af tengdapabba, Herði Þórðarsyni,“ segir Bjarni sem hlakkar til að sýna afraksturinn. „Þetta hefur verið mikil vinna og viss léttir að sjá fyrir endann á þessu ristastóra verkefni.“

Bjarni byrjaði snemma að taka myndir og þegar leiðin lá til Eyja heillaðist hann af þeirri veislu sem Vestmannaeyjar eru fyrir auga og ljósop. Hann tók því fagnandi og hefur verið duglegur að munda myndavélina eins og við höfum séð þegar hann var með ljósmyndasýningu í Einarsstofu 2019. Bjarni Sigurðsson er yfirmatreiðslumaður á Sjúkrahúsinu. Bjarni útskrifaðist frá Hótel- og veitingaskóla Íslands árið 1994 og lauk meistaraprófi árið 1999. Hann hefur rekið og starfað á ýmsum veitingastöðum eins og Café Opera og Lækjarbrekku. Hann starfaði lengst á Menu Veitingum árin 2007- 2017 sem yfirmatreiðslumeistari. Bjarni hefur einnig lokið námi í margmiðlun og ljósmyndun. Kona hans er Kristjana Margrét og foreldrar hennar eru Hörður Þórðarson og Anna María Kristjánsdóttir. Bjarni hefur mikinn áhuga á ljósmyndun. „Ég hef verið að taka myndir frá því ég var polli en tók mér pásu þegar maður lagði áherslu á að


koma sér áfram í kokkastarfinu,“ sagði Bjarni sem ekki aðeins féll fyrir Eyjastúlkunni Kristjönu heldur einnig fyrir heimahögum hennar. Alltaf að læra Þetta er hans fyrsta einkasýning og hann hlakkar til. „Ég hafði bæði gagn og gaman af náminu í Iðnskólanum en maður er alltaf að læra. Verður aldrei fullnuma og það er kannski það skemmtilega við ljósmyndun. En á sýningunni fær fólk tækifæri til að sjá það sem ég hef verið að gera.“ Fjölskyldan keypti húsið af Finni teiknikennara í Búhamrinum sem nýtti bílskúrinn sem málverkastúdíó. „Bílskúrinn hefur nú fengið nýtt hlutverk, nú er ég kominn með fullbúið ljósmyndastúdíó. Þar er ég með ljósin og bekkinn hans Óskars heitins Björgvinssonar, ljósmyndara sem starfaði hér í mörg ár.“ Sýningin verður opin í Safnahúsi: Föstudagur 16:00 - 18:00 Laugardagur 13:00 - 17:00 Sunnudagur 13:00 - 17:00

Wood burning oven &

beer from local brewery

/PÍTSUGERÐIN

#PITSUGERDIN

Hamingjuóskir með daginn sjómenn & fjölskyldur pantaðu í síma Wood burning oven &

beer from local brewery

Bárustíg 1 | 551 0055

551 0055


Hjóna YFIRHEYRSLAN

RAGNAR JÓHANNSSON SVARAR:

SPURNINGAR

BJARTEY KJARTANSDÓTTIR SVARAR:

Ég

Hvort ykkar er betri bílstjóri?

Ég

Ég

Hvort ykkar mun þéna meiri pening í framtíðinni?

Raggi

Ég

Hvort ykkar eyðir meiri pening?

Raggi

Bjartey

Hvort ykkar eldar betri mat?

Ég

Bjartey

Hvort ykkar er meira utan við sig?

Ég

Ég

Hvort ykkar er líklegra til að týna bíllyklunum?

Raggi

Ég

Hvort ykkar hefur betri tónlistarsmekk?

Raggi

Bjartey

Hvor er meiri djammari?

Ég

Ég

Hver átti frumkvæðið í sambandinu?

Raggi

Bjartey

Hver sér mest um heimilisverkin?

Ég

Bjartey

Hver sér um að svæfa?

Ég

Bæði

Hvort eyðir meiri tíma fyrir framan spegilinn?

Raggi

Ég

Hvort er skemmtilegra?

Bæði

Bjartey

Hvort sér um að innrétta heimilið?

Ég


Flug til Reykjavíkur fjórum sinnum í viku

icelandair.is Sumaráætlun er hafin Við fljúgum tvisvar á dag alla mánudaga, miðvikudaga, föstudaga og sunnudaga í júní, júlí og ágúst. Við hlökkum til að fara í loftið með þér í sumar.


MÁLTÍÐ Á CANTON ER MEIRA EN NÆGILEGT TILEFNI EYJAFERÐAR

ÓMAR GARÐARSSON omar49@simnet.is „Máltíð á Canton er meira en nægilegt tilefni Eyjaferðar af fastalandinu, að minnsta kosti fyrir þá sem vilja kynnast listagóðri eldamennsku að kínverskum hætti með fisk og fleira góðmeti úr hafinu. Hallgrímur Rögnvaldsson á og rekur Canton. Hann fékk Wang Shong Yi til landsins til að annast eldamennskuna. Það er víst meira en segja það að fá atvinnuleyfi fyrir kokk frá Kína en góðu heilli er Wang að finna í þessu eldhúsi í Eyjum og þar verður allt hráefni í höndum hans að veislu fyrir augu og bragðlauka, “ segir Atli Rúnar Halldórsson, fyrrum fréttamaður um veitingastaðinn Canton sem hann er mjög hrifinn af. „Steiktur eða gufusoðinn fiskur, gellur, humar, sæbjúgu, þorskhaus-

ar. Ósvikin matarupplifun og á þann lista er hægt að bæta við súlukjöti! Fæst af því sem hér er talið upp er að finna á matseðlinum á Canton en matgæðingar ættu einfaldlega að gera boð á undan sér og kanna hvað Wang getur galdrað handa þeim á diska. Hann leikur sér til dæmis að því að útbúa veisluborð með hvítlauksmaríneruðum þorskhausum,“ segir Atli Rúnar. Galdramaður í eldhúsinu Hallgrímur er kvæntur konu frá Kína, Wenyi Zeng og eiga þau soninn Hákon. Canton varð til fyrir tíu árum, fyrst sem matarvagn en er nú í myndarlegu húsi við Vestmannabraut. Hann tekur undir með Atla Rúnari. „Wenyi Zeng fær ekki að njóta sín fulls nema hann fái frjálsar hendur. Panti fólk með fyrirvara og er tilbúið að reyna eitthvað óvænt getur hann

galdrað fram ótrúlegustu rétti, ekki síst úr fiski,“ segir Hallgrímur sem má þakka fyrir að Wenyi yrði ekki innlyksa í Kína í upphafi Coronufaraldursins. „Hann fór í frí til Kína í janúar á síðasta ári og ætlaði að vera í tvo mánuði. Gerði hann sér fljótt grein fyrir því að eitthvað alvarlegt var að gerast þegar fyrstu fréttir komu frá Whuan. Hann hringdi og vildi komast sem fyrst til Íslands. Það tókst og var hann kominn hingað sjöunda febrúar. Hann fór svo í sóttkví, sá fyrsti hér í Vestmannaeyjum. Hann slapp sem betur fer.“ Hallgrímur segir matseðilinn fjölbreyttan, fiskur, kjöt allskonar og kjúklingur sem er alltaf vinsæll. „Við eigum góðan hóp sem kemur reglulega og eru Atli Rúnar og Binni í Vinnslustöðinni meðal góðra viðskiptavina. Binni kemur hingað oft


með útlendinga, marga frá Asíu sem er mjög gaman. Fólk er að koma aftur og aftur og það segir manni að það er ánægt með það sem við bjóðum upp á. Maður sem ég tek mark á sagði um Wenyi; - það geta margir eldað góðan mat en hann hefur þetta auka sem gerir hann að snillingi. Hann hefur eldað fyrir okkur í fimm ár og er ekki bara góður í eldhúsinu, er líka einstaklega vandaður maður sem gott er að lynda við.“ Hallgrímur segir undanfarna mánuði

og ár hafa verið erfitt en segir að erfiðleikarnir hafi þjappað fólki í greininni saman og aðkoma bæjarins hafi skipt miklu máli. „Við gerum okkur grein fyrir því að sameiginlegt markmið, er að fá sem flesta til Eyja. Það er allra hagur, ekki bara okkar sem vinnum við móttöku ferðamanna. Bæjarstjórn hefur lagst á árarnar með okkur og í sameiningu hefur okkur tekist að gera Vestmannaeyjar að heitasta stað á Íslandi,“ segir Hallgrímur sem óendanleg uppspretta

Kæru viðskiptavinir Á laugardaginn 5. júní um sjómannadagshelgina verðum við með strákana frá Kölska í heimsókn á rakarastofunni. Þeir verða á svæðinu frá kl 13-19. Þeir ætla bjóða uppá mælingar á sérsniðnum jakkafötum, einnig bjóða þeir brot af sínu vöruúrvali. Við Rakararnir persónulega mælum með Kölska þar sem þeir bjóða uppá mjög svo vandaðar og flottar vörur. Ef þú hefur áhuga á að panta tíma í mælingu þá getur þú gert það í síma 7666555 eða haft samband á Facebook. Einnig er öllum velkomið að líta bara við og skoða vöruúrvalið.

www.Kolski.is Kveðja Rakararnir

hugmynda um hvað megir gera til að laða hingað fleira fólk. „Hingað komu um 1000 manns á Puffinhlaupið í vor og það eru fjórar milljónir í faragjöldum með Herjólfi. Bara lítið dæmi um hvað svona framtak skiptir miklu máli. Þjóðhátíðin er okkur líka dýrmæt og annað sem ÍBV stendur að. Þetta þykir alveg sjálfsagt en er það alls ekki,“ sagði Halli að endingu.


ÚTSKRIFT FRÁ FRAMHALDSSKÓLA VESTMANNAEYJA Það hefur verið töluverð áskorun fyrir krakkana að hafa agann á að læra meira og minna heima í fjarkennslu allt síðasta ár, þar sem heimsfaraldurinn tók völdin. En þau létu það ekki á sig fá og stóður sig öll eins og hetjur og er Helga Kristín skólameistari að rifna úr stolti af flottu nemendunum. Tígull óskar þeim öllum innilega til hamingju með þennan flotta áfanga í lífinu og óskar þeim góðs gengis í framtíðinni. Á útskriftinni þann 29. maí síðastliðinn.

Glæsilegur hópur nemenda á útskriftinni

Helga Kristín þakkar hér Hugo fyrir samstarfið en hann kveður nú skólann.

ÍBV veitir viðkenningar þeim nemendum sem stundað hafa Akademíuna í 4 annir eða fleiri.

Sigurlaug Margrét Sigmarsdóttir hélt ræðu fyrir hönd stúdenda.


SIGURLAUG MARGRÉT SIGMARSDÓT TIR ÚTSKRIFAÐIST FRÁ FÉLAGSVÍSINDALÍNU. NÆSTA SKREF AÐ KLÁRA SJÚKRALIÐANN.

Nafn: Sigurlaug Margrét Sigmarsdóttir. Aldur: 20 ára Fjölskylda: Mamma mín er Dóra Guðrún Þórarinsdóttir, pabbi minn er Sigmar Valur Hjartarson, og svo systkini Valgerður Elín Sigmarsdóttir og Þórarinn Hjörtur Sigmarsson. Hvaða braut ertu að útskrifast úr? Ég er að útskrifast af félagsvísindalínunni. Hver er draumavinnustaðurinn? Draumastarfið væri læknir á bráðamóttökunni i Fossvoginum. Hvað varð til þess að þú ákvaðst að fara í þetta nám? Ég valdi þetta nám því að ég ætlaði

mér alltaf að verða sálfræðingur en svo kynntist ég sjúkraliðanáminu og heilbrigðiskerfinu og varð ástfangin að því starfi og byrjaði á sjúkraliðabrautinni en þar sem eg var byrjuð á félagsvísindastúdentum þá ákvað ég að klára hann líka. Kostir við FÍV ? Kostir við FÍV er að þessi skóli er með alveg frábært starfsfólk sem er alltaf tilbúið að hjálpa manni með námið. Gallar við FÍV? Gallar er að það vantar smá fjölbreytni í val áfanga. Var það mikil áskorun að halda einbeitingu í Covid ástandinu? Já og nei sko það var náttúrulega erfitt að vera i skóla heima en flestir kennarar náðu að bregðast mjög vel

með því og hafa áhugaverða tíma hjá sér. Besta minningin frá náminu? Besta minningin er klárlega dönskutímar hjá Einari Fidda. Hvað tekur nú við? Núna er bara að klára sjúkraliðastarfsnámið i bænum og útskrifast sem sjúkraliði. Ætlar þú í framhaldsnám? Já ég mun alltaf mennta mig meira, hvort það verði sem læknir eða hjúkrunarfræðingur er ekki ákveðið. Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri að lokum? Já bara muna að njóta lífsins og gera sitt besta í náminu þvi það skiptir máli.


Verslun Skipalyftunnar MIKIÐ ÚRVAL AF: PALLAEFNI VERKFÆRUM VINNUFATNAÐI

HJÓL FYRIR BÖRNIN VEIÐARFÆRAVÖRUM BOLTUM, RÓM OG SKÍFUM STRAUB TENGJUM LEGUM OG PAKKDÓSUM

SUÐU OG SLÍPIVÖRUM HOSU- OG PARIKLEMMUM SMURKOPPUM TRILLU ZINKI VIFTUREIMUM

Skipalyftan ehf. óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með daginn!

Skipalyftan ehf. l Eiðinu l 900 Vestmannaeyjum l Sími 488 3550 l 481 1493


GUNNLAUGUR HRÓÐMAR TÓRSHAMAR ÓSVALDSSON ÚTSKRIFAÐIST AF HÚSASMÍÐABRAUT FÉLAGSVÍSINDALÍNU. NÆSTA SKREF ER EINKAÞJÁLFARANÁM FRÁ KEILI.

Nafn: Ég heiti Gunnlaugur Hróðmar Tórshamar Ósvaldsson Aldur: 20 ára Fjölskylda: Mamma og pabbi heita Salbjörg Ágústsdóttir og Ósvald Alexander. Systkinin mín heita Jóhann Ágúst, Hildur Rán, Alexander Páll, Ólafur Eysteinn, Sigmundur Kristinn og Albert Snær. Útskrift af? Ég er að útskrifast sem stúdent og af húsasmíðabraut. Hver er draumavinnustaðurinn? Draumavinnustaðurinn minn er að vinna sem einkaþjálfari eða styrktarþjálfari einhversstaðar. Hvað varð til þess að þú ákvaðst að fara í þetta nám? Ég fór í smiðinn af því mér finnst

bóklegt nám leiðinlegt og það var minna um bóklegt í húsasmíðinni. Svo tók ég stúdentinn af því mér finnst húfan flott og langaði að klára skólann með stúdentspróf.

sem vorum að læra smiðinn fórum norður á Krókinn tvisvar á önn í verklega lotu og vorum á heimavistinni þar, þegar ég var með Sigga Braga í herbergi.

Kostir við FÍV ? Kostir við FÍV að það vilja allir hjálpa manni og kennararnir eru mjög þægilegir.

Hvað tekur nú við, ætlar þú í framhaldsnám? Ég er að byrja í framhaldsnámi núna á næstu vikum bara, er að byrja að læra einkaþjálfarann hjá Keili. Það sem tekur við hjá mér er að vinna í sumar og læra.

Gallar við FÍV? Gallar við FÍV er að kvistarnir í parketinu stara á mig þóttafullir. Var það mikil áskorun að halda einbeitingu í Covid ástandinu? Það var ekkert svaka erfitt að læra í covid, bara erfitt að vakna til að liggja upp í rúmi að reyna að læra. Besta minningin frá náminu? Besta minningin úr náminu er þegar við

Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri að lokum ? Hvet unglinga og krakka sem liggja upp í sófa og hanga á tiktok allan daginn til að hætta því og drulla sér út og gera eitthvað uppbyggilegt við líf sitt.


Fáðu ráðgjöf Allt um útimálningu, pallaolíu, pallahreinsun og almenna málningavinnu

Föstudaginn

4. júní

í Vestmannaeyjum kl. 12-16

Komdu og fáðu góð ráð hjá Gylfa Gylfi Már Ágústsson, sölustjóri og málarameistari veitir ráðgjöf um viðald á pallinum og allri almennri málningarvinnu.


Sjómannadagsseðill Humartaco með jalapenomangó salsa, japönsku mayo, siracha og stökkum hvítlauk Hægeldað dry aged nauta ribeye með smælki kartöflum, grilluðu grænmeti og bernaise. Irish Coffee

Til hamingju með daginn sjómenn!

8.690 kr.

Borðapantanir á gott.is / Bárustígur 11 / gott.is / 481 3060

Við óskum sjómönnum til hamingju með daginn Þessa helgi munum við bjóða uppá roast beef brauðtertu a la Himmi Nínon og rjómatertu a la Biggi bakari! Minnum okkar vi á nsæl pretzel a & bjórin n! Strandvegur 30 || 481 1104 /vigtin

/vigtinbakhus

Vigtin Bakhús


ÞAÐ ER KOMIN HEFÐ FYRIR SUMARLESTRI Á BÓKASAFNI VESTMANNAEYJA Aðalpersónan er samt tröllastrákurinn Þorsteinn Glúmur sem er um 2.20 m á hæð, en hann langar svo mikið til að læra að lesa. Allir krakkar á skólaaldri fá afhentan lestrarhest í skólanum sem má nýta í sumarlestur Bókasafnsins. Einnig má nálgast lestrarhest á Bókasafninu. Öllum krökkum í Eyjum er boðið að taka þátt og það kostar ekkert! Til að taka þátt í sumarlestrinum þarf að mæta á safnið, skrá sig og taka bók. Þegar bókinni er skilað fyllir lesandinn út miða og límir á „Lagarfljótsorminn“ sem verður búinn til framan á afgreiðsluborðið á safninu. Þegar það er búið má taka aðra bók og svona gengur það út sumarið. Í lok hvers mánaðar munum við draga vinningshafa úr útfylltum miðum. Síðustu ár höfum við haldið upp á lok sumarlestursins með skemmtilegri uppskeruhátíð. Við stefnum að því að bjóða til tröllagleði í kringum skólabyrjun ef að covid leyfir. Það verður nánar auglýst þegar nær dregur.

Í ár hefst sumarlesturinn 1. júní en það er hægt að skrá sig í allt sumar. Tilgangurinn með sumarlestrinum er að hvetja krakka til að lesa og að þau viti að bókasöfn eru bara rosa skemmtilegir staðir.

Í ár er þemað tröll og kynjaverur úr íslenskum þjóðsögum. Búið er að skreyta barna- og unglingadeildina í takt við það og skuggamyndir af furðudýrum skreyta veggina.

Til hamingju með daginn sjómenn & fjölskyldur! www.heimadecor.is Strandvegur 39

Hlökkum til að sjá ykkur í sumar á Bókasafninu!


Til hamingju með daginn sjómenn! Sjómannadagurinn 6. júní 2021


Ship -O-

Hoj!

Við óskum vinum okkar í Vestmannaeyjum innilega til hamingju með daginn.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Tígull 18.tbl 03 árg. by Leturstofan - Issuu